fiskeldi við eyjafjörð 2015

22
27.4.2015 2015©[email protected] 1 Umfang og áhrif fyrirhugaðs sjókvíaeldis á norskum laxi í Eyjafirði Apríl 2015 erlendursteinar @ gmail . com elliveidir.blogspot.com

Upload: erlendur-steinar-fridriksson

Post on 27-Jul-2015

90 views

Category:

Environment


3 download

TRANSCRIPT

Page 1: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 127.4.2015

Umfang og áhrif fyrirhugaðs sjókvíaeldis á norskum laxi

í Eyjafirði

Apríl [email protected]

elliveidir.blogspot.com

Page 2: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 227.4.2015

Umfang og áhrif fyrirhugaðs sjókvíaeldis á norskum laxi

í Eyjafirði

• Sjókvíaeldi á norskum laxi í Eyjafirði, rétt norðan Hörgárósa • 2,4 milljónir laxa í 30 mánuði• Heildarveiðin á laxi, bleikju og urriða á Íslandi í 20 ár!!!!!!• 2.400 laxar sleppa árlega (norskt meðaltal) - ef slys þá gætu milljón laxa sloppið

• Leitar upp í nær- og fjærliggjandi ár - jafnvel 2.000 km• <100 km frá Fnjóská, Fljótaá, Flókadalsá, Laxá í Aðaldal, Mýrarkvísl, Skjálfandafljót og Reykjadalsá

• Þar veiðast 3.000 laxar á ári (meðaltal ´05-´14)

• Veiðin í Fnjóska er 500 laxar á ári (meðaltal 2005-2014)

• 25 veiðiár innan 120 km

Page 3: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 327.4.2015

• Eldissvæðið er 3,5 km2 (3*1,2)

• 5% af flatarmáli Eyjafjarðar Hjalteyri að ósi Eyjafjarðarár

• Á stærð við PollinnLeirubrú og norður í slipp

• 2 km að Hörgár• 6 km að Fnjóská• 15 km að Eyjafjarðará• 80 km að Laxá í Aðaldal• 25 veiðiár innan 120 km

Page 4: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 427.4.2015

25 veiðiár innan 120 km frá (sundlína)

fyrirhuguðu eldi á 2.400.000 norskum löxum

Page 5: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 527.4.2015

Page 6: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 627.4.2015

Page 7: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 7

Áhrifin – sértækt og almennt:

Strokfiskur - erfðablöndun

Laxalús

Sjúkdómar og sníkjudýr

Lífrænn úrgangur frá eldinu

Ólífrænn úrgangur frá eldinu

Notkun á stórum svæðum sjávar

Ógnar lífsgæðum tugþúsunda Íslendinga og rótgróinni atvinnugrein

27.4.2015

Page 8: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 827.4.2015

• Eldislax (Norskur kynbættur) sleppur úr kvíum– 0,1% meðaltal– Syndir allt að 2.000 km, leitar í ár og hrygnir – Blandast við náttúrulegan stofn– Rýrir afkomumöguleika hans

• Íslenski laxastofninn– 11.000 ára sérhæfing í íslenskum aðstæðum– Norskur lax sérhæft sig að norskum aðstæðum í svipað langan tíma. Því er villtu stofnarnir eru

mjög ólíkir.

• Norski eldisstofninn er kynbættur og sérhæfður til að vaxa hratt á stuttum tíma– Svipað og kjúklingur í kjúklingarækt.

• Blöndum við náttúrulegan => – Afkvæmin vanhæfari í lífsbaráttunni– Afföll aukast og lífsferlar raskast– Blöndun til langs tíma gefur af sér nýjan stofn með rýrari afkomumöguleika

Erfðablöndun

Page 9: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 9

700.000 laxar sluppu þegar Berit gekk yfir Noreg.http://www.nrk.no/nyheter/distrikt/nrk_trondelag/1.7895984

Og hvað með það?

