tónleikarnir.eruí.tengslum.við.vígsluahlborn
TRANSCRIPT
1
Hátíðartónleikar í Villingaholtskirkju í Flóa, laugardaginn 5. febrúar kl. 14:00.
Tónleikarnir eru í tengslum við vígslu Ahlborn - orgels kirkjunnar
en kirkjan á 100 ára afmæli á árinu 2011
Mynd: Ingimar Pálsson
Eftirtaldir organistar leika valin orgelverk :
Ólafur Sigurjónsson, Forsæti í Flóa
Guðjón Halldór Óskarsson, Hvolsvelli
Jón Ólafur Sigurðsson, Hjallakirkju
Guðný Einarsdóttir, Fella- og Hólakirkju
Haukur Guðlaugsson, fyrrv. Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar
Söngkór kirkjunnar býður til kaffisamsætis í Þjórsárveri að tónleikum loknum
2
Um hljóðfærið. Orgelið er rafmagnsorgel, þýsk framleiðsla af gerðinni Ahlborn praeludium IVD, búið ýmsum tækninýjungum. Hljóðfærið hefur tvö hljómborð og fótpedal (geislapedal), 32 aðalraddir og 500 kombínasjónir. Orgelið hefur hlotið sérstaka viðurkenningu frá þýskum organistum og þekktum prófessorum í organleik t.d. próf. Hans Gebhard í Hamborg, Günter Seggermann í Hamborg og próf. dr. Frank-Harald Gress í Dresden. Orgel sem þetta hentar sérstaklega vel í kirkjur sem hafa takmarkað rými og talað hefur verið um að þau séu harmóníum nútímans. Þar er hljóðið myndað með sogi í gegnum fjaðrir, ekki ólíkt og í tunguröddum orgels, en í þessum nýju hljóðfærum er það digital upptaka af orgelpípum sem hljómar í gegnum hátalara. Orgelið var vígt á annan dag jóla 2010 af sóknarpresti sr. Kristni Ágústi Friðfinnssyni.
Íslenskur innflytjandi hljóðfærisins er Sverrir Guðmundsson organisti. Sími: 894 4980 [email protected]
3
Tónleikaskrá laugardaginn 05. febrúar 2011 kl. 14:00
Ólafur Sigurjónsson
J. Pachelbel (1653-1706) Chaconne í f-moll
Ólafur hefur áralangt tónlistarnám að baki. Hann stundaði píanó-‐ harmoníum og orgelnám hjá Guðmundi Gilssyni ungur að árum og nám í píanóleik hjá Jónasi Ingimundarsyni. Kennari hans i kórstjórn og orgelleik var Glúmur Gylfason og aðrir kennarar í orgelleik voru Haukur Guðlaugsson og Antonio Corveiras. Ólafur sótti 16 af 25 árvissum kór-‐ og organistanámskeiðum söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar, sem haldin voru i Skálholti á árunum 1974-‐2001. Árin 1963-‐1997 gegndi Ólafur stöðu organista og kórstjóra í Hraungerðisprestakalli í Flóa. Árin 1975-‐1980 og 1984-‐1985 gegndi hann sömu stöðum í Hveragerðis-‐ og Kotstrandakirkju og árið 1986 í Selfosskirkju. Árið 1989 gegndi Ólafur stöðu organista og kórstjóra í Skálholtskirkju og nágrenni og árin 1990-‐2000 stjórnaði hann Karlakór Selfoss. Ólafur er eigandi fyrirtækisins Tré & List.
Guðjón Halldór Óskarsson.
