ÓÓkeypis námskeið og ráðgjöfkeypis námskeið og ráðgjöf...spænska í daglegu lífi -...
TRANSCRIPT
Borgartún 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | [email protected] | www.raudakrosshuid.is | Opið virka daga kl. 12-17
Ókeypis námskeið og ráðgjöfÓkeypis námskeið og ráðgjöf
Rauðakrosshúsið
Rauðakrosshúsið
Mánudagur 7. desember
Þriðjudagur 8. desember
Miðvikudagur 9. desember
Fimmtudagur 10. desember
Föstudagur 11. desember
Facebook - Langar þig að skilja hvað allir eru að tala um? Kynnstu sam-skiptavefnum! Fólk er hvatt til að mæta með fartölvu sé þess kostur. Umsjón: Sveinbjörn Fjölnir Pétursson. Tími: 12:15 - 14:00
Hvernig stöndumst við álagið - Fjallað er um áhrif hugsana á líðan okk-ar og viðbrögð í mótlæti hvort sem um er að ræða kreppu, atvinnuleysi eða sjúkdóma. Í mótlæti höfum við tilhneigingu til að hugsa meira neikvætt heldur en við gerum í meðbyr. Bent verður á leiðir til að takast á við þetta og gæta okkar betur. Umræður í lokin. Umsjón: Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur. Tími: 12:30 – 14:00
Prjónahópur - Við prjónum, heklum og höfum það notalegt saman. Lærðu og deildu kunnáttu og hugmyndum með öðrum. Tími: 13:00 – 15:00
Tálgunarnámskeið - Farið verður í nýjar aðferðir við að tálga með beitt-um hnífum í ferskan trjávið. Aðferðirnar byggjast á því að nota lagni og beittan hníf en ekki styrk og kraft. Sýnd verða auðveld og einföld verkefni og öllum gefi nn kostur á að spreyta sig. Umsjón: Valdór Bóasson, kennari og handverksmaður. Tími: 14:30 - 16:00
Skákklúbbur - Hefur þú gaman af skák? Komdu og tefl du. Þessi klúbbur er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Tími: 15:30 – 17:00
Qi – Gong - Æfi ngar sem hjálpa fólki að afl a, varðveita og dreifa orku um líkamann. Undirstaðan er agaður líkamsburður, öndun og hugsun eða ein-beitni. Umsjón: Viðar H. Eiríksson, Qi – Gong iðkandi. Tími: 12:00 – 13:00 Gönguhópur - Við göngum rösklega út frá Rauðakrosshúsinu hvernig sem viðrar. Klæddu þig eftir veðri og komdu með. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir. Tími: 13:00 - 14:00
Jólaaðventan - leiðir til sáttar og vellíðunar - Hvernig getum við dregið úr spennu og ráðaleysi og farið sáttari inn í aðventuna? Ráðgjafar Lausnarinnar fj alla um einfaldar leiðir til að draga úr vanlíðan. Almennar umræður verða eftir stuttan fyrirlestur. Umsjón: Ráðgjafar Lausnarinnar.Tími: 13:15 - 14:30
Skiptifatamarkaður - Úti - og spariföt barna - Komdu og skiptu útifötum barnanna í aðrar stærðir og gerðir. Ef þú vilt ekki skipta, heldur aðeins gefa, komdu þá með barnafötin á þriðjudegi. Umsjón: Sjálfboðaliðar Rauða kross Íslands. Tími: 13:30 - 17:00
Jesús og jólasveinarnir - Hvaðan kom jólatréð, aðventukransinn, aðventuljósin? Af hverju notar páfi nn jólasveinahúfu? Fjallað verður um ýmsa siði og hefðir jólanna og rætur þeirra kannaðar. Umsjón: Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Tími: 15:00 - 16:00
Slökun, öndun og hugleiðsla - Hvað sem við fáumst við daglega getur verið gott að taka örstutta stund og slaka vel á. Gagnlegar og einfaldar leiðir til að slaka á í dagsins önn. Einnig verður farið í undirstöðuatriði hugleiðslu. Umsjón: Elín Jónasdóttir, sálfræðingur. Tími: 12:00 - 13:30
