3. tölublað • 3. árgangur • desember 2001 - ein.is · gist er á park pupp hótelinu og er...

36
3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001

Upload: letu

Post on 01-Oct-2018

237 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Page 1: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

3 . t ö l u b l a ð • 3 . á r g a n g u r • D e s e m b e r 2 0 0 1

Page 2: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

Efnisyfirlit:

Helgar- eða vikuleiga

Svigna-skarð

• Vel búið hús með heitum potti

• Svefnpláss fyrir 6 manns

• Aðeins eins og hálfs tíma akstur til Reykjavíkur

Tjarnargerðií Eyjafirði• Nýtt hús með svefnplássi fyrir 9 manns

• Hálftíma akstur frá Akureyri

• Frábært land til útivistar

Allar nánari upplýsingar veittar

á skrifstofu Einingar-Iðju,

sími 460 3600

bls.

Ferðir næsta sumars . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4Heimasíða félagsins opnuð . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6Hærri einstaklingsstyrkir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6Leiðari . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7Þing Alþýðusambands Norðurlands . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8Ársfundur Starfsgreinasambandsins . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 9Spurning blaðsins . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10Ítalíuferð Einingar-Iðju sumarið 2001 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12Fjallaferð Einingar-Iðju sumarið 2001 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18Ferð aldraðra félagsmanna . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21Desemberuppbót . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21Litið inn á vinnustaði-Greifinn . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22Litið inn á vinnustaði-Álfaborg . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23Litið inn á vinnustaði-Harpa-Sjöfn, Mjöll . . . . . . . . . . . . . . . . . 24Afsláttur í líkamsrækt og sund . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25Verðlaunagetraun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26Greiðslu úr sjúkrasjóði og skattframtalið . . . . . . . . . . . . . . . . . 26Rætt við lögfræðing félagsins . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 27Kynning á matvæladeild . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 28Á léttu nótunum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 29Myndir frá námskeiðum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 30ÚA-skólinn . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 31

Útgefandi:Eining-IðjaSkipagötu 14600 AkureyriSími: 460 3600 Bréfasími: 460 3601Heimasíða: www.eining-idja.is

Ábyrgðarmaður: Björn Snæbjörnsson

Umsjón, textagerð og prófarkalestur:FREMRI kynningarþjónustaAuglýsingar: Páll Júlíusson,sími 566 8262 netfang: [email protected]íðumynd: Ljósmyndastofan MyndrúnRúnar Þór BjörnssonPrentvinnsla: Ásprent/POB ehf.

Frjálst er að nota efni úr blaðinu, í heild eða að hluta, þó þannig að heimildar sé getið

Skrifstofa Einingar-Iðju á Dalvík: RáðhúsinuSími: 466 1340 · Bréfasími: 466 1041Opnunartími: Kl. 10-14 mánud., þriðjud.,fimmtud. og föstud. og kl. 10-16 miðvikud.

Skrifstofa Einingar-Iðju í Ólafsfirði: Múlavegi 1Sími: 466 2318 · Bréfasími: 466 2681Opnunartími: Kl. 9-13

Page 3: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

Vald og réttlæti:

Námskeið um konur fyrir konur

Kennari: dr. Sólveig Anna Bóasdóttir

guðfræðingur. Fjögur skipti.

Tími: Miðvikudagar 15. jan. til 5. febrúar

2002 kl. 18:00-20:00. Verð kr. 3.500,-

Siðferðileg álitamál samtímans

Kennari: dr. Sólveig Anna Bóasdóttir

guðfræðingur. Sex skipti.

Tími: Miðvikudagar 30. jan. til 6. mars

2002 kl. 18:00-20:00. Verð kr. 4.900,-

Trúarstef í kvikmyndum

Kennarar: dr. Arnfríður Guðmundsdóttir

lektor, Bjarni Randver Sigurvinsson

guðfræðingur, dr. Gunnlaugur A. Jónsson

prófessor og Þorkell Ágúst Óttarsson BA

guðfræði. Sex skipti.

Tími: Miðvikudagar 6. febrúar til 13. mars

2002 kl. 20:00-22:00. Verð 4.900,-

Hjónin í Saurbæ

Umsjón: Steinunn Jóhannesdóttir

rithöfundur. Fjögur skipti.

Tími: Þriðjudagar 26. febrúar til 19. mars

2002 kl. 18:00-20:00. Verð kr. 3.500,-

Helgistaðir og helgifarir

(pílagrímsgöngur)

Kennarar: dr. Hjalti Hugason prófessor og

Ragnheiður Sverrisdóttir djákni.

Fimm skipti og pílagrímsganga.

Tími: Þriðjudagar 2. til 30. apríl 2002

kl. 20:00-22:00. Verð kr. 4.900,-

LEIKMANNASKÓLIÞJÓÐKIRKJUNNAR

kynnir námskeið sem haldin verða íHáskóla Íslands á vorönn 2002

Upplýsingar á skrifstofu LeikmannaskólansBiskupsstofu • Laugavegi 31 • 150 Reykjavík

Heimasíða: http://www.kirkjan.is/leikmannaskoli/Sími: 535 1500 • Bréfsími: 511 1501 • Netfang: [email protected]

Page 4: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

4 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Evrópuferð og óbyggðir Vestfjarða-Þrjár spennandi ferðir á döfinni næsta sumar

Margir bíða án efa spenntir eftir að ferða-nefnd Einingar-Iðju kynni þær ferðirsem hún hefur skipulagt næsta sumar ognú verður spennunni aflétt. Líkt og veriðhefur eru þrjár ferðir á dagskrá.

Í orlofsferðinni er eins og undanfarin árstefnt út fyrir landsteinana, að þessu sinnitil Þýskalands, Tékklands og Austurríkis. Ístað eiginlegrar fjallaferðar verða óbyggð-ir Vestfjarða skoðaðar og í eins dags ferðfyrir aldraða félagsmenn verður farið út íGrímsey. Hér á eftir verður greint frá helstuatriðum varðandi ferðirnar en allar nánariupplýsingar um ferðatilhögun og skrán-ingu í ferðirnar eru veittar á aðalskrif-stofu félagsins, Skipagötu 14, Akureyri,sími 460 3600, eftir 1. janúar nk.Ef fleirisækja um Evrópuferðina og Vestfjarða-ferðina, fyrir 1. febrúar, en rúm er fyrir þáfara þeir umsækjendur sem flesta orlofs-punkta hafa. Hér á eftir fylgir ferðaáætlunfyrir Evrópuferðina í stórum dráttum enhún er frá 28. maí til 12. eða 13. júní.

Þriðjud. 28. maí-miðvikud. 29. maí:Farið frá Alþýðuhúsinu á Akureyri með

rútu kl. 22.30 að kvöldi þriðjudagsins 28. maí til Keflavíkur. Brottför frá Keflavíkkl 7:25 á miðvikudagsmorgni. Lent í Frank-furt kl 12:50 að staðartíma. Ekið til borgar-innar Bayreuth. Gist er á Hotel Rheingold,góðu þriggja stjörnu hóteli skammt frá mið-bænum. Á hótelinu eru 146 herbergi, meðbaði, síma, gervihnattarsjónvarpi og hár-þurrku. Kvöldverður er snæddur á hótelinu.

Fimmtudagur 30. maí:Ekið til heilsubæjarins Karlovy Vary í

Tékklandi. Bærinn er byggður í dalverpivið ána Teplá og er hvað frægastur fyrirheilsulindir auk postulíns og glermuna.Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a.góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4stjörnu hótel og eru öll herbergi með baði,síma, gervihnattarsjónvarpi og hárþurrku.Kvöldverður er snæddur á hótelinu.

Föstudagur 1. júní:Ekið til hinnar frægu borgar Prag. Eins

og flestir eflaust vita er Prag einstök menn-ingar- og listaborg sem á sér glæsta og for-vitnilega sögu. Þarna er margt að skoða ogsjá og einnig hagstætt að versla, ekki sístkristal og skrautmuni. Gist er á HotelPyramida, þriggja stjörnu hóteli skammt

fyrir utan miðborgina. Kvöldverður ersnæddur á hótelinu

Laugard. 2. júní-mánud. 4. júní:Dvalið í Prag. Skoðunarferðir og frjáls tími.

Þriðjudagur 5. júníEkið til Vínarborgar í Austurríki og dval-

ið þar í tvær nætur. Vín er líkt og Pragheimsfræg menningarborg þar sem mögu-leikar til skoðunarferða og skemmtunareru óþrjótandi. Gist er á Hotel HiltonVienna, stóru fyrsta flokks hóteli skammtfrá miðborginni.

Miðvikudagur 6. júní:Dvalið í Vínarborg. Skoðunarferðir og

frjáls tími.

Fimmtudagur 7. júní:Ekið til Bæjaralands í Suður-Þýskalandi

að Tegernsee, litlu og fallegu vatni um 50km suður af Munchen. Litlir smábæirstanda allt í kring um vatnið og þarna eruýmsir afþreyingarmöguleikar í boði. Nefnamá siglingar á vatninu, hjólreiðar og fal-legar gönguleiðir. Þá eru spennandi skoð-unarferðir í boði. Gist er á Hotel ResidenzTegernsee, þriggja stjörnu hóteli í miðbæTegernsee. Herbergin eru rúmgóð meðbaði, síma og sjónvarpi. Lítil sundlaug oggufubað er á hótelinu ásamt bar og bjór-stofu.

Föstud. 8. júní-mánud. 11. júní:Tegernsee og nágrenni. Skoðunarferðir

og frjáls tími.

Þriðjudagur 12. júní:Ekið til flugvallarins í Frankfurt. Brott-

för þaðan kl. 14:00 og lent í Keflavík kl.15:35. Verið getur að í stað þess að fljúgaheim frá Frankfurt verði flogið frá

Munchen þann 13. júní og lengist þá ferð-in um einn dag.

Verð og skilmálarFerðin kostar um 140.000 krónur á mann

miðað við gengi 23. október 2001 og aðflogið verði til og frá Frankfurt. Óaftur-kræft staðfestingargjald er 5.000 krónur.Innifalið í verði er allur akstur innanlandsog erlendis, flug og gisting, í tveggjamanna herbergjum með morgunverði allamorgna og þremur kvöldverðum. Dregnirverða 10 orlofspunktar frá punktainneignviðkomandi. Fararstjóri er Björn Snæ-björnsson og bílstjóri Sveinn Sigurbjarnar-son. Leiðsögumaður kemur frá Ferða-skrifstofunni sem annast skipulagninguferðarinnar en ákveðin óvissa er uppi íþeim efnum sem stendur, vegna gjaldþrotsSamvinnuferða.

Óbyggðir VestfjarðaFjögurra daga síðsumarferð verður far-

in til Hólmavíkur og Jökulfjarða 13. til16. ágúst, ef næg þátttaka fæst. Farið verð-ur á fyrsta degi til Hólmavíkur og gist þar.Á öðrum degi verður farið um borð í bát,siglt fyrir Horn með viðkomu í Hornvíkog Aðalvík, ef sjólag leyfir. Þaðan verðurfarið í Grunnavík og gist næstu tvær næt-ur. Á þriðja degi verða farnar skoðunar-ferðir um Jökulfirði, t.d. til Hesteyrar,siglt um Veiðileysufjörð, Lónafjörð,Hrafnsfjörð og víðar. Á fjórða degi verðursiglt inn Djúpið og komið við í Súðavíkog Vigri. Að lokum verður siglt til Arn-gerðareyrar þar sem stigið verður upp írútu og ekið sem leið liggur heim. Leið-sögumaður verður með í för um Horn-strandirnar. Bílstjóri, eins og venjulega,verður Sveinn Sigurbjarnarson.

Ferðin kostar 15.000 krónur á mann oginnifalið í því er allur akstur, sigling ogleiðsögn. Grillað verður eitt kvöld og þálagt til grillkjöt og kartöflusalat. Að öðruleyti verður fólk að nesta sig sjálft oggreiða gistingu. Óafturkræft staðfestingar-gjald er 2.000 kr.

Ferð fyrir aldraða félagsmennEins dags ferð fyrir aldraða Einingar-

Iðjufélaga verður farin laugardaginn 17. ágúst nk. Farið verður út í Grímsey.Ferðin kostar 3.000 krónur á mann.

Afar fallegt er víða í Suður-Þýskalandi og mikilveðursæld.

Page 5: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 5

Page 6: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

6 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Ný heimasíða félagsins opnuð

Hærri einstaklingsstyrkir LandsMenntar– Kannið rétt ykkar!

Um miðjan október sl. var opnuð nýheimasíða Einingar-Iðju. Það voru þauKristín Hjálmarsdóttir og Jón Helgasonsem sameiginlega opnuðu síðuna meðformlegum hætti en þau voru um árabil íframvarðasveit þeirra tveggja félaga semsameinuðust í Einingu-Iðju fyrir rúmumtveimur árum. Jón Helgason var lengiformaður Verkalýðsfélagsins Einingarog Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju,félags verksmiðjufólks á Akureyri.

Við vinnslu síðunnar var lögð áhersla áað hafa uppbyggingu hennar einfalda ogskýra. Þannig er henni ætlað að gegna bestþví hlutverki sínu að auðvelda aðgengihins almenna félagsmanns að ýmsum upp-lýsingum er varða félagið, réttindamállaunafólks o.fl. Meðal þess sem finna má ásíðunni eru fjölbreyttar upplýsingar um fé-lagið og starfsemi þess, svo sem stjórnir,nefndir og trúnaðarmenn félagsins. Einnigmá nefna upplýsingar um sjúkrasjóð, or-lofshús, lög og reglugerðir, kjarasamn-inga, námskeið og þá viðburði semframundan eru og þannig má áfram telja.