• Eldisfiskur sleppur og skaðar innlenda laxastofna• Hraðvaxta norskur stofn ýtir íslensku stofnunum til hliðar á hrygningartímanum og

minnkar möguleika íslensku afkvæmanna• Þó eldisfiskurinn geti átt afkvæmi er óvíst að þau geti bjargað sér eins vel og þau

íslensku• Eldisfiskar og villtir fiskar geta samt átt afkvæmi saman!• Eldisfiskar erfðafræðilega frábrugðnir• Annar landfræðilegur uppruni, minni erfðabreytileiki, óbeint eða beint val og

genaflökt• Stór hluti laxfiska sem gengur upp í ár í Noregi er eldisfiskur

Villtir laxastofnar eru í mikilli hættu, útdauðir í 27% áa í heiminum og í útrýmingarhættu í mörgum öðrum ám

27.4.2015

Page 10: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 1027.4.2015

Page 11: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 11

Laxeldi er vaxandi atvinnugrein og eru lönd eins og Noregur, Skotland og Kanada að framleiða gífurlega mikið magn af laxi. Þessi þrjú lönd eru stærstu framleiðendurnir í Norður Atlantshafinu en framleiðsla þessara landa var samtals 48% af heildarframleiðslu heimsins í laxeldi árið 2005. Talið er að um tvær milljónir laxfiska sleppi úr eldisstöðvum í Norður Atlantshafið á hverju ári, en þessi fjöldi jafnast á við um 50% af villta laxastofninum á svæðinu. Fiskarnir sleppa bæði við reglubundna meðhöndlun auk þess sem ýmis atvik, s.s. ofsaveður, getur leitt til þess að gífurlegur fjöldi fiska sleppa. Framleiðslufyrirtækjunum ber skylda til að tilkynna það til stjórnvalda ef laxar sleppa úr eldi þeirra en svo virðist sem að mörg fyrirtæki vanræki þá skyldu og því er í raun ekki vitað með vissu hversu mikið af eldislaxi sleppur út í náttúruna. Á árunum 1993-2005 sluppu að meðaltali 440 þúsund eldislaxar á hverju ári í Noregi og er hér aðeins um að ræða þau atvik sem voru tilkynnt til stjórnvalda.Eldislaxarnir sleppa bæði við reglubundna meðhöndlun auk þess sem ýmis atvik, s.s. ofsaveður, getur leitt til þess að gífurlegur fjöldi fiska sleppa. Þessi mynd er tekin í Fundy flóa við Atlantshafsströnd Norður Ameríku, en hann liggur á milli New Brunswick í Kanada og Nova Scotia. Fiskeldi í flóanum verða fyrir miklum áhrifum að veðrum og vindum og er Atlantshafslaxinn að sleppa þarna í gífurlegu magni og af þeim sökum er villti stofn Atlantshafslaxins á svæðinu sagður í útrýmingarhættu.http://asf.ca/news.php?id=617

• Talið er að um einn þriðji þeirra laxfiska sem ganga upp í árnar í Noregi sé því eldisfiskur og nær þetta hlutfall hátt upp í 80% í stöku tilfellum. • Við austurströnd Norður Ameríku er ástandið einnig orðið gífurlega slæmt þar sem að eldislaxar hafa hreinlega yfirtekið sumar ár þannig að fjöldi þeirra er 10 eldisfiskar á hvern villtan lax. Þar

sem að villtir stofnar Atlantshafslaxins eru útdauðir í um 27% áa og er í útrýmingarhættu í mörgum öðrum ám er ljóst að vandamálið er gífurlegt.• Eldislaxarnir eru erfðafræðilega frábrugðnir þeim villta, bæði vegna mismunandi landfræðilegs uppruna sem og vegna ýmissa þátta sem ræktun á eldisfiski hefur á genamengi laxanna, s.s.