J. S. Bach (1685-1750) Adagio í a-moll
J. s. Bach Preludie í a-moll BWV 543
4
Guðjón Halldór stundaði nám í píanóleik hjá Friðrik Guðna Þórleifssyni og árin 1973-‐1982, 1985-‐1986 og 2006-‐2007 hjá Hedi Narodi og lauk hann framhaldsprófi. Árin 1989-‐1994 stundaði hann nám í orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Kennarar hans voru Örn Falkner, dr. Orthulf Prunner og Hörður Áskelsson. Guðjón Halldór er núverandi organisti og kórstjóri í Breiðabólsstaðarprestakalli í Rangárþingi eystra og organisti við Keldnakirkju. Einnig er hann píanókennari við Tónlistarskóla Rangæinga, stjórnandi Karlakórs Rangæinga, sönghópsins Öðlinga, eldri kórs Þrasta og er félagi í Kammerkór Suðurlands. Árin 1991-‐1993 stjórnaði Guðjón Halldór Karlakór Reykjavíkur, eldri. Árin 1992-‐1999 gegndi hann stöðu organista og kórstjóra í Odda og var kórstjóri Samkórs Rangæinga árin 1995-‐1997. Einnig stjórnaði hann Kvennakór Hafnarfjarðar árin 1995-‐1999.
Jón Ólafur Sigurðsson
Jeremiah Clarke (um 1674-1707) Trumpet Voluntary
J. S. Bach ..................... (1685-1750) Slá þú hjartans hörpustrengi (úr BWV 147)
Pálmar Þ. Eyjólfsson (1921-2010) Boðafall
Jón Ólafur stundaði nám í píanóleik hjá Þórunni Þórarinsdóttir og Ásgeir Beinteinssyni. Hann nam fyrst orgelleik hjá Mána Sigurjónssyni og árin 1965-‐1970 stundaði hann nám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Kennarar hans voru Máni Sigurjónsson, Páll Ísólfsson, Ragnar Björnsson, Róbert A. Ottósson, Jón Þórarinsson, Þorkell Sigurbjörnsson, Guðrún Tómasdóttir o.fl. Jón Ólafur hefur að baki ýmis námskeið í kórstjórn, hljómsveitarstjórn og orgelleik heima og erlendis, m.a. í Hamborg 1990-‐´91. Árin 1992-‐1997 stundaði hann nám í tónvísindum og trúarbragðafræði við háskólann í Lundi.
Árin 1970-‐1991 og 1998-‐2001 stundaði Jón Ólafur tónlistarkennslu á Íslandi og árin 1992-‐1997 í Svíþjóð. Árin 1964-‐1966 gegndi hann stöðu organista og kórstjóra við Oddakirkju og árin 1967-‐1969 var hann organisti við Háskólakapellu. Á sumarmánuðum áranna 1967-‐1969 var hann organisti og kórstjóri í Skálholti og árin 1968-‐1970 gegndi hann sömu stöðum í Kristskirkju.
5
Árin 1970-‐1975 gegndi Jón Ólafur stöðu organista og kórstjóra á Patreksfirði og nágrenni og árin 1975-‐1983 var hann organisti og kórstjóri Egilsstaðakirkju og nágrennis. Árin 1983-‐1990 og 1991-‐1992 gegndi Jón Ólafur stöðu organista og kórstjóra Akraneskirkju og árin 1992-‐1997 stjórnaði hann Íslendingakórnum í Lundi. Einnig var hann lausráðinn og fastráðinn organisti í Lundi árin 1993-‐1997. Hann hefur haldið fjölda orgeltónleika innanlands og einnig í Þýskalandi og Svíþjóð. Einnig hefur hann farið í tónleikaferðir með kóra til Kanada, London, Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur og þýskalands. Jón Ólafur hefur gegnt stöðu organista og kórstjóra Hjallakirkju í Kópavogi frá árinu 1998.
