eystrahorn 21. tbl. 2013

12
Fimmtudagur 30. maí 2013 www.eystrahorn.is Eystrahorn 21. tbl. 31. árgangur www.eystrahorn.is Dúx Framhaldsskólans var Þórhildur Sigurðardóttir og í viðtali við blaðið sagði hún; Skólinn, árangur og félagslífið „Ég held að það sé engin ein leið fyrir fólk að ná góðum árangri, en aðalatriðin eru náttúrlega að hafa metnað fyrir því sem þú ert að gera, vera vel skipulagður og jákvæður og finnast námið skemmtilegt. Mér finnst FAS mjög skemmtilegur skóli og mér finnst það vera forréttindi að hafa framhaldsskóla í mínum heimabæ, skólinn er lítill og ef maður þurfti hjálp gat maður alltaf leitað til kennaranna. Námið er einnig skemmtilegt og ég hef í raun ekkert nema gott að segja um námið og skólann. Eins og flestir vita hefur félagslífið breyst til hins betra á síðustu árum og ég vona bara að það haldi áfram að aukast og verði enn virkara, því það er nauðsynlegt að hafa gott félagslíf í skólum.“ Framtíðaráform og þakklæti „Það er nú stóra spurningin hvað tekur við, hvort maður eigi að fara vinna eða beint í háskóla. Mikið nám er í boði á Íslandi í dag. Eins og staðan er í dag hjá mér og verður þangað til annað kemur í ljós þá er stefnan tekin á Háskólann á Akureyri í nám sem kallast Líftækni. Ég er glöð með að hafa valið að fara í FAS og átt þess kost að stunda framhaldsnám í mínum heimabæ. Að lokum langar mig að þakka starfsfólki skólans og skólasystkinum mínum fyrir þessi góðu, gefandi og skemmtilegu ár sem ég var í skólanum.“ Auglýsingar og efni í næsta blað þurfa að berast fyrir kl. 18:00 mánudaginn 3. júní Laugardaginn 25. maí sl. fór fram útskrift frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Alls voru útskrifaðir 27 stúdentar, sjö fjallamennskunemar, þrír félagsliðar og þrír af B-stigi vélstjórnar. Einn nemandi útskrifaðist af starfsbraut. Nýstúdentar eru: Aleksandra Vrbaski, Anna Mekkín Reynisdóttir, Arna Ósk Harðardóttir, Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir, Brynja Rut Borgarsdóttir, Eva Kristín Guðmundsdóttir, Fannar Blær Austar Egilsson, Guðjón Ingibergur Ólafsson, Hjördís Lilja Sveinsdóttir, Jóhann Árni Andrésson, Karen Björg Halldórsdóttir, Kolbrún Birna Ólafsdóttir, Kristey Lilja Valgeirsdóttir, Kristjana H. Þorvarðardóttir, Lejla Cardaklija, Mist Grétarsdóttir, Ólafur Einir Birgisson, Pálmi Geir Sigurgeirsson, Rafn Svan Gautason, Reynir Ásgeirsson, Róslín Alma Valdemarsdóttir, Sigurður Þór Friðþórsson, Sólveig V. Sveinbjörnsdóttir, Sævar Knútur Hannesson, Þorbjörg Gunnarsdóttir, Þórdís Imsland og Þórhildur Sigurðardóttir. Dúx að þessu sinni er Þórhildur Sigurðardóttir. Fjallamennskunemar eru: Oddur Eldjárn, Gísli Þór Briem, Ívar Eiðsson, Margrét Vignisdóttir, Sigurður Ragnarsson, Sólveig V. Sveinbjörnsdóttir og Þorsteinn Dagur Rafnsson. Félagsliðar eru: Anna Antonsdóttir, Anna Kristín Hauksdóttir og Elísabet Þorsteinsdóttir. Af B-stigi vélstjórnar útskrifast: Björn Jón Ævarsson, Emil Karlsson og Ólafur Jónsson. Þá útskrifast Halldór Ólafsson af starfsbraut. Starfsfólk Eystrahorns óskar útskriftarnemendum til hamingju með áfangann og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni. Útskrift frá FAS Þórhildur Sigurðardóttir dúx Eystrahorn David Moyes kom líka til Hornafjarðar Humarhátíð á 20 ára afmæli

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 22-Mar-2016

264 views

Category:

Documents

5 download

DESCRIPTION

Eystrahorn 21. tbl. 2013

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 21. tbl. 2013

Fimmtudagur 30. maí 2013 www.eystrahorn.is

Eystrahorn21. tbl. 31. árgangur www.eystrahorn.is

Dúx Framhaldsskólans var Þórhildur Sigurðardóttir og í viðtali við blaðið sagði hún;

Skólinn, árangur og félagslífið

„Ég held að það sé engin ein leið fyrir fólk að ná góðum árangri, en aðalatriðin eru náttúrlega að hafa metnað fyrir því sem þú ert að gera, vera vel skipulagður og jákvæður og finnast námið skemmtilegt. Mér finnst FAS mjög skemmtilegur skóli og mér finnst það vera forréttindi að hafa framhaldsskóla í mínum heimabæ, skólinn er lítill og ef maður þurfti hjálp gat maður alltaf leitað til kennaranna. Námið er einnig skemmtilegt og ég hef í raun ekkert nema gott að segja um

námið og skólann. Eins og flestir vita hefur félagslífið breyst til hins betra á síðustu árum og ég vona bara að það haldi áfram að aukast

og verði enn virkara, því það er nauðsynlegt að hafa gott félagslíf í skólum.“

Framtíðaráform og þakklæti„Það er nú stóra spurningin hvað tekur við, hvort maður eigi að fara vinna eða beint í háskóla. Mikið nám er í boði á Íslandi í dag. Eins og staðan er í dag hjá mér og verður þangað til annað kemur í ljós þá er stefnan tekin á Háskólann á Akureyri í nám sem kallast Líftækni.Ég er glöð með að hafa valið að fara í FAS og átt þess kost að stunda framhaldsnám í mínum heimabæ. Að lokum langar mig að þakka starfsfólki skólans og skólasystkinum mínum fyrir þessi góðu, gefandi og skemmtilegu ár sem ég var í skólanum.“

Auglýsingar og efni í næsta blað þurfa að berast fyrir kl. 18:00 mánudaginn 3. júní