Hugmyndin er að í framtíðinni geti fólk íauknum mæli notað heimasíðuna til aðreka ýmis erindi sín við félagið og þar meðsparað sér sérstaka ferð á skrifstofuna.

Síðan var unnin hjá ANZA ehf. á Akureyrien textagerð og ýmis umsjón var í höndumFremri kynningarþjónustu á Akureyri.Slóðin á síðuna er www.eining-idja.is

Í tengslum við síðustu kjarasamningavar stofnaður sérstakur fræðslusjóðurSamtaka atvinnulífsins og verkafólks álandsbyggðinni og fékk hann nafniðLandsMennt. Aðalmarkmið sjóðsins erað treysta stöðu einstaklinga á vinnu-markaði og bæta samkeppnisstöðu ís-lenskra fyrirtækja.

Sjóðurinn veitir annars vegar einstak-lingsstyrki vegna einstakra námskeiða oghins vegar styrki til stærri verkefna þarsem um væri að ræða samstarf fyrirtækjaog verkalýðsfélaga í starfsmenntun, þ.e.skipulagning á heildarlausnumstarfstengdra námskeiða á hinum ýmsusviðum atvinnulífsins.

Sótt um til viðkomandi félagsSá háttur er hafður á einstaklingsstyrkj-

unum að hver félagsmaður getur sótt umstyrk til Einingar-Iðju sem metur um-sóknina og afgreiðir styrkinn eftir starfs-reglum LandsMenntar. Eining-Iðja sækirsíðan um endurgreiðslu til LandsMennt-ar. Mjög nauðsynlegt er að fólk nýti sérað sækja um styrki úr sjóðnum. Allir fé-

lagsmenn Einingar-Iðju hafa rétt á aðsækja um að ákveðnum skilyrðum upp-fylltum og er fólk hvatt til að hafa sam-band við félagið og kanna rétt sinn. Efeinstaklingar eru hins vega ósáttir ein-

hverra hluta vegna með afgreiðslu félagssíns þá geta þeir hinir sömu alltaf leitaðtil verkefnisstjóra LandsMenntar semgreiðir úr málum í samstarfi við hlutað-eigandi.

Hærri styrkirFyrr á árinu ákvað stjórn LandsMenntar

að hækka einstaklingsstyrki sjóðsins. Núer hægt að fá allt að 25.000 króna styrk áári en var áður 16.000 krónur. Aldrei er þógreitt meira en sem nemur 60% af náms-kostnaði (var áður 50%). Styrkur vegnaaukinna ökuréttinda getur numið allt40.000 krónum (var áður 28.000 krónur)ef allir fjórir þættir námsins eru teknir.

Styrkir til fjölbreytts námsÞau námskeið sem styrkt hafa verið nú

þegar eru af ýmsu tagi. Má t.d. nefnatungumálanámskeið, tölvunám, vinnu-vélanámskeið, meirapróf og námskeið íeiturefnaflutningum. Einnig geta einstak-lingar fengið styrki til þess að sækja al-mennt nám við öldungadeildir framhalds-skóla, nám við námsflokka eða kvöldskólasveitarfélags og símenntunarmiðstöðvarþar sem um er að ræða nám sem jafnast ávið almennt nám (tungumál, stærðfræði,tölvur o.s.frv.). Þá má nefna nám hjá End-urmenntun Háskóla Íslands og öðrumfræðslustofnunum.

Kristín Hjálmarsdóttir og Jón Helgason opnuðu síðuna með formlegum hætti í sameiningu.

Allir félagsmenn Einingar-Iðju hafa rétt á aðsækja um styrki til LandsMenntar aðákveðnum skilyrðum uppfylltum

Page 7: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

Góðir félagar!Senn er þetta ár á enda runnið og að vandaer margs að minnast á sviði verkalýðs-mála. Kjarasamningar um 700 félags-manna sem starfa hjá sveitarfélögum ásvæðinu voru til að mynda lausir um síð-ustu áramót og fóru fyrstu mánuðir árs-ins í að leiða þau mál til lykta. Það tókstafar farsællega og náðust fram umtals-verðar kjarabætur í samningum sem full-yrða má að marki viss tímamót í baráttuokkar fyrir bættum kjörum. Auk veru-legra launahækkana má nefna lenginguveikindaréttar um helming og stóraukinnlífeyrisrétt sem dæmi um fjölmörg já-kvæð atriði í þessum samningum.

Samstaðan skilar árangriSkipulagsmál verkalýðshreyfingarinn-

ar hafa verið ofarlega á baugi síðustumisseri. Á síðasta ári var Starfsgreina-samband Íslands stofnað með samrunaVerkamannasambands Íslands, Lands-sambands iðnverkafólks og Þjónustu-sambands Íslands. Þar með tilheyrðu all-ir félagsmenn Einingar-Iðju sama lands-sambandinu. Fyrsti ársfundur hins nýjasambands var haldinn nú á haustdögumog þar gafst kjörið tækifæri til að takastöðuna, meta árangurinn og horfa fram áveginn. Skemmst er frá því að segja aðþær vonir sem uppi voru við stofnunStarfsgreinasambandsins varðandi auknaeiningu innan okkar raða virðast hafagengið eftir. Það eru gömul sannindi enekki ný að samstaða er lykillinn að ár-angri í verkalýðsbaráttu. Um það eru áð-urnefndir samningar við sveitarfélöginskýrt dæmi. Megi þessi vinnubrögð veraokkur fyrirmynd í starfinu framundan.

Breytt starfsgreinaskiptingÍ kjölfar stofnunar Starfsgreinasam-

bands Íslands var ákveðið að taka starfs-greinaskiptingu Einingar-Iðju til skoð-unar með það fyrir augum að laga hanabetur að skipulagi Starfsgreinasambands-ins. Formönnum starfsgreinadeilda Ein-ingar-Iðju ásamt formanni og varafor-manni félagsins var falið að fara ofan íþetta mál og leggja tillögu fyrir trúnaðar-

ráð en það eitt hefur vald til að gera breyt-ingar á deildaskiptingu félagsins. Niður-staðan varð sú að fækka starfsgreina-deildum félagsins úr sex í fimm og nokkr-ar starfsgreinar færðust einnig til innandeilda. Meðal þeirra deilda sem þarnavoru stofnaðar var matvæladeild en íhenni eru þeir sem áður tilheyrðu fisk-vinnsludeild, auk annarra hópa sem starfavið matvælavinnslu og voru áður ýmistinnan iðnverkadeildar félagsins eða al-mennu deildarinnar. Á öðrum stað hér íblaðinu er einmitt kynning á matvæla-deildinni sem nú er stærsta deild félags-ins. Af þessu tilefni langar mig að víkjanokkrum orðum að málefnum fólks semstarfar í þessum geira atvinnulífsins.

Tæknibreytingar í fiskvinnsluLjóst má vera að matvælavinnsla er

ein af undirstöðuatvinnugreinum þjóðar-innar og þar af leiðandi atvinnugrein semskiptir miklu að vel sé hlúð að. Þetta áekki síst við um Eyjafjörð þar sem úr-vinnsla matvæla er mjög stór hluti at-vinnulífsins, bæði á sviði úrvinnslu sjáv-ar- og landbúnaðarafurða. Breytingarsem verða á þessum sviðum snerta þvístóra hópa fólks. Á tiltölulega fáum árumhafa t.d. gríðarlegar tæknibreytingar orð-ið í fiskvinnslunni og í framhaldi af þeimverulegar breytingar á vinnuaðstæðumfólks. Sumar þessara tæknibreytingar erumeð ólíkindum og vélar sjá nú um verksem engan gat fyrir fáum árum órað fyrirað yrðu unnin öðruvísi en með manns-hendinni. Þetta hefur þýtt minni þörf fyr-ir vinnuafl innan greinarinnar en þó másegja að aukning hafi orðið á starfsemistærri fyrirtækja á svæðinu í kjölfarþessa. Þar kemur m.a. til aukin vöruþró-un, fullvinnsla og beinn útflutningur áerlenda markaði. Hins vegar ber á því aðvinna hjá minni fyrirtækjum sé orðinstopulli en áður. Þá má nefna að launinnan fiskvinnslunnar hafa hækkað en ámóti kemur að fólk hefur tekið á sig veru-lega aukið vinnuálag og stór spurninghvernig það kemur út þegar til lengritíma er litið. Hætta á ýmsum álagssjúk-dómum eykst t.d. stórlega og einnig má

búast við að fólk endist ekki eins lengi ístarfi og sæki á önnur mið. Það hefur aft-ur í för með sér aukinn kostnað fyrir at-vinnurekendur við að þjálfa upp nýttstarfsfólk.

Allir séu upplýstir um rétt sinnEin sérstaða matvæladeildar felst í því

að margir sem þar starfa fylla hóp þeirrasem nefndir eru nýir Íslendingar, þ.e. eruaf erlendu bergi brotnir. Þá er einnig al-gengt að útlendingar komi til landsinsmeð það fyrir augum að starfa hér tíma-bundið. Við höfum í fréttum heyrt dæmium óprúttna menn sem brjóta á þessufólki og láta það njóta minni réttinda enþví ber. Þó svo að slíkt sé vonandi sjald-gæft ber okkur innan verkalýðshreyfing-arinnar að tryggja að allir séu vel upp-lýstir um réttindi sín og skyldur. Því ernauðsynlegt að koma meiri upplýsingumtil umrædds hóps verkafólks en tungu-málaerfiðleikar eru ákveðin hindrun íþeim efnum. Í samvinnu við fleiri aðilaer Eining-Iðja nú að vinna að úrbótum áþessu sviði þannig að tryggt verði að út-lendingar sem hér starfa um lengri eðaskemmri tíma séu ætíð meðvitaðir umréttindi sín.

Góðir félagar. Um þessar mundirstendur yfir dimmasti tími ársins en þóstyttist í að daginn taki að lengja á ný.Framundan er nýtt ár með nýjum tæki-færum. Við skulum horfa með bjartsýnifram á veginn, minnug þess að meðanvið stöndum saman fær ekkert stöðvaðokkur.

Matthildur Sigurjónsdóttir,varaformaður Einingar-Iðju.

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 7

Matthildur Sigurjónsdóttir.

Leiðari:

Með samstöðuna að vopni!

Page 8: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

8 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Ný lög og ályktað um ýmis málAN-þing á Illugastöðum 5.-6. október:

Þing Alþýðusambands Norðurlands varhaldið að Illugastöðum í Fnjóskadal 5.-6. október sl. Þingið var hið 27. í röð-inni en þau eru haldin á tveggja ára fresti.Innan AN eru stéttarfélög allt fráHrútafirði í vestri til Þórshafnar í austrisem hafa innan sinna vébanda rúmlega11.000 félagsmenn. Áttu um 100 full-trúar rétt til setu á þinginu.

Sambandið á að baki meira en 50 árasögu þótt starfsemi og hlutverk þess hafitekið ýmsum breytingum á þeim tíma einsog gefur að skilja. Meðal þess sem lá fyrirþinginu nú var einmitt að fjalla um breyt-ingar á skipulagi og starfsháttum sam-bandsins og voru ný lög þess samþykkt áþinginu. Í raun verður AN ekki með eigin-lega starfsemi fyrir utan þing annað hvertár og fulltrúafundi þess á milli, einnig ann-að hvert ár. Helstu mál þingsins þar fyrirutan voru kjaramál, atvinnu- og byggða-mál og kynning á nýju kennsluefni fyrirgrunn- og framhaldsskóla um vinnumark-aðinn.

Byggða- og atvinnumálÁ þinginu var mikil umræða um byggða-

og atvinnumál og þá stöðu sem víða er álandsbyggðinni. Í ályktun um þessi málkemur m.a. fram að lýst er eftir stefnu rík-isstjórnarinnar í atvinnu- og byggðamál-um. Nóg sé komið af skýrslugerðum ogtími framkvæmda ætti að vera löngu haf-

inn. Þingiðlýsti sig fylgj-andi virkjunog uppbygg-ingu orku-freks iðnaðará Austurlandiog lýsti eftirumræðum íþjóðfélaginuum hliðstæðarframkvæmdirá Norður-landi, sembyggist ávirkjun fall-vatna og há-hita. Þá kall-aði þingið eftir fiskveiðistjórnun sem takimið af lífríki hafsins, lífsafkomu sjómannaog landverkafólks.

Næsta brýna verkefni í byggðamálumtaldi þingið vera gerð jarðganga undirVaðlaheiði og skorað var á þingmenn ogsveitarstjórnir að vera sýnilegri í barátt-unni fyrir þessu verkefni. Stórhækkunfarmgjalda flutningsfyrirtækja var mót-mælt harðlega en á undanförnum misser-um hefur flutningskostnaður á vöru til al-mennings og fyrirtækja á landsbyggðinniverið að aukast til viðbótar hækkuðu olíu-verði og hærri þungaskatti.

Þá má geta þess að þingið átaldi stjórn-endur Ríkisút-varpsins fyrir aðdraga úr framlög-um til rekstrarSvæðisútvarpsNorðurlands áAkureyri meðþeim afleiðing-um að styttaþurfti útsending-artíma og fækkastarfsfólki. Þessmá geta að núhafa morgun-útsendingar RÚ-VAK verið hafn-ar að nýju þannigað stjórnendurRíkisútvarpsinshafa að einhverjuleyti séð að sér.

