notendur.hi.isingvars/namskeid/leikir/... · web viewscattergories is a fast-paced word game...
TRANSCRIPT
![Page 1: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/1.jpg)
Háskóli Íslands Menntavísindasvið Vorönn 2009GrunnskólakennaraleiðFjarnám
Námsmappa
Nemandi:Jóna Guðmunda Hreinsdóttir.
Kt. 020370-5059 [email protected]
Kennarar: Ingvar Sigurgeirsson og Ása Helga RagnarsdóttirLeikir sem kennsluaðferð GLF034G-V09
![Page 2: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/2.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Efnisyfirlit
Inngangur 2
1. þáttur: Fræðilegt sjónarhorn: Gildi leikja í uppeldi og menntun 3
2. þáttur: Fræðilegt sjónarhorn: Flokkar og tegundir leikja 5
3. þáttur: Leikjavefurinn – Leikjabankinn 7
4. þáttur: Nafna- og kynningarleikir - hópstyrkingarleikir / hópeflileikir 10
5. þáttur: Gamlir og góðir íslenskir leikir 13
6. þáttur: Leikir sem kveikjur 16
7. þáttur: Hugþroskaleikir 18
8. þáttur: Námspil og flókin töfl 22
9. þáttur: Tölvuleikir 28
10. þáttur: Söng- og hreyfileikir 33
11. þáttur: Gátur, þrautir og heilabrjótar 36
12. þáttur: Orðaleikir 42
Hópverkefni: Framlag til Leikjavefsins 46
Lokaorð 52
Heimildaskrá 53
1
![Page 3: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/3.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Inngangur
Þetta er ungt og leikur sér er orðatiltæki sem oft heyrist í fullorðna fólkinu þegar því finnst
ungdómurinn vera full kærulaus eða ærslafullur. En í þessu sambandi er samt tvennt sem vert
er að hafa í huga. Í fyrsta lagi er það heilmikið sem læra má í gengum leikinn og í öðru lagi er
það ekkert skilyrði að vera ungur til að geta leikið sér. Vegna þessara tveggja atriða, m.a.,
hefur leikurinn mikið gildi í skólastarfi.
Þessa námsmöppu gerði ég (Jóna Guðmunda Hreinsdóttir) í tengslum við námskeiðið
Leikir sem kennsluaðferð - GLF034G-V09, sem kennt var á Menntavísindasviði Háskóla
Íslands vorið 2009. Á námskeiðnu var fjallað um gildi og notkun góðra leikja í skólastarfi og
tómstundum. Kernnarar námskeiðsins voru tveir, þau Ása Helga Ragnarsdóttir og Ingvar
Sigurgeirsson en meginmarkmið námskeiðsins voru að nemendur: öðlist aukinn skilning á þýðingu og uppeldisgildi góðra leikja
þekki og geti skipulagt fjölbreytta leiki
hafi fengið þjálfun í að að undirbúa og stjórna margvíslegum leikjum
þekki heimildir um leiki sem nota má í uppeldi og kennslu (handbækur, hugmyndabankar, efni á
Netinu)
þekki Leikjavefinn - Leikjabankann, geti nýtt sér hann og hafi lagt af mörkum til hans
hafi aukið áhuga sinn á notkun leikja í uppeldis- og skólastarfi (Ingvar Sigurgeirsson. 26.12.2008)
Námskeiðinu var skipt upp í tólf meginviðfangsefni og auk þess var sérstakt framlag til
Leikjavefsins. Þessi námsmappa skiptist í samsvarandi kafla og þessi viðfangsefni, þ.e. einn
kafli fyrir hvert viðfangsefni og einn fyrir framlagið til Leikjavefsins. Mappan gegnir
hlutverki persónulegrar handbókar fyrir mig um leiki sem kennsluaðferð og sem
hugmyndabanki um leiki, notkun leikja og margt fleira. Í hana hef ég safnað leikjum,
hugleiðingum mínum um efnið og tenglum í margvíslegt efni sem ég tel að gæti nýst mér í
framtíðinni. Vegna þess að mappan er rafræn er auðvelt að geyma í henni tengla í það efni
sem mér þykir áhugavert og má þess konar tengla finna víða í möppunni en þeir þekkjast úr
textanum á því að orðin sem innihalda tengla eru blá eða fjólublá og undirstrikuð.
2
![Page 4: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/4.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
1. þáttur: Fræðilegt sjónarhorn: Gildi leikja í uppeldi og menntun
Ég held að engum blandist hugur um það hversu mikilvægur leikurinn er fyrir bæði börn og
fullorðna. Öll eigum við minningar um leiki okkar frá því við vorum börn og finnum sjálfsagt
flest enn í dag, hversu mikil afslöppun og ánægja fylgir því að leika sér. Því ætti það ekki að
koma okkur neitt á óvart hversu mikilvægur leikurinn er börnumum. Það er einnig svo ótal
margt sem börnin læra í gegnum leikinn. Leikurinn styrkir fyrri þekkingu jafnframt því að ný
þekking verður til. Þau þjálfa fín- og grófhreifingar, ímyndunaraflið, félagslega hegðun,
samskipti og reglur, að deila með hvert öðru, málnotkun og skilning, læra skipulagningu,
samhyggð og samvinnu, svo nokkuð sé nefnt. Í leiknum eru börnin virk (Fox, Jill Englebright.
2008), ólíkt því að hlusta á fyrirlestur eða horfa á mynd. Og af því að leikurinn er
skemmtilegur, virkar það sem hvati til að læra meir. Þess vegna er leikurinn mikilvægur þáttur
í skólastarfi.
Samt er það ekki einfalt að skilgreina leik (Wardle, Francis. 2008), þó hafa margar
tilraunir verið gerðar til þess og erfitt að segja til um það hverjum hefur þar best tekist til. En
þótt erfitt sé að skilgreina leik, er hann hinsvegar auðþekktur, inn á það koma bæði Jill
Englebright Fox (Fox, Jill Englebright. 2008) og Francis Wardle (Wardle, Francis. 2008) í
greinum sínum. Jill Englebright Fox kemst að þeirri niðurstöðu að þó ervitt sé að skilgreina
leikinn sé hann auðþekktur og fer Francis Wardle inn á sömu brautir í sinni grein. Hann gerir
þó tilraun til að skilgreina leik og fer þar örlítið of langt að mínu mati, enda telur hann að
leikurinn þurfi að vera sjálfsprottinn, sjálfvalninn, byggi á raunveruleika barnanna, skapaður
af börnunum og í raun án allra utanaðkomandi áhrifa. Börn sem keppist við að gera flottasta
skipið séu því samkvæmt hans skilgreiningu ekki að leika sér.
Leikir eru menningarbundnir og margir þeirra ganga mann fram af manni, rétt eins og
sögur og ljóð geta gert. Leikhefðin er því ekki samskonar um alla veröldina þó vissulega séu
til þeir leikir sem þekkjast um hana görvalla.
Hugmyndin um leikandlitið sem kom fram í þættinum The Promise of play (Kennard,
David og Joan Saffa. 2000) finnst mér skemmtileg og er ekki frá því að það sé talsvert til í
þessu. Við setjum okkur í raun og veru í alveg sérstakar stellingar þegar við leikum.
Sérstaklega er þetta áberandi þegar við fullorðna fólkið leikum við börn. Kannski er það
einmitt þetta leikandlit sem gerir það að verkum að leikurinn er svona auðþekktur. Við sjáum
3
![Page 5: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/5.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
á andlitum barnanna hvort þau eru að hnosast og leika sér í þykjustu slag eða hvort um
raunveruleg slagsmál er að ræða. Það minnir mig jafnframt á úlfana úr þættinum, en líkt og
hjá þeim, þarf stundum lítið að klikka til að leikurinn breytist í raunveruleg slagsmál. Í
þáttunum er leikur skilgreindur sem athöfn þar sem skemmtun er markmiðið (Kennard, David
og Joan Saffa. 2000) og við getum leyft okkur að gera það (t.d. láta kjánalega) sem við annars
gætum ekki stöðu okkar eða ímyndar vegna. Leikurinn er afar mikilvægur fyrstu 2 ár æfinnar
vegna þess að þá á mestur taugaþroski sér stað. Leikurinn vekur ánægju, styrkir tengsl
barnsins við aðra, hvetur það til að gera tilraunir og styður við nám. Með aldri og þroska
breytist leikurinn og í gegnum hann læra þau samskiptareglur samfélagsins og samvinnu en
Wardle segir segir að börn vilji læra nýja hluti og ná tökum á nýrri færni, þess vegna greini
þau sjálf hvað þau viti og hvað þau ættu að læra næst (Wardle, Francis. 2008).
Ég var mjög hrifin af Roof-Top skólanum (Kennard, David og Joan Saffa. 2000) en
þar er leikurinn miðdepill skólastarfsins (auk þess hver væri ekki til í að fá að borða
stærðfræðiverkefnið sitt?). Í leiknum verða börnin afslappaðri og geta verið þau sjálf og því
eru þau opnari fyrir því sem þau læra um. Ef maður elskar að læra, getur maður hvað sem er!
Margt það sem kom fram í þáttunum og greinunum kom mér á óvart en þar var
jafnframt fjölmargt sem styrkir mann í þeim skoðunum sem maður hafði áður. Allavegana
höfum við nú fengið smjörþefinn og, mig að minnsta kosti, hlakkar til að halda áfram.