Laugardaginn 25. maí sl. fór fram útskrift frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Alls voru útskrifaðir 27 stúdentar, sjö fjallamennskunemar, þrír félagsliðar og þrír af B-stigi vélstjórnar. Einn nemandi útskrifaðist af starfsbraut. Nýstúdentar eru: Aleksandra Vrbaski, Anna Mekkín Reynisdóttir, Arna Ósk Harðardóttir, Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir, Brynja Rut Borgarsdóttir, Eva Kristín Guðmundsdóttir, Fannar Blær Austar Egilsson, Guðjón Ingibergur Ólafsson, Hjördís Lilja Sveinsdóttir, Jóhann Árni Andrésson, Karen Björg Halldórsdóttir, Kolbrún Birna Ólafsdóttir, Kristey Lilja Valgeirsdóttir, Kristjana H. Þorvarðardóttir, Lejla Cardaklija, Mist Grétarsdóttir, Ólafur Einir Birgisson, Pálmi Geir Sigurgeirsson, Rafn Svan Gautason, Reynir Ásgeirsson, Róslín Alma Valdemarsdóttir, Sigurður Þór Friðþórsson, Sólveig V. Sveinbjörnsdóttir, Sævar Knútur Hannesson, Þorbjörg Gunnarsdóttir, Þórdís Imsland og Þórhildur Sigurðardóttir. Dúx að þessu sinni er Þórhildur Sigurðardóttir. Fjallamennskunemar eru: Oddur Eldjárn, Gísli Þór Briem, Ívar Eiðsson, Margrét Vignisdóttir, Sigurður Ragnarsson, Sólveig V. Sveinbjörnsdóttir og Þorsteinn Dagur Rafnsson. Félagsliðar eru: Anna Antonsdóttir, Anna Kristín Hauksdóttir og Elísabet Þorsteinsdóttir. Af B-stigi vélstjórnar útskrifast: Björn Jón Ævarsson, Emil Karlsson og Ólafur Jónsson. Þá útskrifast Halldór Ólafsson af starfsbraut. Starfsfólk Eystrahorns óskar útskriftarnemendum til hamingju með áfangann og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.

Útskrift frá FAS

Þórhildur Sigurðardóttir dúx

Fimmtudagur 23. maí 2013www.eystrahorn.is

Eystrahorn20. tbl. 31. árgangur

www.eystrahorn.is

Einn mest umtalaði einstaklingur í knattspyrnuheiminum þessa dagana er David Moyes nýr knattspyrnustjóri Manchester United. Íslenskir fjölmiðlar hafa að undanförnu greint frá tengslum hans við land og þjóð. Það vill svo til að David heimsótti Hornafjörð árið 1978 ásamt vini sínum Stewart. Ritstjóri Eystrahorns var þá formaður knattspyrnudeildar Sindra og þjálfari allra flokka. “Ég hafði upphaflega kynnst David Moyes eldri þegar ég var þjálfari unglingalandsliðs Íslands og hafði farið með liðið í æfingabúðir til Skotlands. David skipulagði ferðina og tók þátt í æfingum með okkur enda var hann mjög góður þjálfari sjálfur. Eftir það fór ég allmargar ferðir með lið til Skotlands bæði á vegum FH og Sindra. Í öll skiptin skipulagði David ferðirnar og sinnti hópunum af sérstakri umhyggju allan tímann og David yngri aðstoðaði hann á ýmsan hátt. Við þessi samskipti sköpuðust vinatengsl og í einni Íslandsheimsókn þeirra feðga flaug David yngri ásamt Stewart austur til okkar Ástu í heimsókn í nokkra daga. Þeir aðstoðuðu mig á æfingum og fóru í keppnisferð með yngri flokkunum austur á land. Við keyrðum síðan með þá til Reykjavíkur og sýndum þeim helstu ferðamannastaðina á leiðinni. Því miður var myndavél ekki með í för í því ferðalagi en ein mynd fannst úr ferðalaginu austur á land. Hún er tekin við Djáknadys í Álftafirði þar sem áð var eins og við gerðum gjarnan og köstuðum steinum í dysina. Það vill svo til að David snýr baki í myndavélina og er að teygja úr sér sem ekki var vanþörf á eftir setu í litlu rútunum; hossandi á malarvegunum. Stewart situr á steini við hliðina á honum. Skotlandsferðirnar voru lærdómsríkar og juku áhuga á knattspyrnunni hér á Hornafirði og þátttöku á upphafsárunum. Moyesfjölskyldan á því kannski svolítinn þátt í uppbyggingu og farsælu starfi knattspyrnudeildarinnar sem getur ekki annað en talist skemmtilegt fyrir okkur Sindramenn.”

David Moyes kom líka til Hornafjarðar

Það þekkja sig einhverjir á þessari mynd í stúkunni hjá Glasgow Rangers í Skotlandsferð fyrir allmörgum árum. David Moyes eldri er efstur til hægri í brúnum jakka.Áð við Djáknadys. Knattspyrnustjórinn teygir úr sér en þessa stellingu má sjá enn í dag þegar mikið gengur á í leikjum.

Vonir standa til að brottfluttir og íbúar Hornafjarðar eigi eftir að skemmta sér og sínum saman þessa helgi. Undirbúningur fyrir hátíðna er nú þegar hafinn. Kristín Kristjánsdóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri humarhátíðar og er komin með skrifstofuaðstöðu í Ráðhúsi bæjarins. Fundir humarhátíðarnefndar hafa verið fjölmargir og margar góðar hugmyndir komnar í loftið. Nefndin leggur áherslu á blandaða viðburði og skemmtiatriði og þá helst úr samfélaginu Hornafirði. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að hafa samband og vera með. Þeir sem hafa áhuga á að koma fram eða vilja vera með uppákomur víðs vegar um bæinn er bent á að hafa samband við Kristínu í síma 470800 eða á netfagnið [email protected]. Einnig er fyrirtækjum og einstaklingum bent á að hafa samband við Kristínu ef viðburðir á þeirra vegum eiga að vera í dagskrá hátíðarinnar.

Humarhátíð á 20 ára afmæli- kallar eftir heimagerðum atriðumFrá Humarhátíð 1995.

Næsti heimaleikur er: Borgunarbikar karla, Sindri – Ýmir miðvikudaginn 29. maí kl. 19:15.

Page 2: Eystrahorn 21. tbl. 2013

2 EystrahornFimmtudagur 30. maí 2013

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,

Fjólu Aradóttur,Fossi á Síðu.

Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunarheimilinu í Austur-Skaftafellssýslu fyrir alúð og hlýju.

