lokamat · 2017. 9. 14. · vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu...

24
Lokamat Niðurstöður námsmats og miðlun upplýsinga Erna Ingibjörg Pálsdóttir 2016

Upload: others

Post on 06-Oct-2020

0 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Page 1: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

Lokamat Niðurstöður námsmats og miðlun upplýsinga

Erna Ingibjörg Pálsdóttir

2016

Page 2: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

2 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Inngangur ............................................................................................................................. 3

Leiðsagnarmat – námsferlið ............................................................................................... 3

Lokamat – afrakstur námsins ............................................................................................. 3

Áreiðanleiki og réttmæti .............................................................................................. 5

Aðalnámskrá grunnskóla – lykilhugtök ............................................................................. 6

Grunnþættir menntunar ............................................................................................... 6

Hæfni ............................................................................................................................. 6

Lykilhæfni ..................................................................................................................... 6

Hæfniviðmið ................................................................................................................. 7

Matsviðmið ................................................................................................................... 7

Sóknarkvarðar ....................................................................................................................11

Lokamat kennara ................................................................................................................13

Einkunnir – lokamat ........................................................................................................13

Heimildaskrá: ......................................................................................................................24

Page 3: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

3 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Inngangur

Hefti þetta er hluti af handbókinni Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að

nemendur læri. Þær hugmyndir sem þar eru settar fram eiga sér stoð í Aðalnámskrá

grunnskóla (2006/2011) en þar er meðal annars lögð áhersla á að kennarar safni saman

fjölbreyttum upplýsingum um nemandann og námsframvindu hans. Kennarar þurfa að velja

aðferðir sem hæfa því sem verið er að meta hverju sinni því allar námsmatsaðferðir eru

jafnmikilvægar við að meta kunnáttu, skilning, leikni, áhuga eða viðhorf nemenda. Í

skólastarfinu geta kennarar lagt mat á hvað nemendur geta gert við upphaf kennslu

(stöðumat), greint námsörðugleika nemenda meðan á kennslu stendur (greinandi mat),

fylgst með námsferlinu meðan á kennslu stendur (leiðsagnarmat) og metið námsárangur að

kennslu lokinni (lokamat). Í heftinu er lögð megináhersla á lokamat og einkunnagjöf kennara

og reglulega er vísað í blaðsíður handbókarinnar.

Leiðsagnarmat – námsferlið

Leiðsagnarmat miðar að því að meta framfarir nemenda í þeim tilgangi að nota niðurstöðurnar

til að gera nauðsynlegar breytingar á námi og kennslu. Í leiðsagnarmati er fylgst með

nemendum á námstímanum og þeim leiðbeint. Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir,

s.s. kannanir, frammistöðumat, sjálfsmat, samræður o.fl., til að safna upplýsingum um stöðu

nemenda, hvað þeir vita og geta og hvers þeir þarfnast til að ná betri árangri. Áhersla er lögð

á að nemendur séu þátttakendur í námsmatsferlinu og að endurgjöf sé regluleg í

námsferlinu, hafi skýran tilgang, sé greinandi, jákvæð og gagnleg, þ.e. að nemendur geti notað

endurgjöfina til að bera sig við og meta hvort þeir hafi náð árangri. Leiðsagnarmat á að vera í

þágu náms og niðurstöður þess á ekki að nota í lokamati (lokaeinkunn) nemenda (bls. 31–

65).

Lokamat – afrakstur námsins

Lokamat hefur þann megintilgang að gefa upplýsingar um árangur náms og kennslu í lok

námstíma. Matsaðferðir við lokamat ákvarðast af markmiðunum en matið er oftast byggt á

skriflegum prófum eða fjölbreyttum lokaverkefnum nemenda. Með lokamati er lögð áhersla á

að meta þekkingu og skilning nemenda á námsefninu, hvernig þeim tekst að beita þekkingu

sinni og hvernig þeir greina og nota mismunandi aðferðir við ákveðin viðfangsefni. Einn

mikilvægur þáttur í námsmati er miðlun upplýsinga um námsmat og bera kennarar ábyrgð á

að safna gögnum um árangur og frammistöðu nemenda, meta gögnin og upplýsa aðra

(nemendur, foreldra/forráðamenn, aðra kennara, skólastjórnendur) um niðurstöðurnar.

Page 4: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

4 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Nauðsynlegt er að viðtakendur matsins (nemendur, foreldrar/forráðamenn, kennarar og aðrir)

skilji niðurstöður námsmatsins á sama veg (bls. 120).

Lokamat kennara þarf að endurspegla inntak aðalnámskrár (2011), þ.e. þá þekkingu, skilning

og færni sem nemendur eiga að tileinka sér, og fela í sér viðmið um þann árangur sem vænst

er, t.d. á námssviði, í tiltekinni námsgrein/námsþætti. Lokamat þarf að sýna hversu vel

nemendum gengur miðað við hæfniviðmið/námsmarkmið árgangsins. Við að skipuleggja

lokamatið (bls. 27/35–36) þarf að spyrja sig nokkurra grundvallarspurninga (sjá töflu 1).

Lokamatið þarf að endurspegla alla þætti námskrárinnar og meta það sem það er gefið út fyrir

að meta. Mestu skiptir að kennarar meti það sem til var ætlast, fullvissi sig um að

matsniðurstöður séu byggðar á góðum gögnum og noti fleiri en eina aðferð við söfnun gagna.

Með því að nota fjölbreyttar matsaðferðir (bls. 87–116) og safna mörgum ólíkum

matsgögnum geta kennarar fengið góða innsýn í nám hvers nemanda. Til að fá nákvæma

niðurstöðu, s.s. við mat á ritun og öðrum skriflegum verkefnum, skiptir máli að kennarar vinni

saman við að skoða matsgögn nemenda og hafi til þess skýr viðmið t.d. í kvörðum (bls. 94).

Mismunandi aðferðir (sjá dæmi í viðauka b) henta nemendum misvel, sumir eiga auðveldara

með að sýna þekkingu sína, skilning eða færni í munnlegu mati og öðrum nemendum henta

betur skrifleg próf. Miklu varðar að matsniðurstöðurnar séu stöðugar og hægt sé að bera þær

saman við aðrar niðurstöður þannig að þær sýni í raun námsframvindu nemendanna (sjá töflu

1).

Tafla 1: Lykilþættir í lokamati

Lykilþættir: Lokamat:

Hvers vegna að meta? Upplýsir foreldra/forráðamenn eða aðra um hvort viðhlítandi árangri hafi verið náð.

Hvað á að meta? Þekkingu og skilning nemanda á námsefninu, s.s. hvort hann geti beitt lykilhugtökum, þekkingu sinni, færni og viðhorfum og er þá miðað við afrakstur námsins.

Hvaða aðferð? Fjölbreyttar aðferðir sem meta bæði afrakstur námsins og námsferlið, s.s. lokapróf, mat á fjölbreyttum lokaverkefnum o.s.frv.

Hvernig get ég tryggt gæði matsins?

Stöðugt, sanngjarnt, alhliða mat sem byggt er á góðum /traustum gögnum. Skýrar og nákvæmar væntingar um árangur (viðmið). Sanngjarn og viðeigandi lokavitnisburður.

Hvernig miðla ég niðurstöðum?

Hvernig nota ég niðurstöður?

Staða nemandans gefin til kynna. Upplýsingar um stöðu nemandans séu sanngjarnar og skýrar. Vitnisburður sem getur nýst til að ákveða næstu skref í námi nemandans.

Page 5: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

5 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Áreiðanleiki og réttmæti

Eftirfarandi atriði geta komið að góðum notum til að auka áreiðanleika og réttmæti:

- setja skýr markmið eða gera grein fyrir því hvað á að meta. Velja matsþætti sem

falla vel að hæfniviðmiðum/markmiðum, námsefni og kennsluaðferðum.

