kynningabæklingur fyrir bifröst

24
Við menntum ábyrga leiðtoga fyrir atvinnulíf og samfélag Háskólinn á Bifröst

Upload: oskar-birgisson

Post on 21-Feb-2016

241 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Kynning á Bifröst

TRANSCRIPT

Page 1: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

Við menntum ábyrga leiðtoga fyrir atvinnulíf og samfélag

Háskólinn á Bifröst

Page 2: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

Á Bifröst ganga allir menntaveginn – í leikskólanum Hraunborg, grunnskólanum að Varmalandi eða háskólanum sjálfum.

Page 3: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

3

Velkomin á Bifröst

Við skólann stunda nemendur annarsvegar staðnám og eru þá búsettir í háskólaþorpinu meðan á námi stendur, eða fjarnám sem krefst ekki búsetu á staðnum, en gerir nemendum kleift að heimsækja Bifröst reglulega með þátttöku í vinnuhelgum fjarnema.

Háskólinn á Bifröst býður grunn- og meistaranám á háskólastigi á sviði heimspeki, hagfræði og stjórn-málafræði, viðskiptafræði, lögfræði og menningar-stjórnunar. Skólinn mótar kennsluhætti sína í ljósi þess markmiðs hans að mennta samfélagslega ábyrga leiðtoga.

Í Háskólagátt skólans gefst nemendum sem ekki hafa lokið stúdentsprófi kostur á að búa sig undir nám á háskólastigi. Eins árs nám í Háskólagátt veitir réttindi til að skrá sig í háskólanám. Háskólagáttin hentar einnig þeim sem hafa verið frá námi í langan tíma og þurfa að laga sig að nýjum áskorunum.

Við skólann starfar öflug miðstöð símenntunar sem býður upp á fjölbreytt námskeið tengd stjórnun og rekstri.

Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á hópastarf og verkefnavinnu í nánum tengslum við innlent og erlent atvinnulíf.

Á Bifröst njóta nemendur í senn nálægðar við fagurt umhverfi og stöðugrar teng-ingar við umheiminn. Þessi blanda – náttúra og nýjasta tækni – gerir nám á Bifröst að einstakri lífsreynslu sem býr nemendur vel undir nýja tíma.

Áherslur skólans á samfélagsábyrgð og sjálfbærni stýra einnig námsframboði hans og vali á sam-starfsaðilum hérlendis og erlendis.

Fjölbreytt viðfangsefni, umræður og samstarf nem-enda og kennara tryggja nemendum góðan undir-búning fyrir ábyrgðarstöður í íslensku og alþjóðlegu atvinnulífi.

Bifröst er eini íslenski háskólinn þar sem sumarnám er hluti af reglubundnu skólaári. Þess vegna geta nem-endur lokið námi á skemmri tíma en við aðra háskóla.

Háskólinn á Bifröst er sjálfseignarstofnun sem býr yfir sveigjanleika og getu til að laga sig hratt að tækninýj-ungum og örum breytingum á samfélagi og atvinnulífi, jafnt íslensku sem erlendu.

Grunnnám og meistaranám við Háskólann á Bifröst er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Sama gildir um nám í Háskólagátt.

Page 4: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

„Var tvístígandi fyrst en núna gæti ég ekki verið þakklátari fyrir að hafa komið hingað. Umhverfið, fólkið, námið eru allt góðar ástæður til að vera í Háskólanum á Bifröst.– Andri Björgvin Arnþórsson, nemi í frumgreinadeild (Háskólagátt)

Page 5: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

5

Lítil borg í Borgarfirði

HáskólaþorpiðHáskólinn á Bifröst er í Norðurárdal í Borgarfirði, um 100 km frá Reykjavík. Eldstöðin Grábrók, Hreðavatn, Jafnaskarðsskógur, Paradísarlaut, Norðurá og fossinn Glanni eru í næsta nágrenni og yfir landinu trónir Baula, eitt tignarlegasta fjall landsins. Þetta fallega umhverfi myndar friðsæla og skapandi umgjörð um námið og býður jafnframt upp á ótal möguleika til gönguferða og útivistar.

Kaffi Bifröst Kaffi Bifröst er hjarta staðarins. Þar fást ljúffengar máltíðir í hádeginu en kvöld og helgar njóta gestir og gangandi hollra og fjölbreyttra rétta af matseðli. Kaffihúsið heldur viðburði fyrir íbúa háskólaþorpsins, boðið er upp á beinar íþróttaútsendingar og hina vinsælu spurningakeppni „Gettu Bifröst“.