Kjartan Jónsson Lovísa EymundsdóttirEiríkur Jónsson Birna AðalsteinsdóttirAri Jónsson Ólafía I. GísladóttirÓmar Jónsson Ingibjörg Atladóttirbarnabörn og barnabarnabörn

HafnarkirkjaSunnudaginn 2. júní

Sjómannadagur

Messa kl. 14:00

Helga Vala Friðriksdóttir flytur hugvekju. Að lokinni messu verður lagður blómsveigur að minnismerki sjómanna í minningarreit.

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

BjarnaneskirkjaSunnudaginn 2. júní

Sjómannadagur

Messa kl. 14:00 - ferming

Prestarnir

FIDE-meistarinn Davíð Kjartansson náði frábærum árangri s.l helgi þegar hann lenti í 2. sæti á Íslandsmótinu í atskák. Þar laut hann í lægra haldi fyrir alþjóðalega meistaranum Arnari E. Gunnarssyni. Einvígið fór fram í beinni útsendingu á RÚV. Var það æsispennandi frá upphafi til enda og réðust úrslit ekki fyrr en í bráðabana. Á sunnudeginum var haldið á Selfoss og keppt á Suðurlandsmótinu í skák. Þar sigraði Davíð með yfirburðum, lagði alla andstæðinga sína að velli og endaði mótið með 8 vinninga af 8 mögulegum. Nýlega fluttist Davíð til Hafnar í Hornafirði og var því gjaldgengur í þetta mót. Tryggði hann sér þar með titilinn Suðurlandsmeistari í skák 2013 í fyrsta sinn. Þess má til gamans geta að fyrr á árinu varð hann Skákmeistari Reykjavíkur og Íslandsmeistari með félagsliði sínu Víkingaklúbbnum í efstu deild. Davíð var að sjálfsögðu vel merktur Ríki Vatnajökuls og visitvatnajokull.is bæði í sjónvarpinu og á Suðurlandsmótinu, en Davíð starfar sem framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls. Fyrir áhugasama er hægt að nálgast upptöku af einvíginu á www.ruv.is/sarpurinn.

Hornfirðingar eignast skákmeistara

SilfurbrautUm er að ræða 147,6 einbýlishús timbur á góðum stað í botngötu. 4 svefnherbergi, borðstofa og stór stofa, góð eign sem þarfnast endurbóta.

fiSkhóllFalleg 113,2 m² 4ra herb., neðri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt 24,2 m² bílskúr, mikið útsýni. Húsið hefur verið einangrað og klætt að utan.

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

Litlabrú 1 • 780 Höfn • Sími 580 7915Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Garðarsbraut 5 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7902

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7907

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík, Sími 580 7925

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari, Höfn, Sími 580 7915

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. fasteignasaliog lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum, Sími 580 7908

Nýtt á skrá

sumarfríFasteignasalan INNI, Umboð TM og Jaspis hársnyrtistofa verður

lokuð vegna sumarleyfa frá og með 3. til 14. júní.

Vegna Fasteignasölu hafið samband við INNI á Egilsstöðum 580-7905, vegna TM hafið samband við TM í

Reykjavík 515-2000.

Til söluHjólhýsi, Adria 543, kojuhús. Upplýsingar í síma 861-3408 eða 478-2434.

GOlfkENNSlaGolfnámskeiðin sem auglýst voru

í síðasta Eystrahorni (www.eystrahorn.is) verða dagana

29., 30. og 31. maí.

Upplýsingar á netfanginu [email protected]

eða í síma 616-2609.

Page 3: Eystrahorn 21. tbl. 2013

3Eystrahorn Fimmtudagur 30. maí 2013

Munið kaffihlaðborð Kvennakórsins í mötuneyti Skinneyjar-Þinganess

laugardaginn 1. júní kl. 13:00 - 16:00.

Kvennakór Hornafjarðar verður með tónleika í Árbæjarkirkju í Reykjavík

þriðjudagskvöldið 4. júní kl. 20:00Aðgangseyrir kr. 2.000,-

Innritun í Grunnskóla HornafjarðarInnritun nýrra nemenda í Grunnskóla

Hornafjarðar fer fram í skólanum 27. maí – 4. júní nk. Foreldrar og forráðamenn

barna sem fædd eru 2007 eru beðnir um að hringja í skólann í síma 470 8400,

eða koma í Hafnarskóla og innrita börn sín fyrir næsta skólaár.

Foreldrar munu fá sendar nánari upplýsingar af fyrirkomulagi vetrarins í sumar en skóli verður settur með skólasetningarviðtölum

dagana 23. og 26. ágúst.

Skólastjórnendur

Dagana 22. - 24. maí sl. hélt Grunnur, félag fræðslustjóra og stjórnenda á skólaskrifstofum, vorþing sitt að Smyrlabjörgum. Grunnur fundar vor og haust um málefni leik-, grunn- og tónskóla og um samskipti ríkis og sveitarfélaga varðandi grunnmenntun í landinu. Rætt var m.a. um leiðir til að innleiða nýja aðalnámskrá, breytingar á námsmati, sérfræðiþjónustu og upplýsingatækni í skólastarfi. Á fimmtudeginum fór hópurinn sem taldi um 50 manns í heimsókn að Þórbergssetri þar sem staðarhaldarar fluttu fræðandi og skemmtilega dagskrá. Ekki skemmdi fyrir að veðrið var sólríkt og bjart svo sveitin skartaði sínu fegursta.

Skólafólk fundar á Smyrlabjörgum Frá Tónskóla A-Skaft.Hægt er að innrita nýnema fyrir skólaárið

2013 -2014 á heimasíðu skólans www.rikivatnajokuls.is/tonskoli

Einnig verður hægt að nálgast umsóknarblöð og skila inn í haust þegar skólinn byrjar. Nánar auglýst er nær dregur.

Skólastjóri

Meira í leiðinni

N1 ÞJÓNUSTUSTÖÐBRÚARTORG 1 | 310 BORGARNES | 440 1333WWW.N1.IS

OPNUNARHÁTÍÐÁ N1 BORGARNESISKEMMTIDAGSKRÁ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNAVið bjóðum öllum landsmönnum að fagna með okkur opnun á nýrri og glæsilegri þjónustustöð N1 í Borgarnesi. Hátíðin verður á milli 15 og 18 föstudaginn 31. maí.

Page 4: Eystrahorn 21. tbl. 2013

4 EystrahornFimmtudagur 30. maí 2013

Gönguvikan “Ekki lúra of lengi” 6. - 10. júníFerðafélag Austur-Skaftfellinga

Fimmtudagur 6. júní • SelungagangaHaukafell - kvöldferð (2 skór). Frekar létt ferð. Brottför frá Höfn kl. 17:00. Verð kr. 1.000,- Allar upplýsingar um ferðina veitir Ragna Pétursdóttir í síma 662-5074.

