bókasafnið þitt í hr

Post on 18-Jul-2015

224 Views

Category:

Education

3 Downloads

Preview:

Click to see full reader

TRANSCRIPT

BÓKASAFNIÐ ÞITT Í HR

lærðu að nota það

Bækurnar frammi færðu

lánaðar í 4 vikur í senn

Þeim er raðað eftir Dewey

flokkunarkerfinu - hlaupandi

tölur

Sjáðu hillumerkingar

Nýjustu tímaritin á prenti finnur þú í

hillunum fyrir framan afgreiðsluna

Eldri hefti tímarita finnur þú hinumegin við nýju heftin

Við afgreiðsluborðið færð þú bækurnar lánaðar og skilar þeim þar.

Kennslubókum og lokaritgerðum óskar þú eftir í afgreiðslunni.

Þegar þú tekur bækur úr

hillunum sem þú notar

bara á bókasafninu og

skráir ekki á þig, skaltu

skila þeim á vagninn hjá

afgreiðslunni og við röðum

svo bókunum fyrir þig í

rétta hillu.

Lokaritgerðir og kennslubækur eru aðeins til afnota á safninu, þær

eru ekki lánaðar út. Lengst má fara með þær í ljósritunarherbergið!

Orðabækur og aðrar

handbækur eru aðeins til

afnota inn á safninu og

ekki til útláns

Lesaðstaðan er aðeins

ætluð nemendum HR.

Utan afgreiðslutíma hefur

þú aðgang að safninu

með kortinu þínu.

Þér stendur til boða

að nota tölvur á

bókasafninu.

Það er Púki í öllum

tölvunum… þ.e.a.s.

stafsetningaforritð!

Það eru tvær lokaðar

lesstofur á safninu.

Þar skal ríkja algjör

þögn og virða skal

vinnufrið samnemenda

Gangtu vel um safnið

þitt

Kaffi er nauðsynlegt flestum

námsmönnum og er það því

leyfilegt á meðan það er lok á

málinu!

Flokkaðu ruslið ekki skilja

það eftir. Ruslið í ruslið!

When in doubt – nota gráu

tunnuna ;-)

Þetta er leitartölvan. Þú mátt

nota hana til að leita að

heimildum, m.a. bókum sem

til eru á safninu.

Hefur þú kynnt

þér leitir.is?

Fyrir þá sem vilja hafa það huggulegt er gott að koma sér fyrir í

sófasettunum á safninu.

Púðarnir gera þetta ennþá þægilegra!

Vinsamlegast sýndu tillitsemi og stilltu hrotum í hóf

Ú106 og Ú107 eru hópvinnuherbergi

fyrir nemendur. Þar gildir sú regla að

fyrstur kemur fyrstur fær.

Ú101 er aftur á móti fundarherbergi

starfsmanna í Úranusi og er því aldrei

lánað út til nemenda.

Gangtu vel um safnið þitt!

Gangtu frá borðinu eins og þú myndir vilja koma að því.

Upplýsingaþjónustan er fyrir þig. Borðið er mannað mán-fim frá 14-16 og fös frá 10-12.

Nýttu þér hana!

Þú finnur upplýsingafræðinga sem

ávallt eru reiðubúnir að aðstoða þig

inni á safninu.

Vertu óhræd/dur að kíkja í heimsókn!

Þú getur einnig bókað tíma og fengið

persónulega aðstoð við m.a.

heimildaleit og -skráningu

Taktu þér bækling um

APA staðalinn eða

OSCOLA staðalinn

og náðu tökum á

heimildaskráningunni

sem allra fyrst – það

borgar sig.

Zotero er algert snilldarforrit sem aðstoðar þig við heimildavinnu, eins og

tilvísanir og gerð heimildaskráa. Virkar með öllum stöðlum.

Taktu þér bækling fyrir þinn vafra!

Upplýsingafræðingar BUHR veita alla aðstoð vegna Zotero

Þóra getur sagt þér allt um Alþingistíðindin!

Það er ekki tilviljun að þessi fíni

bekkur er frammi á gangi.

Þarna mátt þú setjast til þess

að tala í símann eða til þess að

borða nestið þitt.

Go wild!

Inn á hrprint.ru.is finnur þú allt um prentkvótann þinn

Ljósritunarkortin eru seld í afgreiðslunni í Sólinni – ekki á bókasafninu

Bókasafnið er á facebook. Lækaðu það!

top related