- undirbúa lýsingu á því sem á að meta eða sýna dæmi um vel unnin verkefni og

gæta þess að matsþættir séu í samræmi við það sem verið er að meta.

- huga vel að því að verkefni séu í samræmi við markmið.

- Vera vakandi yfir atriðum sem geta skekkt niðurstöður.

- taka tillit til aldurs, þroska og tímans þegar fjöldi verkefna er valinn. Meta oft og

reglulega. Bera saman niðurstöður mats til að stuðla að áreiðanleika.

- hafa skýrar leiðbeiningar um matsaðferðir, úrvinnslu og túlkun gagna (skýrar

útlistanir á einkunnargjöfinni) (bls. 11–12).

-

Nemendur fá afhentan vitnisburð við lok anna með einkunnum og/eða umsögnum um árangur

og framfarir þeirra á önninni (lokamat). Sumir skólar leggja áherslu á að meta líðan og framfarir

nemenda á haustönn og á vorönn fer fram mat á framförum nemenda og lokamatið.

Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota

ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið úr samræðum kennaranna sjálfra (bls. 81–

82) s.s. um tilgang einkunna og vitnisburðar. Við stefnumótun er mikilvægt að skólinn setji fram

tilgang, markmið og áherslu skólans í námsmati.

Tafla 2: Að skilgreina tilgang vitnisburðar

Dæmi

Tilgangur vitnisburðar nemenda er að upplýsa nemendur um námsárangur þeirra í öllum námsþáttum aðalnámskrár grunnskóla og eiga einkunnir nemenda að endurspegla hversu vel þeir hafa náð þeim hæfniviðmiðum sem stefnt er að. Vitnisburður sýni í hverju þeir hafa staðið sig vel og hvað þeir þurfa að bæta.

Page 6: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

6 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Aðalnámskrá grunnskóla – lykilhugtök

Grunnþættir menntunar Hæfniviðmið Lykilhæfni

Matsviðmið A-B-C-D Matskvarði Námsmarkmið Þekking, leikni, hæfni

Grunnþættir menntunar eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi,

jafnrétti og sköpun. Grunnþættirnir fléttast inn í allt skólastarf. Hugmyndirnar að baki

grunnþáttunum eiga að endurspeglast í starfsháttum skóla, samskiptum og skólabrag. Þessir

áhersluþættir eru ekki bundnir við einstakar námsgreinar heldur eiga þeir að vera leiðarljós í

menntun og starfsháttum skólans. Þegar skólastarf er metið þarf að skoða hvort og hvernig

grunnþættirnir hafi sett mark sitt á nám, kennslu og leik og skólastarfið í heild (Aðalnámskrá

grunnskóla 2011, bls. 16–17).

Hæfni: Nemendur þurfa að vita hvað þeir vita og hvað þeir geta og hvernig best er að beita

þekkingu sinni og leikni til að hafa áhrif á umhverfi sitt og bæta það. Hæfni er meira en þekking

og leikni, hún felur einnig í sér viðhorf og siðferðisstyrk, tilfinningar og sköpunarmátt,

félagsfærni og frumkvæði. Nám þarf að taka til allra þessara þátta. Slíkt nám byggist á

námssamfélagi sem einkennist af grunnþáttum menntunar (Aðalnámskrá 2011, bls. 25).

Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum og er nemandamiðuð útfærsla á áherslum

grunnþáttanna. Lykilhæfni tengist öllum námssviðum. Hún snýr að tjáningu og miðlun,

skapandi og gagnrýninni hugsun, sjálfstæði og samvinnu, nýtingu miðla og upplýsinga, ábyrgð

og mati á eigin námi (Aðalnámskrá 2011, bls. 86) (sjá töflu 3).

Page 7: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

7 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Tafla 3: Lykilhæfni í aðalnámskránni – fimm þættir og hæfniviðmið

Dæmi

Tjáning og miðlun: hlustað eftir upplýsingum og rökum í samræðum.

Skapandi og gagnrýnin hugsun: greint milli staðreynda og skoðana.

Sjálfstæði og samvinna: unnið eftir fyrirmælum og borið ábyrgð á eigin verkefnum og vinnubrögðum þegar við á.

Nýting miðla og upplýsinga: leitað sér upplýsinga í námi í ólíkum miðlum.

Ábyrgð og mat á eigin námi: gert sér grein fyrir styrkleikum og hvar hann er staddur í námi.

Hæfniviðmið

Með hæfni er átt við það hvernig einstaklingur notar þekkingu sína og leikni, það er hvað hann

gerir með það sem hann veit og getur. Hæfniviðmið í aðalnámskránni segja hvaða hæfni

nemendur eiga að geta sýnt að námi loknu. Námsmat í grunnskóla grundvallast á hæfni

nemenda með hliðsjón af almennum hæfniviðmiðum og hæfniviðmiðum einstakra

námssviða/námsgreina. Viðmiðin eru margvísleg. Hæfniviðmið ná til þekkingar og leikni á

afmörkuðum þáttum og einnig eru þau tengd langtímamarkmiðum. Hæfniviðmið eru sett fram

fyrir 4., 7. og 10. bekk og eru skráð þannig að nemandi geti gert sér grein fyrir að hvaða hæfni

hann stefnir. Þekking, leikni og hæfni eru lykilhugtök í aðalnámskránni 2011 (bls. 39) (sjá

töflu 4).

Tafla 4: Markmið – þekking, leikni, hæfni

Þekking – leikni – hæfni

Hæfniviðmið

Námsmarkmið – viðmið um árangur

Þekking er safn staðreynda, lögmála, kenninga og aðferða. Hún er bæði fræðileg og hagnýt.

Ég veit hvernig á að nota helstu aðferðir við framsetningu og lýsingu tölulegra gagna.

Leikni er bæði vitsmunaleg og verkleg. Hún felur í sér að geta beitt aðferðum, verklagi og rökréttri hugsun.

Ég get notað tölvuforrit, t.d. gagnagrunna og töflureikna, til að vinna með tölfræðileg gögn.

Hæfni felur í sér yfirsýn og getu til að hagnýta þekkingu og leikni.

Ég get skipulagt og framkvæmt einfaldar tölfræðikannanir og dregið ályktanir af þeim.

Matsviðmið um námshæfni og lykilhæfni* eru sett fram í aðalnámskránni sem matskvarðar

með lýsingu á hæfni sem nemandi býr yfir á kvarða A-B-C-D. Viðmiðin eru sett fram í samfelldu

máli sem lýsir hversu vel nemandi býr yfir tiltekinni hæfni. Hæfnikröfur eru skráðar fyrir hvert

námssvið/námsgrein í aðalnámskránni (sjá töflu 6). Aðeins eru sett fram matsviðmið fyrir 10.

Page 8: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

8 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

bekk í aðalnámskránni en unnið er að viðmiðum fyrir 4. og 7. bekk en þau eru meira hugsuð

sem viðmið fyrir skóla til að þróa námsmat á yngsta og miðstigi grunnskólans. Kvarðann ber

að nota við brautskráningu nemenda úr grunnskóla. Skólar eru hvattir til að nota matskvarðann

þar sem við á. Gert er ráð fyrir að skólar setji matsviðmið fyrir aðra árganga og geri grein fyrir

þeim í skólanámskrá (Aðalnámskrá grunnskóla 2011, bls. 55–56, 91). Ef matsviðmiðin eru

skoðuð þá eru þau sett fram þannig að þau eru gjarnan mjög víðtæk og lýsa samþjappaðri

hæfni (sjá töflur 5–7).