Lífsstíll og líkamsræktBifröst er þekkingarsetur sem skapar deiglu ein-staklingsþroska og samfélagsþátttöku. Rík áhersla á heilbrigða lífshætti birtist í áherslum kaffihússins og aðstöðu til líkamsræktar og þjálfunar. Þreksalur og líkamsræktarstöðin Jakaból, gufubað, ljós, nuddpottur og vaðlaug tryggja líkamlegt heilbrigði nemenda alla daga frá kl. 06:00 til 23:00. Á Bifröst er einnig boðið upp á jóga við allra hæfi í nýstandsettri jógaaðstöðu.

Góð aðstaða fyrir nemendur stuðlar að árangri í námi. Háskólaþorpið á Bifröst er samfélag sem sameinar góðan vinnuanda og skemmtilegar stundir. Markmið skólans er að búa metnaðarfullt fólk undir framtíðarforystu með hæfilegri blöndu af víðsýni, skapandi hugsun og aga í vinnubrögðum.

Frá leikskóla til menntaskólaÁ Bifröst er Hraunborg, um 60 barna Hjallastefnu-leikskóli. Grunnskóli Borgarfjarðar – Varmalandi er einsetinn grunnskóli með tæplega 160 nemendur sem skólabíll ekur til og frá skóla. Mjög gott íþrótta-hús og sundlaug eru á Varmalandi. Í Borgarnesi tekur Menntaskóli Borgarfjarðar við.

NemendafélagÖflugt nemendafélag stendur fyrir menningarvið-burðum, vísindaferðum, dansskemmtunum, íþrótta-keppnum, hátíðarkvöldverðum og „Bifróvisjón“, hinni árlegu árshátíð Bifrestinga.

Hagkvæmt húsnæðiNemendagarðar Háskólans á Bifröst reka íbúðarhús-næði fyrir nemendur. Einstaklingar fá herbergi í 2-6 manna íbúðum en einnig bjóðast fjölskylduíbúðir af öllum stærðum og gerðum.

Frumkvæði, samvinna og ábyrgðHáskólinn á Bifröst leggur áherslu á þrjú grunngildi í öllu starfi sínu: frumkvæði, samvinnu og ábyrgð. Skólinn hvetur til samskipta og þátttöku í félagslega sterku háskólaþorpi, styður virka þátttöku og sjálf-stæð vinnubrögð nemenda og stuðlar að virðingu fyrir umhverfi og samfélagi með sjálfbærni að leiðarljósi.

Page 6: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

Í gamla daga var vinnandi fólk sjaldnast með háskólapróf. Það er ekki þannig lengur.

Engin skólagjöld!Innritunargjald er 89.000 kr. fyrir skólaárið 2013/14.

Page 7: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

7

Nám í Háskólagátt býr nemendur undir nám á há-skólastigi í greinum hug- og félagsvísinda og veitir einnig undirstöðumenntun á framhaldsskólastigi sem eykur samkeppnishæfni einstaklinga á vinnumarkaði.

Kjarnagreinar og þemaverkefniKenndar eru þrjár kjarnagreinar; íslenska, stærðfræði og enska auk fjögurra áherslugreina; bókfærslu, lög-fræði, dönsku og heimspeki. Auk þess taka nemendur styttri námskeið í upplýsingatækni og nýsköpun þar sem leitast er við að þjálfa þá í aðferðum og hugsunarhætti sem endurspeglar það sem efst er á baugi í háskólamenntun og atvinnulífi. Einnig takast nemendur á við verkefni sem tengjast læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindum, jafn-rétti og sköpun.

Fjölbreytt námNemendur vinna með námsefni á fjölbreyttan og gagn-rýninn hátt. Mikil áhersla er lögð á námstækni, mark-miðasetningu og framkomu, tjáningu, verkefnastjórn-un og sjálfsmynd nemenda. Þurfi nemandi að bæta við sig þriðja tungumáli eða annarri grein til að uppfylla sértæk inntökuskilyrði annarra háskóla getur hann sótt um að fá að taka viðeigandi áfanga í fjarnámi við fram-haldsskóla með milligöngu Háskólans á Bifröst.

Háskólagáttin þjónar þeim sem þurfa á undirbúningsnámi að halda áður en hafist er handa við háskólanám. Hún er rétta byrjunin fyrir þá sem eru að hefja nám aftur eftir hlé og fyrir nemendur sem ekki hafa lokið stúdentsprófi og fullnægja ekki form-legum inntökuskilyrðum háskóla.

Nemendur í Háskólagátt njóta nálægðarinnar við há-skólastarfið. Kennslan er sniðin að þörfum fullorðinna og nemendur eru hvattir til að byrja strax að búa sig markvisst undir það háskólanám sem þeir hyggjast stunda eftir að námi í Háskólagátt lýkur. Nemendur njóta sömu réttinda og háskólanemar og eiga fulltrúa í Háskólaráði.