4
![Page 6: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/6.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
2. þáttur: Fræðilegt sjónarhorn: Flokkar og tegundir leikja
Leiki er hægt að flokka á marga og misjafna vegu. Sem dæmi nefnir höfundur greinarinnar
Play as Curriculum (Wardle, Francis. 2008) leikjaflokkana: Hreyfileikir, samskipta- og
félagslegaleikir, ímyndurnarleikir, regluleikir og uppbyggingalegir leikir. Þessi flokkun gerir
færnina sem leiknum er ætlað að þjálfa að viðmiði. Hreyfileikjunum er ætlað að þjálfa fín- og
grófhreyfingar, samþættingu vöðva, vöðvastyrk, þol og tauga og heilastarfsemi.
Samskiptaleikjum er í þessu ætlað að þjálfa félagslega hegðun og reglur, samvinnu, samskipti,
virðingu, gefa og þyggja og þroska gildismat. Ímyndunarleikir þroska ímyndunaraflið, þau
læra að hugsa óhlutbundið, gera tilraunir með tungumálið og prófa ýmis hlutverk og aðstæður.
Þjálfa sveigjanlega hugsun, læra að skapa umfram núið og auka ímyndunaraflið.
Uppbyggingarlegir leikir þjálfa þau í að skapa, byggja, teikna, raða, stafla, stífla, haldleika og
búa til. Þjálfar orðnotkun, hugtök og hugmyndir og leyfir þeim að gera tilraunir með hluti,
uppgötva hvað gengur og hvað ekki. Regluleikir þjálfa skilning þeirra á byggingu
samfélagsins og reglum. Í greininni Back to basis: Play in early childhood (Fox, Jill
Englebright. 2008) var rætt um inni- og útileiki og þeir flokkaðir eftir því hvaða áhrif þeir áttu
að hafa. Flokkarnir voru: Fylgjast með, einstaklingsleikir, einstaklingar í hópi, tengslaleikir,
samvinnuleikir/hlutverkaleikir.
Þá mætti e.t.v. spyrja sem svo; hvaða gagn er í þessari flokkun? Er ekki leikur bara
leikur og góður til síns brúks, sama hvaða þætti hann þjálfar? Vissulega er það rétt, leikur er
leikur hvaða þætti sem hann þjálfar. Í greinunum sem við lásum voru leikirnir flokkaðir
annars vegar eftir félagsþroska en hinsvegar eftir uppbyggingu leikjanna. En hver er tilgangur
flokkunarinnar? Til hvers flokkum við leikina? Hvaða flokkunarkerfi sem við hugsanlega
notum er meginspurningin sú: Hvað er það sem við viljum fá út úr flokkunarkerfinu? Ég sé
það fyrir mér að sem kennari hafi ég aðra þörf á flokkun en ég hefði ef ég væri vísindamaður
eða hvað sem er annað. Sem kennari hlýt ég að þurfa kerfi sem einfaldar mér að finna réttan
leik með tilliti til þess hvaða þætti ég ætla að ná fram í leiknum. Hvað er það sem ég vil þjálfa
börnin í (þjálfunaratriði)? Hvaða svæði hef ég til umráða í leiknum (inni/úti)? Hvaða gögn hef
ég tiltæk (boltar, blöð, spil o.s.frv.)? Hvernig vil ég skipta hópnum
(einstaklings-/para-/hópleikir)? Einnig gæti það verið hagnýtt að flokkunin tæki mið af því
hvaða námsgreinum leikurinn gæti þjónað. Það er því að mínu mati tilgangurinn sem
ævinlega verður að ráða þegar uppsetning og val flokka og flokkunarkerfa verður til. En
5
![Page 7: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/7.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
einnig þarf að gefa kerfinu tíma til að þróast svo að sem mest not verði af því. Ég held að
flokkunarkefi sem byggist á yfir- og undirflokkum gefi mesta möguleika á þeirri flokkun sem
ég teldi mér gagnast best. Þannig kerfi segir auðveldlega frá innihaldi leikjanna og því er
fljótlegra að finna það sem að er leitað. Einnig geta margir leikir fallið í nokkra flokka, en það
er í lagi, aðalatriðið er að flokkunin virki til þess hlutar sem hún er ætluð, að auðvelda manni
að finna þá leiki sem til stendur hverju sinni.
6
![Page 8: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/8.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
3. þáttur: Leikjavefurinn – Leikjabankinn
Í þessum námsþætti var leikjavefurinn skoðaður. Leikjavefurinn eða leikjabankinn er þróunar-
og samvinnuverkefni kennara og kennaranema á menntavísindasviði Háskóla Íslands (Ingvar
Sigurgeirsson. (án árs.b)). Bankinn hefur það markmið að að safna góðum leikjum til að nota í
skólastarfi og kynna þá sem víðast með aðgengilegum hætti. Vefurinn er í umsjón Ingvars
Sigurgeirssonar sem jafnframt er umsjónarmaður þessa námskeiðs „Leikir sem
kennsluaðferð“. Vefurinn hefur stækkað jafnt og þétt og hefur nú að geyma nokkur hundruð
leiki og leikjaafbrigði.
Leikjavefurinn finnst mér frábær, sérstaklega vegna þess hversu þarfur hann er. Ég sé
þó fyrir mér að í framtíðinni muni hann þróast á þann hátt að úrvalið verði meira og
auðveldara verði að finna einmitt þann leik sem manni vantar í hvert skipti. Þó uppsetningin
virki ágætlega núna, er ég hrædd um að erfiðara verði að nálgast það sem mann vantar þegar
efnið verður meira. Ég sé fyrir mér að hver leikur verði flokkaður á marga mismunandi vegu
og á forsíðunni verði einskonar leitarvél sem auðveldar leit. Þar væri t.d. fellirammar þar sem
hægt væri að velja um gerð leiks, aldurshóp, markmið, námsgrein, fjölda þátttakanda,
hjálpargögn og fl. en allri fellirammarnir gæfu einnig möguleika á „allir möguleikar“. Ég tel
að með þessu væri möguleiki á að koma betur til móts við bæði grunnskólakennara og
leikskólakennara. Myndrænni framsetning, tilbúin gögn til útprentunar og hnappar sem leyfa
manni að flakka milli leikja (án þess að þurfa alltaf að nota back takkann á vafranum) eru
einnig atriði sem gerðu vefinn auðveldari í notkun. Meðan vefurinn er tengdur þessu
námskeiði er nokkuð tryggt að hann mun halda áfram að stækka en þegar fram líða stundir
mun það verða nemum sífellt erfiðara að finna nýja leiki til að bæta í safnið, þó varla verði
það alveg í bráð. Annað sem ég velti fyrir mér er það hvort ekki væri úr vegi að hafa einnig
flokk gagnvirkra leikja á netinu sem væri þá í raun aðeins tenglasafn fyrir þroskandi netleiki
eins og t.d. http://www.nams.is/krilla/index.htm. Sérstaklega er ég að hugsa um það vegna
þess að það væri handhægt fyrir kennara að hafa slíkt safn tiltækt á aðgengilegum stað.
Í Leikjabankanum - Leikjanetinu eru leikirnir eru flokkaðir í nokkra mismunandi
flokka og valdi ég nokkra þeirra til frekari skoðunar. Leikjaflokkarnir sem ég valdi mér eru:
Söguleikir, ýmsir námsleikir og spurningaleikir.
Söguleikir eru leikir sem fela í sér frásagnir eða sögugerð (Söguleikir. (án árs)).
Leikurinn „pokasaga“ (Hrafnhildur Hilmarsdóttir. 1997) er mjög skemmtileg leið til að efla
7
![Page 9: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/9.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
hugmyndaflug nemendanna, þjálfa þau í samvinnu og ritsmíðum. Þessi leikur hentar því
sérstaklega vel í íslenskukennslu. Vegna þess að sagan þarf að fjalla um hlutina í pokanum er
hægt að nota þennan leik til að læra ýmislegt. Sem dæmi sé ég fyrir mér að hægt væri að setja
í pokann minnjagripi frá einhverju ákveðnu landi, póstkort og jafnvel vegakort og sagan sem
úr því væri unnin væri ferðasaga um landið. Auka hjálpargögn mætti vera kennslubækur í
landafræði eða upplýsingar af vefnum og þannig væri möguleiki á að setja saman í eitt
verkefni landafræði og ritun. Annar leikur í þessum flokki sem mér lýst vel á er leikurinn
lýsingarorðasagan (Steinunn Þorleifsdóttir. 1998). Hann er jafnframt mjög kunnuglegur frá
gamalli tíð þar sem við lékum hann oft sem krakkar. Í leiknum er búin til skrítin og
skemmtileg saga þar sem einn segir söguna en hinir fylla lýsingaorðin inní. Þátttakendur velja
lýsingarorð án þess að vita hvar þau koma í sögunni eða um hvað sagan er og út úr því getur
komið mjög skemmtileg saga. Leikurinn að segja sögu (Birna Hugrún Bjarnadóttir. 1993) er
svipaður lýsingarorðasögunni nema þá velur einn þátttakandi orð allra hinna.
