Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. ráðist var í tvær stórar fjárfestingar...

53
Ársskýrsla 2011 FRAMTAKSS JÓÐUR Í S LANDS

Upload: others

Post on 22-Mar-2021

0 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Page 1: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Ársskýrsla 2011

FRAMTAKSSJÓÐURÍSLANDS

Page 2: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 1

Efnisyfirlit

Ávarp stjórnarformanns 2

Stjórn FSÍ 5

Fulltrúar FSÍ í stjórnum fyrirtækja 6

Viðburðaríkt ár að baki 12

Eignarhlutir FSÍ í félögum 13

Advania 14

Icelandair Group 18

Icelandic Group 22

N1 26

Plastprent 30

Promens 32

Vodafone 36

Ársreikningur 2011 40

Áritun óháðs endurskoðanda 42

Skýrsla stjórnar 43

Rekstrarreikningur 44

Efnahagsreikningur 45

Sjóðstreymi 46

Skýringar 47

Ársskýrsla 2011

Page 3: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S2

Helstu verkefni ársinsEitt mest krefjandi verkefni ársins var sala á hluta af starfsemi Icelandic, annars vegar rekstrinum í Frakklandi og Þýskalandi og hins vegar rekstr-inum í Bandaríkjunum og Kína. Eftir stendur félagið mjög sterkt með um 87 milljarða veltu á ári, um 1600 starfsmenn og 48% eiginfjárhlutfall. Ýmis tækifæri eru til vaxtar og aukinnar arðsemi sem unnið verður að á næstu misserum og árum. Einnig var lokið sölu Húsasmiðjunnar á árinu, en rekstur félagsins hafði verið erfiður. Bæði þessi félög voru inni í Vestia sem FSÍ keypti af Lands-bankanum seint á árinu 2010.

Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1. Samningur var einnig gerður við Arion banka um kaup á 39% við-bótarhlut í N1 með fyrirvara um samþykki sam-keppniseftirlitsins. Ekki hefur verið gengið frá þeim kaupum þegar þetta er ritað.

Framtakssjóðurinn seldi í byrjun nóvember 10% hlutafjár í Icelandair Group, alls 500 milljónir hluta fyrir um 2,7 milljarða króna og rann andvirði sölunnar beint til lífeyrissjóða og annarra eigenda Framtakssjóðsins í samræmi við skilmála sjóðsins.

Eftir söluna á Framtakssjóður Íslands því um 19% hlutafjár í Icelandair Group og fjárfestingin hefur skilað góðri arðsemi.

Afkoma ársinsAfkoma af starfsemi sjóðsins á árinu 2011 var mjög viðunandi. Hagnaður á árinu 2011 nam 2.343 milljónum króna og arðsemi eigin fjár var um 13%. Samkvæmt efnahagsreikningi nema heildareignir félagsins 28.152 milljónum króna og bókfært eigið fé er 27.547 milljónir og eigin-fjárhlutfall um 98%. Heildareignir í ársbyrjun námu 5,6 milljörðum króna. Færa má rök fyrir því að fjárhagsstaða sjóðsins sé mun sterkari en bókfært eigið fé gefur til kynna. Sjóðurinn hefur, í samvinnu við endurskoðendur félagsins, lagt mat á áætlað gangvirði þeirra eignarhluta sem fjárfest hefur verið í og er metið að það sé ekki undir 39,3 milljörðum króna. Áætlað virði miðast við niðurstöður virðisrýrnunarprófa undirliggjandi eigna.

Auknum eignum fylgja aukin umsvif og hefur starfsemi sjóðsins vaxið talsvert milli ára.

ÁVARP STJÓRNARFORMANNS

Framtakssjóður Íslands slhf. (samlagshlutafélag) var stofnaður í desember árið 2009. Árið 2011 var

því annað heila árið í rekstri sjóðsins. Stofnendur voru sextán lífeyrissjóðir og upphafleg hlutafjár-

loforð námu 30 milljörðum króna, en þau voru svo aukin í 54 milljarða króna sem er núverandi fjár-

festingageta sjóðsins. Landsbankinn kom síðar inn sem stór hluthafi í tengslum við kaup sjóðsins á

Vestia sem var eignarhaldsfélag nokkurra félaga í eigu Landsbankans. Í lok árs 2011 hafði sjóðurinn

fjárfest fyrir um 27,2 milljarða króna í samtals 8 fyrirtækjum. Sjóðurinn hafði því fjárfest fyrir um 50%

af fjárfestingagetu sinni.

Hlutverk Framtakssjóðsins var í upphafi skilgreint þannig að hann tæki þátt í því upp-

byggingar- og umbreytingaferli sem fyrirsjáanlegt var að þyrfti að eiga sér stað í

kjölfar bankahrunsins og vera þátttakandi í endurreisn íslensks atvinnulífs. Ekki síður

er mikilvægt að honum var ætlað að skila góðri ávöxtun til eigenda sinna. Sjóðurinn

skuldsetur sig ekki heldur innkallar hlutafé hjá eigendum vegna þeirra fjárfestinga sem

ráðist er í. Jafnframt er söluverði fyrirtækja í eigu sjóðsins skilað til eigenda að lokinni

sölu. Fram til þessa hefur sjóðurinn átt umtalsverðan þátt í endurfjármögnun, endur-

skipulagningu og breyttu eignarhaldi nokkurra lykilfyrirtækja sem voru að stærstum

hluta í eigu banka og hefur því sannarlega sinnt því hlutverki sem honum var ætlað.

Sjóðurinn leggur áherslu á að vera virkur áhrifafjárfestir með umtalsverðan eignarhlut

í þeim félögum sem fjárfest er í.

Þorkell Sigurlaugsson

Page 4: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 3

Störf stjórnar

Á aðalfundi árið 2011 voru kjörin í stjórn, Auður Guðmundsdóttir, Baldur Vilhjálmsson, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, Hjörleifur Pálsson, Jón Steindór Valdi-marsson, Linda Jónsdóttir og Þorkell Sigurlaugsson. Varamenn voru kjörnir Kristján Örn Sigurðsson, Jensína Kristín Böðvarsdóttir, Helga Indriðadóttir og Sigurbjörn Sigurðsson. Stjórnin skipti með sér verk-um að loknum aðalfundi og var Þorkell Sigurlaugs-son kosinn formaður og Jón Steindór Valdimarsson varaformaður. Haldnir voru 23 stjórnarfundir á starfsárinu, en umfangsmikil og krefjandi verkefni voru á borði stjórnar og starfsmanna á árinu.

Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri FSÍ, ákvað að láta af störfum í byrjun janúar 2012, en hann var bú-inn að vera framkvæmdastjóri sjóðsins frá upphafi. Honum eru þökkuð mjög góð störf, en hann mun áfram sinna verkefnum fyrir sjóðinn og situr m.a. í stjórnum Advania og Promens. Í byrjun mars 2012 var gengið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra, Brynjólfs Bjarnasonar. Hann hefur gegnt margvís-legum trúnaðarstörfum undanfarna áratugi, m.a. sem forstjóri Granda, Símans og Skipta, auk þess að sitja í stjórnum ýmissa félaga og félagasamtaka.

Horfur framundanÁgætar horfur eru með rekstur þeirra félaga sem sjóð-urinn á eignarhlut í. Verið er að undirbúa skráningu sumra þeirra á markað á komandi misserum, en það getur tekið nokkur ár að koma öllum félögum á hluta-bréfamarkað eða selja þau í beinni sölu til fjárfesta. Þangað til er meginverkefnið að tryggja jákvæðan rekstur fyrirtækjanna og auka verðmæti þeirra.

Gera má ráð fyrir að fjárfestingum sjóðsins ljúki á árunum 2012 og 2013. Líftími sjóðsins verður væntanlega talsvert lengri, en það er samt markmið stjórnarinnar að gera sem fyrst verðmæti úr eignum sjóðsins og skila þeim verðmætum til eigenda.

Framtakssjóðurinn hefur lagt áherslu á góða stjórnarhætti bæði í sínum innri störfum og starfsemi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignar-hlut í. Aukin áhersla verður lögð á þennan þátt árið 2012 enda skipta góðir stjórnarhættir máli varðandi mat á verðmæti félags, lánakjör o.fl. Samþykktir, skilmálar, hluthafastefna og fjárfest-ingastefna sjóðsins hafa verið í endurskoðun og er þá horft til reynslu af starfsemi sjóðsins undan-farin tvö ár svo og sambærilegra erlendra sjóða.

Það er áhyggjuefni hvernig komið er fyrir efnahags-málum þjóðarinnar og skortur er á framtíðarsýn og stefnumótun í atvinnumálum, efnhagsmálum og á

fleiri sviðum. Fyrir lífeyrissjóðina, banka og fjárfesta almennt eru gjaldeyrishöft og veik staða íslensku krónunnar lítt til þess fallin að auka hagvöxt og bæta lífskjör almennings í landinu. Gera má ráð fyrir að veikleikar í efnahagsmálum geti komið niður á rekstri sumra þeirra félaga sem Framtakssjóðurinn á eignarhlut í og takmörkuð fjárfestingatækifæri eru í nýjum verkefnum. Um tíma ríkti ákveðin neikvæðni

í garð Framtakssjóðsins en viðhorfin hafa breyst samhliða því að skilningur hefur aukist á hlutverki sjóðsins og að sjóðurinn hefur náð góðum árangri. Framtakssjóðurinn leggur áherslu á að sýna gott fordæmi og vinna með öllum þeim sem vilja byggja upp öflugra atvinnulíf, verðmætasköpun og bætt lífsgæði í landinu.

Ég vil þakka stjórnarmönnum, starfsfólki og stjórnendum þeirra félaga sem eru í eigu sjóðsins fyrir þeirra störf á árinu. Þá þakka ég sérstaklega samstarfsfólki mínu í stjórn FSÍ fyrir samstarfið og framkvæmdastjóra og starfsfólki sjóðsins fyrir framúrskarandi starf við uppbyggingu sjóðsins.

Reykjavík, 12. apríl 2012

Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður

Page 5: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S4

Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður

Þorkell er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann starfaði hjá Eimskipi, lengst af sem framkvæmdastjóri og síðan sem framkvæmdastjóri hjá Burðarási, fjárfestingafélagi Eimskips, til ársins 2004. Þorkell hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja og hefur yfirgripsmikla reynslu úr atvinnulífinu auk þess sem hann hefur skrifað greinar og bækur um stjórnunarmál. Þor-kell hóf störf árið 2004 sem framkvæmdastjóri þróunar og nýsköpunar hjá Háskólanum í Reykjavík og hefur síðustu árin verið framkvæmdastjóri fjármála og reksturs og verkefnastjóri nýbyggingar Háskólans í Reykja-vík í Nauthólsvík.

Auður Björk Guðmundsdóttir

Auður Björk er framkvæmda-stjóri Sölu- og þjónustusviðs Vátryggingafélags Íslands. Á árunum 2002–2005 starfaði hún sem deildarstjóri kynningar-deildar Olíufélagsins ehf. og þar áður sem kynningarfulltrúi hjá Eimskipafélagi Íslands og markaðsstjóri Frjálsrar fjölmiðl-unar hf. Hún lauk MBA-prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002 og BA-prófi í fjöl-miðlafræði frá University of South Alabama, USA, árið 1993. Auður var formaður Félags við-skiptafræðinga og hagfræðinga 2008–2010. Hún hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og félagasamtaka bæði hérlendis og erlendis.

Baldur Þór Vilhjálmsson

Baldur Þór er forstöðumaður eignastýringar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Hann starfaði hjá Kaupþingi frá 1998 til 2007, einkum sem sérfræð-ingur hjá markaðsviðskiptum og í lífeyrismálum. Baldur var í stjórn Frumtaks frá stofnun til ársins 2010 og situr í ráð-gjafaráði Thule Investments og stjórn Veðskuldabréfasjóðs Virðingar. Hann hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum og setið í nefndum og starfs-hópum á vegum Landssam-taka lífeyrissjóða. Baldur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.

STJÓRN FRAMTAKSSJÓÐS ÍSLANDS

Jón Steindór Valdimarsson, varaformaður

Jón Steindór er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann starfaði um skeið sem lögfræðingur í fjármálaráðuneytinu, þá hjá Vinnumálasambandinu sem stað-gengill framkvæmdastjóra árin 1985–1988. Það ár hóf hann störf hjá Samtökum iðnaðarins, síðast sem framkvæmdastjóri fram til 2010. Jón Steindór er stjórnar-formaður Landsbréfa hf., situr í stjórnum Geogreenhouse ehf., Lánatryggingasjóðs kvenna og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Þá hefur hann gegnt viðamiklum trúnaðarstörfum í íslensku atvinnulífi og var m.a. stjórnarformaður Nýsköpunar-sjóðs atvinnulífsins í sex ár. Jón Steindór stundar meistaranám í verkefnastjórnun (MPM) við Háskólann í Reykjavík.