Föstudagur 7. júní • SteinbítsgangaGrasgiljatindur - kvöld og næturferð (3 skór). Brottför frá Höfn kl. 17:00. Verð kr. 3.000,- Fólk sammeinast í bíla, við aðstoðum fólk við að útvega sér brodda. Skrá þarf í þessa ferð. Allar upplýsingar um ferðina veitir Ragna Pétursdóttir í síma 662-5074

Laugardagur 8. júní • FlyðrugangaUndirheimar Þvottárskriðna (2 skór). Brottför frá Höfn kl. 09:00. Verð kr. 1.000,- Allar upplýsingar um ferðina veitir Ragna Pétursdóttir í síma 6625074

Laugardagur 8. júní • GrálúðugangaBæjardalur-Starmýradalur (3 skór). Brottför frá Höfn kl. 9:00. Verð kr. 1.000,- Allar upplýsingar um ferðina veitir Ragna Pétursdóttir í síma 662-5074.

Sunnudagur 9. júní • KeilugangaBergárdalur - Þorkelsskarð - Endalausidalur (2 skór). Brottför frá Höfn kl. 11:00. Verð kr. 1.000,- Allar upplýsingar um ferðina veitir Ragna Pétursdóttir í síma 662-5074.

Mánudagur 10.júní • SaltfisksgangaStafafell - Hvannagil (2 skór). Grill og gönguvikulok. Brottför frá Höfn kl. 14:00. Verð kr. 2.500,- Innifalið er grill í lok ferðar, drykkir og kaffi. Allar upplýsingar um ferðina veitir Ragna Pétursdóttir í síma 662-5074.

Lagt er af stað frá Tjaldstæðinu á Höfn í allar ferðirnar. Ef fólk vill koma í ferðina á öðrum

stað hafið þá vinsamlegast samband við Rögnu í síma 662-5074.

Fólk sameinast í bíla. Hér er tillaga að verðskrá fyrir fólk sem þarf að fá far hjá öðrum.

Eknir km 0 - 50, Kr. 500 Eknir km 50 - 100, Kr. 1000 Eknir km 100 - 200, Kr. 1500 Eknir km 200 - 300, Kr. 2000

Leikjanámskeið SindraBoðið verður upp á þrjú námskeið í sumar fyrir börn fædd 2004 – 2007. Fyrsta námskeiðið verður 3.-14. júní, annað 18.-28 júní og þriðja 1.-12. júlí. Hvert námskeið kostar 8.500 kr. en ef tekin eru tvö þá kosta þau 15.000 kr. og ef öll eru tekin þá kosta þau samtals 22.500 kr. Hægt er að dreifa greiðslunni.

Ekkert námskeið er eins og lögð áhersla á fjölbreytni og að hafa þau skemmtileg t.d. sveitaferð, veiðiferð, óvissuferð, ratleik, hjólaferð, fjöruferð og ýmislegt fleira. Munið eftir að hafa með nesti.

Ekki er skráð á námskeiðið fyrirfram heldur á mæta fyrsta dag hvers námskeiðs og þá er skráð og gengið frá greiðslu.

Umsjónaraðili námskeiðsins er Guðrún Ása.

Gróðrarstöðin DilksnesiSumarblóm, matjurtir, fjölær blóm, tré, runnar

o.fl. Nær allar plöntur ræktaðar í Dilksnesi. Opnunartilboð! 25% afsláttur af broddfuru,

garðakvisti og sunnukvisti

Opið virka daga kl. 13:00 -18:00 og laugardaga kl. 11:00 - 15:00

Jón Vilberg í forystu

Jón Vilberg Gunnarsson, ríkjandi Íslandsmeistari, hefur tekið afgerandi forystu í stigakeppni Íslandsmótsins í torfærukeppni í götubílaflokki. Þegar tvær umferðir eru búnar, í Vestmanneyjum og Jósepsdal, hefur hann hlotið 47 stig en næstu tveir keppendur eru með 27 stig. Í báðum keppnunum fékk hann tilþrifaverðlaunin og besta tíma í tímaþraut. Í Jósepsdal fékk hann 1980 stig, 120 stigum frá fullkomnu skori. Þriðja umferð verður á Egilsstöðum 29. júní.

Page 5: Eystrahorn 21. tbl. 2013

Nemendur Grunnskólans í Hofgarði í vorferð að Morsárjökli ásamt kennurum og þjóðgarðsverði

Kátir krakkar í barnastund með landvörðum

INNGANGUR

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Hér komast þeir í návígi við stórbrotna náttúru þar sem jökultungur skríða fram á láglendi milli tignarlegra fjallstinda, og menningu sem mótast hefur af þessari sérstöku náttúru og duttlungum hennar.

Jökullinn og náttúran hafa mikið gildi bæði fyrir ferðamenn og heimamenn. Æ fleiri atvinnurekendur eiga hag sinn undir blómlegri ferðaþjónustu og aðrir íbúar njóta góðs af ýmsu sem af henni leiðir, s.s. aukinni þjónustu og verslun. Ferðaþjónustan getur þó reynt á þolmörk heimamanna, rétt eins og þolmörk náttúrunnar, og því er það allra hagur að vel sé staðið að málum.

Gæði og öryggi eru lykilatriði í ferðaþjónustu. Við verðum að gera þær kröfur til sjálfra okkar og annarra að búa vel að þessari fjölbreyttu atvinnugrein og slá hvergi af kröfum um aðbúnað og öryggi ferðamanna og þeirra sem í greininni starfa. Sé þetta haft að leiðarljósi ásamt umhyggju fyrir auðlindinni sjálfri, náttúrunni, þá er ég sannfærð um að okkur muni farnast vel.

Regína Hreinsdóttirþjóðgarðsvörður á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

SUÐURSVÆÐI FRÉTTABRÉF VOR / SUMAR 2013

DAGSKRÁ LANDVARÐA Á SUÐURSVÆÐI

Litlir landverðir í SkaftafelliFöstudaga, laugardaga og sunnudaga á tímabilinu 15. júní til 4. ágúst

Áhugasamir krakkar á aldrinum 6-12 ára slást í för með landverði og rannsaka náttúruna í Skaftafelli. Áætla má að rannsóknarleiðangurinn taki 45-60 mínútur.Hittumst kl. 16 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu).Aðra daga vikunnar geta foreldrar og börn haft samband við landverði, sem gera sitt besta til að verða við óskum þeirra varðandi leiðsögn um náttúruna.

