eystrahorn 37. tbl
DESCRIPTION
Eystrahorn 37. tblTRANSCRIPT
Fimmtudagur 14. október 2010 www.eystrahorn.is
Eystrahorn37. tbl. 28. árgangur
Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús
www.eystrahorn.is
Mikil umræða hefur verið um fjármál sveitarfélaga og niðurskurð á fjárlögum til heilbrigðismála. Eystrahorn leitaði til Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra og innti hann eftir hvernig þessi mál snéru að sveitarfélaginu hér.
Staða bæjarsjóðs„Staða bæjarsjóðs er góð þrátt fyrir að tekjur hafi dregist saman. Bæjarstjórn hefur gætt aðhalds á undanförnum árum og lækkað skuldir sem styrkir mjög stöðu okkar núna þegar harðnar á dalnum. Við vorum að samþykkja endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 núna á mánudaginn sem gerir ráð fyrir betri útkomu en við upphaflega áætlun. Nú förum við af stað fyrir alvöru að undirbúa fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 sem verður að mörgu leyti vandasamara en áður og við viljum vanda okkur vel við þá vinnu. “
Niðurskurður á HSSA
„Niðurskurðurinn bitnar hart á stofnuninni. Gert er ráð fyrir niðurskurði upp á næstum 60 m.kr. sem er um 16% af fjárveitingum til stofnunarinnar. Við höfum verið að skoða það núna síðustu daga hvernig við tökumst á við niðurskurðinn. Vil þó geta þess að við erum afar óhress með þessi vinnubrögð og það samráðsleysi sem einkennir þessa tillögugerð. Ég hafði samband við heilbrigðisráðuneytið í lok ágúst til að fá upplýsingar um stöðu mála og hafði þá auðvitað í huga hvort við þyrftum að undirbúa okkur fyrir niðurskurð. Þar fékk ég upplýsingar um að búast mætti við minni fjárframlögum, en það var aldrei hægt að túlka þau orð þannig að um grundvallarbreytingu væri að ræða á fjárframlögum. Þetta kom okkur því mjög á óvart. Það sem hjálpar okkur núna er hversu HSSA hefur verið vel
rekin undanfarin ár sem mildar höggið að einhverju leyti. Við ætlum að bíða með að gefa út nokkrar yfirlýsingar um í hvaða aðgerðir við þurfum að ráðast fyrr en við sjáum fjárlagafrumvarpið lagt fram eftir umfjöllum fjárlaganefndar sem verður væntanlega í nóvember. Við förum á fund heilbrigðisráðherra, fjárlaganefndar og þingmanna Suðurkjördæmis núna á miðvikudaginn þar sem við förum fram á leiðréttingar og sýnum að boðaður niðurskurður gangi mjög nærri velferðarþjónustu á Hornafirði. “
Fjárlög 2011„Fjárlög ríkisins fyrir árið 2011 bera þess auðvitað merki hversu staða ríkissjóðs er erfið og ekki margir góðir kostir í stöðunni til að skera niður. Mér finnst samt auðvitað alltof hart gengið fram í að skera niður heilbrigðis-þjónustu á landsbyggðinni. Fleiri stofnanir fá lægri fjárveitingar á fjárlögum en áður, s.s. eins
og Framhaldsskólinn og sýslumaðurinn. Þar ekki um eins mikinn niðurskurð að ræða en hefur auðvitað áhrif. “
Hvað er framundan?„Núna í vikunni er fjármála-ráðstefna sveitarfélaga þar sem við fáum m.a. að vita um framlög jöfnunarsjóðs til sveitarfélagsins á næsta ári og í nóvember vitum við endanlega hvernig fjárlög ársins 2011 líta út. Ég hef metið það svo að þá séum við komin með góða mynd af því hvernig opinberum aðilum á Hornafirði, ríkisstofnunum og sveitarfélaginu mun reiða af í eftirmála hrunsins. Íslenska þjóðarbúið er auðvitað í afar erfiðri stöðu en ef við horfum út frá aðstæðum okkar hér á Hornafirði hef ég vonir um að afleiðingarnar fyrir okkur íbúa á Hornafirði verði ekki eins miklar og sum staðar annars-staðar á landinu. Við erum með í undirbúningi framkvæmdir á næsta ári og ætlum að halda okkar striki eins og kostur er. “
„Ætlum að halda okkar striki eins og kostur er“
Frá starfsmannafundi HSSA á dögunum. Ljósmynd: Ásgerður Kristín Gylfadóttir.
