valeyrarvalsinn - brot

5

Upload: forlagid

Post on 08-Mar-2016

262 views

Category:

Documents


6 download

DESCRIPTION

Brot úr skáldsögunni Valeyrarvalsinn eftir Guðmund Andra Thorsson

TRANSCRIPT

Page 1: Valeyrarvalsinn - brot
Page 2: Valeyrarvalsinn - brot

Valeyrarvalsinn © Guðmundur Andri Thorsson 2011

Hönnun kápu: Jón ÁsgeirUmbrot: Einar Samúelsson, Hugsa sér!Letur í meginmáli: Palatino 10/15,8 pt. Prentun: Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja

Printed in Iceland

JPV útgáfa · Reykjavík · 2011

Öll réttindi áskilin.

Bók þessa má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar og útgefanda.

ISBN 978-9935-11-216-3

JPV útgáfa er hluti af Forlaginu ehf. www.forlagid.is

Bókin er tileinkuð minningu föður míns, Thors Vilhjálmssonar (1925–2011)

Valeyrarvalsinn.indd 4 14.9.2011 11:48

Page 3: Valeyrarvalsinn - brot

5

Hún kemur af hafi …

Hún kemur af hafi og fer inn eftir eyri. Þegar degi tekur að halla sígur þokan hægt inn eftir firðinum eins og hún gerir ævinlega á sumrin, snuðrar kringum holtin, skimar bak við hóla, líður inn í þorpið þar sem hún sleikir húshorn og lyftir sér síðan nægilega til þess að ég geti horft inn um glugga. Ég sé leyndarmálin. Ég sé fólkið elda og bauka, pissa, syngja, þegja og húka. Sumir gráta, sumir hlusta, sumir stara. Ég sé fólkið æpa í kodda, henda rusli og ónýtum minningum og ég lít ekki undan. Ég lít aldrei undan. Jósa er ein og sýpur volgan bjór úr dollu á meðan hún skannar inn gömlu bekkj­armyndirnar sínar til að setja á Facebook. Kalli er í hlöðunni sinni að slappa af, búinn að vera að bjástra við eina þvotta­vélina enn. Anna og Jói talast ekki við í dag. Jónas læknir starir í gaupnir sér en Lalli lundi er lagður af stað í göngutúr og í þann veginn að rekast á hana Láru systur sína sem hann hefur ekki talað við áratugum saman … Og hérna klórar Svein sína sér á milli herðablaðanna með trésleif, hún ætlar að

Valeyrarvalsinn.indd 5 14.9.2011 11:48

Page 4: Valeyrarvalsinn - brot

6

líta til Jósu á eftir í tilefni dagsins en þá verð ég horfinn með þok unni. Rétt bráðum verð ég horfinn með grárri þokunni.

Við mjökumst áfram fyrir húshorn. Hún fer á undan mér eins og hún eigi að vera mætt einhvers staðar og sé orðin þreytt á drollinu í mér en við dokum samt við hjá litla rauða húsinu með gráa þakinu þar sem krakkarnir hennar Ástu eru miklu skárri í dag af kvefinu og Una litla er loksins hætt að gráta. Öll leyndarmálin í litlu þorpi – þau eru að vísu ekki stórvægileg, ekki öll að minnsta kosti og ekki alltaf, en við þokan erum samt hér á glugga eins og hnýsinn og tvíeinn guð sem getur ekki hætt að fullvissa sig um að mannlífið haldi áfram og hafi sinn gang þótt hann hafi gefið mönn­unum frjálsan vilja. Hún kemur af hafi og fer inn eftir eyri. Henni fylgir kul og enginn fagnar henni. Smyrill skáld finnur samt andann koma yfir sig þegar við nálgumst og stendur upp frá verkum sínum, tekur upp snjáðu og brúnu nótubók­ina sína, gengur hægt fram í eldhús og að glugganum þar sem hann horfir inn í buskann og hripar niður hugarmyndir fyrir ljóðaflokkinn sinn, Angan af ösku. Þokan er buskinn sem umlykur þig skyndilega. Hún er hið voðfellda mótlæti. Hún er lögmálið sjálft. Hún kemur af hafi og fer inn eftir eyri og fólkinu hérna finnst hún vera allt sem er grátt, þögnin kalda sem leggst hér stundum yfir lífið rétt eins og hún sveipaði rétt í þessu þorpsfjallið Svarra. Svo kemur kvöldið. Svo kem­ur nóttin. Og með nóttinni kemur rigningin.

Ástir vakna, blóm deyja, fólk gefst upp í miðri brekku, bílljós hverfa inn í kvöldsortann, kertaljós flöktir í golu frá glugga, stundir hverfa ekki úr sinni en dagarnir líða. Mán­uðir líða, kenndir og ár. Ég sé þetta bláa í himninum í apríl

Valeyrarvalsinn.indd 6 14.9.2011 11:48

Page 5: Valeyrarvalsinn - brot

7

og þetta græna í grasinu í maí. Ég sé vængjatökin þegar suðrið nálgast, heyri nýjan óm í þyt stráanna. Ég sé þetta rauða í kinnum barnanna á vorin þegar þau eru búin að vera úti að leika allan daginn. Ég sé haustveðrin í andlitum fólksins þegar það er búið að loka svipnum. Ég finn lykt­ina af vetrinum þegar hún stígur af hafi seint á haustin og dauðinn breiðist yfir veröldina. Ég hef séð ást vakna í augum og deyja í athöfnum. Ég hef séð yfirgefið barn hætta að gráta. Ég hef séð menn drukkna og drengi hengja sig. Ég hef séð þungaða konu myrta og grafna.

Ég er löngu dauður. Ég ætti að vera fyrir löngu slokkn­aður og kannski er ég það líka en hef bara ekki áttað mig á því enn. Ég er bara vitund. Ég kem af hafi og fer inn eftir eyri og bráðum verð ég horfinn með þokunni. Ég er síðdegis­golan og ég vitja fólksins um hálffimmleytið á daginn og fýk svo eitthvað burt klukkutíma síðar til míns heima sem er í því liðna; það er í grasinu sem bærðist áðan, það er í fræjum biðukollunnar sem líða á nýjan stað, það er í fellingum kjóls­ins hennar Kötu sem hjólar hér niður eftir Strandgötunni á leiðinni niður í Samkomuhús.

Valeyrarvalsinn.indd 7 14.9.2011 11:48