Hæfni: Nemendur sem ljúka Háskólagátt uppfylla inn-tökuskilyrði í háskóla.

Háskólagátt

Inntökuskilyrði: 140 einingar á framhaldsskólastigi (fein) eða jafngildi samkvæmt raunfærnimati.

1 ár

Það er alltaf hægtað byrja upp á nýtt

„Persónuleg nálgun og mikil verkefnavinna skilaði sér og rykfallinn heilinn var fljótur að taka við sér. Frábær undirbúningur fyrir frekara nám við háskólann.– Arnar Stefánsson, nemandi í viðskiptalögfræði

Page 8: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

Viðskiptafræði á Bifröst byggir á raunhæfum verkefnum, ekki utanbókarlærdómi.

Page 9: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

9

Námið hefst með námskeiði í rekstrarhagfræði sem kennd er samhliða siðfræði, almennri lögfræði og upplýsingatækni. Mikil áhersla er á stjórnun og að-ferðafræði á fyrstu önn, sem fylgt er eftir með námi í tölfræði, þjóðhagfræði og forystu og stjórnun á vorönn.

Hagnýtt sumarnámSumarnám eftir fyrsta veturinn gerir nemendum kleift að sökkva sér niður í sérhæfðari verkefni viðskipta-fræðinnar. Sumarnámskeiðin eru skipulögð með það fyrir augum að nemendur taki sér fyrir hendur uppbyggingar- og þróunarverkefni sem færa þeim hagnýta reynslu og getu til að bregðast við raunveru-legum aðstæðum í atvinnustarfsemi.

Frumkvæði og forystuþjálfunSérhæfing eykst á öðru ári, en þá fá nemendur þjálfun í reikningshaldi, arðsemigreiningu og stjórnunarbók-haldi, svo eitthvað sé nefnt. Skólinn leggur sig fram um að veita nemendum þjálfun sem eykur skilning þeirra á kviku eðli samfélags og atvinnulífs og gerir þeim kleift að bregðast við og sýna frumkvæði eftir því sem aðstæður bjóða upp á.

Góð viðskiptafræðimenntun er eins og önnur háskóla-menntun fræðileg í eðli sínu og felur í sér skilning á fræðilegri greiningu og kenningum og hæfni til að

Markmið okkar er að viðskiptafræðingar frá Bifröst komi standandi niður að námi loknu og geti strax náð árangri. Síðasti hluti námsins miðar sérstaklega að því að styrkja nýsköpun og gefst nemendum kostur á að ljúka náminu með lokaverkefni í formi viðskiptaáætlunar.

vinna með þær. Þverfagleg nálgun Háskólans á Bifröst er byggð á áratuga reynslu Samvinnuskólans og Samvinnuháskólans og miðar að því að efla gagn-rýna og skapandi hugsun, atvinnulífi og samfélagi til góða. Skólinn leggur áherslu á að mennta ábyrga stjórnendur, sem eru færir um að sýna forystu og taka ákvarðanir byggðar á félagslegri framtíðarsýn.

Viðskiptafræðingar sem kunna til verka

„Viðskiptafræðin á Bifröst býr nemendur undir krefjandi aðstæður á vinnumarkaði. – Haukur Skúlason, viðskiptafræði 2007

Viðskiptafræði BS eða BBA 2-3 ár

Hæfni: Rekstur fyrirtækja, stjórnunarstörf, nýsköpun á sviði viðskipta.

Inntökuskilyrði: Stúdentspróf eða sambærileg menntun.

Page 10: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

Það er ekki langt síðan Íslendingar stærðu sig af ógnarhraða við ákvarðanatöku og miklum fjölda munnlegra samninga í viðskiptum. Oftast er þó vissara að skrifa þá niður.

Page 11: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

11

Markmiðið er að útskrifa lögfræðinga sem skilja að-ferðir viðskipta og geta tekist á hendur stjórnunarhlut-verk á vinnumarkaði. Námið er lifandi og fjölbreytt, í nánu sambandi við atvinnulíf og tekur mið af þróun samfélagsins og viðfangsefnum líðandi stundar.