2 EystrahornFimmtudagur 14. október 2010
Frystiskápur til söluWhirlpool frystiskápur til sölu, 3 ára 160 cm á hæð hvítur. Upplýsingar í síma 894-4107
EystrahornSími: 862-0249 • Rnr. 0172 – 26 - 000811 • Kt. 240249-2949Útgefandi: ................................HornafjarðarMANNIRitstjóri og ábyrgðarmaður: ......................Albert EymundssonNetfang: [email protected]ófarkalestur: ........................Guðlaug HestnesLjósmyndir: .............................Maríus SævarssonUmbrot: ..................................Heiðar SigurðssonAðstoð: .....................................Ásta ÁsgeirsdóttirPrentun: ..................................LeturprentISSN 1670-4126
Nú er vetrarstarf kórs heldri borgara að hefjast, og er þetta 17. árið sem við Jónína störfum með Gleðigjöfum. Kórinn er því sannkallaður gleðigjafi sem erfitt er að slíta sig frá. Þegar við stöllur byrjuðum var sterkur hópur í kórnum og eru allmargir enn að syngja, sterkir sem fyrr, og finnst mér það alveg sérstakt. Gleðgjafar hafa verið öflugir í sínum söng, sungið inn á geisladisk, farið í söngferðir og tekið þátt í kóramótum, ásamt því að sinna vel heimabyggðinni. Vona ég að svo geti verið áfram, en þar sem þetta er kór fyrir 60 + gefur auga leið að fólk heltist úr lestinni á löngum ferli með kórnum. Nú er svo komið að okkur vantar fleiri félaga til að styrkja starfið enn frekar, því
ekki viljum við láta deigan síga. Ég veit að það eru margir hér á réttum aldri sem geta sungið en hafa sig ekki í frammi, og telja sig alls ekki geta verið í kór. Til þess séu þeir einfaldlega ekki nógu góðir, en það er mesti misskilningur. Þetta fólk langar mig til að virkja og sýna þeim fram á að kórastarfið sé einmitt sniðið fyrir það. Söngurinn sameinar fólk, svo mikið er víst, og hann er líka góður fyrir sálina. Nú er ég semsagt á biðilsbuxum og hvet ykkur þarna úti að hafa samband, eða að mæta í Ekruna næsta þriðjudagskvöld klukkan 20. Það verður vel tekið á móti ykkur.
Með söngkveðjum, Guðlaug Hestnes.
Biðilsbuxur
AðAlfundur Framsóknarfélags Austur Skaftfellinga
verður haldinn í Kaupfélagshúsi, þriðjudaginn 19. október n.k.
og hefst klukkan 20:00dagskrá: • Hefðbundin aðalfundarstörf • Kjördæmisþing í Suðurkjördæmi 22. – 23. október n.k. • Önnur mál.Á fundinn mætir Eygló Harðardóttir alþingismaður.
Stjórn Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga
Til sölu fjárhús/hesthús á Ægisíðu. Húsið byggt 2008 og er um 40 fm., á afgirtri lóð. Vatn og rafmagn. Bústofn getur fylgt. Gott tækifæri á góðum stað. Upplýsingar í síma; 899-5677.
Veitingahúsið Víkin verður lokað frá kl 16:00 n.k. laugardag
vegna árshátíðar starfsfólks.Opnum aftur kl. 18:00 mánudag.
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna fráfalls ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa
Harðar JúlíussonarVíkurbraut 28
Guð blessi ykkur öllSigrún Sæmundsdóttir og fjölskylda
HúsgagnavalÚrval af rúmum og dýnum náttborðum og rúmteppum
Ný sending af glæsilegum skartgripum og úrumVerið velkomin
Opið 13 - 18 virka daga
13 - 15 laugardaga
OutletmarkaðurOutletmarkaðurinn Vesturbraut 2
er opinn þriðjudaga og miðvikudaga kl 14:00-18:00
Mikið af fatnaði á frábæru verði
Verið velkomin
3Eystrahorn Fimmtudagur 14. október 2010
Það er nú aðeins hressara yfir tippurum eftir þessa helgi því nokkrar tíur og 1 tólfa duttu inn. Það er alltaf stór
vinningur fyrir þrettán rétta t.d. voru rúmar 4 milljónir fyrir enska seðilinn núna þannig að það er til mikils að vinna. Það var
nú algjör bakaríistaka í áskorandaleiknum þegar Nettó steinlá fyrir Víkinni 5 -10 þannig að það má nú segja að Nettó hafi tekist að finna ofjarla sína. Kokkarnir á Víkinni skoruðu á stórfyrirtækið Hopp.is og nú er bara að sjá hvorir eru betri í tippinu Víkin eða Hopparnir.