KjaramálÍ ályktun um kjaramál kemur m.a. fram

að þingið krefst þess að vextir verði lækk-aðir. Hafnað var þeirri skattastefnu stjórn-valda sem kemur fram í því að lækka fyrstskatta gróðafyrirtækja, hátekju- og eigna-fólks. Þingið krafðist þess að skattalækk-anir lágtekjufólks hafi forgang og annaðsvigrúm verið notað til hækkunar á barna-og vaxtabótum. „Verði ekki gripið til að-gerða er ljóst að kjarasamningar launa-fólks verða í uppnámi þegar endurskoðunþeirra fer fram í febrúar 2002,“ segir m.a. íályktuninni.

Kennsluefni fyrir unga fólkiðÁsmundur Hilmarsson frá Menningar

og fræðslusambandi alþýðu kynntikennsluefni sem hann er að vinna fyrirsambandið og ætlað er til kennslu í grunn-og framhaldsskólum. Námsefnið fjallarm.a. um þau réttindi og skyldur sem ung-menni takast á við þegar þau hefja þátt-töku á vinnumarkaði.

Ný stjórnNý stjórn Alþýðusambands Norðurlands

til tveggja ára var kjörin á þinginu. Hanaskipa: Konráð Alfreðsson, formaður, Sjó-mannafélagi Eyjafarðar; Ágúst Óskarsson,varaformaður, Verslunarmannafélagi Húsa-víkur og Guðni Kristjánsson, ritari, Öld-unni, Sauðárkróki. Varamenn til tveggja áravoru kjörnir Olga Gísladóttir, Verkalýðsfé-lagi Öxarfjarðar; Ásgerður Pálsdóttir, Sam-stöðu og Einar Hjartarson, Félagi verslun-ar- og skrifstofufólks Akureyri.Einingar-Iðju konur á AN-þingi.

Á þinginu var mikil umræða um byggða- og atvinnumál og þá stöðu sem víðaer á landsbyggðinni.

Page 9: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 9

Svo mikið hefur gerst-sagði Halldór Björnsson, formaður m.a. í setningarræðu

Ársfundur Starfsgreinasambands Íslands

Fyrsti ársfundur StarfsgreinasambandsÍslands var haldinn dagana 18. og 19.október sl. á Hótel Loftleiðum. Samband-ið var sem kunnugt er stofnað fyrir árisíðan, með sameiningu Verkamanna-sambands Íslands, Landssambands iðn-verkafólks og Þjónustusambands Íslands.Fjórtán fulltrúar frá Ein-ingu-Iðju sátu fundinn.

Fjölmörg verkefni lágufyrir ársfundinum, auk hefð-bundinna ársfundarstarfa. Ímálefnanefndum var m.a.fjallað um atvinnu- ogbyggðamál, kjaramál ogstarfsmenntamál, auk þesssem fjallað var um innri mál-efni sambandsins.

Gengum ekki í taktHalldór Björnsson, for-

maður sambandsins komvíða við í ræðu sinni viðsetningu ársfundarins. „Þaðer ótrúlegt að það sé ekki nema ár síðanvið stofnuðum Starfsgreinasambandið.Svo mikið hefur gerst og svo miklu höfumvið áorkað. Það er ástæðulaust að rifja þaðupp í smáatriðum hvernig ástandið var íokkar röðum fyrir rúmu ári. Það er nóg aðvið höldum því til haga að við vorum meiraog minna sundraður félagsskapur. Viðgengum ekki í takt,“ sagði Halldór m.a.Einnig kom hann inn á starfsmenntamálþar sem mikill árangur hefur náðst. Sér-stök áhersla hefur verið lögð á svonefndaforystufræðslu sem Halldór sagist telja eittaf lykilverkefnum verkalýðshreyfingar-innar á næstu árum. Hann fjallaði einnigum atvinnu- og kjaramál og þá stöðu semupp er komin í þeim efnum og í lok setn-ingarræðunnar ítrekaði hann þann góða ár-angur sem náðst hefur í að stilla samanstrengi innan verkalýðshreyfingarinnar.

Samstaða lykillinn að góðum árangriGrétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, ávarp-

aði þingið og fjallaði nokkuð um þann ár-angur sem Starfsgreinasambandið hefurnáð á sínu fyrsta starfsári. Hann lagði höf-uðáherslu á mikilvægi samstöðunnar enræddi ennfremur um nýjustu útspil ríkis-stjórnarinnar í efnahagsmálum. „Ég held

að æ fleiri séu að sannfærast um þau gömluog góðu sannindi að samstaðan er lykill-inn að góðum árangri. Þá er ég ekki að talaum samstöðu sem byggir á því að allir séualltaf sammála og syngi í einradda kór,heldur að menn umgangist ósamkomulag— ef og þegar um það er að ræða —

þannig, að það eyðileggi ekki fyrir mál-stað hreyfingarinnar. Hún á — og um þaðerum við öll sammála — brýnt erindi til ís-lensku þjóðarinnar,“ sagði Grétar.

Mistök í hagstjórninniTalsverðar umræður urðu um væntan-

lega endurskoðun á launalið kjarasamn-inganna í febrúar næstkomandi og hvaðaáhrif aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skatta-málum koma til með að hafa á hana. M.a.hélt Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-stjóri ASÍ, erindi um þróun og horfur íkjaramálum undir yfirskriftinni „Mistök íhagstjórninni“. Í máli hans kom fram aðábyrgð ríkisstjórnarinnar á því hver staðaner í dag er mikil. Ríkisstjórnin hefur látiðSeðlabankanum einum eftir að fylgjastmeð verðbólgu og grípa til aðgerða gegnhenni. Hann sagði jafnframt að fjárlaga-frumvarpið komi á móti til að leiða til ennfrekari útþenslu ríkiskerfisins og skattatil-lögur stjórnarinnar séu í mörgu tilliti óhag-stæðar hagsmunum launafólks.

Málstofa um húsnæðismálÍ tengslum við ársfundinn var haldin

sérstök málstofa um húsnæðismál. Fram-sögumenn voru Sigurður Bessason, for-

maður Eflingar, Ingi Valur Jóhannsson,deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu ogMagnús M. Norðdahl, lögfræðingur Al-þýðusambands Íslands.

Vantar stefnumótun til langs tímaÍ máli Magnúsar kom fram að almennt

eignaríbúðakerfi er grund-vallar fyrirkomulag húsnæð-ismála á Íslandi. Það hefurhins vegar liðið fyrir skort álangtímastefnumótun ogáætlanagerð, ómarkvissar ogfljótfærnislegar ráðstafanirhvers nýs ráðherra og ófull-nægjandi og óstöðugar end-urgreiðslur í formi vaxta oghúsnæðisbóta. Almenntleiguíbúðakerfi hafi ekki náðað þroskast hér á landi„vegna einsýni og landlægrafordóma,“ eins og hann orð-aði það. Það þarfnast nýrrahúsaleigulaga, bætts rekstrar-

umhverfis og almennra og viðunandi húsa-leigubóta. Opinbert fjármagn til mála-flokksins virðist vera nægilegt en bætaþurfi og breyta ráðstöfun þess, m.a. meðupptöku stofnstyrkja. Opna eigi einkafjár-magni leið inn á leigumarkað, styrkja bú-seturéttarfyrirkomulagið og opna á nýjarog ferskar hugmyndir. „Með skynsamleg-um og vel undirbúnum áætlunum og fram-kvæmdum er hægt að leysa allan vandannog byggja um leið upp manneskjuleganhúsnæðismarkað fyrir alla Íslendinga,“sagði Magnús.

Stofnstyrkir frá ríki og sveitarfélögumSigurður Bessason talaði á svipuðum

nótum. Sameina þurfi kraft samfélagsins,þ.e. ríkisvalds, sveitarstjórna, samtaka at-vinnulífsins og launþegasamtakanna til aðuppræta húsnæðisvandann. Stofnstyrkirvið kaup á íbúðarhúsnæði komi bæði fráríki og sveitarfélögum, lán verði veitt tilmjög langs tíma og ríkið leggi til stofn-styrki sem nemi a.m.k. 20% af íbúðar-verði. Sveitarfélögin verði að taka á sigsem nemur 10% af íbúðaverði, t.d. í formigatnagerðargjalda. Þá nefndi Sigurður aðleitað verði til lífeyrissjóða varðandi fjár-mögnun sem beri eðlilega vexti.

Fulltrúar Einingar-Iðju eru hér þungir á brún þannig að líkast til hafa al-vörumál verið til umræðu.

Page 10: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

10 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Spurning Einingar-Iðju blaðsins

Margrét Marvinsdóttir,Norðurmjólk:

„Mér líst mjög vel áþær og er viss um að þettaer þjóðþrifamál. Ég erreyndar líka með hug-mynd sem ég ligg ekki áað öðrum jarðgöngum,þ.e. undir Tröllaskagannsvo að við losnum viðÖxnadalsheiðina líka.“

Garðar Vésteinsson,Dekkjahöllinni:

„Mér líst vel á þær.Jarðgöng stytta leiðina ámilli og það hlýtur aðbæta samgöngur.“

Þorsteinn E. Arnórsson,skrifstofu Einingar-Iðju:

„Ég held að flestumhljóti að lítast vel á Vaðla-heiðargöng og tel að þaukomi bæði Þingeyingumog Eyfirðingum til góða.Fyrir Einingu-Iðju erþetta einnig hagsmuna-mál því ég hef trú á aðmeð göngum aukist nýt-ing á orlofshúsahverfinuá Illugastöðum.“

Sigríður Þórisdóttir,Hrafnagilsskóla:

„Mér líst mjög vel áþær. Það er engin spurn-ing að jarðgöng yrðu mikil bót fyrir þá fyriraustan.“

Ingibjörg Ólafsdóttir,Leikskólanum Iðavöllum:„Ég hef nú reyndar ekkikynnt mér þetta mál neittsérstaklega þannig að áþessu stigi held ég að égverði að vera frekar hlut-laus.“

Sigríður K. Bjarkadóttir,Leikskólanum Pálm-holti:

„Mér líst vel og þær oghef raunar ekkert meiraum það að segja.“

Geir Guðmundsson, Vega-gerð ríkisins:„Mér líst vel á þær. Ég erekki í nokkrum vafa um aðgöng myndu bæta sam-göngur til muna. Suma vet-ur er þetta lífsnauðsyn fyr-ir það fólk að austan semsækir vinnu sína hingað íbæinn og/eða þjónustu.“

Sæbjörn Jónsson, Plast-iðjunni Bjargi, Iðjulundi:

„Mér líst nokkuð vel áþær, sérstaklega ef þæryrðu til þess að menn gætufengið fyrr heitt vatn fráReykjum inn í Fnjóskár-dal. Þar að auki styttir þettaleiðina austur töluvert.“

Hvernig líst þér á hugmyndir umjarðgöng undir Vaðlaheiði?

Page 11: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 11

Bestu óskir um gleðileg jól

og farsælt komandi ár

Sjómanna-sambandÍslands

Page 12: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

12 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Sumarferð Einingar-Iðju tilÍtalíu 3. - 18. júní 2001

Þegar félagið bauð upp á ferð til Ítalíuhefur hjartað í mörgum eflaust tekið smákipp. ÍTALÍA! Land sem hefur upp á svomargt spennandi að bjóða. Allir þekkjamatinn, vínið, landslagið og ekki mágleyma stórbrotinni sögu landsins, þarsem hvert svæði og hver stórborg höfðueitt sinn sína eigin höfðingja og stjórn-endur eins og t.d. Feneyjar og Róm. Ekkimá heldur gleyma allri þeirri listsköpunsem finna má á Ítalíu í byggingum, mál-verkum, höggmyndum, tónlist og mörgufleiru. Margir fóru að láta sig dreyma umrómatík í gondólum eða afslöppun í sólog sælu á Rimini og þegar fór að vorahöfðu 55 skráð sig í ferðina.

Sunnudagurinn 3. júní:Lagt af stað

Sunnudaginn 3. júní kl. 21 voru flestirmættir við Alþýðuhúsið á Akureyri, þarsem rúta stóð tilbúin að flytja fólkið áKeflavíkurflugvöll. Ferðin suður gekk velog var róleg framan af. Farþegarnir reynduað hvíla sig fyrir næstkomandi daga oglétu sig dreyma um það sem var í vænd-um. Þegar leið á nóttina og farþegar á Stór-Reykjavíkursvæðinu bættust í hópinn fórumenn að hressast og spenningurinn leyndisér ekki. Allir voru með hugann við Ítalíu,þótt menn hefðu sjálfsagt mismunandivæntingar um komandi daga.

Í Reykjavík bættist leiðsögumaðurinn,Vilborg Halldórsdóttir, í hópinn og mörg-um létti. Þarna var komin kona sem kunniítölsku. Engin tungumálavandamál áttu aðvera framundan.

Mánudagurinn 4. júní: „Bon giorno Italia“

Klukkan 6 var farið í loftið. Það varflogið beint til Rimini þar sem bílstjórinnSveinn Sigurbjarnarson eða ,,Svenni” tóká móti hópnum, hress að vanda, og fluttiokkur á fyrsta áfangastað, Garda.

Vilborg kenndi okkur margt á leiðinni.Fyrst af öllu kenndi hún okkur að segja,,Quantlé kosta” (hvað kostar þetta) ogsennilega var það mest notaða ítalska setn-ingin í ferðinni. Það sást á farangrinum aðferðinni lokinni.