Nemendur í viðskiptalögfræði hefja námið á inngangi að almennri lögfræði sem kennd er ásamt rekstrar-hagfræði, aðferðafræði og upplýsingatækni. Mikil áhersla er þannig á aðferða- og viðskiptafræðilegan þátt námsins á fyrstu önn, sem fylgt er eftir með námi í tölfræði og reikningshaldi á vorönn. Sumarnám eftir fyrsta veturinn gerir nemendum kleift að sökkva sér niður í sérhæfðari lögfræðinámskeið, en sú sérhæfing heldur áfram á öðru ári, t.d. með námskeiðum í vinnu-rétti, verðbréfamarkaðsrétti, skattarétti og Evrópurétti.

Námið byggir á verkefnavinnu þar sem nemendur kynnast þeim viðfangsefnum viðskiptalögfræðinnar sem eru í brennidepli atvinnulífsins hverju sinni. Megingreinar námsins eru í stöðugri þróun með breytingum og sviptingum í heimi fyrirtækjarekstrar og því leggur skólinn mikið upp úr því að nemendur öðlist skilning á slíkum breytingum.

Nemendur geta valið hvort þeir ljúka hefðbundinni ML gráðu sem veitir þeim rétt til að þreyta lögmannspróf eða sérhæfa sig á sviði viðskiptalögfræði. Nemendur

Viðskiptalögfræði fléttar viðskiptagreinar og félagsvísindi saman við þjálfun í lög-fræði. Háskólinn á Bifröst er eini skólinn hérlendis sem býður upp á nám af þessu tagi en það er vel þekkt erlendis og nýtur víða vinsælda.

geta lokið BS og ML gráðu á samtals fjóru og hálfu ári, haldi þeir fullri námsframvindu.

Mikilvægur þáttur námsins eru misserisverkefni – sjálfstæð verkefni sem nemendur vinna í hópvinnu í lok haust- og voranna.

Lögfræðingar með skilning á viðskiptum

„Það er sama hvar mann ber niður í atvinnulífinu, við-skiptagrunnur laganámsins á Bifröst er gulls ígildi.– Ögmundur Hrafn Magnússon, viðskiptalögfræði 2006, ML 2008

Viðskiptalögfræði BS 2-3 ár

Hæfni: Kunnátta til að annast og stjórna lögfræðilegum verkefnum hjá fyrirtækjum og skilningur á lagalegum hliðum viðskipta.

Inntökuskilyrði: Stúdentspróf eða sambærileg menntun.

Page 12: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

Það skiptir ekki máli hverjir stjórna.Það skiptir máli hvernig stjórnendur hugsa.

Page 13: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

13

HHS fléttar þrjár greinar saman og gerir nemendum kleift að beita þeim jöfnum höndum við vandamál og viðfangsefni sem oft eru ofviða þeim sem hafa sérhæft sig á einu sviði.

Námið hefst með námskeiði í siðfræði sem kennt er samhliða rekstrarhagfræði, inngangi að stjórn-málafræði og aðferðafræði. Byggð er upp fjölbreytt kunnátta og sýn strax á fyrstu önn. Stjórnmálagreining og stjórnmálaheimspeki eru í miðpunkti á annarri önn, þar sem lagður er grunnur að skilningi á margbreyti-legum stjórnmálahræringum og stjórnmálakenningum samtímans. Á sumarönn er boðið upp á námskeið í alþjóðamálum og viðfangsefnum öryggis- og kynja-fræða, um leið og skilningur á hagfræðilegum þáttum alþjóðamála er dýpkaður. Þá fá nemendur innsýn í menningarsögulega og heimspekilega þætti sem móta hugsunarhátt vestræns samfélags.

Enska á öðru áriÖll námskeið í HHS eftir fyrsta árið eru kennd á ensku með þátttöku erlendra skiptinema sem dvelja við skólann eina önn í senn. Nemendur fá því einstakt tækifæri til að auka enskukunnáttu sína og vinna með erlendum samnemendum.

Nám í HHS byggir á mikilli verkefnavinnu, rétt eins og nám í viðskipta- og viðskiptalögfræði. Nemendur

HHS – Heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði – býr metnaðarfulla nemendur undir störf og nám á innlendum og alþjóðlegum vettvangi. Reynslan sýnir að grunnnám í þessum þremur greinum er dýrmætur undirbúningur fyrir stjórnmálaþátttöku, störf á sviði fjölmiðla, í opinberri stjórnsýslu og við hvers kyns almannatengsl.

eru hvattir til að takast á við raunhæf verkefni sem tengjast stjórnmálum, alþjóðamálum og þeim við-fangsefnum sem eru í brennidepli stjórnmála og þjóð-félagsumræðu hverju sinni. Markmið skólans er að veita nemendum þjálfun sem gerir þeim kleift að skilja aðstæður út frá margbrotnum bakgrunni.

