stefna fío lokaútgáfa leiðrétt
DESCRIPTION
ÂTRANSCRIPT
Samþykkt á aðalfundi FÍO 6. mars 2015
2
Efnisyfirlit Sýn FÍO .................................................................................................................................................................... 2 Tilgangur FÍO ....................................................................................................................................................... 2 Hlutverk FÍO ......................................................................................................................................................... 3 Markmið ................................................................................................................................................................. 3 Sérstakir starfshópar innan FÍO .................................................................................................................. 3 Hverjir geta orðið félagsmenn? .................................................................................................................... 4 Hver er ávinningur þess að vera félagi í FÍO? ........................................................................................ 4 Sameiginlegur nótnabanki félagsmanna .................................................................................................. 4 Hlutverk stjórnar FÍO ....................................................................................................................................... 4 Fundarstjórn ........................................................................................................................................................ 5 Félagsgjöld ............................................................................................................................................................ 5 Menntun kirkjutónlistarfólks ....................................................................................................................... 5 Skipulagning útfara, hjónavígslu og aðkoma organista ..................................................................... 6 Ekki skal gengið í störf organista ................................................................................................................ 6 Framtíðarverkefni á grunni þessarar stefnu .......................................................................................... 6 Endurskoðun þessarar stefnu ...................................................................................................................... 6
Sýn FÍO Á grunni þessarar stefnu sameinast félagsmenn í FÍO um markmið félagsins, tilgang, og hlutverk. Með því að fylgja stefnunni verður félagið öflugri málsvari þeirra gilda sem félagsmenn hafa í hávegum.
Þau eru: fagleg vinnubrögð og samstarf. Þessi gildi liggja til grundvallar öllu starfi félagsins jafnt inn á við sem út á við.
Tilgangur FÍO FÍO var stofnað þann 17. júní 1951. Félagið er fagfélag organista á Íslandi og stéttarfélagsleg eining innan FÍH. Tilgangur þess er að gæta hagsmuna félagsmanna; að stuðla að faglegri uppbyggingu meðal félagsmanna; að stuðla að tónleikahaldi, útgáfustarfsemi og eflingu kirkjutónlistar í landinu; og að viðhalda samskiptum við erlend systurfélög. Allir organistar geta sótt um inngöngu í félagið.
FÍO er deild innan Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) sem er stéttarfélag organista.
FÍH er aðili að: • Bandalagi Háskólamanna (BHM) • Sambandi flytjenda og hljómplötuútgefenda S.F.H. • Innheimtumiðstöð höfundargjalda samkvæmt 11.grein höfundarlaga, I.H.M. • Alþjóðasambandi hljómlistarmanna (FIM) • Sambandi norrænna hljómlistarmanna (Nordisk Musiker Union). • Bandalagi íslenskra listamanna (BÍL) • Samtóni. Samtökum höfundarétthafa.
Samþykkt á aðalfundi FÍO 6. mars 2015
3
Tilgangur FÍH er: a) að gæta hagsmuna félagsmanna b) að ákveða eða semja um kaup og kjör hljómlistarmanna c) að auka kynni og góða samvinnu meðal þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega d) að styðja félagsmenn í samningagjörðum og koma fram fyrir þeirra hönd út á við í kjaradeilum og öðrum sameiginlegum hagsmunamálum þeirra e) að tryggja hag félagsmanna m.a. með aðgengi að styrktar-‐, sjúkra-‐ og orlofssjóðum f) að útbreiða skilning á menningargildi lifandi hljómlistar og vinna að fræðslu og menningarmálum meðal félagsmanna g) að stuðla að atvinnuöryggi félagsmanna. h) að vinna að bættum aðbúnaði og hollustuháttum á vinnustöðum. i) Að halda úti heimasíðu á veraldarvefnum með upplýsingum til félagsmanna um málefni þeirra ásamt tilboðum sem þeim berast hverju sinni.