Page 6: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 5

Hjörleifur Pálsson

Hjörleifur er fjármálastjóri Össurar og hefur setið í framkvæmdastjórn fyrirtækisins frá árinu 2001. Áður starfaði hann sem endurskoðandi, síðast hjá Deloitte & Touche hf. þar sem hann var einn af eigendum félagsins og í stjórn þess. Hjörleifur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1988 og hlaut löggild-ingu til endurskoðendastarfa 1989. Hann hefur setið í stjórn Samtaka atvinnulífsins, Háskóla-ráði Háskólans í Reykjavík og í varastjórn Íslandssjóða hf. frá árinu 2010.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir

Hrefna Ösp er viðskipta-fræðingur að mennt og framkvæmdastjóri Eignastýringar hjá Lands-banka Íslands. Hún starfaði frá árinu 2007 sem sjóðsstjóri hjá Arev verðbréfafyrirtæki og á árunum 1998–2006 hjá Kauphöll Íslands. Þar gegndi hún m.a. starfi forstöðumanns skráningarsviðs en var áður sérfræðingur á sama sviði. Á árunum 1994–1998 var hún forstöðumaður einstaklings-þjónustu Fjárvangs. Hún hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja bæði hérlendis og erlendis.

Linda Jónsdóttir

Linda er framkvæmdastjóri fjármögnunar og fjárstýringar hjá Marel, útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Há-skóla Íslands árið 2001 og lauk meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík 2010. Hún hefur einnig lokið prófi sem löggiltur verðbréfamiðlari. Á árunum 1999–2003 var hún yfirmaður fjárstýringar hjá Eimskipi og hjá Burðarási á árunum 2003–2005. Hún starfaði við fjárstýringu og fjármögnun hjá Straumi fjárfestingarbanka á árunum 2005–2009 og gegndi þar meðal annars starfi forstöðumanns eigna- og skuldastýringar bankans.

Page 7: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S6

Anna Rún Ingvarsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Advania, 2011–2013

Anna Rún er viðskiptafræðingur og starfar sem fjármálastjóri Apple VAD á Íslandi. Áður var hún fjármálastjóri Almennu verk-fræðistofunnar hf. 2008–2011. Á árunum 2005–2008 var hún fjármálastjóri Humac sem rak Apple-verslanir á Norðurlönd-unum og rekstrarstjóri Median 2004–2005. Anna starfaði hjá Streng hf. 1996–2004, og stýrði þar þjónustu- og ráðgjafarsviði. 1992–1996 var hún fjármálastjóri Tölvusamskipta hf.

Árni Geir Pálsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Plast-prent og Icelandic Group, 2011–2013

Árni Geir er með MSc.-próf í alþjóðaviðskiptum frá Copen-hagen Business School og Cand. Oecon.-próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur á undanförnum árum verið sjálf-stætt starfandi rekstrarráð-gjafi. Á árunum 2006–2008 var hann framkvæmdastjóri Median og 2005–2006 var hann framkvæmdastjóri Lata-bæjar. Árin 2000–2005 var hann framkvæmdastjóri fyrirtækja-þróunar hjá Icelandic Group (SH) og þar áður sem þróunarstjóri hjá Frjálsri fjölmiðlun, eigandi auglýsingastofunnar Mátturinn og dýrðin, kynningarstjóri Sam-skipa og verðbréfamiðlari hjá VÍB.

Brynjólfur Bjarnason Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group, 2011

Brynjólfur er framkvæmda-stjóri Framtakssjóðs Íslands. Hann var forstjóri Símans og Skipta hf. frá 2002–2010 og forstjóri Granda hf. frá 1984–2002. Hann var framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins 1976–1983 og forstöðumaður hagdeildar Vinnuveitendasambands Íslands frá 1973–1976. Hann hefur ennfremur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í íslensku atvinnulífi. Brynjólfur lauk prófi í viðskiptafræði frá viðskiptadeild Háskóla Íslands 1971 og MBA-prófi í rekstrar-hagfræði frá University of Minnesota árið 1973.

Brynja Guðmundsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Vodafone, 2011–2012

Brynja er forstjóri Gagnavörsl-unnar. Hún situr í stjórnum ýmissa fyrirtækja og félaga. Hún starfaði áður m.a. hjá Alfesca, Skýrr og Símanum. Brynja er menntaður við-skiptafræðingur frá endur-skoðendasviði Háskóla Íslands.

FULLTRÚAR FRAMTAKSSJÓÐS ÍSLANDS Í

STJÓRNUM FYRIRTÆKJA

Page 8: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 7

Elín Jónsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Promens, 2011–2012

Elín er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands með masters-gráðu í lögum frá Duke-háskóla í Norður-Karólínu, Bandaríkjunum og próf í verðbréfaviðskiptum. Elín var forstjóri Bankasýslu ríkisins á árunum 2010 og 2011. Hún var framkvæmdastjóri Arev verðbréfafyrirtækis frá árinu 2005–2009. Á árunum 2001 –2005 starfaði hún hjá Fjármála-eftirlitinu. Elín er nú sjálfstætt starfandi ráðgjafi hjá Lög-mönnum Bankastræti. Elín hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og verið stundakennari í lögum við Háskóla Íslands og aðstoðar-kennari við Duke-lagaskólann.

Egill Tryggvason Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group, 2011–2012. Vara-maður í Icelandic Group, Plast-prent og Advania, 2012–2013

Egill er starfsmaður Framtaks-sjóðs Íslands. Hann er með Cand. Oecon.-gráðu frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann hóf störf hjá Burðarási árið 1999 sem fjárfestingarstjóri og starfaði þar uns félagið var sameinað Straumi fjárfestingarbanka. Þá hóf hann störf hjá fyrirtækjaráðgjöf Lands-banka Íslands. Egill var ráðinn framkvæmdastjóri hjá Virðingu verðbréfafyrirtæki haustið 2006. Frá árinu 2009 starfaði hann hjá fjármálaráðuneytinu á fjárreiðu- og eignaskrifstofu en meðal verkefna var meðferð ríkisins á eignarhlutum í félögum og fyrir-tækjum ásamt því að vinna að endurskipulagningu fjármálafyrir-tækja eftir hrun fjármálakerfis Íslands haustið 2008.

Finnbogi var framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands frá 2010–2012. Hann starfaði í iðnaðarráðuneytinu 1979–1982, var framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar 1982–1986, var forstjóri Síldarvinnsl-unnar í Neskaupstað1986–1999,-forstjóri Íslenskra sjávarafurða 1999–2000. Finnbogi var starfandi stjórnaformaður Samherja 2000–2005 og framkvæmdastjóri SR-Mjöls 2004–2006. 2006–2010 var hann framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Finnbogi hefur jafn-framt setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og gegnt fjölda trúnaðar-starfa í atvinnulífinu. Hann lauk prófum í eðlisverkfræði og rekstrar-hagfræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og frá Háskóla Íslands auk þess sem hann hefur stundað nám í stjórnun og alþjóðaviðskiptum við ISM í París.

Finnbogi Jónsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Advania, formaður, 2012–2013. Icelandair Group, varaformaður, 2011–2012. Promens, 2012–2013

Page 9: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S8

Gísli Hjálmtýsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Advania, 2011–2012

Gísli rekur Thule Investments sem fjárfestir í hraðvaxandi sprotafyrirtækjum. Þar áður var hann deildarforseti tölvunarfræðideildar í Háskól-anum í Reykjavík. Gísli starfaði um árabil við rannsóknir á netkerfum og netþjónustu, meðal annars hjá AT&T Bell Laboratories, ásamt því að kenna við Columbia University og Háskóla Íslands. Gísli er með BS-gráðu í hagnýtri stærðfræði og tölvunarfræði frá University of Rochester (NY) og doktors-gráðu frá University of Cali-fornia, Santa Barbara.

Helga Viðarsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Vodafone, 2011–2012

Helga er markaðsstjóri Norræna hússins, en starfaði áður sem framkvæmdastjóri Trico og sem framkvæmda-stjóri markaðssviðs 66°Norður. Hún er menntaður rekstrar-fræðingur frá Háskólanum á Akureyri og með meistarapróf í viðskiptum frá Viðskipta-háskólanum í Árósum með áherslu á viðskipti milli fyrir-tækja. Helga situr í stjórn fjöl-miðilsins Krítik og Trico hf.

Herdís Björg Rafnsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Plastprent 2011–2012

Herdís Björg er framkvæmda-stjóri og eigandi RJ Verkfræðinga ehf. og Eignarhalds- og fjár-festingafélagsins VRJ ehf. Hún er véla- og iðnaðarverkfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og með MSc.-próf frá University of Washington, Seattle með áherslu á mengunar- og umhverfisverk-fræði. Herdís situr í stjórn RJ Verkfræðinga og eignarhalds- og fjárfestingafélagsins VRJ. Herdís hefur verið stundakennari við Véla- og Iðnaðarverkfræðideild HÍ.

Page 10: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 9

Herdís Dröfn Fjeldsted Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group, formaður, 2011–2013. Icelandair Group, 2011–2013. Promens, 2011–2012

Herdís Dröfn starfar hjá Fram-takssjóði Íslands en áður starfaði hún hjá Thule Investments í fjárfestingarteyminu. Þar áður starfaði hún hjá Spron og hjá Icelandair. Herdís er með diploma í iðnrekstrarfræði af markaðssviði og viðskiptafræði BSc. af alþjóðamarkaðssviði. Lauk námi í verðbréfaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík og er með MSc. í fjármálum fyrirtækja frá sama skóla.

Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group, 2011–2013

Ingunn Björk lauk BA-gráðu frá Háskóla Íslands í atvinnufélags-fræði árið 1997 og lauk MBA- gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005. Hún starfaði hjá Eimskipi 1998–2006, í fræðslu- og starfsþróunarmálum og var framkvæmdastjóri starfsþró-unarsviðs samstæðunnar og sat í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Ingunn tók þátt í stefnumótun mannauðsmála fyrir Excel Airways og Atlanta (þá dótturfyrirtæki Avion Group). Ingunn er í dag einn af stofnendum og eigendum Attentus - Mannauður og ráðgjöf og sinnir mannauðsmálum fyrir ýmis fyrirtæki. Ingunn hefur kennt stjórnun, mannauðsstjórnun og breytingastjórnun við Háskólann í Reykjavík, Tækniskólann og Há-skóla Íslands. Ingunn var aðal- og/eða varamaður í menntaráði, velferðarráði og leikskólaráði Reykjavíkurborgar.

Jón Þorgeir Einarsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group, 2012–2013

Jón Þorgeir starfaði hjá Löggilt-um endurskoðendum í Reykjavík frá 1984–1990. Hann flutti til Bolungarvíkur árið 1990 og hefur starfað við endurskoðun þar síðan. Hann rekur ásamt öðrum Endurskoðun Vestfjarða ehf sem er með skrifstofur í Bolungarvík og á Ísafirði. Jón rekur einnig útgerðarfyrirtæki ásamt bróður sínum. Jón Þorgeir er viðskipta-fræðingur Cand. Oecon. frá HÍ 1985 og löggiltur endurskoðandi 1989.

Kristinn Pálmason Stjórnarseta fyrir FSÍ: Plastprent, formaður, 2011–2013. Vodafone, varamaður, 2011–2012.

Kristinn er starfsmaður Framtaks-sjóðs Íslands. Hann starfaði frá árinu 2009 sem verkefnisstjóri hjá Eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. sem keypt var af Framtaks-sjóði Íslands í lok árs 2010. Á árunum 2002–2009 starfaði Krist-inn hjá Landsbanka Íslands sem sérfræðingur við fjármögnun á yfirtökum fyrirtækja og við ráð-gjöf vegna umbreytingaverkefna fyrirtækja bæði á aðalskrifstofu Landsbankans og skrifstofu í London. Hann hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja hér-lendis. Kristinn lauk Msc.-prófi í fjármálum fyrirtækja frá Há-skólanum í Reykjavík árið 2010 og Bsc.-prófi í viðskiptafræði árið 2003 frá sama skóla.