*Samkvæmt breytingum (2014) á aðalnámskránni er ekki lengur gert ráð fyrir að einkunn í

lykilhæfni sé birt á vitnisburðarskírteini nemenda við lok grunnskólans en gert er ráð fyrir því

að unnið sé með lykilhæfni á öllum námssviðum, lagt mat á hana í öllum árgöngum og að

nemendur fái upplýsingar um niðurstöður.

Námsmat beinist að því hvað nemandinn gerir með það sem hann veit og getur og matið byggir

meðal annars á því hversu vel, sjálfstætt, skýrt, skipulega, gagnrýnið, nákvæmlega eða

örugglega hann nýtir þekkingu sína og leikni. Matsviðmið greinasviðanna eru sett fram þannig

að feitletruð lýsandi orð greina á milli hversu vel hæfni birtist hjá nemanda.

Hæfniviðmið segja til um hvaða hæfni nemandi á að búa yfir við lok náms.

Matsviðmið segja hins vegar til um hversu góðum tökum nemendur hafa náð í þeirri

hæfni og þar með hvaða einkunn þeir hljóta á tilteknu námssviði (sjá töflur 5–7).

Tafla 5: Munur á hæfniviðmiðum – matsviðmiðum.

Hæfniviðmið í námskrá Matsviðmið í lokamati

Útbúin til að nota við skipulagningu kennslunnar og námsmatsins. Birt á hverju námssviði (námsgrein) og geta verið á bilinu 10 – 50. Geta verið mjög nákvæm. Í þeim geta verið flókin fagorð.

Útbúin til að nota við miðlun upplýsinga um afrakstur námsins. Birt á hverju námssviði (námsgrein) og eru oftast fá eða 4 - 6. Nokkuð víð og almenn lýsing á hæfni nemandans. Eiga að vera skýr og skiljanleg. Eiga að vera skráð með nemenda/ foreldravænu orðalagi.

Page 9: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

9 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Tafla 6: Hæfniviðmið – matsviðmið – íslenska - námsþættir

Dæmi um þætti og hæfniviðmið í aðalnámskránni - íslenska 10. bekkur

Dæmi um lýsingu á matsviðmiðum í aðalnámskránni - íslenska 10. bekkur

Talað mál, hlustun og áhorf

t.d. nýtt sér aðferðir sem hann hefur lært til að taka virkan þátt í samvinnu, samræðum og rökræðum, tjáð skoðanir sínar með ýmsum hætti, rökstutt þær og valið þeim miðil sem hentar.

t.d. nýtt sér fjölmiðla, svo sem útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og rafrænt efni, og tekið afstöðu til þess sem þar er birt.

Lestur og bókmenntir

t.d. greint og skilið aðalatriði og aukaatriði í margs konar texta og glöggvað sig á tengslum efnisatriða.

t.d. lesið, túlkað, metið og fjallað um fjölbreyttar íslenskar og erlendar bókmenntir og gert sér grein fyrir gildi bókmennta.

Ritun

t.d. beitt skipulegum vinnubrögðum við ritun, skipað efnisatriðum í röklegt samhengi og mótað málsgreinar og efnisgreinar.

Málfræði

t.d. beitt helstu málfræðihugtökum í umræðu um notkun málsins og þróun þess.

Matsviðmið í B

Nemandi getur flutt mál sitt skýrt og áheyrilega með blæbrigðum og áherslum sem hæfa efni og tilefni.

Hlustað og nýtt sér upplýsingar í töluðu máli til fróðleiks, skemmtunar og sem heimildir í vinnu, og notið myndefnis, leikins efnis, tónlistar og sett fram rökstutt mat á viðkomandi efni.

Lesið almennan texta, með góðum skilningi og túlkun á efni þeirra, fjallað um íslenskar og erlendar bókmenntir og gert góða grein fyrir gildi bókmennta í menningu þjóðarinnar.

Beitt skipulegum og góðum vinnubrögðum við ritun, skipað efnisatriðum í samhengi og mótað málsgreinar og efnisgreinar á skýran hátt.

Beitt málfræðihugtökum í umræðu um notkun málsins og þróun þess.

Í námskránni er ekki alltaf hægt að finna matsviðmið á móti hverju hæfniviðmiði. Matsviðmiðin

fela gjarnan í sér mörg hæfniviðmið. Til að fá yfirsýn yfir stöðu hvers nemanda er mikilvægt að

tengja námsmarkmið og/eða matsverkefni nemenda við matsviðmið, þ.e. hversu vel

nemandi hefur tiltekna hæfni á valdi sínu út frá matsviðmiðum sem er grunnur að einkunnagjöf

(sjá töflu 7).

Kennarar geta valið kennsluaðferðir, námsefni og matsaðferðir á grundvelli hæfniviðmiða og

brotið matsviðmið niður í námsmarkmið. Námsmarkmið og viðfangsefni nemenda skulu ávallt

tengjast við matsviðmið. Matsviðmið eru kvarði sem sýnir hversu vel nemendur hafa hæfni á

Page 10: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

10 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

valdi sínu. Hæfniviðmiðin eiga að endurspeglast í lýsingu í matskvarðanum (sjá töflu 6–7).

Kennari velur þau hæfniviðmið sem hann ætlar að leggja áherslu á í kennslunni. Hann velur

matsviðmið á móti hæfniviðmiðum sem stuðning fyrir mati (sjá töflu 7). Útbýr náms- og

kennsluáætlun sem tengir viðfangsefni nemenda og námsmarkmið. Hann getur bætt inn sínum

eigin námsmarkmiðum og/eða skólans eftir því sem við á og getur útbúið eigin mats- og/eða

sóknarkvarða til að meta námsmarkmiðin og tengja við viðfangsefni nemenda. Kennari getur

brotið upp matsviðmiðin í setningar svo auðveldara verði fyrir hann að meta hvaða viðmið eiga

best við nemandann. Nota námsmarkmið til að gera námsmatið skýrara fyrir bæði nemendur

og foreldra/forráðamenn.

Tafla 7: Hæfniviðmið og matsviðmið í stærðfræði fyrir 10. bekk

Dæmi um hæfniviðmið í tölfræði og líkindi

Við lok 10. bekkjar getur nemandi:

notað tölfræðihugtök til að skipuleggja, framkvæma og túlka tölfræðirannsóknir, framkvæmt og dregið einföld líkindahugtök og talningar til að reikna og túlka líkur á atburðum

notað tölfræðihugtök til að setja fram, lýsa, skýra og túlka gögn

skipulagt og framkvæmt einfaldar tölfræðikannanir og dregið ályktanir af þeim

lesið, skilið og lagt mat á upplýsingar um líkindi sem birtar eru á formi tölfræði, t.d. í fjölmiðlum

framkvæmt tilraunir þar sem líkur og tilviljun koma við sögu og túlkað niðurstöður sínar

notað hugtök eins og skilyrtar líkur og óháðir atburðir, notað einfaldar talningar til að reikna og túlka líkur á atburðum

Dæmi um matsviðmið í tölfræði og líkindi

A B C

Notað tölfræðihugtök af öryggi við að skipuleggja, framkvæma og túlka tölfræðirannsóknir.

Notað tölfræðihugtök við að skipuleggja, framkvæma og túlka tölfræðirannsóknir.

Notað tölfræðihugtök við að skipuleggja, framkvæma og túlka tölfræðirannsóknir undir leiðsögn.