Leikjaflokkurinn sem ber heitið „ýmsir námsleikir“ inniheldur mjög fjölbreitta leiki
sem margirhverjir tengjast einhverjum tilteknum atriðum í náminu og þá oftast einhverjum
þekkingaratriðum (Ýmsir námsleikir. (án árs)). Leikur sem ber heitið „gettu hvaða hlutur þetta
er“ er í þeirri útfærslu sem finna má í leikjabankanum ætlaður í heimilisfræði með það að
markmiði að kenna nemendum heiti á þeim áhöldum og hlutum sem er að finna í eldhúsinu
(Sigurjóna Jónsdóttir. 1994). Ég sé fyrir mér að hægt sé að nota þennan leik til að kenna margt
annað líka. Í sögukennslu mætti t.d. nota þennan leik í umfjöllun um þá hluti sem notaðir voru
í gamla daga en eru ekki lengur í notkun. Þá væru myndirnar á spjöldunum t.d. af ask, strokk,
reiðing, rúmfjöl eða öðrum gömlum munum. Þá gæti þessi leikur einnig hentað vel í öðrum
greinum og myndirnar gætu þá verið af t.d. dýrum, sögufrægum stöðum eða byggingum,
líffærum eða löndum. Hinir tveir leikirnir sem mér fannst hvað skemmtilegastir í þessum
flokki voru fylltu skeiðina sem þjálfar talningu og samhæfingu hreyfingar og skynjunar
(Hilmar Rafn Kristinsson. 2006) og leikurinn sökkvandi skip sem þjálfar þátttakendur í
rökhugsun og samlangningu (Aðalheiður Halldórsdóttir og Sigrún Kolsöe. 1997.a).
Síðasti flokkurinn sem ég valdi mér að þessu sinni er „spurningaleikir“ en innan þess
flokks má finna gátur, spurningaleiki og spurningakeppnir (Spurningaleikir. (án árs)). Einn
mjög spennandi leikur sem þar er að finna er „gátur um Evrópulönd “ sem hefur það að
markmiði að þjálfa nemandann í gátugerð og framsögn auk þess að festa þeim upplýsingar um
lönd Evrópu í minni (Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir og Auður Stefánsdóttir. 1994.a). Ég tel að í
þessari mynd geti þessi leikur einmitt vel þjónað þessum markmiðum, auk þess að virka sem
8
![Page 10: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/10.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
skemmtun. Þessi leikur getur einnig nýst í öðrum námsgreinum, líkt og t.d. íslensku,
stærðfræði eða náttúrufræði. Þá gætu gáturnar verið um t.d. orðflokka, líffæri, dýr eða jafnvel
stærðfræðiþrautir. Aðrir skemmtilegir leikir í þessum flokki sem mig langar að nefna eru t.d.
fréttaboðhlaup og miðaleikur.
Á forsíðu Leikjavefsins – Leikjabankans eru einnig tenglar í aðra áhugaverða
leikjavefi og með því að smella á fleiri áhugaverðir vefir opnast síða með tenglum inn á
fjölmargar áhugaverðar leikjasíður. Þær síður sem ég valdi mér til að skoða sérstaklega að
þessu sinni eru: Leikir í Vefbanka Valla, Þjóðleikhúsið: Leiklist í skólum og Leikjavefur
Bókasafns Garðabæjar og ætla ég að fjalla hér aðeins um þær.
Á leikjasíðu Vefbanka Valla er að finna tengla í margskonar leiki, bæði tölvuleiki og
útlistun á hefðbundnum leikjum. Sem dæmi um það er tengill yfir á Skátavefinn en þar er m.a.
að finna leiki vikunnar og er það útlistun og útskýringar á hefðbundnum leikjum eins og
reipitog, hanaslagur eða hljómsveitarstjórinn sem allt eru skemmtilegir leikir sem ég kannast
sjálf við frá minni æsku. Aðrir tenglar sem finna má í Vefbanka Valla og tengja yfir í
skemmtilegar síður eru t.d. Orðakistur Krillu, Leikjanet.is og að sjálfsögðu okkar fíni, flotti
Leikjabankinn - Leikjavefurinn.
Á síðunni Þjóðleikhúsið: Leiklist í skólum má finna margt um leiklist í skólum og
leikræna tjáningu. Þar eru ráð fyrir kennara, æfingar og kennsluefni eða í raun það sem
kennara vantar til forkönnunar, upplýsinga- og efnisöflunar áður en hann fer af stað með
leiklist í skólastofunni. Ég held að þetta sé mjög góður vefur.
Þriðji og síðasti vefurinn sem ég ætla að fjalla um að þessu sinni er Leikjavefur
Bókasafns Garðabæjar. Það er einnig í grunnin tenglasafn þar sem m.a. er að finna tengil á
vefinn Sagnaarfur Evrópu, en þann vef hef ég einmitt sjálf notað í kennslu og þykir mér hann
afar skemmtilegur, sérstaklega vegna þess að hér eru þjóðsögur og sagnir umræddra landa
komnar í nýjan búning sem höfða betur til krakkanna. Á þessari síðu eru einnig tenglar í
gátur, þrautir og myndir til að prennta út og í margar aðrar gagnlegar eða skemmtilegar síður
eins og t.d. Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, vefur um víkinga og Nasa Kid´s Club.
Allir vefirnir sem ég valdi eru á íslensku þó að tveir þeirra innihaldi einnig tengla inn á
erlendar síður. Mér persónulega þykir þægilegra að hafa síður á íslensku, þó erlendir vefir
gagnist mér að jafnaði ágætlega, en það kemur m.a. til af því að efnið ætlar maður til notkunar
fyrir börn og því einfaldara að efnið sé strax í upphafi á rétta tungumálinu. Erlendir leikir geta
síðan gagnast ágætlega í tungumálakennslu.
9
![Page 11: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/11.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
4. þáttur: Nafna- og kynningarleikir - hópstyrkingarleikir / hópeflileikir
Þegar ég byrjaði í þessu námi, var fyrsta daginn sérstakt prógramm fyrir okkur nýnemana sem
miðaði að því að gera okkur kunnug í skólanum og kynnast hvort öðru. Þetta var mestmegnis
gert í gegnum leiki. Þetta var ekki aðeins gaman, heldur kynntist maður bekkjarfélögunum
mun fyrr en annars hefði orðið og enn í dag, eru þau sem maður kynntist þessa fyrstu daga,
þau sem maður sest hjá í matsalnum í staðlotum, fólkið sem maður spjallar við í frímínútum
og þau sem maður sendir einstaka línu til í löngum einmannalegum námslotum.
Nafna- og kynningarleikir hafa mikla þýðingu bæði fyrir börn og fullorðna. Leikir af
þessu tagi efla og bæta samskipti (Ingvar Sigurgeirsson. 01.01.2009.b) og hjálpa fólki að læra
nöfn samnemenda (samstarfsfólks) á skemmri tíma en annars yrði. Þó að því ógleymdu að
gamli góði kladdinn hefur einnig mikilvæga þýðingu í þessu samhengi. Það er einnig
kennaranum mikilvægt að læra fljótt nöfn nemenda sinna og leikirnir geta líka hjálpað honum,
en ekki bara nemendunum. En það er ekki aðeins það að læra nöfn hinna sem skiptir máli.
Leikir af þessu tagi, hjálpar nemandanum að vera sáttur við sjálfann sig í hópnum, eykur
sjálfstraust, eflir samkend og virðingu þeirra fyrir bæði sjálfum sér og öðrum, hristir hópinn
betur saman og losar um spennu.
Á Leikjavefnum eru margir góðir leikir af þessum toga og skoðaði ég tvo þeirra
sérstaklega. Fyrri leikurinn sem ég ætla að segja hér frá er leikurinn „Ég er frábær eins og ég
er“. Mér leist vel á þennan leik af því að mér fanst hann líta út fyrir að vera skemmtilegur og
auk þess segir hann meira um viðkomandi en aðeins nafnið á honum. Í honum sitja
þátttakendur í hring og segja frá einu sérstöku atriði við sjálfan sig (Helgi Grímsson. 2007). Ef
atriði sem einhver nefnir á við einhvern annan líka á sá aðili að standa upp og setjast ofan á
hann. Viðkomandi þarf síðan að upphugsa annað atriði sem er sérstakt við hann og reyna
þannig að losna við byrðina. Þessi leikur er frábær til að efla sjálfstraust nemenda og virðingu
þeirra fyrir sjálfum sér og samnemendum. Þeir kynnast óvæntum hliðum hinna og getur
valdið mikilli kátínu. Ég hafði ekki aðstæður til að prófa þennan leik í hópi ókunnugra
einstaklinga en bauð nokkrum vinum og ættingjum í hann einn sunnudagseftirmiðdag.
Leikurinn reyndist mjög skemmtilegur og brúaði vel kynslóðabilið, eina vandamálið var
fólgið í mismikilli þyngd þátttakenda, en við útfærðum það á þann hátt að fullorðnir settust
10
![Page 12: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/12.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
ekki ofaná börnin heldur við hlið þeirra og lagði fæturnar yfir það. Alveg frábærlega
skemmtilegt.
Hinn leikurinn sem ég ætla að segja frá er „Spottakynning“. Þennan leik valdi ég líka
vegna þess að með því að lesa lýsinguna fannst mér hann hljóma skemmtilega. Leikurinn
snýst um það að þátttakendur lýsa sjálfum sér meðan þeir snúa spotta utanum fingur sér
(Margrét Erla Guðmundsdóttir. 2006). Spottarnir eru mislangir og því verða þátttakendurnir
mislegni að kynna sig. Ég tel þó að mér finnist þessi leikur sniðugur eigi hann e.t.v. ekki við í
hvaða tilviki sem er. Til dæmis held ég að hann hennti ekki mjög ungum krökkum, heldur eigi
betur við fyrir unglinga og fullorðið fólk.
