orka náttúrunnar
DESCRIPTION
ÂTRANSCRIPT
Við erum öll tengd við náttúruna
Frá og með 1. janúar 2014 mun raforkusala og framleiðsla Orkuveitu Reykjavíkur fara fram undir nýjum merkjum dótturfélags OR. Þessi breyting er í samræmi við raforkulög sem taka gildi á sama tíma.
Nýtt sölufyrirtæki á raforkumarkaði ber heitið Orka náttúrunnar. Það tekur við farsælli starfsemi sem rekur sögu sína allt aftur til þess er Elliðaárstöð var gangsett árið 1921.
Hlutverk Orkuveitu Reykjavíkur
Öll veitustarfsemi sem lýtur að dreifingu rafmagns, hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu verður áfram undir merkjum Orkuveitunnar.
Hlutverk Orku náttúrunnar
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna á samkeppnishæfu verði ásamt því að veita ráðgjöf til fyrirtækja.
Við kappkostum að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu, ráðgjöf og samkeppnishæft verð.
Nýtt dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur
Ágæti viðskiptavinur.
Orka náttúrunnar er nýtt fyrirtæki á raforkumarkaði sem byggir á traustum grunni og langri sögu. Við erum dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur og tökum við framleiðslu á rafmagni og heitu vatni og sölu á rafmagni til fyrirtækja og heimila um allt land. Með stofnun fyrirtækisins er Orkuveitan að uppfylla ákvæði raforkulaga um aðskilnað sérleyfis og samkeppnisþátta þar sem virkjana og sölustarfsemin er skilin frá veitustarfseminni.
Nú stígum við okkar fyrstu skref undir nýjum merkjum og til verður eitt stærsta orkufyrirtæki landsins með yfir 75 þúsund heimili og fyrirtæki um allt land í viðskiptum. Leiðarljós okkar er að bjóða rafmagn á samkeppnishæfu verði til allra landsmanna og við munum kappkosta að veita viðskiptavinum áfram góða þjónustu og faglega ráðgjöf.
Í ár eru 93 ár síðan rafstöðin í Elliðaárdal var gangsett af Kristjáni konungi tíunda. Allar götur síðan höfum við fært birtu, yl og orku til heimila og fyrirtækja, fyrst á höfuðborgarsvæðinu og síðar um allt land. Við höfum því mikla reynslu á þessu sviði og munum leggja kapp á að nýta hana til hagsbóta fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu.
Það er mikilvægt að nýta auðlindir náttúrunnar af ábyrgð og nærgætni. Umhverfis og öryggismál eru okkur ofarlega í huga og við leggjum mikla áherslu á að starfsemi okkar leiði til betri lífsgæða í dag og til framtíðar.
Við erum öll tengd við náttúruna og njótum þeirra forréttinda að hafa aðgang að hreinni og grænni orku. Okkar hlutverk er að aðstoða heimilin og fyrirtækin í landinu við að njóta hennar. Við munum sinna okkar hlutverki af stolti og hlökkum til að mæta framtíðinni undir merkjum Orku náttúrunnar.
Með kveðju, Páll Erland, framkvæmdastjóri
Getum við aðstoðað þig?
Þjónustan í fyrirrúmi
Gott og traust samband við viðskiptavini er lykilatriði í starfsemi Orku náttúrunnar. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli þekkingu og reynslu og er reiðubúið að miðla þér af henni. Við bjóðum nýja viðskiptavini velkomna og leggjum okkur fram um að leiðbeina öllum um hagkvæma orkunotkun.
Hafðu samband við okkur í síma 591-2700.
Þjónusta við heimili
Við veitum heimilum góða þjónustu og leggjum áherslu á að nýta orkuna á sem bestan og hagkvæmastan hátt. Við viljum að það sé einfalt og þægilegt að skipta við okkur og höfum það að leiðarljósi í allri okkar þjónustu.
Brynjar Stefánsson
Forstöðumaður sölu og markaðsmála
5912710 / 6172710 [email protected]
Ásdís Gíslason
Markaðsstjóri
5912715 / 6172715 [email protected]
Jóhanna Harpa Agnarsdóttir
Verkefnastjóri
5912717 / 6172717 [email protected]
Þorvaldur Árnason
Vefstjóri
5912716 / 6172716 [email protected]
Ávinningur fyrir þitt fyrirtæki
Áralöng reynsla söluráðgjafa okkar einfaldar fyrirtæki þínu raforkukaup. Hjá okkur færðu heildarsýn yfir hagkvæmni raforkukaupa og hvernig raforkan verður best nýtt í þágu þíns fyrirtækis. Við bjóðum góða þjónustu og samkeppnishæft verð.Hafðu samband og við einföldum þínu fyrirtæki raforkukaupin.
Sala til stórnotenda
Orka náttúrunnar framleiðir um 300 MW á ári og er rafmagnið selt á almennan markað og til stórnotenda. Mikilvægt er að framleiðsla og sala sé í jafnvægi til að nýta sem best þá auðlind sem við búum yfir.
Hafrún H. Þorvaldsdóttir
Sölustjóri
5912720 / 6172720 [email protected]
Jón Sigurðsson
Viðskiptastjóri
5912722 / 6172722 [email protected]
Þorsteinn Sigurjónsson
Hópstjóri orkumiðlunar
5912712 / 6172712 [email protected]
Þrándur Sigurjón Ólafsson
Verkefnastjóri í orkumiðlun
5912713 / 6172713 [email protected]
Loftur Már Sigurðsson
Viðskiptastjóri
5912721 / 6172721 [email protected]
Tryggvi Þór Gunnarsson
Viðskiptastjóri
5912723 / 6172723 [email protected]
Orkan okkar
Orka náttúrunnar á og rekur fjórar virkjanir. Þær eru jarðvarmavirkjanirnar á Hellisheiði og Nesjavöllum og vatnsaflsvirkjanirnar í Andakílsá og Elliðaám. Auk rafmagnsframleiðslu framleiða jarðvarmavirkjanirnar heitt vatn fyrir hitaveituna.
Guðmundur Hagalín Guðmundsson
Forstöðumaður virkjanareksturs
5912770 / 6172770 [email protected]
Bjarni Már Júlíusson
Forstöðumaður tækniþróunar
5912730 / 6172730 [email protected]
Náttúran og umhverfið
Við leggjum áherslu á að hagnýta jarðvarma og vatnsafl með ábyrgum hætti. Orkuöflun hefur jákvæð áhrif á daglegt líf þorra þjóðarinnar, en það er skylda okkar gagnvart komandi kynslóðum að ganga vel um auðlindir náttúrunnar. Fjölbreyttri starfsemi fylgja umhverfisáhrif sem kalla á fyrirbyggjandi aðgerðir, vöktun og eftirlit. Við leggjum áherslu á opin og fagleg samskipti við íbúa, leyfisveitendur og opinbera aðila.
Sameiginlegur rekstur
Hagkvæmur og skilvirkur rekstur er lykilatriði í okkar starfsemi. Orka náttúrunnar leggur áherslu á ábyrga fjármálastjórn og trausta innviði til að tryggja samkeppnishæfni og hámarksárangur í rekstri.
Gísli Sveinsson
Forstöðumaður sameiginlegs rekstrar
5912702 / 6172702 [email protected]
Orka náttúrunnar
Bæjarhálsi 1 110 Reykjavík Sími 591-2700 www.on.is
Orka náttúrunnar er dótturfélag
Orkuveitu Reykjavíkur