Þjóðgarður í SkaftafelliAlla daga á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst

Kvöldrölt um Skaftafell í fylgd landvarðar. Rætt um tilurð þjóðgarðsins, hlutverk hans og áhrif á náttúrufar og samfélag. Gangan tekur 45-60 mínútur. Hittumst kl. 20 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu). Leiðsögn á íslensku.

Skaftafellsjökull og loftslagsbreytingarAlla daga á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst

Landvörður fylgir gestum áleiðis að Skaftafellsjökli, segir þeim frá landmótun jökulsins og hnignun hans. Rætt verður um loftslagsbreytingar og ástæður þeirra. Gangan tekur 45-60 mínútur.

Hittumst kl. 10:00 við Skaftafellsstofu. Leiðsögn á íslensku og ensku.

Gengið í BæjarstaðAlla laugardaga á tímabilinu 15. júní til 4. ágúst

Gengið frá Skaftafelli í Bæjarstaðarskóg. Ætla má að gangan taki um sex klukkustundirVið hittumst kl. 10:00 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu). Leiðsögn á íslensku.

Leiðsögn um SelAlla sunnudaga á tímabilinu 15. júní til 4. ágúst

Landvörður tekur á móti gestum í Seli og segir frá daglegu lífi fólksins sem þar bjó.Gestir hitta landvörð við Sel kl. 14:00. Leiðsögn á íslensku.

Gönguferð um HeinabergssvæðiAlla daga nema sunnudaga á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst

Vatnajökulsþjóðgarður býður upp á léttar göngur um Heinabergssvæðið klukkan 10, alla daga nema sunnudaga. Ferðirnar hefjast við Heinabergsafleggjara austan Kolgrímu, þaðan er ekið að áhugaverðum stöðum á svæðinu og gengið út frá þeim. Hver ferð tekur um tvær og hálfa klukkustund.Útbúnaður: Góðir strigaskór eða gönguskór og útivistarklæðnaður.

Hittumst klukkan 10 við Heinabergsafleggjarann austan Kolgrímu.

4

Á Facebooksíðu Vatnajökulsþjóðgarðs segjum við fréttir, birtum myndir, auglýsum viðburði og póstum ýmsu öðru, merkilegu og ómerkilegu. Fylgstu með okkur!

Page 6: Eystrahorn 21. tbl. 2013

Vatnajökulsþjóðgarður • Gamlabúð • Heppuvegi 1 • 780 Höfn • Sími 470 8330 Vatnajökulsþjóðgarður • Skaftafelli • 785 Öræfi • Sími 470 8300

GESTASTOFA Í GÖMLUBÚÐÞessa dagana er verið að ljúka viðgerðum á Gömlubúð sem mun næstu árin hýsa upplýsingamiðstöð ferðamála og gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs. Upplýsingamiðstöðin opnaði 1. maí sl. og verður opin allt árið. Vatnajökulsþjóðgarður hefur tekið þátt í rekstri hennar sl. 3 ár en tók alfarið við rekstrinum í fyrra í samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð. Þrír starfsmenn verða við störf í Gömlubúð í sumar auk þeirra tveggja heilsársstarfsmanna sem eru með aðsetur á Höfn. Landvörður hefur starfað á Höfn undanfarin 3 sumur og m.a. séð um eftirlit með áningarstöðum allt að Jökulsárlóni og boðið upp á gönguferðir við Heinaberg.

Lítillegar tafir hafa orðið á frágangi hússins vegna óhapps í byrjun maí en við væntum þess að okkur takist samt að opna sýninguna þar 7. júní á 5 ára afmæli þjóðgarðsins. Margir heimamenn hafa komið að sýningunni sem fjallar um náttúru og mannlíf svæðisins en einnig aðrir fræðimenn og tæknimenn. Hönnuður sýningarinnar er Þórunn Þorgrímsdóttir sem m.a. hannaði landnámssýninguna í Reykjavík 871+-2, og Veraldarhjólið, sýningu þjóðgarðsins í Snæfellsstofu. Það er starfsmönnum Vatnajökulsþjóðgarðs sérstakt ánægjuefni að styrkja tengslin við þéttbýlisstað svæðisins og væntum við þess að eiga gott samstarf við íbúa, skóla, atvinnulíf og stofnanir á svæðinu. Eins og undanfarin ár munu ferðaþjónustuaðilar í Skálafelli, Hólmi og Hoffelli einnig sjá um upplýsingagjöf fyrir þjóðgarðinn yfir sumartímann.

UMGJÖRÐIN Þjóðgarður sprettur ekki alskapaður fram á sjónarsviðið. Sérstök lög og reglugerð eru til fyrir Vatnajökulsþjóðgarð en stærsta verkefni stjórnar, svæðisráða og starfsmanna frá stofnun hans var vinna að Stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins sem er nú um mundir í fyrstu endurskoðun. Að þeirri vinnu kom einnig fjöldi annarra sérfræðinga. Jafnframt þeirri vinnu var unnin Umhverfis-skýrsla fyrir þjóðgarðinn. Þessi gögn eru öll aðgengileg á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs http://www.vatnajokulsthjodgardur.is/verndun-og-stjornun/ Annað stórt verkefni sem enn er í vinnslu, en sér vonandi brátt fyrir endann á, er atvinnustefna þjóðgarðsins sem ásamt skipulagi hvers svæðis er m.a. ætlað að leggja línurnar um atvinnustarfsemi innan þjóðgarðsins í sátt við náttúruna og þolmörk gesta og heimamanna.

VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR FÆR VAKANNFrá því á haustdögum hafa starfsmenn þjóðgarðsins unnið að umsókn að Vakanum, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar www.vakinn.is. Vatnajökulsþjóðgarður fékk formlega viðurkenningu sem þátttakandi í Vakanum 2. maí sl. og er fyrsta ríkisstofnunin til þess.

SKAFTAFELL Í VETURFrá því að vetraropnun Skaftafellsstofu hófst 2009-10 hefur gestum sem hana heimsækja fjölgað stöðugt. Sem dæmi má nefna að í janúar 2010 komu 58 manns í heimsókn en í ár voru þeir 757. Sömu sögu er að segja af mars en í ár komu 8.228 gestir, samanborið við 1.127 gesti árið 2010. Til að bregðast við þessu hefur verið bætt við starfsmanni yfir vetrartímann og afgreiðslutími gestastofunnar lengdur. Það hefur í för með sér að meiri samfella verður í öllum verkum, sem vonandi leiðir til þess að þjónusta þjóðgarðsins verði enn betri og faglegri.