Hlutverk FÍO Þótt félagsmenn séu margir starfsmenn sókna innan Þjóðkirkjunnar, snýst starfsemi félagsins einkum um fagleg vinnubrögð félagsmanna. Félagið leitar eftir samstarfi við hagsmunaaðila á sviði kirkjutónlistar um mótun starfsumhverfis organista.
Markmið Markmið FÍO eru sett fram í þessari stefnu.
Sérstakir starfshópar innan FÍO Til að virkja sem flesta félagsmenn til starfa fyrir félagið setur stjórn á laggirnar starfshópa um ákveðin málefni. Norðurlandahópur hefur umsjón með norrænu samstarfi.
Ritstjórn hefur umsjón með því efni sem miðlað er á vefsíðunni (fyrirhuguð haustið 2015) og endurreistu Organistablaði (eða Kirkjutónlistarblaði).
Fræðslu-‐ og menntamálahópur fjallar um menntun organista og safnar saman fróðlegu efni fyrir félagsmenn.
Atvinnumálahópur fylgist með auglýstum organistastöðum, að þær séu í samræmi við reglur og fleira tengt atvinnumálum organista og kirkjutónlistarfólks.
Nýsköpunarhópur fjallar um og stuðlar að nýsköpun á sviði kirkjutónlistar auk þess að miðla nýju efni til allra félagsmanna á lokuðu vefsvæði félagsins.
Starfshópar geta mótað sína eigin stefnu í samráði við stjórn félagsins og haldið fundi í eigin nafni. Þeir geta ekki talað í nafni félagsins alls út á við, án fyrirfram samþykkis stjórnar. Leita má samstarfs við Verkefnisstjóra kirkjutónlistar og fleiri aðila þar sem það á við.
Samþykkt á aðalfundi FÍO 6. mars 2015
4
Hverjir geta orðið félagsmenn? 3. grein laga FÍO hljóðar svo:
Félagar geta orðið allir þeir, sem hafa réttindi eða hæfni sem organistar, samkvæmt nánari skilgreiningu félagsins þar um, og eru félagar í FÍH. Stjórn FÍO tekur fyrir umsóknir um aðild. Samþykki allrar stjórnar þarf til að umsækjandi fái aðild. Hafni stjórnin umsókn, eða ef ekki er einhugur um afgreiðslu málsins, má skjóta þeirri ákvörðun til löglegs aðalfundar félagsins. Um atkvæðagreiðslu þar gildir samþykki 2/3 hluta fundarmanna.
Við 67 ára aldur fellur niður kvöðin um félagsgjöld. Félagar 67 ára og eldri halda fullri félagsaðild.
Hver er ávinningur þess að vera félagi í FÍO? Í samræmi við sýn, hlutverk og tilgang félagsins er ávinningur félagsmanna mikill. Aðild að félaginu veitir félagsmönnum upplýsingar um námskeið, bæði heima og erlendis. Félagar styðja hver annan í faglegri uppbyggingu, bæði á fundum félagsins og utan þeirra. Auk þess mun ný vefsíða félagsins innihalda bæði opna og lokaða spjallþræði sem verða efnisflokkaðir. Félagsmenn njóta góðs af samstarfi félagsins við aðra aðila og afsláttarkjara þar sem því verður við komið. Aðild FÍO að FÍH býður einnig upp á ýmis konar ávinning fyrir félagsmenn.
Sameiginlegur nótnabanki félagsmanna Stofna skal vefsvæði með tónsmíðum og útsetningum félagsmanna á sálmalögum. Einkum skal safna forspilum og eftirspilum og hagnýtu efni fyrir kóra og orgel við helgihald.
Hlutverk stjórnar FÍO Formaður kveður stjórnina saman, stjórnar félagsfundum, fundum stjórnar og tilnefnir fundarstjóra á aðalfundum félagsins.