Við komum til Garda kl. 18 og héldumrakleiðis á Hótel Royal sem átti að veraheimili okkar næstu 6 nætur. Það var gottað fá þriggja rétta máltíð eftir langan dag

og hvíla sig fyrir þann næsta sem átti eftirað bjóða upp á margt spennandi.

Þriðjudagurinn 5. júní:Verona

Eftir góðan morgunmat var lagt af staðtil Verona sem er stutt frá Garda. Þar tók ámóti okkur ítalskur leiðsögumaður semfór með okkur í tveggja tíma gönguferðum gamla bæinn. Þar er m.a. Arena hring-leikahúsið sem var byggt á 1. öld. Það erþriðja stærsta hringleikahúsið í heiminumog það eina sem ennþá býður upp á óperurog aðra söngleiki undir berum himni. Viðfengum einnig að sjá sögusvið harmleiks-ins um Rómeó og Júlíu. Þar er stytta afJúlíu og sagt er að það boði gott í ástar-málum að snerta vinstra brjóst hennar. Þaðer erfitt að hugsa sér rómantíkina í verkiShakespears þegar beðið er í langri röðtúrista til að geta myndað svalir Júlíu. Enþegar litið er í kringum sig blasa ástir okk-ar aldar við á öllum veggjum í portinu, þarsem elskendur nútímans hafa krotað nöfnsín.

Í hádeginu var borðað á Piazza delle Erbeog eftir matinn var rölt um bæinn til kl. 15.Þá var haldið á ný til Garda, þar sem mennslöppuðu af við sundlaugina til kl. 20. Hóp-urinn fór saman á veitingahús við Garda-vatn og þar sem ítalskan var ekki okkar fagvar gott að hafa Vilborgu sér við hlið. Ég erenn að dást að þjónustuliðinu sem stóð sigmjög vel þrátt fyrir 55 manna árás öllum aðóvörum. Það fær fimm stjörnur.

Það var föngulegur hópur sem hélt til Ítalíu í sumarferð Einingar-Iðju.

Í Verona var Arena-hringleikahúsið skoðað.

Page 13: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 13

Þetta var góður dagur. Það eina sem fólkkvartaði yfir var hitinn, 28°C.

Miðvikudagurinn 6. júní:Feneyjar

Við tókum daginn snemma og lögðumaf stað frá hótelinu kl 8. Okkur var ekiðbeint til Torcello og þaðan var bátur tekinntil Feneyja. Á Markúsartorgi hittum viðleiðsögumann staðarins. Hann sagði okkurmargt um torgið, byggingar og brýr. Sagastaðarins er löng og mikil, enda allar ferða-bækur með sér kafla um Feneyjar.

Eftir að hafa skoðað Markúsartorg ogHertogahöllina að utan var farið með hóp-inn í glergallerí þar sem við fengum að sjáhvernig gler er blásið. Maðurinn, sem varað vinna, tók glerklump, hitaði hann í ofniog ,,togaði” svo út úr honum þennan fínahest. Síðan fengum við að skoða Muranoglerverksmiðjuna þar sem allir hlutir eruhandgerðir. Frábær listaverk og hægt aðeyða nokkrum milljónum líra.

Eftir þetta gat hópurinn farið sínar eiginleiðir, látið draumana rætast í gondólaferðeða á góðum veitingastað. Undirrituð fórupp í hæsta útsýnisturninn á Markúsar-torgi. Þaðan var gott útsýni yfir allar 117eyjarnar, en þær liggja svo þétt að þær

virðist í raun ein stór heild, enda ein borgmeð 15.000 húsum og tæplega 400 brúmyfir 150 kanala og — það sem merkilegaster — engum bílum.

Kl. 16 hittust allir aftur til að fara,,heim”. Veðurguðirnir buðu upp á þrumurog eldingar og smá rigningu, en engumvarð meint af (sumum fannst reyndarnokkuð kalt þennan dag, aðeins 19°c.) Viðkomum á hótelið kl. 19:30 eftir góðan dag.Ein vika í Feneyjum væri ekki nóg til aðnjóta alls þess sem þær hafa upp á að bjóða,hvað þá einn dagur.

Fimmtudagurinn 7. júní:Gardavatn

Nú var komið að því að skoða nánastaumhverfi okkar og fara í siglingu á Garda-

vatni, sem er stærsta vatn Ítalíu. Veðriðlofaði góðu, heiður himinn og 26°c. Ekiðvar til Sirmione sem er langur tangi út ívatnið. Tangi þessi laðar til sín flesta þáferðamenn sem koma til Gardavatns, enaðalsmerki hans er kastali sem Scala-fjöl-skyldan frá Sikiley lét byggja sér sem sum-

arhús á 12. öld. Sagt er að Dante hafi búiðí höllinni og kallað Sirmione ,,perlu vatns-ins.” Þar var gaman að ganga um og skoðafallega garða og kastalamúrana. Þess mágeta að ein kráin þar bar nafnið Elli ogeinn úr hópnum var ánægður að sjá nafniðsitt á slíkum stað.

Frá Sirmione var siglt til Gardone þarsem beið okkar fínasta máltíð. Gardone erfallegur strandbær, þar sem hinir ríkubyggðu sér glæsihýsi, enda staðurinn

Maggi í “góðra fugla hópi” á Markúsartorgi,Feneyjum.

Vilborg og Elísabeth, leiðsögumenn.

Page 14: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

14 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

þekktur fyrir sérstaklega milt loftslag. Eft-ir matinn var siglt til Saló sem er lítill bærmeð þröngum en líflegum götum. Þar þef-aði undirrituð uppi postulínsmálara semsýndi okkur frábær listaverk. Einhverjir úrhópnum stóðust ekki freistinguna ogkeyptu sér fallega handmálaða hluti tilminningar um þessa ferð.

Þegar ,,heim” var komið fór hópurinnað hugsa um kvöldmat. Flestir voru orðnirþað góðir í ítölskunni að þeir gátu séð umsig sjálfir hvað matarpantanir varðaði.Nokkrir fóru saman niður að Gardavatniog borðuðu úti við kertaljós og notaleg-heit. Góður endir á góðum degi.

Föstudagurinn 8. júní:Padova

Þennan dag voru allir snemma á ferð þvínú átti að nota daginn vel og gera margt.Lagt var af stað kl. 8 og haldið til Padovasem er stutt frá Feneyjum. Við lentum íumferðarteppu og því seinkaði okkur umu.þ.b. klukkustund. Bíll með pappírsfarmihafði oltið á hraðbrautinni og pappírinnvar úti um allt. Sem betur fer urðu ekkislys á fólki. Þetta varð til þess að leiðsögu-maðurinn, sem ætlaði að vera með okkur íPadova, hafði ekki mikinn tíma til að sýnaokkur staðinn. Við komumst þó að kirkjuHeilags Antoníusar. Kirkjan reyndist svoheilög að hluti af hópnum mátti ekki farainn vegna ósiðsamlegs klæðnaðar (stutt-buxur og ermalausir bolir bannaðir). Þeirsem fóru inn voru ánægðir með það semsýnt var, tíminn var bara af of skornumskammti.

Eftir mat var farið að skoða stóran úti-markað, en þegar þangað var komið vorukaupmenn að taka saman og loka. Sein-heppnin elti okkur eina ferðina enn þennan

daginn. Þegar líða tók að kvöldi þurftumvið að leita að Svenna, eða Svenni að okk-ur, því hann þurfti oft að geyma rútuna ut-anbæjar. Eftir rölt fram og til baka sástloks í Drottninguna og allir voru fegnireftir langan og erfiðan dag. Það er baraþannig, líka á ferðalögum, að allt gengurekki alltaf eins og maður óskar sér. Þaðsem stóð helst upp úr eftir daginn var torgsem við gengum í gegnum, Parato dellaValle, sem er næst stærsta torg Evrópu. Þarvoru margar styttur og fallegur gosbrunn-ur. Kl. 19 vorum við komin heim á hótelog allir hlökkuðu til næsta dags sem varfrjáls dagur.

Laugardagurinn 9. júní:Frjáls dagur

Það var gott að geta sofið aðeins leng-ur einn dag og tekið því rólega. Margirslöppuðu af við sundlaugina allan dag-

inn meðan aðrir fóru í gönguferðir með-fram vatninu eða upp í hlíðarnar fyrirofan hótelið. Sumir kíktu líka í búðir.Undirrituð þurfti í hraðbanka en ,,Líru-kassinn” var svo svangur að hann gleyptikortið og sást það ekki meir. Bjössi varfljótur að redda málunum svo hinóheppna gat tekið gleði sína á ný meðfulla vasa af peningum. Þetta var nota-legur dagur.

Sunnudagurinn 10. júní:Flórens - Montecatini Terme

Lagt var af stað frá hótelinu kl. 8. Ferð-inni var heitið alla leið til Flórens, þar semeyða átti smá tíma áður en haldið yrði tilMontecatini. Þar áttum við að halda tilnæstu þrjár nætur. Við komum til Flórenseða Firenze kl. 12 svo það var nú ekkimikill tími til að skoða borgina. Eitt eigaFlórens, Róm og Feneyjar sameiginlegt.Flestar ferðabækur hafa sér kafla fyrir þærþví þar er svo margt að sjá.

Það fyrsta sem við skoðuðum vorustyttur á Piazza della Signoria. Þar erumargar frægar styttur eins og t.d. Davíðs-styttan eftir Michelangelo. Þá voru Dóm-kirkjan og Skírnarkapellan skoðaðar.Síðan var okkur gefinn laus taumurinnog gátum við notað tímann til að skoðaokkur um. Kl. 16 hittist hópurinn afturog við gengum saman til að finna rútuna.Við gengum upp langar og miklar tröpp-ur á stíg sem hét víst ,,Píslargangan” ogvar það réttnefni fyrir okkur sem höfðumgengið allan daginn. Upp komust þó allirog útsýnið var þess virði að puða smá-vegis. Kl. 20:30 komum við svo tilMontecatini Terme á hótelið LagoMaggiore og allir voru fegnir að komast író en...

Íslenska fánanum var flaggað af fleiri en Íslendingum og var Vilborg hin ánægðasta með það.

Birni formanni fannst mjög gott að sitja í sólinni og var kominn á ströndina á undan flestum öðrum.

Page 15: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 15

Mánudagurinn 11. júní:Pisa

... morguninn eftir kom ýmislegt í ljós.Fólk hafði fengið misgóð herbergi og hafðihver sína sögu að segja. Sumir fengu her-bergi án sturtu meðan aðrir státuðu af set-baðkörum. Einn hafði verið í sturtu þegar

þjónustustúlkan kom askvaðandi inn.Hann var lítið hrifinn en aðrir öfunduðuhann af góðri þjónustu. Þá var gerð þessivísa:

Magnús þrifa þáði baðþjónustunnar vegna,hvað það kostar, skítt með þaðNú þarf Bjössi að hegna.

Önnur kom strax á eftir og sá ,,skáldið”atburðinn á annan hátt.

Sælu Magga svipur áskítt með öfund Bjössa,í bað ég fer og boða þábaðdömuna þessa.

Einu herbergi fylgdi lítil sæt salamandrasem þótti ekki góður herbergisfélagi. Eftirsmá læti kom hótelstjórinn og bjargaðimálunum. Var þá kveðið:

Möggu og dýrinu brá, brábæði svo þögul og smá, smá,að hjálpa sér Guð bað hún þá, þáen ítalinn flutt’ana já, já.

Ekki var þess getið hvort var flutt á brott,Magga eða dýrið!

Eftir morgunmat var farið til að skoðaPisa, borg skakka turnsins. Við komumþangað kl. 14 og þar tók ítalski fararstjór-inn á móti okkur og sýndi okkur svæðið ámettíma. Borgin hefur áhugaverða söguog margar byggingar frá blómaskeiðihennar, er hún var sjálfstætt lýðveldi, setjasvip á borgina. Sérstaklega á það þó viðum Dómkirkjuna sem skartar hinum frægaskakka klukkuturni. Þarna á svæðinu erlíka sérkennilegur kirkjugarður, Campos-anto frá 1278, sem er umluktur miklumSkakki turninn í Pisa var skoðaður.

Sigríður, Unnur, Rósa og Ásbjörn að hvíla lúinbein.

Page 16: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

16 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

múrum. Hægt er að fara upp í turn á múrn-um, ganga hring um garðinn og sjá niður íhann, auk þess sem hægt er að sjá bygg-ingarnar frá öðru sjónarhorni.

Eftir að hafa skoðað þessi ,,undur ver-aldar” var snúið heim á leið og þangað varkomið kl. 19:30. Til allrar lukku var búiðað flytja sum í hópnum í ný og betri her-bergi. Magga var laus við öll ,,gæludýr”og allir voru ánægðir.

Þriðjudagurinn 12. júní:Montecatini Terme - Lucca

Þennan dag gat hver og einn notað til aðskoða þennan litla notalega bæ, Montecat-ini Terme. Hann er þekktasti heilsustaðurÍtala með yfir 220 hótel og heilsuhæli ogþar er einnig mikið af fallegum görðum.Vatnið þar á að vera sérstaklega heilsu-samlegt. Það kemur úr uppsprettu sem er60-80 metrum undir sjávarmáli. Á hverjuári koma þangað margir, ungir sem aldnir,til að láta stjana við sig og láta sér líða vel.