Guðný Einarsdóttir
Páll Ísólfsson (1893-1974): Úr þremur píanóstykkjum op.5 (umritun fyrir orgel: Björn Steinar Sólbergsson)
Burlesca Intermezzo
Johann Ernst (1702 - 1762) Fiðlukonsert í G - dúr (umritun fyrir orgel: J.S. Bach BWV 592)
1. kafli - Allegro assai
Guðný Einarsdóttir stundaði píanónám frá unga aldri og lauk hún prófi frá tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík og orgelnámi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar, þar sem aðalkennari hennar var Marteinn H. Friðriksson. Vorið 2006 lauk Guðný kirkjutónlistarnámi frá Det Kongelige Danske Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn þar sem hún naut leiðsagnar ýmissa kennara m.a. Lasse Ewerlöf og Bine Bryndorf og sama ár gengdi hún stöðu annars organista við Holmens kirke í Kaupmannahöfn. Veturinn 2006-‐2007 var Guðný organisti við kirkju danska safnaðarins í París en samhliða starfinu stundaði hún nám hjá frönsku organistunum Eric Lebrun og Sophie-‐Véronique Cauchefer-‐Choplin. Hún hefur einnig sótt orgelnámskeið hjá mörgum af virtustu tónlistarmönnum samtímans m.a. Michael Radulescu, Hans-‐Ola Ericson og Olivier Latry. Á námsárum sínum stjórnaði Guðný kammerkórnum Stöku í Kaupmannahöfn en hún var jafnframt ein af stofnendum hans. Guðný hefur haldið tónleika bæði á Íslandi og erlendis og komið fram við ýmis tilefni, bæði sem einleikari, meðleikari og kórstjóri. Hún hefur gegnt stöðu organista og kórstjóra við Fella-‐ og Hólakirkju í Reykjavík frá árinu 2007 og er kennari við Tónskóla Þjóðkirkjunnar frá árinu 2008.
6
Haukur Guðlaugsson
f.v. söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar
Haukur kynnir og flytur tónlist að eigin vali.
Haukur Guðlaugsson hóf tónlistarnám ungur að árum. Hann lauk prófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík þar sem aðalkennari hans var hinn virti píanóleikari Árni Kristjánsson. Haukur sótti tíma og fræðslu í organleik hjá Páli Ísólfssyni, hélt utan og stundaði þar orgelnám til fjölda ára. Aðalkennarar hans voru þýski organistinn Prófessor Förstemann í Hamborg og hinn þekkti Maestro Fernando Germani í Róm. Haukur var tónlistarkennari og söngstjóri Karlakórsins Vísis á Siglufirði árin 1951-‐1955 og skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi árin 1960-‐1975. Hann stjórnaði Karlakórnum Svönum á Akranesi árin 1960-‐1976 og gaf kórinn út hljómplötu með söng sínum. Haukur gegndi stöðu organista Akraneskirkju og kórstjóra Kirkjukórs Akraness árin 1960-‐1983. Hann fór í söngferðalög með kórinn til Ísraels, Ítalíu og Þýskalands og gefnar voru út hljómplötur með söng kórsins. Haukur tók við starfi söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar árið 1974 og gegndi því starfi til ársins 2001. Í tíð Hauks sem söngmálastjóra, jókst námskeiðahald víða um land svo og útgáfa Embættis söngmálastjóra á námsefni og tónlistarefni fyrir organista og kirkjukóra. Í Embætti söngmálastjóra lagði Haukur mikla áherslu á að efla tengsl milli embættisins, kirkjukóranna og organistanna. Á vegum embættisins var fagfólk í radd-‐ og kórþjálfun sent út til kirkjukóra á landsbyggðinni til að æfa og fegra söng þeirra. Sjálfur heimsótti hann kórana, þjálfaði og leiðbeindi og hélt þannig góðu og nánu sambandi við sitt fólk. Jafnframt lagði Haukur áherslu á að tónlistarfólk íslensku Þjóðkirkjunnar ætti kost á sem fjölbreyttastri framhaldsmenntun erlendis. Hann kom þeim sem áhuga höfðu á framhaldsmenntun í læri í Hamborg, Berlín og Róm. Einnig skipulagði hann tvisvar sinnum náms-‐ og menningarferðir fyrir organista til Evrópu. Í fyrri ferðinni var farið til Þýskalands og Austurríkis og í þeirri seinni til Parísar og Rómar. Haukur hefur sinnt fjölþættum leiðbeiningastörfum á sviði tónlistarinnar, leikið inn upptökur fyrir ríkisútvarpið sem og á geisladiska, komið fram í sjónvarpi og haldið fjölda tónleika heima og erlendis bæði sem einleikari og meðleikari. ( Ingimar Pálsson)