Tíðin í vetur var mjög góð og margir gestir sem lögðu leið sína að Svartafossi og Skaftafellsjökli. Það er gaman að ganga í Skaftafelli yfir vetrartímann en aukinn fjöldi gesta eykur líka álag á göngustíga og umhverfi þeirra. Það myndast fljótt svellbunkar þegar snjór þjappast niður og fólk leitar þá út fyrir stígana til að krækja fyrir þá. Í vetur lagði starfsfólk sig fram við að fylgjast með ástandi helstu göngustíga og koma þeim upplýsingum til ferðamanna í Skaftafellsstofu svo þeir vissu á hverju þeir ættu von.

FEBRÚARVEÐRIÐSvellbunkar á göngustígum hurfu í miklum hlýindum í febrúar. Að kvöldi 24. febrúar kom úrhellis-rigning sem stóð í tæpa tvo sólarhringa og þegar yfir lauk höfðu 310 mm af regnvatni skilað sér til jarðar, til viðbótar leysingavatni úr fjallinu. Miklar skemmdir urðu á göngustígum, göngubrúm og varnargörðum og stífla við gömlu rafstöðina í Bæjargili brast.

Svo vel vildi til að hópur sjálfboðaliða frá Bandaríkjunum kom til vikudvalar um miðjan mars og var þá þegar hafist handa við að laga göngustíginn að Svartafossi. Unnu þau mikið þrekvirki því 10 tonn af möl voru borin upp brekkurnar til að fylla í dýpstu vatnsrásirnar. Hópurinn samanstóð af 10 nemendum og leiðbeinanda frá Eckerd College í St. Petersborg, Flórída og er þetta í þriðja sinn sem hópur þaðan kemur í Skaftafell. Undanfarið hefur einnig verið unnið að lagfæringum á gönguleiðinni við Lambhaga og inn að Skaftafellsjökli, þar sem hægt er að komast að með tækjum.

Þess má svo geta að í kjölfar rigninganna féll mikil skriða úr hlíðum Svínafells á austanverðan Svínafellsjökul. Sést fremsti hluti hennar vel frá þjóðveginum. Jarðfræðingar hafa mælt skriðuna en tölur um umfang hennar munu liggja fyrir síðar.

SKAFTAFELL Í SUMARÍ sumar verður starfsemi í Skaftafelli með svipuðum hætti og undanfarin ár þar sem rík áhersla er á þjónustu við ferðamenn í gestastofu, veitingasölu og á tjaldsvæði. Jafnframt munu landverðir sinna eftirliti innan garðsins og á áningastöðum milli Skaftafells og Kvíár- jökuls, í samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð og Vegagerðina.

Mikið verk er fyrirliggjandi í lagfæringu göngustíga. Í ár má vænta fleiri sjálfboðaliða í Skaftafell en nokkru sinni fyrr og vinna þeir að viðhaldi göngustíga, upprætingu lúpínu í Morsárdal og ýmsum smærri verkefnum. Sjálfboðaliðarnir eru á vegum Umhverfisstofnunar og koma flestir frá meginlandi Evrópu og Bretlandi.

Að venju verða ýmsir viðburðir í Skaftafelli í sumar auk þess sem landverðir munu bjóða upp á fasta dagskrá fyrir gesti. Kvennahlaup Sjóvá og ÍSÍ verður laugardaginn 8. júní og rúmri viku síðar er Dagur hinna villtu blóma. Í tilefni af því verður farið í stutta gönguferð frá Skaftafellsstofu sunnudaginn 16. júní kl. 11:00 og hinar ýmsu blómplöntur sem þar finnast skoðaðar. Fleiri viðburða er að vænta og verða þeir auglýstir á heimasíðu þjóðgarðsins.

32

Gamlabúð á Höfn

Rafstöðin í Bæjargili 25. febrúar 2013

Ólöf Ýr Atladóttir, ferðamálastjóri, og Kristveig Sigurðardóttir, formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs

Page 7: Eystrahorn 21. tbl. 2013

Page 8: Eystrahorn 21. tbl. 2013

Nemendur Grunnskólans í Hofgarði í vorferð að Morsárjökli ásamt kennurum og þjóðgarðsverði

Kátir krakkar í barnastund með landvörðum

INNGANGUR

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Hér komast þeir í návígi við stórbrotna náttúru þar sem jökultungur skríða fram á láglendi milli tignarlegra fjallstinda, og menningu sem mótast hefur af þessari sérstöku náttúru og duttlungum hennar.

Jökullinn og náttúran hafa mikið gildi bæði fyrir ferðamenn og heimamenn. Æ fleiri atvinnurekendur eiga hag sinn undir blómlegri ferðaþjónustu og aðrir íbúar njóta góðs af ýmsu sem af henni leiðir, s.s. aukinni þjónustu og verslun. Ferðaþjónustan getur þó reynt á þolmörk heimamanna, rétt eins og þolmörk náttúrunnar, og því er það allra hagur að vel sé staðið að málum.

Gæði og öryggi eru lykilatriði í ferðaþjónustu. Við verðum að gera þær kröfur til sjálfra okkar og annarra að búa vel að þessari fjölbreyttu atvinnugrein og slá hvergi af kröfum um aðbúnað og öryggi ferðamanna og þeirra sem í greininni starfa. Sé þetta haft að leiðarljósi ásamt umhyggju fyrir auðlindinni sjálfri, náttúrunni, þá er ég sannfærð um að okkur muni farnast vel.

Regína Hreinsdóttirþjóðgarðsvörður á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

SUÐURSVÆÐI FRÉTTABRÉF VOR / SUMAR 2013

DAGSKRÁ LANDVARÐA Á SUÐURSVÆÐI

Litlir landverðir í SkaftafelliFöstudaga, laugardaga og sunnudaga á tímabilinu 15. júní til 4. ágúst

Áhugasamir krakkar á aldrinum 6-12 ára slást í för með landverði og rannsaka náttúruna í Skaftafelli. Áætla má að rannsóknarleiðangurinn taki 45-60 mínútur.Hittumst kl. 16 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu).Aðra daga vikunnar geta foreldrar og börn haft samband við landverði, sem gera sitt besta til að verða við óskum þeirra varðandi leiðsögn um náttúruna.

Þjóðgarður í SkaftafelliAlla daga á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst

Kvöldrölt um Skaftafell í fylgd landvarðar. Rætt um tilurð þjóðgarðsins, hlutverk hans og áhrif á náttúrufar og samfélag. Gangan tekur 45-60 mínútur. Hittumst kl. 20 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu). Leiðsögn á íslensku.