Í hefti Helga Grímssonar „Hópeflileikir“ er líka mikið af skemmtilegum nafna- og
kynningarleikjum. Ég tók líka tvo leiki til sérstakrar skoðunar úr hefinu og ætla hér að fjalla
lítillega um þá. Fyrri leikurinn er „Ef hann væri blóm“ en í þeim leik lýsa þátttakendurnir
einum af þeim sem blómi fyrir öðrum sem á að giska hverjum verið er að lýsa (Helgi
Grímsson. (án árs): 4). Sá sem giskar safnar vísbendingum frá hinum þangað til hann er búin
að finna út um hvern er verið að ræða.
Seinni leikurinn úr hefti Helga Grímssonar sem ég ætla að fjalla um heitir „Mér þykir
gott“. Í þessum leik standa þátttakendur í hring og segja nafnið sitt og það sem honum þykir
gott (Helgi Grímsson. (án árs): 5). Þeir kynna einnig þá sem voru undan í röðinni og hvað
þeim þykir gott. Þessi leikur þykir mér afar skemmtilegur, hann reynir á minni þátttakenda og
þeir læra bæði nöfn samherjanna og eitthvað persónulegt um hina, þ.e. hvað þeim þykir gott.
Þá skoðaði ég einnig á netinu ísbrjóta, þ.e. leikir sem nefndir eru á ensku icebreakers,
warmups, energizers og deinhibizers. Það eru leikir sem eiga að auðvelda fólki að hittast og
kynnast (Ingvar Sigurgeirsson. 01.01.2009.b). Það var heill hellingur af efni sem byrtist mér á
skjánum þegar ég setti þessi orð inn í Google, t.d. síðurnar Icebreaker Games, Icebreaker
Collection og Icebreakers.ws. Sú síðast nefnda þótti mér einna þægilegust í notkun en þar eru
leikirnir flokkaðir t.d. eftir því hversu margir þátttakendurnir eru. Einn þessara leikja er „Lost
on a Deserted Island“. Þessi leikur er ætlaður til að hjálpa fólki til að deila með öðrum
örlitlum upplýsingum um sjálfan sig (Lost on a Deserted Island. 2008). Í upphafi eru
þátttakendur látnir ímynda sér að þeir séu strandaðir á eyðieyju og hver og einn má hafa einn
hlut með sér og eru þeir beðnir um að lýsa honum. Þá er hópnum skipt upp í smærri hópa og á
hver hópur að vinna saman til að auka lífslíkur sínar á eyðieyjunni með því að nota alla
hlutina sem meðlimir hópsins höfðu með sér.
11
![Page 13: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/13.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Annar leikur á sömu síðu sem mér fannst einnig vera mjög spennandi var leikurinn
„Sardines“. Þessi leikur held ég að sé mjög skemmtilegur en hann er einskonar feluleikur
nema í stað þess að einn telji og restin feli sig, felur einn sig meðan hinir telja (Sardines.
2008). Hópurinn fer síðan að leita og þegar einhver finnur þann sem faldi sig, felur hann sig
hjá honum, og þannig hrúgast e.t.v. stór hópur saman á lítið svæði. Sá tapar sem er síðastur til
að finna hina.
Á Leikjavefnum eru einnig fjölmargir leikir sem fella mætti undir ísbrjóta (Ingvar
Sigurgeirsson. 01.01.2009.b) m.a. þeir leikir sem feldir eru undir heitið „ýmsir hópleikir“.
Einn þessara leikja er leikurinn „Drekinn og drekaveiðimaðurinn“ sem er afar skemmtilegur
leikur sem miðar að hópstyrkingu og skemmtun (Andri Ómarsson. 2004). Leikurinn er þannig
byggður upp að hópurinn raðar sér í röð. Sá fremsti í röðinni er drekaveiðimaðurinn en hinir
eru drekinn og halda þeir utanum þann sem er fyrir framan í röðinni. Á þann aftasta er festur
hali og á drekaveiðimaðurinn að reyna að ná halanum. Nái hann halanum eða drekinn slitnar
er drekinn dauður og veiðimaðurinn sigrar. Ég prófaði þennan leik í litlum hópi fólks af öllum
aldri um daginn og var mikið fjör. Leikurinn er sagður vera frá átta ára aldri og hefði tekist
betur til ef þátttakendurnir hefðu verið af líkari stærðum vegna þess að minni hendurnar áttu
erfitt með að halda fast utan um stærri mitti. Því tel ég það rétt eins og stendur á Leikjavefnum
að hann passi frá átta ára aldri, en enga að síður var mjög gaman og allir skemmtu sér vel.
Annar leikur sem mér dettur í hug að nefna að þessu sinni og gæti fallið í þennan flokk
er leikurinn „Það voru að koma skilaboð“. Hann byggist á því að einn þátttakandi er
verksmiðjustjóri en hinir eru verkamenn (Ingimar Ingimarsson. 1992). Verksmiðjustjórinn
segir: „Það eru að koma skilaboð“ og verkamennirnir spyrja: „Hvaða skilaboð?“ Boðin eru að
setja áhveðin tæki í gang. Umrædd tæki eru tveir litlir hamrar, en þegar þeir fara í gang slá
verkamennirnir með lófa sér á lær; tveir stórir hamrar, en þá stappa verkamennirnir; og stærsti
hamarinn, en þá standa verkamennirnir upp og setjast til skiptis. Þegar öll verkfærin eru
komin í gang koma skilaboð um að hætta þessari vitleysu. Þennan leik lékum við oft sem
krakkar og höfðum við ævinlega gaman af.
12
![Page 14: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/14.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
5. þáttur: Gamlir og góðir íslenskir leikir
Einu sinni vorum við öll börn, þar með talin ég – ótrúlegt! Í þá daga lékum við okkur í
mörgum og margvíslegum leikjum sem við nú köllum stundum í huga okkar „Gömlu góðu
leikina“. Suma þessara leikja leika börnin okkar í dag en aðrir virðast falla í gleymsku. Suma
þessara leikja léku einnig foreldrar okkar sem börn og e.t.v. afi og amma á undan þeim. Þessir
leikir eru hluti af menningu okkar og arfleið, en munu þeir lifa áfram?
Eitt af hlutverkum skólastarfs er að varðveita það sem er gamalt og gott (Ingvar
Sigurgeirsson. 02.01.2009). Hluti af því er því væntanlega að varðveita gamla og góða leiki
með því að bera þá áfram til næstu kynslóðar. Því miður er því oft þannig farið að við gefum
okkur ekki tíma til að rifja upp gömlu góðu leikina sem við sjálf lékum okkur í sem börn og
leika þá við börnin okkar (nemendur okkar). Þegar ég fór að velta fyrir mér þeim leikjum sem
ég lék mér í sem barn og reyna að rifja þá upp, varð úr því ótrúlega langur listi og satt best að
segja verð ég að viðurkenn að fæsta þeirra hef ég leikið við börnin mín þó auðvitað séu þar
undantekningar á. Marga þessara leikja lærðum ég og systkini mín af foreldrum okkar, leiki
eins og t.d. hlaupa í skarðið, yfir, ein ég sit og sauma, fram fram fylking, dimmalimm, köttur
og mús og inn og út um gluggan. Reyndar vill svo til að þetta eru þeir leikir sem maður hefur
helst reynt að bera áfram en síður aðrir leikir eins og þeir sem maður lærði af leikfélögunum.
Þá er ég að tala um leiki eins og t.d. fallin spýta, teyjutvist, tröllapottur, tröllaparís,
fílaleiðangur og bimbam bimbam (þessi flokkun er kanski ekki mjög nákvæm, en
nokkurnvegin eins og ég held hana vera). Ég tel að það sé mjög mikilvægt að kenna börnum
gamla og góða leiki. Öll höfðum við gaman af því að vita hvernig afi og amma eða pabbi og
mamma léku sér, og því skyldi það vera eitthvað öðru vísi í dag? Flestir þessara leikja eiga
styrka stoð í menningarheimi þess tíma sem þeir eru upprunnir í og því mikilvægur hluti af
menningu okkar. Auk þess sem þeir almennt eru til þess fallnir að þjálfa minni og rökhugsun,
veita spennu útrás, sjá viðkomandi fyrir hreyfingu, auka sjálfsaga og færni í að fara eftir
reglum.
Einn af gömlu góðu leikjunum sem við kynntum okkur í þessum námsþætti er fuglafit.
Leikurinn er að líkindum ævagamall og snýst um það að maður býr til myndir og mynstur
með bandspotta sem brugðið er um fingurna (Ingvar Sigurgeirsson. 02.01.2009). Leikurinn er
milli tveggja einstaklinga (Cat's cradle. 21. Mars 2009) sem skiptast á að taka við spottanum
hvor frá öðrum og mynda við það nýtt mynstur (Gyða Gunnarsdóttir. 2004). Þessi leikur fyrir
13
![Page 15: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/15.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
finnst í mörgum myndum um allann heim og einnig eru til heimsamtök áhugafólks um
fuglafit. Sjálf hef ég aldrei verið sleip í fuglafiti, enda varla hægt að segja að ég hafi leikið
mér með það sem barn, en úr því að það á svo stóran hlut í lesefni þessa námsþáttar verð ég að
nefna það að í vettvangsnáminu fyrir áramót, var ég með bekk þar sem algert fuglafitsæði var
í gangi. Flestir í bekknum áttu sér spotta til þess að fara í fuglafit og þau nýttu allar lausar
stundir til að leika þennan leik. Á netinu má finna margar síður um fuglafit þar sem finna má
allskonar upplýsingar um leikinn. Hvernit mæla skal lengd bandsins, binda það saman, byrja
leikinn, gera margskonar mynstur, sögu hans og margt margt fleira. Til að leita á netinu að
upplýsingum um leikinn er gott að nota ensku heitin cat's cradle eða string figures.