7
Ábyrgðar- og umsjónarmaður tónleikanna er Ingimar Pálsson núverandi organisti og kórstjóri Hraungerðis-‐ og Villingaholtskirkju. Ingimar stundaði ungur nám á harmónium, píanó, fiðlu og klarinett við Tónlistarskóla Vestmannaeyja 1953-‐1960. Kennarar hans voru Oddgeir Kristjánsson, Guðjón Pálsson og Leifur Þórarinsson. Hann stundaði einnig píanó-‐ og fiðlunám hjá Árna Arinbjarnarsyni árin 1960-‐1962. Hann sótti námskeið hjá Tónlistarskóla Reykjavíkur í kórstjórn og fleiri tónlistargreinum árið 1966 og námskeið í orgelleik, kórstjórn o.fl. hjá söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar árið 1975 en námskeiðið var haldið í Skálholti. Ingimar stundaði orgelnám í Rómaborg á árunum 1977 og 1978. Kennari hans þar var James E. Geottsche, 1. organisti við Péturskirkjuna í Róm. Ingimar hefur notið tónlistarlegra leiðbeininga og handleiðslu Hauks Guðlaugssonar til fjölda ára. Ingimar byrjaði ungur að kenna og leika á hljóðfæri við ýmis tækifæri. Hann var tónlistarkennari við Tónlistarskóla Árnessýslu árið 1973, gegndi stöðu organista við Hóladómkirkju, Viðvíkur-‐ og Hofsstaðakirkju árin 1975-‐1982. Á sama tíma var hann skólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu. Ingimar kenndi orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar á Sauðárkróki árin 1978-‐1979. Hann var gestafyrirlesari við tónlistardeild Wits University í Jóhannesarborg árið 1986-‐1987 og lék m.a. á orgel og píanó við ýmsar kirkjur og trúfélög í Jóhannesarborg og víðar árin 1984-‐1990. Á sömu árum lék hann kvöldverðartónlist á Holyday Inn og Hilton hótelum í suður og austur Afríku. Ingimar var yfirmaður söng-‐ og tónlistardeildar Performing Arts í Jóhannesarborg 1985-‐1988 og hafði á sama tíma yfirstjórn og umsjón með The Johannesburg City Youth Choir. Hann var Skólastjóri The Johannesburg Conservatoire of Music 1988-‐1990 og orgel-‐ og píanóleikari í sunnudagaskólastarfi Grafarvogskirkju 1991-‐1992. Hann var tónlistarkennari við Tónsmiðjuna í Reykjavík og Hafnarfirði og um tíma afleysingakennari við tónlistarskóla Hafnarfjarðar 1991-‐1995. Á sama tíma stundaði hann píanó og orgelleik við ýmis tækifæri og sér athafnir í kirkjum. Ingimar lék á orgel við Guðsþjónustur í kapellu Háskóla Íslands á fyrstu námsárum sínum í Guðfræðideild. Kórstjórn: Söngfélagið Raust á Eyrarbakka 1970-‐1972. Söngfélagið Harpa í Skagafirði 1967-‐1969 og 1975-‐1982. Nemendakór og hljómsveit Landbúnaðarháskólans á Hólum í Hjaltadal 1975-‐1977. Söngkennsla og kórstjórn við barnaskólann í Hjaltadal 1975-‐1978. Karlakórinn Heimir í Skagafirði 1976-‐1979 og Karlakór Sauðárkróks 1980-‐1981. Ingimar er organisti og kórstjóri Hraungerðis-‐ og Villingaholtskirkju frá árinu 2007.
8
Fjármögnun orgelsins. Kirkjukór kirkjunnar, sem síðar sameinaðist kirkjukór Hraungerðiskirkju í Flóa, fjármagnaði kaupin á orgelinu. Fyrir margt löngu stofnuðu kórfélagar sjóð til endurnýjunar á hljóðfæri kirkjunnar. Fólk lagði ætluð laun og annað fé til sjóðsins. Seldur var broddur frá bændum og búaliði, basarsölur voru settar upp til fjáröflunar, þar sem m.a. var selt handunnið prjónles og einnig bakkelsi frá kórfélögum og sóknarbörnum. Ónafngreindir kórfélagar og fleiri aðilar gáfu stórar peningagjafir til minningar um látna kórfélaga, ástvini og sveitunga. Sóknarnefndir kirkjunnar hafa séð um varðveislu orgelsjóðsins. Árangurinn er nú sýnilegur í formi Ahlborn orgelsins sem hlotið hefur vígslu til afnota í kirkjunni í þágu allra sóknarbarna og kirkjugesta.