Góður HHS-ingur tileinkar sér gagnrýna og skapandi hugsun og nýtir hana til að taka á við viðfangsefnum síbreytilegs samtíma, skilur meginatriði ábyrgrar stjórnunar og er fær um að setja fræðikenningar í samband við raunveruleikann.

Pólitík, peningar og prinsippmál

„Fullkomið fyrir þá sem vilja skilja þjóðfélagsumræðuna. Ég get ekki hugsað mér betri samsetningu einnar námslínu. – Gústaf Gústafsson, nemandi í HHS

HHS BA 2-3 ár

Hæfni: Skilningur á samfélagslegum forsendum hag-kerfa og stjórnkerfa, geta til heimspekilegrar greiningar og skapandi og gagnrýninnar hugsunar.

Inntökuskilyrði: Stúdentspróf eða sambærileg menntun.

Page 14: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

„Gott skipulag fjarnámsins gefur mér kost á að stunda háskólanám án þess að fórna tækifærum á vinnumarkaðnum.– Ótta Ösp Jónsdóttir, nemandi í viðskiptafræði

Page 15: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

15

Fjarnámið veitir sveigjanleika fyrir nemendur sem ýmist vilja aukna sérhæfingu eða aukna valmöguleika. Skólagjöld miðast við að nemendur geti tekið námið á þeim hraða sem hverjum hentar, en það er skipulagt sem fullt nám og uppfyllir lánshæfiskröfur LÍN.

Mikið kapp er lagt á að bjóða alltaf upp á bestu tækni-legu lausnir sem völ er á. Námskeið eru skipulögð í þriggja og sex vikna lotum auk vinnuhelga þar sem nemendur koma saman ásamt kennara á Bifröst.

Viðskiptafræði BSAlhliða viðskiptafræðinám á grunni hefðbundinna viðskiptagreina með áherslu á aðferðafræðilega þætti. Náminu er ætlað að undirbúa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf og er í senn krefjandi og fjölbreytt. Rík áhersla er lögð á gagnrýna hugsun og hagnýta tengingu við raunhæf verkefni og viðfangsefni sem eru efst á baugi í atvinnulífinu. Nemendum gefst kostur á að vinna misserisverkefni.

Viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti BSAlhliða viðskiptafræðinám með sérhæfingu á sviði markaðsmála, skipulagt í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA) og Félag íslensks markaðsfólks (ÍMARK). Námið er sérsniðið fyrir þá sem vilja auka við menntun, þekkingu og hæfni á sviði markaðsfræða og hentar þeim sem stefna að

Fjarnám við Háskólann á Bifröst byggir á sama grunni og staðnámið: sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag, mikilli og stöðugri verkefnavinnu og áherslu á hópastarf. Fjarnemar stunda nám á haust- og vorönnum en geta skráð sig í sumar-nám með nemendum í staðnámi.

störfum á auglýsingastofum og að markaðsmálum í fyrirtækjum.

Viðskiptafræði með áherslu á ferðaþjónustu BSNemendur fá góðan almennan grunn viðskiptafræð-innar og sérhæfingu í rekstri og stjórnun ferðaþjón-ustufyrirtækja. Námið er skipulagt í nánum tengslum við ferðaþjónustuna í landinu og hentar bæði frum-kvöðlum á sviði ferðamála og einstaklingum sem hafa áhuga á að byggja upp rekstur á sviði ferðaþjónustu.

HHS í fjarnámi BAByggt á sömu megináherslum og HHS í staðnámi og er sniðið að þörfum fólks sem hefur hug á að afla sér góðrar háskólamenntunar en hefur ekki haft tök á að ljúka háskólanámi. Hentugur valkostur fyrir þá sem hafa nýlokið framhaldsskólanámi en hafa ekki tök á að setjast að á Bifröst.

Nemendur ljúka grunnnámskeiðum í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði og fá að auki þjálfun í aðferðafræði og upplýsingatækni. Skólinn hvetur nemendur til að takast á við viðfangsefni sem eru í brennidepli þjóðfélagsumræðu og atvinnulífs og beita kenningum fræðanna til að þroska með sér skapandi skilning á eigin umhverfi.

Það búa ekki allir Bifrestingar á Bifröst

Grunnmenntun í fjarnámi BS eða BA 3 ár

Hæfni: Fjarnám veitir hæfni jafngilda þeirri sem nem-endur öðlast í staðnámi.

Inntökuskilyrði: Stúdentspróf eða sambærileg menntun.

Page 16: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

Menningarstjórnun er bara dútl. Sem skapar um 10.000 ársverk og veltir næstum 200 milljörðum á ári. Ekki síst fyrir lögfræðinga og sérfræðinga í alþjóðaviðskiptum.