Áhugasviðsgreining - Taktu áhugasviðskönnun og fáðu faglega einkaráðgjöf um framhaldið. Skráning nauðsynleg. Umsjón: Náms- og starfsráðgjafi hjá Mími. Tími: 13:00 - 15:00
Skokkhópur - Gengið og skokkað til skiptis áður en farið er í heita pott-inn í Laugardalslaug. Rjúkandi kaffi og spjall í Rauðakrosshúsinu að lokinni æfi ngu. Umsjón: Óskar Aron Jónsson. Tími: 13:00 - 16:00
Tölvuaðstoð - Þarftu aðstoð við að læra á tölvu? Fáðu persónulega aðstoð. Fólk er hvatt til að mæta með fartölvu sé þess kostur. Tími: 13:30 - 15:30
Jólakortin - Við komum saman í notalegheitum, skrifum á jólakort og hlustum á jólatónlist við kertaljós. Komdu með jólakort til að skrifa á og endilega hafðu sýnishorn af smákökunum þínum með. Tími: 13:30 - 15:00
Bókaklúbbur - Lestu þér til yndisauka og ræddu um innihaldið við aðra yfi r kaffi bolla. Spjallað verður um bókina Leyndardómur Býfl ugnanna eftir Sue Monk Kidd. Tími:14:00 -15:00
Bridds - Kennsla og leiðbeiningar. Lærðu að spila bridds og kynnstu góðu fólki til að spila við. Þriðji hluti af þremur. Umsjón: Guðmundur Páll Arnar-son, fyrrum heimsmeistari. Tími: 14:00 - 16:00
Biblíulestur - Hvað segir Matteusarguðspjall um fæðingu Jesús? Við les-um saman Matteusarguðspjall 1. kafl a frá versi 18 og út annan kafl a. Umsjón: Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni. Tími: 15:30 - 16:30 Spænska í daglegu lífi - Lærðu nýtilegar setningar fyrir tjáningu á ferðalögum og í daglegu lífi í spænskumælandi löndum. Annar hluti afþremur. Umsjón: Elba Nunnz, spænskukennari. Tími: 15:00 - 16:30
Föndur, skrapp myndaalbúm og jólakort - Lærðu að búa til skrautleg og skemmtileg albúm fyrir uppáhalds myndirnar þínar eða byrjaðu á jóla-kortunum. Gott er að hafa skæri meðferðis.Umsjón: Aðalheiður Einarsdóttir, skrapplistakona. Tími: 12:00 - 14:00
Saumasmiðjan - Gamlar fl íkur fá nýtt útlit, stutt verður langt, vítt þröngt, götótt bætt og alveg nýtt verður til. Komdu með saumavél ef þú getur.Umsjón: Ósk Óskarsdóttir, kjóla- og klæðskeri og Halldóra Guðmundsdóttir, hagsýn húsmóðir. Tími: 13:00 - 15:00
Aðventuhátíð velunnara Rauðakrosshússins. Tími: 15:30 - 17:30
Hvað er list? – List og þroski verða rædd ásamt listmeðferð og fl eira. Gestir spreyta sig og fá ráð og ábendingar. Umsjón: Gunnar Gunnarsson, listmálari og sálfræðingur og Gunnar S. Magnússon, myndlistarmaður og listkúnst-ner. Tími: 12:30 -13:30
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri og komdu með. Tími: 12:30 - 13:30
Íslenskuspilið - Viltu læra meira í íslensku? Glænýtt spil sem nota má með góðum árangri í íslenskunámi útlendinga. Komdu og spilaðu með og bættu íslenskukunnáttu þína í leiðinni. Umsjón: Gentiana Collaku, verkefnistjóri Rauða kross Íslands. Tími: 13:00 - 15:00
Brjóstsykurgerð - Vissir þú að það er auðvelt að búa til sinn eigin bragðgóða brjóstsykur? Á þessari kynningu eru sýnd réttu vinnubrögðin við brjóstsykursgerð og auðvitað fá allir smakk með heim. Skráning nauðsyn-leg. Umsjón: Jóna Svandís Þorvaldsdóttir, áhugakona um brjóstsykurgerð. Tími: 12:30 - 14:00
Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífi ð af hlátri og gleði? Hláturjóga getur hjálpað til við að auðga lífi ð. Umsjón: Ásta Valdimarsdóttir, hláturjógakennari. Tími: 15:30 - 16:30