Download - Veiðislóð 4. tbl 2011
tímarit um sportveiði og tengt efniVEIÐISLÓÐ
4. 2011
Það er ekki tilviljun að Sage flugustangirnar eru þær vinsælustu í úrvalsflokki flugustanga. Að margra mati eru flugustangirnar frá Sage þær bestu á markaðnum. Því mótmælum við ekki. Allar Sage flugustangir eru hannaðar og þróaðar af flugveiðimönnum og framleiddar í Seattle í Bandaríkjunum. Að kasta fyrir fisk og veiða með Sage er einstök upplifun. Allir fluguveiðimenn verða að eiga að minnsta kosti eina Sage stöng.
Allar Sage stangir eru með lífstíðarábyrgð frá framleiðanda!
VINSÆLASTA FLUGUSTÖNGIN. ÞAÐ ER EKKI TILVILJUN
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
“ONEtm” SERIES - Verð 109.990,-Hröð stöng. Kröftug hleðsla sem auðveldar lengdar og nákvæmnisköst.
Z-AXIS ROD SERIES - Verð 99.990,-Hröð stöng. Kröftug hleðsla sem auðveldar lengdar og nákvæmnisköst.
99 ROD SERIES - Verð 99.990,-Mið-hröð stöng. Djúp hleðsla. Sérhönnuð til að bera þungar flugur og túpur.
VXP ROD SERIES - Verð 74.990,-Mið-hröð stöng. Kraftmikil og fínleg stöng fyrir allar aðstæður.
FLIGHT ROD SERIES - Verð 59.990,-Mið-hröð stöng. Góð alhliða flugustöng.
VANTAGE ROD SERIES - Verð 39.990,-Mið-hröð stöng. Góð byrjendastöng á góðu verði.
“The ONE” er komin!BEST FRESHWATER ROD- International Dealer Show í New Orleans 2011
BEST SALTWATER ROD- International Dealer Show í New Orleans 2011
BEST ROD- Efftex 2011
frá ritstjórn
Tímaritið Veiðislóð kemur nú út í fjórða skiptið á jafn mörgum mánuðum. Fjórða blað af sex sem tilraunin okkar samanstendur af. Fljótlega munum við setjast niður og athuga okkar gang. Ætlum við að halda þessu áfram í framhaldinu, eða gera eitthvað annað? Þetta er ritað í byrjun september og sumarið sama sem búið, veðurfar og náttúran að breytast.
Margir farfuglar flognir, laxinn orðinn leginn að stórum hluta. Sjóbirtingur að byrja að ganga,
gæsatíminn byrjaður og hreindýratíminn líka. Lesendur munu sjá hér að í fyrsta skipti er
í bland við annað efni um skotveiðar. Þannig verður þetta framvegis, en áherslur alltaf þó
breytilegar eftir því hvar vertíðin stendur hverju sinni.
Allt stefnir í sæmilegt laxveiðisumar, gott silungsveiðisumar, sjóbleikjuvertíð sem var sums
staðar góð en annars staðar mörkuð hnignun tegundarinnar. Óvíst enn með sjóbirtings-
vertíðina. Vonum þó það besta þar.Við óskum lesendum okkar og veiðimönnum öllum góðri
haustvertíð. Vonandi að hjól eigi eftir að væla og skot að hæfa.
Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrot
Jón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif.
Það er ekki tilviljun að Sage flugustangirnar eru þær vinsælustu í úrvalsflokki flugustanga. Að margra mati eru flugustangirnar frá Sage þær bestu á markaðnum. Því mótmælum við ekki. Allar Sage flugustangir eru hannaðar og þróaðar af flugveiðimönnum og framleiddar í Seattle í Bandaríkjunum. Að kasta fyrir fisk og veiða með Sage er einstök upplifun. Allir fluguveiðimenn verða að eiga að minnsta kosti eina Sage stöng.
Allar Sage stangir eru með lífstíðarábyrgð frá framleiðanda!
VINSÆLASTA FLUGUSTÖNGIN. ÞAÐ ER EKKI TILVILJUN
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
“ONEtm” SERIES - Verð 109.990,-Hröð stöng. Kröftug hleðsla sem auðveldar lengdar og nákvæmnisköst.
Z-AXIS ROD SERIES - Verð 99.990,-Hröð stöng. Kröftug hleðsla sem auðveldar lengdar og nákvæmnisköst.
99 ROD SERIES - Verð 99.990,-Mið-hröð stöng. Djúp hleðsla. Sérhönnuð til að bera þungar flugur og túpur.
VXP ROD SERIES - Verð 74.990,-Mið-hröð stöng. Kraftmikil og fínleg stöng fyrir allar aðstæður.
FLIGHT ROD SERIES - Verð 59.990,-Mið-hröð stöng. Góð alhliða flugustöng.
VANTAGE ROD SERIES - Verð 39.990,-Mið-hröð stöng. Góð byrjendastöng á góðu verði.
“The ONE” er komin!BEST FRESHWATER ROD- International Dealer Show í New Orleans 2011
BEST SALTWATER ROD- International Dealer Show í New Orleans 2011
BEST ROD- Efftex 2011
FermingarBrúðkaupAfmæli
Árshátíðir FundirMóttökur
veisluþjónusta
Búðakór 1 • 203 Kópavogi • Sími 820 7085 • [email protected]
Lystaukandi veislur
6 Stiklað á Stóru Farið í máli og myndum yfir gang mála á veiðislóðum síðustu vikurnar.
10 Veiðistaðurinn Við kynnumst hér urr-iðasvæðinu í Laxá í Laxárdal í fylgd Ásgeirs Steingríms-sonar.
18 Veiðistaðurinn Varmá/Þorleifslækur er vanmetin veiðiá, aðeins steinsnar frá höfuðborgar-svæðinu.
24 Fluguboxið Valgarð Ragnarsson kann á sjóbirtinginn og hér sýnir hann okkur helstu stór-fiskafluguna sína.
28 Fluguboxið Það getur verið blátt áfram sorglegt hversu margar góðar flugur týnast og gleymast.
32 Fluguboxið Nils Folmer Jörgensen var iðinn við stórlaxa í sumar.
34 Viðtal Veiðislóð ræddi í sumar við Rick Rosenthal margverð-launaðan kvikmyndatöku-mann og Deirdre Brennan framleiðanda, um magnaða kvikmynd, Lost at Sea, sem þau eru að vinna um hver afdrif laxa verða í úthafinu.
44 Skotveiði Sumum getur þótt það frekar snúið að stíga sín fyrstu skref á skotveiði-brautinni.
48 Hreindýraveiðar Axel Eyfjörð Friðriksson rifjar upp fyrsta hreindýrið.....
51 Lífríkið Ólafur Karl Nielsen segir okkur eitt og annað um ástand rjúpnastofnsins.
52 Neoprenið góða Lárus Gunnsteinsson heldur áfram að fræða okkur um allt millli himins og jarðar um vöðlur, eðli þeirra, hirðingu og fleira. Núna er það neoprenið.
54 Ljósmyndun Ljósmyndagallerí mánaðar-ins er núna í höndum Svövu Bjarnadóttur og óhætt að segja að kvenleg sýn er á myndum hennar.
72 Strandveiði Þorsteinn Geirsson er að kortleggja strandveiðikosti á Íslandi og þeir eru bæði magnaðir og ótæmandi.
78 Útivst – ferðalög í óbyggðum Við ræddum við Pál Ásgeir Ásgeirsson höfund Hálend-ishandbókarinnar sem hefur nýlega verið endurútgefin.
86 Villibráðareldhúsið Við leituðum í smiðju Klúbbs matreiðslumeistara og fundum girnilegan silungarétt sem ugglaust mætti nota lax í einnig.
88 Veiðisagan Þuríður Björg Wiium veiddi stærsta laxinn í Hofsá.
92 Lífríkið Við kynnumst hinu marg-slungna rándýri minknum.
96 Einu sinni var Já, einu sinni voru hreindýr á Reykjanesskaganum. Í Einu sinni var, rifjum við upp nokkrar sögur af hreindýra-skyttum á Reykjanesinu.
100 Græjusíður Hér kennir margra grasa úr veiðibúðum þeim sem með okkur starfa.
efnið
stiklað á STÓRU
6 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Laxveiðinni var afar misskipt í ágúst. Nokkrar ár á austan verðu landinu stefndu í metveiði, Svalbarðsá,
Breiðdalsá og Selá í Vopnafirði. Svalbarðsáin náði metinu áður en við fórum í loftið með þetta 4. tölublað. Á sama tíma var veiði sums staðar afar róleg. Og síðan var þetta allt þar á milli.
7
Nils Folmer Jörgensen var drjúgur í stórlöxunum í sumar og þessi 104 cm hængur úr Hafralónsá var hans þriðji yfir 100 cm í sumar.
flokkurstiklað á stóru
Helst voru það Dalaárnar og nokkrar á vestanverðu Norður-
landi sem voru slakar. Ekki laxlausar, langt frá því, en ekki að gefa
meðalveiði, hvað þá meira. Aðrar ár voru í þokkalegu til góðu lagi.
Sunnanlands gerðist allt mjög seint og það var ekki fyrr en í ágúst
að t.d. Rangárnar fóru almennilega í gang. Víðast voru ár seinar í
gang vegna vorkulda að talið er. Nú er haustið að ganga í garð og
september er mánuður sem hefur hrest upp á veiðitölur síðustu
árin að því síðasta undanskyldu, en í fyrra komu haustrigningar allt
of seint. Við sjáum hvað setur þetta árið og spyrjum að leikslokum.
Á silungsveiðisviðinu þá fjaraði rólega undan vatnaveiðinni
líkt og gerist gjarnan í ágústmánuði. Veiðivötn héldu þó ágætis
dampi og víða voru menn að fá fín skot þó að þetta væri að logn-
ast rólega útaf.
Sjóbleikjan var sums staðar afar liðfá, en annars staðar var meira
af henni. Alls staðar gekk hún mjög seint og að venju var köldu
vori og snemmsumri kennt um. Sjóbirtingsveiði virtist lofa góðu,
því fyrstu skotin í Vestur Skaftafellssýlu voru óvenjulega kröftug í
ágúst, hvað sem það leiðir af sér. Vestanlands var enn niðursveifla
í sjóbirtignsgöngum. En leyfum myndunum að tala sínu máli:
1 Björgvin Viðarsson, nefndur Krauni, með 25 punda hængtröll úr Laxá í Aðaldal, Nesveiðum. Mynd af www.svfr.is
2 Spænsk veiðikona með fallegan feng úr Norðlingafljóti. Mynd Jóhannes Sigmarsson.
3 Richard Crosby veiddi þennan tæplega 20 punda hæng í Svartabakka í Straumfjarðará.
4 Mögulega stærsti lax sumarsins til þessa, Gunnar Helgason með 107 cm 26 punda bolta úr Presthyl í Laxá í Aðaldal.
5 Sjóbirtingurinn kom víða í ágúst. Hér er Gunnar Óskarsson með óvænta hrúgu úr Fossálum. Mynd af www.svfk.is
6 Gréta Guðbrandsdóttir með fallegan rígvænan smálax úr Soginu. Mynd Kjartan Antonsson.
7 Þekktur bandarískur veiðimaður, John Teeney, með 101 cm tuttugu pundara úr Selá. Mynd frá Streng.
8 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Veiðin í Veiðivötnum var góð, hér er sá stærsti, 12 punda úr Hraunvötnum. Mynd Bryndís Magnúsdóttir, fengin af veidivotn.is
Jóhann Hafnfjörð veiddi þennan glæsilega 20 punda lax í Víðidalsá.
1
2
54
3
6 7
10 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
11
Laxá í Laxárdal
Paradís á jörðuNeðri hluti hins heimsfræga urriðasvæðis Laxár í Suður
Þingeyjarsýslu er kennt við hinn ægifagra Laxárdal.
Þar er áin breið og mikil og með þungum, tiltölulega
jöfnum straumi. Gróðurfar er með ólíkindum og fuglalíf
fjölskrúðugt. Urriðinn sem byggir þennan hluta Laxár er
líklega sá stærsti að meðaltali sem finnst í ánni. Það er
því ekki að undra að Laxá í Laxárdal þyki vera paradís á
jörðu, séð með augum stangaveiðimanna.
Við tekur nú yfirferð yfir veiðistaði í Laxá
sem teljast til Laxárdals, en í dalnum er
áin mjög ólík í eðli sínu því sem menn
kynnast í Mývatnssveit. Fylgdarmaður
okkar í Laxárdal er Ásgeir Hermann
Steingrímsson trompetleikari og flugu-
veiðimaður með meiru. Hann hefur
áratuga reynslu af bökkum Laxár og er
leiðsögumaður við ána, jafnvígur á öll
svæði, á sumri hverju.
Ásgeir er að upplagi Húsvíkingur og
lesendur kunna ef til vill sumir að setja
Ásgeir í ákveðið samhengi þegar þess
er getið að hann á bróðir sem heitir
Birgir Steingrímsson og er magnaður
veiðimaður og leiðsögumaður á bökkum
Laxár einnig. Afi þeirra var alnafni Birgis
og var Birgir eldri einn af stofnendum
Húsavíkurdeildar Laxárfélagsins ásamt
þeim bræðrum Benedikt og Snorra
Jónssonum. En það er saga sem tilheyrir
annarri öld og öðru tölublaði. Tilheyrir
sérstakri bók ef út í það er farið, en það er
önnur…..
Ásgeir vill fara með okkur niður vestur-
bakka Laxár fyrst og síðan eystri bakk-
ann. Hann getur þess að umræða sé
í gangi að fella Hamarssvæðið inn í
Laxárdal og landfræðilega sé það skyn-
samlegt, hvað svo sem verður.
En áður en yfirreiðin hefst tekur Ásgeir
fram að hann muni ekki nefna alla veiði-
staði, aðeins þá sem skipta máli og öllum
sé hollt að athuga sinn gang þegar farið
er með Laxá á þessum slóðum, að urriði
getur verið nánast hvar sem er og sjálfur
veiði hann mest orðið í Laxá með þeim
hætti að rölta bara bakkana og veiða
nærri landi. Og ætli menn að vaða, kasta
þá fyrst yfir svæðið þar sem vaða skal og
alls ekki að vaða sérlega langt. Góð regla
veiðistaðurinn
1
2
12 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
13
Laxá í Laxárdal
sé að þegar maður er kominn í ríflega
miðjan legg, hvað þá upp undir hné, þá
er von á fiski. “Sjálfur veiði ég mest orðið
á þurrflugur og veð lítið. Þurrfluguveiði
hefur mjög sótt á í Laxárdal, en það er
einnig fengsælt að nota straumflugur og
andstreymisveiddar púpur. Allt fer þetta
eftir aðstæðum hverju sinni og menn
verða að finna sjálfir út hvað hentar best.
Þá vil ég nefna það, að það er afar erfitt
fyrir ókunnuga að koma til veiða í Laxár-
dal án þess að njóta fulltingis kunnugra.
Það getur algerlega skipt sköpum og ég
þekki fjölda dæma um að jafnvel vanir
menn hafa komið, ætlað að finna út úr
þessu sjálfir og farið heim með öngulinn
í óæðri endanum.”
Efst eru Ljótsstaðir. Þar er efst Æsufit þar
sem veiðist í svokölluðum svifum með
bökkum. Áin er frekar stríð á þessum
slóðum. Næstur er Varastaðahólmi, afar
sterkur veiðistaður og fornfrægur að
sögn Ásgeirs. Er veitt “norður úr honum”
eftir að vaðið hefur verið frá bílastæðinu,
út í efra hornið. Þar fyrir neðan kemur
klasi veiðistaða sem gjarnan eru nefndir
undir einu nafni, Ljótsstaðabakkar. Á
þessum kafla er talað um Hvíthólspoll,
Garðspoll, Kofastreng og Ljótsstaðaeyri.
“Þetta eru allt góðir staðir og best að
veiða frá bakkanum. Áin er illvæð þarna
og fiskur nærri landi á löngu svæði,”
segir Ásgeir.
Áin er síðan áfram stríð þar til hún
kemur að Beygjunni sem er einn af
“gömlu fornfrægu veiðistöðunum,” eins
og Ásgeir segir. Hann segir að Stefán
heitinn Jónsson fréttamaður, sem þekkti
svæðið eins og handarbökin á sér, hafi
sagt um Beygjuna að það væri dauft í
ánni ef ekki væri lífsmark þar. Þarna er
vaðið aðeins út, en ekki of langt”. Þarna
fyrir neðan er brot á ánni og þar er staður
sem heitir Nauteyri, “fallegur staður og
gjöfull” að mati Ásgeirs og er veitt bæði
ofan og neðan við brotið.
Þar fyrir neðan er Ferjuflói og gefur
nafnið til kynna að áin sé hér að breyta
aðeins um eðli. Hún er ekki eins stríð,
straumur er hægari og jafnari og áin
breikkar mikið. Ferjuflói er einn af stóru
veiðistöðunum í Laxárdal og veiðist þar
“bakka á milli” eins og Ásgeir orðar það.
Á veiðistöðum eins og Ferjuflóa þurfa
veiðimenn tíðum að finna hvernig þeir
best geta lifað í sátt og samlyndi því á
slíkum stöðum er einnig veitt frá önd-
verðum bakka og hér er talsvert vaðið.
Miðlínuregla er aldrei annað en viðmið,
því miklu frekar er miðað við miðlínu
megináls, sem getur legið mun nær öðru
landinu heldur en hinu og svo geta verið
fleiri álar.
Ferjuflói er samfellt veiðisvæði eina
tvo kílómetra og er talað um veiði-
staðina Hagakíl, Háahraun, Sláttu, Flúðir,
Merkivík, Jóelsbakka, Grjótbakka og svo
endar flóinn í Djúpadrætti sem er ein-
hver frægasti og besti veiðistaðurinn í
Laxárdal. Þá er þetta svæði allt annálað
stórfiskasvæði. Þar niður af eru Þverár-
hólmar og Pollnesáll, sem Ásgeir segir
“óskaplega fallegan”, en að sama skapi
viðkvæman veiðistað, kannski vegna
þess að þar er skjól fyrir norðanáttinni
sem er svo oft blásandi um Laxárdal.
Það var í Merkivík sem Ásgeir setti í sama
urriðann með klukkustundar millibili.
Þetta var fallegur um það bil 4 punda fisk-
ur sem tók fyrst MME en náði að krækja
taumnum í grjót og slíta eftir nokkrar
góðar rokur. Ásgeir fór síðan niður með
á og reyndi eitthvað fyrir sér, en var
kominn í Merkivíkina aftur klukkustundu
14 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
veiðistaðurinn
síðar og setti þá í sama fiskinn á Hopper
þurrflugu. Ekki var um að villast, MME
paddan var í öðru kjaftvikinu með taum-
stubb, Hopperinn í hinu.
Ljótsstaðaveiðum lýkur svo með
Slæðunni sem er enn einn stórveiði-
staðurinn, “einn af þessum fornfrægu og
veiðist þar bakka á milli.”
Nú taka við Halldórsstaðaveiðar. Þar er
fyrst um það bil kilómeters langur kafli
þar sem áin rennur fremur hröð og
býður ekki upp á stóra veiðistaði. Helst
að fiskar fáist á stangli í litlum holum
og gjótum, en fáir stunda það því neðar
taka við frægir veiðistaðir. Á þeim kafla
hefur áin hægt aftur á sér, en veiði-
svæðið byrjar um það bil á móts við Hall-
dórsstaðabæinn. Þar er veiðistaðurinn
Slátta og byrjar þar um kilometers langt
veiðisvæði sem nær niður fyrir Hall-
dórsstaðahólma. Á því svæði er talað um
m.a. Nautatanga og Sauðatanga. Þetta er
öflugt veiðisvæði og fást oft stórir fiskar
á þessum slóðum.
Birningsstaðaveiðar taka nú við og þar
er hinn fornfrægi Birningsstaðaflói, en
þar er áin hvað breiðust í öllum dalnum,
hátt í 200 metrar að mati Ásgeirs. Eins
og títt er um hina stóru staði Laxárdals,
þá er reynt að afmarka bakkahluta með
nafngiftum. Þannig er talað um Ytra-
Vað, Ullarnef og fleiri nöfn, uns áin smá
þrengist aftur og fellur í Sogið, sem er
djúpur og mikill veiðistaður skammt frá
veiðihúsinu að Rauðhólum.
Hér staldraði Ásgeir við til að lauma með
einni merkilegri veiðisögu. Ásgeir hefur
orðið: “Þessi saga byrjar eiginlega við
Steinbogaey á veiðisvæðinu í Mývatns-
sveit, en þar höfðum við Gunnlaugur
Kristjánsson verið að veiðum daginn
áður. Veiðin þann daginn er ekki í frásög-
ur færandi en dagurinn minnistæðastur
fyrir þær sakir að Gunnlaugur tapaði þar
tveimur fluguboxum. Hann áttaði sig
ekki á því hvar hann hefði glatað þeim og
við leituðum talsvert en án árangurs.