Þar sem við þekktum ekki staðinn spurð-um við hótelstjórann hvað best væri aðgera þennan dag. Hann var ekki sleipur íenskunni (og við ekki heldur) en hann gafokkur götukort og benti okkur á stað semheitir Terme, sem átti að vera mjög sér-stakur. Einnig benti hann okkur á að hægtværi að taka toglest upp á hæð nálægtbænum. Við héldum þrjú af stað, án þesseiginlega að vita hvert við ætluðum. Þaðeina sem við vissum var að við vildumfara upp á hæðina Alto og því gengum viðáleiðis. Í byggingu einni hljómaði tónlistsem lokkaði okkur nær.

Þvílíkur staður. Byggingar með súlna-göngum, gosbrunnum, allskonar görðumog litlum hofum eða garðskálum. Á ein-

um staðnum var hljómsveit að spila ogsyngja fyrir gesti og það var mjög notalegtað sitja þar og hlusta á fallegan söng. Þarnavar líka gallerí, dýrar verslanir og flottirveitingastaðir. Þetta var greinilega staðurfyrir vel efnað fólk. Eftir því sem viðkomumst næst var þetta heilsuhæli frá 18.öld sem bauð ennþá upp á allskonar heilsu-meðferðir, nudd, leirböð og fleira. Þegarvið vorum búin að skoða okkur um í tvoog hálfan tíma var staðnum lokað vegnasiesta Ítalanna. Við fórum því að leita aðtoglestinni í nágrenninu. Hún flutti okkurupp á topp á Alto-hæðinni. Þetta var lítillkastalabær sem gaman var að skoða.Klukkan gekk allt of hratt þennan dag ognú var kominn tími til að hitta samferða-fólkið.Það átti að halda til Lucca kl. 17.

Í Lucca var gengið um gömlu borgina

sem er snotur miðaldabær með miklumborgarmúrum allt um kring. Um kvöldiðskipti hópurinn sér niður á tvö veitingahúsí bænum. Á okkar stað var þjóninn sérlegaskemmtilegur. Hann söng eða öllu heldurrak upp rokur í hvert sinn sem hann kom ísalinn (sumir voru vissir um að hann hefðigleymt að taka lyfin sín.) Þetta varð tilþess að við tókum lagið fyrir hann og sung-um ,,Kátir voru karlar” af mikilli innlifun.Það þótti honum skemmtilegt. Seinna umkvöldið hóf Vilborg fararstjóri upp raustsína og söng ,,Stóð ég úti í tunglsljósi”með miklum glæsibrag. Hún hafði fengiðeinhvern trommara á staðnum til að slátaktinn á bongótrommur og setti það mik-inn kraft í þessa skemmtun. Þegar hópur-inn sameinaðist svo aftur um kvöldið varhaldið áfram að syngja utanhúss, kokkun-um á nærliggjandi stöðum til mikillaránægju. Þetta varð hinn skemmtilegastidagur og allir voru ánægðir þegar “heim”var komið.

Miðvikudagurinn 13. júní:Rimini

Þá var að pakka niður eina ferðina ennog alltaf fjölgaði töskunum. Nú átti aðhalda til Rimini, á síðasta áfangastaðinn.Þegar til Rimini var komið tók við leitinað Hótel Stokkhólmi. Eftir marga hringitókst loks að komast á rétta staðinn. Það ersvo einkennilegt að á Ítalíu, í þessu miklaferðamannalandi, virðist ekki vera gert ráðfyrir rútum, svo við þurftum að affermarútuna í hvelli og ganga nokkurn spöl meðdótið okkar. Vesalings Svenni, það vareins og hann mætti hvergi vera.

Hingað vorum við komin til að flatmaga

Í Lucca var lagið tekið með hefðbundnum, íslenskum hætti, heimamönnum til mikillar ánægju.

Sólin fór ekki jafn vel með alla og var Svenni einn af þeim sem lentu illa í því.

Page 17: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 17

á ströndinni næstu daga og ekki vantaðiplássið. Sóldýrkendur hlökkuðu til að notasíðustu dagana við Adríahafið.

Fimmtudagurinn 14. júní:San Marino

Þeir sem ekki vildu vera allan daginn ísólinni gátu farið að skoða San Marino.Klukkan 9 um morguninn var lagt af staðupp í þetta minnsta fríríki heims. Það vargaman að koma þangað og margir íbúannaþekktu Ísland vegna smáþjóðaleikannasem haldnir höfðu verið þar stuttu fyrirkomu okkar, þar sem íþróttafólk okkarhafði staðið sig með sóma. Klukkan 13 varsvo farið til baka og allir á ströndina, endasteikjandi hiti þar. Sjórinn var nokkuðkaldur en það vandist fljótt. Það var ekkierfitt að sjá hvar Íslendingarnir voru þvíþað lýsti af þeim í sólinni. Einhver gerðiþessa vísu:

Fólkið með ráðum það reyndiað ríf´af sér hversdagsins dróma,en ætterni litur ei leyndilétt var og margt bar á góma.

Föstudagurinn 15. júní:Sólbaðsdagur

Hefðbundinn dagur á sólarströnd: sól-bað, borðað, sólað meir, sumir brenndir,gengið um og skoðað. Einhverjir fóru aðskoða flugminjasafn og voru mjögánægðir með það. Um kvöldið var farið árölt og sumir fengu sér snúning á dans-stað rétt hjá hótelinu. Þetta var rólegurdagur.

Laugardagurinn 16. júní:“Italia in Miniatura”

Undirrituð er ekki mikið fyrir sólböðsvo hún fór á stúfana og spurði heima-

fólkið hvað væri markvert í nágrenninu.Bent var á á Italia in Miniatura á norður-hluta strandarinnar. Þessi garður reyndistvera heill ævintýraheimur. Hægt var aðferðast um ,,alla Ítalíu” og hluta af Evr-ópu á nokkrum tímum því þarna voruyfir 270 byggingar og merkir staðir ímini stærðum. Öllu var svo vel fyrir kom-ið að manni leið eins og Gúliver í Puta-landi.

Einn hluti garðsins var eftirlíking afFeneyjum sem var aðeins 5 sinnumminna en hinar raunverulegu Feneyjar,t.d. var útsýnisturninn á Markúsartorgi20 metra hár. Farið var í gondól ogsiglt um síkin og var það ótrúlega líktþví og að vera í Feneyjum. Það einasem vantaði voru dúfurnar á torginu ogkannski aðeins fleira fólk. Þetta varfrábær dagur í 35° hita og um kvöldiðvar svo spjallað og sprellað langt framá kvöld.

Sunnudagurinn 17. júní:San Leo

Þetta var sannkallaður letidagur.Samvinnuferðir-Landsýn buðu okkarhóp að slást í för með þeirra fólki. Þrett-án úr okkar hóp þáðu boðið og lögðu afstað kl. 16:30 frá ströndinni upp að kast-ala St. Leo og stoppuðu þar um stund.Kastalinn er á hæð beint á móti SanMarino.

Um kvöldið var borðað á gömlu sveita-setri sem heitir ,,Bastian þverhaus” vegnaþess að Bastian þessi hefur boðið upp ásama matseðil í mörg ár án þess að breytahonum, enda ekki ástæða til. Við fengum13-14 rétta máltíð og vín eins og hvervildi og húsmóðirin sá til þess að allt væriborðað. Hljómsveit var á staðnum, þrírkarlar sem komnir voru á eftirlaun ogkölluðu sig Zorro. Þeir héldu uppi fjörifram á kvöld. Þetta var frábær endir ágóðu fríi.

Mánudagurinn 18. júní:Á heimleið

Þá var bara eftir að pakka saman ogkoma sér á flugvöllinn. Farangurinn hafðiblásið út í þessari ferð og það var ótrúlegthvað Svenni var laginn við að koma öllufyrir. Það er hægt að segja að í þessari ferðhafi allir hafi fengið eitthvað við sitt hæfiog séð margt sem gaman væri að skoðabetur seinna.

Ég vil þakka samferðafólkinu og ekkisíst skipuleggjendum þessarar ferðar þol-inmæðina og góða samveru.

Oddný Baldursdóttir.

Töskunum hafði fjölgað allverulega þegar heim var haldið. Menn voru einnig orðnir ansi þreyttir.

Kastali í San Marino.

Page 18: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

18 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Það var fremur þungskýjað og kalt þegarlagt var í hann frá Alþýðuhúsinu þriðju-dagsmorguninn 14. ágúst. Nú skyldi hald-ið í fjallaferð. Eins og vanalega var bíl-stjóri Sveinn Sigurbjarnarson frá Val-gerði og fararstjóri var Björn Snæbjörns-son sem fyllti í skarð Matthildar. Leið-sögumaður var Þórir Haraldsson,menntaskólakennari. Haldið var austur í Mývatnssveit. Þar varstoppað og menn bættu á nestið sitt. Núyrði lítið um sjoppur næstu fjóra daga.Ekið var austur eins og leið lá og fyrststoppað í Möðrudal til að létta af sér ogskoða sig um. Síðan var haldið út af aðal-vegi og ekið áfram inn í Arnardalinn. Þarvar litið á nestið við lítinn kofa sem hýstgæti tvo menn og hund í mesta lagi.

Hvannalindir og KverkfjöllÁfram héldum við og Þórir lýsti stað-

háttum og sagði sögur um svæðið sem far-ið var um. Þegar komið var í Hvannalindirvar gengið niður að fyrrverandi bústaðFjalla-Eyvindar og rústirnar skoðaðar.Margir hugsuðu með sér að heldur hafiverið hráslagalegt að dvelja þar um vetur.Þar er hins vegar mjög fallegt um að litast.Haldið var áfram og var veðrið heldurhryssingslegt. Skyggnið var þar að auki lé-legt, en áfram hélt Valgerður yfir holt ogmóa.

Er við komum að Sigurðarskála varskammt liðið á daginn og því var ákveðið

að fara upp í íshellinn áður en menn kæmusér fyrir í skálanum. Það er allnokkurganga upp að íshellinum og sóttist ferðinmisjafnlega. Okkur fannst brú ein á leið-inni heldur veikburða. Hún var orðin bog-in og lét verulega á sjá. Göngutúrinn varsamt sem áður þess virði. Það var reglu-lega skemmtilegt að koma að íshellinum,en því miður var ekki þorandi að fara inn íhann vegna hættu á hruni.

Því var haldið til baka í Sigurðarskálasem er í eigu Ferðafélags Fljótsdalshéraðsog Ferðafélags Húsavíkur. Við fengumsvefnstað upp á lofti og var þar mikil flat-

sæng. Í skálanum var mikill matsalur ogaðstaða öll hin besta. Við fórum snemma íháttinn eftir ágætt kvöld, reyndar svosnemma að skálaverðirnir höfðu ekki orð-ið vitni að öðru eins.

Í ÖskjuAð morgni fimmtudags var heldur lítið

skyggni og prísuðu menn sig sæla yfir þvíað hafa skoðað íshellinn kvöldið áður. Viðkvöddum Sigurðarskála í köldu veðri. Þarhafði okkur liðið vel um nóttina, þó nætur-kyrrðinni hafi verið raskað með miklumtónleikum með alls konar hljómbrigðum.

Um morguninn var farið yfir mikinnsand og lítið var að sjá. Er við komum aðbrúnni á Jökulsá við Upptyppinga fórumenn í gönguferð og skoðuðu staðinn þarsem hin ýmsu mannanöfn höfðu verið rit-uð á bergið fyrir mörgum árum. Þaðan varhaldið til Dreka. Þar var stoppað til aðnæra sig áður en ganga átti Öskju. Í Drekablasti við okkur nýtt hús með nýjum snyrt-ingum og sturtum. Heldur þótti okkur þettabetra en gömlu kamrarnir.

Áður en lagt var af stað upp hlíðar Öskjuminnti fararstjórinn á handklæðin. Núskyldi farið í bað í Víti. Fararstjórinn hafðieinnig orð á því að ekki þyrfti að burðastmeð baðfötin því þau væru óþörf. Þórir varalveg óstöðvandi að segja sögur af atburð-um sem tengdust staðháttum.

Gönguskórnir voru teknir fram og viðþrömmuðum af stað. Það var lítill snjór ágönguleiðinni, en er komið var á barm Vít-

Það var myndarlegur hópur sem fór í fjallaferð Einingar-Iðju 2001.

Fjallaferð Einingar-Iðju 2001

Svenni bílstjóri. Þórir leiðsögumaður.

Page 19: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 19

is var mikil drulla alls staðar og mjög hált.Það að koma á barm Vítis er alveg dýrlegt.Það er stórfenglegt að sjá þennan gíg oghugsa um hvað hafi gengið á við myndunhans.

Nokkrir fóru niður í Víti, en hálkan gerðiþeim erfitt fyrir. Þegar niður var komiðsviptu menn sig klæðum og hoppuðu út í.Það var notalegt að svamla í vatninu, enheldur var kalt að fara upp úr og enn verraað ganga upp á ný. Þegar komið var afturniður í Dreka var farið að skipta sér í hús,því að skáli Ferðafélags Akureyrar tókekki alla. Því var einnig gist í skála sem erí eigu Jóns Árna frá Mývatnssveit.

Um kvöldið var grillað og voru meistar-arnir þeir Ásbjörn og Árni mættir til leiks.Þeim tókst að galdra fram þessa dýrindis-máltíð með góðri aðstoð Örnu og Dúddu.Setið var yfir borðum fram á kvöld ogskemmtu menn sér konunglega. Allirkomust fyrir en álagið á nýju sturturnarhafði verið of mikið. Þær voru ónothæfarmorguninn eftir. Um nóttina sváfu allirvel. Fararstjórinn lá á gólfinu í Jónsskálaog var svo fyrirferðamikill að mennkomust ekki út þó þeir þyrftu á klósettið.