Annar gamall og góður leikur sem við skoðuðum sérstaklega í þessum námsþætti var
parís. París er hoppleikur þar sem ákveðin braut er teiknuð á jörðina og þátttakendur hoppa í
gegnum hana eftir ákveðnum reglum (Ingvar Sigurgeirsson. 02.01.2009). Þennan leik kannast
ég hins vegar vel við frá gamalli tíð. Það voru aðallega tvær útgáfur af parís sem ég lék mér í,
einfaldur parís og landaparís. Lýsing Guðrúnar Kvaran á parís er nokkuð lík þeim parís sem
ég kannast við. Þrír reitir hver ofan á öðrum táknuðu fætur og búk, tveir reitir hlið við hlið
táknuðu hendur, einn reitur þar ofaná táknaði háls og hringur ofan á öllu saman táknaði höfuð
(Guðrún Kvaran. (án árs)). Steini var kastað í ákveðna reiti og síðan hoppað á öðrum fæti í
reitina. Sá sem fyrstur kláraði villulaust vann. Í landaparís var teiknaður stór hringur á jörðina,
oftast í malarplan, og lítill hringur í miðjann stóra hringinn. Stóra hringnum er skipt í jafn
marga hluta og fjöldi þátttakenda er og táknar hver hluti land viðkomandi sem hann gefur
nafn. Þá kastaði einhver spýtu í litla hringinn og sagðist ráðast á ákveðið land um leið hlupu
allir af stað nema sá sem átti landið sem ráðist var á hann varð að ná spýtunni og segja
„stopp“. Sá sem ráðist var á tekur þrjú skref í átt til árásarmannsins og reynir að hitta spýtunni
í gegnum hring sem hann myndar með höndunum. Hitti hann hefur hann hrundið árásinni og
fær að stela sneið af landi árásarmannsins, en ef ekki fær árásarmaðurinn að ræna af landi
hins. Landsvæðið sem fæst er fengið með því að sá sem fær að ræna af hinum stígur með
öðrum fæti á sitt land en hinum í miðju hringinn og notar síðan spýtuna til að strika það svæði
sem hann rænir. Meðan ný landamæri eru strikuð má ekki lyfta spýtunni frá jörðu því þá
verðu landtakan ógild. Síðan má sá sem ráðist var á gera. Sá vinnur sem nær að yfirtaka lönd
allra hinna. Parísa er vandalaust að útfæra á þann hátt að þeir nýtist við kennslu. Auðveldast
er að nota parís í stærðfræði kennslu. Með því að setja númer í reitina og láta þau reikna jafnt
og þau hoppa, eða hoppa á svar við ákveðnu dæmi. Landaparísinn má einnig nota í tengslum
við landafræði, t.d. til að festa nöfn og staði betur í minni.
14
![Page 16: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/16.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
En úr því að maður er farinn að hugsa til baka, til leikja barnæskunnar, fannst mér ekki
út vegi að skrifa hjá mér alla þá gömlu góðu leikji sem ég mundi eftir að hafa leikið mér í sem
barn. Einnig prófaði ég að slá nöfn þeirra inn í Google og sjá hvort finndist einhverjar lýsingar
á leikjunum. Misjafnt var hversu auðvelt var að finna lýsingu á leikjunum eða hvort ég fann
einhverjar lýsingar á annað borð, en það vakti athygli mína að fáir leikjanna voru á
leikjavefnum, vonandi að það breytist í framtíðinni. En hér er listinn með leikjunum sem ég
mundi eftir: 10-20-30, Að senda skeyti, Bimbam bimbam, Dimmalimm, Ein ég sit og sauma,
Eitur í flösku, Faðir Abraham, Fagur fagur fiskur í sjó, Fallin spýta, Fela hlut, Fílaleiðangur,
Flöskustútur, Fótbolti, Fram fram fylking, Frúin í Hamborg, Fuglafit, Fæddur – skírður,
Hanaslagur, Hjólbörukapphlaup, Hlaupa í skarðið, Hljómsveitarstjórinn, Hollí hú, Horfast í
augu, Húllahopp, Hvíslleikur, Höfrungahlaup, Inn og út um gluggan, Í grænni lautu, Jósef
segir, Klappleikir, Krí-krí hver á hreiður, Könguló-könguló, Köttur og mús, Landaparís,
Limbó, Löggu og bófaleikur, Morðingi, Mylla, Myndastyttuleikur, París, Pokahlaup,
Reipitog, Sipp, Símskeytið, Sjómaður, Skollaleikur, Skotbolti, Snjókast, Snúsnú,
Stórfiskaleikur, Teyjutvist, Tröllaparís, Tröllapottur, Upp fyrir, Útilegumannaleikur, Yfir,
Þrautakóngur og Þrífótahlaup.
15
![Page 17: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/17.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
6. þáttur: Leikir sem kveikjur
Kveikjur í kennslu eru leið til þess að vekja athygli nemenda á efninu sem á að fara að taka
fyrir og gera þá jákvæðari gagnvart því. Það er margt sem kemur til greina sem kveikjur, t.d.
hlutir eða myndir, gátur eða jafnvel leikir af ýmsu tagi. Námið gengur oftast betur þegar það
er skemmtilegt. Nemendurnir hafa gaman af leikjum og vegna þess að leikir hafa oft táknræna
merkingu er auðvelt að tengja leikina námsefninu (Ingvar Sigurgeirsson. 10.01.2009) en
tengingin þarf að liggja ljós fyrir svo og markmið (Ingvar Sigurgeirsson 1999:18 – 19). Ég
valdi mér þrjá leiki til að útfæra sem kveikjur og hér koma þeir:
Fela hlut
Markmið:
Að kenna nemendum heiti spendýra og um þau, skerpa eftirtekt, athygli, auka
orðaforða skemmta sér.
Gögn:
Nokkur sett af myndum af spendýrum, heimkynnum þeirra og fæðu.
Leiklýsing:
Í upphafi útbýr kennari myndir af nokkrum tegundum dýra. Myndirnar verða af báðum
kynjum og afkvæmi af báðum kynjum og á myndina ritar tegundarheiti og heiti kyns
(þ.e. 4 myndir af hverri tegund (t.d. hrútur, ær, hrútlamb og gimbur)). Einnig eru
útbúnar 4. myndir af fæðu dýrategundarinnar og mynd af heimkynnum þeirra. Þessar
myndir felur kennarinn síðan út um alla stofu. Nemendunum er skipt í jafnmarga hópa
og dýrategundirnar eru margar og fær hver hópur nafn einnar tegundar. Hóparnir
keppa síðan sín á milli um það hver er fljótastur að finna alla einstaklinga sinnar
tegundar, fæðu fyrir þau öll og heimkynni fyrir þau að búa í. Sá hópur vinnur sem
fyrstur finnur allar réttu myndirnar.
Útfærsla:
Þessi útfærsla miðar við náttúrufræði en einfalt er að breyta leiknum svo að hann
hennti í einhverri annari námsgrein. Ef við værum t.d. að fara að kenna um Evrópu í
landafræði, gætu myndirnar verið af t.d. landinu sjálfu, þjóðfánanum, þjóðareinkenni
og höfuðborginni en þá kepptust nemendurnir við að gera ríki sitt t.d. fullvalda.
16
![Page 18: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/18.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Frásögn
Markmið:
Vekja skilning og samkend með öðrum.
Gögn:
Myndir úr dagblaði eða af netinu.
Leiklýsing:
Nemendur fá hver sína myndina sem kennari hefur klippt út úr dagblaði eða prentað út
af netinu. Myndefnið fer eftir því hvaða efni verið er að vinna með. Sé verið að vinna
með tilfinningar í lífsleikni eru myndirnar af fólki við misjafna iðju en einnig hentar að
hafa myndirnar allar af fólki í ákveðnu landi eða heimshluta ef verið er að kenna
landafræði. Nemendurnir koma síðan upp og kynna persónuna sem er á myndinni
þeirra (eftir þeirra hugarflugi), segja hvað hún er að gera, hvað hún heitir, hvernig
henni líður og svo frv. Síðan er oppnað á umræður um aðstæður þeirra og fl.
Myndasaga
Markmið:
Örfa ímyndunarafl nemenda, vekja áhuga þeirra á efninu, þjálfun í sögu- og textagerð.
Gögn:
Stakar myndir úr teiknimyndasögu um efnið, sem þeir hafa ekki séð áður
Leiklýsing:
Nemendur fá afhenntar myndirnar og eiga að raða þeim saman aftur. Sögurnar geta
verið hvort heldur sem er með eða án texta, en séu þær án texta en skemmtilegt að láta
nemendurna útbúa texta við söguna þegar henni hefur verið raðað saman.
Útfærsla:
Hentar til að kenna t.d. um landnámið, Gísla Súrsson eða í raun hvað sem er ef kennari
á létt með að teikna myndasögur.