Nemandi í 5. bekk sem metinn er út frá viðmiðum sem sett eru fram fyrir 7. bekkinn þarf að

meta út frá hvaða hæfni hann á að hafa miðað við að vera í 5. bekk. Eins er um nemanda í 6.

bekk. Ekki er ætlast til eins mikillar hæfni af nemanda sem er í 6. bekk og nemanda sem er í

7. bekk. Eins og áður hefur komið fram eru hæfniviðmið sett fram fyrir 4., 7. og 10. bekk (sjá

töflu 8) og þurfa því skólar að setja fram viðmið fyrir aðra árganga (sjá töflu 8–9).

Page 11: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

11 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Tafla 8: Hæfniviðmið 4., 7. og 10. bekkur

Hæfniviðmið – Hönnun og smíði

Við lok 4. bekkjar getur nemandi:

Við lok 7. bekkjar getur nemandi:

Við lok 10. bekkjar getur nemandi:

valið og notað nokkur verkfæri sem hæfa viðfangsefni á öruggan hátt,

valið og notað á réttan hátt helstu verkfæri og mælitæki,

valið aðferðir, efni og verkfæri við hæfi og sýnt rétta og ábyrga notkun verkfæra,

Tafla 9: dæmi um viðmið á miðstigi. Stærðfræði – tölfræði og líkindi.

Að geta framkvæmt einfaldar tölfræðirannsóknir, unnið og lesið úr niðurstöðum sínum, sett upp í einföld myndrit, tekið þátt í umræðum um gögn og upplýsingar, dregið ályktanir um líkur og reiknað út líkur í einföldum tilvikum.

Við lok 5. bekkjar getur nemandi:

Við lok 6. bekkjar getur nemandi:

Við lok 7. bekkjar getur nemandi:

safnað og unnið úr gögnum, flokkað þau eftir tíðni og skráð, lesið úr niðurstöðum sínum og sett upp í einföld myndrit,

safnað og unnið úr gögnum, flokkað þau eftir tíðni og valið myndræna framsetningu

safnað og unnið úr gögnum, miðlað upplýsingum um þau, m.a. með töflum og myndritum

gert einfaldar tölfræðirannsóknir

gert einfaldar tölfræðirannsóknir og dregið einfaldar ályktanir af þeim

gert einfaldar tölfræðirannsóknir og dregið einfaldar ályktanir af þeim

tekið þátt í umræðum um gagnasöfnun og myndrit,

útskýrt gögn og upplýsingar í töflum

sótt gögn í gagnabanka, lesið, útskýrt og túlkað gögn og upplýsingar sem gefnar eru í töflum og myndritum

tekið þátt í umræðum um tilviljanir og líkur

dregið ályktanir um líkur út frá eigin tilraunum

dregið ályktanir um líkur út frá eigin tilraunum og borið saman við fræðilegar líkur

gert einfaldar tilraunir með líkur

reiknað út líkur í einföldum tilvikum

reiknað út líkur í einföldum tilvikum

Sóknarkvarðar

Sóknarkvarðar (bls. 94–104) er skráningaraðferð sem byggist á að skilgreina, af eins mikilli

nákvæmni og unnt er, þær kröfur sem gerðar eru eða þær viðmiðanir sem hafðar eru til

hliðsjónar við mat (sjá töflu 10). Sóknarkvarðar eru hugsaðir sem leið til að auka áreiðanleika

og réttmæti mats á fjölbreyttum viðfangsefnum nemenda og auðvelda kennurum að halda

4. bekkur 7. bekkur 10. bekkur

Page 12: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

12 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

utan um reglulegar og nákvæmar skráningar. Megintilgangur þess að nota sóknarkvarða í

skólastarfi er að:

námsmarkmiðin og viðmiðin verði skýrari

tengslin milli markmiða og mats verði skýrari

mat kennara sé samræmt

nemendur geri sér betur grein fyrir til hvers er ætlast, þ.e. þau viðmið sem höfð eru

til hliðsjónar við mat hafi verið skilgreind

Við val á viðmiðum er mikilvægt að:

velja 4-6 viðmið fyrir hvern námsþátt í námsgrein/námssviði

viðmið fyrir afrakstur námsins beini sjónum að tilteknum þáttum

viðmið fyrir námsferlið og/eða mat á lykilhæfni þarf að vera byggt á traustum gögnum

hafa minnst 3–4 stig/þrep á kvarðanum

Tafla 10: Dæmi um viðmið í 10. bekk. Íslenska, talað mál, hlustun og áhorf.

4. Settu marki náð 3. Komin áleiðis að markinu

2. Komin nokkuð áleiðis að markinu

1. Náði ekki markinu

Getur tjáð sig mjög skýrt og áheyrilega.

Getur tjáð sig skýrt og áheyrilega.

Getur tjáð sig sæmilega skýrt.

Getur að einhverju leyti tjáð sig.

Getur af öryggi gert grein fyrir skoðunum sínum og rökstutt þær mjög vel.

Getur gert grein fyrir skoðunum sínum og rökstutt þær.

Getur gert grein fyrir skoðunum sínum.

Getur að einhverju leyti gert grein fyrir skoðunum sínum.

Gerir sér vel grein fyrir gildi góðrar framsagnar.

Gerir sér grein fyrir gildi góðrar framsagnar.

Gerir sér nokkra grein fyrir gildi góðrar framsagnar.

Gerir sér ekki grein fyrir gildi góðrar framsagnar.

Getur nýtt sér mjög vel margs konar fræðslu og skemmtiefni .

Getur nýtt sér margs konar fræðslu og skemmtiefni .

Getur nýtt sér að nokkru leyti fræðslu og skemmtiefni .

Getur ekki nýtt sér fræðslu og skemmtiefni.

Getur náð mjög góðum tengslum við áhorfendur.

Getur náð góðum tengslum við áhorfendur.

Getur náð sæmilegum tengslum við áhorfendur.

Nær ekki tengslum við áhorfendur.

Getur tekið mjög virkan þátt í samræðum og rökræðum.

Getur tekið virkan þátt í samræðum og rökræðum.

Getur að nokkru leyti tekið þátt í samræðum.

Getur að einhverju leyti tekið þátt í samræðum.

Getur hlustað af athygli og sýnt viðeigandi kurteisi.

Getur hlustað og sýnt viðeigandi kurteisi.

Getur að einhverju leyti hlustað og sýnt kurteisi.

Getur ekki hlustað og sýnt viðeigandi kurteisi.

Getur hlustað á mjög gagnrýninn hátt á ýmiss konar fjölmiðlaefni.

Getur hlustað á gagnrýninn hátt á ýmiss konar fjölmiðlaefni.

Getur að nokkru leyti hlustað á ýmiss konar fjölmiðlaefni.

Getur að einhverju leyti hlustað á ýmiss konar fjölmiðlaefni.

Page 13: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

13 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Lokamat kennara

Mat kennara þarf að taka mið af markmiðum og inntaki skólastarfsins. Það þarf að endurspegla

hæfniviðmið/námsmarkmið og námsþætti sem kennarar leggja áherslu á. Fjölbreytt og faglegt

mat felur í sér bæði hlutlægt og huglægt mat kennara. Kennarar þurfa því að taka ígrundaða

afstöðu og ákveða hvað og hvernig þeir telja æskilegast að meta og gefa síðan eins

áreiðanlega einkunn og kostur er fyrir námsárangur eða námsafrakstur nemenda.

Skólar þurfa að íhuga vel hvernig niðurstöður eru birtar og að leggja áherslu á viðmið um

árangur í annar- og lokaeinkunn. Einnig er mikilvægt að stöðugleika gæti, þ.e. að viðmið séu

eins eða svipuð hjá kennurum sem kenna sömu námsgrein, sama árgangi eða aldursstigi. Til

að svo megi verða þurfa kennarar að setja skýr viðmið (markmið) um hvaða kunnáttu og færni

nemendur eigi að hafa náð við lok hvers árgangs og aldursstigs og hvernig þeir ætla sér að

meta hvort þessum markmiðum hafi verið náð.