En daginn eftir vorum við sem sagt
komnir á Birningsstaðasvæðið, Þarna
henti það mig að setja í tvo fiska í einu.
Lítill urriði tók fluguna og ég gerði þá það
sem ég geri stundum til að losna við titti,
að ég gaf allt slakt. Vonaði að það myndi
losna úr þeim litla, en þess í stað synti
hann með lykkju yfir hausinn á mun
stærri fiski og var glíman við hann hörð.
Sá ég fljótlega að litli urriðinn lá þvert
á hausinn á þeim stóra og hafði hann
sig lítt í frammi. Um síðir losnaði stóri
urriðinn úr snörunni, en í land kom litli
titturinn, allur kraminn og steindauður.
En á meðan á þessu stóð var Gunnlaug-
ur úti í flóanum að kasta. Allt í einu sér
hann eitthvað fljóta upp að löppunum
á sér, beygir sig niður og tekur það upp.
Var þetta þá ekki annað fluguboxana
sem hann týndi upp í Mývatnssveitinni
næstum því sólarhring áður. Búið að
reka alla þessa kílómetra niður ána og
síðan upp að fótunum á eigandanum 23
klukkustundum eftir að hann uppgötv-
aði að boxið væri horfið úr vasanum!
En við erum komin að Soginu, sem er
einn af “þessum stóru og mögnuðu”
veiðistöðum í Laxárdal. Hér er brú yfir
ána og er Sogið ofan hennar, í þrenging-
unni. Algengt er að menn veiði þennan
stað með hröðum og öflugum sökkbún-
aði, enda er straumur hér mikill svo og
dýpi og því mikilsvert að koma flugunni
hratt niður áður en hún nær að slá upp
að landi eftir hvert kast.
Gore-tex gerir gæfumuninn.
Gore-tex öndunarfilman
ber höfuð og herðar yfir
aðrar öndunarfilmur bæði
hvað varðar vatnsheldni og
útöndun.
Simms notar Gore-tex Per-
formance-Shell og Gore-tex
Pro-Shell í vöðlur og jakka.
Engar málamiðlanir. Simms
er málið
ÞÚ FÆRÐ SIMMS EINNIGHJÁ VEIÐIMANNINUM
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
ALLIR VEIÐIMENN ÞEKKJA SIMMS GÆÐI!
Veiðibúð allra landsmanna á netinu. veidimadurinn.is
1
16 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
2 3
4
17
Laxá í Laxárdal
Neðan brúar eru fyrst nokkrir minni
háttar veiðistaðir eins og Laugarhvamm-
ar og Bæjarpollur, en fæstir staldra við
þar heldur fara beint í Árgilsstaðaflóa
sem er síðasti “stóri” veiðistaðurinn. Og
mjög góður. Neðan hans eru staðir og
síðan uppistöðulónið sjálft. Sumir veiða
þar og þar er vissulega veiðivon.
En nú höldum við aftur upp með á, Ás-
geir ætlar að segja okkur frá veiðistöðum
frá austurbakkanum.
Fyrst eru veiðistaðir frá jörðum Hóla og
Árhóla. Þetta er norðan við Varastaða-
hólma sem áður var nefndur. Hér segir
Ásgeir að veiðistaðir séu víða, en svæðið
sé erfitt og lítið veitt sökum hrauns og
skóglendis. Gegnt Beygjunni sem áður
var nefnd er hins vegar vænlegur staður,
Húsapollar. Þá er komið að Ferjuflóa
hinum sama og áður var nefndur og er
veiddur frá eystri bakka ekki síður en
þeim vestari. Á móti Hagakíl á öndverð-
um bakka er Nestá, fallegur stórfiska-
staður en þar er erfitt að vaða. Hér niður
af er áin hraðari og lakari til veiða heldur
en vesturbakkinn, utan að Pollahvammar
á móts við Jóelsbakka er líklegur. Endar
síðan flóinn í Djúpadrætti eins og frá var
greint í umfjöllun um vesturbakkann.
Djúpidráttur er einnig sterkur og stór
veiðistaður að austan og þar eru afmark-
aðir blettir með nöfnunum Bárnavík og
Ysti Bakki, en það svæði nær samfellt að
Merkjahólma, en þar eru landamerki. Á
þessum slóðum er bæði veitt frá landi
og einnig vaðið aðeins út. Algengt er að
hér sé var fyrir vindi, uppitökur og þurr-
flugumöguleikar.
Nú erum við komin í umráðasvæði
Árhvamms og Kasthvamms og fyrsti
veiðistaður þar frá austurbakka er
Slæðan, hin sama og áður var getið, stór
og mikill veiðistaður landa á milli. Þaðan
rennur áin síðan fremur hröð og ekki
eru eiginlegir veiðistaðir fyrr en komið
er að Geitanefi sem er um það bil á móts
við Sláttu og Halldórsstaðahólma sem
áður var getið í landi Halldórsstaða. Þetta
er mjög stór og lygn veiðistaður sem er
samfelldur allt ofan í Strákál, sem eru
einhverjir 3-400 metrar. Því næst fellur
þetta allt saman við Birningsstaðaflóa
sem áður var getið og er veiddur bakka á
milli. Frá austurlandinu eru nöfn eins og
Bakkahorn á móts við Ytra-Vað, Álftanef
á móts við Ullarnefi og síðan endar þetta
ofan í Sogi líkt og við hinn bakkann og
er Sogið einnig drjúggóður veiðistaður
frá austurlandinu. Gildir það sama hérna
megin og hinu megin, að sökkva flug-
unni hratt og vel.
Neðan við brú er Rauðhólakvísl um það
bil 200 metra frá veginum og ágætur
veiðistaður sem fáir reyna. Þarna er
auðveitt og neðar eru einnig prýðis-
góðir veiðistaðir á borð við Heygarðsnes,
Kerlingarbakka og Mangapoll. Loks er
komið í Árgilsstaðaflóa sem áður var
getið. Hann er mikill veiðistaður hérna
megin ekki síður en hinu megin, en
neðst á honum er Hellan. Þar þrengist
áin nokkuð og er þar hraunhella mikil
í botni. Þar sem hellan byrjar er góður
veiðistaður , en neðan við Árgilsstaðaflóa
eru lítt reyndir veiðistaðir eins og Prest-
hólmi og Presthólmakvísl og loks lónið
sem einstaka veiðimaður hefur dálæti á
og býður vissulega upp á veiðivon.
Lýkur þá lýsingu Ásgeirs Steingríms-
sonar á helstu veiðistöðum Laxárdals.
1 Ásgeir með‘ann á.
2 Að mörgu leyti dæmigerð mynd fyrir Laxárdalinn.
3 Glæsilegur urriði hjá Ásgeiri..
4 Um að gera að æfa sig á trompettið, enda góður hljómburður í hrauninu.
18 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Varmá/Þorleifslækur er lítil bergvatnsá sem rennur um Ölfusið niður í Ölfusá skammt ofan við Hraunssand. Varmá á sér langa sögu sem mengað og rislítið veiðivatn og fékk gjarnan viðurnefni eins og Þarmá með skírskotun til ólesturs í klóakmálum Hvergerðinga, en áin rennur einmitt í gegn um þorpið. Þar hafa og orðið mengunarslys, logsjóðandi vatni hleypt einu sinni frá ullarþvottastöð, klórslysið fræga þegar gríðarlegt magn af klór lak í ána frá sundlauginni í Hveragerði og síðan var lengi eftirlitslítið fiskeldi á bökkum árinnar neðan við Þjóðveg 1. En einhvern vegin rakst áin í gegnum þetta allt saman og í raun er hér um stórmerkilega veiðiá að ræða. Og afar gjöfula.
veiðistaðurinn
Varmá/Þorleifslækur
Ómissandi valkostur
19
Varmá/Þorleifslækur
Áin kemur upp í Hengladölunum og
tínast til nokkrar sprænur. Fiskur kemst
alla leið til þeirra þar sem þær húrra úr
jarðhitadölunum þar efra. Þar lengst
upp frá, nokkru ofan við bílastæðið
þar sem lengst verður ekið upp dalinn,
veiddi góðkunningi okkar eitt sinn 6
punda birting með því að andstreymis-
veiða púpu. Rétt þar fyrir neðan er
fall egur ármótahylur þar sem tveir lækir
mætast. Mikið af smáurriða þar, en líka
möguleiki á birtingi.
Þar neðan við eru bæði golfvöllur og
skeiðvöllur og eðli málsins samkvæmt
er áin þá farin að renna um sléttlendi.
Þarna hlykkjast áin og víða eru vænlegir
hyljir og strengir. Þeir heita alls ekki allir
einhverjum nöfnum, einn þeirra heitir
þó því einkennilega nafni Einkahylur.
Vitum við um fleiri en eitt dæmi þess
að menn hafa sleppt honum af því að
þeir héldu að hann væri í einkaeign!
Einkahylur er fallegur hylur þar sem
fiskur er sagður taka best upp af og út
af gamla brúarstólpanum. Rétt neðan
við Einkahyl kvíslast áin og þar sem þær
pota sér saman aftur er fallegur hylur
sem heldur fiski í góðu vatni. Út af gras-
totu neðarlega er best að setja í fisk.
Hér neðan við fer áin ofan í grunnt
gil sem nær alveg niður undir þorpið.
Efst í því er fossinn Baula og þar segja
kunnugir að talsvert geti legið af fiski.
Það er erfitt að veiða Baulu í miklu
vatni, betra í minna vatni og þar hafa
menn bæði verið fyrir ofan og skautað
Varmá/Þorleifslækur
Ómissandi valkostur
20 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
veiðistaðurinn
flugum, eða staðið neðan við hylinn
og veitt andstreymis. Síðan eru smá-
strengir niður undir brú við efri kant
gistiheimilisins Frost og Funa. Neðan
við göngubrúna er fallegur strengur
með hyl. Þar getur fiskur víða verið
og sérstaklega við stein réttneðan við
miðjan streng. Næst er góður staður,
í góðu vatni, sem er nánast hægt að
kasta í úr heita pottinum á gistihúsinu.
Þar fyrir neðan er komið niður að stíflu
og rétt ofan hennar er einn afar fallegur
veiðistaður sem heitir Funi, með skír-
skotun til hvissandi hvera í árfjörunni
og klettaveggjunum að austan. Er mjög
sérstakt að standa þarna og kasta með
þetta stöðuga hviss í eyrunum og klett-
arnir allir ljósskellóttir vegna jarðhitans
og efnasamsetninga af völdum hans.
En þarna er ljómandi falleg breiða sem
fiskur leggst gjarnan á eftir að hafa farið
„upp“ stífluna.
Hvers vegna „upp“ stífluna? Jú, það er
vegna þess að fiskurinn gerir einmitt
það. Þetta er 3-4 metra hár stífluveggur,
nánast snarbrattur og enginn fiskvegur.
Áin safnast í uppistöðu fyrir ofan og
húrrar niður yfir stíflubrúnina. Lítið ef
vatn er lítið, en mikill kraftur og mikið
vatn þegar rignt hefur hressilega. Og
þótt ótrúlegt megi virðast, þá kemst
birtingurinn upp þennan straumþunga
þverhnípta vegg. Það er þvílík upplifun
að horfa á það sjónarspil, að það kallar
fram gæsahúð áhorfenda. Krafturinn
og djöfulgangurinn þegar birtingarnir,
stórir sem smáir, láta sig vaða upp úr
strengpottum undir veggnum, smella í
flauminn og reyna að taka til sporðsins.
Orðið „túrbó“ fær nýja merkingu að
horfa upp á slíkt! Margir fljúga til baka,
en þeir reyna alltaf aftur. Og aftur og
aftur, þangað til þeir komast upp. Þar
sem áin byrjar að breikka út í uppi-
stöðuna, leggjast þeir meðfram kletti og
tökur þar geta verið æsilegar, ef menn
fylgja flugunni og sjá birtingana þjóta
útúr skugganum og hremma agnið
með látum á frekar grunnuvatni.
Neðan við stífluna og Funa rennur áin
í mörgum smáum strengjum niður í
þorpið og það er veiðivon þar hér og þar
í góðu vatni. A.m.k. einn ágætur hylur
þar sem heldur fiski, en síðan er það
fossinn sem allir Hvergerðingar þekkja
og er mikill fiskipottur. Þar safnast
oftast fljótlega mikið af fiski og getur
verið sjónarspil að horfa þar ofan í, því
margir eru verulega stórir. Menn reyna
að standa fyrir ofan og neðan, en flugan
fær sjaldnast gott rennsli og þetta er
einn af þeim stöðum þar sem menn
geta stðið út í eitt án þess að fá högg
þrátt fyrir að allt sé morandi af birtingi.
Einstaka maður hefur komist upp á
lagið og veitt vel, en svo koma þessi
Einar Falur Ingólfsson með einn af þessum risaurriðum sem áin er fræg fyrir. Mynd gg.
21
Varmá/Þorleifslækur
óvæntu skot þar sem menn kannski átt-
uðu sig ekki almennilega á því hvað það
var sem þeir gerðu, og gerði gæfumun-
inn! Yfirleitt hefur Fossinn því gefið á
heildina litið vel í lok hverrar vertíðar.
Það eru smástrengir frá Fossinum og
niður að þjóðvegarbrú, en neðan brúar
taka við stórveiðistaðir. Þar erum við
líka komin á það svæði sem leyft er að
veiða á vorin. Ofan brúar er lokað þar til
komið er fram á sumar.
Fyrst er að nefna sannkallaðan Hornhyl
niður með bergi skammt neðan vegar.
Þar er oft fiskur, en lítið reynt vegna
nálægðar hinna frægu Stöðvarhylja.
Það eru síðan strengir á leiðinni til
fyrirheitna landsins, en flestir flýta sér
hratt þangað. Fyrst er Stöðvarhylur, þétt
undan stöðinni og í framhaldi Stöðvar-
breiða sem er nokkuð löng og endar
með broti.
Hér veiða menn aðallega á vorin og
þá bæði birtinga á leið niður og síðan
staðbundna urriða sem sumir hverjir
eru svo stórir að það er næstum grín. Á
hverju vori veiðast all nokkrir 10 til jah,
16-18 punda. Eflaust eru menn eitthvað
að setja í sömu fiskana því öllum fiski
skal sleppt í ánni, en það breytir því ekki
að tilvist þessara ógnarmiklu fiska gerir
þetta svæði frekar heillandi þó svo að
mörgum þyki lítil reisn yfir veiðistöð-
unum sem slíkum vegna nálægðar
stöðvarinnar. Og það er einmitt stöðin
sem laðar þessi tröll að og gerir þeim
kleift að stækka og fitna jafn mikið og
raun ber vitni. Þetta er sama fyrirbærið
og í Minnivallalæk, urriðinn kemst
þarna í fóðurafganga í frárennslinu og
kýlir vömbina. Einn helsti tökustaður-
inn er eimitt á Stöðvarbreiðu, beint
niður af frárennslisrörinu!
Neðan við Stöðvarsvæðið er víða veiði-
legt. Stuttur gangur er að göngubrúm
þar sem miklir pottar eru fyrir neðan.
Veiðivon þar góð og síðan er þekkt að
menn fara niður með öllum bökkum og
geta rekið í fisk hvar sem er. Kunnugir
segja meira að segja sérstakan bleikj-
ustofn í Grímslæk sem kemur í ána
lengst niður á sléttlendinu.
En Varmá/Þorleifslækur, sérstaklega
neðan þjóðvegar er einnig þekkt
fyrir stærri kokteila. Þar veiddist árlega
slangur af regnbogasilungi, sem eflaust
hefur sloppið frá fiskeldinu. Sumt af
þessum regnboga gekk til sjávar og
Ísland átti allt í einu sinn eigin „steal-
head“stofn. Ólafur sérstakur saksóknari
veiddi þann stærsta sem var góð 14
pund ef við munum rétt. Þessum fiski
hefur hins vegar fækkað mikið og sést
nú lítið. Þá er þarna að koma og fara
Stefán Kristjánsson með eina af risableikjunum sem finnast í ánni. Mynd Stefán Sigurðsson.
22 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
veiðistaðurinn
torfa af risavöxnum bleikjum sem al-
mennt er talið að séu afkomendur eld-
isfiska sem einnig sluppu frá stöðinni!
Sumar af þessum bleikjum hafa verið
yfir 10 pund. Heyrst hefur af fiskum
allt að 14 pundum. Þegar menn voru
að setja í þessi kvikindi með léttum
græjum voru þeir dregnir upp og niður
alla á. Þá er þarna flundra, komin langt
frá sjó. Eitt sinn óð skrásetjari þessa
texta yfir brotið neðst á Stöðvarbreiðu
og botninn fór bara allur af stað! Tugir
af smákolum þar á ferð.
Loks eru nokkrir laxar í þessari á og
þeir ganga í það minnsta inn að fossi
og líklega lengra. Fiskifræðingar hafa
fundið þau hraðvöxnustu laxaseiði
sem fundist hafa á Íslandi rétt neðan
við heitan læk sem kemur út í Varmá
ofarlega í byggðinni. Seiðin voru að ná
sjógönguþroska á ríflega einu ári og
er vafalaust að jarðhitinn hefur valdið
því hversu skilyrði fyrir þessi seiði eru
góð. Fyrrum fór orð af meiri laxgengd í
ánni, a.m.k. sum sumur og eitt sumarið,
fyrir einhverjum áratugum, veiddust
tveir laxar í ánni sem voru vel yfir 20
pundum. Sá stærri 26 pund! Slíkt er nú
varla til lengur, en teljarinn sem settur
var neðarlega í ána eftir klórslysið fyrir
þremur árum hefur mælt allt að 90 cm
langa göngufiska á leið upp ána. Líklega
trúa því flestir að þar séu eldgamlir
sjóbirtingar á ferð.
Af þessari umfjöllun má ráða að Varmá/
Þorleifslækurer um margt merkileg og
sérstök á. Frá sjónarhóli veiðimanna á
höfuðborgarsvæðinu þá er það frábært
að geta skroppið í góða veiði í straum-
vatni á innan við hálftíma. Og oft og
iðulega með litlum fyrirvara.
Varmá er gjöful og spennandi, ef menn
geta horft fram hjá nálægðinni við
byggðina í Hveragerði. Enn fremur ef
menn geta horft fram hjá því að flugan
er eina leyfilega agnið og skylt er að
sleppa öllum fiski aftur í ána.
Varmá er gríðarlega fjölbreytt, lengst
niður frá nánast langur skurður, síðan
hyljir á sléttlendi er ofar dregur, m.a.
hinn frægi og umtalaði Stöðvarhylur
ásamt Stöðvarbreiðu, síðan er gil með
hinum fallega Reykjafossi í miðju þorp-
inu og síðan kyngimagnað gil við og
upp af Frosti og Funa...loks sléttlendi aft-
ur með fallegum bakkahyljum. Þar upp
frá eru mikilvægar hrygningarstöðvar
sjóbirtingsins og þær munu hafa stuðlað
að því að tjónið af klórslysinu varð ekki
verra og meira en raun bar vitni, slysið
varð í vetrarbyrjun þegar allur sá fiskur
sem hrygnir þar efra var kominn upp
eftir og lenti því ekki í klórnum.
Varmá/Þorleifslækur er ómissandi val-
kostur fyrir stangaveiðimenn á suðvest-
anverðu landinu. Þangað er hægt að
skreppa dagstund, oft með litlum fyrir-
vara alveg frá apríl og fram í október.
Það er alltaf eitthvað að gerast, alltaf von
á einhverju spennandi og skemmitlegu.
24 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
fluguboxið
Sjóbirtingstíminn fer í hönd
Stórveiðimaður segir frá leynivopninu sínuNú fer sjóbirtingstíminn í hönd og þá gleðjast margir. Margir stangaveiðimenn hafa uppgötvað að sjóbirtings-veiðar gefa laxveiði lítið eftir þótt síður sé, fiskurinn er síst ómerkilegri og fyrir utan jú, að það er algengt að veiði-menn séu með hærri meðalþyngd úr sjóbirtingstúrnum heldur en úr laxveiðiturum sumarsins. Þá er birtingurinn dyntóttur og skemmtilegur og ef það má hirða eitthvað til að taka heim þá er hann ekki síðri til neyslu en lax eða bleikja. Flestir sem reynt hafa, þykir skemmtilegast að taka birtinginn á flugu og sums staðar er annað agn beinlínis óheimilt. Þær eru ýmsar sjóbirtingsflugurnar og í eðli sínu eru þær flestar ólíkar laxaflugunum þó að fiskarnir séu náskyldir. Margar eru vel þekktar, en okkur langaði til að kynnast einhverju nýju og heyrðum því í hörðum sjóbirt-ingsmanni að nafni Valgarð Ragnarsson.