Leikinn frásögn, hér að ofan, hef ég sjálf notað sem kveikju í kennslu og tókst það mjög vel
að mínu mati, en hina leikina tvo hef ég ekki prófað í kennslu. Það eru fjölmargir leikir sem til
greina koma til þessa hlutar og byggist það í raun að mestu á hugarflugi kennarans hverjir
möguleikarnir eru.
17
![Page 19: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/19.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
7. þáttur: Hugþroskaleikir
Leikjakerfið sem nefnist hugþroskaleikir á rætur sínar að rekja til hugmynda sálfræðingsins
Hans Furths og hefur hann lýst þessum hugmyndum sínum í tveimur bókum „Piaget for
Teachers“ og „Thinking goes to School“, en þá seinni skrifaði í félagi við sjónfræðinginn
Harry Wachs (Ingvar Sigurgeirsson. 2005: 3).
Viðfangsefnin í hugþroskaleiknum eiga að stuðla að þroska nemenda og undirbúa þá
fyrir hefðbundin viðfangsefni. Þegar litið er til markmiða hugþroskaleikja má sjá að þau eru
m.a. að stuðla að samhæfingu hreyfingar og skynjunar; auka næmni nemenda með því að
þjálfa þá til að synja umhverfi sitt með snertingu, hlustun og að skoða; þjálfa samvinnu; örva
hugmyndaflug og stuðla að sveigjanleika í hugsun; þjálfa þá í að glíma við rökleg
viðfangsefni t.d. með því að flokka og raða og sjá misjöfn sjónarhorn. Þessir leikir eru
aðallega ætlaðir ungum nemendum á leikskólaaldri og fyrstu bekkjum grunnskólans. Á þessu
öllu má sjá að margt er skylt með hugþroskaleikjum og foræfingum enda byggja
hugþroskaleikir á kenningum Jean Piaget um þróun hugsunar. Megin munurinn á þessu er
e.t.v. að hugþroskaleikir eiga einkum að þjálfa hugsun en foræfingar skynjun. Furth bendir þó
á að hugsun og skynjun séu samofnir þættir sem ekki verða aðgreindir (Ingvar Sigurgeirsson.
2005: 6).
Nokkur atriði telja Furth og Wachs vert að hafa í huga með hliðsjón af kenningum
Piagets. Þessi atriði eru (Ingvar Sigurgeirsson. 2005: 3-5):
1. Það verður að gera greinarmun á námi og þroska vegna þess að í námi tileinkar
nemandinn sér ákveðnar staðreyndir eða leikni en í þroska er það hin almenna hæfni
hans til athafna og hugsunar sem breytist. Þetta tvennt fer þó jafnan saman í
skólastarfi.
2. Hugsun barna er virk og því er mikilvægt að nemendur fái örvun til skapandi hugsunar
svo að hver og einn fái notið sín.
3. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir hvaða skilyrði það eru sem leiða til þess að virk
athöfn veriði að uppsprettu hugarþroska. Verkefnin verða að vera hæfilega ögrandi
fyrir huga barnsins, þ.e. hvorki of létt né of þung.
4. Barnið skilur meira en það fær orðað. Piaget taldi hugsunina þróast á undan tali og
Furth gengur meira að segja svo langt að segja að málið geti verið hugsun barnsins til
18
![Page 20: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/20.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
trafala enda eru hugþroskaleikir jafnan þannig uppbyggðir að þeir reina á hugsun
barnsins en sjaldan á málnotkun og málþekkingu.
5. Leggja ber áherslu á innri hvatningu. Börn eru í eðli sínu forvitin og eiga að fá að
njóta þess að leysa þrautir sjálfra sín vegna en ekki aðeins fyrir kennarann.
6. Greind og hugsun eru samofnir þættir, enda notar manneskjan greind sína þegar hún
hugsar.
7. Þó þróunhugsunar meigi greina í ákveðin þroskaskeið ættu kennarar að varast það að
flokka nemendur eftir þroskaskeiðum þar sem misjafnt getur verið eftir tímum og
viðfangsefnum hvernig hugsun þeirra er.
Hugþroskaleikir byggja oftari á áþreifanlegum viðfangsefnum án samkeppni, nema e.t.v. við
sjálfan sig. Furht skiptir hugþroskaleikjum í átta flokka. Þá það einnig mikilvægt að leikurinn
sé aðlagaður áhuga, getu og þroska nemenda hverju sinni. Furht skiptir hugþroskaleikjum í
átta flokka og nefnir dæmi þeirra. Í hefti Ingvars Sigurgeirssonar ”Hugþroskaleikir” nefnir
hann dæmi um fimm þessara flokka úr bók Furht (Ingvar Sigurgeirsson. 2005: 6) og vil ég hér
nefna nokkur dæmi um leiki sem ég hef annaðhvort prófað sjálf eða hef hug á að prófa í
náinni framtíð. Þegar ég fór að skoða leikina í heftinu sá ég að margir þeirra voru
kunnuglegir, leikir sem ég lék sjálf sem barn og leikir sem ég hef leikið við mín eigin börn.
Upp til hópa eru leikirnir skemmtilegir, en hér koma leikirnir sem ég valdi mér:
Í flokknum „Hreyfileikir“ líst mér best á leikinn „Með ... á bakinu“ en hann snýst um
það að nemendur skríða undir stóla, borð eða aðrar hindranir með einhvern ákveðinn hlut á
bakinu (t.d. eldspýtustokk, bók eða pennaveski) og þarf að komast ákveðna leið án þess að
missa hlutinn (Ingvar Sigurgeirsson. 2005: 7). Þennan leik kannast ég ekki við frá fornu fari
en prófaði hann með börnunum mínum og höfðum við öll mjög gaman af. Vart er þörf á að
taka fram að þau voru mér langtum fljótari að tileinka sér tæknina við að komast áfram án
þess að missa hlutinn.
Í flokknum „Skoðunarleikir“ eru sennilega flestir leikir sem ég hef prófað eða hef
áhuga fyrir að prófa, enda einna mest spennandi flokkurinn fyrir mig a.m.k. Einn leikjanna í
þessum flokki er leikurinn „Hverju hefur verið breytt?“ sem ég man eftir að hafa leikið sem
barn. Mér fannst hann hins vegar aldrei sérstaklega skemmtilegur, e.t.v. vegna þess að ég var
aldrei neitt sérstaklega góð í honum. Hins vegar fanst mér alltaf gaman af „Felumyndum“ og
„Skynvillumyndum“ og held ég að þessir leikir séu mjög góðir til að þjálfa athygli og skynjun
nemenda (þess vegna setti ég hér í restina nokkra tengla inn á svoleiðis myndir). Síðan er líka
leikur sem ég leik oft við börnin mín og minnir að mörgu leyti á „Skuggamyndir“ og „Að
19
![Page 21: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/21.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
skoða óskýrar myndir“ en þá nota ég tölvutæknina og við skoðum saman myndir í tölvunni.
Stundum hef ég breytt myndinni í svart-hvíta negatívu og þau giska hvað eða hver er á
myndinni. Stundum hef ég súmmað mjög mikið inn – t.d. þannig að aðeins sést auga eða nef
og þau giska hver á augað eða nefið. Það sama er einnig hægt að gera ef myndirnar er gerðar
óskýrar. Þetta hafa þau mjög gaman af.
Sá leikur sem mér finnst hvað mest spennandi í flokknum „Snertileikir“ er leikurinn
„Blindu mennirnir og fíllinn“ sem mér fynnst alveg frábær en hann snýst í raun um það að
sýna nemendunum fram á það að fólk getur haft misjafna sýn á sama fyrirbærið og það sé
ekkert við það að athuga (Ingvar Sigurgeirsson. 2005: 16). Leikurinn er einhvernveginn
svona: Kennarinn segir nemendunum eftirfarandi sögu sem er af indverskum uppruna og til í
nokkrum útfærslum: Einu sinni gengu þrír blindir menn fram á fíl. Þeir höfðu aldrei áður komist í tæri við þá
skepnu og voru því afar forvitnir. Þeir þreifuðu einn í einu á fílnum til að komast að raun um
hvernig hann liti út.
Sá fyrsti sagði: „Fíllinn er langur og mjór eins og reipi“. „Nei“, sagði annar, „Hann er hár,
hrjúfur og breiður eins og veggur“. „Ykkur skjátlast báðum hrapallega“, sagði sá þriðji,
„Fíllinn líkist mest feitri slöngu“. (Ingvar Sigurgeirsson. 2005: 16)
Umræðurnar geta síðan snúist um hvaða hluta fílsins hver hinna blindu manna snertu og hvað
hefðu þeir sagt ef þeir hefðu snert t.d. skögultennurnar eða eyrun. Einnig hvað hægt er að læra
af sögunni. Í framhaldi af umræðunum má velja nokkra nemendur í hlutverk blindu mannana
og bundið er fyrir augu þeirra. Þeir eru síðan látnir þreifa á hlut sem komið er með inn í
stofuna. Æskilegt er að viðkomandi hlutur sé samansettur úr nokkrum mismunandi einingum
eins og t.d. myndvarpi, ryksuga eða reiðhjól og fær hver og einn aðeins að skoða ákveðinn
hluta hlutarins. Blindingarnir lýsa upphátt því sem þeir skoða og bera saman bækur sínar til að
komast að því hver hluturinn er. Ég hef ekki prófað þennan leik í þessari mynd, en hef þó
fullan hug á að prófa hann og vonandi sem allra fyrst. Ég hef þó prófað mjög líkan leik sem
var þannig að hópnum var skipt í tvennt og annar hópurinn fór út úr stofunni. Hópurinn sem
varð eftir valdi hlut í stofunni og setti á borð. Síðan komu einn og einn, af hópnum sem fór
fram, inn í einu með bundið fyrir augun og fékk að þreyfa á hlutnum og lýsti honum. Hinn
hópurinn skrifaði á töfluna aðalatriði lýsingar hvers og eins. Þegar allir voru búnir að koma
inn fengu þeir að sjá á töflunni lýsingar hinna og ákváðu í sameiningu hvaða hlutur þeir töldu
þetta vera. Þessi leikur var mjög skemmtilegur og mikið hlegið.
