hús með sál i

Post on 07-Jul-2015

989 Views

Category:

Documents

1 Downloads

Preview:

Click to see full reader

DESCRIPTION

Grundarstígur 10, 105 Reykjavík. Skoðunarferð og fróðleiksmolar um húsið.

TRANSCRIPT

HÚS MEÐ SÁL I

Hannesarholt, Grundarstíg 10, 105 Reykjavík

GRUNDARSTÍGUR 10, HAUST 2009

BYGGING HÚSSINS

Húsið var byggt árið 1915 fyrir Hannes Hafstein,

fyrsta ráðherra Íslands

Húsið teiknaði Benedikt Jónasson verkfræðingur

Húsið er voldugt tvílyft steinhús með mansardþaki,

hátt til lofts og fallega skreyttir gipslistar í kverkum og

í kringum ljósakrónur.

Húsið er meðal 15 elstu steinhúsa í Reykjavík

og var byggt í kjölfarið á Reykjavíkurbrunanum

árið 1915.

EIGENDUR FRÁ UPPHAFI

Hannes Hafstein fyrrv. ráðherra Lét smíða húsið og flutti inn í október 1915, þá

ekkjumaður, ásamt fjölskyldu sinni.

Magnús Pétursson bæjarlæknir Keypti húsið 1923 eftir andlát Hannesar (des. 1922).

Helgi Guðbrandsson sjómaður frá Akranesi og Guðrún Illugadóttir ásamt börnum sínum Fjölskyldan keypti húsið 1928 – húsið í eigu ýmissa

fjölskyldumeðlima til ársins 2007.

Ragnheiður J. Jónsdóttir og Arnór Víkingsson Keyptu húsið í des. 2007

HANNES HAFSTEIN

MAGNÚS PÉTURSSON BÆJARLÆKNIR

Magnús Pétursson (1881 – 1959) var læknir í Stranda-héraði 1909 - 1923 og gerðist þingmaður þess 1914 - 1923.

Hann tók virkan þátt í sjálfstæðisbaráttunni og var formaður fullveldisnefndar sem starfaði milli þinga 1917 - 18. Hann var einnig í milliþinganefnd um berklavarnir og stóð m.a. ásamt öðrum að frumvarpi varðandi berklavarnir sem var stærra spor en annars staðar þekktist þó ekki næði allt í því fram að ganga.

Magnús tók við embætti bæjarlæknis í Rvík 1922 og síðan héraðslæknis (embættin sameinuð 1932) til 1949.

Magnús var tvíkvæntur og missti fyrri konu sína 1914. Þau áttu saman Pétur lækni sem lést 1949. Seinni kona hans var Kristín Guðlaugsdóttir. Þau eignuðust 4 börn en eitt þeirra, Anna, lést 1947.

HELGI OG GUÐRÚN

Guðrún Illugadóttir (1869-1944) og Helgi Guðbrandsson (1864-1945) með tólf af

þrettán börnum sínum. Myndin er tekin á árunum 1912 eða 1913 en fjölskyldan

flutti á Grundarstíg 10 árið 1928.

GENGIÐ UM HÚSIÐ

Við hefjum

skoðunarferðina í

kjallaranum.

Húsið er kjallari, tvær

hæðir og ris.

KJALLARINN

Í kjallaranum voru oftast leigð út

tvö herbergi.

Þar höfðu ýmsir aðsetur í

gegnum tíðina. T.d.

• Maður nokkur sem líklega

smíðaði sjálfur dívana og

legubekki og seldi;

•Efnagerð Friðriks Magnússonar

•Stefán nokkur málari hafði

aðstöðu fyrir ýmislegt. dót,

•Myndlistardeild frá Myndlista- og

handíðaskólanum, Grundarstíg 2

•Stefán Rafn fornbókasali hafði

bókasafn sitt þarna.

•Keramikverkstæði var þarna um

árabil.