Valgarð er leigutaki Húseyjarkvíslar í
Skagafirði og í þá á gengur margur stór
sjóbirtingurinn. Valli leiðsegir einnig
veiðimönnum víða um land og reynir
að veiða eins mikið sjálfur og frekast
er kostur. Þeir sem horft hafa á mann-
inn að veiðum velkjast ekki í vafa um
tvennt: 1)Hann er með veiðidellu...og 2)
Hann kann að veiða. Hann féllst á sýna
okkur þá flugu sem hann hefur veitt
nánast alla sína stærstu sjóbirtinga á.
25
Hún er búin að vera til í „10 til 15 ár“ og
er mikið notuð af ákveðnum vinahópi,
en ekki sérlega mikið þar fyrir utan.
„Hún er eftir Ingó bakara, eða Ingólf
Davíð Sigurðsson og við höfum alltaf
bara bókað á Zonker sem er skírskotun
til efnis í flugunni. Ég ætla bara að taka
mig til núna og skýra fluguna form-
lega Gollann fyrst að við erum að fjalla
um hana svona opinberlega. Þetta er
mögnuð fluga sem við notum ýmist
sem eins til tveggja tommu brasstúpu
eða sem straumflugu með keiluhaus,
oftast númer 2 og 4. Við notum í hana
Crystal Chanel, oftast svart og rautt,
en líka stundum silfur. Zonkerinn er
svart kanínuskinn, stélið grænt. Síðan
erum við með gular eða hvítar gúmmí-
lappir. Ég las einhvers staðar að þessar
gúmmílappir gæfu frá sér einhver
hljóð. Ekki veit ég nánar um það, en
hitt er að þær gæða fluguna talsverðu
lífi í vatninu. Aðferðarfræðin er ekki
flókin.Ég veiði mjög djúpt, oftast með
10-300. Kasta þvert, menda og flugan
sekkur hratt, jafnvel alveg niður á botn
og þegar rekið er um það bil hálfnað
byrja ég að strippa og strippa hratt. Hún
skýst þá til baka rétt yfir botninum.
Birtingurinn liggur oftast djúpt á vorin
og haustin og það þarf að sækja niður til
hans. Þetta svínvirkar og á þessa flugu
hef ég veitt nánast alla mína stærstu
sjóbirtinga, bæði í Húseyjarkvísl og
einnig Tungufljóti þar sem ég veiði líka
mikið. Þetta eru að vísu stórar ár og víða
sandbotn þar sem maður er með þessa
aðferð. Smærri vatnsföll myndu kalla
á hægari sökkhraða og svo verður líka
alltaf að taka mið af botnlaginu. Ef það
eru festur þá þarf að hafa þær í huga og
veiða eftir því.“
Hvað meinar Valli þegar hann talar um sína stærstu birtinga?„Sá stærsti í Tungufljótinu kom eitt
vorið fyrir nokkrum árum. Setti í hann
við brúna yfir Fljótið. Hann var 96 cm
og þó að um vorfisk væri að ræða þá
var hann vel þykkur og eflaust vel yfir
20 pundum. Stærsti birtingurinn í
Húseyjarkvísl var 89 cm, sílspikaður
geldfiskur. Þá hef ég veitt fullt af 70 til
80-plús sentimetra fiskum í báðum
ánum og þá stærstu nánast alla á Goll-
fluguboxið Gollinn
ann. Margir af þeim hafa verið geld-
fiskar og finnst manni það með miklum
ólíkindum hvað þeir eru stórir án þess
að vera kynþroska. Manni hefur dottið í
hug að þetta sé kannski eins og í Þing-
vallavatni, að þessir stóru urriðar sleppi
jafnvel úr hrygningu til að hvíla sig og
næra sig. Það er jú mótsagnakennt að
landa kannski 89 cm geldfiski og síðan
rétt á eftir 3 punda sláp!
Ég nota líka talsvert þessar þekktu
sjóbirtingsflugur, Black Ghost, Flæðar-
mús og síðan bæði svartan og appels-
ínugulan Nobbler. Set þær líka ýmist á
brasstúpur eða straumfluguöngla með
keilu. En ég hnýti þær allar með blý-
eða tungstenaugum til að kýla þær hratt
niður,“ segir Valgarður Ragnarsson.
26 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011
Join the CULT
Hrygnan ehf.Síðumúla 37Sími: 581-2121
www.hrygnan.is
flokkur
Blue Charm
Yfirburðafluga sem er varla notuð lengur
fluguboxið
Fyrir ekkert allt of mörgum árum síðan var laxafluga ein nánast alltaf í
efsta sætinu yfir gjöfulustu flugurnar. Ár eftir ár, sama hvaða á um var
rætt. Alltaf sat þessi fluga efst. Nú til dags er hún varla notuð. Sést varla í
veiðibókum og kúrir nú orðið helst í einhverjum eldri boxum veiðimanna
sem sjaldnast koma upp úr töskunum. Þetta er Blue Charm sem svo
sannarlega má muna sinn fífil fegri, en er án nokkurs vafa alveg jafn góð
fluga í dag og hún var í gær!
Þarna sátu þær einráðar, Blue Charm
efst, Black Doctor alltaf skammt undan.
Svo voru Thunder and Lightning, Hairy
Mary, Sweep og öll þessi kunnuglegu
nöfn. Það komu tískuflugur, Mudd-
lerar, hárflugur og menn fóru að hitsa.
En Blue Charm hélt alltaf sínu. En
síðan fóru tímar að breytast. Frances
kom fram á sjónarsviðið. Síðan hafa
komið í einhvers konar röð, Snælda,
Sunray, hitstúpur og allar þessar flugur
eru í mýmörgum litar- og útfærsluaf-
brigðum. Þær fljóta, sökkva, sökkva hratt
eða skauta í yfirborðinu. Síðan er heill
her af smáum flugum á þríkrókum sem
ætlaðir eru til að veiða á strippi og í litlu
og viðkvæmu vatni. Það er varla tími
lengur til að hugsa aftur til gömlu góðu
daganna og leyfa Blue Charm að fara
eins og nokkrar bunur yfir hyl.
Blue Charm er sannarlega ein af gömlu
djásnunum. Í Flugubók Jóns Inga
Ágústssonar frá árinu 1997 stendur
þetta: „Var hönnuð um miðja 18 öldina
og er án vafa ein vinsælasta laxafluga
veraldar. Hefur verið notuð hérlendis
frá upphafi fluguveiði og var gjarnan
fengsælust. Hún er enn yfirleitt á blaði
yfir gjöfulustu flugurnar í fjölmörgum
ám. Önnur útfærsla er til af Blue Charm
eftir George M.Kelson, en hún er með
vínrauðu silki (flos) í búk og svartri
Berlínarull um hausinn.“
Ekki eru þó allir sáttir við þessa sögu-
skýringu, því í Laxaflugubók Lárusar
Karls Ingasonar sem kom út árið 2007
stendur að flugan sé ein af hinum klass-
ísku gömlu ensku flugum. Og að talið sé
að hún hafi verið hönnuð fyrst á 15. öld
28 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011
2929
30 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
af Colin Simpson sem var atvinnuhnýt-
ari sem lærði handbrögðin hjá föður
sínum Alex Simpson.
En hvað um það, vinsæl var hún og
gjöful með afbrigðum. Og kannski
einmitt vegna þess að hún hefur þetta
látlausa og einfalda yfirbragð sem ein-
kennir svo margar afburðagóðar flugur.
Í bók Lárusar Karls er mikil lofrolla um
fluguna frá Þórarni Sigþórssyni sem allir
laxveiðimenn á Íslandi þekkja. Hann
er einn fengsælasti laxveiðimaður hér
á landi sem enn dregur andann og vel
má vera að enginn núlifandi veiðikappi
hafi landað jafn mörgum löxum um
daganna. Þórarinn var þó lengst af best
þekktur fyrir leikni sína við maðkveiðar,
en flugan flaut alltaf með og með ár-
unum færði hann sig meira yfir í flugu-
veiði. Og þá fékk Blue Charm þennan
líka háa sess. Þórarinn segir: „Ef ég
mætti velja aðeins eina flugu til að taka
með mér í laxveiðiferð, þá stæði valið á
milli Blue Charm og rauðrar eða svartrar
Frances. Ég veiddi í mörg ár á besta tím-
anum í Norðurá með vini mínum Ing-
ólfi Ásgeirssyni. Við veiddum feiknalega
vel og flesta laxana á Blue Charm. Hún
virkar einmitt best um hásumarið, eða
a.m.k. gildir það um Suðvesturlandið.
Mín stærsta stund með Blue Charm kom
þó í Selá í Vopnafirði við hyl sem heitir
Krókur. Þar horfði ég upp á röð eftir röð
af stórlöxum sem litu ekki við neinu. En
þegar ég kastaði á þá long tail afbrigði
af Blue Charm voru 3-4 á eftir flugunni
í hverju kasti og áður en ég vissi var
kvótinn kominn!“
Árið 1997 gaf NASF/Orri Vigfússon út
fjáröflunarbókarkver sem bar heitið
Worlds Best Flies. Bókin var í litlu broti
og ómyndskreytt, en efni hennar var
stórt og mikið samansafn af textum frá
vinum og vandamönnum NASF-sjóðs-
ins, þar sem viðkomandi upplýstu um
eftirlætislaxaflugu sína og hvers vegna
viðkomandi fluga var í hásætinu. Ótrú-
lega margir nefndu Blue Charm, enda
var hún enn feikna vinsæl árið 1997. Hér
eru nokkrar umsagnir:
Hansbjorg Dietiker frá Sviss: Blue
Charm er uppáhaldsflugan mín vegna
þess að á hana veiddi ég minn fyrsta lax
í Errif ánni á Írlandi.
Andrew Douglas-Home frá Skotlandi:
Ég veiddi tólf fyrstu laxa mína á Blue
fluguboxið
31
Charm, í apríl 1960 og apríl 1961, þá 10
og 11 ára gamall.
Uffe Elleman-Jensen, Danmörku: Ég
fékk minn stærsta lax á Íslandi á Blue
Charm, 17 punda í Laxá í Aðaldal og auk
þess er blár eftirlætisliturinn minn.
Dr.Derek Mills , Skotlandi: Blue Charm
er klassísk fluga og einföld. Nota má
hana í ýmsum stærðum með góðum
árangri í flestum ám í Skotlandi frá mai
og fram í september. Litir hennar minna
á hafið og tærar, hreinar bergvatnsár.
Matthías Johannessen, Íslandi: Ég veiddi
tvo 17 punda laxa í sömu vikunni, í Þverá
og Langá, á sömu Blue Charm fluguna.
Steingrímur Hermannsson, Íslandi:
Þetta er erfið spurning. Ég á svo marg-
ar eftirlætisflugur, næstum því má
segja að það sé ný fluga á hverju sumri
þau 47 ár sem ég hef veitt lax á flugu.
En á Blue Charm veiddi ég minn fyrsta
lax 12 ára gamall og allar götur síðan
mun fleiri laxa heldur en aðrar flugur
hafa gefið mér.
Svo mörg voru þau orð. Það mætti
kannski fara að grafast fyrir um afdrif
Blue Charm flugnanna í veiðitöskunum,
því hún er án efa enn í mörgum þeirra.
Ritstjóri var aldrei að kaupa Blue Charm
og veiddi árum saman á aðrar flugur.
En dag einn fyrir mörgum árum varð
Antonio Ruiz Ochoa, Toni, á veginum.
Toni veiddi um árabil í Langá ásamt
vinum og fjölskyldu. Dvaldi hópurinn
við ána í 3-4 vikur á hverju sumri. Þetta
var áður en áin var leigð í heilu lagi og
Spánverjarnir veiddu í löndum Ána-
brekku og Langárfoss. Toni gaf ritstjóra
að skilnaði þrjú eintök af Blue Charm
sem hann sagði hópinn yfirleitt moka
Blue Charm
Látum hér fylgja til gamans uppskrift af nútímalegri hárfluguútgáfu af BC. Uppskriftin er úr flugubók Jóns Inga. Menn geta hrært í þessari uppskrift að vild að sjálfsögðu, en hér kemur þetta:
Öngull: 6-16 hefðbundnir (sem þýðir væntanlega að eigin vali)
Tvinni: Svartur Danville
Broddur: Ávalt silfur, gult flos
Stél: Hausfjöður af gullfashana
Loðkragi: Svartlituð strútsfjaðrarfön
Vöf: Ávalt silfur
Búkur: Svart flos
Skegg: Ljósblálituð hanahálsfjöður
Vængur: Hár úr gráu íkornaskotti
Haus: Svartur (nú, eða brúnn! Og af hverju ekki að prófa að hafa hausinn rauðann?)
Það ætti að vera hægt að gera BC hitstúpu, BC strippara á smáum þríkrók og meira að segja BC keilutúpu, sbr velgengni sem flugur á borð við Black and Blue og Green Butt hafa notið. Áfram Blue Charm!
upp laxi á. Þetta var dálítið sérstök Blue
Charm, því hún var með brúnum haus.
Dettur manni þá í hug að í viðtali við
Sigurð Héðinn í síðasta tölublaði Veiði-
slóðar, að hann nefndi spænska flugu-
hnýtarann Bella Martinez sem hafði alla
fluguhausa sína brúna. Ritstjóri fór að
nota þessar flugur. Gaf eina einhverjum,
veiddi aðra síðan þangað til að hún var
orðin trosnuð og ónýt af laxakjöftum.
Þegar stefndi í það sama með þá þriðju
og síðustu var henni lagt í hvíldar- og
hressingar fluguboxið og því er hér
mynd af brúnhausa-afbrigðinu.
fluguboxið
Ljót fluga sem gefur bara stórlaxa!Við vorum á vordögum með nokkur sýnishorn á vefnum okkar votnogveidi.is af Pro Tube túpuflugunum sem Nils Folmer Jörgensen hefur hannað ýmsar magnaðar flugur eftir. Og fyrir skemmstu greindum við frá því að hann hefði hannað eina nýja sem gaf honum við fyrstu notkun tvo sannkallaða stórlaxa í Hafralónsá, annan 104 cm og hinn 98 cm.
Nils segir: „Veiðin hafði verið á rólegu
nótunum og veiðimennirnir, ég með-
talinn, að berjast við að ná einum og
einum fiski. Á síðustu kvöldvaktinni
var ég búinn að vera fisklaus ansi lengi
í túrnum, þrátt fyrir að hafa reynt alls
konar aðferðir og afbrigði af þeim. Ég
var staddur við hyl einn ofarlega í ánni
og eins og hefur hent mig ótrúlega oft í
seinni tíð, þá varð risalax á vegi mínum.
Efst í hylnum, þar sem straumurinn
var stríður, fékk ég góða töku en laxinn
festi sig ekki. Ég var frekar leiður yfir því
að klúðra tækifærinu loksins þegar það
gaf sig, en gaf laxinum þó kortér til að
jafna sig. Kastaði þá aftur og laxinn tók
um leið. Fyrst hélt ég að þetta væri bara
venjulegur lax, en þegar hann tók roku
undan strengum og sýndi sig var ekki
um að villast að ég var kominn með
tröll á hinn endann. Hann æddi niður í
næsta hyl og síðan aftur til baka, en það
gekk allt að óskum og laxinum landaði
ég í fyllingu tímans. Þetta var glæsi-
legur hængur, 104 cm.
Síðasta morguninn var ég með sömu
fluguna í hyl númer 13. Laxinn negldi
fluguna og brjálaðist um leið. Æddi fram
og aftur og síðan niður úr hylnum og
þurfti ég að elta hann niður í hyl númer
11. Á þeirri leið eru klettar og þurfti ég
að gefa laust á meðan ég prílaði á eftir
laxinum. Þegar komið var í hyl 11 hófst
bardaginn aftur af fullum krafti og þá
tókst laxinum að brjóta stöngina mína.
En sem betur fer var fljótlega eftir það
svo mjög af honum dregið að ég gat
gripið í tauminn og stýrt fiskinum að
bakkanum. Þar greip ég hann, losaði úr
honum, mældi hann og sleppti síðan
aftur. Þetta var líka hængur, 98 cm og
mjög þykkur. Sannkölluð veiðisaga á
ferðinni hérna. Mikil dramatík.
32 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
33
Báðir þessir laxar tóku nýja flugu sem
er ljót og kalla ég hana Ugly Hann. Hún
hefur aðeins gefið tvo laxa til þessa, en
meðalstærðin er svakaleg. En talandi
um að rekast reglulega á risalaxa. Þetta
var minn þriðji yfir 100 cm í sumar og
í fyrra fékk ég fjóra slíka. Alveg hreint
brjálað að lenda stanslaust í þessum
tröllum.“
Síðan sagði Nils okkur frá flugunni og
tilurð hennar. Hann sagði að hugmynd-
in væri fengin hjá Pot Belly Pig og þetta
væri fluga sem hann notaði einvörð-
ungu í mjög sterkum straumi. „UH er
smíðuð til að kasta yfir strenginn þar
sem hún sekkur hratt og kemst undir
meginstrauminn áður en hann hrífur
hana með sér, enda er hann oft stríðari í
efri lögunum heldur en neðar.
Ugly Hann
Hnýtingin:
Túpa: Pro Tube Flexi Tube, hvort heldur er glær eða svört
Þynging: Pro Tube Drop Weight (þyngingin)
Pro Tube Sonic Disc - svartur
Buck Tail: Appelsínugult, gult og svart
Skeggin: Appelsínugult, gult og svart
Búkur: kopar
Tinsel: Gull
„Klær“ : Hani - Fire Orange
Flash: Crystal Flash
Augu: Frumskógarhani - appaelsínugul
34 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Rick Rosenthal á tökustað.Ljósmynd: Deirdre Brennan
35
Týndur í úthafinu Verður Atlantshafslaxinum bjargað?
Á nýliðnu sumri var staddur hér á landi hópur kvkmynda-
gerðarmanna frá írska fyrirtækinu Castletown Productions.
Í hópnum var einn fremsti kvikmyndatökumaður veraldar á
sviði náttúrulífsmynda, Rick Rosenthal, sem hefur unnið til
tveggja Emmyverðlauna og hefur komið að kvikmyndun á
heimsþekktum þáttaröðum á borð við Blue Planet og Planet
Earth hjá BBC og Great Migrations hjá National Geographic
Television. Hópurinn vinnur nú að gerð risaverkefnis sem er
kvikmyndin Lost at Sea og fjallar um Atlantshafslaxinn, líf hans
og hættur þær sem að honum steðja. Hópnum til halds og
trausts á meðan á Íslandsdvölinni stóð var Lax-á, en fyrirtæki
Árna Baldurssonar er einn af styrktaraðilum Castletown vegna
myndarinnar. Veiðislóð ræddi við bæði Deirdre Brennan,
forsprakka Castletown Productions og Rick Rosenthal kvik-
myndatökumann.
viðtal
36 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
viðtal
Hópurinn fór vítt og breytt um landið
í fylgd Árna Baldurssonar og Hörpu
Hlínar Þórðardóttur. Fóru tökur m.a.
fram við Tungufljót í Árnessýslu,
Svartá, Víðidalsá, Haffjarðará og víðar.
Hópurinn var ánægður með aðstöðuna
og tækifærin sem hér buðust, en við
báðum Deirdre fyrst að segja okkur um
tilurð myndarinnar.
„Sem barn eyddi ég sumrum á bú-
garði afa og ömmu sem að stóð við
ós Shannon árinnar. Fylgdist þar með
veiðimönnum á laxveiðum úr litlum
bátum. Strax á barnsaldri heillaðist ég
af laxinum, þessum fallega, stóra og
sterka fiski sem var að koma aftur til
heimahaga sinna í Shannon eftir langt
ferðalag í úthafinu. Lífsstarf mitt við
kvikmyndagerð hefur gert mér kleift
að koma þessari hrifningu á framfæri,
þ.e.a.s. með gerð náttúrulífskvikmynda,
að segja sögur úr náttúrunni með kvik-
mynd. Fyrsta myndin sem ég gerði var
um einn sjaldgæfasta fugl veraldar, Ber-
muda skrofuna, og tilraunir eins manns
til að bjarga henni frá útrýmingu.
Leikstjóri þeirrar myndar, Eamon de
Buitlear, leiddi mig í allan sannleikann
um lífshlaup laxins í framhaldinu. Hann
kynnti mig fyrir Ken Whelan Íra sem
var í þann mund að hleypa af stokkun-
um gríðarlega stóru og metnaðarfullu
átaki til að bjarga villtum laxastofnum.
Yfir kvöldverði í New York talaði Ken af
svo miklum tilfinningahita um verk-
efnið að ég smitaðist gersamlega og
þarna um kvöldið fæddist hugmyndin
að „Lost at Sea“. Ég kynnti mér betur
sögu hnignandi laxastofna, hnignun
sem byrjaði á sjöunda áratugnum og
stendur enn. Hvernig laxarnir tína
tölunni í hafinu og alla þá vísinda-
vinnu sem unnin hefur verið til þess
að grafast fyrir um afdrif þeirra. Mér
fannst þessi saga verða meira og meira
heillandi, hvernig barátta manna við
að bjarga laxastofnun hefur opnað fyrir
enn meiri þekkingu sem tengist ekki
aðeins laxastofnun heldur lífríkinu öllu
í hafinu og hvernig það tvinnast saman.