Víkin Hopp.is1. Arsenal -Birmingham 1 12. Bolton -Stoke 1 2 1x2 3. Fulham -Tottenham 1x2 1 2 4. Man.Utd – W.B.A. 1 15. Newcastle-Wigan 1 2 16. Wolves -West Ham 1 2 27. AIK -Gefle 1 18. Crystal Palace - Millwall 1 1x2 9. Leicester-Hull 1 1 2 10. Portsmoth -Watford 1x2 111. Q.P.R-Norwich 1x2 112. Reading -Swansea 1 1x213. Sheff.Utd. -Burnley 1 x2
Tipphornið
Það bættist við eitt fyrirtæki í leikinn skemmtilega þar sem fyrirtæki spreyta sig, en gaman væri að fá aðeins fleiri. Það er því ekkert annað að segja en „og koma svo“.
Vika 1 2 3 SamtalsHvanney SF 8 10 9 27H. Christensen 7 7 9 23Nettó 7 10 5 22Hopp.is 8 10 18Víkin 10 10Ásgrímur Halldórsson 9 9Flutningadeild KASK 7 7Bakaríið 5 5
HafnarkirkjaSunnudaginn 17. október Sunnudagaskóli og messa kl. 11:00
Sóknarprestur
Menningarmiðstöð Hornafjarðar auglýsir eftir verkum í einkaeigu eftir David White vegna sýningar sem fyrirhuguð er í nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Ósk í síma 470 8057. Einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected]
Lokahóf knattspyrnufólks Sindra fór fram á Víkinni s.l. laugardag. Hátíðin fór vel fram, góð stemning og fullt hús. Að venju voru margir heiðraðir fyrir árangur og góð störf.
Meistaraflokkur kvenna:Leikmaður ársins .....................Lelja CardaklijaMestu framfarir ........................Anna Mekkín ReynisdóttirEfnilegust ..................................Karen Björg HalldórsdóttirMarkadrottning ........................Heba Björg Þórhallsdóttir
Meistaraflokkur karla:Leikmaður ársins .....................Atli HaraldssonMarkakóngur ............................Kristinn Þór GuðlaugssonEfnilegasti leikmaðurinn .........Alex Freyr Hilmarsson
2. flokkur karla:Mikilvægasti leikmaðurinn .....Þorsteinn JóhannssonLeikmaður ársins .....................Alex Freyr HilmarssonMestar framfarir .......................Stefán Lárus ReynissonMarkhæsti leikmaður ..............Alex Freyr Hilmarsson
Silfurmerki félagsins fyrir góð störf og stuðning fengu Sverrir Aðalsteinsson fyrir að vera stuðningsmaður Sindra nr. 1 og Ólafur Jónsson og Miralem Haseta fyrir að sinna dómaramálum vel.
Lokahóf knattspyrnufólks
Það þarf líka dómara og áhorfendur eru mikilvægir. F.v. María dóttir Miralem Haseta sem tók við viðukenningu fyrir föður sinn, Valdimar Einarsson framkvæmdastjóri Sindra, Sverrir Aðalsteinsson og Ólafur Jónsson.Ljósmyndir: Lena Hrönn Marteinsdóttir.
Sindri þjálfari, Þorsteinn, Alex Freyr, Stefán Lárus og Óli þjálfari
Karen Björg, Heba Björg, Anna Mekkín og Lelja ánægðar með viðurkenningar.
PORK ROAST GRÍSAHNAKKI
1.379kr ÁÐUR 2.298 KR/KG
LONDONLAMB
1.469krÁÐUR 2.099 KR/KG
40%AFSLÁ
TTUR
30%AFSLÁ
TTUR
MJÓDD SALAVEGUR HVERAFOLD REYKJANESBÆR
GRINDAVÍK AKUREYRI HÖFN
SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN Á WWW.NETTO.IS!
GILDIR 14. - 17. OKTÓBER
30%AFSLÁ
TTUR
30%AFSLÁ
TTUR
29%AFSLÁ
TTUR
24%AFSLÁ
TTUR
22%AFSLÁ
TTUR
32%AFSLÁ
TTUR
50%AFSLÁ
TTUR
LAMBAHRYGGURFERSKUR
1.299krÁÐUR 1.438 KR/KG
LAMBASALTKJÖTBLANDAÐ 1. FL.
1.049krÁÐUR 1.498 KR/KG
LATABÆJARVATN310 ML
99krÁÐUR 139 KR/STK.
NAUTAFILLETM/FITU, FERSKT
2.399krÁÐUR 3.148 KR/KG
KREBENETTURÍ RASPI
909krÁÐUR 1.298 KR/KG
HVERSDAGSÍSSÚKKULAÐI
329krÁÐUR 419 KR/STK.
ANANASÁVÖXTUR VIKUNNAR
148krÁÐUR 295 KR/KG
HAFRAKEX400 G
99krÁÐUR 145 KR/PK.
X-TRA
KJÚKLINGA- BRINGURBBQ MARINERAÐAR
1.998krKR/KG
Gildir meðan birgðir endast. Birt með fyrirvara um prentvillur.
mar
khön
nun.
is