Page 11: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S10

Lárus Ásgeirsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group, 2011

Magnús Bjarnason Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group, 2012–2013

Ragnheiður H. Magnúsdóttir Stjórnarseta fyrir FSÍ: Plastprent, 2012–2013

Lárus er forstjóri Icelandic Group. Hann starfaði hjá Marel frá 1991 til 2009 þar sem hann var m.a. framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs um árabil. Hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra Scanvaegt International, dótt-urfélags Marels í Danmörku frá 2006-2008. Lárus var staðgengill forstjóra Marel Food Systems frá 2006-2009. Hann var forstjóri Sjóvár frá 2009-2011. Lárus lauk BSc prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í vélaverkfræði frá Oklahoma State University. Hann hefur setið í ýmsum stjórnum félaga á Íslandi og erlendis.

Magnús er framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar Landsvirkjunar. Hann var áður framkvæmdastjóri Capacent Glacier og framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Glitnis. Magnús starfaði í utanríkisþjónustunni um árabil; hann var viðskipta-fulltrúi Íslands í Bandaríkjunum og Kanada, og síðar sendifull-trúi og staðgengill sendiherra í sendiráði Íslands í Kína. Hann lauk BS-prófi í viðskiptafræði og MBA frá Thunderbird School of Global Management.

Ragnheiður er vélaverkfræðingur með meistaragráðu í vélaverk-fræði frá Háskólanum í Álaborg þar sem hún sérhæfði sig í vöruþróun og framleiðslu. Hún starfar nú sem framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, en áður var hún framkvæmdastjóri hugbúnaðar-fyrirtækisins Mentis 2006–2008. Á árunum 2000–2006 var hún verkefnastjóri og forstöðumaður verkefnastofu á Þróunarsviði Símans. Ragnheiður situr einnig í stjórnum Samtaka vefiðnaðarins og Ský – Skýrslutæknifélags Íslands.

Page 12: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 11

Reimar Pétursson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Vodafone, 2011–2012

Reimar er hæstaréttarlögmaður og rekur lögmannsstofu í félagi með öðrum. Auk lögmanns-starfa hefur hann starfað m.a. hjá Atorku og Straumi fjár-festingarbanka. Reimar er með embættispróf í lögfræði frá Há-skóla Íslands og meistarapróf frá Columbia University í New York.

Þorsteinn G. Gunnarsson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Advania, formaður, 2011–2012

Þorsteinn hefur undanfarin tvö ár verið starfandi stjórnar-formaður sprotafyrirtækisins Cooori. Hann lauk meistaraprófi í rafmagnsverkfræði frá University of Washington í Seattle árið 1992. Stundaði rannsóknir og kennslu við Háskóla Íslands 1992–1996. Vann síðan hjá Opnum kerfum 1996–2008. Hann var framkvæmdastjóri ráðgjafar- og þjónustusviðs Opinna kerfa og seinna forstjóri fyrirtækisins. Frá 2008–2009 var Þorsteinn forstjóri StoreVision A/S í Danmörku. Hefur frá 2010 unnið ýmis ráðgjafarstörf á sviði fyrirtækj-arekstrar og upplýsingatækni.

Þór Hauksson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Vodafone, formaður, 2011–2012. Advania, 2011–2013. N1, 2012–2013

Þór starfar hjá Framtakssjóði Íslands en var áður starfsmaður í fjármálaráðuneytinu, hjá Kaup-þingi, Straumi fjárfestingarbanka og Skiptum hf. Þór er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og MA-gráðu í stjórn-mála- og hagfræði frá University of Hull.

Steinþór Baldursson Stjórnarseta fyrir FSÍ: Icelandic Group, 2011–2012

Steinþór er framkvæmdastjóri Odix Consulting, ráðgjafarfyrir-tækis á sviði fjárhagslegrar og rekstrarlegrar endurskipulagn-ingar fyrirtækja. Frá árinu 2009 var hann framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Vestia, dótturfélagi Landsbankans, frá 2003 starfaði hann á alþjóða-sviði bankans og sá þar um mál tengd fyrirtækjaþróun og erlendum yfirtökum, og hjá fyrir-tækjaráðgjöf bankans frá 2001. Áður hafði Steinþór starfað hjá Fjárvangi, m.a. við eignastýringu, markaðsviðskipti og fyrir-tækjaráðgjöf, við fjárstýringu hjá Íslandsbanka og eignastýringu hjá Wells Fargo Nikko Investment Advisors í San Francisco. Steinþór er með BS-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og MBA- gráðu frá University of Southern California, Los Angeles.

Page 13: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S12

Árið 2011 var annað starfsár Framtakssjóðs Íslands og nam hagnaður af starfsemi sjóðsins 2.343 millj-ónum króna, samanborið við 700 milljónir króna árið áður. Heildareignir sjóðsins í árslok námu 28,2 milljörðum króna en þær voru 5,6 milljarðar á sama tíma 2010. Eigið fé í árslok var 27,5 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 97,9%. Eignarhlutir sjóðsins í fyrirtækjum eru færðir á kostnaðarverði nema eignarhlutir í skráðum félögum sem eru metnir á markaðsverði. Hagnaður Framtakssjóðsins á árinu skýrist því af hækkun markaðsvirðis Icelandair Group. Sjóðurinn hefur, í samvinnu við endur-skoðendur félagsins, lagt mat á áætlað gangvirði þeirra eignarhluta sem fjárfest hefur verið í og

VIÐBURÐARÍKT ÁR AÐ BAKI

er metið að það sé ekki undir 39,3 milljörðum króna. Áætlað virði miðast við niðurstöður virðis-rýrnunarprófa undirliggjandi eigna. Í ársbyrjun 2011 var hlutur sjóðsins í Icelandair Group eina hlutabréfaeign félagsins. Á árinu bættust eignar-hlutir í alls 7 félögum í eignasafn Framtakssjóðsins. Þetta eru Advania, Húsasmiðjan, Vodafone, N1, Icelandic Group, Plastprent og Promens. Á árinu seldi Framtakssjóðurinn svo eignarhluti í tveimur félögum. Annars vegar 10% hlutafjár í Icelandair en sjóðurinn á eftir þau viðskipti enn 19% hlut í Ice-landair Group. Hins vegar seldi sjóðurinn rekstur og eignir Húsasmiðjunnar og á nú ekki hlut í félaginu.

Þór Hauksson, fjárfestingastjóri

Björk Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri

Herdís Dröfn Fjeldsted, fjárfestingastjóri

Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri

Kristinn Pálmason, fjárfestingastjóri

Pétur Þ. Óskarsson, sérfræðingur

Harpa Helgadóttir, sérfræðingur

Egill Tryggvason, fjárfestingastjóri

Starfsfólk FSÍ

Page 14: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 13

EIGNARHLUTIR FSÍ Í FÉLÖGUM

ICELANDAIR GROUP ICELANDIC GROUP VODAFONEADVANIA PROMENSPLASTPRENT

19%

100%

75% 79%

N1

16%

49,50%100%

Page 15: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S14

Advania er eitt stærsta upplýsingatæknifyrirtæki Norðurlanda með tæplega 1.100 starfsmenn

og 20 starfstöðvar í fjórum löndum: Íslandi, Lettlandi, Noregi og Svíþjóð – en þar af starfa um

600 manns á Íslandi. Advania býður fjölbreyttar lausnir og þjónustu. Lausnaframboð Advania á

Norðurlöndum spannar upplýsingatækni frá A til Ö og viðskiptavinir sækja þangað samþætta

heildarþjónustu, allt á einn stað. Og þá gildir einu hvort um er að ræða hugbúnað, vélbúnað,

ráðgjöf eða rekstrarþjónustu. Meðal viðskiptavina Advania eru mörg stærstu og öflugustu

fyrirtæki og stofnanir Norðurlanda, en lausnir fyrirtækisins svara kröfum og þörfum liðlega tíu

þúsund viðskiptavina um víða veröld. Advania er náinn samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra

fyrirtækja í upplýsingatækni. Þar má nefna Cisco, Dell, EMC, HP, IBM, Microsoft, Oracle, SAP

BusinessObjects, VeriSign og Xerox. Fagleg vinnubrögð eru í hávegum höfð hjá Advania, þar

sem þarfir og væntingar viðskiptavina eru í fyrirrúmi í allri þjónustu. Advania er eitt örfárra fyrir-

tækja í þekkingariðnaði með starfsemi sem vottuð er samkvæmt alþjóðlegu gæða- og öryggis-

stöðlunum ISO 9001 og 27001. Gildi fyrirtækisins eru ástríða, snerpa og hæfni.

ADVANIA

Page 16: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 15

(milljónir kr.)

TEKJUR

0

5

10

15

20

25

20112010

22.129

24.499

AFKOMA

(milljónir kr.)

201120100

100

50

200

300

150

400

350

250

389

20

(milljónir kr.)

EBITDA

201120100

200

400

800

600

1200

1000

790

1068

SAMEININGARLOTAN 2009–2011

Á árunum 2009 til 2011 gekk Advania gegnum sameiningar-lotu og umbreytingaferli. Breytingarnar hófust í nóvember 2009 þegar Skýrr með 180 starfsmenn, Kögun með 80 starfs-menn, Landsteinar-Strengur með 40 starfsmenn og Eskill með 20 starfsmenn voru sameinuð undir merkjum Skýrr. Hinn 10. nóvember 2010 var EJS með 160 starfsmenn síðan sam-einað Skýrr. Endapunktur þessarar sameiningarlotu var á fyrri hluta árs 2011, en þá var Teymi sameinað Skýrr, ásamt þremur dótturfélögum: HugAx með 100 manns, Hands í Noregi með 200 manns og Kerfi í Svíþjóð með 300 manns. Samtals eru þetta um 1.100 manns og þar af starfa 600 á Íslandi. Árin 2009 til 2011 voru óumflýjanlega nokkuð lituð nauðsynlegri endur-skoðun á lausnasafni fyrirtækisins í kjölfar sameiningarlotunnar og þróun sóknarfæra í kjölfarið. Lokahnykkurinn fólst síðan í nafnbreytingu fyrirtækisins í upphafi árs 2012 þegar öll fyrir-

tækin sameinuðust undir einu nafni. Hinn 20. janúar 2012 var í 1.300 manna nýársgleði Advania með viðskiptavinum og starfs-fólki tilkynnt um að Skýrr, HugurAx og norræn dótturfyrirtæki sæki eftirleiðis fram undir nýju nafni: Advania. Nafnbreytingin er lokahnykkur tveggja ára sameiningarlotu níu fyrirtækja og liður í umbreytingu fyrirtækisins í alþjóðlegt þjónustufyrirtæki með víðtæka starfsemi. Við nafnbreytinguna hurfu vörumerkin Skýrr, HugurAx og EJS á Íslandi, ásamt Hands í Noregi, Kerfi í Svíþjóð og Aston-Baltic í Lettlandi. Með nafnbreytingunni var starfsfólkið sameinað undir eitt merki með það að markmiði að fullnýta slagkraft stærðar fyrirtækisins og sækja til framtíðar. Orðið „Advania“ er dregið af enska orðinu „advantage“, sem þýðir forskot. „Þetta er það sem við viljum veita okkar góðu viðskiptavinum: forskot á sínum vettvangi með traustri þjónustu og skapandi lausnum,“ sagði Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, við þetta tilefni.

ADVANIA

Page 17: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S16

GAGNAVER

Í nóvembermánuði keypti Advania 100% hlutafjár í gagna-verinu Thor Data Center, sem starfrækt er í Hafnarfirði. Stærsti viðskiptavinur Thor Data Center er norski hugbúnaðarrisinn Opera Software. Advania hafði lengi hugað að uppbyggingu gagnavers hér á landi, enda mikil sóknarfæri á þessu sviði á erlendum mörkuðum og þar býr fyrirtækið að eigin söluneti í Noregi og Svíþjóð. Hjá Thor Data Center hefur verið unnið mikið frumkvöðlastarf hvað snertir markaðssetningu Íslands sem umhverfisvæns valkosts fyrir viðskiptavini gagnavera, en þeir geta skapað þjóðinni miklar gjaldeyristekjur.