Það eru margir úti á örkinni sem hafa
sterkar tilfinningar gagnvart villtum
laxastofnum og margir úr þeim hópi
koma að fjármögnun myndarinnar.“
Deirdre Brennan, framleiðandi myndarinnar.Ljósmynd: Martin Silverstone
37
Deirdre Brennan og Rick Rosenthal
Stórt verkefni varð enn stærra ekki satt?„Jú. Eins og ég gat um áðan þá var Lost
at Sea í fyrstu ætlað að fjalla um SAL-
SEA-Merge verkefnið sem er fjölþjóðleg
rannsókn sem ætluð er að kortleggja
ferðir laxa um Norður Atlantshafið,
hvaða leiðir laxarnir fara, hvað þeir
éta og hvar og hvað það er í umhverfi
þeirra sem hefur breyst í þá veru að
laxarnir tína tölunni. En fljótlega varð
okkur ljóst að ef við ætluðum aðs egja
alla söguna þá urðum við að heimsækja
árnar, upphaf og endi á ævi laxins. Við
hófumst handa í Evrópu, en ákváðum
síðan að ná utan um allt útbreiðslu-
svæði Atlantshafslaxins og nú er svo
komið að kvikmyndin mun ná yfir allt
konungsríki þessa konungs fiskanna,
Norður Ameríku, Evrópu, Skandinavíu,
Ísland og ekki síst Grænland, þar sem
laxar koma frá báðum heimsálfum,
blandast þar í áturíkum sjó og éta í 1,2
eða 3 ár áður en þeir snúa til heima-
haga sinna á ný. Það sem setur þessa
mynd á skör yfir aðrar er að við getum
sagt sjávarsöguna sem aldrei hefur
verið sögð. Við getum það vegna hinna
mikilvægu rannsókna sem gerðar hafa
verið á sjávarferðum laxins hin allra
síðustu ár.“
Þetta hlýtur að kosta stórar fjárhæðir? –Hvernig farið þið að?„Já, svona kvikmynd er risavaxið verk-
efni og henni verður ekkert rumpað af.
Við þurfum að kynnast allri sögunni
við allar árnar sem við heimsækjum, í
öllum löndunum. Hitta fólk sem kemur
við sögu, hópa og samtök sem hafa
reynt að bjarga stofnum. Finna út hvað
ógnar laxastofnum á hinum marg-
breytilegustu stöðum. Því tekur þetta
lengri tíma en margt annað sem hægt
væri að taka sér fyrir hendur, en á móti
kemur að við munum geta sagt mjög
djúpa og vel ígrundaða sögu. Fjárlögin
fyrir kvikmyndina eru 500þúsund
Evrur. Við náum endum saman með
samningagjörð við ýmsa styrktaraðila
sem við vinnum náið með. Dæmi um
það er The Atlantic Salmon Federation.
Aðrir aðilar eru t.d. veiðifélög, líffræði-
stofnanir og jafnvel veiðileyfasalar á
borð við Lax-á á Íslandi. Við erum búin
með um það bil 40 prósent af tökum
og þurfum því að bæta heilmiklu við
okkur fyrir utan jú alla ritstjórnarvinnu.
Deirdre Brennan setti í sinn fyrsta lax í ferðinni og þreytir hann hér undir handleiðslu Árna Baldurssonar og Stefáns Sigurðssonar.Ljósmynd: Martin Silverstone
38 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Við erum samt sem áður komin á það
stig í vinnslunni að ganga til samninga
við dreifingaraðila og ljósvakafyrirtæki.
Þetta er viðskiptamódel sem við höfum
unnið eftir alveg síðan að við gerðum
fyrstu myndina um Bermuda-skrofuna
og virkar vel. Á sínum tíma kom t.d.
írska ljósvakafyrirtækið RTE að mynd-
inni á svipuðu vinnslustigi, með þeim
kom aukin velta og RTE sýndi síðan
myndina all nokkrum sinnum. Við
erum því enn opin fyrir fleiri styrktar-
og samstarfsaðilum.“
Hvenær ætlið þið að ljúka við myndina?„Planið er að klára hana á næsta ári,
2012.“
Hvenær munið þið sýna myndina og hvar?„Við komum með myndina til þeirra
staða þar sem við tókum upp efni. Þar
verður hún kynnt og sýnd. Ísland er eitt
af okkar helstu löndum þannig að við
vonumst til að geta komið með hana
til Íslands næsta sumar. Myndin verður
einnig sýnd völdum áhorfendahópum
í ýmsum borgum og einnig notuð til
kennslu. Þá munum við kynna mynd-
ina á náttúrulífs- og heimildamynda-
messum og gerum okkur miklar vonir
um að í framhaldinu kaupi sjónvarps-
stöðvar sýningarrétt. Útgáfa DVD diska
er einnig inni í myndinni. Vefsvæðið
okkar verður notað til að áhugasamir
geti fylgst með allri framvindu mála.“
viðtal
Deirdre Brennan og Rick Rosenthal við Haffjarðará.Ljósmynd: Martin Silverstone
39
Hvernig er þér innanbrjósts eftir að hafa ferðast um hin ýmsu lönd og kynnst laxinum af eigin raun?„Þegar ég fór af stað með þessa kvik-
mynd var ætlunin að segja frá þessari
dýrðarskepnu sem hefur fækkað svo
mjög og rannsóknum þeim sem fram
hafa farið á því hvað það er sem veldur.
Það sem hefur kannski komið mér
hvað mest á óvart er hin ómælanlegi
eldhugur fjölmargra sem að ég hef hitt.
Fólk beggja vegna hafsins, veiðirétt-
areigendur, veiðimenn, vísindamenn,
allir eru fullir eldmóðs, sjá hættuna
og hafa gripið til sinna ráða. Sú aukna
vitneskja sem fengist hefur um sjávar-
slóðir laxa getur skipt sköpum í barátt-
unni til að hjálpa laxinum að rétta sig
af. Að geta sagt söguna gæti því leitt af
sér eitthvað gott.“
Það má sjá af myndum sem við höfum undir höndum frá ferð ykkar að þú ert að þreyta lax. Var þetta þinn fyrsti, eða ertu alvön?„Þetta var fyrsti laxinn minn og hversu
frábært var að fá hann hér á Íslandi.
Mér fannst þetta mjög skemmtilegt, en
ég hefði viljað sleppa laxinum ef hann
hefði ekki slitið sig lausan þegar ég
ætlaði að landa honum. Árni sagði mér
samt að laxinn teldi, því hann hefði náð
að snerta tauminn. Ég veit ekki, ég hefði
kannski verið neydd til að drepa hann
og fara í gegnum þessa seremóníu að
bíta veiðiuggann af. Ég var í veiðihúsi
þegar tveir krakkar úr stórfjölskyldu
sem var að veiða voru látnir bíta uggana
af og kyngja þeim. Ég er ekki viss um að
ég hefði verið til í það!“
Deirdre Brennan og Rick Rosenthal
Við Tungufljót, Deirdre Brennan, Rick Rosenthal, Árni Baldursson og Katya Shirokov skiptast á skoðunum.Ljósmynd: Martin Silverstone
40 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
viðtal
Sjávarlíffræðingur skiptir yfir í kvikmyndatökur
Rick Rosenthal er þekktur í sínum ranni.
Maður með tvenn Emmy-verðlaun fyrir
kvikmyndun. Aðal myndasmiðurinn á
stórvirkjum á borð við BBC þáttaröðina
Planet Earth. Maður sem hefur unnið
náið með náttúrulífshetjum á borð við
David Attenborough. Rick er menntaður
sjávarlíffræðingur, er frá Bandaríkj-
unum, og starfaði sem slíkur til margra
ára. Eftir hann liggja skýrslur og rann-
sóknarniðurstöður í stórum stíl. En
hann fann hjá sér aðra köllun.
„Ég var reyndar byrjaður að kafa mér
til skemmtunar á yngri árum, en það
var þegar ég áttaði mig á því að það var
enginn að lesa allar þessar rannsóknar-
skýrslur sem ég sendi frá mér, þegar ég
fann að tími var kominn til að breyta til.
Ég vildi koma þessum heillandi heimi
undirdjúpanna inn á borð til almenn-
ings með þeim hætti að eftir yrði tekið.
Ég man vel enn þá svipinn á banka-
stjóranum þegar ég sótti um lán til að
kaupa fyrstu myndavélina. Hann var
bara hinn vingjarnlegasti og hélt mig
ætla að kaupa eitthvað ósköp venjulegt,
en brosið stirðnaði þegar ég nefndi
upphæðina. Ég var nefnilega á höttun-
um eftir vönduðum upptökugræjum,“
sagði Rick í samtali við Veiðislóð.
Um kvikmyndina Lost at Sea sagði hann: „Þetta er hugarfóstur Deirdre´s. Hug-
myndin er hennar og hún var byrjuð
með þetta verkefni þegar við hittumst.
Ég hitti hana í Kanada og hún sagði
mér að hún væri með kvikmynd í
burðarliðnum þar sem laxaseiðin væru
elt úr ánni til hafs til að grennslast fyrir
um afdrif þeirra. Þetta heillaði mig og
fljótlega var kominn stærri rammi á
verkið. Þetta smellpassar við það sem
mér finnst sjálfum skemmtilegast að
gera. Ferill minn við kvikmyndun í
undirdjúpunum hefur að stóru leyti
snúist um að mynda lífríkið úti á
rúmsjó. Það er svið sem ég hef tileinkað
mér og ég hef unnið í slíku návígi og
gert kvikmyndir um hvali, túnfiska og
fleira og fleira.“
Deirdre Brennan og Rick Rosenthal
41
Rick Rosenthal mundar vélina.Ljósmynd: Martin Silverstone
42 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
viðtal
Um Íslandsdvölina: „Það var magnað að koma hingað. Fyrir
utan að vinna þessa kvikmynd með
Deirdre, þá höfum við aðstoðarkona
mín Katya Shirokov, séð hér eitt og
annað sem við myndum vilja koma
aftur til að vinna. En burtséð frá því þá
var Íslandsdvölin hreinasta ævintýri.
Hér eru gífurlega fallegar ár og mikill
eldmóður í því fólki sem við kynntumst.
Tökum sem dæmi Árna Baldursson.
Hann fór með okkur um allt og líf hans
virðist vera eitt óþrjótandi og sam-
hangandi ævintýri. Hann var talsvert í
mynd hér og það þurfti ekki að leikstýra
honum. Hann eiginlega tók stjórnina
og sagði alla réttu hlutina, á réttan hátt
og á réttum tíma. Skemmtilegur náungi
og myndast vel. Ég óska honum góðs
gengis, við lukum verki okkar á Íslandi
og ævintýrið hans heldur áfram!“
Um áhrif sem Lost at Sea gæti haft: „Vonandi mikil. Myndin ætti í það
minnsta að fá fólk til að hugsa aðeins
um hvað er í gangi í lífríkinu og hvað
það gæti hugsanlega gert. Það er margt
sem þarf að gera. Norðmenn eru t.d.
ekkert að hjálpa til. Þeir gera ekkert með
sjókvíaeldið sitt, það leikur bara lausum
hala, og þeir banna ekki netaveiði í
sjónum. Helmingurinn af ánum þeirra
eru orðnar laxlausar af þessum sökum
og fleirum. Í Main þarf að rífa stíflur. Í
Fundyflóa í Nova Scotia er umfangs-
mikið sjókvíaeldi sem fer hratt vaxandi
með tilheyrandi lúsafaraldri, mengun
og sjúkdómum. Það er svo mikil pólitík
í þessu, forgangsröðunin virðist vera
svo augljós, en stjórnvöld eru með
annað á prjónunum. Hagsmunagæsla,
skeytingarleysi. Menn verða að spyrja
sig: Hvað vilja stjórnvöld? Það þarf að
forgangsraða. Íslendingar gera margt
vel og margur gæti lært af þeirri veiði-
stjórnun og umhverfisvöktun sem hér
viðgengst. Við töluðum meðal annars
við Orra Vigfússon formann NASF og
þar voru skilaboðin skýr. Vísindarann-
sóknir eru góðar og gildar, en ef að
netaveiðar í hafinu eru ekki bannaðar
umsvifalaust þá er þetta bara búið.“
Um að taka upp efni á Íslandi: „Fyrir mér er þetta mikið adrenalínmál.
Að komast í návígi við fisk eða sjávar-
spendýr, mynda það og fanga um leið
eitthvað magnað við lífsmynstur þess.
Uppgötva eitthvað nýtt, ekkert jafnast á
við það. Að vinna á Íslandi var magnað.
Árnar eru stórkostlega fallegar og tær-
leikinn ótrúlegur. Það gerði verkefnið
að sama skapi erfiðara því maður varð
að fara sér hægt og læðast að „bráðinni“.
Í Kanada eru árnar dökkar, alls ekki svo
tærar. Hér eru þær algerlega hið gagn-
stæða þannig að það eru hreinir töfrar
að fara í árnar hér, jafnvel með þrífót til
að bíða við botninn, gjarnan á bak við
steina, eftir réttu augnablikunum. Að
komast í návígið, jafnvel þó það sé ekki
nema laxaseiði sem taka á myndina af.“
Rick Rosenthal.Ljósmynd: Deirdre Brennan
43
Infinity
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
NÝJA NORSKA STÓRFISKASTÖNGIN FRÁ HENRIK MORTENSEN
44 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
45
Skotveiði Ármann Höskuldsson
Fyrstu skrefin vefjast fyrir sumum en það er ekki flókið að byrjaÞað er enginn vafi á því að úti í þjóðfélaginu er fólk, konur og karlar, sem vilja gjarnan leggja fyrir sig skotveiði, en vita kannski ekki alveg hvar og hvernig eigi að stíga fyrsta skrefið. Hvað þá fyrstu skrefin. Allir þurfa að byrja einhvers staðar og margir eru svo heppnir að þekkja einhverja velviljaða skotveiðimenn. Annað hvort innan fjölskyldu eða í vinahópnum. En það eru ekki allir svo heppnir. Þetta ætti þó ekki að vefjast fyrir neinum, sú varð niðurstaða okkar eftir að hafa rætt við Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing og veiðimann af guðs náð, bæði með stöng og byssu. Ármann er meðstjórnandi í stjórn Skotvís, hefur setið þar í 5-6 ár og meðal annars gegnt embætti ritara.
Um leið og við viðruðum þessa spurn-
ingu við Ármann var hann ekki lengi
að svara með einu orði: Skotreyn. „Fyrir
byrjendur, hafi þeir engan í tengsl-
anetinu til að virkja, þá er einfaldlega
að fara á æfingarsvæði Skotreynar.
Svæðið er á Álfsnesi, frábærlega hannað
æfingasvæði fyrir vana sem óvana og
þar er einnig góður húsakostur. Best
er fyrir fólk að fara á vef Skotreynar,
www.skotreyn.is og kynna sér það sem
þar er í boði. Þar eru opnunartímar
og upplýsingar um námskeið og aðra
þjónustu sem stendur til boða. Skotreyn
er angi af Skotvís og allt er þetta batterí
sem heldur utan um hagsmuni skot-
veiðimanna. Ævinlega þegar svæði
Skotreynar stendur opið, er þar að
finna mjög færa og reynslumikla skot-
veiðimenn sem eru boðnir og búnir til
að hjálpa hverjum sem þangað sækir,
hvort heldur menn eru skráðir eða ekki,“
sagði Ármann, og hélt áfram:
„Það sem Skotreynarmenn munu segja
nýliðum, eftir að hafa frætt þá um
skotvopn og skotveiðar á almennum
nótum, er að þeir leiti til Lögreglustjóra-
46 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Hversu dýrt er að fara í skotveiði....
stofnkostnaður? „Það þarf ekki að vera
svo ýkja mikið. Fyrsta vopn, fatnaður,
gps-tæki. Eins og ég segi, fyrsta byssan
þarf ekki að vera dýrt vopn. Það væri
möguleiki að koma sér í gang fyrir 200
til 250þúsund krónur.“
En það er síðan ekki nóg....hvar eiga
menn síðan að veiða? Sífelld fjölgar
skotveiðimönnum og það þrengist um
veiðislóðirnar.... „Best er auðvitað að
reyna að smeygja sér inn í hóp kunn-
ingja sem stunda þetta eitthvað. Fá að
fljóta með þeim eða leita leiðsagnar. Ef
það er ekki tiltækt þá hafa flestar fjöl-
skyldur meiri eða minni sambönd út
á land. Það eiga allri einhver tengsl við
landsbyggðina og menn verða að vera
duglegir að spyrjast fyrir. Það er líka
hægt að kíkja á mjög góðan umræðuvef
sem rekinn er af www.hlad.is . Umræð-
an þar á það að vísu til að vera svolítið
groddaleg, en almennt þá er það fínn
staður til að fá ráð og leiðsögn. Hægt er
enn fremur að senda fyrirspurnir inn á
www.skotvis.is og eitt af því sem mætti
spyrja um þar, er út í skotfélög sem er
að finna út um allt land. Fá uppgefið
hverjir eru í stjórnum þeirra félaga og
hika ekki við að vera með fyrirspurnir til
þeirra aðila. Þetta kann að hljóma flókið,
en er ekki svo. Þetta eru tiltölulega
fáir aðilar sem geta gefið miklar upp-
lýsingar og með ólíkindum hvað hægt
er að fræðast margt á stuttum tíma hjá
reynslumiklum einstaklingum. Síðan,
þegar menn komast í fyrsta túrinn þá
fer um leið að safnast í reynslubankann.
Auðvitað er fyrsta skrefið oft erfiðast, en
ef það er ekki stigið, þá gerist ekki neitt.“
embættisins og skrá sig þar í námskeið
fyrir skotvopnaleyfi. Það eru nokkur
kvöld þar sem farið er yfir margt og
mikið, m.a. grunnreglur um útivist, líf-
fræði veiðidýra, tegundir, veiðitíma, lög
og reglur sem viðkoma skotveiðum,
meðferð vopna o.m.fl. Að þessu loknu er
gengist undir próf og ef að menn klúðra
því þá liggur fyrir að viðkomandi hefur
ekkert með byssuleyfi að gera. Þegar
menn hafa staðist prófið fá þeir útgefið
leyfi til að kaupa eða fá lánað vopn. Sumir
vilja fá lánað fyrst á meðan þeir finna út
hvort að þetta er eitthvað fyrir þá eða ekki.
Þetta er svokallað A-leyfi og gildir fyrir 22
kalibera riffil og einfaldar haglabyssur.
Með þetta leyfi ganga menn áður en þeir
geta sótt um næsta stigs leyfi, sem gildir
fyrir öflugri vopn. Þá erum við komnir út
í hreindýrariffla og þess háttar. Menn fara
því ekki beint á hreindýr þó þeir hafi lokið
grunnkúrsinum. Síðan eru tvö stig þar
fyrir ofan sem eru fyrir enn öflugri vopn
og eru þau aðeins fyrir reglulega proffa.
Það eru ný vopnalög í pípunum á Alþingi
þannig að ég ætla ekki að segja hvernig
staðan er með hoppið frá fyrsta leyfi yfir í
næsta að sinni.“
En kaupa menn bara vopnið sem er
ódýrast? „Margir gera það og það er viss
lógík í því að það borgi sig ekki að kaupa
dýrt vopn í byrjun. Það eru til mjög góðar
einfaldar ein- og tvíhleypur og það er
staðreynd, eða a.m.k. algengt að menn
vandi sig betur ef þeir vita að þeir eru með
fá skot tiltæk. Hins vegar geta byssur orðið
nokkuð persónulegar að því leyti að þær
þurfa að henta þeim sem notar þær. Þær
þurfa að falla rétt að líkamanum og það er
ekki víst að ódýra byssan geri það. Sumir
láta breyta skeftunum, sérsmíða þau. Jói
byssusmiður er sérfræðingur í því og sér-
fræðingarnir hjá Skotreyn geta lika veitt
nauðsynlega ráðgjöf í þeim efnum.“
skotveiði Ármann Höskuldsson
Sérhannaðar flautur fyrir grágæs og heiðagæs
48 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
49
hreindýraveiðar Axel Eyfjörð Friðriksson
Minning um fyrsta dýriðÉg hef stundað hreindýraveiðar í nokkur ár ásamt tveimur félögum mínum, þeim Bolla Pétri, sóknarpresti í Laufási og Þorláki, útgerðar manni á Skagaströnd. Við ræðum þessar veiðar í hvert sinn sem við hittumst og minnum okkur á þessar ánægjulegu ferðir mánaðarlega, þegar hver og einn okkar leggur inn á sameiginlegan hreindýrasjóð okkar félaganna.