Page 17: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

17

Menningarstjórnun MA Nám í menningarstjórnun býr nemendur undir viða-mikil og oft vandasöm störf á sviði menningar og menntunar. Námið byggir jafnhliða á fræðilegri og hagnýtri nálgun og gerir nemendum kleift að þróa gagnrýna sýn á menningu og menningarpólitík um leið og þeir öðlast þjálfun í rekstri, stjórnun og skipulagn-ingu. Bifröst er eini háskólinn hér á landi sem býður upp á þessa samsetningu náms sem hefur sérstaklega verið lagað að íslensku menningarumhverfi.

Alþjóðaviðskipti MS og MIB Meistaranámi í alþjóðaviðskiptum er ætlað að veita þjálfun til sérhæfðra starfa hjá fyrirtækjum sem starfa hér á landi og erlendis. Horft er til sóknar íslenskra fyrirtækja á núverandi og nýjum mörkuðum í Evrópu og annars staðar í veröldinni. Sérstaklega er horft á stefnumótun og markaðssetningu nýrra viðskiptahug-mynda á erlendum mörkuðum. Háskólinn á Bifröst vill sjá fyrirtækjum fyrir víðsýnum, vel menntuðum stjórnendum og starfsmönnum með góða þekkingu á fjármálum, stjórnun og markaðsmálum og getu til þess að meta og þróa viðskiptatækifæri á núverandi og nýjum vettvangi. Einnig er lögð áhersla á að nem-endur þjálfist í því að meta með gagnrýnum hætti tækifæri til úrbóta og sóknar á meginsviðum þeirra fyrirtækja sem þeir starfa fyrir.

Bifröst hefur síðan 2003 boðið upp á nám á meistarastigi til viðbótar við grunnnám skólans. Meistaranámið er fjölbreytt og í örri þróun og í því er blandað saman tækni og möguleikum fjarnáms og staðnáms.

Lögfræði ML Námið er sniðið að þörfum nemenda okkar sem lokið hafa grunnnámi í viðskiptalögfræði en vilja hasla sér völl á hefðbundnum starfsvettvangi lögfræðinga. Að loknu meistaranámi hafa nemendur rétt til að þreyta próf til lögmannsréttinda og hefur talsverður hluti meistaranema við skólann farið þá leið. Námið byggir á þeim grunni sem BS nám í viðskiptalögfræði veitir. Áhersla er lögð á markvissa þjálfun í greinum á sviði réttarfars og refsiréttar auk ýmissa greina fjármuna-réttar. Þá er boðið upp á styttri námskeið í réttarsögu og sifjarétti auk valgreina sem eru breytilegar að efni frá ári til árs.

Vel skipulagt nám og samheldinn hópur

Hæfni: Meistaranám veitir hæfni til sérhæfðra starfa og framhaldsnáms til doktorsprófs.

Inntökuskilyrði: Grunngráða úr háskóla eða jafngild prófgráða.

„Samsetning greina er hreint út sagt æðisleg og nemenda hópurinn ekki síður: Ég eignaðist vini fyrir lífstíð í náminu.– Steingrímur Dúi Másson, menningarstjórnun 2013

Meistaranám MA, MS, MIB og ML 2 ár

Page 18: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

„Það er frábært að geta sannreynt fræðin í vinnunni og fræðst um vinnuna í náminu. – Tinna Jóhannsdóttir, diplóma í verslunarstjórnun 2004

Page 19: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

19

Máttur kvenna I & IINám í Mætti kvenna I er sérsniðið að þörfum kvenna sem hafa áhuga á að stýra og byggja upp fyrirtæki eða rekstur af öðru tagi. Nemendur hittast á vinnuhelgi á Bifröst í upphafi námsins en í kjölfar hennar eru námskeið í áætlanagerð, bókfærslu, upplýsingatækni, sölu- og markaðsmálum og fjármálum í 11 vikur. Nám-inu lýkur eins og það hófst – með vinnuhelgi á Bifröst. Boðið er upp á framhaldsnámskeið – Mátt kvenna II – eftir eftirspurn hverju sinni. Námið er einkum ætlað þeim sem hafa lokið Mætti kvenna I og er byggt upp á sama hátt, með námskeiðum í bókfærslu, samninga-tækni, mannauðsstjórnun, skattaumsýslu, rekstrar-hagfræði og viðskiptaensku.