Ritari ritar og heldur utan um fundargerðir stjórnar og félagsins. Gjaldkeri heldur utan um fjármál félagsins og félagaskrá. Stjórnin kýs sér varaformann innan stjórnar. Stjórnin tilnefnir fulltrúa FÍO í Kirkjutónlistarráð og varamann hans. Boða skal stjórnarfund með hæfilegum fyrirvara. Jafnan skal ef þess er kostur upplýsa stjórnarmenn um það fyrirfram
hvaða málefni verða tekin fyrir. Stjórnin er ákvörðunarhæf þegar þrír stjórnarmenn eru á fundi, sem
boðaður hefur verið á fullnægjandi hátt. Á stjórnarfundum eru mál leidd til lykta með einföldum meirihluta
atkvæða. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum. Stjórnarmenn geta greitt atkvæði með þrenns konar hætti: já, nei eða sit hjá.
Stjórnin skal færa í fundagerðarbók meginatriði þess, sem gert er og ákveðið á stjórnarfundum og skal fundargerð samþykkt af öllum viðstöddum stjórnarmönnum.
Stjórnarmaður má ekki taka þátt í afgreiðslu mála, hafi hann í þeim sérstakra persónulegra eða fjárhagslegra hagsmuna að gæta.
Samþykkt á aðalfundi FÍO 6. mars 2015
5
Fundarstjórn Fundarstjóri gerir fundarmönnum ljóst hvað er til umræðu og um hvað er greitt atkvæði. Fundarsköp félagsins verði yfirfarin og fest í sessi.
Félagsgjöld Aðeins skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt og kjörgengi. Skuldi félagsmaður eitt árgjald glatar hann atkvæðisrétti og nýtur þá ekki lengur þjónustu félagsins. Skuldi félagsmaður tvö árgjöld skoðast það sem úrsögn úr félaginu. Skilgreining á kirkjutónlist FÍO setur ekki fram einhlíta skilgreiningu á því hvað sé kirkjutónlist og hvað ekki. Hvert trúfélag fyrir sig skilgreinir það með sínum hætti. Ábyrgðin á framkvæmd kirkjutónlistar á grunni slíkra skilgreininga liggur að lokum hjá yfirstjórn hvers trúfélags fyrir sig. Á þeim vettvangi skal skera úr um vafaatriði ef þess gerist þörf, en FÍO getur veitt faglega ráðgjöf sé þess óskað. Almennt má þó segja að útgefnar sálmabækur sem í gildi eru hverju sinni, séu eðlilegt viðmið um hvað teljist við hæfi innan viðkomandi trúfélags. Félagar í FÍO sýna skilgreiningum trúfélaga á kirkjutónlist ávallt fyllstu virðingu, en eru einnig virkir í nýsköpun á sviði kirkjutónlistar auk þess að leggja rækt við tónlist liðinna alda. Félagar í FÍO leitast við að þjóna sóknarbörnum og kirkjgestum af alúð og leggja sig fram við að koma til móts við óskir þeirra. Komi upp sú staða að organisti telji sig ekki geta orðið við óskum sóknarbarna eða annarra kirkjugesta, á grundvelli samvisku sinnar eða sérhæfingar, er eðlilegt að hann útskýri það fyrir þeim sem óskina setja fram.