Þetta hafa verið afar skemmtilegar
ferðir þar sem við höfum kynnst mörgu
skemmtilegu fólki og fengið að njóta
þeirrar náttúrufegurðar sem Fljótsdals-
hérað býr yfir.Fyrsta ferðin er að sjálfsögðu
mjög minnisstæð. Við sóttum allir um og
Bolli Pétur fékk úthlutað kú á svæði 1.
Við ákváðum að halda til veiða strax
eftir Verslunarmannahelgi til þess að
lenda ekki í veiðimannaröðinni sem
oft skapast eftir 20. ágúst. Við gistum á
Hótel Eddu á Eiðum í góðu yfirlæti.
Leiðsögumaðurinn okkar var Gunnar
Guttormsson bóndi að Litla Bakka í Hró-
arstungu eða Gunni Gutt eins og hann
er alltaf kallaður. Gunnar
er handhafi skírteinis nr
1 fyrir leiðsögn á hrein-
dýraveiðar og kallar sig
að sjálfsögðu hreindýra-
skyttu númer 1. Gunnar
er kominn á níræðisaldur
og hann fer ennþá með
okkur til veiða enda er
hann ungur í anda og í
fínu formi.
Í þetta sinn var Gunnar með tvær aðrar
skyttur sem áttu að fella tvö dýr á und-
an okkur. Við félagarnir sátum í góðu
yfirlæti yfir morgunverðinum á Hótel
Eddu á Eiðum þegar við fengum boð
frá Gunnari um að vera komnir upp á
gamla veginn upp að Kárahjúkum um
hádegi. Hann var búinn að finna hjörð
og hann reiknaði með að skytturnar
tvær yrðu búnar að fella dýrin sín tvö
mjög fljótlega. Við biðum ekki boðanna
og rukum af stað. Þorláki fannst hins
vegar pallurinn á bílnum sínum ekki
vera boðlegur fyrir hreindýrsskrokk
og því var komið við á þvottaplani til
þess að þrífa pallinn. Ákafinn við þrifin
var svo mikill og æsingurinn við að
komast af stað að pallhúsglugginn á
bílnum brotnaði í duft. Það hélt þó ekki
fyrir okkur vöku, þar sem við litum svo
á að þetta væri bara betra því það næði
þá að lofta betur um skrokkinn og kæla
hann betur.
Um hádegi vorum við mættir upp á
veginn og við okkur blöstu Hafra-
hvammagljúfur í allri sinni dýrð. Veðrið
var samt frekar leiðinlegt, þokusuddi
50 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
hreindýraveiðar Axel Eyfjörð Friðriksson
hann var farinn að sjá ansi illa og þegar
niðurtalningin byrjaði var allt í móðu.
„Þrír, tveir, einn, Bang!!!!!“ Viti menn það
lágu tvö dýr en eitt sat!! Það var dýrið
hans Bolla. Aðalsteinn var fljótur að átta
sig, sýndi snör handtök og aflífaði dýrið
nokkrum sekúndum síðar.
Þannig var það, fyrsta dýr okkar veiði-
félaganna var fallið og presturinn mjög
ánægður með veiðina. Hefð er fyrir því
að þegar veiðimaður fellir fyrsta dýrið
sitt taki hann bita af lifrinni. Það verður
aldrei sagt að okkar maður hafi verið
himinlifandi yfir þessari hefð en hann
lét sig hafa það og kyngdi lifrarbitanum.
Samstundis var fært í tal að felldur hefði
verið tarfur niðri á fjörðum sem reyndist
vera fullur af berklum! Litarhaft Bolla
tók nú að breytast og í stað rjóðra kinna,
mátti sjá fölva líða yfir andlit hans. Það
var ekki laust við að lifrarbitinn hafi farið
illa í hann en eftir að hafa rennt niður
góðum sopa af veiðivatni náði hann
aftur sínum eðlilega húðlit.
Þá var velt innan úr og gert að dýrinu,
það sett á pallinn hjá Gunnari og
farið með það til Hjartar í Skóghlíð.
Við hældum Þorláki á hvert reipi fyrir
þrifnaðinn, það væri ekkert slor að geta
ekið skrokknum á tandurhreinum
bílpallinum niður í byggð. Í Skóghlíð er
rekið vottað sláturhús og þar var gert að
dýrinu fyrir okkur að það sett í neyt-
endapakkningar. Veiðimennirnir þrír
voru ánægðir þegar þeir kvöddu Fljóts-
dalshéraðið þetta árið og staðráðnir í að
sækja allir um að ári.
Axel Eyfjörð Friðriksson
og rigning. Við hittum Gunnar og
komumst fljótt að því að margt getur
farið á annan veg en ætlað er í upphafi.
Ekkert hafði gengið að koma skyttunum
tveimur í færi við hjörðina og þær áttu
því eftir að fella bæði dýrin. Það var ekki
um annað að ræða en bíða en bið er afar
algeng við veiðar á hreindýrum.
Þarna sátum við í bílnum með nýþrifna
pallinn og ræddum lífsins gagn og
nauðsynjar þegar við sáum að hjörðin
kom askvaðandi í áttina til okkar og
nam staðar í haglabyssufæri við bílinn. Í
sömu andrá renndi annar leiðsögumað-
ur upp að okkur með þrjár skyttur. Þar
var á ferðinni Aðalsteinn frá Vaðbrekku,
mikill vinur Gunnars og skytturnar hans
máttu fella tvö dýr. Hann átti ekki orð
yfir að við skyldum ekki vera búnir að
munda riffilinn og fella kúna og varð svo
æstur að hann bauðst til þess að taka á
okkur ábyrgð. Bolli hringdi í Gunnar og
spurði hann hvort skytturnar hans tvær
væru búnar að fella dýrin tvö. Svarið
var stutt: „NEI“. Eftir samræður Gunnars
og Aðalsteins var svo afráðið að Aðal-
steinn færi með sínar skyttur, auk okkar
að hjörðinni. Þá var það ljóst, biðin var á
enda og nú skyldi málið klárað.
Það var ekki laust við að hjartað í okkur
færi að slá örlítið örar. Við læddumst að
hjörðinni með vindinn í fangið því lykt-
arskyn hreindýra er slíkt að þau finna
strax þefinn af veiðimönnum reyni þeir
að læðast að þeim undan vindi. Eftir
að hafa gengið og hlaupið hálfbognir,
skriðið á fjórum fótum og á maganum
komumst við svo í ágætt færi, móðir og
másandi. Þá var að velja dýr til að fella
og svo var ákveðið að talið yrði niður
frá þremur og svo hleypt af. Bolli skyldi
fella kúna sína en hann notar gleraugu.
Uppgufun, hiti og sviti varð til þess að
51
lífríkið Rjúpan
Hauststofn rjúpunnar 40% af því sem hann var í fyrraFyrir skemmstu birtist í dagblaði frétt þess efnis að hert hefði á niður-sveiflu rjúpnastofnsins, sem hófst 2010/2011 samkvæmt Ólafi Karli Nielsen fuglafræðingi og helsta sérfræðingi Íslands í rjúpum, vegna hins kalda árferðis í vor og framan af sumri. Þetta hefur leitt til þess að tillögur hafa komið frá Náttúrufræðistofnun til Umhverfisráðuneytis þess efnis að takmarka beri rjúpnaveiðar.
Ólafur sagði í samtali við Veiðislóð
að hnignun rjúpunnar hefði byrjað
eftir síðasta ár þegar stofninn var í
hámarki víða um land. Í frétt sem
birt var á vef Náttúrufræðistofnunar
s.l. vor stóð m.a. eftirfarandi:
„Rjúpnatalningar Náttúrufræði-
stofnunar Íslands vorið 2011 sýna
fækkun um nær allt land. Rjúpn-
astofninn á Vestfjörðum, Norður-
landi og Austfjörðum var í hámarki
vorið 2010. Fækkunin er hröð sér-
staklega á Norðausturlandi þar sem
stofninn helmingaðist á milli ára. Á
Suður-, Suðvestur- og Vesturlandi
virðist stofninn hins vegar hafa
verið í hámarki vorið 2009. Þar sýna
talningar nú fækkun eða kyrrstöðu
2010 til 2011. Samandregið fyrir öll
talningasvæði var meðalfækkun
rjúpna 26% á milli áranna 2010 og
2011. Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins
mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar
mælinga á varpárangri rjúpna,
afföllum 2010 til 2011 og veiði 2010.“
Nýlega kom einnig fram að fálka-
stofninn væri í hámarki og þekkt
er að hann sveiflast í takt við
rjúpuna. Þetta mun þá leiða af sér
fækkun fálka?
„Fálkastofninn sveiflast í takt við
rjúpnastofninn en með hniki þannig
að mest er um óðalsbundna fálka
2-4 árum á eftir hámarki í stærð
rjúpnastofns. Samkvæmt þessu á
fálkum að byrja að fækka eftir 2013-
2014 og ná sér ekki aftur af stað fyrr
en seint á þessum áratug og þá í
kjölfar aukningar rjúpunnar.“
Pistillinn að ofan byggðist á taln-
ingu rjúpna á lykilstöðum víða um
land og tók ekki með í reikninginn
varpárangur rjúpna sem var með
lakasta móti, ekki hvað síst á norðan
– og norðaustanverðu landinu.
Við spurðum Ólaf nánar út í
stöðuna nú þegar það mat á
varpárangri liggur að mestu fyrir.
Hann sagði:
„Ég er aðeins kominn með mæling-
ar af Norðausturlandi, Austurlandi
og Suðvesturlandi, Norðausturland
sker sig úr, mjög lélegt, hin svæðin
eru mun betri. Geri ráð fyrir að þetta
nái yfir þau svæði þar sem vorhretin
voru hvað hörðust, á Norðurlandi og
Norðausturlandi. Þetta eru reyndar
þau svæði sem fóstra flestar rjúpur
á Íslandi.“
Eru menn að fara að sjá lítið
af rjúpu í haust?
„Fækkunin í varpstofni skiptir mestu
máli hér, léleg ungaframleiðsa bætir
í fallið. Hauststofninn núna er um
40% af því sem var í fyrra, þannig að
það munar um minna.“
neoprene
Neoprane vöðlur og fatnaður.
„Meðhöndlun og geymsla á Neoprene-
vöðlum er ekki mjög erfið en fyrst og
fremst er að þurrka þær og þvo, á milli
veiðitúra. Þvo þær bara með venjulegu
þvottarefni og bara með köldu eða volgu
vatni. Skola síðan vel og hengja þær upp
á böndunum á meðan þær eru að þorna
við eðlilegan stofuhita. Snúa þeim svo
við og geyma hangandi á hvolfi. Til þess
er got að eiga vöðluhanka.
Verst er að geyma allar vöðlur í brotum,
böglaðar saman því þá springur
gúmmíið og endist mun skemur. Líf-
tími vöðla fer eftir geymslu og með-
ferð. Einnig aldri gúmmísins í flíkini.
Venjulegur líftími er ca 3-5 ár en fer eftir
notkun og geymslu auðvitað. Þegar farið
er í veiðitúr er mjög gott að hafa þær í
pokum eða töskum, hnjask og högg frá
öðrum hlutum getur skaddað gúmmíið
og marið það sem er á milli nylonlagana.
Í flestum tilfellum er ekki erfitt að gera
við vöðlur en það fer eftir meðferð.
Borðar eru límdir á sauma og sam-
skeyti. Mikið notað er Aquasure límið
eða svipað sem er polyurethan lím sem
þenur síg í úveggi gatssins við komu í
súrefni.”
Svo mörg voru þau orð Lárusar og
rétt að taka mark á þessu. Fátt er verra
í veiðitúr en að finna fyrir bleytunni
læðast um fótlegg og niður í sokka. Sér-
staklega þegar kalt er í veðri og veiði-
dagurinn kannski bara rétt að byrja!
52 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011
Nú er haustið. Haustveiðin í laxinum, sjóbirtingurinn að koma og oft er þetta ávísun á kalsadaga. Rigningu, rok, jafnvel frost á morgnanna og svo framvegis. Margir leggja þá Gore tex vöðlunum og léttari öndunarfatnaði og taka fram Neoprenið í staðinn, enda eru það meiri kuldaflíkur. Engin spurning um það. Í fróðleikshorni sínu að þessu sinni tekur Lárus Gunnsteinsson hjá Skóstofunni fyrir Neprene, vöðlur og fatnað og fer í gegnum eðli þess og viðhald.
53
Lárus Gunnsteinsson
54 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Ljósmyndagalleríið að þessu sinni er í höndum Svövu Bjarnadóttur sem er áhuga-
ljósmyndari, stangaveiðikona og fjármálastjóri hjá Verkfræðistofunni Mannvit.
Eins og áður, þá hafa ljósmyndarar þeir sem birt hafa gallerí hjá okkur frjálsar
hendur með hvaða og hvernig myndir eru birtar og er óhætt að segja að kvenleg
sýn er á myndasafni Svövu. Svava bjó til sex ára aldurs á Gufuskálum á Snæfells-
nesi og segir því að þakka að hún sé náttúrubarn og hafi tengst náttúrunni sterkum
böndum sem barn.
Fyrir tíu árum fór hún óvænt í fyrsta veiðitúrinn sinn þegar vinahópur hennar bauð
henni í forföllum annarrar. Svava hafði aldrei veitt áður, en sló til. Ferðinni var heitið
í Eystri Rangá og innan tíu mínútna var 8 punda lax kominn á land. Eftir það varð
ekki aftur snúið. Hún er meðlimur í „Útgerðarfélaginu Árdísi“ sem telur um 70
veiðikonur ásamt þess að vera í öðrum minni hóp.
Svava segir: „Ég er áhugaljósmyndari og hér eru nokkrar myndir eftir mig. Þegar
ég var yngri ætlaði ég að verða myndlistarkona en endaði í viðskiptafræði og fjár-
málum (sem eru skapandi þótt ótrúlegt megi virðast). Nú fæ ég útrás fyrir sköpun
á nýjan hátt. Ég hef ómælda ánægju af því að „veiða“ falleg augnablik og ekki sakar
að tengja saman ánægjuna af því að njóta náttúrunnar og þess að veiða hvort sem
það eru laxar eða myndir. Ég á þó við eitt vandamál að stríða, þegar ég er komin
með veiðistöngina í hendurnar vill myndavélin gleymast.
Það hefur tekið mig nokkur ár að koma mér upp ljósmyndagræjum, en í dag nota
ég Canon EOS 5D Mark II og linsurnar mínar eru: 16 – 35 mm, 24 – 70 mm og
70 – 200 mm allar f 2,8. Ég nota svo Lightroom og Photoshop til að vinna myndirnar.
Ég hef þó það markmið að fara ekki langt frá raunveruleikanum í myndvinnslunni.”
55
Svava Bjarnadóttir
Fer ekki langt frá raunveruleikanum
ljósmyndun
56 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
57
Hofsá, foss 1
58 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Hendi stoltrar veiðikonu, Hofsá
Silver Doctor frá Veiðiflugum
59
Góður hópur í við Laxfoss í Norðurá
61
62 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
63
Rjúkandi í Straumfjarðará
64 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Veiðivinkonur úr Árdísunum á góðri stundu við veiðihúsið í Staumfjarðará
65
Veiðivinkonur úr Árdísunum á góðri stundu við veiðihúsið í Staumfjarðará
Dóttir mín, Berglind Una, nýbúin að landa maríulaxinum í Ytri Rangá.
Kvöldkyrrð við Búðaós
67
68 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Miðnætti í Skarðsvík við Gufuskála
69
Miðnætti í Skarðsvík við Gufuskála
70 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Leiðsögumaðurinn leiðbeinir veiðikonu í Straumfjarðará
Græjurnar á bílnum
71
Leiðsögumaðurinn leiðbeinir veiðikonu í Straumfjarðará
Græjurnar á bílnum
72 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
„.....þá er hér alveg óheyrilegt magn af fiski“Vissulega er ákveðin vakning hér innanlands um þá mögu-leika sem strandveiði býður uppá. Þó má fastlega búast við því að þeir séu æði margir í röðum stangaveiðimanna sem gera sér þó enga hugarlund um hvað hér er á ferðinni. Sem sé, útivist í stórbrotnu umhverfi, fjölbreyttur afli og síðast en ekki síst ókeypis matur og lítil fjárfesting. Maður að nafni Þorsteinn Geirsson hefur vasast í því í seinni tíð að kort-leggja strandveiðimöguleika við Íslandsstrendur í samstarfi við fjárfesta. Þorsteinn segist vera á eftir útlendingum, en strandlengjan sé nægilega löng og fiskmagnið miklu meira en nóg til að allir geti fengið sneið af kökunni.
strandveiði
73
Þorsteinn Geirsson
„.....þá er hér alveg óheyrilegt magn af fiski“Við tókum hús á Þorsteini, sem er ann-
ars fluguveiðimaður fram í fingurgóm-
ana. Þorsteinn byrjaði á að segja þetta:
„Við höfum verið að vinna samkvæmt
ítarlegri verkáætlun. Rýnum í hvað þarf
helst að vera og bæta, hvar er fiskur,
hvernig fiskur, aðgengi, veiðitími,
aðferðarfræðin. Þetta er ekki ósvipað
því að maður komi á árbakka sem er
manni ókunnugur. Áin lítur vel út en
maður þekkir hana ekki og þarf að finna
veiðistaði og læra inn á leyndardóma
hennar. Hvað strandveiðina hér varðar,
þá vinnum við ekki út frá því að hér sé
allt saman gjöfulast, fallegast og flott-
ast, heldur samkvæmt plani. Við erum
að athuga með grunnskilyrði og þá
skipta hlutir eins og jarðfræði máli, eins
hvort að það er aðgrunnt eða aðdjúpt.
74 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
1
2 3 4
5
6
75
strandveiði Þorsteinn Geirsson
Við Noregsstrendur er t.d. 100 metra
dýpi bara um leið og þú horfir niður
af klöppunum. Hér er þetta öðru vísi,
miklu aðgrynnra og þá þarf að meta
veiðiskapinn út frá því, en sú strand-
veiði sem við erum að kortleggja er
þessi sem stunduð er með stóru stöng-
unum, 15 feta lurkunum, ofurlínunum
og tilheyrandi. Mest er þetta beituveiði,
en það er hægt að nota flugu líka.“
Og hvernig er búið að ganga?„Virkilega vel, en þó er margt óunnið.
Ég er búinn að fara í alla landsfjórðunga
í fylgd áhugamanna um strandveiði
og þeir eru ótrúlega margir. Hefur
fjölgað mikið eftir hrun, því eins og ég
segi, þetta er lítil fjárfesting og ókeypis
matur. Ég meina hvað kostar kíló af
fiski út úr búð í dag? Enda hefur áhug-
inn vaxið gríðarlega og nú er svo komið
að verkefnið hefur spurst út og ég er
mikið spurður hvar vænlegt sé að veiða
og hvernig eigi að bera sig að. Maður
reynir að gefa ráð, en við erum enn að
kortleggja þetta. Það þarf að finna hvar
dýpið er, hvar heppilegi botninn er.
Það má ekki vera mikill þari, þá hverfur
beitan. Ef það er mikið grjót þá situr allt
fast. Hvenær veiðist og hvar? Þetta eru
spurnignar sem við erum að leita svara
við og það kostar mikla vinnu og úttekt.
Það væri freistandi að ljúka slíkri vinnu
á stuttum tíma, en það er ógerningur.“
Þú segir frekar oft „við“, hverjir eru þessir „við“ og hvað gengur ykkur til með þessu verkefni?„Þessir „við“ má segja að séu fjárfestar.
Þetta eru landeigendur og fleiri aðilar í
ferðaþjónustu og ferðaskrifstofan Iceland
Pro Travel. Svo hefur Icelandair einnig
komið að þessu verkefni. Það er ekkert
launungarmál að við stefnum að því að
flytja inn erlenda veiðimenn. Ég hef farið
utan og kynnt strandveiði á Íslandi
hjá erlendum veiðiklúbbum og á sölu-
sýningum. Við erum tilbúnir með ýmsa
pakka. Komið hefur í ljós að markhópur-
inn er gríðarlega stór, eða um 25 milljónir
manna vítt og breytt. 98 prósent þessa
hóps eru karlmenn og afar algengt form
á þessu er að þeir taka sér viku til tíu daga
frí til strandveiða sem undanfara að því
að fara síðan eitthvað annað hefðbundn-
ara með fjölskyldum sínum. Þetta eru
svokölluð Angling Hollidays. Vestfirðing-
arnir hafa verið að gera frábæra hluti með
sjóstangaveiðina og nú er svo komið að
þeir eru uppseldir tvö ár fram í tímann.