Í flokknum „Hlustunarleikir“ eru margir spenandi leikir og margir kunnuglegir. Einn
þeirra er leikurinn „Þekkirðu hljóðið?“ Í þessum leik hlusta nemendur á upptökur af hljóðum
20
![Page 22: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/22.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
t.d. rennandi vatni, hurðaskelli, pappírsskrjáf eða fótatak og reyna að greina hvaða hljóð um
era að ræða. Einnig fynnst mér leikurinn „Hvað heyrir þú?“ mjög spennandi og ég held að
hann hennti sérstaklega vel í kennslu. Í þeim leik hlusta nemendur eftir hljóðum í
kennslustofunni og skrifa niður hvað þau heyra. Báðir þessir leikir reyna á einbeitingu,
hugmyndaflug og eftirtekt.
Síðasti flokkurinn er „Rökþroskaleikir“ og sá leikur sem mér hugnast best þar er
„Raðir“. Í þeim leik eiga nemendur að finna ýmsar leiðir til að raða einhverjum hlutum eftir.
Mögulegar leiðir eru t.d stærðarröð, stafrófsröð, aldursröð og svo frv. Leikurinn reynir á
rökhugsun og alveg tilvalinn til að þjálfa hana. Ósjálfrátt erum við að raða hlutum upp eftir
ýmsum kerfum allt í kring um okkur.
Og þar höfum við það, heill hópur af spennandi leikjum. Þá eru það bara tenglarnir
sem ég talaði um:
Nokkrar skynvillu- og felumyndir:
The hidden Tiger: http://www.maniacworld.com/Hidden-Tiger-Optical-Illusion.jpg
Nokkur dýr og andlit í landslaginu:
http://www.planetperplex.com/img/hidden_animals.jpg
Old and Young:
http://www.coolopticalillusions.com/crazy/images/crazy_optical_illusions_old.jpg
Hversu margar eru pöndurnar?:
http://ursispaltenstein.ch/blog/images/uploads_img/mighty_optical_illusions.jpg
Hreyfist hún?: http://www.smart-kit.com/wp-content/uploads/2007/11/yellow-blue-dot-
illusion.jpg
Er hreyfing?: http://www.freewebs.com/pink997/Optical_illusions.jpg
Hversu mörg andlit?: http://www.illusionking.com/wp-content/uploads/2008/11/hidden-
faces-illusion.jpg
21
![Page 23: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/23.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
8. þáttur: Námspil og flókin töfl
Þegar ég var krakki og unglingur, spiluðum við mikið á kvöldin og í frímínútum í skólanum.
Mér hefur alltaf þótt sérstaklega gaman að spila, og þykir enn, eina sem breytist eru spilin sem
maður spilar. Spil eru mjög skemmtileg leið til að brjóta upp kennsluna, en í gegnum spil er
hægt að þjálfa mjög marga þætti t.d. minni, hugtakaskilning, útsjónarsemi, fínhreifingar,
stafsetningu, rökhugsun, stærðfræði, samvinnu og tillitsemi svo nokkuð sé nefnt. Spil geta
verið margvísleg og þjálfa þau mismunandi þætti. Það sem helst aðgreinir spil frá öðrum
leikjum er að spil byggjast á keppni þar sem einhver vinnur og einhver tapar. Oft er spilið
þannig byggt upp að vinna þarf saman í liðum og nýtist spilið þá vel til þess að þjálfa
samvinnu þátttakenda. Þá þarfnast spil jafnan einnig meiri hugsunar en aðrir leikir og flest spil
miða við að setið er við borð, en það er þó ekki algilt dæmi um það er spilið Twister sem
margir þekkja. Einnig fylgja jafnan ákveðin gögn spilunum sem síður á við aðra leiki. Þá er ég
að tala um gögn eins og spilaborð, teninga, spjöld, leikmenn og fl. Algengt er að flokka spil í
tvo til þrjá flokka; borðspil, handspil og önnur spil.
Menn hafa spilað spil í þúsundir ára (Ingvar Sigurgeirsson. 21.03.2009). Sum þessara
gömlu spila byggja á trúarlegum eða goðsögulegum sögum. Spilið Lúdó, sem einnig er
mörgum kunnugt, byggir á fornu indversku spili sem ber nafnið Pachisi og hið gamal kunna
snákaspil er byggt á indverskum trúartáknum. Af flestum spilum má eitthvað læra en stundum
eru spil samin með það sérstaklega í huga að hægt sé að læra eitthvað af þeim (Ingvar
Sigurgeirsson. 21.03.2009). Þannig spil eru gjarnan kölluð námspil. Þó mörg algeng spil hafi
augljóst náms- eða þroskagildi er skilgreiningin námspil oftast notuð um spil sem sérstaklega
eru gerð fyrir skólanotkun. Fyrir þennan námsþatt skoðaði ég og tók til prófunar tvö spil sem
henntað geta sem námsspil. Þetta eru þau:
Krossorðaspilið er einskonar teningaspil, en í stað hefðbundinna teninga eru
teningar sem hafa bókstafi á öllum hliðum og hver bókstafur hefur ákveðin stig.
Spilið þjálfar þátttakendur í stafsetningu, rökhugsun, eykur orðaforða, málskilning
og hugmyndaflug. Spilið byggist þannig upp að þátttakendur skiptast á að gera og
kasta öllum teningunum. Stafinan sem koma upp nota þeir til að mynda orð á einni
mínútu og reyna að nota helst alla stafina. Þegar leikmaður hefur myndað öll þau
orð sem hann getur eru stigin talin á teningunum sem hann notaði og skráð niður.
Þetta spil fékk ég lánað til að geta próað það fyrir þennan námsþátt. Ég spilaði það
22
![Page 24: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/24.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
við unglings dóttur mína og höfðum við báðar gaman af. Ég hef mjög gaman af að spila
Schrabble og virkar þetta spil afar svipað, nema hér er ekkert borð til að hefta mann. Við
tókum fyrst eitt prufuspil og síðan annað „alvöru“ spil á eftir og vorum við fljótar að ná tökum
á því. Ég sigraði reyndar bæði spilin, en ég var mjög ánægð með það hversu fljótt hún náði
tökum á hugsuninni sem þarf til að spilið gangi vel. Mikilvægt er að hafa opin huga fyrir
möguleikunum og hugmyndaflug til að mynda margvísleg orð. Síðan ræður heppnin einnig
miklu, vegna þess að aðeins tilviljunin ræður því hvaða stafir koma upp hverju sinni. Við
skemmtum okkur báðar mjög vel og held ég að alveg óhætt sé að mæla með þessu spili í
Íslensku kennslu fyrir smærri hópa.
Veiðimaður er handspil sem henntar sérstaklega vel að spila við yngri krakka. Venjulega er
það spilað á hefðbundin 52 spil, en hér ætla ég að nefna sérstök spil sem hennta jafnvel enn
betur í þetta spil. Þessi spil eru í raun hefðbundin spil í grunnin en á spilunum eru myndir af
íslenskum fisktegundum, nöfn þeirra á íslensku og
latínu og uppskrift af einhverjum rétti úr
viðkomandi fisktegund. Spilastokkurinn ber nafnið
Veiðimann, uppskriftaspilabók 2007. Þennan
spilastokk gaf ég manninum mínum fyrir nokkru síðan og spilum við oft veiðimann við
yngstu börnin okkar tvö, 5 og 7 ára. Í tilefni þessa námsþáttar var því tilvalið að taka eitt spil
enn. Veiðimaður er spilaður á þann hátt að spilunum er dreift um borðið með bakhliðina upp.
Þátttakendur draga síðan úr hrúgunni fimm spil hver. Markmiðið er að veiða sem flestar
fiskitorfur þ.e. 4 samstæð spil, t.d. fjóra þorska eða fjórar lúður. Sá sem á að gera spyr hina
hvort þeir eigi einhverja ákveðna fiskitegund, sem viðkomandi á sjálfur á hendi, og eigi
eitthver hinna spilarana þannig spil, láta hann þau af hendi til þess er spyr og fær hann að
spyrja aftur. Eigi enginn tegundina sem um er spurt þarf spyrjandinn að draga eitt spil af
borðinu. Ef hann dregur það sem hann spurði um má hann draga aftur, annars má næsti gera.