minnkandi erfðabreytileiki vegna skyldleikaæxlunar, óbeint eða beint val ýmissa eiginleika og genaflökt. Þrátt fyrir þetta allt er eldisfiskurinn fær um að tímgast við villta laxinn.• Oft hægt að þekkja eldislaxa í sundur frá villtum löxum út frá útlitinu. Þeir eru aðeins öðruvísi í laginu, hreistrið er aðeins mismunandi auk þess sem þeir eru erfðafræðilega frábrugðnir eins og

komið hefur fram. Það er hinsvegar erfiðara að þekkja eldislaxa í sundur frá í sjó, voru áhrifin skoðuð bæði fyrir ferskvatnsstigið og sjóstigið og svo auðvitað áhrifin sem urðu á ferðalag þeirra í eða úr sjónum. villtum löxum útlitslega ef að eldislaxarnir sluppu snemma á lífsferlinum

• Í dag hafa tiltölulega miklar rannsóknir farið fram á mögulega neikvæðum áhrifum eldislaxa sem sleppa út í náttúruna á stofna villtra Atlantshafslaxa. Neikvæð áhrif vegna eldislaxanna virðast koma fram bæði í vistfræðilegum- og erfðafræðilegum skilningi og hafa fyrri rannsóknir sýnt fram á að kynblöndun eldislaxa við villta laxa geti leitt af sér styttri lifun, minni hæfni og æxlunarárangur í að minnsta kosti tvær kynslóðir. Í þessum fyrirlestri verður megináhersla lögð á rannsókn McGinnity, Prodohl et al. 2003. Hér er um að ræða ákveðna tímamótarannsókn á þessu sviði. Fyrri rannsóknir á áhrifum eldisfiska á villta stofna höfðu áður aðeins falið í sér rannsóknir á hæfni F1 blendinga eldis- og villtra fiska eins og þið getið séð hérna á töflunni. Í þessari rannsókn voru hins vegar tvær kynslóðir blendinga skoðaðar (F1 og F2) Þetta var gert vegna þess að fyrstu kynslóðir blendinga (F1) sýna oft meðal- eða jafnvel meiri hæfni í samanburði við foreldra sína. F2 geta svo aftur sýnt minni hæfni, en þetta er nokkuð sem kallast ,,outbreeding depression”. Auk F2 blendinga voru líka framkvæmdar bakæxlanir þar sem að F1 blendingum var æxlað við annars vegar villta laxa og hins vegar eldislaxa. Þar sem að laxinn er ferskvatnssækinn farfiskur og lifir hluta lífsferils síns

• Unnið var með þrjá mismunandi árganga frá árunum 1993, 1994 og 1998. Fyrir hvern þessara árganga voru æxlanir framkvæmdar til að fá út:• F1 blending (villtur kvk x eldis kk) og F1 blending (eldis kvk x villtur kk).• Fyrir 1998 hópinn voru líka myndaðir F2 blendingar (F1 x F1), BC1 villtur backcross (F1 x villtur) og BC1 eldis backcross (F1 x eldis).• Framkvæmdar voru æxlanir þannig að 500-800 hrogn urðu til á hverja fjölskyldu og tekin voru vefsýni úr foreldrum til DNA-greiningar.• Fyrri rannsóknir hafa sýnt að eldislax hafi æxlunaratferli sem er frábrugðið því hjá villta laxinum og leiðir það til minni æxlunarárangurs eldislaxa. Þessi rannsókn McGinnity og félaga

ýtir enn frekar undir þessa tilgátu. Glögg merki þess að um ,,outbreeding depression” væri að ræða hjá F2 blendingum komu fram en það virðist þó bara koma fram á fyrstu þroskastigum þannig að þeir einstaklingar sem komast í gegnum fyrstu þroskastigin verða ekki fyrir enn frekari áhrifum outbreeding depression.