Oftast er gert ráð fyrir því að allir nemendur fái sömu meðferð, þ.e. sams konar mat, sömu

kröfur séu gerðar á sama tíma, sömu útreikninga og að sami fjöldi matsgagna sé að baki

lokamati þeirra. Það er aftur á móti ekki alltaf sanngjarnt að meðhöndla nemendur á sama hátt.

Sanngirni hefur ekki sömu merkingu og jafnræði en oft er gert ráð fyrir því, þegar einkunn á í

hlut. Mestu máli skiptir að kennarar reyni að koma til móts við þarfir nemenda, þ.e. að allir

nemendur fái tækifæri til að sýna hvað þeir vita og geta. Sumir nemendur þurfa t.d. lengri tíma

til að ljúka matsverkefnum og gefst því vel að aðlaga matið eða prófið að þörfum þeirra, þ.e.

búa til út frá sömu markmiðum einstaklingsmiðuð próf sem geta verið miskrefjandi fyrir ólíka

einstaklinga (bls. 120–122).

Einkunnir – lokamat

Rannsóknir sýna að við einkunnagjöfina leggja margir kennarar megináherslu á námsárangur,

s.s. niðurstöður úr skriflegum prófum, en sumir kennarar leggja enn fremur áherslu á að aðrir

þættir, eins og hegðun, framkoma, skil á verkefnum og virkni nemenda, séu hluti af lokaeinkunn

þeirra. Mikilvægt er að flokka matsgögn sem kennarar nota sem grunn að einkunnagjöfinni í

þrennt: Í fyrsta lagi; árangur; hvað vita og geta nemendur á tilteknum tíma (lokapróf eða

lokaverkefni). Í öðru lagi; ferlið eða hvernig gekk nemandanum í námsferlinu, s.s. viðleitni hans,

vinnubrögð, skil á verkefnum, skyndipróf, heimanám o.fl. Í þriðja lagi eru; framfarir og þroski,

þ.e. náði nemandinn einhverjum árangri á önninni? Þessir flokkar; árangur, námsferlið og

framfarir nemenda eiga að vera vel aðgreindir í vitnisburði nemenda (bls. 122–137). Margir

fræðimenn leggja áherslu á að vitnisburður taki mið af því að aðgreina þessa þrjá þætti. Mestu

skiptir þegar kemur að því að taka ákvörðun um lokaeinkunn í námsgrein/námssviði að íhuga:

Page 14: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

14 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

hvaða hæfniviðmið var lögð megináhersla á eða hvaða viðmið eru mikilvægust?

hvort táknið (bókstafur/tölustafur) sýni örugglega bestu frammistöðu nemandans?

Matsviðmið eru lýsing á að hvaða marki nemandi hefur hæfni á valdi sínu. Í aðalnámskrá má

sjá lýsingu á matsviðmiðum fyrir námssvið/námsgreinar og lykilhæfni. Eins og áður hefur komið

fram eru matsviðmiðin einungis skráð í aðalnámskrá sem viðmið við lok 10. bekkjar til

stuðnings við námsmat við lok grunnskóla. Matsviðmiðin lýsa hæfni á fjórskiptum kvarða:

framúrskarandi hæfni, góðri hæfni, sæmilegri hæfni og hæfni sem ekki nær hæfniviðmiðum

(sjá töflu 11).

Samkvæmt breytingum á aðalnámskránni hafa verið gerðar breytingar á matskvarðanum A-

B-C-D, þar sem bætt hefur verið við + einkunn við B og C og þá má gefa stjörnumerkta einkunn

við lok grunnskólans (sjá töflu 11). Eins og áður hefur komið fram er ekki gert ráð fyrir að gefa

rafræna lokaeinkunn fyrir lykilhæfni við lok grunnskólans.

Til að vitnisburður gefi nákvæmari upplýsingar um árangur nemenda er mikilvægt að flokka

hæfniviðmiðin og útbúa skýr matsviðmið. Námsmarkmið og viðfangsefni nemenda eiga að

vera sönnun fyrir árangri nemenda. Matsaðferðir eiga ekki að vera grunnur að

einkunnagjöfinni, t.d. 50% próf, 20% verkefni, 5% sjálfsmat, 25% mat á hópverkefni (sjá töflu

14). Verkefni nemenda á að flokka eftir því hversu vel nemendur hafa tiltekna hæfni á valdi

sínu (þekking, skilningur og leikni).

Mikilvægt er að hafa í huga að nemendur þurfa leiðsögn og stuðning áður en endaleg einkunn

er ákveðin og að hægt er að meta hæfni nemenda (markmið) oftar en einu sinni. Eins og fram

hefur komið þarf að gera ráð fyrir að framfarir séu vel aðgreindar í vitnisburði. Með hliðsjón af

því er ekki nauðsynlegt að safna öllum niðurstöðum úr mati annarinnar fyrir lokaeinkunn, gefa

núll fyrir það sem ekki var klárað og taka meðaltal af öllu saman. Í lokaeinkunn á helst að nota

nýjustu matsgögn (niðurstöður úr lokamati) eða skipta eldri gögnum út fyrir ný. Með því að

horfa á nýjustu gögnin sjá kennarar og nemandi hvaða árangri hann hefur náð (bls. 136).

Page 15: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

15 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Tafla 11: Matsviðmið við lokamat við útskrift úr grunnskóla og þrep í framhaldsskólum

Matskvarði Viðmið um árangur Þrep í framhaldsskólum

A Framúrskarandi hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.

2. þrep

B+ Mjög góð hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.

2. þrep

B Góð hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.

2. þrep

C+ Nokkuð góð hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.

1. þrep

C Sæmileg hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.

1. þrep

D Hæfni og frammistöðu í námi ábótavant með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.

1. þrep

Stjörnumerkt

A*- B*- C*- D*

Hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af einstaklingsnámskrá nemandans.

Tafla 12. Dæmi um hæfnistig

Viðmið og gildi fyrir samræmt próf í ensku

2.0 3.0 4.0

Hæfnistig C Hæfnistig B Hæfnistig A

Nemandi þarf að lágmarki að: Nemandi þarf að lágmarki að: Nemandi þarf að lágmarki að:

geta lesið stutta texta með grunnorðaforða daglegs máls

ráða við einfaldan orðaforða og geta lesið sér til gagns stutta einfalda texta og fundið í þeim afmarkaðar upplýsingar

hafa nægan orðaforða til að geta lesið almenna texta um margvísleg málefni,

skilja megininntak þeirra og geta fundið aðalatriðin í þeim

hafa góðan orðaforða og geta lesið almenna og sérhæfðari texta af ólíkum toga, svo sem fræðilegt efni

geta lýst atburðarás í rituðu máli og stuðst við einfaldan orðaforða

geta beitt reglum um málnotkun sæmilega rétt

geta skrifað einfaldan texta á hnökralitlu máli þar sem grunnreglum um málnotkun og uppbyggingu texta er að mestu leyti fylgt

skilja hugtök í textanum og gera sér grein fyrir helstu niðurstöðum

geta skrifað lipran samfelldan texta og fylgt helstu reglum um málnotkun

geta nýtt orðaforða sem unnið hefur verið með

sýna góð tök á orðaforða og vald á tengiorðum

hafa gott vald á uppbyggingu og samhengi

Page 16: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

16 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Tafla 13: Hefðbundnar – hæfnimiðaðar einkunnir

Hefðbundin einkunnakerfi Hæfnimiðað einkunnakerfi

Byggt á matsaðferðum s.s. skyndiprófum, prófum, heimavinnu, verkefnum o.s.frv. Ein færsla skráð pr. mat.