Læðst um GæsavatnaleiðAð morgni föstudags var komið betra

veður. Ferðinni var heitið um Gæsavatna-leið. Þegar við vorum komin nokkuð áleið-is beygði Svenni út af slóðinni og keyrðibeint af augum yfir sandinn. Eftir litlastund sáum við smá gróður í sandinum.Við vorum komin að upptökum Svartársem kemur upp í sandinum miðjum og erorðin nokkuð vatnsmikil þegar hún rennurí Jökulsá, eftir 5 km leið. Við gengum aðfallegum fossi í Svartá sem heitir Skínandiog ber hann nafn með rentu.

Eftir þetta var keyrt yfir svokallaðarFlæður, þó ekkert vatn hafi verið þar. Held-ur fannst mönnum ferðin ganga hægt uppUrðarhálsinn, en þar er enginn vegur, að-eins stikur sem sýna hvar hægt er að fara.

Upp á hálsinum er mikið jarðfall sem er al-veg stórkostlegt að sjá. Þarna hafa orðiðmiklar jarðhræringar og við veltum fyrirokkur hvað hafi orðið af öllu því sem gos-ið hafði upp úr gígnum.

Við áðum við skála sem er stutt frá Kistu-felli. Er við komum á hæð nokkra sáumvið að út um allt voru vörður. Við snöruð-umst því út og hófum að hlaða í eina slíkaaf miklum krafti. Síðan var haldið niður aðGæsavötnum. Þar er skáli sem vélsleða-og jeppamenn eiga. Skáli þessi er mjögreisulegur og svæðið í kring mjög fallegt.

Næsti náttstaður okkar var í Laugafelli.Þar fengum við alla skálana til afnotaþannig að nóg var plássið. Menn vorunokkuð dasaðir eftir þessa löngu ferð yfirvegleysur og því var gott að geta farið ílaugina í Laugafelli. Þar var margt ummanninn um kvöldið og er nokkuð víst að

sumir hafi verið orðnir vatnsósa þegar þeirfóru upp úr.

Til byggða á nýÞað var kalt um nóttina, en um morgun-

inn var komið mjög fallegt veður. Er mennvoru komnir á fætur fóru margir að skoðaÞórunnarlaug. Síðan var ekið sem leiðliggur niður í Skagafjörð. Fallegt var umað litast á leiðinni, en lítið var stoppað.Menn voru því orðnir svangir þegar niður íÞorljótsstaði var komið.

Veðrið var svo gott að erfitt var að fáfólk til að fara inn í rútuna á ný. Þegar þaðtókst loksins var þjóðvegurinn keyrður oghaldið heim á ný eftir góða fjallaferð.

Þessi ferð var reglulega skemmtileg.Hópurinn var góður og leiðsögumaðurinneinnig. Þetta var ferð sem enginn sá eftirað hafa farið í.

Hópurinn skoðaði sig um í Eyvindarveri í Hvannalindum.

Hlaðið í vörðu.

Skáli Ferðafélags Akureyrar við Drekagil.

Page 20: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

20 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

OLÍUVERZLUNÍSLANDS HFwww.olis.is

www.esso.is

sgs.is

www.toyota.is

P A Draupnisgötu 7m • 603 AkureyriSími 462 3248

P. Alfreðsson ehf.

Grundargata 9, 620 DalvíkSími: 466 1199

Daltré ehf.

Glerárgötu 3b • Símar: 461 2545

akureyriwww.brimborg.is

H R Í S E Y J A R H R E P P U RRÁÐHÚSINU · SÍMI 466 1762 · FAX 466 1790 · NETFANG: [email protected]

http://hrisey.vefurinn.is

samskip.is

pwcglobal.com/is

www.saeplast.com

www.frost.is

Sími 460 8850

www.p las tp ren t . i s

www.livis.is

461 3010

www.vsfi.isVÉLSTJÓRAFÉLAG ÍSLANDS

www.tmhf.is

[email protected]

www.istak. is

RAFIÐNAÐARSAMBANDÍSLANDSwww.raf.is/rsi

MEISTARAFÉLAGHÚSASMIÐAÍ REYKJAVÍK

Bestu óskir um gleðileg jól

og farsælt komandi ár

[email protected]

Page 21: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 21

Aldraðir í Herðubreiðarlindum

Veisluborðið í Selinu sveik engan.

Slappað af í rútunni á heimleið.

Eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga var farin 19. ágúst sl. Ekiðvar upp í Herðubreiðarlindir og þar grill-að ofan í mannskapinn. Þessi ferð var ááætlun síðasta sumar en þá þurfti aðfresta henni vegna mikilla vatnavaxta ásvæðinu. Nú gekk hins vegar allt að ósk-um. Á heimleiðinni var stoppað í Selinu íMývatnssveit þar sem hlaðin veisluborðbiðu hópsins og komu því allir sáttir ogsaddir heim.

Grillmeistarar að störfum í Herðubreiðarlindum.

DesemberuppbótDesemberuppbót skal greiða í einu lagi en upphæðin er mis-munandi eftir samningum. Eftirfarandi tölur miðast við fullt

starf allt árið en fyrir hlutastarf er greitt hlutfallslega.

Almennir samningar: 35.000 kr., greiðist eigi síðar en 15. desember.

Launanefnd sveitarfélaga: 50.032 kr., greiðist í desember.Samningar við ríkið 35.000 kr., greiðist 1. desember.

Starfsfólk Einingar-Iðju veitir fúslega allar nánari upplýsing-ar um reglur í þessu sambandi.

Sjá ennfremur heimasíðuna: www.eining-idja.is

Desemberuppbótin kemur sér án efa vel fyrir marga þegar kemur að jólainn-kaupunum.

Page 22: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

Greifinn er rótgróið veitingahús í hjarta Akureyrar, semallir heimamenn þekkja, auk lang flestra þeirra semsækja bæinn heim. Fyrirtækið var stofnað árið 1989 oger veitingahúsið Greifinn nú rekið í tveimur veitinga-stöðum, Greifanum sjálfum við Glerárgötu og Rósa-garðinum á Fosshótel KEA við Hafnarstræti. Auk þess

sér Greifinn um rekstur kaffihússins Café Amour viðRáðhústorg.Á Greifanum eru að meðaltali um 50 manns á launaskráí um 30 stöðugildum og á Fosshótel KEA eru starfs-mennirnir 20-50, þar sem fjöldi starfsmanna fer eftirárstíðum.

22 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Litið inn á vinnustaði

Helga Einarsdóttir hefur starfað á Greif-anum í þrjú ár, reyndar með hléum. Nústarfar hún sem þjónn.

„Mér líkar vel að vinna á Greifanum ogvinn alla virka daga og aðra hverja helgi.Það er margt gott hér á Greifanum, ég eránægð með launin og starfsandinn er góð-ur svo eitthvað sé nefnt. Samt sem áður eralltaf eitthvað sem betur mætti fara. Starfs-mannaðstaðan mætti vera betri og þaðmætti kannski hrósa okkur meira, en þaðer reyndar verið að vinna í því. Nú er okk-ur hrósað mikið meira en áður og er þaðhið besta mál,” segir Helga.

„Góðurstarfsandi“

Haraldur Pétursson hefur starfað semkokkur á Greifanum í aðeins einn oghálfan mánuð. Hann lætur vel af tímasínum þar.

„Það er mjög fínt að vinna hjá Greifan-um. Hér er góð vinnuaðstaða og mjög góð-ur vinnuandi. Ég er að vinna ansi mikið,opna þá daga sem ég er að vinna og vinnfram yfir kvöldösina, auk þess sem ég vinnaðra hverja helgi. Hér er margt gott og mérdettur í raun ekkert sérstakt í hug semnauðsynlega þarf að bæta. Auðvitað villmaður alltaf betri laun, en ég held að þaðvilji maður alltaf, hvort sem laun mannseru há eða ekki, segir Haraldur.

Rótgróinn Greifi

„Margt gottá

Greifanum“

Page 23: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

Litið inn á vinnustaði

„Líf og fjör í Álfaborg“Það var líf fjör í Leikskólanum Álfaborg á Svalbarðs-strönd þegar tíðindamaður Einingar-Iðjublaðsins leit þarinn einn morguninn ekki alls fyrir löngu. Leikskólinn ertil húsa í gamla grunnskólanum á Svalbarðseyri og þareru að jafnaði um 25 börn frá tveggja ára aldri. Þegar síð-an grunnskólaaldri er náð er stutt fyrir krakkana að faraþví grunnskólinn sendur hinu megin við planið. En látummyndirnar tala sínu máli.

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 23

Þessi hópur var að leira með Helgu Þórsdóttur og gáfu sér varla tíma tilað líta upp.

Stillt upp fyrir myndatöku: Eva Margrét, Bjarki Þór, Fransiska Dóra,Kristófer og Sóley.Guðný Björnsdóttir hjálpar krökkunum að teikna og lita.

Page 24: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

24 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Litið inn á vinnustaði

Þegar keyrt er inn í Akureyrarbæ, að norðan, blasirvið stórt hús á hægri hönd rétt við bæjarmörkin. Þarvar Sjöfn lengi til húsa og er enn, en nú ásamt fyrr-verandi keppinauti sínum í málningariðnaðinum,Hörpu og hreinlætisvöruframleiðandanum Mjöll.Harpa og Sjöfn sameinuðu krafta sína í byrjun sept-ember síðastliðnum og hlaut nýja fyrirtækið nafnið

Harpa-Sjöfn. Tveimur mánuðum áður höfðu hrein-lætisvörudeildir Sjafnar, Sámar hf. í Kópavogi ogMjallar ehf. í Reykjavík einnig sameinast undirmerkjum Mjallar. Fyrirtækið gengur því undir þvíþokkafulla kvenmannsnafni Harpa Sjöfn Mjöll. Viðlitum inn á vinnustaðinn og ræddum við starfs-menn.

Elva Rósa Helgadóttir hefur starfað íhreinlætisvörudeild Mjallar í rúmt ár ogkann ágætlega við sig.

„Það besta við að vinna hér er vinnu-andinn og að það er frí á milli jóla og ný-ars,” segir Elva Rósa og hlær. „Það ersamt ýmislegt sem má betur fara. Vinnu-aðstaðan hér er ekki nógu góð. Nú erumvið einnig að vinna ansi lengi, frá klukk-an hálf átta á morgnana til hálf sjö á kvöld-in og það er búið að vera þannig síðanmaí.”

„Svolítið streð á köflum“

Jóhannes Jónsson hefur starfað í hrein-lætisvörudeild Mjallar síðan í maí, envar áður hjá Kjötiðnaðarstöð KEA í ell-efu og hálft ár.

„Ég vinn við hitt og þetta, en er samtmest í átöppun. Mér l íkar mjög velhérna, það er mjög góður vinnuandi,þó það sé svolítið streð á köflum. Éger sammála því að það mætti bætavinnuaðstöðuna, auk þess sem mérfinnst að launin mættu vera betri mið-að við það sem maður leggur á sig,“segir Jóhannes.

Mikil sameiningarhrina í málningar- oghreinlætisiðnaðinum

„Fríið millijóla og nýárs

best“

Page 25: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 25

„Heilbrigð sál í hraustum líkama,“ hljóm-ar kunnuglegt spakmæli. Til að auðveldafélagsmönnum Einingar-Iðju að lifa sam-kvæmt þessum orðum hefur verið samiðvið tvo aðila um afslátt í líkamsrækt ogsund.

Líkamsræktarstöðin Bjarg við Bugðu-síðu á Akureyri býður öllum félagsmönn-um Einingar-Iðju verulegan afslátt af verði6 mánaða korta og 12 mánaða korta í lík-amsræktina. Þannig kosta 12 mánaða kort26.000 krónur fyrir Einingar-Iðjufélaga enalmennt verð er 37.400 krónur. Þá kostar 6

mánaða kort 16.000 krónur fyrir Einingar-Iðjufélaga meðan almennt verð er 25.900krónur.

Sund á ÞelamörkSund er einhver hollasta líkamsrækt sem

hægt er að stunda og nú býður sundlauginá Þelamörk félagsmönnum í Einingu-Iðju25% afslátt af verði 10 tíma korta. Kortinsem kosta að jafnaði 2000 krónur kostaþannig 1.500 krónur fyrir Einingar-Iðjufé-laga. Fólk er beðið að athuga að hafa fé-lagsskírteinin meðferðis þegar kortin erukeypt.

• Þar sem vinna 10 manns eða fleiri skulu starfa öryggistrúnaðarmaður og öryggisvörður.

• Þar sem vinna 50 manns eða fleiri skal starfaöryggisnefnd.

• Þar sem starfa færri en 10 manns annastatvinnurekandi eða verkstjóri vinnuverndarmálí samstarfi við starfsmenn og félagslegan trúnaðarmann.

Öryggistrúnaðarmaður!Öryggisvörður!

Trúnaðarmaður stéttarfélags!

Verkstjóri! Stjórnandi!

VINNUEFTIRLITIÐBíldshöfða 16, 110 ReykjavíkSími 550 4600 - Fax 550 [email protected] - www.ver.is

Til að auðvelda ykkur ábyrgðarmikilvinnuverndarstörf

heldur Vinnueftirlitið

NÁMSKEIÐ

um aðbúnað, hollustuhætti og öryggiá vinnustað.