Skaftafellsjökull og loftslagsbreytingarAlla daga á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst

Landvörður fylgir gestum áleiðis að Skaftafellsjökli, segir þeim frá landmótun jökulsins og hnignun hans. Rætt verður um loftslagsbreytingar og ástæður þeirra. Gangan tekur 45-60 mínútur.

Hittumst kl. 10:00 við Skaftafellsstofu. Leiðsögn á íslensku og ensku.

Gengið í BæjarstaðAlla laugardaga á tímabilinu 15. júní til 4. ágúst

Gengið frá Skaftafelli í Bæjarstaðarskóg. Ætla má að gangan taki um sex klukkustundirVið hittumst kl. 10:00 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu). Leiðsögn á íslensku.

Leiðsögn um SelAlla sunnudaga á tímabilinu 15. júní til 4. ágúst

Landvörður tekur á móti gestum í Seli og segir frá daglegu lífi fólksins sem þar bjó.Gestir hitta landvörð við Sel kl. 14:00. Leiðsögn á íslensku.

Gönguferð um HeinabergssvæðiAlla daga nema sunnudaga á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst

Vatnajökulsþjóðgarður býður upp á léttar göngur um Heinabergssvæðið klukkan 10, alla daga nema sunnudaga. Ferðirnar hefjast við Heinabergsafleggjara austan Kolgrímu, þaðan er ekið að áhugaverðum stöðum á svæðinu og gengið út frá þeim. Hver ferð tekur um tvær og hálfa klukkustund.Útbúnaður: Góðir strigaskór eða gönguskór og útivistarklæðnaður.

Hittumst klukkan 10 við Heinabergsafleggjarann austan Kolgrímu.

4

Á Facebooksíðu Vatnajökulsþjóðgarðs segjum við fréttir, birtum myndir, auglýsum viðburði og póstum ýmsu öðru, merkilegu og ómerkilegu. Fylgstu með okkur!

Page 9: Eystrahorn 21. tbl. 2013

9Eystrahorn Fimmtudagur 30. maí 2013

Almennt fjarnámFélagsliðanámFjallamennskunámFramhaldsnám sjúkraliðaGrunnnám í fataiðnGrunnnám í upplýsinga- og fjölmiðlagreinumHeilbrigðisritarabrautListljósmyndunMatartækniNámsbraut fyrir leikskólaliða

PlastiðnSjúkraliðabrautSkólaliðabrautSkrifstofubrautStuðningsfulltrúanámUmhverfis- og auðlindafræði

til stúdentsprófs

Fjarnám og stuttar

staðbundnar námslotur

Nám sem hentar vel

með vinnu

Fjarnám fyrir alla

fjarmenntaskolinn.is

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestraFjölbrautaskóli SnæfellingaFramhaldsskólinn á Húsavík

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluMenntaskólinn á EgilsstöðumMenntaskólinn á TröllaskagaVerkmenntaskóli Austurlands

Stofnfundur Stofnfundur um Þekkingarsetrið Nýheima verður haldinn í fyrirlestrarsal Nýheima á Höfn kl. 12:15, föstudaginn 31. maí 2013.Dagskrá:

Kjör fundarstjóra 1. Kjör ritara 2. Skipulagsskrá og stjórnskipan fyrir 3. Þekkingarsetrið Nýheima kynnt Kjör löggilts endurskoðanda 4. Önnur mál 5.

Allir velkomnir og hvattir til að mæta!

Smart gjafavörur handa herramanninum í tilefni

sjómannadagsinsVerið velkomin • kaffi á könnunni

Opið virka daga kl. 13:00 - 18:00 og laugardaga kl. 13:00 - 15:00

Sími 478-2535 / 898-3664

HúsgagnavalEinar Jóhann hjá Fiskmarkaðnum var ánægður með apríl- og maímánuð. Landað hefur verið um 800 tonnum á tímabilinu. Verð á þorski hefur frekar hækkað og jafnvel meira en hann bjóst við þó það nái ekki besta verðinu í fyrra nema í einstaka tilfellum. Verðið á ýsunni hefur verið gott og hærra en áður. „Við erum bara kát hér“, sagði Einar Jóhann. Ásgeir hjá Skinney-Þinganesi sagði; „Netavertíðinni lauk hjá okkur 7. apríl sl. og við tók humarvertíð sem hefur farið vel af stað. Bátarnir héldu sig í upphafi vertíðar í Hornafjarðar- og Breiðamerkurdýpi en hafa síðustu túra verið í Meðallandsbugt, þar sem stór og góður humar hefur fengist. Mikið hefur verið að gera í vinnslunni undanfarið, bæði í humri og einnig í saltfiski en töluverður þorskur hefur verið sem meðafli í humartrollið. Uppsjávarskipin eru að gera sig klár á síldar- og makrílvertíð sem fer af stað í næsta mánuði. Nú er sjómanndagshelgin að ganga í garð og munu starfsmenn fyrirtækisins gera sér glaðan dag á sjómannadagsballi um helgina og verður það kærkomið eftir langar og strangar vertíðir í vetur.“

Fiskirí og vinnsla

Neðangreindar upplýsingar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.