Byggt á námsmarkmiðum og/eða viðmiðum um árangur. Ein færsla fyrir hvert matsviðmið/ námsmarkmið.

Mat byggist á prósentuútreikningi. Viðmið um árangur eru óljós.

Hæfni nemenda er viðmiðið. Viðmið og markmið eru aðgengilegar nemendum frá upphafi námsins.

Notaðar eru ólíkar matsaðferðir, s.s. skil á verkefnum, aukaverkefni, viðleitni nemenda og hegðun, sem hefur áhrif á lokaeinkunn.

Mæling á námsárangri og aðgreining á öðrum þáttum (lykilhæfni nemenda) t.d. viðleitni, hegðun. Ekki er refsað fyrir að skila verkefnum of seint eða gefið stig fyrir aukavinnu.

Allar niðurstöður settar í eina einkunn - óháð tilgangi matsins.

Val á matsaðferðum (próf, verkefni, o.s.frv.) tekur mið af tilgangi matsins.

Gefin stig alveg óháð því hvenær matið fór fram. Tekið meðaltal af öllu mati – ekki einungis bestu niðurstöðum.

Við lokaeinkunnagjöf er áhersla á nýjustu gögnin, þ.e. áhersla á námsframvindu nemandans.

Á vitnisburði nemenda á yngsta stigi er oftast áhersla á umsagnir sem taka mið af framförum

nemenda og stöðu þeirra við lok anna. Á miðstigi er hins vegar meiri áhersla á tákn

(tölur/bókstafi) og/eða umsagnir (sjá dæmi í töflu 14). Við lok grunnskólans ber kennurum að

taka mið af lokamatsviðmiðum aðalnámskrár og nýjum matskvarða A-B-C-D.

Tafla 14: Viðmið fyrir vitnisburð á miðstigi. Íslenska – málfræði

Hæfni og frammistaða

Umsögn

Framúrskarandi árangur

Þú hefur náð mjög góðum tökum á þeim þáttum íslenskunnar sem við höfum unnið með í vetur, fyrirmyndarmálsgrein, nafnorð, sérnöfn, sagnorð og lýsingarorð og getur af öryggi notað þá við lausn verkefna.

Góður árangur Þú hefur náð góðum tökum á þeim þáttum íslenskunnar sem við höfum unnið með í vetur, fyrirmyndarmálsgrein, nafnorð, sérnöfn, sagnorð og lýsingarorð og getur notað þá við lausn verkefna.

Sæmilegur árangur

Þú hefur náð sæmilegum tökum á þeim þáttum íslenskunnar sem við höfum unnið með í vetur, fyrirmyndarmálsgrein, nafnorð, sérnöfn, sagnorð og lýsingarorð og getur með aðstoð notað þá við lausn verkefna.

Þarfnast þjálfunar

Einstaklingsmiðuð umsögn: Þú hefur náð …

Page 17: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

17 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Norðurlönd

Á Norðurlöndunum er einungis gefin lokaeinkunn í elstu árgöngum grunnskólans, t.d. í Noregi

er gefin einkunn á töluskalanum (1–6) í 8.–10. bekk og í Svíþjóð eru gefnir bókstafir (A–F) í

7.–10. bekk (sjá töflu 15). Aðrir árgangar fá sitt mat í formi umsagna. Þar er gerður skýr

greinarmunur á mati í námsferlinu (stöðugt mat/leiðsagnarmat) og lokamati. Einkunnir á

elsta stigi eru einungis skráðar við lok anna eða við lok grunnskólans. Bæði Norðmenn og

Svíar gera greinamun á annarmati (haust og að vori) og á mati við lok grunnskólans. Þeir

telja að annarmat sé hluti af námsferlinu og að nemendur á elsta stigi eigi að fá einkunnir og

umsagnir við lok anna. Annað gildir um lokamat sem fer fram við lok grunnskólans og þá er

hverjum bókstaf gefið tiltekið gildi. Í Svíþjóð er gildi bókstafa: A 20 stig, B er 17,5, C er 15, D

er 12,5, E er 10 og F er 0 stig (sjá dæmi í töflu 15). Þeir nota sama skala í framhaldsskólum

en síðasti bókstafurinn F dettur út. Í töflum 12 og 15 má sjá það gildi sem rætt er um að

bókstafirnir í íslenska kerfinu skulu hafa, þ.e. 4.0-3.0-2.0 og +bókstafirnir hafa gildin 3.75 og

2.75. Þessi stig verða notuð við inngöngu í framhaldsskóla og af menntamálastofnun.

Tafla 15: Tákn, gildi og lokamat – Norðurlönd

Aðalnámskrá grunnskóla

Bókstafir í lokaeinkunn

eru:

Gildi Ísland

Tölustafir Noregur

Bókstafir Svíþjóð

Viðmið Svíþjóð

Gildi Svíþjóð

A 4.0 6 A Uppfyllir öll matsviðmið

fyrir A 20

B+ 3.75 5 B Uppfyllir matsviðmið fyrir

C og hluta af A 17,5

B 3.0 4 C Uppfyllir öll matsviðmið

fyrir C 15

C+ 2.75 3 D Uppfyllir matsviðmið fyrir

E og hluta af C 12,5

C 2.0 2 E Uppfyllir öll matsviðmið

fyrir E 10

D 0.0 1 F Uppfyllir ekki matsviðmið

fyrir E 0

Ef íslenskir skólar nota sænsku viðmiðin þá má gera ráð fyrir að nemandi sem fær B+ hafi

uppfyllt öll viðmið í B og hluta af A. Þá fái nemandi sem uppfyllir öll viðmið í C og hluta af

B fái C+ í lokaeinkunn. Nemendur geta fengið sömu einkunn þrátt fyrir að þeir uppfylli ekki

nákvæmlega sömu viðmið við lokamat (sjá dæmi í töflu 16).

Page 18: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

18 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Tafla 16: Lokamat í íslensku ef miðað er við sænsk viðmið – dæmi um einkunn B+ og C+

A

B

C

Nemandi 1

A

B

C

Nemandi 2 Nemandi 3

Nemandi 4

*

D

C

C+

B

B+

A

A

B

C

A

B

C

Page 19: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

19 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Bandaríkin

Að mati R. J. Marzano sem er bandarískur námsmatssérfræðingur á ekki að gefa

bókstafaeinkunnir A-B-C-D á yngsta stigi eða miðstigi. Hann leggur áherslu á að bókstafirnir

séu notaðir við annar – og lokamat elstu árganga í grunnskólum og í framhaldsskólum. Við

hæfnimiðaða einkunnagjöf bendir hann á tvær leiðir þ.e. standard based grading – standard

referenced grading. Fyrri leiðin leggur megináherslu á einstaklingsmiðað nám og

leiðsagnarmat, þ.e. framfarir og árangur hvers nemanda óháð árgangi en áhersla í seinni er á

samanburð og árangur nemenda í tilteknum árgangi.

4 þrepa kvarði Marzano (sjá töflu 17–18) virðist

vera orðin nokkuð algengur í bandarískum

skólum. Þar eru skráð þrep sem eiga að sýna

þekkingu, skilning og leikni nemandans á 4 þrepa

kvarða (framúrskarandi, á góðri leið,

ásættanlegur, þarfnast þjálfunar). Skor á 3.0 og

4.0 sýnir að nemandi hafi náð viðmiðum en skor

á 1.0 og 2.0 að hann uppfylli ekki viðmiðin. Þetta

eru viðmið sem notuð eru í námsferlinu og sýna

námsframfarir nemenda. Nemandi byrjar t.d. á

þrepi 2.0 og er líður á önnina kemst hann

hugsanlega á næsta þrep á kvarðanum. Gefið er

fyrir námsþætti og lokaeinkunn ekki gefin fyrr en

í lok annar. Marzano bendir á að margir kennarar

vilji gjarnan hafa kvarðann nákvæmari og bæta

inn í hann 0.5 þegar þeir eru að meta viðfangsefni nemenda sinna. Væntingar um

námsframmistöðu nemenda í tilteknum árgangi er ávallt skráð á 3.0.