Menntun kirkjutónlistarfólks Efnisskrá kirkjutónlistarfólks spannar margar aldir. Því tekur það langan tíma að mennta kirkjutónlistarfólk til starfa og þeirri menntun lýkur í raun aldrei. Kirkjutónlistarnám er auk þess eðlisólíkt öðru tónlistarnámi. Annars vegar vegna breiddar námsins, en það felur í sér hljómborðsleik, orgelleik, söng, kórstjórn og fleira. Hins vegar er rík áhersla á sögu og helgisiði kirkjunnar. FÍO vinnur að því að standa vörð um hefðbundna kirkjutónlistarmenntun og að hún sé bæði hagnýt og eftirsóknarverð fyrir þá sem vilja starfa við kirkjutónlist. Félagar í FÍO líta á sí-‐ og endurmenntun sem nauðsynlegan hluta starfa sinna. Eitt af helstu verkefnum félagsins er að sjá til þess að félagsmenn geti hverjir lært af öðrum en einnig af erlendum starfssystkinum. Efna má til samstarfs við Tónskóla Þjóðkirkjunnar, Verkefnisstjóra kirkjutónlistar og eftir atvikum fleiri aðila við sí-‐ og endurmenntun félagsmanna. Félagsmenn miðla reynslu sinni af námi og störfum við kirkjutónlist, innan félagsins sem utan þess. Lykilatriði í því efni er að félagið komi sér upp yfirgripsmikilli vefsíðu í sínu nafni. Jafnframt gera félagsmenn faglegar kröfur til sjálfra sín og horfa til þess sem best gerist í öðrum löndum. Á það bæði við um flutning kirkjutónlistar og öll samskipti í tengslum við undirbúning. Félagið setur sér viðmið um góða starfshætti á sviði kirkjutónlistar.
Samþykkt á aðalfundi FÍO 6. mars 2015
6
Skipulagning útfara, hjónavígslu og aðkoma organista Undantekningalaust skal hafa samband við þann organista sem leikur við útför um val á tónlistinni. Best væri að koma á sameiginlegum fundi aðstandenda, prests, organista og fulltrúa frá útfarastofu við undirbúning útfara. Þetta er gert til að tryggja fagleg vinnubrögð og fyrirbyggja misskilning. FÍH, í samráði við FÍO, gefur út gjaldskrá vegna orgelleiks við útfarir og kistulagningar.
Ekki skal gengið í störf organista Tilmæli stjórnar FÍH til félagsmanna um að ganga ekki í störf organista er frá 6.maí 2005. Þar segir:
Stjórn Félags íslenskra hljómlistarmanna fer þess á leit við félagsmenn sína að þeir gangi ekki í störf organista við kirkjuathafnir. Hér er átt við hefðbundna kirkjutónlist sem spiluð er á hefðbundið kirkjuorgel þar sem sérmenntunar er þörf. Organistadeild óskar jafnframt eftir samstarfi og samvinnu við aðra tónlistarmenn við tónlistarstörf innan kirkjunar og að gagnkvæm virðing ríki þeirra á milli. Tökum höndum saman og gerum góða tónlist enn betri. Lifandi tónlist -‐lifandi fólk
Þarna kemur fram álit stjórnar FÍH að sérmenntunar sé þörf til að leika á orgel. FÍO stendur vörð um þetta álit.
Framtíðarverkefni á grunni þessarar stefnu -‐ að setja viðmið um góða starfshætti á sviði kirkjutónlistar, að
undangenginni umræðu meðal félagsmanna.
-‐ ný vefsíða opni haustið 2015.
-‐ Fundarsköp félagsins þarf að yfirfara og festa í sessi.
-‐ Ítreka þarf þessa stefnu félagsins fyrir öðrum hagsmunaaðilum á sviði kirkjutónlistar. Má þar nefna útfararstofur, presta og yfirstjórn Þjóðkirkjunnar.
-‐ Rædd verði nausyn þess að félagið setji sér siðareglur.
-‐ Stjórn félagsins framfylgir þessari stefnu sem og fulltrúi þess í
Kirkjutónlistarráði.
Endurskoðun þessarar stefnu Mótun og framkvæmd stefnu lýkur í raun aldrei. Nauðsynlegt er að ræða stefnuna og hvernig hún þjónar félagsmönnum reglulega. Miða skal við að nauðsynlegar breytingar á stefnunni megi gera á aðalfundi ár hvert. Huga skal að nauðsynlegum lagabreytingum samhliða endurskoðun stefnunnar.