UNDIR EITT ÞAK

Advania hóf á árinu 2011 flutninga í nýjar höfuðstöðvar fyrir-tækisins á Íslandi að Sætúni 10 í Reykjavík. Flutt verður í tveimur áföngum í byggingu sem er að helmingi til uppgert eldra hús-næði sem snýr út að Höfða og að helmingi til reisuleg nýbygg-ing sem horfir út á sundin blá. Fyrri áfanga þessara flutninga var lokið fyrir árslok 2011, en seinni áfanginn er áætlaður á haustdögum 2012. Þar með verður öll starfsemi Advania í Reykjavík komin undir eitt þak, en var áður á fimmtán hæðum í fimm byggingum við Ármúla, Grensásveg, Guðríðarstíg og Lyngháls. Á því kostnaðarsama og dreifða fyrirkomulagi voru fjölmargir annmarkar. Það var því skilgreint sem eitt af lykil-verkefnum í styrkingu og þróun félagsins að finna heppilegri lausn, sem svarar kröfum starfsfólks í nútímalegum þekkingar-fyrirtækjum.

Page 18: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 17

FJÖLSÓTTIR VIÐBURÐIR

Viðburðir Advania hafa sett mikinn svip á starfsemi fyrirtækisins undanfarin ár. Árið 2011 var þar engin undantekning með haustráðstefnu, sumargleði og nýársfagnaði fyrir viðskiptavini. Einnig má nefna um fimmtán morgunverðarfundi fyrir við-skiptavini, ásamt fjölmörgum kynningum á starfsemi fyrirtækis-ins fyrir minni og stærri hópa. Um 11.500 gestir sóttu viðburði Advania árið 2011, sem er 15% fjölgun milli ára.

NÖRD ÁRSINS

Við lok árs 2011 var efnt til samkeppni meðal viðskiptavina og samstarfsaðila fyrirtækisins og NÖRD ÁRSINS valinn í byrjun árs 2012. Alls bárust um 630 tilnefningar frá 10 þúsund manns. Dómnefnd fór síðan yfir tilnefningar og valdi NÖRD ÁRSINS með hliðsjón af þeim. Að þessu sinni urðu tveir nördar fyrir valinu: Gunnar Grímsson og Róbert Bjarnason. Þeir fengu að launum veglegan bikar og flugmiða fyrir tvo til útlanda með WOW air. Þeir félagar hlutu verðlaunin annars vegar út af mögnuðu ævistarfi í upplýsingatækni sem hefur spannað yfir tvo áratugi og hins vegar vegna framsækinna frumkvöðlastarfa við rafræn lýðræðisverkefni undanfarin þrjú ár.

Í milljónum króna 2011

Tekjur 24.499EBITDA 1.068 Afkoma 20 Eigið fé 3.506Eiginfjárhlutfall 21%

Fjöldi starfsfólks 1.014

Lykiltölur

Page 19: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S18

Á árinu 2012 fagnar Icelandair Group 75 ára stofnafmæli sínu. Stofnun félagsins er rakin til

ársins 1937 þegar Flugfélag Akureyrar var stofnað. Leiðakerfi Icelandair er burðarás í flug-

samgöngum til og frá Íslandi og helsta undirstaða ferðaþjónustunnar. Það byggir á staðsetn-

ingu landsins mitt á milli Norður-Evrópu og Norður-Ameríku sem gerir Icelandair kleift að

þjóna þremur mörkuðum; heimamarkaðinum á Íslandi, ferðamannamarkaðinum til Íslands

og alþjóðlega markaðinum milli Evrópu og Norður-Ameríku.

Page 20: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 19

12,6

10,4

201120100

3

6

9

12

15

4,54,6

201120100

1

2

3

4

5

0

20

40

60

80

100

20112010

96,9

88,0

TEKJUR EBITDA AFKOMA

(milljarðar kr.)(milljarðar kr.)(milljarðar kr.)

FERÐAÞJÓNUSTA Á BREIÐUM GRUNNI

Icelandair Group sérhæfir sig í flug- og ferðaþjónustu með Ísland sem hornstein alþjóðlegs leiðakerfis. Dótturfélög sam-stæðunnar á árinu 2011 voru alls átta. Icelandair er þeirra stærst með um 60% af heildartekjum. Leiðakerfi Icelandair er grunnurinn að allri starfsemi Icelandair Group. Icelandair notar landfræðilega legu Íslands til að tengja saman fjölmarga

áfangastaði í Evrópu og Norður-Ameríku í gegnum skiptistöð-ina á Keflavíkurflugvelli. Leiðakerfið er í stöðugri þróun og er góð stýring þess og sveigjanleiki helsta ástæða fyrir velgengni félagsins. Flugfélag Íslands er öflugt og sveigjanlegt flugfélag sem starfar á innanlandsmarkaði en þjónar einnig Færeyjum og Grænlandi. Icelandair Hotels reka bæði alþjóðlegt hótel (Hilton Reykjavik Nordica) og íslensk hótel (Icelandair Hotels og Edduhótelin). Icelandair Cargo býður flutningalausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Á árinu 2011 voru 5 fraktvélar í notkun hjá félaginu og voru áfangastaðir í fraktflugi New York, Liege og East Midlands. Loftleiðir-Icelandic er leiguflugfélag sem sér-

hæfir sig í lausnum fyrir alþjóðleg flugfélög og ferðaþjónustu-aðila. Félagið sérhæfir sig sérstaklega í leigu véla með alhliða viðhaldslausnum. Iceland Travel er stærsta ferðaskrifstofa landsins og býður fjölbreytt úrval þjónustu fyrir ferðamenn sem koma til Íslands. Vörumerkið Vita sem þjónustar Íslendinga sem ferðast erlendis var einnig hluti af Icelandair Travel, en mun frá og með árinu 2012 verða rekið sem sérstakt dótturfélag innan Icelandair Group samstæðunnar. Icelandair Ground Service

annast flugvallaþjónustu við flugfélög og farþega á Keflavíkur-flugvelli, rekur fyrsta flokks flugeldhús og tollvörugeymslur, fraktmiðstöð og veitingastaði í Leifsstöð. Fjárvakur sérhæfir sig í umsjón fjármálaferla fyrir meðalstór fyrirtæki og stór félög á Íslandi. Félagið býður jafnframt gegnum dótturfélag sitt, Airline Services Estonia, alþjóðlegum flugfélögum útvistun tekjubók-halds þeirra. Björgólfur Jóhannsson hefur gegnt starfi forstjóra Icelandair Group frá árinu 2008. Björgólfur var forstjóri Icelandic Group frá árinu 2006 og forstjóri ÚA á Akureyri frá árinu 1999. Björgólfur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1983 og varð löggildur endurskoðandi árið 1985.

Page 21: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S20

VIÐSKIPTAVINIR

Viðskiptavinir Icelandair Group eru margir og nýta sér mis-munandi þjónustu félagsins, sem samanstendur af farþega-flugi bæði innanlands og milli landa, fraktflutningum, ferða-tengdri þjónustu ásamt stoðþjónustu í formi flugafgreiðslu og fjármála. Leiðakerfi stærsta dótturfélagsins, Icelandair, hefur stækkað og styrkst á undanförnum áratugum og tengir nú 22 borgir í Evrópu við 9 borgir í Norður-Ameríku með Ísland sem miðpunkt. Leiðakerfið byggist á sólar-hringsskiptingu með tengiflug á Íslandi á morgnana og eftir hádegi.

STARFSEMIN Á ÁRINU 2011

Mikill innri vöxtur einkenndi rekstur Icelandair Group á árinu 2011. Icelandair jók framboð sitt um 18% frá fyrra ári og far-þegum fjölgaði í heild um 18% eða um 260 þúsund manns, úr 1,5 milljónum árið 2010 upp í 1,75 milljónir árið 2011. Hefur félagið aldrei áður flutt jafn marga farþega. Sætanýting á árinu var sú besta í sögu félagsins eða 79,3% og jókst um 0,9 prósentustig. Sætanýtingin hefur aukist á undanförnum árum með nákvæmari stýringu og eftirliti. Flugfélag Íslands flutti 353

þúsund farþega og fjölgaði þeim um 3% á milli ára. Félagið lagði áherslu á aukið flug til Grænlands ásamt því að farþegum í innanlandsflugi fjölgaði á milli ára. Framboðnum gistinóttum hjá Icelandair Hotels fjölgaði um 7% á milli ára m.a. með opnun nýs hótels á Akureyri og var herbergjanýtingin 67,9%. Í júní var Hótel Loftleiðir opnað á ný eftir gagngerar endurbætur undir nýju nafni, Icelandair Hotel Reykjavik Natura. Hagnaður Ice-landair Group á árinu 2011 nam 4,5 milljörðum króna og var sambærilegur við árið 2010 er hann nam 4,6 milljörðum króna. EBITDA var jákvæð um 10,4 milljarða króna og dróst saman á milli ára um 2,2 milljarða króna. Heimsmarkaðsverð á eldsneyti jókst um 40% á árinu 2011 og leiddi það til mikilla kostnaðar-

Page 22: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 21

Í milljörðum króna 2011

Tekjur 96,9EBITDA 10,4 Afkoma 4,5 Eigið fé 32,3 Eiginfjárhlutfall 36%Fjöldi starfsfólks 2.350

hækkana sem skýra lakari afkomu á milli ára. Fjárhagsleg staða félagsins er sterk, eiginfjárhlutfallið er 36% og handbært fé og markaðsverðbréf nema 13,1 milljarði króna í árslok.

HORFUR

Á árinu 2012, sem er 75. afmælisár félagsins, er gert ráð fyrir áframhaldandi innri vexti. Icelandair, stærsta dótturfélag sam-stæðunnar, verður með umfangsmestu flugáætlun sína frá upphafi. Bókanir fyrir fyrstu mánuði ársins hafa verið sterkar og lofa góðu um framhaldið. Nýr heilsársáfangastaður, Denver í

Colorado, bætist við ásamt því að ferðum er fjölgað til ýmissa borga í Bandaríkjunum og Evrópu. Áfangastaðir verða alls 31 og farþegar félagsins eru áætlaðir um 2 milljónir á árinu sem er 15% aukning frá árinu 2011. Tvær nýjar flugvélar bætast við flota félagsins á fyrri hluta árs 2012. Icelandair Hotels opna nýtt hótel á vormánuðum. Hótelið er með 111 herbergi og er vel staðsett við höfnina í miðbæ Reykjavíkur. Flugfélag Íslands mun auka við framboð sitt til Grænlands, en félagið flýgur nú til fimm áfangastaða á Grænlandi, þar af þriggja allt árið. VITA hyggst auka markaðshlutdeild á leiguflugsmarkaðnum frá Íslandi, m.a. með stofnun netferðaskrifstofunnar Ferd.is, sem mun sérhæfa sig í ódýrum sólarlanda- og skemmtiferðum.

Lykiltölur

Page 23: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S22

Icelandic Group byggir á sjö áratuga sögu í íslenskum sjávarútvegi og fiskútflutningi. Sér-

staða fyrirtækisins felst í að stilla saman og samþætta veiðar, vinnslu, flutning, virðisaukandi

framleiðslu og á endanum sölu á sjávarfangi um víða veröld. Fyrirtækið er einn stærsti

útflytjandi íslenskra sjávarafurða og leggur ríka áherslu á úrvalsþjónustu við sjávarútveginn.

Eftir miklar breytingar á árinu 2011 rekur fyrirtækið nú starfsemi á Íslandi, í Evrópu og Asíu og

hjá því starfa um 1.600 starfsmenn.

Page 24: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 23

(milljónir evra)

Tölur miðast við áframhaldandi starfsemi, eftir sölu eigna.

TEKJUR

0

100

200

300

400

500

600

20112010

525515

(milljónir evra)

EBITDA

13,1

15,8

201120100

5

10

15

20

AFKOMA

(milljónir evra)

61,9

6,1

201120100

10

20

30

40

50

60

80

70

ÁR BREYTINGA

Á árinu 2011 breyttist eignarhald Icelandic og nú á Fram-takssjóður Íslands félagið að fullu. Nýir eigendur mörkuðu félaginu þá stefnu að straumlínulaga rekstur þess, lækka skuldir, auka arðsemi og draga úr áhættu í starfseminni. Með þetta að leiðarljósi var unnið að sölu á nokkrum eignum félagsins. Icelandic Group seldi á árinu starfsemi fyrirtækisins í Frakklandi og Þýskalandi til fjárfestahóps undir forystu sjávarútvegsfyrirtækisins Pacific Andes frá Hong Kong. Með sölunni var stigið mikilvægt skref við endurskipulagningu

Icelandic Group; áherslur urðu skýrari og skuldir lækk-uðu. Þá var starfsemi Icelandic Group í Bandaríkjunum og tengd innkaupa- og framleiðslustarfsemi seld til kanadíska sjávarútvegsfyrirtækisins High Liner Foods. Eftir eignasölu rekur félagið viðamikla verksmiðjustarfsemi í Bretlandi, sem að mestu framleiðir fyrir neytendamarkað og er Icelandic Group einn af stærstu framleiðendum sjávarfangs í smásölu í landinu. Þá rekur félagið framleiðslu- og þjónustustarfsemi á Íslandi auk sölu- og markaðsskrifstofa í Bretlandi, Noregi, Japan og á Spáni. Forstjóri félagsins er Lárus Ásgeirsson en hann kom til starfa hjá félaginu í október 2011.

