mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

17
Markaðshugsun í öllum þáttum rekstrarins

Upload: dokkan

Post on 14-Jan-2015

720 views

Category:

Education


1 download

DESCRIPTION

Fyrirlestur frá Dokkufundi í mars 2012 um "Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins". Framsögumaður á fundinum var Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma.

TRANSCRIPT

Page 1: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

Markaðshugsun í öllum þáttum rekstrarins

Page 2: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

Fundur hjá Icepharma - Dokkan 7. mars, 2012Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri

Page 3: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Icepharma starfar innan almennrar lýðheilsu

• Tekjusviðin eru 4: Lyfjasvið, Heilbrigðissvið, Neytendavörusvið og Íþróttasvið

• 80 starfsmenn, þar af um 75% með háskólagráðu

• Velta 2011 um 7,8 milljarðar

• Eignarhald er í höndum lykilstjórnenda

• Icepharma hefur verið eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum VR sl. 5 ár

• Icepharma hefur fengið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki sl. 2 ár

Icepharma

Page 4: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Mannauðsstjórnun er vanmetið markaðstæki

• Góð mannauðsstjórnun tryggir gott lið og getur verið samkeppnisforskot fyrir fyrirtækið

• Góður árangur spyrst út fyrir fyrirtækið og auðveldar aðgengi að nýju starfsfólki

• Allir vilja spila með besta liðinu

• Mannauðsstjórinn þarf að skilja grunnhugsunina í markaðsfræðum

Af hverju markaðshugsun?

Page 5: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• að hafa góðan skilning á rekstri allra sviða fyrirtækisins.

• að vera ráðgjafi fyrir stjórnendur og þar með tryggja

• ….að stjórnendur verði góðir stjórnendur en ekki gera verkin fyrir þá

• að vera hljómsveitarstjóri fyrirtækisins og þekkja hljóðfærin og þá sem á þau spila

Mannauðsstjórinn þarf líka

Page 6: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Hraði• Ákvörðunartaka• Gildi• Árangur• Nálægð stjórnenda• Upplýsingaflæði• Traust• Umbun• Rekstrarþekking

Þegar kemur að breytingastjórnun

Page 7: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Allar breytingar skapa eftirvæntingar – bæði jákvæðar og neikvæðar

• Mjög mikilvægt að byggja á jákvæðu eftirvæntingunum, það hjálpar til að vinna á hinum neikvæðu og fá þá neikvæðu með

• Ef of langur tími líður, hætta hinir jákvæðu að vera jákvæðir og neikvæði hópurinn stækkar

• Það er bara ein “frumsýning”

• Keppinautar nýta sér tómarúm ef of mikill tími fer í innri starfsemi

Hraði

Page 8: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Velja besta fólkið með sér og sjá til þess að skipa alltaf fljótt í allar lykilstöður

• Í stærri breytingum þarf að tala við ALLA starfsmenn

• Taka á vandamálum og vera óhrædd við að ráða inn nýtt fólk

• Uppsagnir eru líka tækifæri bæði fyrir einstaklinginn og fyrirtækið

• Fyrrverandi starfsmenn eru hluti af ímynd fyrirtækisins um ókominn tíma og oftar en ekki framtíðarviðskiptavinir

Ákvörðunartaka

Page 9: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Gildi eru grundvallarleiðbeiningar til starfsmanna fyrirtækisins um hvað við gerum og hvað við gerum ekki og hvernig við gerum það

• Mikilvægt að gildin séu í samræmi við rekstur fyrirtækisins og starfsmenn geti samsamað sig við þau

• Þess vegna getur þurft að endurskoða gildin ef forsendur rekstrar hafa breyst

• Gildi Icepharma eru: Ábyrgð, Metnaður, Trúverðugleiki og Gleði. Þessi gildi eru unnin af stjórnendum og starfsmönnum fyrirtækisins

Gildi

Page 10: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Mikilvægt er að upplýsa um rekstrarárangur• Eru áætlanir að standast?• Erum við að ná settum markmiðum?• Erum við ekki örugglega í vinningsliðinu

Árangur

Page 11: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Starfsmenn eiga alltaf að fá fréttir á undan fjölmiðlum

• Mikilvægt einnig að upplýsa birgja, viðskiptavini og aðra samstarfsaðila

• Gæta þess að hætta ekki að upplýsa þegar stór verkefni eru að baki

• Vel upplýst starfsfólk hefur meiri metnað og skilar betri árangri

Upplýsingaflæði

Page 12: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Stjórnendur verða að vera sýnilegir og ganga á undan með góðu fordæmi. Orð og athafnir þurfa að hanga saman

• Þeir verða að vera til staðar fyrir starfsfólkið og tilbúnir til að ræða málin

• Stjórnendur verða að hafa tilfinningu fyrir því hvaða starfsmenn eiga erfitt með breytingar og reyna að aðstoða þá eftir megni

• Stjórnendur verða að vera duglegir að hrósa starfsfólki fyrir vel unnin störf og hvetja það til þátttöku í heildarhagsmunum fyrirtækisins.

Nálægð stjórnenda

Page 13: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Það þarf að ríkja traust og gagnkvæm virðing á milli allra aðila; eigenda, stjórnenda og starfsmanna

• Í erfiðum breytingum reynir mikið á stjórnendur að sanna að þeir séu traustsins verðir

• Treysta starfsmönnum fyrir fjárhagslegum upplýsingum úr rekstri fyrirtækisins

• Ef ekki er borið fullkomið traust til stjórnenda er betra að skipta þeim út til að hindra frekara “tjón

Traust

Page 14: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Hrós, ódýrasti en vanmetnasti umbunarþátturinn

• Upplýsa og halda upp á árangur

• Fjárhagsleg umbun

• Sanna fyrir umheiminum að við séum í besta liðinu t.d. VR könnun

Umbun

Page 15: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Hvernig finnum við þá

• Að hverju erum við að leita

• Geta “próf” hjálpað eða hindrað

• Það þarf að skoða hvern einstakling í víðara samhengi– “mindset”– Hvað rekur hann áfram– Hvaða hæfileika er hann ekki að nota eins og er

Framtíðarleiðtogar

Page 16: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins

• Breytingar eru komnar til að vera og þess vegna er mikilvægt að stýra þeim og nýta sér þekkingu markaðsfræðinnar

• Stjórnendur verða að hugsa “heildrænt”

• Vel rekið fyrirtæki auðveldar ráðningar á nýju starfsfólki

• Vel heppnaðar breytingar auðvelda einnig stjórnendum að ráðast í nýjar breytingar, þar sem breytingar tengjast jákvæðri upplifun hjá starfsfólki

• Stjórnendur eiga að vera heiðarlegir, sýna starfsfólki virðingu og treysta því og njóta þess að sjá fólk vaxa í starfi. Mikilvægt að “leiðtogaleit” sé hluti af menningu fyrirtækis.

• Þetta gerir að það er gaman að vera stjórnandi

Niðurstaða

Page 17: Mannauðsstjórnun sem einn af markaðsráðum fyrirtækisins