Raunin er hins vegar sú að strandveiðin
er miklu stærri markaður. Svo er þetta
heilsársveiði og þó að hér séu frekar fáar
tegundir, kannski tuttugu eða svo, þá er
hér alveg óheyrilegt magn af fiski.“
En hvers vegna Ísland þótt hér sé mikið af fiski. Einhvers staðar hafa allir þessir veiðimenn verið að vasast í sinni veiði?„Eins og ég segi, það er óheyrilegt magn
af fiski hérna við strendurnar. Sums stað-
ar þar sem menn standa við strandveiðar
þakka þeir fyrir að fá fisk og fisk. Síðan
er það annað sem eykur á þessi gríðar-
legu sóknarfæri og það er þessi hlýnun
sjávar. Fiskur er víða að hverfa og þoka
sér norður. Gott nærtækt dæmi um það
er makríllinn. Þetta hefur valdið því hin
seinni ár, að strandveiðimenn hvaðan-
æva að hafa streymt til Noregs. Það er
hins vegar miklu dýrara en að koma til
Íslands og ströndin miklu lengri. Þegar
við erum búnir að staðsetja þetta frá a til ö
og merkja staði inn á kort með aðgengis-
upplýsingum þá er miklu fýsilegra að
koma hingað til lands og stunda þessar
veiðar, ekki hvað síst vegna þess að hér er
miklu meira af fiski en víðast hvar annars
staðar. Með þessari vinnu erum við í raun
að votta strandveiðar á Íslandi.“
1 Ufsinn getur orðið vel stór og er geggjaður á stöng. Sumir taka hann á flugu og ekkert slær út þann djöfulgang.
2 Steinbíturinn er þungur í taumi, en er þeim mun betri að éta!
3 Þorsk er víða að finna í strandveiðinni.
4 Það veiðast margar tegundir, ein slík er lýsan sem fáir þekkja en er góð á grillið!
5 Um háfinn fjölluðum við í síðasta blaði, vinsældir hans fara ört vaxandi.
6 Mikið fjör, þetta hlýtur að vera gaman!
76 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Stundum er talað um að stangaveiði í söltu sé fremur tilþrifalítil og helst fyrir kappsfulla sjóstangaveiðikappa....„Það eru allir fiskar misjafnir og grund-
vallaratriði í þessu er að menn eru í
góðri útivist í fallegri náttúru að veiða
sér til matar. Hitt er svo annað mál að
margir sjófiskar eru geysilega skemmti-
legir á stöng. Tökum sem dæmi ufsann
sem er í hrygningu í apríl til mai. Viti
menn um slóðir hans þá er hægt að
lenda í ógleymanlegu fjöri. Hann fékk
ekki viðurnefnið sjólax fyrir ekkert og
hann getur orðið mjög stór. Hann er
brjálaður á færi, sterkur og hraðsyndur
með afbrigðum. Þá þykir ekki leiðinlegt
að setja í væna lúðu og svo voru þið
með viðtal í síðasta blaði ykkar við strák
á Hellu sem stundar að veiða háf á
sendinni suðurströndinni. Háfurinn er
mjög vinsæll stangaveiðifiskur erlendis,
en hann er orðinn afar sjaldgæfur.
Hann heitir Spur Dog og þar sem menn
veiða hann ytra þykir gott að fá 1 til 3 á
viku. Strákurinn á Hellu, Reynir Frið-
riksson, lærði þetta einmitt á kynningu
sem ég hélt. Ég tók þá 24 háfa á tveimur
klukkustundum og þetta eru upp í
meterslangar skepnur.“
Og hvað er svo næst?„Vest Norden og sölumessur í haust.
Við erum ekki búnir með alla vinnuna,
en erum tilbúnir að auglýsa og selja.
Við höfum þegar greitt fyrir götu
margra erlendra veiðimanna og um-
mæli þeirra sumra segja alla söguna.
Einn sagðist ekki vita hvort ætti að kalla
strandveiðina hérna himnaríki eða
helvíti því hann setti svo linnulaust í
fisk að það var engan frið að fá. Annar
sagði eftir fyrsta daginn að hann yrði
að taka sér frí daginn eftir því hann réði
varla við svona atgang! Eftir því sem við
aukum við þekkingu okkar mun þetta
spyrjast út. Hugmyndin með þessu var
upprunalega að búa eitthvað atvinnu-
skapandi til eftir að kreppan skall á. Hér
er svo sannarlega tækifæri til slíks og
það tækifæri skal tekið föstum tökum.“
Þorsteinn og samstarfsaðilar hans hafa
sett upp vefinn www.catch.is þar sem
starfsemin er kynnt og veiðiskapurinn
sem í boði er tíundaður. Þar má sjá
að hópurinn múlbindur sig ekki við
strandveiði, heldur kynnir einnig fersk-
vatnsveiði og skotveiði.
strandveiði
Lax-, silungs- og skotveiði
Hrútafjarðará, Breiðdalsá, Jökla,
Tungulækur, Minnivallalækur
og Fögruhlíðará
www.strengir.is
78 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Félagar úr Fjallafólki, sem er hópur Fjallaleiðsögumanna, er hér á Baulu í Norðurárdal s.l. haust. Mynd Heimir Óskarsson.
Páll Ásgeir Ásgeirsson
79
Kaldir og bjartir haustdagar á fjöllum eru engu líkir að fegurðÍsland er engu líkt og útivistarfólk kynnist landinu eins og engir aðrir. Það er misjafnt hvað fólk fæst við í útivistinni. Sumir veiða, aðrir spila golf, aðrir ganga eða aka um fjöll og öræfi. Einn í þeim hópi er Páll Ásgeir Ásgeirsson sem séð hefur útivistarfólki landsins fyrir Hálendishandbókinni þar sem hann lýsir fjölmörgum jeppaleiðum um hálendis- og eyðibyggðir á skemmtilegan hátt í máli og myndum. Eigi alls fyrir löngu kom bókin út í þriðju prentun, svo mjög eru vinsældir hennar. Við heyrðum í Páli......
útivist
1
2 3
4
81
útivist Páll Ásgeir Ásgeirsson
Okkur langaði áður en lengra væri
haldið að heyra hjá Pálmi hvað kom
hugmyndinni að bókinni af stað. Hann
svaraði því svona: „Hálendishandbókin
varð til þeim hætti að um aldamótin
var ég að vinna í litlu útgáfufyrirtæki
sem bar nafnið Skerpla. Eigandi þess,
Þórarinn Friðjónsson, eignaðist jeppa
og hóf að stunda fjallaferðir. Hann
fékk hugmyndina að því að gera leið-
sögubók um hálendið fyrir jeppamenn
og útivistarfólk. Ég tók verkið að mér og
bókin kom fyrst út sumarið 2001. Góðar
undirtektir komu sumpart á óvart. Ég
fór úr landi um líkt leyti og bókin fór í
dreifingu og er það talsvert minnisstætt
að Þórarinn hringdi í mig réttri viku
síðar og sagði mér að fyrsta prentun
væri á þrotum og ekkert lát á eftirspurn-
inni. Ég var þá staddur í Tékklandi og
þóttu þetta nokkur tíðindi og góð.“
Hvað hefur selst af þessari bók?„Hálendishandbókin hefur komið út
þrisvar sinnum á tíu árum og hver út-
gáfa nokkuð endurbætt og uppfærð. Ég
hef ekki nákvæmar tölur á takteinum en
veit þó að eitthvað á þriðja tug þúsunda
eintaka hafa selst á þessum tíma.“
Ertu sjálfur lengi búinn að ganga með þessa ferðabakteríu? - hvað kveikti í þér?„Ég ólst upp í afskekktri sveit og nánu
sambandi við náttúruna. Ég stundaði
útilegur og fjallgöngur frá því að ég
komst á unglingsár og hef gert til þessa
dags. Þegar ég gerði Hálendishand-
bókina var ég búinn að skrifa eina
leiðsögubók fyrir göngumenn um
fjórar gönguleiðir á hálendi Íslands.
Þegar vinna við gerð bókarinnar hófst
hafði ég átt jeppa í tæplega áratug og
ferðast víða um hálendið oft í ferð með
kunnugum fjallaförum. Hvað vekur
ferðabakteríuna er erfitt að segja. Ég
hef stundum sagt að það að alast upp í
fáfarinni og afskekktri sveit sé til þess
fallið að kveikja í manni löngun til að
vita hvað er bak við fjöllin.“
Hvað er það sem heillar svo mjög við öræfin og óbyggðirnar og hvaða slóðir eru eftirlæti þitt?„Hin ósnortnu víðerni heilla mig en það
gera líka fornar eyðibyggðir, fáfarnar
slóðir og náttúran í sinni endalausu og
ótæmandi fjölbreytni. Maður sækir út
í náttúruna til þess að öðlast sálarró og
innri frið og hlaða sig orku. Þannig getur
dagsferð á Esjuna þar sem höfuðborgin
er í sífellt í augsýn gefið manni kraft og
innblástur rétt eins og erfiðar fjallgöngur
á fáfarna tinda eða langar göngur fjarri
mannabyggðum og öllu sem minnir
á manninn. Úti undir berum himni er
maðurinn í sínu náttúrulega umhverfi
og þar vakna í brjósti hans skilningarvit
og vitundarlíf sem annars er slökkt á.
Þannig er maðurinn hann sjálfur úti í
náttúrunni og þangað sækir maður kraft
og gleði. Ég á alltaf svolítið erfitt með að
svara spurningunni hvaða slóðir eða
staður séu í mestu dálæti hjá mér. Ég
hef ferðast mjög víða um Ísland á öllum
árstímum og hrífst alltaf jafnmikið. Þó
verð ég að segja að töfrar Hornstranda
hafa gert mig háðan því landsvæði og ég
leita þangað aftur og aftur. Ég hef einnig,
sérstaklega á seinni árum, ferðast mjög
mikið um Fjallabak og það landsvæði er
síkvik uppspretta nýrra náttúruundra
og hættir aldrei að koma manni á óvart.
Þar hef ég á undanförnum árum komið
á staði sem ég hafði ekki getað ímyndað
mér að væru til á Íslandi.“
Síðan er komin þriðja útgáfan af bók-inni, við gerum ráð fyrir að það sé eitt-hvað nýtt í henni....hvað er það helst?„Í þessari þriðju útgáfu bókarinnar var
1 Á Eyðislóðum. Myndir 14 eru úr safni Páls Ásgeirs Ásgeirssonar.
2 Jeppi í Lónsöræfum.
3 Einn með sjálfum sér í óbyggðum.
4 Göngurykið skolað af í tjörn í Svartahnjúksfjöllum.
82 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Gengið á Hvannadalshnjúk eftir Virkisjökulsleið. Mynd Heimir Óskarsson.
83
84 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
útivist
aðallega horft til þess að uppfæra upp-
lýsingar um leiðir og aðstöðu á ýmsum
stöðum. Vegakerfi hálendisins breytist
eitthvað á hverju ári og sumstaðar
koma nýjir skálar, leiðir verða greiðfær-
ari eða torfærari eða brú er sett þar sem
áður var vað og svo framvegis. Að þessu
sinni var fáu nýju bætt við en þó er sagt
til vegar að nokkrum áhugaverðum
stöðum sem ekki var bent á í fyrri út-
gáfu. Af því er mér minnisstæðast ferð
okkar inn í Hveragil sem er við jökul-
rönd austan Kverkfjalla. Þar er hægt
að baða sig undir snarpheitum fossi í
þröngu gili og sérstöku. Því hafði verið
haldið fram að lítið þýddi að leita baðs
þarna á sumrin því kalt leysingavatn
lækkaði svo hitann í ánni. En með því
að fara síðsumars þegar leysing er að
baki og nætur orðnar kaldar má komast
þarna í einstaka upplifun.“
Nú er haustið að ganga í garð...er það ekki rakinn tími til að fara um fáfarn-ar slóðir og skoða óbyggðirnar? – og viltu mæla með einhverjum leiðum sérstaklega....nefna kannski tvær til þrjár og þá hvers vegna?„Kaldir og bjartir haustdagar á fjöllum
eru engu líkir að fegurð. Í náttúrunni
allri ríkir sérstakt andrúmsloft hnign-
unar og dauða. Farfuglar eru þagnaðir
eða á förum og gróður sölnar og það er
hausthljóð í vindinum. En loftið er tært
og víðsýni meira á haustin en oft gefur
á sumardögum og því sérlega gaman að
halda til fjalla á þessum árstíma. Sumar
leiðir eru og betur færar á haustin en
sumrin því lágt er orðið í vötnum og
slóðir orðnar vel þurrar.
Ég hef farið margar haustferðir á fjöll
því þetta er oft góður tími til rann-
sóknarleiðangra því annríki sumarsins
er að baki og ráðrúm til að skoða betur
það sem sást í sjónhending í sumar.
Dæmi um afar skemmtilega haustferð
á fjöllum væri að fara inn á Hruna-
mannafrétt, inn í Leppistungur og
Kerlingarfjöll. Kannski hittir maður
bændur í smalamennsku eða drekkur
kaffi með gæsaveiðimönnum í myrkum
fjallaskála og kemst að einhverju nýju.
Að ganga um Kerlingarfjöll er sannur
gleðigjafi og á björtum haustdegi
hægt að sannreyna sjálfur hvort það sé
rétt sem sagt er að það sjáist til sjávar
bæði í suðri og norðri af hæsta tindi
þeirra Snækolli. Í Kerlingarfjöllum hafa
smájöklar hopað mjög hratt síðasta
áratuginn og því getur þar sums staðar
að líta land sem fáir hafa séð og er ef til
vill nýlega komið undan jökli.
Á haustdegi væri líka gaman að aka
gegnum Langavatnsdal á Mýrum og
upp í Sópandaskarð að norðan og koma
niður Dali. Þarna eru sumarhagar sauð-
fjár og gaman fyrir gamlan sveitamann
að sjá vel fram gengna dilka rorrandi í
mónum. Vilji maður komast í snertingu
við öræfaþögn og kyrrð eins og hún
gerist hvað dýpst er gott að aka norður
Sprengisand á svölum haustdegi og
stíga út snemma morguns í Laugafelli
og horfa á hin björtu hvel Hofsjökuls í
morgunljósinu.
Við þetta má svo bæta að sjálfur ætla ég
að fara inn á Fjallabak næst þegar spáir
virkilega vel og fara fótgangandi frá
brúnni við Innri-Emstruá austur fyrir
Stórkonufell að stórum nafnlausum
fossi í Fremri-Emstruánni sem kom
undan jökli fyrir nokkrum árum. Þetta
mikla náttúruundur hef ég aldrei séð
nema úr fjarlægð en langar mikið til að
koma að fótskör hans.“
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Umsóknarfrestur til að sækja um veiðileyfi í forúthlutun fyrir veiðisumarið 2012 er til 20. september nk. Fyrirkomulag forúthlutunar verður með svipuðu sniði og sl. sumar og í samræmi við samþykktar úthlutunarreglur þar um. Í forúthlutun geta allir sótt um veiðileyfi, félagsmenn sem utanfélagsmenn og fyrirtæki.
Hægt er að skila inn skriflegum umsóknum til skrifstofu SVFR, Háaleitisbraut 68 eða með tölvupósti til [email protected].
Umsóknarfrestur er til 20. september 2011.
Eftirfarandi ársvæði og tímabil eru til forúthlutunar:
LEIRVOGSÁ 8. júlí – 11. ágúst
NORÐURÁ I 21. júní – 8. ágúst
NORÐURÁ II 6. júlí – 8. ágúst
HÍTARÁ I 8. júlí – 5. ágúst
LAXÁ Í AÐALDAL – NESSVÆÐIÐ 1. júlí – 20. september
LANGÁ Á MÝRUM 3. júlí – 24. ágúst
LAXÁ Í LAXÁRDAL 31. maí – 31.ágúst
LAXÁ Í MÝVATNSSVEIT 31. maí – 31.ágúst
STRAUMAR 23. júní – 4. ágúst
LAXÁ Í DÖLUM 18. júlí – 23. ágúst
Athygli skal vakin á því að allt tímabilið er til úthlutunar á urriðasvæðunum í Laxárdal og Mývatnss-
veit, en þau leyfi sem eftir standa fara í félagsúthlutun í janúar næstkomandi. Félagsmenn eru hvattir
til að sækja um, þótt allt tímabilið sé í forúthlutun munu þeir njóta félagsaðildar sinnar við úthlutun.
Að lokinni úthlutun þarf að greiða staðfestingargjald (25%) af verði veiðileyfa.
Verðskrá liggur fyrir hjá SVFR.
Í forúthlutun gildir sama verð fyrir alla og því er ekki um afslátt til félagsmanna að ræða. Félagsmenn
þurfa ekki að nota A-umsókn sína í forúthlutun. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hvetur félagsmenn til
að sækja um veiðidaga á forúthlutunartíma. Jafnframt er forsvarsmönnum veiðihópa bent á að
senda inn fyrirspurnir og umsóknir en mikil eftirspurn er eftir veiðidögum hjá félaginu á forúthlutun-
artíma. Þess má geta að í fyrsta sinn er gefin út söluskrá fyrir umrædd veiðileyfi, og fæst hún á
rafrænu formi á heimasíðu Stangaveiðifélags Reykjavíkur á www.svfr.is
www.svfr.is
Forúthlutun veiðileyfa fyrir sumarið 2012
Klúbbur matreiðslumeistaravillibráðareldhúsið
Einfalt og á allra færi
Grilluð silungsflök með grænmetisstrimlumÞað er svo margt hægt að gera við silung og lax að það er hættulegt! Nú styttist þó í að við segjum frá uppskriftum að gæs, rjúpu og hrein-dýri, en endum lax- og silungsvertíðina með þessari skemmtilegu uppskrift sem hvort heldur er má vera forréttur eða aðalréttur. Þessi uppskrift er í Grillbók Hagkaupa frá árinu 1997. Það er Klúbbur mat-reiðslumeistara sem skrifaður er fyrir bókinni en ekkert nafn er sér-staklega nefnt við hlið þessarar uppskriftar.
Í bókinni stendur þessi eðal setning: Ekta veiðimannaréttur – tilvalið að elda á árbakkanum. Sjálfsagt gera þetta flestir heima. Talað er um að magnið henti fjórum sem forrétt eða tveimur sem eru svangir. Það er líka auðvelt að setja þennan rétt upp sem aðalrétt.
• Fjögursilunsgflök,100grömmhvert (þau mega vera stærri og fleiri)
• ¼blaðlaukur(þaðerreyndaraldreiofmikiðafblaðlauk, má vera heill okkar vegna. Jafnvel tveir)
• Tværgulrætur
• Einnrauðlaukur
• ½grænpaprika(Hafahanabaraheila!)
• Safiúreinnisítrónu.
• Saltogpipar
• Tværmatskeiðarolífuolía
• Álbakki!
• Skerið grænmetið í strimla.
• Smyrja bakkann með olíu.
• Flökin fara á bakkann með roðið niður.
• Sítrónusafinn yfir, salt og pipar.
• Grænmetið yfir flökin. Grillið lokað og eldað í ca 10 mínútur.
Að því loknu á fiskurinn að vera tilbúinn, en ef flökin eru stærri heldur en talað er um, þá að sjálfsöðgu tekur þetta einhverjar mínútur í viðbót.
Grillbókin nefnir að brauð og íslenskt smjör sé hið besta meðlæti með þessu. Eflaust rétt, en með silungi myndum við sjálfir aldrei annað en sjóða nýjar ís-lenskar kartöflur. Helst rauðar með silungi.
Þá er þetta tilbúið. Frábær réttur tilbúin.
86 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
hráefni aðferð
My
nd
irn
ar t
ók
Hei
mir
Ósk
arss
on
87
88 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
89
Hann var óþarflega þrjóskur fannst mér þessi
veiðisaga
Konur eru alltaf að gera sig meira gildandi í stangaveiðinni og þær eru miklu fleiri en margan karlinn grunar. Ein heitir Þuríður Björn Wiium Árnadóttir, Vopnfirðingur og nemi við Háskóla Íslands, sem hefur starfað í veiðihúsinu við Hofsá síðustu sumur, eða frá 2008. Þegar þessar línur voru settar á blað undir lok ágúst átti Þuríður annan af tveimur stærstu löxunum úr Hofsá á þessu sumri, gríðarlegan hæng sem var 102 cm og með ummál upp á 51 cm. Án nokkurs vafa 23-24 punda tröll.
Við heyrðum í Þuríði, eða Þuru, eins
og hún er kölluð: „Ég get nú ekki sagt
að ég sé vön að veiða, fer svona þegar
tækifæri gefast og hef bullandi áhuga á
því að verða betri og er öll að koma til!
Ég byrjaði ekki að pæla í þessu af viti fyrr
en ég byrjaði að vinna í kringum þetta
en áhuginn og vitneskjan eykst með
hverjum deginum! Hef veitt nokkra laxa
og alla yfir 75 cm.
Ég hef veitt aðallega í Hofsá og nokkrum
sinnum í Sunnudalsá, ásamt nokkrum
vötnum. Bíð eftir tækifærum til að veiða
annarsstaðar!“
Uppáhaldsveiðistaðurinn og aðal flugan?„Ég held að uppáhaldsveiðistaðurinn
minn sé pottþétt efsta svæðið í Hofsá þó
að ég hafi aldrei fengið fisk þar. Fegurðin
er ómetanleg og veiðistaðirnir frábærir.