Tafla 17: Marzano 4 þrepa kvarði – við mat á markmiðum/viðmiðum/viðfangsefnum nemenda

0 1.0 2.0 3.0 4.0

Þrátt fyrir aðstoð, enginn eða lítill skilningur eða færni.

Með aðstoð er einhver skilningur á einstaka þáttum og einföldum atriðum.

Fáar skekkjur, á einföldum þáttum en mun fleiri ef um flóknari þætti er að ræða.

Fáar eða engar skekkjur á því sem kennt var.

Skilningur og færni umfram væntingar.

0 0.5 1.0 1.5 2.0 2.5 3.0 3.5 4

Page 20: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

20 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Tafla 18: Ákvörðun við lokamat: Að breyta þrepum/gildum á kvarða í bókstaf – sbr. Marzano

Aðal-námskrá

grunnskóla

Bókstafir í lokaeinkunn

eru:

Námsþættir Heildarmat úr 4 þrepa

kvarða Marzano

Bókstafir

Bandaríkin

Þrep/ gildi á kvarða

4 þrepa kvarði

Viðmið Marzano

Hugtök

Viðmið um árangur á lokamati

A 3.51 – 4.00 A 4.0 Að minnsta kosti meira en helmingur er á

4 þrepi og afgangur á 3.

Framúr-skarandi hæfni.

Einkunn sem sýnir frammistöðu

umfram

væntingar, frammistaða mjög

stöðug og sýnir ávallt sjálfstæði í

námi.

B+ 3.00 – 3.50 A- 3.5 ¾ er á 4 eða 3 þrepi og

afgangur er ekki lægri en

2.

Mjög góð hæfni.

B 2.51 – 2.99 B 3.0 Að minnsta kosti meira en 1/3 á 3 eða 4

þrepi og rúmlega

helmingur ekki lægra en 2.

Góð hæfni. Einkunn sem sýnir að frammistaða er

samkvæmt

væntingum, sýnir færni í

námsefninu og er vandvirkur.

Frammistaða stöðug og sýnir

sjálfstæði í námi.

C+ 2.01– 2.50 B- 2.5 Að minnsta kosti

helmingur er á 2 þrepi eða

yfir.

Nokkuð góð hæfni.

C 1.51– 2.00 C 2.0 Meira en helmingur er á

2 þrepi og afgangur er

undir.

Ásættanleg hæfni.

Einkunn sem sýnir að með aðstoð er

væntingum náð, nær ekki alltaf

þeirri færni sem stefnt er að. Þarf stuðning í námi.

D 0.76 – 1.50

D 1.0 Meira en helmingur er á

1 þrepi eða undir … eða ófullnægjandi gögn er um að

ræða.

Þarfnast þjálfunar.

Einkunn sem sýnir óviðunandi

árangur og/eða ófullnægjandi

sannanir/gögn. Þegar nemandi nær ekki þeirri

færni sem að er stefnt og viðmiðum

árgangsins.

Stjörnu-merkt *

0.00 - 0.75

F 0 Einstaklingsmat.

Page 21: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

21 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Að mati námsmatsfræðinga er 100% kvarðinn ekki nægjanleg góð vísbending um hæfni

nemenda og telja að notkun á slíkum mælikvarða ósanngjarna gagnvart nemendum. Með því

að hafa minni jafnbilakvarða og flokka betur námsþætti/ inntaksþætti námssviðs/ námsgreina

– fáist nákvæmari og áreiðanlegri niðurstöður enn fremur stöðug og skýr viðmið fyrir hvern

árgang.

Gerð var breyting á aðalnámskránni (2015/gr.9.4) og þar kemur m.a. lagt til að skólar noti nýja

matskvarðann þar sem við á, enda er hann notaður við stöðluð próf og skimunarpróf í

grunnskólum. Það er því mikilvægt að skólar skoði vel hjá sér námsmatið og breytingar á því.

Kennurum og skólum getur reynst erfitt að aðlagast nýju einkunnakerfi. Mörgum finnst of lítil

tími hafa verið gefin í þróunarstarf og gagnrýnt skort á upplýsingum og telja að það vanti

leiðbeiningar fyrir skóla til að geta stuðla að markvissum breytingum á námsmati.

Vorið 2016 eiga kennarar nemenda í 10. bekk að skila lokamati grunnskólans sem byggt er á

hinum nýja matskvarða. Skólar hafa verið að fara mismunandi leiðir og ætla má að þeir hafi

reynt eftir bestu getu að aðlaga nám og mat að hinum nýja kvarða. Það er ekki einfalt að fara

frá rótgrónu einkunnakerfi og í að breyta námsmatinu og kennsluháttum. Breytt námsmat kallar

á breytingar á kennslunni þar sem lögð er áhersla á að gera námsmarkmiðin sýnileg

nemendum og að í gegnum leiðsagnarmat fái þeir stöðuga endurgjöf á stöðu sína í náminu og

leiðbeiningar um næstu skref. Vandræði í skólanum skila óöryggi hjá nemendum og

forráðamönnum. Það má því ætla að mikil vinna bíði skóla/kennara á næstu árum við að

innleiða nýja hugsun er varðar námsmat, þá sérstaklega einkunnagjöfina og leiðsagnarmat.

Markmið með hæfnimiðuðum einkunnum er að veita kennara, nemanda og foreldrum/

forráðamönnum eins nákvæma mynd og hægt er af námi nemandans og að skapa umræðu

um hvernig nemandinn getur náð sem bestum árangri. Nám er ferli sem á sér stað yfir lengri

tíma, við hvert mat þarf að gefa nemandanum lýsandi endurgjöf, hvernig hann geti bætt sig og

hvað hann á að gera næst og/eða leyfa nemandanum að endurtaka matið. Ef nýtt mat sýnir

meiri hæfni, eru gefið nýtt mat í stað þess gamla. Markmið skólans á að vera að gefa eins

nákvæmar, samræmdar einkunnir og að vitnisburður nemenda sé leiðbeinandi og styðji nám.

Þá er mikilvægt að einkunn nemenda byggi einungis á námsþáttum en ekki vinnulagi eða

viðhorfum hans. Það eru þó þættir sem skipta máli og mikilvægt að gefa sérstaklega fyrir.