Hvanney SF 51 ...................... þorskanet .. 11 ... 288,0 ..þorskur 260,0Skinney SF 20 ....................... þorskanet ....7 . 1142,0 ..þorskur 123,5Þórir SF 77 ............................ þorskanet ....7 ... 153,6 ..þorskur 146,8Hvanney SF 51 ......................dragnót ......16 ... 427,3 ..blandaður afliSigurður Ólafsson SF 44 ......humarv ..... 15 ... 102,1 ..humar 18,5Skinney SF 20 .......................humarv .....10 ... 254,1 ..humar 61,4Þórir SF 77 ............................humarv. ..... 11 ... 307,9 ..humar 66,6Steinunn SF 10 ......................botnv ...........9 ... 691,7 ..blandaður afliÞinganes SF 25 ..................... rækjuv .........7 ... 116,0 ..rækja 73,3Benni SU 65 .......................... lína ............. 15 ... 103,7 ..þorskur 84,6Beta VE 36 ............................ lína ............... 5 ..... 35,5 ..þorskur 28,8Dögg SU 118 ......................... lína ...............9 ..... 36,9 ..steinbítur 18,6Guðmundur Sig SU 650 ....... lína .............17 ... 110,7 ..þorskur 94,2Ragnar SF 550 ....................... lína ............. 15 ... 114,2 ..þorskur 99,5Sæunn SF 155 ....................... lína ............... 1 ....... 1,7 ..þorskur 1,4Auðunn SF 48 .......................handf ...........7 ....... 5,3 ..þorskur 3,2Dögg SU 118 .........................handf ...........9 ..... 36,9 ..steinbítur 18,6Hafsól KÓ 11 .........................handf ...........3 ....... 1,7 ..ufsi 1,4Halla Sæm SF 23 ..................handf ...........4 ....... 6,7 ..þorskur 5,2Haukafell SF 111 ..................handf ........... 5 ....... 7,8 ..ufsi 6,0Herborg SF 69 ......................handf ...........4 ....... 3,1 ..þorskur 2,9Hulda SF 197 ........................handf .........14 ..... 13,9 ..þorskur 9,7Húni SF 17 ............................handf ......... 12 ..... 10,5 ..þorskur 9,1Jökull SF 75 ...........................handf ...........3 ....... 1,5 ..þorskur 1,2Kalli SF 144 ...........................handf ......... 12 ....... 8,3 ..þorskur 1,6Lundi SF 12 ...........................handf ...........3 ....... 1,0 ..ufsi 0,7Siggi Bessa SF 97 .................hanf .............4 ....... 9,8 ..þorskur/ufsiSilfurnes SF 99 .....................handf ...........6 ....... 6,2 ..þorskur/ufsiStaðarey SF 15 ......................handf ...........7 ....... 7,4 ..þorskur 6,1Stígandi SF 72 .......................handf ........... 5 ....... 2,9 ..þorskur 2,3Sæunn SF 155 .......................handf .........16 ..... 16,7 ..þorskur 12,2Sævar SF 272 ........................handf ...........9 ..... 14,7 ..ufsi 10,1Uggi SF 47 ............................handf .........13 ..... 11,8 ..þorskur 8,9Örkin SU 119 ........................handf ........... 5 ..... 10,1 ..þorskur 8,5Örn II SF 70 ..........................handf .........14 ..... 13,1 ..þorskur 8,6

Aflabrögð í apríl og maí

Húni II, áður Haukafell SF, kom í heimsókn til Hornafjarðar á dögunum. Ljósmynd: Runólfur Hauksson.

Næstu heimaleikir í fótboltanum• 30. maí kl. 17:00, 4. fl. karla Sindri – Fjarðab./Leiknir • 1. júní kl. 14:00, 1.d. kvenna Sindri – Höttur• 2. júní kl. 14:00 2. fl. karla Sindri – Grindavík • 5. júní kl. 17:00 4.fl. kvenna Sindri – Fjarðab./Leiknir

Page 10: Eystrahorn 21. tbl. 2013

Sjómannadagurinn 2013Laugardagur 1. júníKl. 12:30 Sigling báta: Þórir, Skinney, Hvanney og Sigurður Ólafsson (ef veður leyfir)Kl. 13:00 Kaffisala Kvennakórs Hornafjarðar í matsal Skinneyjar-Þinganess (verð 1500- kr. fyrir fullorðna og 500- kr. fyrir börn)Kl. 13:30 Kappróður, bryggjuleikir (flekahlaup, koddaslagur o.fl.) Fiskasýning á bryggjuKl. 15:30 Opið hús í Vöruhúsinu (Vöruhúsi KASK)Kl. 19:00 Sjómannadansleikur og skemmtun í íþróttahúsinu Rokkabillibandið og Stefanía Svavarsdóttir leika fyrir dansi Húsið opnar kl 19:00 og borðhald hefst stundvíslega kl 20:00 Miðaverð er 9500- kr. á borðhald og skemmtun Selt verður á ballið í anddyri íþróttahússins Miðaverð á dansleik er 2500- kr. eftir kl. 23:30

Sjómannadagur, sunnudagur 2. júníKl. 14:00 Sjómannamessa Prestur séra Gunnar Stígur Reynisson. Hugvekja Helga Vala Friðriksdóttir Að lokinni sjómannamessu verður lagður blómsveigur í minningarreit við HafnarkirkjugarðKl. 15:00 Hátíðadagskrá á hóteltúni (ef illa viðrar færist dagskrá í íþróttahúsið). Ávarp í tilefni dagsins, Lena Hrönn Marteinsdóttir Sjómenn heiðraðir Björgunarsveitin vígir nýjan bát Leikir, bingó (munið eftir skriffærum) og karamellukast17:00 –19:00 Opið/opnun listastofuna ARTBJARG. Hagatún 1. Bjarg. Sigrún og Snorri

Forsala aðgöngumiða á Sjómannadagshátíð verður 29. og 30. maí frá kl 18:00 – 21:00 á Víkinni, sími 4782300

Góða skemmtun Sjómannadagsráð Hornafjarðar 2013

Áhöfnin á Þóri SF 77

Page 11: Eystrahorn 21. tbl. 2013

Skinney Þinganes hf / Krossey / S 470 8100 / Fax 470 8101 / [email protected]

Page 12: Eystrahorn 21. tbl. 2013

Tilboðin gilda 30.maí - 2.júníTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Kræsingar & kostakjörKALKÚNABRINGUR

ÞÝSKAR

KJÚKLINGAVÆNGIRTEX MEX

389ÁÐUR 598 KR/KG

ÁÐUR 3.298 KR/KG

1.97940% AFSLÁTTUR

GRILL LAMBALÆRIHVÍTLAUKSKRYDDAÐ

ÁÐUR 1.698 KR/KG

1.392GRILL

SVÍNABÓGSSNEIÐAR

ÁÐUR 1.298 KR/KG

999

TOSCANABRAUÐ & CIABATTA BRAUÐBAKE OFF

199ÁÐUR 398 KR/STK

KÚRBÍTUR

244ÁÐUR 488 KR/KG

PÍTUBUFF 6X60GR.M/BRAUÐI

ÁÐUR 1.199 KR/PK

995

RÚLLUTERTA BRÚNKRISTJÁNS BAKARÍ

479ÁÐUR 798 KR/STK

COCA COLA DIET6X330ML

ÁÐUR 498 KR/PK

349DISNEY SAFAR

99ÁÐUR 139 KR/STK

GRILL LAMBARIFJUR

ÁÐUR 798 KR/KG

559

INDIAN TONIC WATER

1L

ÁÐUR 119 KR/STK

79

35% AFSLÁTTUR

50% AFSLÁTTUR

30% AFSLÁTTUR

40% AFSLÁTTUR

30% AFSLÁTTUR29% AFSLÁTTUR

EGGALDIN

ÁÐUR 439 KR/KG

22050% AFSLÁTTUR

50% AFSLÁTTUR

34% AFSLÁTTUR