vinnueftirlit ríkisins dvergshöfði 2, 110 reykjavík · ráðuneyti: velferðarráðuneyti...
TRANSCRIPT
Framkvæmdasýsla ríkisins 2017
Ljó
smyn
d: A
rna
Bjö
rk J
ónsd
óttir
Nýtt leiguhúsnæði aðalskrifstofu Vinnueftirlits ríkisins er vel staðsett á höfuðborgarsvæðinu og í góðum tengslum við helstu umferðaræðar. Hinn leigði eignarhluti er á 7. og 8. hæð hússins að Dvergshöfða 2, ásamt hálfri 2. hæðinni og hluta í kjallara. Það er samtals um 1.598 m² og skiptist í séreign sem er um 1.495 m² og um 103 m² sameign. Auk hlutdeildar í sameign hússins fylgir hlutdeild í lóðarréttindum og bílastæðum.
Vinnueftirlitið er miðstöð vinnuverndarstarfs í landinu og byggir starf sitt á samþættingu eftirlits, fræðslu og rannsókna.
Verkkaupi: Velferðarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Vinnueftirlit ríkisins Ráðuneyti: VelferðarráðuneytiNotandi: Vinnueftirlit ríkisinsUmsjón, frumathugun, þarfagreining,húslýsing og ráðgjöf: Gíslína Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR)
Leigusamningur / hönnunarferliráðgjöf, umsjón og eftirlit: Ármann Óskar Sigurðsson, verkefnastjóri FSR
Leigusali: Reginn atvinnuhúsnæði ehf.
Tengiliðir leigusala: Helgi S. Gunnarsson Birgir Guðmundsson Páll V. Bjarnason Ragnar Þór Bjarnason
Tengiliðir Vinnueftirlits ríkisins: Eyjólfur Sæmundsson Sigfús Jón Sigurðsson
Tengiliðir velferðar- og fjármála- og efnahagsráðuneytis: Leifur Benediktsson og Hanna S. Gunnsteinsdóttir í velferðarráðuneyti Hrafn Hlynsson í fjármála- og efnahagsráðuneyti
Hönnun á vegum leigusala: Batteríið Arkitektar ehf., Jón Stefán Einarsson
Stærðir: Leiguhúsnæðið: 1.598 m²
Leigusamningur: Tímabundinn til 25 ára og óuppsegjanlegur nema aðilar verði sammála um annað. Hann gildir til 1. maí 2042.
Leiguverð: 1.990 kr. á hvern fermetra. Leigan ber ekki vsk. Húsaleigan miðast við grunnvísitölu neysluverðs til verðtryggingar fyrir apríl 2017 eða 431,2 stig.
Afhending húsnæðis: 1. maí 2017
Vinnueftirlit ríkisins Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Gildi Vinnueftirlitsins eru frumkvæði, forvarnir og fagmennska.
Verknr. 608 0120 og 608 0125
SF-162 útg. 1