• Beint og óbeint val auk genaflökts sem á sér stað í ræktun eldisfisks veldur miklum breytingum í hegðunar- og lífeðlisfræðilegum þáttum sem geta minnkað hæfni fiskanna til að lifa við náttúrulegar aðstæður. Þetta val í ræktun eldisfiska hefur gjarnan leitt til aukinnar framleiðslu vaxtarhormóna hjá eldisfiskunum sem um leið veldur aukinni árásarhneigð og um leið lakari viðbrögðum laxins gegn afránshættu. Þessi aukna árásargirni og hraðari vöxtur fiskana á fyrstu þroskastigum þeirra leiðir þó til þess að ungviði eldisfiska hefur gjarnan betur í samkeppni við villta laxa. Áhrif vegna þessarar samkeppni eru þó mismunandi eftir aðstæðum, þ.e. árásargirni eldisseiða gagnvart villtum seiðum dugir ekki ein og sér heldur þurfa eldisseiðin að vera fær um að lifa af þær erfiðu aðstæður sem myndast á leið þeirra niður í sjó. Séu aðstæður nógu góðar er líklegt að eldisseiðin sigri í samkeppni við villtu seiðin. En í ljósi þess að rannsókn þessi sýndi fram á að eldislaxinn lifir sjódvölina síður af en villtir laxar kemur þessi samkeppni fram í lakari hæfni villta stofnsins án tillits til genabreytinga stofnsins.

• Bakæxlun F1 blendinga við villta fiska leiðir af sér genablöndun frá eldislöxum til villtra laxa. Þar sem fáir stofnar laxfiska eru notaðir í laxeldi, kemur þetta genaflæði til með að minnka þann genafjölbreytileika sem til staðar er í stofnum Atlantshafslaxa sem mun enn frekar leiða til skertrar aðlögunarhæfni tegundarinnar.

• Samkvæmt þessu byggist minnkun í hæfni villta stofnsins á mörgum þáttum. Mikilvægt er að skilja að í raun þarf ekki mikil minnkun á hæfni að eiga sér stað til þess að breytingar á stofnstærðinni verði miklar. Þar sem að ræktun eldisfiska fer fram í lokuðu umhverfi geta niðurstöður þessarar rannsóknar hæglega verið yfirfærðar á margar aðstæður þar sem ræktuðum dýrum er sleppt í náttúrulegt umhverfi sitt þar sem fyrir eru villtir einstaklingar sömu tegundar.http://www.nina.no/archive/nina/PppBasePdf/temahefte/036.pdf http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC1691531/pdf/14667333.pdf

27.4.2015

Page 12: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 1227.4.2015

Page 13: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 13

Samhengið

• Flytjum inn breska kolanámudráttarklára (eða arabíska

gæðinga) og látum blandast íslenska hestakyninu– t.d. í hlutföllunum fjórir innfluttir á móti hverjum íslenskum

• Eða rollur frá Nýja-Sjálandi?• Hversu ánægð yrðum við með þann bræðing?

27.4.2015

Page 14: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

27.4.20152015©[email protected] 14

Laxalús • Laxalúsin blómstrar í eldiskvíunum..

– Kjöraðstæður enda eldisfiskur í miklum þéttleika í sjókvíum – sest jafnt á eldisfiskinn sem á villtan göngufisk á svæðinu – Laxalús er náttúrleg er í litlum mæli í náttúrunni, þá veldur hún litlum

skaða • Lúsin er sníkjudýr og þarf kvendýrið á hýsli að halda til að ljúka

þroskun eggja • Á fiskinum nærir hún sig á húðfrumum, slími og blóði • Lúsin getið valdið miklum afföllum á villtum fiski• Hamlar vexti og fæðunámi i sjó• Breytir gönguhegðun og ruglar lífeðlisfræðileg kerfi• Afföll vegna lúsar úr sjókvíum á náttúrlegum laxaseiðum og urriða

sem fer um eldissvæði geta verið allt að 50% • Aföll á bleikju jafnvel enn meiri (vegna lúsar úr sjókvíum)• Í sjókvíaeldi er fiskur allan ársins hring og þéttleikinn jafnan mikill,