Leitið upplýsinga um næsta námskeið.

Starfsmaður!

Gleymdist að kjósa öryggistrúnaðarmann

á þínum vinnustað?

Sund er góð líkamsrækt fyrir fólk á öllumaldri.

Afsláttur í líkamsrækt og sund

Page 26: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

26 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Árlega fær fjöldi fólks greiðslur úrsjúkrasjóði félagsins, svo sem sjúkra-dagpeninga, endurgreiðslu á ýmsumkostnaði og fleira. Af gefnu tilefni skalhér áréttað hvernig fara skal með þess-ar greiðslur þegar kemur að skattfram-talinu.Fyrst er til að taka að frá og með kom-andi áramótum verða sjúkradagpeningarstaðgreiðsluskyldir. Þeir hafa raunar ver-

ið skattskyldir til þessa en skatturinn hef-ur verið greiddur eftirá. Nú verður stað-greiðslan dregin af við útborgun og einaleiðin til að komast hjá því er að fólkskili skattkortum sínum inn á skrifstofuEiningar-Iðju núna fyrir áramótin.

Endurgreiðsla kostnaðar ekki skattskyld.Hvað varðar aðrar greiðslur úr sjúkra-sjóði þá eru þær framtalsskyldar en hins

vegar ekki skattskyldar ef um er að ræðaendurgreiðslu á útlögðum kostnaði. Þettaá t.d. við um greiðslur fyrir sjúkraþjálf-un, sjúkranudd, krabbameinsleit o.fl.Fólk fær senda launamiða frá félaginuvegna þessara greiðslna en skal gæta þessað færa þær ekki í launareitinn á skatt-framtalinu heldur í reit 2.9.C, miðað viðuppsetningu síðasta skattframtals. Þarmeð eru þær ekki taldar fólki til tekna.

Greiðslur úr sjúkrasjóði og skattframtalið

Getraun Einingar-Iðju blaðsins

Krossaðu við rétt svar og merktu þérseðilinn hér að ofan. Klipptu hann síð-an út og sendu til okkar í Skipagötuna.(Þeir sem ekki vilja klippa blaðið geta

sent svar á lausum seðli).Skilafrestur er til 19. desember nk.

Bent er á að svarið má finna einhvers-staðar í blaðinu.

Utanáskriftin er :

Eining-Iðja– GetraunSkipagötu 14600 Akureyri

Glæsileg verðlaun eru í boði:

1. Vika að eigin vali í orlofshúsi félags-ins sumarið 2001.

2. Matarúttekt hjá Nettó að verðmæti kr.10.000.

3. Matarúttekt hjá Nettó að verðmæti kr.5.000.

Dregið verður úr réttum lausnumfimmtudaginn 20. desember nk.

Á árinu var opnuð ný heimasíða Einingar-Iðju á Internetinu. Slóðin á hanaer www.eining-idja.is en spurt er: Hvenær var síðan formlega opnuð?

A ( ) 12. janúar 2001B ( ) Í júní síðastliðnumC ( ) Um miðjan október síðastliðinn

Nafn:

Heimilisfang:

Póstnúmer:

Sími:

Page 27: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 27

Þótt samskipti launafólks og atvinnurek-enda gangi sem betur fer án árekstra íflestum tilfellum er því samt ekki alltafsvo farið. Upp geta komið ágreiningsmálaf ýmsu tagi og mál þar sem launþeginnþarf að leita réttar síns fyrir dómstólum.En jafnvel þó svo að mál fari ekki svolangt þurfa stéttarfélög oft á lögfræði-legri aðstoð að halda. Þegar þannig hátt-ar til hjá Einingu-Iðju er Inga Þöll Þór-gnýsdóttir kölluð til en hún er lögfræð-ingur félagsins.

Inga Þöll útskrifaðist frá lagadeild Há-skóla Íslands árið 1991 og var ári síðarráðin í starf lögfræðings stéttarfélaganna áAkureyri. Árið 1994 opnaði hún eigin lög-fræðistofu og gerði í framhaldi af því þjón-ustusamning við stéttarfélögin. Hún sinnirþví áfram þjónustu við þau samhliða öðr-um lögmannsstörfum.

Oft flókin mál„Þau mál sem algengast er að komi inn á

mitt borð sem lögfræðings Einingar-Iðjusnúa að vangreiddum launum, uppsögn-um, ólögmætum riftunum og því að lýsalaunakröfum í þrotabú. Einnig má nefnaágreining um veikindarétt, orlof o.fl.,“segir Inga Þöll, aðspurð um helstu störf sínfyrir félagið. Þá bætir hún við að ekki séalltaf um einhver deilumál að ræða heldurgeti félagið einnig leitað til hennar varð-andi ráðgjöf og upplýsingar um ýmis lög-fræðileg málefni.

Vinnuréttur er að sögn Ingu Þallar talinnnokkuð fólkinn innan lögfræðinnar og málsem að honum snúa oft erfið viðgangs.„Það sem einkum getur flækt svona mál erað þau snúast oft um samskipti á millivinnuveitenda og launþega þar sem gjarn-

an eru aðeins tveir til frásagnar og þvískortur á haldbærum sönnunum. Það ersíðan þegar ágreiningur kemur upp umeinhver atvik sem gjarnan leiðir til þess aðmál fer fyrir dómstóla. Því fer þó fjarri aðöll mál sem fara af stað gangi svo langt.Algengara er sem betur fer að þau leysistmeð sátt á milli aðila áður en til meðferðarfyrir dómstólum kemur. Ef farið er í dóms-mál er það ferill sem tekur langan tíma,a.m.k. einhverja mánuði.“

Mikilvægt að gera ráðningarsamn-ing

Ef nefna á eitthvert eitt atriði sem leitt

gæti til færri álitamála segir Inga Þöll aðskriflegur ráðningarsamningur sé nokkuðsem leggja þurfi meiri áherslu á. „Það erlagaskylda að staðfesta ráðningarkjörskriflega eftir 2ja mánaða starf og sé slíkursamningur til staðar er hægt að komast hjáýmsum vandamálum síðar meir þótt hannleysi ekki allan vanda einn og sér. Mérfinnst sérstaklega vert að benda atvinnu-rekendum á þetta atriði því það getur kom-ið sér enn verr fyrir þá ef ágreiningsmálkoma upp og ráðningarsamningur hefurekki verið gerður.“ Hún segir nokkuð mis-jafnt hversu vel sé staðið að þessum mál-um en á litlum vinnustöðum sé oft mis-brestur á að gengið sé frá ráðningarsamn-ingi og einnig þar sem ungt fólk er uppi-staða vinnuaflsins og gjarnan mikil hreyf-ing á fólki.

Þá nefnir Inga Þöll að hlutverk trúnaðar-manna á vinnustað sé mikilvægt og miklumáli skipti að hann sé virkur. „Trúnaðar-maður er mikilvægur hlekkur í samstarfilaunaþega og stéttarfélags og hann þarf aðvera vel meðvitaður um réttindi sín ogskyldur á vinnustaðnum. Þá vil ég hvetjafólk til að hafa strax samband við trúnað-armanninn eða stéttarfélagið ef því finnsteitthvað athugavert því það getur fyrirgertrétti sínum með því að aðhafast ekkert,“segir Inga Þöll að lokum.

Mál sem snúa að vinnurétti oft erfið viðfangs-segir Inga Þöll Þórgnýsdóttir, lögfræðingur Einingar-Iðju

Inga Þöll Þórgnýsdóttir sinnir lögfræðiþjónustu fyrir stéttarfélögin á Akureyri.

Skriflegur ráðningarsamningur er lagaskylda og nokkuð sem menn þurfa að leggja meiri rækt við, segirInga Þöll.

Page 28: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

28 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Á stofnfundi matvæladeildar Einingar-Iðju tók Anna Júlíusdóttir við for-mennsku í deildinni. Hún starfar hjá Út-gerðarfélagi Akureyringa og hefur m.a.verið trúnaðarmaður á vinnustaðnum íþrjú ár. Hún segist lengi hafa haft mik-inn áhuga á félagsstörfum og því ákveðiðað gefa kost á sér til formennsku í deild-inni.

„Ég held reyndar að þetta hafi veriðágætur tími til að taka þetta að sér. Það ernokkuð í að kjarasamningar verði lausir enundirbúningi þeirra fylgir jafnan nokkurt atsem er þá ekki til staðar núna. Þetta er þvíheldur rólegri tími þannig að ég hef fengiðbetra tóm til að setja mig inn í málin. Þágefst núna kjörið tækifæri til að vinna íinnri málefnum deildarinnar enda eru þaðeinmitt þau mál sem við í stjórninni höfumeinbeitt okkur að. Við höfum m.a. verið að-leggja niður fyrir okkur hvað það er semvið viljum bjóða félagsmönnum upp á ínámskeiðahaldi og fræðslumálum,“ segirAnna. Af því sem er framundan í þeim efn-um nefnir hún t.d. námskeið fyrir nýbúa,

kynningu á meðferð matvæla og námskeiðfyrir alla trúnaðarmenn á svæðinu.

Annasamt en skemmtilegtAð sögn Önnu er þó nokkur vinna sam-

fara því að gegna formennsku í deildinniog ýmis mál sem taka þarf á. Sér hafi hinsvegar þótt þetta skemmtilegur tími og afargefandi. „Þjónustufulltrúi deildarinnar,Matthildur Sigurjónsdóttir, hefur veriðmér mjög hjálpleg og gott að leita til henn-ar, eins og reyndar allra starfsmanna fé-lagsins. Það hefur verið margt nýtt að læraog maður er svo sannarlega reynslunni rík-ari eftir þennan tíma,“ segir Anna. For-mennskunni fylgja einnig ýmis önnur trún-aðarstörf fyrir félagið og á þessu ári nefnirAnna t.d. þátttöku í ársfundi Starfsgreina-sambandsins og þingi Alþýðusambands

Norðurlands. Það er því í ýmis horn aðlíta.

Fiskvinnslan best borguðSem fyrr segir starfar hún hjá ÚA og

lætur vel af vinnunni. „Við höfum tekiðþátt í miklum breytingum á vinnslunni ogaukinni tæknivæðingu á ýmsum sviðum.Við gerðum sérstakan kjarasamning viðfélagið sem hefur skilað okkur góðum ár-angri þegar horft er á launin. Þessu hefurhins vegar fylgt verulega aukið vinnuálagog fólki hefur fækkað. En heilt yfir held égað megi segja að fiskvinnslan sé það starfinnan deildarinnar sem er að skila bestumlaunum í dag og eitt af verkefnum okkar erm.a. að ná sambærilegum árangri fyriraðra starfshópa,“ segir Anna Júlíusdóttirað lokum.

Eins og fram kom í síðasta félagsblaðivoru fyrr á þessu ári gerðar nokkrar breyt-ingar á deildaskiptingu félagsins. Deild-um var fækkað um eina og einstakarstarfsgreinar færðust til innan deilda.Meðal þeirra deilda sem þarna urðu tilvar matvæladeild. Inn í hana runnu þeirsem áður tilheyrðu fiskvinnsludeild ásamtöðrum starfshópum í matvælaiðnaði, m.a.starfsfólk í kjötiðnaði, mjólkuriðnaði,

bjórgerð o.fl. Eftir þessar breytingar ermatvæladeildin stærsta deildin innan Ein-ingar-Iðju með um 1.500 félagsmenn.Þetta er líka eðlilegt þegar horft er til þesshvað matvælaiðnaður skipar stóran sess íatvinnulífi Eyjafjarðarsvæðisins. Nefnamá að við fjörðinn eru tvö af stærstu fisk-vinnslufyrirtækjum landsins með höfuð-stöðvar sínar, þ.e. ÚA og Samherji, ogbæði með verulega landvinnslu. Starfs-

fólk við fiskvinnslu er líka stærsti hópur-inn innan matvæladeildarinnar. Þá erEyjafjörðurinn sterkt landbúnaðarhéraðog öflug fyrirtæki annast úrvinnslu land-búnaðarafurða. Þegar við bætast smærrifyrirtæki í ýmsum greinum matvælaiðn-aðar er ekki að undra þótt hann sé stund-um nefndur stóriðja Eyjafjarðarsvæðis-ins.

Á stofnfundi matvæladeildar Einingar-Iðju tók Anna Júlíusdóttir við formennsku í deildinni.

Matvælaiðnaður skipar stóran sess í atvinnulífiEyjafjarðarsvæðisins.

Kynning á matvæladeild

Reynslunni ríkari-segir Anna Júlíusdóttir, formaður matvæladeildar

Stærsta deild félagsins

Page 29: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 29

Stefán Aðalsteinsson er bílstjóri hjáKjarnafæði og hefur starfað sem slíkur írétt tæplega níu ár. Hann hefur því orðiðvitni að miklum uppgangi fyrirtækisinssem er ævintýri líkastur.

Stefán starfar við það að keyra út vörur íverslanir og mötuneyti bæjarins og stund-um er vinnudagurinn æði langur. „Ég byrjaklukkan sjö á morgnana og vinn þar til allter búið. Það er svolítið misjafnt hvenærþað er. Stundum er það um fimmleytið ená sumum dögum er ég að vinna allt fram til

sjö.” Eins og fyrr segir er Stefán búinn aðvera lengi hjá Kjarnafæði. „Í janúar er égbúinn að vinna hér í níu ár, en þar áður varég bílstjóri m.a. hjá Möl og Sandi ogBrauðgerðinni.