Page 25: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S24

STERK STAÐA Á MÖRKUÐUM

Geta Icelandic Group til að tengja saman framleiðslu, sölu og markaðssetningu þvert á landamæri tryggir sterka sam-keppnisstöðu og mikilvægt forskot til að skapa frekari verð-mæti í rekstri. Icelandic Group hefur lagt ríkan metnað í að rækta langtímaviðskiptasambönd við bæði framleiðendur og kaupendur. Þau vörumerki sem fyrirtækið hefur byggt upp á undanförnum árum hafa sterka stöðu á mörkuðum. Icelandic -vörumerkið er eitt þekktasta vörumerki í alþjóðlegum sjávarútvegi í heiminum í dag. Undir nýjasta vörumerki félags-ins, Saucy Fish, markaðssetur Seachill, dótturfélag Icelandic í Bretlandi hágæðasjávarrétti sem eru tilbúnir til eldunar. Saucy Fish fer afar vel af stað og hefur þegar náð sterkri stöðu á markaðnum. Staða Icelandic í Bretlandi er afar sterk og mark-aðshlutdeild félagsins hefur aukist þrátt fyrir erfiðar aðstæður á markaði. Það er ljóst að sá markaður verður áfram afar mikil-vægur fyrir félagið.

UMBREYTING Í REKSTRI

Heildarhagnaður Icelandic Group á árinu 2011 nam rúmum 61,9 milljónum evra eða sem nemur um 10,3 milljörðum króna á núverandi gengi. Heildartekjur fyrirtækisins af áfram-haldandi starfsemi námu tæpum 525 milljónum evra eða 87,6 milljörðum króna. Eigið fé félagsins var 178 milljónir evra, eða 29,7 milljarðar króna og eiginfjárhlutfallið um áramót var 48%. Sjóðsstaða félagsins er sterk en fyrirtækið á 109,3 milljónir evra í reiðufé og 38,5 milljónir evra á bundnum innstæðum, alls 147,8 milljónir evra eða 24,7 milljarða króna. Heildarhagn-aður félagsins skýrist fyrst og fremst af sölu eigna. EBITDA framlegðin var 2,2 milljarðar króna á árinu samanborið við 2,6 milljarða af sambærilegri starfsemi árið áður.

Page 26: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 25

ÓSKIR NEYTENDA

Á undanförnum árum hefur orðið mikil vakning meðal almennings um mikilvægi hollra matvæla sem framleidd eru í sátt við umhverfið. Innan Icelandic Group hefur mikið starf verið unnið í þessum efnum. Fyrirtækið hefur stutt dyggilega við nýja umhverfisvottun, Iceland Responsible Fisheries, auk þess sem fyrirtækið hóf ferli um að allar veiðar á þorski og ýsu á Íslandsmiðum verði vottaðar af Marine Stewardship Council. Neysla sjávarfangs hefur aukist mikið á undanförnum árum og áratugum og markmið Icelandic er að halda áfram að vera leiðandi aðili á þeim markaði. Úrvalsþjónusta, gæði afurða og öryggi í vinnslu og afhendingu eru þeir þættir sem viðskiptavinir Icelandic Group eiga að geta gengið að vísum, hér eftir sem hingað til.

Í milljónum evra 2011

Tekjur 525EBITDA 13,1 Heildarafkoma 61,9 Eigið fé 178 Eiginfjárhlutfall 48%Fjöldi starfsfólks 1.600

Lykiltölur

Tölur miðast við áframhaldandi starfsemi, auk afkomu af rekstri seldra eininga fram að söludegi.

Page 27: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S26

Saga félagsins á rætur að rekja til 1908 þegar Hið íslenska steinolíufélag var stofnað. Það

félag varð síðan umboðsmaður Standard Oil árið 1945 og var síðan selt til Olíufélagsins hf

sem stofnað var 1946, m.a. af nokkrum útvegsmönnum. Hinn hluti félagsins kemur að stofni til

frá Bílanausti hf sem stofnað var 1962 af Matthíasi Helgasyni og fjölskyldu. N1 verður til með

formlegum hætti 13. apríl 2007 þegar nýtt vörumerki og ný hugmyndafræði er kynnt lands-

mönnum öllum með eftirminnilegum hætti. Félagið hefur síðan þá haldið áfram að byggja

upp þjónustu við bíleigendur og á sama tíma gegnt lykilhlutverki í þjónustu við atvinnulífið

til sjávar og sveita. Kjarnastarfsemi félagsins snýst um sölu á eldsneyti, bílahlutum, matvöru,

iðnaðarvöru og þjónustu. Styrkur N1 liggur í fjölbreyttu vöruúrvali, öflugu dreifineti og mann-

auði sem hefur áralanga sérþekkingu á þjónustuleiðum og vöruframboði félagsins.

Page 28: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 27

TEKJUR EBITDA AFKOMA

0

20

10

30

40

50

60

20112010

54.701

45.816

2.108

-3.240

20112010

-1.5

-2.0

-3.0

-2.5

-3.5

-1.0

-5

0

5

2.0

1.5

1.0

2.5

(milljarðar kr.)(milljarðar kr.)(milljarðar kr.)

4.509

-11.824

20112010-12

-10

-8

-6

-4

-2

0

6

4

2

ÞJÓNUSTA UM LAND ALLT

N1 starfar um allt land og sinnir jafnt þörfum einstaklinga og fyrirtækja. Þéttriðið net þjónustustöðva sér til þess að eldsneyti og næring sé aðgengilegt öllum landsmönnum. Hluti þjón-ustustöðvanna eru í raun stórir veitingastaðir sem sinna bæði fólki á ferðinni og staðbundnum heimamarkaði.N1 rekur 15 verslanir sem sérhæfa sig í varahlutasölu, iðnaðar-vöru og rekstrarvöru. Þessar verslanir sinna að mestu þörfum atvinnulífsins en stórmarkaðurinn sem rekinn er á Bíldshöfða 9 er hugsaður sem þjónustumiðja við almenning.

Bifreiðaþjónusta er verulegur hluti af umsvifum félagsins og á árinu voru 11 verkstæði rekin af félaginu. Þessi verkstæði eru að sinna hjólbarðaþjónustu, smurþjónustu og smærri viðgerðum.

Á árinu 2011 fékk nýlegt verkstæði N1 við Bíldshöfða 2 umhverfisvottun ISO 14001 og var það í fyrsta sinn sem slíkt var gert. Þar fyrir utan er verið að leggja lokahönd á gæðavottun Michelin fyrir öll þau verkstæði sem stunda hjólbarðaviðgerðir.Auk þeirra útsölustaða sem hér eru upptaldir er rekin öflug sölu- og viðskiptadeild þar sem stærri viðskiptavinum er sinnt með heimsóknum og klæðskerasaumuðum lausnum, til að styðja við þessa starfsemi eru síðan 2 vöruhús og þjónustuver til að tryggja hátt þjónustustig.

Forstjóri félagsins er Hermann Guðmundsson sem stýrt hefur félaginu frá ársbyrjun 2006 og frá árinu 2002 stýrði hann rekstri Bílanausts hf.

Page 29: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S28

N1 er að hluta til í ferðaþjónustu eins og uppbygging á útsölu-stöðum á landsbyggðinni ber glöggt vitni um. Sú starfsemi hefur vaxið jafnt og þétt með því að félagið hefur tekið í eigin rekstur eignir sem áður voru í útleigu hjá samstarfsaðilum. Útsölustaðir eins og Staðarskáli, Hlíðarendi á Hvolsvelli, skál-arnir á Blönduósi og Egilsstöðum eru þungamiðja þeirrar þjónustu sem ferðamenn sækja í hjá félaginu.

Umferð á árinu 2011 var í lágmarki og dróst hún saman 11 mánuði af 12 og nam samdrátturinn u.þ.b. 5% yfir árið í heild. Verklegar framkvæmdir voru í minnsta mæli og er samdráttur í verklegum framkvæmdum mældur í tugum prósenta frá 2007.

VIÐBURÐARÍKT ÁR

Rekstur félagsins gekk vel á árinu og var afkoman í samræmi við áætlanir. Stærsta verkefni ársins var að klára vinnu við fjárhags-lega endurskipulagningu félagsins í samstarfi við lánveitendur þess. Þeirri vinnu lauk formlega 24. júní þegar nýtt hlutafé var gefið út til kröfuhafa í stað þess eldra sem fært var niður að fullu. Efnahagur félagsins eftir þessa vinnu er sterkur og er eigið fé félagsins tæp 50% og langtímaskuldir hæfilegar miðað við afkomu félagsins. Í framhaldi af fjárhagslegri endurskipulagn-ingu var mörkuð sú stefna að skrá ætti félagið í kauphöll og mun sú vinna hefjast á árinu 2012.

Page 30: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 29

Mikill þróttur var í fiskveiðum og þjónustu félagsins við sjávar-útveg. Veiðar voru mjög hagkvæmar þar sem mikil veiði var á grunnslóð sem aftur dregur úr olíunotkun.

Aðaláherslan hefur nú sem fyrr verið á hátt þjónustustig á sama tíma og leitast er við að ná sem mestri hagkvæmni. Mikilvæg-asti árstíminn er yfir sumarið þegar tugir þúsunda erlendra og innlendra ferðamanna fara um landið þvert og endilangt með viðkomu á útsölustöðum sem sérstaklega eru hannaðir til að taka við ferðafólki.

N1 stundar sölu á flugeldsneyti og aldrei áður hefur verið selt

meira magn en á árinu 2011.

Harður vetur vann með félaginu í sölu á vetrarhjólbörðum og öðrum vetrarvarningi. Á móti kemur hins vegar að akstur dregst saman þegar færðin er slæm.

Það var síðan sumarið 2011 sem félagið kynnti til sögunnar N1 appið sem gerir ökumönnum kleift að greiða fyrir eldsneyti með snjallsíma. Það kom síðar á daginn að þetta er í fyrsta sinn sem viðlíka forrit hefur verið sett í umferð, mörg þúsund bíleigendur hafa þegar fengið sér forritið og margir nota það að staðaldri.

Í milljónum króna 2011

Tekjur 54.701EBITDA 2.108 Afkoma 4.509 Eigið fé 13.323 Eiginfjárhlutfall 51%Fjöldi starfsfólks 621

Lykiltölur

Page 31: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S30

Plastprent var stofnað árið 1957 til að framleiða og prenta á plastpoka en hefur vaxið og

þróast í takt við auknar kröfur viðskiptavina sinna um hagkvæmar umbúðalausnir. Plast-

prent framleiðir og flytur inn plastfilmur, plastpoka og ýmsar aðrar umbúðir. Félagið rekur

fullkomna verksmiðju og vöruhús að Fosshálsi 17–25 þar sem aðstaða er til filmublásturs,

klisjugerðar, prentunar, lamineringar og pokagerðar.

Page 32: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 31

(milljónir kr.)

*Aðlöguð EBITDA

(milljónir kr.)

TEKJUR EBITDA AFKOMA

0

500

1000

1500

2000

20112010 201120100

40

100

80

60

20

(milljónir kr.)

20112010-50

0

50

100

150

200

300

250

1.401

1.624 80*

94

279

-0,6

SPENNANDI TÍMAMÓT

Á árinu 2011 var rekinn endahnútur á umfangsmikla endur-skipulagningu á starfsemi Plastprents sem hófst árið 2010. Vörulager félagsins í Mosfellsbæ var lokað í byrjun febrúar og öll vöruhúsastarfsemi sameinuð á einum stað að Fosshálsi 17–25. Áhersla var lögð á endurbætur og viðhald í verksmiðju félagsins með það fyrir augum að bæta rekstraröryggi og auka afköst. Nokkrar breytingar voru gerðar á skipulagi félagsins með það að markmiði að bæta þjónustu við viðskiptavini og auka sölu. Söludeild félagsins var skipt upp í matvælasvið og rekstrarvörusvið þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu við viðskiptavini. Félagið vann umfangsmikið stefnumótunarverk-efni þar sem var horft til framtíðar. Plastprent þarf að breyta fyrirtækjamenningu sinni úr því að vera framleiðsludrifið plast-fyrirtæki í þjónustudrifið umbúðafyrirtæki. Til að ná þessu markmiði þarf Plastprent að útvíkka starfsemi sína inn á fleiri svið umbúðamarkaðarins. Samhliða verður lögð áhersla á að sinna sérstaklega stórum kaupendum og að veita framúrskar-andi ráðgjöf sem gerir okkur kleift að standa undir slagorðinu „Sérfræðingar í umbúðalausnum“.