Stjórn söngkórs Hraungerðis- og Villingaholtskirkna:
Elín Bjarnveig Sveinsdóttir formaður Einar Helgi Haraldsson gjaldkeri – Gauti Gunnarsson meðstjórnandi
Sóknarnefnd Villingaholtskirkju:
Anna Fía Schiöth Ólafsdóttir formaður Sólveig Þórðardóttir gjaldkeri -‐ Þórunn Kristjánsdóttir meðstjórnandi
Í þjónustu kirkjunnar:
Sóknarprestur : Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson Prestur ........... : Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson Organisti og kórstjóri: Ingimar Pálsson Meðhjálpari : Kristín Stefánsdóttir
Hringjari : Jón Kristjánsson
9
AHLBORN PRAELUDIUM IVD
Raddskipan: 32 raddir með 64 aukaraddir í gagnabanka á 2 hljómborð og 30 nótna fótspil Helstu hjálparhnappar fyrir hendur og fætur: Tengingar II-I, I-P, II-P, Tutti/Plenum I/II og 500 Setzerkombinasjónir auk Registercrescendo (Roll Schweller) og Schweller fyrir efra borð. HAUPTWERK SCHWELLWERK PEDAL (Neðra hljómborð) (Efra hljómborð) (Fótspil) Bordun 16’ Salizional 16’ Prinzipal 16’ Bordun 16’ Gemshorn 16’ Prinzipal 16’ Quintade 16’ Gemshorn 8‘ Violon 16’ Prinzipal 8’ Weitprinzipal 8’ Subbaß 16’ Prinzipal 8’ Montre 8’ Subbaß 16’ Prinzipal 8’ Geigenprinzipal 8’ Zartbaß 16’ Rohrflöte 8’ Gedackt 8’ Oktavbaß 8’ Rohrflöte 8’ Quintade 8’ Oktavbaß 8’ Doppelflöte 8’ Flute Harmonique 8’ Violoncello 8’ Unda Maris 8’ Viola da Gamba 8’ Gedecktbaß 8’ Unda Maris 8’ Gamba 8’ Gedecktbaß 8’ Viole de Gambe 8’ Spitzgamba 8’ Flute 8’ Oktave 4’ Vox Coelestis 8’ II Choralbass 4’ Oktave 4’ Vox Coelestis 8’ II Nachthorn 4’ Oktave 4’ Salicional 8’ I Flöte 4‘ Kleingedackt 4’ Prinzipal 4’ Mixtur VI 2 2/3‘ Spitzflöte 4’ Prinzipal 4’ Mixtur VI 5 1/3‘ Flöte 4’ Fugara 4‘ Hintersatz VI 5 1/3‘ Superoktave 2’ Gemshorn 4’ Posaune 16’ Superoktave 2‘ Koppelflöte 4’ Posaune 16’ Superoktave 2‘ Rohrflöte 4’ Fagott 16’ Mixtur V 2‘ Nasard 2 2/3‘ Trompete 8’ Mixtur V 1 1/3‘ Quinte 2 2/3‘ Trompete 8’ Mixtur III 1 1/3‘ Piccolo 2‘ Holzdulcian 8’ Kornett III Nachthorn 2‘ Klarine 4’ Sesquialter II Waldflöte 2’ Schalmei 4’ Zimbel III 1/2‘ Schwegel 2’ Chalumeau 4’ Bombarde 16‘ Terz 1 3/5‘ Bombarde 16‘ Quinte 1 1/3‘ Fagott 16‘ Sifflet 1‘ Trompete 8‘ Scharff IV 1 1/3‘ Trompete 8‘ Scharff III 2/3‘ Trompette Harmonique 8‘ Mixtur III 1‘ Oboe 8‘ Krummhorn 8‘
Vox Humana 8‘ Viðbótarraddir fyrir öll verkin þrjú: Piano Cembalo 8‘ Chimes (Klukkur) Zimbelstern Streicher