Page 22: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

22 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Tafla 19: Dæmi um áætlun í talað mál, hlustun og áhorf, íslenska 10. bekk

Hæfniviðmið Aðalnámskrá grunnskóla

Íslenska

Matskvarði A–B–C–D

Talað mál, hlustun

og áhorf

Matsaðferðir:

Áhersluatriði

Námsmarkmið

Viðmið um árangur

Lokaeinkunn

Lýsing á

matsviðmiðum B

Nemandi getur: flutt mál sitt skýrt og áheyrilega og hefur tileinkað sér viðeigandi talhraða og fas gert sér grein fyrir eðli góðrar framsagnar og framburðar og nýtt leiðbeiningar um framsögn, svo sem um áherslu, tónfall, hrynjandi og fas og lagað það að viðtakanda og samskiptamiðli á fjölbreyttan hátt, m.a. með leikrænni tjáningu nýtt aðferðir sem hann hefur lært til að taka virkan þátt í samvinnu, samræðum og rökræðum, tjáð skoðanir sínar með ýmsum hætti, rökstutt þær og valið þeim miðil sem hentar hlustað, tekið eftir og nýtt sér upplýsingar í töluðu máli til fróðleiks og skemmtunar, einnig notið myndefnis, upplestrar, leikins efnis og tónlistar og gert grein fyrir skoðun sinni á viðkomandi efni nýtt sér fjölmiðla, svo sem útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og rafrænt efni, og tekið afstöðu til þess sem þar er birt átt góð samskipti þar sem gætt er að máli, hlustun, tillitssemi, virðingu og kurteisi

Munnleg próf Frammistöðu-mat:

mat á framsögn

mat á hlustun

mat á notkun heimilda og gagna

Viðmið í hlustun, samræðum og tjáningu bls. 90

Dæmi um 4 stiga/þrepa

kvarða: bls. 186-187. Kynning:

undirbúningur og skipulag

efnisþættir

gögn

upplestur

áhugi og athygli

fyrirmæli bls. 197. Framsögn – ljóðalestur:

lestur og áherslur

raddstyrkur

líkamsstaða

hlustun bls. 205. Viðtal:

undirbúningur

form

efni viðtals

Framsögn og hlustun. Skipulag og notkun gagna og upplýsinga. Greining og mat.

Leiðir:

Viðfangsefni nemanda

Munnleg kynning t.d. á glæpasögu, sjónvarpsþætti o.s.frv. Framsögn, mismunandi bókmenntatexti og/eða upplestur á ljóði. Munnlegur og skriflegur rökstuðningur (ritun). Viðtal (samræður) og skriflegar niðurstöður (ritun). Samræður.

Ég get tjáð mig skýrt og áheyrilega. Ég get náð góðum tengslum við áhorfendur. Ég geri mér grein fyrir gildi góðrar framsagnar. Ég get gert grein fyrir skoðunum mínum og rökstutt þær. Ég get hlustað af athygli og sýnt viðeigandi kurteisi. Ég get tekið þátt í samræðum og rökræðum. Ég get hlustað á gagnrýninn hátt á ýmiss konar fjölmiðlaefni. Ég get nýtt mér margs konar fræðslu og skemmtiefni.

Sbr. kvarða í töflu er lokaeinkunn í talað mál, hlustun og áhorf: B+ (sænsk viðmið) eða þrep í Marzano kvarða ¾ er á 3. og 4. og afgangur á 2 þrepi. Lokaeinkunn B+

Matsþættir í lokamati; tökum við tillit til vægi

námsþátta eða hafa öll

markmið sama vægi í matinu?

Hversu stór þáttur er talað mál, hlustun og áhorf í íslenskunámi nemenda? Hversu stór þáttur er lestur og bókmenntir? Hversu stór þáttur er ritun? Hversu stór þáttur er málfræði?

Nemandi getur: flutt mál sitt skýrt og áheyrilega með blæbrigðum og áherslum sem hæfa efni og tilefni Hlustað og nýtt sér upplýsingar í töluðu máli til fróðleiks, skemmtunar og sem heimildir í vinnu, og notið myndefnis, leikins efnis, tónlistar og sett fram rökstutt mat á viðkomandi efni

Page 23: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

23 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga:

Við einkunnargjöf:

1. Að umbreyta ekki þrepum á kvarða í lokaeinkunn nema að markmið/hæfniviðmið viðkomandi verkefnis/prófs sé ætlað til lokamats.

2. Að ef kennari ætlar að nota þrep úr kvarða þarf hann að safna gögnum yfir lengri tíma og muna að skipta út eldri gögnum fyrir ný – nota nýjustu gögnin.

3. Að nota töfluna til að umbreyta mati á gögnum á sama skala. Gildi á kvarða má ekki rugla við prósentueinkunnir – gildi 3.0 þýðir ekki að nemandi hafi skilið 75% af inntakinu.

Tilgangur matsins:

• að stöðumat – er mat á fyrri þekkingu, hæfni, viðhorfi

• að leiðsagnarmat – er mat á meðan á kennslu stendur

• að lokamat – er mat eftir að kennslu lýkur

Við upphaf hverrar annar:

að brjóta niður hæfniviðmið í minni einingar - námsmarkmið og viðmið um árangur sem hægt er að nota í gátlista, mats- og/eða sóknarkvarða

að nota fjölbreyttar matsaðferðir sem eru í samræmi við hæfniviðmið/námsmarkmið

að byggja einkunn á matsgögnum sem sýna hvort nemandinn hafi náð þeirri hæfni sem að var stefnt

Annað:

að nota faglega dómgreind

að það er eitthvað rangt ef stöðugleiki er ekki í mati nemandans

að ekki er alltaf hægt að treysta á niðurstöður úr eldra leiðsagnarmati

að ekki er hægt að treysta 100% kvarða

að treysta ekki á eitt mat. Meta þarf hæfni nemandans oftar en einu sinni

að jafnvel besta kennaramat hefur áreiðanleika 0.45. sem þýðir 12% skekkjumörk

að það er mikil fjölbreytni hvaða merkingu einkunn hefur í huga fólks og hvernig kennarar ákveða lokamat – einkunnagjöfina

að samvinna er mikilvæg við að flokka, greina, túlka og ákveða lokamatið

að kynna fyrir nemendum og foreldrum hvernig þetta er frábrugðið og hvað það þýðir

A er ekki sama og 9,5–10 eða prósentuútreikningur á matsaðferð

að skoða vel hæfniviðmið og matsviðmið – samræmd viðmið

að Endurmat er leið til að sýna nemendum framfarir þeirra í náminu og er stuðningur við námið, þá kemur nýtt mat í stað eldri mats

að ef nemandi hefur ekki lokið við nauðsynlegt mat til að hægt sé að gefa honum lokaeinkunn s.s. vegna fjarvista eða annarra þátta getur kennari skráð ólokið. ÓL stendur fyrir „ekki lokið“ Þegar nemandi hefur lokið mati fær hann lokaeinkunn

Page 24: Lokamat · 2017. 9. 14. · Vitnisburðarblað þarf að mótast af áherslum skólans (sjá töflu 2). Það form sem skólar nota ætti að endurspegla skólastarfið og vera sprottið

24 Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Lokamat. Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2016

Heimildaskrá:

Arter, J. A. og McTighe, J. (2001). Scoring rubriscs in the classroom: Using performance

criteria for assessing and improving student performance. Thousand Oaks: Corwin Press.

Erna Ingibjörg Pálsdóttir. (2011). Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum

að nemendur læri. Reykjavik: IÐNÚ.

Guskey, T. R. (2009). Practical solutions for serious problems in standard based grading.

Thousand Oaks: Corwin Press.

Menntamálaráðuneytið. (2011). Aðalnámskrá grunnskóla. Almennur hluti. Reykjavík:

Menntamálaráðuneytið.

Menntamálaráðuneytið. (2013). Aðalnámskrá grunnskóla. Greinasvið. Reykjavík:

Menntamálaráðuneytið.

Menntamálastofnun. Vefur um námsmat. http://vefir.nams.is/namsmat/haefnieinkunn.html

O´Connor, K. (2007). A repair kit for grading: 15 fixes for broken grades. Portland:

Educational Testing Service.

Marzano, R. J. (2010). Formative assessment and standard based grading. The classroom

strategies series. Bloomington. Marzano Research.

Skolverket. Sótt af netinu: http://www.skolverket.se/bedomning

Stiggins R. J., Arter, J. A., Chappuis, J. og Chappuis, S. (2006). Classroom assessment for

student learning: Doing it right – using it well. Educational Testing Service. Princeton: New

Jersey.

Vurdering. Sótt af netinu: http://www.udir.no/Vurdering-for-laring/