Rekstur félagsins á árinu 2011 var í jafnvægi en heildartekjur voru 1.405 mkr, EBITDA* hagnaður 80 mkr og tap ársins 600 þús.kr. Tekjurnar drógust saman um 200 mkr á milli ára og munar þar mestu um að útflutningur umbúða og tekjur vegna Litháen drógust saman um ríflega 100 mkr á milli áranna 2010 og 2011. Félaginu hefur gengið vel að draga úr kostnaði sem hjálpaði mikið til við að skila jákvæðri afkomu á árinu 2011. Félagið býr við sterkan efnahag sem er góður grunnur að vexti til framtíðar.

ÁHERSLA Á SÖLU OG ÞJÓNUSTU

Á árinu 2012 verður stefnt að því að auka sölu innanlands með áherslu á sjávarútveg og innlenda matvælaframleiðslu. Endurbætur og nýfjárfestingar í verksmiðjunni munu bæta þjónustu félagsins og stytta afgreiðslutíma en auk þess er félagið að kynna áhugaverðar og hagkvæmar umbúðalausnir úr eigin framleiðslu og innflutningi.

Í milljónum króna 2011

Tekjur 1.401EBITDA 80* Afkoma -0,6 Eigið fé 287Eiginfjárhlutfall 41%Fjöldi stöðugilda 80*Aðlöguð EBITDA

Lykiltölur

Page 33: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S32

Uppruna Promens má rekja aftur til ársins 1984 þegar nokkrir fjárfestar festu kaup á vélum

gjaldþrota fyrirtækis í Garðabæ og fluttu þær norður á Dalvík til að skapa fleiri atvinnutæki-

færi í sinni heimabyggð. Félagið hlaut nafnið Sæplast og voru aðalframleiðsluvörur þess

einangruð fiskiker. Olli tilkoma þeirra byltingu í meðhöndlun og gæðum fiskafurða. Fljótlega

var hafinn útflutningur og eru Sæplast ker enn ráðandi í fiskiðnaði um allan heim, auk þess að

hafa haslað sér völl í kjötiðnaði og fleiri greinum matvælaiðnaðar.

Árið 1996 var fyrsta dótturfyrirtækið stofnað á Indlandi og á árunum sem fylgdu hóf félagið

innreið sína í Skandinavíu, Evrópu og Norður-Ameríku með kaupum á nokkrum félögum.

2004 kaupir Atorka Group félagið og breytir nafni þess í Promens. Í kjölfarið óx félagið mjög

hratt og rekur nú 45 verksmiðjur í 19 löndum og hjá því starfa um 4.200 manns.

Page 34: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 33

TEKJUR EBITDA AFKOMA

0

200

100

400

300

500

600

800

700

20112010

611,8

550,7

57,5

49,2

201120100

10

20

30

50

40

60

Tölur miðast við áframhaldandi starfsemi, eftir sölu eigna.

10,2

3,8

20112010

2

4

6

8

12

10

0

(milljónir evra) (milljónir evra) (milljónir evra)

ALÞJÓÐLEGT FÉLAG Í PLASTFRAMLEIÐSLU

Starfsemi Promens skiptist í 5 viðskiptasvið, umbúðir fyrir kemísk efni, matvæla- og drykkjavörusvið og snyrti- og lækn-ingavörusvið, farartækjasvið og stórumbúðasvið. Meðal við-skiptavina félagsins má finna nokkur af þekktustu fyrirtækjum heims í hverjum geira fyrir sig og má þar nefna Shell, Exxon Mobil og Dow AgroSciences á sviði kemískra efna; Arla, Kavli og TetraPack á sviði matvælaumbúða; Unilever, Oriflame og

Johnson&Johnson á sviði snyrtivöruumbúða og GlaxoSmith-Kline, Roche og Pfizer á sviði lækningaumbúða. Bifreiða-framleiðendur í viðskiptavinahópi Promens eru meðal annars Scania, Volvo, og Daimler á sviði vöru- og rútubifreiða og John Deer, Claas og Bomag á sviði landbúnaðar- og þunga-vinnuvéla.

Jakob Sigurðsson tók við starfi forstjóra Promens í september af Ragnhildi Geirsdóttur. Jakob er efnafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA frá Kellogg School of Management. Áður starfaði Jakob hjá efnafyrirtækinu Dow Chemical um langt skeið í Evrópu og Bandaríkjunum, var forstjóri Alfesca og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá deCODE.

STERKT EIGNARHALD OG GÓÐ AFKOMA

Árið 2011 var viðburðaríkt fyrir Promens. Í júlí festi Horn fjár-festingafélag kaup á 99% hlutafjár í félaginu og nokkrum dögum síðar keypti Framtakssjóður Íslands 40% eignarhlut, sem síðan var aukinn í 49,5%. 0,6% hlutafjár eru í eigu lykil-starfsmanna. Í desember var svo lokið við endurfjármögnun samstæðunnar til fimm ára með erlendum bönkum.

Rekstrarafkoma félagsins jókst annað árið í röð og var árið því hið besta frá því að fjármálakreppan skall á með fullum þunga 2009. Heildartekjur samstæðunnar námu 611,7 milljónum evra, sem er hækkun um 61 milljónir evra frá árinu áður. Próf-orma rekstrarhagnaður (EBITDA) var 57,5 milljónir evra eða 9.4%, samanborið við 49,2 milljónir evra, 8,9% 2010. Eigið fé félagsins var 149 milljónir evra og vaxtaberandi skuldir 155,4 milljónir evra. Hjá félaginu starfa um 3.870 manns, þar af flestir í Frakklandi 583, Þýskalandi 469 og Hollandi 427. Á Norður-löndum, öðrum en Íslandi, starfa 667 manns og starfsmenn á Íslandi eru um 80, á Dalvík, í Hafnarfirði og á aðalskrifstofu félagsins í Kópavogi.

Page 35: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S34

ÁHERSLA Á BESTUN FERLA

Promens hefur tekið miklum breytingum á undanförnum misserum, einkum hvað varðar hagræðingu og framleiðni-aukningu í verksmiðjum félagsins. Lengi má þó gera betur á þessu sviði og mun félagið halda áfram að vinna af krafti að því að bæta alla helstu ferla í framleiðslustýringu og dreifa því sem best gerist um alla samstæðuna. Einnig er lögð mikil áhersla á þjálfun söluteyma Promens sem og að nýta stærð samstæðunnar í innkaupum.

Vöruþróun og nýsköpun skipar mikilvægan sess hjá Promens. Promens Innovation Awards er samkeppni sem haldin er árlega innan samstæðunnar og eru þar veitt verðlaun í þrem flokkum; fyrir bestu nýju vöruna, fyrir besta verkefnið á sviði framleiðsluhagræðingar og fyrir besta söluverkefnið. Félagið hlaut á árinu nokkur alþjóðleg verðlaun á sviði nýsköpunar. Loftþéttar AirFree-snyrtivöruumbúðir hlutu hin eftirsóttu StarPack-umbúðaverðlaun og Ecosolution-kremdælan, sem einnig er byggð á AirFree-tækninni, hlaut umhverfisverðlaun LuxPack. Drumtainer sem er færanlegt, lekafrítt hulstur utan um tunnur fyrir efnavörur hlaut WorldStar og Hollensku umbúðaverðlaunin.

Page 36: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 35

FRAMTÍÐARSÝN

Nýir og öflugir eigendur komu að Promens á árinu 2011 og hefur það styrkt félagið enn frekar. Á komandi misserum mun einkum verða lögð áhersla á frekari hagræðingu og innri vöxt, byggðum á nýsköpun og nánu samstarfi við lykilviðskiptavini, en augun þó höfð opin fyrir góðum tækifærum sem kunna að gefast til fyrirtækjakaupa. Einnig verður lögð aukin áhersla á vöxt á nýjum markaðssvæðum. Reksturinn á Íslandi hefur gengið vel og á árinu var tekin ákvörðun og framkvæmdir hafnar við stækkun verksmiðju Promens á Dalvík.

Í milljónum evra 2011

Tekjur 611,7EBITDA 57,5 Afkoma 10,2 Eigið fé 149,0Eiginfjárhlutfall 31,2%Fjöldi starfsfólks 3.870Tölur miðast við áframhaldandi starfsemi, eftir sölu eigna.

Lykiltölur

Page 37: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S36

Vodafone er fjarskiptafyrirtæki sem býður einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opin-

berum aðilum alla meginþætti fjarskiptaþjónustu. Tugir þúsunda íslenskra heimila og yfir

hundrað þúsund einstaklingar nýta sér þjónustu Vodafone, sem einnig þjónustar öll stærstu

sveitarfélög landsins og mörg af stærstu fyrirtækjunum; banka, trygginga- og olíufélög, smá-

sölukeðjur, flutningafyrirtæki og háskóla, svo dæmi séu nefnd. Flestir sem sinna öryggis- og

neyðarþjónustu hafa valið Vodafone, þ.m.t. Neyðarlínan, Landsbjörg, Ríkisútvarpið, Land-

helgisgæslan, Securitas og Vegagerðin.

Um helmingur tekna fyrirtækisins kemur af þjónustu við fyrirtæki og helmingur af þjónustu

við einstaklinga.

VODAFONE

Page 38: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 37

(milljónir kr.)

TEKJUR

0

3000

6000

9000

12000

15000

20112010

(milljónir kr.)

EBITDA

201120100

1000

500

1500

2000

2500

3000

2.5992.415

12.637 12.727

(milljónir kr.)

AFKOMA

201120100

50

100

150

200

250

300

274

248

ÞJÓNUSTA SEM SKILAR HAGRÆÐINGU Í núverandi mynd var fyrirtækið stofnað árið 2003 við samruna þriggja fjarskiptafyrirtækja; Tals, Íslandssíma og Halló fjar-skipta sem ruddu brautina fyrir samkeppni eftir áralanga ein-okun ríkisins á fjarskiptamarkaði. Vodafone keypti auk þess netþjónustufyrirtækið Margmiðlun, gagnaflutningsfyrirtækið Línu.Net og færeyska fjarskiptafyrirtækið P/K Kall í Færeyjum, sem nú starfar undir nafninu Vodafone Færeyjar. Vodafone leggur áherslu á góða þjónustu, gott vöruúrval og sanngjarnt verð. Fyrirtækið hefur byggt upp öflug fjarskiptakerfi og veitir fyrirtækjum þjónustu um allt land, t.d. með því að tengja saman vinnustöðvar fyrirtækja eða útibú í ólíkum sveitar-félögum.

Þjónusta Vodafone hefur skilað viðskiptavinum góðum árangri og verulegri hagræðingu í rekstri. Fyrirtækið leggur sig fram við að skilja þarfir viðskiptavina, stórra og smárra,

og hefur sett sér það markmið að viðskiptavinirnir séu þeir ánægðustu á Íslandi. Vodafone byggir þjónustu og vöruúrval að miklu leyti á samstarfi við Vodafone Group Plc, stærsta og öflugasta farsímafélag í heimi. Alls njóta yfir 390 milljónir manna um allan heim þjónustu Vodafone og þeim fer sífellt fjölgandi.

Þetta alþjóðlega samstarf færir viðskiptavinum á Íslandi aukið vöruúrval, tryggir þeim betri þjónustu á ferðum erlendis og stuðlar að hagstæðara verði. Höfuðstöðvar Vodafone eru í Skútuvogi 2 í Reykjavík. Vodafone rekur fjórar verslanir; í verslunarmiðstöðvunum Kringlunni og Smáralind, í Skútuvogi 2 og Glerártorgi á Akureyri. Ómar Svavarsson er forstjóri Vodafone. Hann tók við starfi forstjóra í nóvember 2009, eftir að hafa verið framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Voda-fone frá árinu 2005. Áður starfaði Ómar sem framkvæmda-stjóri einstaklingssviðs hjá Sjóvá

Page 39: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S38

ÁR UPPBYGGINGAR

Eðlisbreyting varð á starfsemi Vodafone á árinu 2011. Snemma árs var tekinn í notkun ljósleiðarahringur um landið, sem gerði fyrirtækinu kleift að starfa á landsvísu með öðrum hætti en áður. Fyrirtækið varð sjálfu sér nægt um gagnasam-bönd og tengingar, sem það þurfti áður að kaupa af einum keppinautanna. Fyrir vikið sköpuðust tækifæri til raunveru-legrar samkeppni með fullu þjónustuframboði, þ.m.t. sjón-varpsþjónustu yfir ADSL eða ljósleiðaratengingar við heimili, á fjölmörgum stöðum þar sem slíkt var ekki raunhæft áður.