Ég er ekki enn búin að eignast uppá-
haldsflugu, það kemur með tímanum,
en ég hef tvisvar fengið risafiska á Black
and Blue! Ég elska alla veiði og fylgist
líka mikið með fótbolta og tónlist, það
eru helstu hobbyin.“
Hefðirðu ekki viljað fá risann upp á vegg?„Nei ég sá alls ekki eftir því að hafa sleppt
honum, eða sleppa löxum yfirleitt. Ég
myndi sjá mikið meira eftir því að drepa
þá, þó að laxinn sé jú góður á bragðið.“
Hvernig er annars að vinna í veiði-húsi og þurfa að hlusta á allar þessar sögur af öðrum að veiða? „Það er eiginlega allt frábært við það
að vinna i veiðihúsi og í kringum lax-
veiðina á hverju sumri. En það besta við
vinnuna er sennilega þegar það losnar
stöng eina og eina vakt og mér er sagt
að drífa mig út að veiða. Það gerist ekki
oft, en þegar það gerist þá er það alltaf
ólýsanlega gaman.“
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
90 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
veiðisaga
Og veiðisagan?„Já. Hún byrjaði mjög rólega vaktin
hja okkur Konráði Guðjónssyni, veiði-
félaga mínum og veiðileiðsögumanni
við Hofsá, þann 19. águst í rigningu og
kulda. Við sáum í rauninni ekki mikið líf
fyrr en í þriðja veiðihyl, Rauðalækjarhyl,
þegar við sáum, það sem að við héldum
að væri meðalstóran fisk, stökkva.
Við prufuðum átta flugur, og reistum
hann sjö sinnum. Við reistum á Black
Brahan nr 14 einu sinni, Blue Boy nr 14
fjórum sinnum og micro hitch tvisvar.
Þetta var skemmtun sem krafðist virki-
lega mikillar þolinmæði. Við höfðum
kastað í langan tíma og vorum um það
bil að gefast upp, þegar hængurinn ákvað
loksins að nú væri rétta flugan komin,
Black and Blue micro cone, með öngul
nr. 16. Það var vissulega léttir og sigurtil-
finning að finna loksins fyrir honum.
Ég sagði við Konráð að þessi væri nú
ekki jafn stór og sá sem ég fekk seinast,
sem var 89 cm. Það var ekki fyrr en ég
var búin að vera með hann á í um það
bil hálftíma, að hann stökk aftur og ég
sá hvað hann var í rauninni stór. Hann
var óþarflega þrjóskur fannst mér þessi,
og hreyfði sig sem minnst. Ég var með
einhendu og réði alls ekkert við hann, en
reyndi að þreyta hann og stýra honum
í “mark”, en ekki með neinum einasta
árangri. Eftir 40 mínútur var þreytan hjá
mér sjálfri farin að segja verulega til sín
og við skiptum og Konráð tók við stöng-
inni. Á hárréttum tíma ákvað laxinn að
þjóta af stað, niður að broti og niður á
næsta veiðisvæði, og Konráð á eftir með
stöngina á lofti. Ég sá á eftir honum
hlaupa um 400 metra niður eftir og rölti
á eftir þeim glottandi.
Það var ekki fyrr en eftir klukkutíma
og korter að við náðum loksins að hafa
hann. Þreytan, svitinn og þolinmæðin
algjörlega þess virði. Hann mældist 102
cm að lengd, 51 cm i ummál og vilja
menn meina að það séu um 23 pund.
Við slepptum honum að sjálfsögðu eftir
átökin og hann staldraði við hjá okkur
augnablik áður en hann lagði í hann
aftur upp ána, sallarólegur og sennilega
hissa að vera á lífi.
Þessi stutta vakt sem byrjaði rólega,
endaði í algjöru ævintýri, og i rauninni
fengum við allt í einum pakka. Að mínu
mati er það alls ekki magnið sem gleður
í laxveiði, heldur ævintýrið á bak við
hvern fisk.“
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
91
Söluvefur sem aldrei sefurBestu verðin - Sértilboð í hverri viku
- fjöldi veiðsvæða um land allt
lífríkið
Minkar Með afbrigðum duglegir tækifærissinnarMinkar verða á vegi flestra veiðimanna fyrr eða síðar á ferlinum og
sumir hitta þá fyrir oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Minkurinn
er eins og allir vita, aðskotadýr í íslenskri náttúru og er talinn hafa valdið
talsverðum skaða, enda er hann duglegur að draga sér björg í bú og á
það til að drepa meira heldur en hann síðan getur nýtt sér.
Veiðislóðarmenn hittu Reyni Berg-
sveinsson minkaveiðikempu að störfum
vestur á Skógarströnd í síðasta mánuði.
Var hann að vitja um minkasíu, sem
er stórtækt minkaveiðitæki sem hann
hefur þróað og heggur gríðarleg skörð í
minkastofna þar sem því er beitt.
Minkasíurnar eru ný gerð af minkagildr-
um sem Reynir hefur fundið upp, en
þær samanstanda af röri úr steinsteypu
sem lokað er með járnrist í annan end-
ann. Í hinum endanum er einnig járnrist
en með einskonar stút eða leiðara sem
minkurinn syndir eftir inn í síuna og
drukknar strax. Sían er lögð í minkaslóð
og er höfð undir vatnsborði til að dýrið
drukkni strax og það er komið í óefni.
Aðalkosturinn við þessa gerð af gildrum
er að ekki þarf agn í þær. Þá veiða þær
jafnt og þétt allan ársins hring
Reynir hóf að gera tilraunir með þetta
nýja veiðitæki haustið 2002 en þá hafði
hann stundað minkaveiðar í hálfa öld.
Það réð úrslitum um að þróun minkasí-
unnar hófst að Vegagerðin styrkti Reyni
í upphafi. Í framhaldinu kom stuðningur
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Æðar-
ræktarfélags Íslands og umhverfisráðu-
neytisins. Sían er höfð undir vatnsborði
á minkaslóð og minkur sem fer í hana
á ekki afturkvæmt heldur drukknar
strax. Sían er svo stórtæk, að yfirleitt eru
fleiri en einn minkur í hverri síu þegar
vitjað er um. Flestir hafa verið ellefu í
sömu síu. Vitjað er um síurnar nokkrum
sinnum á ári og aðkoman ekki alltaf
kræsileg, eins og sú sem blasti okkur
við Setbergsána. Úr síunni dró Reynir
dragúldnar leifar af tveimur minkum,
eða það sýndist okkur a.m.k. Hann sagði
okkur að víða væri allt of mikið um
mink og hann stæði lífríki fyrir þrifum.
Hann taldi að ef sett væri meira fé til
minkaveiða þá mætti halda
stofninum vel niðri og
veiðitölur þar sem síur
hans hefðu verið
notaðar sýndu
það vel og
sönnuðu.
92 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Minkurinn er annars duglegt skaðræð-
iskvikindi en sá íslenski á uppruna til
minka sem fluttir voru inn frá Norður
Ameríku, en fyrstu dýrin, þrjú talsins,
komu til landsins haustið 1931 og voru
reyndar keypt af norskum loðdýrabænd-
um. Minkabúin voru fyrst tvö talsins,
en fjölgaði hratt úr því. Fyrstu mink-
arnir sem sluppu sannanlega komust
út í náttúruna haustið 1932, þannig að
ekki tók það langan tíma! Það bú var
í Grímsnesi, en í framhaldinu sluppu
minkar af fleiri búum og fljótlega urðu
menn þess varir að þeir voru að spjara
ágætlega sig í náttúrunni. Enda nægt
æti fyrir þá og fuglar og fiskar kunnu
ekkert á þetta nýja rándýr í hverfinu.
1939 var byrjað að veita fé fyrir drepna
minka. Landnámi minka lauk þegar þeir
komu í Öræfasveitina um 1975. Þeir voru
reyndar fljótir í austur, en komust ekki
yfir sandana miklu og urðu því að fara
hringveginn norður og niður Austfirði til
að komast í Öræfin.
93
Minkar
Forfeður íslenskra minka voru upp-
runalega veiddir í Mississippi dalnum
og við Hudson flóa. Þeir voru fremur
smáir, en íslenska útgáfan stækkaði.
Það er þekkt, íslenska hagamúsin er t.d.
sú stærsta sem fyrirfinnst. Það er ekki
skrýtið að dýrið fjölgi sér hratt, því bæði
kynin verða kynþroska á fyrsta ári og
það er síðan mikið havarí um fengitím-
ann. Steggir fara þá um og vaða inn á öll
þau óðul sem fyrir verða, læðurnar verja
þau, nema um fengitímann þegar það er
blaktandi hjarahurð fyrir alla steggi. Það
er sjaldgæft að kynþroska minkalæða sé
hvolpalaus að vori og hinir ýmsu hvolp-
ar einnar læðu geta átt ýmsa feður.
94 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Að fengitíma loknum eru steggirnir
ekki velkomnir á óðalið lengur og læðan
rekur þá burt af grimmd. Fyrir vikið þarf
læðan að sjá sjálf um öll aðföng til handa
hvolpunum og er þá mikið álag á henni.
Sem kann að valda því hveru stórtækur
minkurinn getur verið ef hann fær til
þess tækifæri. Mörg dæmi eru um það
þegar minkar komast í kríu-, lunda- eða
æðarvörp, að þeir drepa alla þá unga
sem þeir komast yfir og raða þeim upp
á góðum stað. Þetta getur verið mikið
forðabúr, svo mikið að iðulega kemst
minkurinn aldrei yfir að nýta það allt.
Sögur af minkum í hænsnakofum geta
verið af sama toga, en leitt hefur einnig
verið að því getum að brjálæðisgangur-
inn í hænsnunum trylli minkinn sem
telji sér ógnað og því linni hann ekki lát-
unum fyrr en allar púturnar eru dauðar.
Það er fæðuval minka sem er veiði-
mönnum svo hugleikið. Minkurinn er
undantekningalítið nærri vatni, ýmist
sjó eða fersku vatni. Fæðuvalið fer eftir
því hvort heldur er búið við ferkst vatn
eða salt. Þetta hefur verið rannsakað,
t.d. við Grindavík þar sem fjöruminkar
sóttu mest í fjöru- og grunnsævisfiska á
borð við marhnút, keilubróðir og sprett-
fisk. Hluta ársins voru sandsíli, hornsíli,
hrognkelsi og ufsaseiði líka étin, auk
fiska sem lifa dýpra en ráku dauðir á
land. Fuglar voru og teknir og voru
um fimmtungur fæðunnar. Voru það
bæði veiddir fuglar og hræ sem dýrin
nýttu sér. Mest var um fugla máfaættar
og var krían þar drjúg á matseðlinum,
enda sóttu dýrin nokkuð í kríuvarp í
nágrenninu. Þá voru minkarnir miklir
tækifærissinnar, áttu marflær, þanglýs
og smá krabbadýr. Kom jafnvel fyrir að
þeir nældu sér í stæðilega trjónukrabba
eða bogkrabba. Dæmi um sjálfsbjargar-
viðleitnina er greni þar sem læða var
drepin ásamt hvolpum við fjörukamb.
Þar höfðu rottur lifað villtar um árabil og
í greninu fundust tugir dauðra rotta.
Ferskvatnsminkar voru eitt sinn rann-
sakaðir við Sogið og Álftavatn. 60
prósent ársneyslunnar voru laxfiskar og
hornsíli, laxfiskarnir oftast smáir ein-
staklingar, eða undir 16 cm. Voru þessir
fiskar étnir samhliða. Einn og sami
minkasaurinn sem skoðaður var reynd-
ist innihalda 40 hornsílakvarnir auk
nokkurra úr silungaseiðum. Við komu
farfugla kom meiri vídd í fæðuvalið og
sóttu minkar þá helst í egg og unga
skógarþrasta og þúfutitlinga. All nokkuð
einnig í andarunga. Þegar ungar fóru
að geta forðað sér minnkaði aftur hlut-
lífríkið
Lax á afréttarsvæði Langár sem væntanlega minkur hefur étið innan úr. Mynd gg.
95
deild fugla, en fleira mátti nýta sér, t.d.
grófu minkar upp bú hunangsflugna í
skóginum og átu upp til agna. Hagamýs
voru einnig étnar og í vaxandi mæli er
kom fram á haust, enda er stofn þeirra
þá stærstur. Þá voru alls konar skordýr
og þess háttar étin til lystauka á meðan
slíkt var í boði.
Fyrir utan mannskepnuna virðast mink-
ar ekki eiga marga náttúrulega óvini.
Þeir eru mjög ofarlega í fæðukeðjunni
hér á landi. Menn hugsa sér að ernir og
fálkar gætu veitt mink, en sjálfsagt er
lítið um svoleiðis. Snæuglur eru svo fáar
að þær teljast varla með. Af slóðum í snjó
hafa menn stundum séð hvernig refir
fylgja slóð minks og krafsið síðan sést
Minkar
við muna minkagrenisins. Eðli málsins
samkvæmt kemst rebbi þó ekki inn í
greni minksins. En ef hann fyndi hann
á förnum vegi gæti minkurinn verið í
vanda staddur. Dæmi eru um að refir
hafi fært yrðlingum minkahræ heim að
greni, en hvort þeir veiddu dýrin sjálfir
eða hirtu þá upp dauða er ekki víst.
Reynir Bergsveinsson með minka sem hann tók úr síu við Setbergsá í ágúst s.l. Mynd gg.
einu sinni var
„....og var lífi þessa fjalla- kóngs þar með lokið“
Bók Ólafs segir magnaða sögu og hér
ætlum við að leyfa okkur að fara í kafla
sem heitir: Eyðing hreindýranna á
Reykjanesskaga – Veiðisögur þaðan, og
birta úr honum dálítið. Þetta er fróðleg
lesning og enn fremur er textinn sem
slíkur athyglisverður í þá veru að í
honum sést hversu langt menn geta
gengið í notkun á kommusetningu án
þess að fara yfir strikið:
„Aldrei mun það vitað, hve mörg hrein-
dýrin urðu á Reykjanesskaganum, þá
flest voru, og sennilegt er, að engin
tilraun hafi nokkru sinni verið gerð til
að fá sem næst úr því skorið. Líklegt
má þó telja, án þess að nokkuð verði nú
um það fullyrt, að á blómaskeiði þeirra,
hafi þau skipt þar hundruðum. Ég hef
frá árunum 1860-1875 fengið nokkuð
öruggar frásagnir þriggja veiðimanna,
sem séð munu hafa flest dýr saman
á þessu tímabili. Ekki mun þetta hafa
verið á einu ári, og ekki var þetta heldur
á einni slóð. Einn þessara hópa sást á
stað, sem nefna mætti austurslóðir, þ.e.
á Ölfusafrétti vestanverðum. Sæmundur
Eiríksson bóndi að Vindheimum í Ölfusi,
sennilega önnur mesta hreindýraskytta
Árnessýslu, a.m.k. á þeim árum, sá eitt
sinn nálægt Meitlum hreindýrahóp,
sem hann, eftir því sem næst komst,
taldi að hefðu verið í 70 til 75 dýr. Annar
stór hópur hreindýra sást á miðslóðum,
þ.e. við Vörðufell, suðaustur frá Kleifar-
vatni. Það var faðir minn og fjórir aðrir
Hafnfirðingar, sem sáu þennan hóp, og
sagði faðir minn mér, en svo vildi til, að
96 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011
Árið 1960, eða fyrir 51 ári síðan kom út á vegum Bókaútgáfu Menningarsjóðs bókin Hreindýr á Íslandi þar sem Ólafur Þorvaldsson skráði sögu hreindýra á Íslandi á árunum 1771 til 1960. Það vita það kannski ekki allir í dag, að á meðan menn deila um hvort eigi að flytja hreindýr frá Austfjörðum til Vest-fjarða, gætu menn skoðað reynslu sem er af hreindýrahjörðum á öðrum stöðum en á hálendi Austurlands, því fyrrum voru hjarðir á Reykjanesi og einnig í Arnarfelli við Þingvallavatn. Á síðarnefnda staðnum var þó aðeins um nokkur dýr að ræða. En þessir stofnar, ef það er hægt að tala um stofna, eru löngu horfnir í tímans haf.
hann komst lang næst hópnum, að þar
hefðu verið sem allra næst 70 dýr. Þriðji
hópurinn, sem telja má allstóran, sást
á vesturslóðum, þ.e. ofanvert við Keili,
og mun það hafa verið það vestasta,
sem þau héldu sig, svo að nokkru nam,
og það þó ekki nema einhvern hluta úr
vetrinum. Sá, sem þennan hóp sá, var
hinn mikli veiðimaður Guðmundur
Hannesson, síðast lengi bóndi á Ísólfs-
skála í Grindavík. Í hópi þessum voru
35 dýr, eftir því sem sonur hans, Guð-
mundur bóndi á Ísólfsskála, segir í bréfi
um þetta efni – og bætir við: „og var það
lang mesta, sem hann sá samankomið
um sína daga.“ Þetta var á árunum milli
1860 og 1870. Guðmundur á Skálanum,
en undir því nafni var hann alþekktur
um Suðurland, var talinn mesta hrein-
dýra- og refaskytta þar frá 1860 og fram
undir aldamótin síðustu.
Það, sem hér verður frá sagt um eyð-
ingu hreindýranna á suðurslóðum af
mannavöldum, þ.e. með skotum, hef ég
97
Hreindýr á Reykjanesinu
að nokkru frá mönnum, sem einu sinni
eða oftar tóku þátt í þeim veiðiferðum
og ég ungur hlýddi til þegar þeir síðar
sögðu frá þeim ferðum. Annað er til
mín komið frá mönnum, sem gagn-
kunnugir eða mjög nákomnir voru
þeim þremur mönnum nítjándu aldar-
innar, sem flest hreindýr munu hafa
að velli lagt á þessu svæði Það má segja,
að menn þessir stæðu all vel að vígi til
þessara veiða, þar eð þeir bjuggu svo
að segja sinn á hverjum jaðri þessara
hreindýraslóða og höfðu því dýrin á
milli sín. En annað, sem verður minnst
á í þessu sambandi, liggur enn fjar-
lægur hvað tímann snertir og er því
kannski orðið eitthvað þjóðsögublandið,
en mun þó nokkur fótur fyrir.
Á tímabili því, sem hreindýrin voru
ófriðuð eða lítt friðuð, munu þau á
hverju ári hafa verið skotin af ýmsum
mönnum úr Árnes- og Gullbringusýslu,
þ.e. höfuðstöðar þeirra lágu aðallega um
þessi sýslumörk.
98 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
einu sinni var
Mun nú lítillega getið þeirra þriggja
manna, sem á síðari helmingi síðustu
aldar voru mestar hriendýraskyttur
á Suðurlandi. Allir þessir menn lifðu
blómaskeið hreindýranna hér sunn-
anlands og lifðu allir fram um síðustu
aldamót.
Gleggstar og áreiðanlegastar sagnir hef
ég af Guðmundi Hannessyni á Ísólfs-
skála í Grindavík og eru þær að mestu
til mín komnar frá syni hans, Guð-
mundi, sem einnig býr á Ísólfsskála. Er
hann glöggur maður og sannorður. Fátt
eitt þessara sagna verður rakið hér, en
þær fáu, sem sagðar verða lýsa nokkuð
leikni hans og veiðikeppni, en ekki síður
snarræði hans og karlmennsku, og kom
engum á óvart, sem hann þekkti, svo
orðlagður var hann fyrir afl og hreysti.
Svo sem áður er á minnst, sá Guð-
mundur eitt sinn 35 hreindýr í einum
flokki. Var það fyrir ofan Keili. Þetta var
á jólaföstu. Dýrin lágu út um allt á sléttu
og því vonlaust að komast í skotfæri við
þau. „Varð því að reka þau upp og sjá,
hvað vildi verða.“ Dýrin tóku á rás og
höfðu stefnu á Trölladyngju. Hljóp þá
Guðmundur í veg fyrir þau og kom eftir
nokkur hlaup skoti á hópinn. Eitt dýr-
anna féll við skotið, og þótti Guðmundi
lítið. Hleypur hann á slóð þeirra og sér
blóð í brautinni, leggur byssu sína hjá
hinu fallna dýri og hleypur eftir hópn-
um. Brátt dregst eitt dýranna aftur úr, og
sér hann, að annar lærleggur þess muni
brotinn fyrir ofan hækil, „því að fóturinn
slóst ýmist upp á bak eða undir kvið.“
Þegar hann nálgaðist dýrið, sem var stór
tarfur, snýr það á móti Guðmundi og
ber hornin fyrir sig. Var nú illt í efni, þ.e.
hann var byssulaus, en dýrið sótti allfast
á. Báðar hendur varð hann að hafa á
hornum þess sér til varnar. Eftir nokkrar
stympingar freistar Guðmundur þess að
ná til hnífs úr vasa sínum, en á meðan
varð hann að halda dýrinu með annarri
hendi. Þegar hann hafði náð hnífnum
upp, þá mænustakk hann dýrið, og var
lífi þessa fjallakóngs þar með lokið. Þetta
afrek Guðmundar flaug víða. Fleiri út-
gáfur voru af sögu þessari, en þetta mun
sú rétta vera. Hún er sögð, svo að aðrar,
sem hér á eftir fara, af syni hans, Guð-
mundi, sem fyrr er nefndur.