Sterkari stjórnsýslaNámið er hannað fyrir stjórnendur í sveitarfélögum. Markhópurinn er ekki síst sviðsstjórar og forstöðumenn stofnana en það hentar þó öllum starfsmönnum sveitarfélaga, þar á meðal kennurum, sem vilja auka möguleika sína á að takast á hendur stjórnunarstörf á sveitarstjórnarstiginu. Markmið námsins er að auka þekkingu, hæfni og leikni stjórnenda innan sveitarfé-laga til þess að takast á við krefjandi starfsumhverfi og auka samvinnu þeirra í milli. Námið fer fram í fjarnámi og á vinnuhelgum á Bifröst og nær yfir 12 vikna tímabil.

Hundruð nemenda hafa á undanförnum árum lokið símenntunarnámskeiðum á Bif-röst, þar sem fjarnám og reglulegar vinnutarnir nemenda tryggja í senn gæði náms og góða nýtingu tíma. Í símenntunarnámskeiðum fer saman áhugavert og hagnýtt nám annarsvegar og fagleg tengslamyndun hinsvegar.

Stjórnun í ferðaþjónustuNámið styrkir einstaklinga sem fást við rekstur á sviði ferðaþjónustu til að ná utan um rekstur og byggja upp fyrirtæki. Það hentar einnig fólki sem er að velta fyrir sér að hefja rekstur á sviði ferðaþjónustu og ekki síður þeim sem hafa á undanförnum árum upplifað aukningu umsvifa í kjölfar fjölgunar ferðamanna á Ís-landi. Námið er einnig heppileg byrjun fyrir þá sem eru að velta fyrir sér námi í viðskiptafræði með áherslu á ferðaþjónustu.

Verslunarstjórnun Diplómanám í verslunarstjórnun er þriggja anna starfstengt fjarnám. Markmið námsins er að auka hæfni og þekkingu starfsfólks sem vinnur við verslun og þjónustu. Áhersla er á hagnýtar greinar sem nýtast beint í starfi en flestir nemenda eru starfandi versl-unarstjórar. Námið er einnig opið einstaklingum sem vilja auka starfsmöguleika sína á sviði verslunar. Boðið hefur verið upp á þetta nám frá 2002 og hefur það hlotið starfsmenntaverðlaun í flokki skóla og fagaðila.

Stuttar námsleiðir með áherslu á rekstur

Símenntun 1-3 annir

Hæfni: Aukin kunnátta í rekstri og stjórnun.Inntökuskilyrði: Opið öllum sem hyggjast styrkja sig á vinnumarkaði.

Page 20: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

Það getur vel verið að heimurinn sé sífellt að minnka. En hann er ekkert að verða einfaldari.

Page 21: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

21

Allir nemendur eru hvattir til að velta skiptinámi fyrir sér en reynslan sýnir að það styrkir nemendur og eykur gildi náms þeirra. Samningar skólans taka mið af námsgreinum hans en allir nemendur eiga að geta fundið skóla við sitt hæfi á meðal samstarfsskóla. Háskólinn á Bifröst vinnur einnig að því jafnt og þétt að styrkja tengsl sín við erlenda skóla og fjölga sam-starfssamningum sem fela í sér spennandi möguleika fyrir nemendur. Kennurum gefst einnig kostur á dvöl við erlenda samstarfsskóla við kennslu, rannsóknir eða fyrirlestrahald.

Erasmus og Háskóli norðurslóðaHáskólinn á Bifröst er aðili að Erasmus samstarfi evrópskra háskóla sem eykur samstarfsmöguleika skólans á erlendum vettvangi verulega. Bifröst er einnig aðili að Háskóla norðurslóða (University of the Arctic) en hann er samstarfsverkefni fjölda háskóla í Kanada, Bandaríkjunum, Norðurlöndum og Rúss-landi. Bifröst tekur meðal annars þátt í North2North nemendaskiptum á vegum Háskóla norðurslóða.

Skiptinám fyrir meistaranema og grunnnema Samningar skólans um skiptinám eru fyrst og fremst lagaðir að þörfum grunnnámsins en meistaranemum gefst þó einnig kostur á skiptinámi eftir því sem sam-starfssamningar og aðstæður leyfa. Bifröst vinnur einnig að því að byggja upp tengsl við fyrirtæki

Nemendur Háskólans á Bifröst eiga kost á að stunda nám við erlendan háskóla í eina önn sem hluta af náminu. Bifröst hefur gert tvíhliða samninga við tugi erlendra háskóla um allan heim og leggur sig fram um að koma til móts við óskir nemenda sem hafa hug á að fara í skiptinám.

og stofnanir á erlendri grundu sem geta tekið við nemendum í starfsnám en mögulegt er að bæta slíku starfsnámi við námsferil á meistarastigi.