Neytendur tóku samkeppninni fagnandi og Vodafone fékk undantekningalaust góðar móttökur á umræddum svæðum.

Árið 2011 var ár uppbyggingar hjá Vodafone. Fyrirtækið réðst í mikla vinnu við að styrkja stoðirnar undir rekstrinum, vann að lagfæringum á ýmsum ferlum og mikil vinna fór í uppfærslur á innri kerfum. Kjarnabúnaði fyrir sjónvarpsþjónustu var skipt út, uppfærslur voru gerðar á Metróneti og gríðarleg vinna fór fram vegna endurnýjunar á reikningagerðarkerfi, en það þarf að tengjast öllum öðrum kerfum sem eru í rekstri og því er vinnan afar umfangsmikil.

Page 40: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 39

Margir stórir fjarskiptasamningar voru undirritaðir á árinu, m.a. við Reykjavíkurborg, Akureyrarbæ, Landsbankann, Heilsu-gæsluna í Reykjavík, Reykjanesbæ, Eimskip, Neyðarlínuna, Hörpu og Fjármálaeftirlitið. Sala í verslunum var yfir áætlun og með söluherferð á landsbyggðinni jókst markaðshlutdeild Vodafone umtalsvert. Ytri aðstæður í rekstrinum voru erfiðar. Almennar verðlags-hækkanir, auk kjarasamnings- og vaxtahækkana hittu fyrir-tækið illa fyrir á meðan tekjur af fjarskiptaþjónustu stóðu í stað. Talsverðar breytingar urðu hins vegar á tekjusamsetningunni,

Í milljónum króna 2011

Tekjur 12.727EBITDA 2.415Afkoma 248 Eigið fé 3.975Eiginfjárhlutfall 25%Fjöldi stöðugilda 377

Lykiltölur

þar sem tekjur af farsíma- og heildsöluþjónustu drógust nokkuð saman á meðan veruleg aukning varð á tekjum vegna sjónvarpsþjónustu.

Á við um Vodafone. Eigið fé Eignarhaldsfélagsins fjarskipti hf. er 4.368 m.kr. og eiginfjárhlutfall 27,6%.

Page 41: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S40

Page 42: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 41

2011ÁRSREIKNINGUR

Page 43: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S42

Kópavogur, 22. mars 2012

Deloitte ehf.

Guðmundur Kjartanssonendurskoðandi

Ábyrgð stjórnenda á ársreikningnum

Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu

ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga.

Samkvæmt því ber þeim að skipuleggja, innleiða og

viðhalda innra eftirliti sem varðar gerð og framsetningu

ársreiknings, þannig að hann sé í meginatriðum án

verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi

eða mistaka. Ábyrgð stjórnenda nær einnig til þess

að beitt sé viðeigandi reikningsskilaaðferðum og

reikningshaldslegu mati miðað við aðstæður.

Ábyrgð endurskoðenda

Ábyrgð okkar felst í því áliti sem við látum í ljós á ársreikningnum

á grundvelli endurskoðunarinnar. Endurskoðað var í

samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Samkvæmt

þeim ber okkur að fara eftir settum siðareglum og

skipuleggja og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg

vissa fáist um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka.

Endurskoðun felur í sér aðgerðir til staðfestingar

á fjárhæðum og skýringum í ársreikningnum. Val

endurskoðunaraðgerða byggir á faglegu mati

endurskoðandans, meðal annars á þeirri hættu að

verulegir annmarkar séu á ársreikningnum, hvort sem

er af völdum sviksemi eða mistaka. Við áhættumatið er

tekið tillit til þess innra eftirlits félagsins sem varðar gerð

og framsetningu ársreikningsins, til þess að skipuleggja

viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til þess að

gefa álit á virkni innra eftirlits fyrirtækisins. Endurskoðun

felur einnig í sér mat á þeim reikningsskilaaðferðum

og matsaðferðum sem stjórnendur nota við gerð

ársreikningsins sem og mat á framsetningu hans í heild.

Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað

nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Álit

Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd

af afkomu félagsins á árinu 2011, efnahag þess 31.

desember 2011 og breytingu á handbæru fé á árinu

2011, í samræmi við lög um ársreikninga.

Áritun óháðs endurskoðanda

Page 44: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 43

Reykjavík, 22. mars 2012

Í stjórn:Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarmaður

Framkvæmdastjóri:Brynjólfur Bjarnason

Framtakssjóður Íslands slhf. var stofnaður í lok árs

2009 og er tilgangur félagsins að fjárfesta í íslenskum

fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum.

Ársreikningur Framtakssjóðs Íslands slhf. fyrir árið

2011 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga.

Eignarhlutar í félögum eru færðir á kostnaðarverði

að því undanskildu að eignarhlutar í félögum sem

eru með hlutabréf sín skráð á markaði og teljast ekki

hlutdeildarfélög eru færðir á síðasta skráða gengi

hlutabréfa í kauphöll í lok árs.

Hagnaður Framtakssjóðs Íslands slhf. á árinu 2011

nam kr. 2.343.980.117. Arðsemi eigin fjár félagsins

var um 13,3%. Samkvæmt efnahagsreikningi nema

heildareignir félagsins kr. 28.152.603.128 og bókfært

eigið fé í árslok er kr. 27.547.396.427. Eiginfjárhlutfallið

er um 97,9%. Eins og fram kemur í skýringu nr. 5 með

ársreikningi er áætlað gangvirði þeirra eignarhluta sem

sjóðurinn hefur fjárfest í ekki undir 39.344 milljónum

króna. Bókfært verð sömu eigna er um 27.235 milljónir

króna.

Í ársbyrjun 2011 eignaðist Framtakssjóðurinn alla hluti

í Eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. (Vestia) og 81% hlut

í Icelandic Group hf. (IG) auk kaupréttar að 19% hlut í

sama félagi. Á árinu framseldi Framtakssjóðurinn þennan

kauprétt sinn auk 13,3% hlutar í IG til félagsins sjálfs.

Framtakssjóðurinn ásamt Vestia, sem á óverulegan hlut,

eru einu hluthafar IG. Í eignasafni Vestia í árslok 2011

eru auk eignarhlutarins í IG; 57,9% eignarhlutur í Skýrr

hf., 61% hlutur í Eignarhaldsfélaginu Fjarskipti hf., 50%

eignarhlutur í Holtavegur 10 ehf. (áður Húsasmiðjan

ehf.) og 100% eignarhlutur í Plastprenti ehf.

Auk þessa fjárfesti Framtakssjóðurinn á árinu 2011 í

17,5% hlut í Skýrr hf., í 18,4% hlut í Eignarhaldsfélaginu

Fjarskipti hf., í 15,8% hlut í N1 hf. og í 49,5%

hlut í Promens hf. Beinn og óbeinn eignarhlutur

Framtakssjóðsins í Skýrr hf. nemur því samtals 75,4%

og í eignarhaldsfélaginu Fjarskipti hf. 79,5%. Stjórn

Framtakssjóðsins hefur tekið ákvörðun um að slíta

Eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. á árinu 2012 og við

það munu eignarhlutar í safni þess félags færast yfir til

Framtakssjóðsins.

Í lok ársins voru hluthafar í félaginu 19 en voru 17 í

upphafi árs. Þrír hluthafar eiga hver um sig meira en

10% hlutafjár en þeir eru NBI hf. 27,6%, Lífeyrissjóður

verzlunarmanna 19,9% og Gildi lífeyrissjóður 10,4%.

Það er álit stjórnar og framkvæmdastjóra Framtakssjóðs

Íslands slhf. að í ársreikningi þessum komi fram allar

upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að glöggva sig

á stöðu félagsins í árslok, rekstrarárangri ársins og

fjárhagslegri þróun á árinu. Stjórn og framkvæmdastjóri

Framtakssjóðs Íslands slhf. staðfesta hér með ársreikning

félagsins fyrir árið 2011 með undirritun sinni.

Skýrsla stjórnar

Page 45: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S44

Skýr. 2011 2010

Vaxtatekjur 3 28.259.090 46.921.005 Innleystur söluhagnaður eignarhluta 5 1.458.983.718 0 Hækkun markaðsverðs eignarhluta 5 1.462.014.371 942.850.713 2.949.257.179 989.771.718

Virðisrýrnun eignarhluta 5 (250.000.000) 0 Rekstrar- og stjórnunarkostnaður (179.978.626) (80.659.905)Beinn kostnaður vegna fjárfestinga (173.183.717) (208.497.915)Annar rekstrarkostnaður (2.016.142) (17.200) Rekstrarhagnaður 2.344.078.694 700.596.698 Fjármagnsgjöld 4 (98.577) (22.851) Hagnaður ársins 2.343.980.117 700.573.847

Rekstrarreikningur ársins 2011

Page 46: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 45

Eignir Skýr. 31.12.2011 31.12 2010Fjárfestingar Eignarhlutar í félögum á kostnaðarverði 5 22.453.423.297 0 Eignarhlutar í félögum á markaðsverði 5 4.781.213.982 4.569.199.611 27.234.637.279 4.569.199.611

Veltufjármunir Kröfur á tengd félög 9 30.088.882 52.766.782 Aðrar skammtímakröfur 6 5.651.812 8.445.775 Handbært fé 6 882.225.155 963.941.511 917.965.849 1.025.154.068 Eignir 28.152.603.128 5.594.353.679 Eigið fé og skuldir 31.12.2011 31.12 2010Eigið fé 7 Hlutafé 24.506.240 4.235.833 Yfirverðsreikningur 24.481.734.251 4.231.597.167 Óráðstafað eigið fé 3.041.155.936 697.175.819 Eigið fé 27.547.396.427 4.933.008.819 Skammtímaskuldir Skuldir við tengd félög 9 17.211.844 0 Ógreitt vegna fjárfestinga 558.280.027 626.348.898 Aðrar skammtímaskuldir 8 29.714.830 34.995.962 Skuldir 605.206.701 661.344.860 Eigið fé og skuldir 28.152.603.128 5.594.353.679

Efnahagsreikningur 31. desember 2011

Page 47: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S46

Skýr. 2011 2010Rekstrarhreyfingar Rekstrarhagnaður 2.344.078.694 700.596.698 Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga 5 (1.462.014.371) (942.850.713)Virðisrýrnun eignarhluta 5 250.000.000 0 Hreint veltufé frá (til) rekstrar 1.132.064.323 (242.254.015) Breyting rekstrartengdra eigna og skulda: Rekstrartengdar eignir, (hækkun) 55.560.745 (61.210.717)Rekstrartengdar skuldir, hækkun 11.930.712 31.585.661 Handbært fé frá rekstri (til rekstrar) án vaxta og skatta 1.199.555.780 (271.879.071)Greiddir vextir (98.577) (22.851)Handbært fé frá rekstri (til rekstrar) 1.199.457.203 (271.901.922) Fjárfestingahreyfingar Keypt/seld fjárfestingaverðbréf 5 (21.521.492.168) (3.000.000.000)Hækkun/(lækkun) á kröfum á tengd félög (30.088.882) 0 (21.551.581.050) (3.000.000.000)

Fjármögnunarhreyfingar Innborgað hlutafé 7 22.979.391.212 4.231.833.000 Útborgað hlutafé 7 (2.708.983.721) 0 20.270.407.491 4.231.833.000 (Lækkun), hækkun handbærs fjár (81.716.356) 959.931.078 Handbært fé í upphafi árs 963.941.511 4.010.433 Handbært fé í lok árs 882.225.155 963.941.511

Yfirlit um sjóðstreymi ársins 2011

Page 48: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 47

Skýringar

1. Starfsemi

Framtakssjóður Íslands slhf. var stofnaður á árinu 2009 og er tilgangur félagsins að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum.