Eitt sinn skaut Guðmundur hreindýr
uppi á Fagradalsfjalli, sem er suðvestur
frá Keili. Dýr þetta bar hann í snæri á öxl-
inni, hausinn og byssuna í fyrir, í mikilli
ófærð niður á Vatnsleysuströnd. Hann
hafði verið hættur að hvíla sig af ótta við,
að hann hefði sig ekki á fætur aftur með
byrði sína. Þess skal getið til skýringa,
að vegalengdin mun vera ekki minna
en þriggja stunda gangur í góðu færi og
mest yfir brunahraun að fara. Þetta þótti
mjög frækilega unni. Þegar framan-
skráðar sögur gerðust, bjó Guðmundur í
Bræðragerði á Vatnsleysuströnd.
Að síðustu get ég hér einnar veiðiferðar
Guðmundar, sem sýnir m.a. heppni
hans. Á höfuðdag, þ.e. 29. ágúst, var
Guðmundur uppi í Brennisteinsfjöllum
að leita hreindýra. Gekk honum illa að
finna þau sökum þess, hve lítið var þá
orðið af þeim. Loks sá hann þrjú og hæfði
tvö í sama skoti. Þessi dýr flutti hann
á hestum til Hafnarfjarðar. Þar lágu þá
tvö herskip, og keyptu skipsmenn bæði
dýrin. Fyrir þetta skot fékk hann 100 dali.
„Það voru miklir peningar þá.“
Matseðilldagsins
NJ@
RANGA.DK
græjur ofl.
SAGE ONE - Mesta bylting í flugustöngum frá því grafítið kom til sögunnar.Hún er loksins komin á markaðinn. Sage One hefur verið í þróun í þrjú ár og margir voru farnir að bíða óþreyju-fullir enda hafði kvisast út að eitthvað algjörlega nýtt og áður óþekkt væri í vinnslu í smiðju Sage í Seattle.
Sá er þessar línur skrifar var svo lán-samur að fá að kasta með stönginni undir handleiðslu Jerry Siem í Bandaríkjunum í janúar á þessu ári er þróunarvinna var á lokastigi. Mér var strax ljóst að mikilla tíðinda væri að vænta frá Sage þegar stöngin sem þá var enn nafnlaus kæmi á markaðinn. Um leið og pantanaglugginn var opnaður lagði Veiðihornið inn pöntun og komu fyrstu stangirnar til landsins uppúr miðjum ágúst og voru það jafnframt fyrstu Sage One stangirnar sem komu á markað í Evrópu.
Sage One hefur nú þegar sópað að sér verðlaunum og viðurkenningum á helstu sýningum í Evrópu og Bandaríkjunum.
Hvað er það sem gerir Sage One sérstaka? Á síðustu árum hafa komið á markað nýjar límblöndur sem notaðar eru til að binda saman koltrefjar (grafít) . Þessar límblönd-ur hafa opnað nýjar víddir í þróun og vinnslu koltrefja. Stangarsmiðir Sage hafa nýtt sér nýja möguleika sem skapast hafa og þróað vinnslu koltrefja á þann veg að hægt er að „pressa“ sem mest af „líminu“ úr grafítmottunum þannig að trefjarnar liggja þéttar saman. Með þessu verður stöngin bæði grennri og léttari. Helsta byltingin er þó sú að sökum þess hve trefjarnar liggja þétt saman liggja þær allar samsíða og línulega. Við þessa breytingu verður stöngin mun nákvæmari en ella enda er hægt að punktkasta af mikilli nákvæmni með Sage One af löngu færi en það hefur undir-ritaður reynt sjálfur í laxveiði nú síðsumars.
Þetta sést glögglega á myndbandi sem sjá má hér (sjá tengil hér neðst)
Eftir ítarlegar prófanir okkar á Sage One fjölskyldunni spáum við því að Sage One muni slá í gegn í vor þegar veiði hefst á ný og þá ekki síst One 697 (9,7 fet fyrir línu #6) og One 7100 (10 fet fyrir línu 7).
Sage One er ekki bara ótrúlega ná-kvæm heldur er hér á ferð gríðarlega kraftmikil stöng sem ber vel þyngri flugur og gott er að kasta með í vindi.
Við mælum með Rio Outbound Short línunni á Sage One.
Undirritaður leyfir sér að taka svo djúpt í árinni að fullyrða að Sage One sé mesta bylting í flugustöng-um síðan koltrefjarnar (grafítið) kom til sögunnar.
Úr fróðleikshorni Veiðihornsins Ólafur Vigfússon
100 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
Smelltu á myndina til að skoða kynningarmyndskeiðhttp://vimeo.com/26791493
Vafrað á barinn hjá VeiðiflugumÞað er alveg magnað og með miklum ólíkindum hvað hægt er að sökkva sér ofan í flugubari veiðibúð-anna hér á landi. Ef menn ætla ekki að versla, þá er bannað að skoða. Við litum á barinn hjá Veiðiflugum á Langholtsveginum og völdum þar nokkrar flugur sem hentað gætu með ágætum í haustveiðina. Þar gat m.a. að líta nokkrar nýlundur. Kíkjum á þetta....
Dreka SnældaÞetta er óárennilegt kvikindi og greinilegt að fyrir gúmmílöppunum eru engar flugur heilagar. Notkun gúmmílappa á alls kyns flugur fer vaxandi og nú eru þær komnar á Snælduna. Í Veiðiflugum fundum við þrjú afbrigði, tvö þeirra af vel þekktu Snælduformi. Hinu svarta og hinu „þýska“, sem er eflaust sú gjöfulasta. Eins og sjá má á myndunum þá er litur gúmmílappanna í stíl við megin-liti túpunnar. Þessar flugur eru, eins og flestar aðrar flugur í Veiðiflugum, hnýttar af Jóni Inga Ágústssyni og hans fólki í Tælandi. Dreka Snælda virðist vera réttnefni á þessar flugur því þær eru algerir drekar. Það er komin talsverð reynsla á þær í ár, sérstaklega nú síðsumars og hefur rótveiðst á þær. Má nefna í ám á borð við Rangárnar báðar, Norðurá, Grímsá og Norðlingafljót.
Þriðja útfærslan sem við kipptum með okkur í stúdíóið er Kopar Snælda með gúmmílöppunum góðu og voru innanbúðar-menn í Veiðiflugum á því að af afbrigðunum þremur hefði þessi kopardreki reynst skæðastur. Sögð var sönn veiðisaga frá sumrinu. Tveir veiðimenn voru að veiða á Breiðunni í Blöndu. Var annar þeirra hinn kunni kappi Þórarinn Sigþórsson, en nafn félagans á öndverðum bakka liggur á milli hluta. Þeir þeyttu báðir flugu og félaginn á móti setti í hvern laxinn af öðrum á meðan Þórarinn varð ekki var. Eins og þeir vita sem þekkja Þórarinn þá á svoleiðis ekki við hann, þannig að hann kallaði yfir til félaga síns og spurði hann hvaða flugu hann væri með. Dreka Snældu með koparbúk var svarið. Þórarinn kleip þá fluguna af taum sínum og þeytti línu sinni yfir til fé-lagans og kallaði, blessaður hnýttu eina á hjá mér! Félaginn greip tauminn, fór í boxið, sótti eina og hnýtti á hjá Þórarni og lagði hana
síðan í vatnið og Þórarinn byrjaði að strippa hana yfir til sín til að hefja veiðar. En flugan náði aldrei yfir til hans, því lax rauk á hana eftir nokkur stripp og eftir það gekk Þórarni ekki síður veiðiskapurinn en öðrum.
Intruder NobblerÞetta er hálfgerður vanskaplingur við fyrstu sýn. Nobbler vissulega, en í stað venjulegs fluguönguls, hangir örsmá einkrækja á stuttum nælon-taum aftan úr flugunni og augað er auk þess bogið niður. Að þessu viðbættu eru stórar ógnvekjandi appelsínugular gúmmílappir við skeggrótina og spírandi út úr kvið flugunnar. Heldur „krípí“ fyrirbæri og ekki komin reynsla enn sem komið er. „Hún er tiltölulega ný úr væsinum hjá Jóni Inga og að stíga fyrstu skrefin, þetta er hálfgerður intruder finnst manni,“ sagði Hilmar í Veiði-flugum um þessa flugu.
BjarniRaunar heitir þessi alls ekki Bjarni. Hilmar og hans menn vissu ekki til að hún héti neitt! En þeir sögðu hana ekki nýja af nálinni og helst væri hún kennd við Bjarna Júlíusson formann SVFR sem mun hafa veitt á þessa flugu vinstri hægri, bæði sjóbirting, sjóbleikju og jafnvel lax á ögurstundum þegar annað hefur brugðist. Þetta er stuttur kubbur með fyrirferðarmiklum og blýþungum silfruðum haus. Það er eflaust fremur leiðinlegt að kasta henni, en hún sekkur eins og grjót ofan í dýpið. Í fljótu bragði sýnist þessi fluga vera góður valkostur fyrir þá veiðimenn sem vilja áberandi flugu sem sekkur hratt í haustvatnið, en án þess að verið sé að hrekkja fiskinn með allt of stóru númeri.
Black Ghost – venjuleg og SunburstEkkert nýtt af nálinni hér, ein traustasta fluga sem gerð hefur verið. Sú al-ljósa með marabúvæng, sú rauða hin svokallaða Sunburst. Báðar með tungstenhaus og veiða djúpt. Þessi fluga er alltaf jafn sterk, hvort heldur er vor, sumar eða haust og hún veiðir allar sortirnar, lax, bleikju og urriða, sjógenginn fisk jafnt sem staðbundinn.
Gamla klassíkinÁ þessum síðustu og verstu, þegar
endalausar nýjungar í afbrigðum og tegundum dynja yfir veiðimenn, yljar það alltaf miðaldra og eldri veiði-menn að sjá gömlu góðu klassísku flugurnar ganga aftur í nútímalegri gervum. Gott að sjá að þær eru ekki gleymdar og grafnar, enda geta þær veitt enn þann dag í dag, alveg eins og þær gátu veitt hér fyrrum. Eftir að hafa hangið nokkuð lengi á barnum í Veiðiflugum rákum við augun í þær þessar, Silver og Black Doctor settar upp sem flottúpur með marabú-væng og hæfilegum skammti af glimmer. Vantaði bara Blue Doctor til að fullkomna gleðina við að hitta fyrir þessa gömlu vini. Sú þriðja hérna er svo sem ekki ein af þessum gömlu góðu klassísku bresku flugum, en klassísk er hún samt sem áður. Klassísk íslensk, því þetta er flottúpuafbrigði af Laxá blá Þórðar Péturssonar, fluga sem gerði garðinn fyrst frægan í Laxá í aðaldal og hefur síðan reynst vel í nánast öllum þeim laxveiðiám sem henni hefur verið kastað í. Frægðarsól Laxár bláar reis um tíma svo hátt að hún rataði inn á fluguverðlista Orvis. En hér er hún sem sagt komin sem flottúpa frá Tælandi og ekki ólíklegt að hún geti rótfiskað í þessum búningi rétt eins og þeim gamla góða.
101
græjur ofl.
Óþarfi að mölva stöngina við bílinn
Mikill kastmeistari afhjúpar allt
Jafnvel gamlir hundar læra að sitja!
Veiðimönnum tekst að mölva stangir sínar á afar fjölbreytilegan hátt. Svæsnasta dæmið sem við höfum heyrt var af veiðimanni í Kanada sem vildi fá nýja stöng hjá framleiðanda vegna þess að að hann braut þá gömlu við að vejra líftóru sína er grá-björn einn vasklegur sótti að honum. En sannast sagna þá brotna flestar stangir við bílinn, ótrúlegt en satt.
Menn eru að setja saman við bílinn eða rabba um daginn og veginn er þeir hittast við veiðimannaslóðann. Leggja þá stangirnar upp að bíl eða á jörðina við hlið þeirra. Síðan er skellt á þær hurðum, stigið ofan á þær eða guð má vita. Vesturröst er með lítið apparat til sölu sem tryggir öryggi stanga fyrir bílhurðum og vöðluskóm veiðimanna. Sjá myndina, þetta er einfaldlega lítill segull sem smellur á bílinn og styður stöngina mjúklega. Engin hætta á ferðinni!
Fluguveiðimenn geta lengi við sig þekkingu bætt og þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref, gera best í því að læra af sönnum meisturum. Nýlega kom út DVD diskur með bandarísku fluguveiðikonunni Joan Wulff sem hefur 60 ára reynslu af fluguköstum og kennslu í farteskinu.
Á þessu 90 mínútna prógrammi sýnir Joan öll grundvallar-atriðin og fer enn fremur djúpt í saumana á allrar handar afbrigðum og úrræðum sem fluguveiðimenn þurfa að geta tileinkað sér. Á löngum ferli hefur frúin auk þess sankað að sér ógrynni ráða sem hún geymir undir rifi hverju og fá áhorfendur að njóta góðs af. Joan ýmist kennir þetta beint í æð við straumvatn, ellegar að vönduð tölvugrafík er nýtt til fullnustu. Þessi DVD diskur fæst í Vesturröst og er mikill fengur fyrir luguveiðimenn.
Jafnvel vönum flugukösturum hættir til að missa samhæfingu milli fram-kasts og bakkasts. Í Vesturröst fæst afskaplega einfalt lítið tæki sem getur skipt sköpum. Tryggt nýbyrjuðum réttu handtökin frá byrjun og hefur um leið afsannað að ekki sé hægt að kenna gömlum hundum að sitja!
Royal Wulff wristlock heitir fyrir-bærið og kemur frá fyrirtæki þeirra goðsagnakenndu laxveiðihjóna Lee og Joan Wulff. Hafa þau notað ól þessa við flugukastkennslu um árabil með frábærum árangri. Þetta er góður einfaldur aukahlutur sem getur lagað köst, sérstaklega bakast, sem skiptir öllu máli því ef bakkastið er ekki gott þá verður framkastið það ekki heldur. Ólin kemur í veg fyrir að stöngin falli of aftarlega. Ein stærð passar á alla. Bætir kastið örugglega.
102 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
græjur ofl.
Sérhæfðar flautur fyrir grágæs og heiðagæs
Byssuskápar á áður óþekktu verði
Veiðihúsið Sakka flytur inn eitt og annað, en gæsaskyttur geta glaðst yfir gæsaflautunum sem fyrirtækið flytur inn og eru sérhæfðar flautur fyrir annars vegar grágæs og hins vegar heiðagæs. Flautur þessa svínvirka og reynslan af þeim er afskaplega góð.
Kjartan Lorange, sem er titlaður „skytta“ hjá Já.is stýrir Sökku og hann sagði okkur að grágæsaflautan hefði komið fram fyrir fimm árum og væri hún afsprengi samvinnu Danans Denis Poulsen og Banda-ríkjamannsins Buck Gardner, sem einnig er hönnuður og framleiðandi að veiðiflautum. Þeir sameinuðust um að framleiða fyrstu sérhæfðu grágæsaflautuna, en fram að því höfðu menn notast við flautur sem voru svo sem brúklegar, en náðu ekki „tónsviði“ grágæsa með þeim hætti sem þessi flauta gerir. Hún heitir Greylag Hammer, en Hammer er nafnið á línunni. Áður voru t.d. Mallard Hammer (stokkönd), Canada Hammer (Kanadagæs)Speck Hammer (blesgæs) og fleiri.
Fyrir tveimur árum kom síðan Pink Foot Hammer, sérhönnuð flauta fyrir heiðagæs og er Kjartan hönnuður hennar. „Fyrra árið var ég meira og minna að ná saman þeim eigin-leikum sem góð heiðagæsaflauta þarf, tónsviðinu og þeim skærleika sem þarf til að ná til fugla í þessum miklu víðáttum sem menn eru að eltast við heiðagæsina í,“ sagði Kjartan. Og bætti við, að reynslan af flautunni væri afar góð. „Hún skilar þeim tónum sem ég leitaði eftir og vanir jafnt sem óvanir eiga létt með að nota hana með góðum árangri,“ bætti Kjartan við.
Veiðihornið hefur látið smíða einfalda og ódýra skotvopnaskápa sem uppfylla þó vinnureglur lögreglu um viðurkenningu slíkra skápa.
Þriggja mm stál er í veggjum og hurð. Kólfalæsing er á hurð og innfelldar lamir. Þá eru skáparnir gataðir á baki til veggfestinga. Skáp-arnir eru fáanlegir í tveim stærðum. Annars vegar eru það skápar fyrir 5 byssur og hins vegar fyrir 7 byssur. Allir skáparnir eru með læsanlegu innra hólfi.
Hér eru á ferð einfaldir en traustir skápar á ótrúlega góðu verði en
minni skápurinn kostar aðeins 38.900 og sá stærri 48.900. Þá er þeim sem festa kaup á skotvopnum í Veiðihorninu boðinn um helmingsaf-sláttur og fæst þá minni skápurinn á 19.950 krónur og sá stærri á 24.950 krónur.
Á þessum síðustu og verstu tímum er vert að benda stangaveiðimönn-um á að byssuskápar sem þessir eru ekki vitlaus varúðarráðstöfun þegar kemur að því að geyma verðmætar flugustangir og hjól en við heyrum æ oftar af veiðimönnum sem tapað hafa veiðibúnaði sínum í hendur innbrotsþjófa.
103
græjur ofl.
104 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 4. tbl. 2011
D-laga stangarskefti sem vekur athygli
Stealth Amphibia - efni sem leysir önnur af hólmi
Vision er eitt af þessum þekktu veiðivörumerkjum sem skotið hafa upp kollinum á Norðurlöndunum. Veiðibúðin Hrygnan í Síðumúlanum, eign Kristínar Reynisdóttur, er einmitt umboðsaðili Visiongræjanna hér á landi og kennir ýmissra grasa, enda lætur þetta fyrirtæki sér fátt
Það er stöðugt verið að þróa sólana undir vöðluskónum. Það sem virkar úti í vatninu virkar kannski ekki eins vel í blautu grasi, t.d. filtið sem kunnugt er, menn standa í fæturnar úti í á, en fá síðan byltur í brekkunni á leiðinni að næsta hyl. Í Hrygnunni fást nú vöðluskór með nýju efni sem gæti leyst öll hin af hólmi smátt og smátt. Það er frá Vision og er kallað Stealth Amphibia.
Hér er um að ræða gúmmísóla sem eru stamari heldur en gengur og gerist og grípa því betur, hvort heldur gengið er í drullu, í vatna-gróðri eða á hálum klöppum. Hjá Vision halda menn því fram að SA bæti svo mjög gæðin, að það muni leysa önnur efni af hólmi. Síðan er það talið SA til ómældra tekna, ofan á annað, að drulla og gróður úr ánni loðir illa við það, ekki eins og t.d. á filti, og því skolist allt saman jafn óðum af SA og því sé til muna ólíklegra að bakteríur og fleira berist með filtsólum frá einni veiðiá til þeirrar næstu. Hér sé því um um-hverfisvæna viðbót að ræða.
óviðkomandi. Á tímum þegar ýmsir framleiðendur hafa verið að hanna nýja hluti í stangarsmíðum, hafa Visionmenn komið með sitt eigið stangarskefti sem þeir kalla D-Shape.
D-Shape verður best lýst með því að vísa til myndarinnar og hreinlega
Og ef að áðurtalið dugar ekki, þá endist SA helmingi betur og lengur heldur en venjulegt filt.
prófa, en Kristín segir að skaftið sé svo þægilegt og geri stöngina svo meðfærilega að um algera byltingu sé að ræða. Skeftið má kannski segja að sé í laginu, að upplagi, eins og stafurinn D, en það er sýnt hér á flugustangalínunni Venus sem Vision framleiðir. Þær eru smíðaðar
til að þola notkun í söltum sjó ekki síður en í fersku vatni, eru allar 9 feta langar en misþungar og fyrir hinar ýmsu línur. Þær eru millihraðar til hraðar og þykja henta nánast öllum þeim aðstæðum sem menn geta lent í hér á leikvelli vindanna.
FermingarBrúðkaupAfmæli
Árshátíðir FundirMóttökur
veisluþjónusta
Búðakór 1 • 203 Kópavogi • Sími 820 7085 • [email protected]
Lystaukandi veislur
VEIÐISLÓÐtímarit um sportveiði og tengt efni
Útgefandi:GHJ útgáfa ehf.
Ritstjórn:Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrotJón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif
Netfang: [email protected]