Erlendir skiptinemar Mikilvægur hluti af nemendaflóru Bifrastar eru erlendir skiptinemar sem koma venjulega til einnar annar dvalar. Skiptinemarnir eru frá samstarfsskólum Bifrastar og verður dvöl þeirra við skólann til að auka fjölbreytni hans og alþjóðlegt yfirbragð. Skiptinám íslenskra nemenda erlendis og námsdvöl erlendra nemenda við skólann eru ríkur og vaxandi þáttur í starfsemi hans.

Bifröst og alþjóðasamfélagið

Hæfni: Reynsla af háskólanámi erlendis. Kynni af fram-andi menningarheimi.

Inntökuskilyrði: Allir nemendur skólans á háskólastigi geta sótt um að komast í skiptinám.

Alþjóðasamstarf 1 önn

„Skiptinám mitt í Kína frá Háskólanum á Bifröst var einhver almagnaðasta lífs-reynsla sem ég hef upplifað.– Kristján Örvar Sveinsson, ML nemandi í lögfræði

Page 22: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

Til þess að rúlla upp samningum er mikilvægt að skoða margar sviðsmyndir. En maður þarf að kunna taflmennskuna fyrst.

Page 23: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

23

Skólinn leggur sérstaka áherslu á gæði kennslu og að geta veitt nemendum þjónustu sem eykur möguleika þeirra á að ná árangri í námi. Sumarannir og marg-vísleg tækifæri til samvinnu nemenda og kennara, sjálfstæðrar verkefnavinnu og starfsnáms gerir góðum nemendum kleift að ljúka námi sínu á skemmri tíma en hægt er við aðra íslenska háskóla.

Sveigjanleg sjálfseignarstofnunHáskólinn á Bifröst er sjálfseignarstofnun. Það þýðir að skólinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni, heldur rennur allur rekstrarafgangur til frekari uppbyggingar hans.

Stjórn skólans ber ábyrgð á rekstri hans. Í henni sitja fulltrúar hollvina skólans, Samtaka atvinnulífsins og starfsmanna skólans. Háskólaráð ber ábyrgð á innri málum háskólasamfélagsins og akademískri stefnumótun. Í því sitja fulltrúar nemenda og kennara auk rektors, aðstoðarrektors og framkvæmdastjóra kennslu og þjónustu.

SkólagjöldÞar sem Háskólinn á Bifröst býður nemendum upp á aðstöðu og þjónustu umfram lágmarkskröfur eru innheimt skólagjöld auk hefðbundinna skráningar-gjalda. Skólagjöldin miðast við þann viðbótarkostnað sem þjónustustig skólans, stærð og staðsetning hefur í för með sér. Upphæð skólagjalda er ákvörðuð árlega,

Háskólinn á Bifröst hefur að markmiði að skapa sjálfstætt háskólasamfélag sem byggir á gildum sjálfbærni og ábyrgrar samfélagssýnar. Háskólaþorpið er hlýlegt umhverfi þar sem nemendur, starfsfólk og aðrir íbúar geta stundað nám og störf við frið og öryggi.

en hún er breytileg eftir námsstigi og eftir því hvort um staðnám eða fjarnám er að ræða. Upplýsingar um skólagjöld er að finna á heimasíðu skólans, bifrost.is.

Raunkostnaður námsÞótt nemendur á Bifröst greiði hluta af námskostnaði sínum sjálfir í formi skólagjalda er ekki þar með sagt að nám á Bifröst sé dýrara en nám við aðra skóla þegar upp er staðið. Hafa ber í huga að nemendur á Bifröst ljúka námi á skemmri tíma en aðrir íslenskir háskóla-nemar. Einnig má benda á að nemendur geta dregið verulega úr uppihaldskostnaði með búsetu á Bifröst.

Allt háskólanám á Bifröst er lánshæft hjá Lánasjóði ís-lenskra námsmanna. Sama gildir um nám í Háskólagátt.

Sjálfstæður háskóli – einstakt samfélag

Sjálfstæður háskóli

Page 24: Kynningabæklingur fyrir Bifröst

www.bifrost.is2013

Viðskiptalögfræði fyrir áskoranir atvinnulífsins – viðskiptafræði til uppbyggingar og nýsköpunar – heim-speki, hagfræði og stjórnmálafræði til að ná tökum á samfélagi sem verður stöðugt flóknara – menningarstjórnun fyrir vaxandi atvinnugreinar mennt-unar og lista – alþjóðaviðskipti fyrir rekstur og stjórnun í hnattvæddum heimi – ML fyrir lögmenn framtíðar-innar – Háskólagátt til nauðsynlegs undirbúnings fyrir háskólanám.

Háskólinn á Bifröst – fyrir atvinnulíf og samfélag