þar eru því kjöraðstæður fyrir lúsina enda magnast þéttleiki lúsarinnar þar gríðarlega. Áhrifa lúsarinnar gætir mest innan 30 km frá kvíunum en undan straumum getur hún borist í allt að 100 km

• Lúsin leggst á villtan fisk sem syndir um útbreiðslusvæðið

Page 15: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 1527.4.2015

Page 16: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 16

EyjafjarðaráFnjóskáHörgáSvarfaðardalsá

50-60% með Ólafsfjarðará, Héðinsfjarðará, Fljótaá, Flókadalsá, Hvalvatnsfjarðará

25-30% af sjóbleikju á Íslandi

27.4.2015

Page 17: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 1727.4.2015

Page 18: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

27.4.20152015©[email protected] 18

• Sjúkdómar og sníkjudýr: Fiskur í kvíum er í miklum þéttleika - þar geta blossað upp sjúkdómar sem smitast getast í villtan fisk. Slíkt getur haft neikvæð varanleg áhrif á náttúrulega fiskistofna, aðallega lax, bleikju og urriða. Mesta hættan er af innflutningi lifandi seiða eða með búnaði erlendis frá.

• Lífrænn úrgangur frá eldinu: Fóðurleifar, saur og þvag; Getur haft áhrif á botndýralíf og borist með straumum inn fjörð. Við útreikning á burðarmati svæða má nota norsk viðmið; LENKA-aðferð þar sem firðir bera við bestu aðstæður 9.000 kg/km2 ákomu af N2 (köfnunarefni ) á ári og skv. nýlegri norskri úttekt er árleg losun N2 á hvert framleitt tonn af laxi um 50 kg. Það þýðir að Eyjafjörður innan við Hjalteyri (60 km2) ber um 540 tonna ákomu af N2 á ári. Frá því þarf svo að draga ákomu N2 vegna núverandi byggðar (200 t) , atvinnustarfsemi (100 t) og framburði ársvæða (100 t). Eftir stendur því svigrúm upp á 140 t af N2 á ári sem jafngildir tæplega 3.000 tonna árlegri framleiðslu af laxi.

• Ólífrænn úrgangur frá eldinu: Lyf, eiturefni, þvottaefni o.fl.; Getur haft áhrif á botndýralíf, borist með straumum inn fjörð.

• Notkun á stórum svæðum sjávar:Stór svæði eru upptekin svo ekki verður hægt að stunda þar atvinnuveiðar, sportveiðar, hvalaskoðun eða fara í svartfugl.

Page 19: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 19

Norska pressanveltir fyrir sér..!!!

27.4.2015

Page 20: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

20

ÓGN

2015©[email protected]

• Sjókvíeldi á norskum laxi er ógn við einstaka villta sjálfbæra náttúru Íslands - ferskvatnsfiskana; laxi, urriða og bleikju

• Fjórðungur þjóðarinnar eða 70.000 Íslendingar stunda stangveiðar á hverju ári - að þeim góðu búsetutengdu lífsgæðum er nú sótt

• Ein elsta stoð íslenskrar ferðaþjónustu og sennilega sú best borgandi - stangveiðiferðamennska byggir á þessari auðlind, þar eru 1.000 störf og 20 milljarða árleg velta, að henni er nú sótt

27.4.2015

Page 21: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 21

Laxeldi í sjó á Íslandi

27.4.2015

Page 22: Fiskeldi við eyjafjörð 2015

2015©[email protected] 22

Ég mótmæli harðlega fyrirhuguðu eldi á norskum laxi í Eyjafirði og skora á stjórnvöld að banna allt sjókvíeldi á laxfiskum við Eyjafjörð

Ég fer fram á það að yfirvöld banni með öllu sjókvíeldi á norskum laxi, regnbogasilungi og öðrum ágengum framandi stofnum sem valdið geta skaða á vistkerfinu, spillt náttúrlegum fiskistofnum og ógnað líffræðilegri fjölbreytni

Akureyri, 27. apríl 2015Erlendur Steinar

27.4.2015