1. HÆÐIN - FORSTOFUHERBERGI

Upphaflega var skrifstofa

Hannesar Hafstein íÍ

forstofuherberginu (til hægri

þegar gengið er inn á 1. hæð).

Síðari eigendur (börn Helga),

Anna Helgadóttir og Einar M.

Einarsson leigðu þetta

herbergi út um árabil.

Leigjendurnir voru gjarnan

nokkuð þekktir einstaklingar en

kannski ekki alltaf

fyrirmyndarleigjendur...

Eftir að Anna lauk námi sem

snyrtifræðingur (líklega með

þeim fyrstu sem það gerði hér)

var hún með snyrtistofu í

herberginu í mörg ár.

1. HÆÐ - SVEFNHERBERGI HANNESAR

Í þessu herbergi við hliðina á forstofuherberginu (forðum skrifstofu Hannesar o.fl.)

var svefnherbergi Hannesar og hérna lést hann 13. desember 1922. Úr þessu

herbergi er innangengt bæði í forstofuherbergið og dagsstofuna.

1. HÆÐ - DAGSTOFA

“Hvíta stofan” var dagstofa

og vinstra megin við

þennan glugga stóð í mörg

ár píanó á meðan

fjölskylda Helga og

Guðrúnar bjó þarna.

Á þeim árum var oft mikill

glaumur og gleði í húsinu –

mikið spilað og sungið.

Margir úr fjölskyldunni gátu

gripið í hljóðfæri og spilað.

Úr þessari stofu var gengið

inn í svefnherbergi

Hannesar.

1. HÆÐ - BORÐSTOFA

Þessi “rauða” stofa var í

áraraðir notuð sem

borðstofa, líklega alveg frá

tíma Hannesar Hafstein og

fjölskyldu.

Undir parketinu sem nú er

á stofunni ku leynast lítill

“bjöllupedall” sem notaður

var til að kalla á

vinnukonurnar...

1. HÆÐ - ELDHÚSIÐ

Eldhúsið var lengst af mun

minna – baðherbergið náði

lengra inn í eldhúsið og það

var í raun passlegt fyrir tvær

manneskjur. Því var

hinsvegar breytt fyrir all

nokkrum árum síðan þegar

sett var sturta á baðið í stað

baðkars og eldhúsið

stækkað að sama skapi.

GENGIÐ UPP Á AÐRA HÆÐ

Takið eftir litaða glerinu í

gluggunum við stigann – áður

fyrr voru fleiri rúður litaðar en

líkast til ekki alltaf einfalt að fá

litað gler ef eitthvað kom upp

á.

2. HÆÐ – STÓRA ELDHÚSIÐ

Eldhúsið á 2. hæð var tvískipt

um árabil, þ.e. tvær fjölskyldur

(börn Helga) sem notuðu það.

Sem eldhúsborð var notuð

hesthúshurð sem var sléttuð

og síðan klædd með dúk og

settir kantlistar. Fjölskyldan

borðaði við þetta ágæta borð

og hafði hver sitt sæti. Það

þótti tíðindum sæta þegar

krakkarnir forfrömuðust og

færðust úr sínu fyrsta sæti

eitthvert annað.við borðið.

Þetta þótti gott eldhús því þar

var bæði gas og rafmagn.

2. HÆÐ – LITLA ELDHÚSIÐ

Í þessu pínulitla

eldhúsi á 2. hæð var

áður bað/salerni.

2. HÆÐ – BAÐHERBERGI, ÁÐUR SVEFNHERBERGI

Þetta var upphaflega

svefnherbergi og hér sváfu

t.d. Helgi Guðbrandsson og

dóttir hans Hólmfríður

(Fríða). Hún var

konfektgerðarkona og vann

síðast hjá Petersen í

Ingólfsbakaríii á horni

Vonarstrætis og

Tjarnargötu. Hún skreytti

m.a. Vínarbrauð,

kókoskökur og negrakossa.

Oft kom hún heim með

brauð á kvöldin.