Byrjaði í bílskúrKjarnafæði er eins og flestir vita kjöt-

vinnsla, en á haustdögum hóf fyrirtækiðsamstarf við Útgerðarfélag Akureyringaum framleiðslu á fiskvörum undir merkjumNorðurfisks. Samstarfið hefur gengið mjögvel til þessa. En Stefán man þegar dagarvoru aðrir. „Fyrirtækið hefur verið á hraðriuppleið og umsvifin hafa verið að aukastmjög mikið. Sem dæmi um það má nefnaað þetta byrjaði allt saman í bílskúr, en ernú komið tvö stór húsnæði. Kjötvinnslan eröll á Svalbarðseyri, en pökkunin og lager-inn hér á Akureyri. Nú eru um 70-80 starfs-menn hjá fyrirtækinu,” segir Stefán.

Stefán segir að matvælafyrirtæki og kjöt-vinnslufyrirtæki eigi vel heima á Akureyriog í Eyjafirðinum, sem sé jú mikið mat-vælaframleiðslusvæði. „Við sjáum að þessikjötvinnslufyrirtæki eru að flytja suðurvörur í brettavís, þannig að við hljótum aðvera þokkalega staddir hér, þegar upp-gangurinn er slíkur og raun ber vitni.”

Skemmtilegast að hitta fólkiðStefán kann vel við sig í starfi sínu og

segir það skemmtilegasta við það séu

mannlegu samskiptin. „Maður hittir fulltaf fólki og umgengst marga. Maður þekkirorðið einhverja í langflestum búðum. Erf-iðast er hins vegar þegar maður lendir ásíðasta snúningi með vörurnar, sem geriststundum. Annars lendi ég sjaldan, eða nán-ast aldrei, í einhverjum hremmingum aðráði.”

Og að lokum ein saga í léttari dúrnum.„Það var hérna einn daginn að það komflutningabíll og bílstjórinn rak hurðina að-eins utan í bílinn hjá mér. Þetta gerðist ámiðvikudegi. Á föstudegi var svo keyrtinn í sömu hliðina á bílnum þannig að tölu-vert sá á. Svo kom sami bílstjóri á samaflutningabíl eftir helgina og krossbrá þegarhann sá að það vantaði næstum hliðina ábílinn og spurði hvort þetta væri tjónið eft-ir sig. Honum létti því gífurlega þegarhann heyrði alla söguna,” segir Stefán aðlokum.

Á léttu nótunumHinn fullkomni brandari?

Einu sinni hittust hinn fullkomni maðurog hin fullkomna kona. Úr því varð hið full-komna hjónaband og líf þeirra var fullkom-ið. Eina snjóþunga jólanótt voru þau að akafullkomna bílnum sínum þegar þau tóku eft-ir einhverjum við veginn og þar sem þauvoru fullkomin stoppuðu þau auðvitað. Þarstóð jólasveinninn með gjafirnar sínar og bil-aðan vagn. Þau vildu ekki að börnin yrðufyrir vonbrigðum svo þau tóku Sveinka upp íog fóru að afhenda gjafir en svo óheppilegavildi til að þau lentu í árekstri og aðeins eittþeirra komst af.

Hvert þeirra var það?Fullkomna konan auðvitað. Hún var nefni-

lega sú eina þeirra sem var til í raunveruleik-anum því jólasveinninn er náttúrlega ekki tilog allir vita að það er ekki til fullkominnkarlmaður.

(Konur, hættið að lesa hér, brandarinn erbúinn.)

Karlar: Sé hvorki til fullkominn karlmað-ur né jólasveinn þá hlýtur konan að hafa ekiðog það útskýrir hvers vegna það varð slys.

Ef þú ert kona og ert ennþá að lesa þráttfyrir að brandarinn sé búinn, þá sýnir þaðbara að konur hlusta aldrei...

Glefsur úr minningargreinum.Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann

og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til aðkveðja þennan heim.

Orð þessi eru skrifuð til að flytja Sveini(líkinu) kveðju og þakkir frá tengdafólkihans og ekki síður frá tengdadóttur hans, þóttnú nálgist 20. árið frá fráfalli hennar.

Helga lést svo þennan dag kl. 4 en húnhafði ætlað að eyða deginum í annað.

Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei íkvenfélag.

Drottinn minn gefðu dánum ró og hinumlíkin sem lifa.

Gönguferðin þeirra varð styttri en mennvonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennarbak við stein og sló hana fljótt til jarðar.

Hann var sannur Íslendingur og dó á 17.júní.

Hann skrapp úr vinnu til að fara í þrek-prófun í Hjartavernd en kom þaðan liðið lík.

Á þessum fjölbreytta lífsferli sínum kynnt-ist Guðjón mörgum mönnum af ýmsum þjóð-ernum, þ.á.m. Indíánum og Kínverjum. Hannlærði tungumál þeirra að meira eða minnaleyti, einkum þó ensku og Norðurlandamál-in.

“Ég byrja klukkan sjö á morgnana og vinn þar til allt er búið,“ segir Stefán Aðalsteinsson, bílstjóri hjáKjarnafæði.

Kynning á matvæladeild

Ævintýralegur uppgangur

Page 30: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

30 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Að undanförnu hafa ýmis námskeið verið haldin á vegum Ein-ingar-Iðju og fleiri eru í undirbúningi. Eftir áramót er t.d. ádagskrá að halda trúnaðarmannanámskeið 2 og námskeið fyrirræstingafólk. Auk námskeiða sem tengjast beint starfinu erueinnig haldin ýmis tómstundanámskeið og voru meðfylgjandimyndir teknar á þremur námskeiðum sem haldin voru í nóvem-ber sl.

Gerð þrívíddarmynda

Skrautskrift

Mörg námskeið og vel sótt

Mikill áhugi reyndist vera á námskeiði í gerð þrívíddarmynda.

Ekki þarf flókinn útbúnað við gerð þrívíddarmyndanna en útkoman erglæsileg.

Nú er eins gott að vanda sig.

Námeið í skrautskrift eru alltaf vinsæl og fullyrti kennarinn að hægt væriað kenna hverjum sem er skrautskrift, sama hversu illa viðkomandi skrif-ar alla jafna.

Sigurður Sveinn Ingólfsson fær tilsögn í skrautskriftinni.

Matráðskonur voru á námskeiði í nóvember. Ljósmyndari Einingar-Iðjublaðs-ins leit við eitt kvöldið og smellti þessari mynd af hópnum.

Page 31: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

Á undanförnum árum hefur sífellt beturorðið ljóst hvað símenntun er mikilvægurþáttur í öllum starfsgreinum. Afar mis-munandi er hvort fyrirtæki hafa áttað sigá þessari staðreynd og þar meðhversu dugleg þau eru að auð-velda starfsfólki sínu að sinnaþessum þætti. ÚtgerðarfélagAkureyringa hefur tekið afarmyndarlega á símenntunarmál-um og komið á fót einskonar sí-menntunarskóla, ÚA-skólan-um. Þetta gerir fyrirtækið í sam-starfi við SímenntunarmiðstöðEyjafjarðar og verkalýðsfélög-in á starfssvæði fyrirtækisins,þ.m.t. Einingu-Iðju.

Starfsemi ÚA-skólans á Akur-eyri hófst þann 8. október en einnig erboðið upp á námskeið á öðrum stöðumenda er ÚA með starfsemi víða um land ígegnum dótturfélög sín. „Það er boðið uppá nokkur námskeið á hverjum stað en nám-skeiðin eru tvenns konar. Annars vegarsvokölluð persónuleg námskeið sem hafaþað að meginmarkmiði að efla starfsmenní starfi í víðtækum skilningi. Dæmi um

þetta eru námskeið í tölvunotkun ogskyndihjálparnámskeið. Hins vegar erboðið upp á tómstundanámskeið,“ segirHallgrímur Gíslason, launafulltrúi ÚA,

sem hefur haft umsjón með starfi skólans.Raunar var fyrsti vísir að ÚA-skólanumnámskeiðið Viskubrunnur sem haldið varsl. vor og sagt var frá í síðasta tölublaðiEiningar-Iðjublaðsins.

Í flestum tilfellum eru námskeiðin hald-in eftir klukkan fimm á daginn, algengaster að kennslutíminn sé um þrír tímar ísenn. Sem dæmi eru tölvunámskeiðin tutt-

ugu og fjórir tímar og þá er kennt í áttaskipti. Útgerðarfélagið greiðir 60% kostn-aðar við persónulegu námskeiðin og fólk ájafnvel kost á því að fá þann kostnað sem

eftir stendur greiddan af viðkom-andi stéttarfélagi. Varðandi tóm-stundanámskeiðin greiðir ÚAhelming kostnaðar á móti við-komandi starfsmanni og þar erekki verið að tala um háar tölur.

Tölvunámið vinsælast„Við erum afar ánægð með

hvernig þetta hefur farið af staðog virkilega ánægjulegt hversuvel verkalýðsfélögin hafa tekið íað koma að þessu,” segir Hall-grímur. Mest aðsókn hefur að

hans sögn verið að tölvunámskeiðunumsem á Akureyri eru haldin í samstarfi viðTölvufræðsluna. Af öðrum námskeiðummá nefna samskiptatækni, námskeið umfæðuval og heilsufar og tveggja kvöldanámskeið í matreiðslu á gæs. Námskeiðum jólakonfektgerð var einnig í boði semog körfugerð. Af þessari upptalningu másjá að fjölbreytnin er mikil.

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 31

ÚA-skólinn fer vel af stað

Strandgötu 3600 Akureyri

Sími 460 6464

Hafnarstræti 92

Sími 462 1818

Fyrsti vísir að ÚA-skólanum var námskeiðið Viskubrunnur sem haldið var sl.vor en þá var þessi mynd tekin.

Page 32: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23
Page 33: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

www.egils.is

SjómannafélagEyjafjarðar

www.husasmidjan.is

FISKMIÐLUN NORÐURLANDS HF.NORFISH [email protected]

Sandblástur & Málmhúðun

Stál heild sala

Zinkhúðun

Stálsmíði

www.sandblastur.is

www.kjoris.is

Löggiltir endurskoðendurRáðhústorgi 3600 Akureyri

www.eflingehf.is

Furuvöllum 13 • 600 Akureyri • Sími: 460 9900

AKUREYRIVÉLA- & STÁLSMIÐJAN

Höfðabakka 9 • Reykjavík • Sími: 563 8000www.marel.is

Nesi . Fnjóskadal601 AkureyriKt. 410394-2439 . Vsk. [email protected]

www.rumfatalagerinn.is

Skeljungur hf.www.shell.is

HYRNA ehfBYGGINGAVERKTAKI · TRÉSMIÐJADalsbraut 1 · 600 Akureyri · Sími 461 2603 · Fax 461 2604BYGGINGAVERKTAKI · TRÉSMIÐJADalsbraut 1 · 600 Akureyri · Sími 461 2603 · Fax 461 2604

Fiskmarkaður Dalvíkur ehf.Sími 466 1140 • Fax 466 3114

[email protected]

Bestu óskir um gleðileg jól

og farsælt komandi ár

EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ 33

Page 34: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23

34 EINING-IÐJA FÉLAGSBLAÐ

Útfararstofa Íslands • Suðurhlíð 35 • Fossvogiwww.utforin.is

• Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfararí samráði við prest og aðstandendur.

• Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús.• Koma á sambandi við þann prest sem aðstandendur óska eftir.• Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.• Búa um lík hins látna í kistu og snyrta ef með þarf.• Fara með tilkynningu í fjölmiðla.• Stað og stund fyrir kistulagningu og útför.• Legstað í kirkjugarði.• Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara

og /eða annað listafólk.• Kistuskreytingu og fána.• Blóm og kransa.• Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum.• Dánarvottorð og líkbrennsluheimild.• Duftker ef líkbrennsla á sér stað.• Sal fyrir erfidrykkju og gestabók ef óskað er.• Kross og skilti á leiði.• Legstein.• Flutning á kistu út á land eða utan af landi.• Flutning á kistu til landsins og frá landinu.

ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS SÉR UM OG ÚTVEGAR:

Sími 581 3300 • Allan sólarhringinn

Því ekki að drífa sig á Illugastaði?Það er nefnilega ekkert síðra að vera í góðu sumarhúsi í frábæru

umhverfi þó utan hásumartímans sé.

Hringdu til Illugastaða í síma 462 6199 og aflaðu frekari upplýsinga

ásp

ren

t/p

ob

eh

f.

Orlofsbyggðin Illugastaðir er starfrækt allt áriðOrlofsbyggðin Illugastaðir er starfrækt allt áriðByggðin er aðeins í 45 km fjarlægð frá Akureyri. Umsjónarmaður

sér um útleiguna frá 15. september til 31. maí.Á Illugastöðum er auk sumarhúsanna sjálfra góð aðstaða fyrirráðstefnur fyrir allt að 90 manns, minni fundi og námskeið.

Yfir veturinn er gufubað og heitur pottur í notkun.

[email protected]

Félag há[email protected]

Óseyri 1a • 603 AkureyriSími: 461-2977

Samiðn

www.velaver.is

www.no i . i s

Glerártorgiwww.fih.is

Kartöflusalan ehf

www.eyjafjordur.is/afe

Page 35: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23
Page 36: 3. tölublað • 3. árgangur • Desember 2001 - ein.is · Gist er á Park Pupp hótelinu og er þar m.a. góð heilsuræktarstöð. Þetta er gott 4 ... miðað við gengi 23