Framtakssjóður Íslands slhf. er samlagshlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Samlagshlutafélag er sú tegund samlagsfélaga þar sem einn eða fleiri félagsmenn (ábyrgðaraðilar) bera beina og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins en aðrir félagsmenn (hluthafar), einn eða fleiri, bera takmarkaða ábyrgð á grundvelli framlaga sem mynda hlutafé í félaginu. Ábyrgðaraðilar geta jafnframt verið hluthafar.

2. Reikningsskilaaðferðir

Grundvöllur reikningsskilannaÁrsreikningur Framtakssjóðs Íslands slhf. fyrir árið 2011 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur. Ársreikningurinn byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum að því undanskildu að markaðsbréf eru færð á gangverði. Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum.

Eftirfarandi er samantekt á helstu reikningsskilaaðferðum félagsins.

Mat og ákvarðanirVið gerð ársreiknings þurfa stjórnendur, í samræmi við lög um ársreikninga, að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, upplýsingar í skýringum og tekjur og gjöld. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og mynda grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti.

Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili þegar þær eiga sér stað.

VaxtatekjurVaxtatekjur eru færðar fyrir viðkomandi tímabil í samræmi við viðeigandi höfuðstól og vaxtaprósentu.

Fjármagnskostnaður Allur fjármagnskostnaður er færður í rekstrarreikning á því tímabili sem hann fellur til.

Skattamál Félagið er ekki sjálfstæður skattaðili og skattar eru því ekki reiknaðir í ársreikningnum.

VirðisrýrnunÁ hverjum reikningsskiladegi er bókfært verð eigna metið með tilliti til virðisrýrnunar. Komi fram vísbending um virðisrýrnun er endurheimtanlegt virði eignarinnar metið í því skyni að hægt sé að ákvarða hversu víðtæk virðisrýrnun er sé um slíkt að ræða.

Eignarhlutar í félögum á kostnaðarverðiEignarhlutar í félögum sem eru færðir á kostnaðarverði eru eignarhlutar í dóttur- og hlutdeildarfélögum. Eignarhlutarnir eru metnir á kostnaðarverði að teknu tilliti til virðisrýrnunar.

Eignarhlutar í félögum á markaðsverðiEignarhlutar í félögum sem eru færðir á markaðsverði eru þeir eignarhlutar sem skráðir eru á virkum markaði og keyptir í þeim tilgangi að hagnast á verðbreytingum á skipulögðum markaði. Þeir eru færðir á markaðsverði og færist matsbreyting í rekstrarreikning á því tímabili sem hún fellur til.

Page 49: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S48

3. Vaxtatekjur 2011 2010

Vaxtatekjur af bankainnstæðum 28.259.090 46.921.005

28.259.090 46.921.005

4. Fjármagnsgjöld

2011 2010

Vaxtagjöld 2.001 22.851

Stimpilgjöld 96.576 0

98.577 22.851

5. Eignarhlutar í félögum

2011 2010

Eignarhlutar í félögum færðir á kostnaðarverði: Staða í ársbyrjun 0 0

Keypt á árinu 25.903.423.297 0

Selt á árinu (3.200.000.000) 0

Virðisrýrnun (250.000.000) 0

Kostnaðarverð í árslok 22.453.423.297 0

Eignarhlutir í félögum færðir á markaðsverði:

Staða í ársbyrjun 4.569.199.611 3.626.348.898

Fært í markaðsverð 1.462.014.371 942.850.713

Selt á árinu (2.708.983.718) 0

Innleystur söluhagnaður 1.458.983.718 0

Bókfært verð eignarhlutar í árslok 4.781.213.982 4.569.199.611

Skýringar

Page 50: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 49

Hlutdeild % Nafnverð Markaðsgengi

Eignarhlutur í Icelandic Group hf. 100,0% 1.890.927.599

Eignarhlutur í Eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. 100,0% 3.490.825.981

Eignarhlutur í Skýrr hf. (Advania hf.) 17,5% 410.712.707

Eignarhlutur í Eignarhaldsfélaginu Fjarskipti hf. 18,4% 758.077.011

Eignarhlutur í Promens hf. (nafnverð í EUR) 49,5% 28.234.814

Eignarhlutur í N1 hf. 15,8% 157.787.449

Eignarhlutur í Icelandair Group hf. 19,2% 950.539.559 5,03

Í eignasafni Vestia ehf. í árslok 2011 eru 57,9% eignarhlutur í Skýrr hf., 61% hlutur í Eignarhaldsfélaginu Fjarskipti hf., 50% eignarhlutur í Holtavegur 10 ehf. (áður Húsasmiðjan ehf.) og 100% eignarhlutur í Plastprenti ehf. Beinn og óbeinn eignarhlutur Framtakssjóðsins í Skýrr hf. nemur því samtals 75,4% og í Eignarhaldsfélaginu Fjarskipti hf. 79,5%.

Á árinu 2011 var rekstur ásamt eignum Húsasmiðjunnar ehf. seldur til Bygma Ísland ehf. og nafni Húsamiðjunnar ehf. breytt í Holtaveg 10 ehf. Í árslok 2011 var færð 250 milljóna króna virðisrýrnun á fjárfestingu Vestia í bókum Framtakssjóðsins.

Félagið hefur lagt mat á áætlað gangvirði þeirra eignarhluta sem fjárfest hefur verið í og er metið að það sé ekki undir 39.344 milljónum króna. Bókfært verð sömu eigna er 27.235 milljónir króna.

Áætlað gangvirði miðast við niðurstöður virðisrýrnunarprófa undirliggjandi eigna. Við gerð virðisrýrnunarprófs er stuðst við núvirt framtíðarsjóðsflæði hverrar einingar sem byggir á áætlunum viðkomandi félaga og ávöxtunarkröfu þeirra.

6. Aðrar peningalegar eignir

Aðrar skammtímakröfur

31.12.2011 31.12 2010

Fjármagnstekjuskattur 5.651.812 8.445.775

5.651.812 8.445.775

Handbært fé

31.12.2011 31.12 2010

Óbundnar bankainnstæður í íslenskum krónum 882.225.155 963.941.511

882.225.155 963.941.511

Skýringar

Page 51: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S50

7. Eigið fé

Hlutafé félagsins var aukið um kr. 22.979.392 á árinu með innköllun nýrra hluta. Hlutafé greitt til hluthafa á árinu nam kr. 2.707.985. Hver króna nafnverðs jafngildir einu atkvæði.

Eigið fé greinist þannig: Yfirverðs- Óráðstafað Hlutafé reikningur eigið fé Samtals

Eigið fé 1.1.2010 4.000.000 (3.398.028) 601.972

Nýtt hlutafé 4.231.833.000 4.231.833.000

Lækkun hlutafjár (4.231.597.167) 4.231.597.167 0

Hagnaður ársins 700.573.847 700.573.847

Eigið fé 1.1 2011 4.235.833 4.231.597.167 697.175.819 4.933.008.819

Nýtt hlutafé 22.979.392 22.956.411.820 22.979.391.212

Lækkun hlutafjár (2.708.985) (2.706.274.736) (2.708.983.721)

Hagnaður ársins 2.343.980.117 2.343.980.117

Eigið fé 31.12 2011 24.506.240 24.481.734.251 3.041.155.936 27.547.396.427

Innborgað - Hluthafar: útborgað Hlutafé alls Hlutdeild í eigin fé

Landsbankinn hf. 27,59% 6.760.979.514 6.760.980 7.599.998.731

Lífeyrissjóður verzlunarmanna 19,91% 4.880.075.013 4.880.075 5.485.678.690

Gildi lífeyrissjóður 10,39% 2.546.635.617 2.546.635 2.862.665.643

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-deild 7,36% 1.802.927.870 1.802.927 2.026.664.928

Sameinaði lífeyrissjóðurinn 7,72% 1.893.074.264 1.893.074 2.127.999.492

Stafir lífeyrissjóður 5,52% 1.352.195.903 1.352.195 1.519.998.134

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 6,62% 1.622.635.083 1.622.635 1.823.999.565

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga 2,76% 676.097.951 676.098 759.999.819

Festa lífeyrissjóður 2,76% 676.097.951 676.098 759.999.819

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 1,47% 360.585.574 360.586 405.333.237

Almenni lífeyrissjóðurinn 1,84% 450.731.968 450.732 506.666.546

Lífeyrissjóður Vestfirðinga 1,10% 270.439.181 270.440 304.000.976

Lífeyrissjóður bankamanna aldursdeild 1,24% 304.694.810 304.696 342.507.998

Eftirlaunasjóður FÍA 0,77% 189.307.426 189.307 212.799.949

Lífeyrissjóður verkfræðinga 1,10% 270.439.181 270.440 304.000.638

Lífeyrissjóður Rangæinga 0,58% 143.332.766 143.333 161.119.962

Íslenski lífeyrissjóðurinn 0,68% 166.770.828 166.771 187.466.613

VÍS hf. 0,55% 135.219.590 135.219 151.999.300

Framtakssjóður Íslands GP ehf. 0,02% 4.000.000 4.000 4.496.389

24.506.240.491 24.506.240 27.547.396.427

Skýringar

Page 52: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

Á R S S K Ý R S L A 2 0 1 1 51

8. Aðrar peningalegar skuldir

Aðrar skammtímaskuldir

31.12.2011 31.12 2010

Ógreiddur kostnaður 29.714.830 34.995.962

29.714.830 34.995.962

9. Tengdir aðilar

Tengdir aðilar eru þeir aðilar sem hafa umtalsverð áhrif á félagið, beint eða óbeint, þ.m.t. móðurfélag, eigendur og fjölskyldur þeirra, stórir fjárfestar, lykilstarfsmenn og fjölskyldur sem og aðilar sem er stjórnað af eða eru verulega háðir félaginu, s.s. hlutdeildarfélög og samrekstrarfélög. Viðskipti við tengda aðila hafa verið gerð á sambærilegum grundvelli og viðskipti við ótengda aðila. Framtakssjóður GP ehf. er ábyrgðaraðili Framtakssjóðs Íslands slhf. og ber beina ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins en aðrir hluthafar bera takmarkaða ábyrgð á grundvelli framlaga.

Upplýsingar varðandi tengda aðila eru eftirfarandi:

Viðskipti við tengd félög árið 2011:

Keypt þjónusta Seld þjónusta Kröfur Skuldir

FSÍ GP ehf., ábyrgðaraðili 179.978.626 0 0 17.211.844

Icelandic Group, dótturfélag 0 0 30.088.882 0

179.978.626 0 30.088.882 17.211.844

Viðskipti við tengd félög árið 2010:

Keypt þjónusta Seld þjónusta Kröfur Skuldir

FSÍ GP ehf., ábyrgðaraðili 80.659.905 0 0 52.766.782 0

80.659.905 0 52.766.782 0

10. Ábyrgðir og önnur mál

Arion banki hf. hefur samþykkt kauptilboð Framtakssjóðs Íslands slhf. í alla hluti bankans í N1 hf. Um er að ræða 39,03% hlut í N1 hf. og eru kaupin háð ákveðnum fyrirvörum, m.a. samþykki Samkeppniseftirlitsins. Ekki er hægt að greina frá tilboðsverðinu á þessu stigi. Enn er óvíst hvort af kaupunum verði þar sem samþykki Samkeppniseftirlitsins liggur ekki fyrir.

11. Atburðir eftir lok reikningsskiladags

Eftir lok reikningsskiladags seldi Framtakssjóðurinn Hömlum hf. hlut Vestia í Holtavegi 10 hf. (áður Húsasmiðjan hf.) og munu viðskiptin ekki hafa áhrif á afkomu sjóðsins. Eftir viðskiptin á Vestia ekki eignarhlut í Holtavegi 10.

Skýringar

Page 53: Ársskýrsla 2011...bankanum seint á árinu 2010. Ráðist var í tvær stórar fjárfestingar árið 2011, annars vegar kaup á 49,5% hlut í Promens og hins vegar 16% hlut í N1

F R A M T A K S S J Ó Ð U R Í S L A N D S52

12. Samþykki ársreiknings

Ársreikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi þann 22. mars 2012.

13. Kennitölur

Úr rekstrarreikningi: 2011 2010

Arðsemi

Hagnaður ársins 2.343.980.117 700.573.847

Arðsemi eigin fjár – Hagnaður/vegin meðalstaða eigin fjár 13,3% 49,3%

Úr efnahagsreikningi: 31.12.2011 31.12 2010

Fjárhagslegur styrkur

Innra virði hlutafjár – Eigið fé/hlutafé 1124,10 1164,59

Eiginfjárhlutfall – Eigið fé/Skuldir og eigið fé 97,9% 88,2%

Skýringar