Fríða var “spartönsk” í eðli

sínu, átti upphlut og

peysuföt og svo vinnugalla

sem hún notaði í bakaríinu.

2. HÆÐ – “STOFA FRÍÐU”

Í þessu herbergi á 2. hæð

var “stofan hennar Fríðu”,

Hólmfríðar, dóttur Helga

Guðbrandssonar. Einnig

hafði Tryggvi bróðir hennar

þar oft aðsetur og þar var

m.a mikið um fundi.

2. HÆÐ - SVEFNHERBERGI

Í þessu herbergi og stofunni

við hliðina á réðu þær

ríkjum Kristjana, móðir

Hannesar og Sigríður

tengdamóðir hans. Að

öllum líkindum var þetta

svefnherbergi annarrar

þeirra.

Þetta herbergi var síðar oft

leigt út eins og fleiri á

hæðinni.

2. HÆÐ – STOFA MEÐ SVÖLUM

Þetta var eftir því sem best

er vitað sameiginleg stofa

gömlu kvennanna, Kristjönu

móður Hannesar og Sigríðar

tengdamóður hans sem

báðar bjuggu á heimili hans

á Grundarstíg.

Síðar meir var þessi stofa

gjarnan leigð út ásamt

herberginu við hliðina á.

2. HÆÐ - SVEFNHERBERGI

Þetta herbergi hefur löngum

verið notað sem svefnherbergi

enda á afar rólegum og

notalegum stað. Hér svaf að

líkindum önnur gömlu

kvennanna, Kristjana móðir

Hannesar eða Sigríður

tengdamóðir hans – þær

höfðu sitt hvort svefnherbergið

og stofu á milli.

Síðar var þetta t.d.

svefnherbergi Andreu dóttur

Helga Guðbrandssonar.

Loks var þetta gjarnan leigt út

ásamt stofunni við hliðina á.

GENGIÐ UPP Í RISIÐ

Hér ér lágt undir loft á

leið upp stigannog þeir

sem eru í hærri

kanginum neyðast til að

beygja höfuð sín ögn.

Í risinu er eingöngu eitt

afmarkað herbergi,

annað pláss var notað

fyrir geymslur.

LOFTIÐ - HERBERGIÐ

Það er vitað að Hannes lék sér

mikið við dætur sínar í þessu

súðarherbergi og límdi m.a.

silfurstjörnur í loft herbergisins.

Í herberginu voru bækur og

Hannes dvaldi hér tímunum

saman.

Eftir 1928 sváfu hér þrjár um

árabil, Guðrún Illugadóttir og

dætur hennar Ingigerður og

Júlía. Guðrún vann hér flesta

daga við að tæja ull og kemba

og spinna. Síðar svaf Grétar

Guðbergsson í herberginu og

málaði það í bláum lit sem

Sigurður Guðmundsson málari

útvegaði og tjáði honum að

þannig hefði herbergið verið í

tíð Hannesar.

LOFTIÐ

Ekki var sofið á loftinu

nema í súðarherberginu

hér á undan. Að öðru

leyti var það notað sem

geymsla.

LOFTIÐ

Hér voru gjarnan geymdar

bækur. Undir súðinni á

loftinu voru líka geymdar

sultur og saftir og geymslu-

plássið skiptist á milli

fjölskyldnanna (afkomenda

Helga og Guðrúnar) sem

bjuggu í húsinu.

RISTAR Í HÚSINU

Ristarnar hafa þjónað húsinu vel í gegnum tíðina – það var

ætíð mjög gott loft í húsinu þó ekki væru opnanlegir gluggar

vegna veðurs.

LEIÐARLOK

Ferðinni er lokið að sinni. Hægt er að skoða

“Hús með sál II” þar sem stiklað er í gegnum

tíðina með aðstoð auglýsinga, minningaorða

o.fl. sem viðkemur Grundarstíg 10 á einn eða

annan hátt.

Takk fyrir komuna.

top related