Þegar heilli fiskitorfu er náð (4 spil af sömu tegund), er hún lögð niður á borðið hjá
viðkomandi og er það einn slagur. Þegar allir fiskarnir eru búnir af borðinu og af höndum
spilaranna, er spilinu lokið og sá sem hefur flesta slagi vinnur. Þetta spil kennir ungum
börnum að geta beðið eftir að röðin komi að þeim, skilning á því að til að einhver geti unnið
þurfi einnig einhver að tapa, útsjónarsemi, þjálfar minnið og síðast en ekki síst nöfn og útlit
margra algengra fisktegunda við Íslandsstrendur. Þegar við byrjuðum að spila þetta spil við
krakkana okkar þurfti að sýna þeim myndirnar jafnt og spurt var um ákveðna tegund, en nú
23
![Page 25: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/25.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
hafa þau lært að þekkja flestar tegundirnar. Spilið sem við tókum að þessu sinni gekk að venju
vel og endaði á því að dóttirin fór sem sigur úr býtum enda var hún alveg ótrúlega heppin að
þessu sinni, að hitta oftast á að spyrja aftur um spilin sem við hin drógum. Og líkt og
venjulega skemmtu krakkarnir sér mjög vel. Ég held að þetta spil sé mjög sniðugt námsspil,
enda þykir mér mikilvægt að börn læri um náttúru landsins, þ.m.t. fiskana, og undirstöðu
atvinnugreinar þjóðarinnar. Einnig er það athugandi að nota það í tengslum við heimilisfræði,
vegna uppskriftanna sem á spilunum eru. Spilið henntar öllum aldurshópum en vegna þess að
ég er ekki viss um að eldri krakkar skemmti sér sérstaklega í því, myndi ég mæla með því
fyrir yngsta stigið og e.t.v. yngstu krakkana á miðstigi. Alveg frábært spil.
Mér fynnst mjög gaman að spila og hef, auk þeirra hér að ofan sem ég prófaði sérstaklega til
að nefna hér, prófað fjölmörg spil sem henntað gætu til að þjálfa og kenna nemendum
ýmislegt, þ.e. geti notast sem námspil. Hér langar mig að nefna nokkur þeirra, en alltof langt
mál væri að tiltaka hvert og eitt einasta. Þessi vil ég nefna:
Borðspilið Trivial Pursuit er spurningaspil sem byggist upp á því að á ákveðnum reitum fæst
stig (kaka) fyrir að svara spurningu rétt. Þegar ákveðnum fjölda stiga (kökusneiða) er náð, er
stefnt á lokareitinn til að sigra spilið. Með því að spyrja og svara spurningunum öðlast ný og
skerpist á þekkingu þátttakenda. Þetta spil er til í nokkrum útgáfum, þ.m.t. með misjafnlega
þungum spurningum. Það er frábært fyrir fjölskylduna að spila saman, sérstaklega
fjölskylduútgáfan, en henntar einnig vel í skólastofunni. Aðal gallinn er e.t.v. sá að séu
spurningarnar of þungar tekur spilið óralangan tíma og því líkur á að það hætti að vera
skemmtilegt. Því er mikilvægt að nota rétta útgáfu, svo spurningarnar séu við hæfi spilarana.
Mylla er spil sem reynir á hugsunina. Það þjálfar rökhugsunina og útsjónarsemina. Spilið er
fyrir tvo og teikna þeir hvor sitt táknið (x eða o) til skiptis, inn í níureita
spilaborð sem teiknað er á pappír með því að strika tvær samsíða línur lóðrétt
og aðrar tvær samsíða lárétt yfri hinar fyrri. Sá vinnur sem fyrr nær að setja
sitt tákn þrisvar sinnum í röð, þ.e. í heila línu. Þetta spil spila ég oft við
unglingsdóttur mína og erum við báðar orðnar svo þjálfaðar í því að oftast vitum við strax í
upphafi hvernig spilið muni fara, en oftast endar það í jafntefli.
24
![Page 26: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/26.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Sequence er spil sem sameinar borðspil og handspil. Spilið þjálfar rökhugsun, útsjónarsemi,
samvinnu og fleira. Í því vinna a.m.k. tveir og tveir saman. Hefðbundin handspil eru gefin á
þátttakendur sem síðan leggja pening á borðið í samræmi við handspilin sín með það að
markmiði að mynda röð á spilaborðið úr fimm samliggjandi peningum. Það lið vinnur sem
fyrst nær að leggja niður tvær þesskonar raðir.
Félagsvist er handspil ætlað fyrir hóp þar sem fjórir og fjórir spila saman á borði og síðan er
víxlað milli borða. Á hverju borði eru tveir saman í liði á móti hinum tveimur. Spiluð eru 24
spil til skiptis grand, nóló og tromptegundir. Í öllum spilunum nema nóló er markmiðið af fá
sem flesta slagi og fær maður jafn mörg stig og slagirnir eru. Í nóló er markmiðið að fá sem
fæsta slagi og eru stigin gefin eftir því hversu marga slagi andstæðingurinn hefur. Í Við lok
hvers spils færast sigurvegararnir á annað borð og þannig fara þátttakendur í hringi um borðin
í stofunni. Þegar öllum spilunum er lokið vinnur sá sem flest stig hefur hlotið. Í
vettvangsnáminu fyrir jól, var ég inni í bekk þar sem spiluð var félagsvist einu sinni í viku.
Það fanst mér vera alveg bráðsniðugt. Í gegnum þetta spil voru þau að þjálfa rökhugsun,
samlagningu, samvinnu og margt fleira án þess að gera sér nokkra grein fyrir því.
Schrabble er borðspil og byggist það á því að þátttakendur draga töflur með bókstöfum á og
búa til úr þeim orð sem lögð eru eftir ákveðnum reglum á
spilaborðið þannig að fyrsta orðið þarf að hafa einn staf á miðju
borðinu og öll orð eftir það verða að tengjast á einhvern hátt þeim,
einhverju af þeim orðum sem komin eru á borðið. Hver stafur gefur
ákveðin stig og ákveðnir reitir borðsins gefa aukastig. Stigin eru talin jafnóðum og orðin eru
lögð niður og skráð hjá viðkomandi leikmanni. Þegar allir stafirnir eru búnir og ekki er hægt
að mynda fleiri orð, vinnur sá sem hefur flest stigin. Þetta spil þjálfar þátttakendur í
stafsetningu, eflir málskilning og eykur orðaforða. Þetta spil finnst mér vera alveg frábært og
henntar það sérstaklega vel í kennslu.
Landnámsleikur er broðspil sem henntar afar vel til að kenna nemendum um landnámið og
auka skilning á þeim tíma sem spilið gerist á t.d. með því að setja sig í spor
landnámsmannana. Í spilinu koma líka fram margskonar upplýsingar um atburði og staði.
Þetta spil spiluðum við krakkarnir mikið í frímínútum í skólanum þegar ég var lítil. Spilið
byggir á því að þátttakendur setja sig í spor landnámsmanna og sigla frá Noregi til Íslanda.
25
![Page 27: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/27.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Áður en haldið er út á opið Atlandshafið þarf að undirbúa ferðina og ákveða hvað þarf til
hennar og til að hefja nýtt líf í nýja landinu. Skipið ber þó aðeins ákveðið magn af fólki og
farmi og miða þarf við að vistir dugi fyrir þá sem koma með og að nægilega margir séu
meðferðist til að verjast árásum. Þátttakendur geta siglt til verslunarstaða og fjárfest eða farið í
ránsferðir. Þegar allt er klárt er silgt af stað áleiðis til Færeyja og Íslands og landnám valið.
Teningur ákvarðar hversu langt er silgt í einu og öðru hvoru kemur eitthvað óvænt uppá, líkt
og árásir víkinga, silgt er fram á skipbrots menn eða með- eða mótbyr. Við lok spilsins vinnur
sá sem flest stig hefur fengið en stig fást fyrir landnámið og ákveðin atriði sem maður hefur
með sér í landnámið. Þetta spil langaði mig mikið til að prófa aftur í tengslum við þennan
námsþátt, en því miður tókst mér ekki að verða mér úti um það. Ég sé alveg í hendi mér
hversu skemmtilegt það væri að spila það við börnin mín.
Twister er spil sem nota má til að kenna litina og hægri og vinstri. Það virkar þannig að dúkur
er lagður á gólfið og er það í raun spilaborðið, en á dúknum eru stórir mislitir hringir í röðum.
Þátttakendurnir sjálfir eru spilamennirnir og hreifast þeir um borðið með aðstoð snúningshjóls
eða vísis sem bendir á hvernig hreyfast skal um borðið. Markmiðið er að komast yfir borðið
án þess að detta eða missa stöðu sína á borðinu. Detti þátttakandi er hann úr leik. Þegar hjólið
snýst sést hvort hreyfa eigi hægri eða vinstri, hönd eða fót og á hvaða lit. Í hvert skipti sem
útlimur færist til færist hann einn reit áfram og þannig færist maður yfir borðið. Að sjálfsögðu
getur staða mans á borðinu orðið afar undarleg og reynir það á vöðvastyrk og liðleika að ná að
halda stöðu sinni. Sá vinnur sem fyrst kemst yfir borðið eða einn stendur eftir. Frábært spil
sem henntar öllum aldurshópum og er tilvalið til að hrista hópinn saman.
Pictionary er skemmtilegt spil sem reynir á sköpun og ímyndurnarafl, það hentar einnig vel
til að þjálfa orðflokkana og samvinnu. Spilið er keppni milli hópa þar sem einn meðlimur
hópsins teiknar ákveðið orð en hinir reyna að giska á
hvaða orð um ræðir innan ákveðinna tímamarka.
Orðin geta verið margskonar, bæði auðveld og erfið
og alltaf hefur verið mjög gaman að spila það. Þetta
spil er einnig hægt að spila í leikútgáfu, þá eru orðin leikin í stað þess að teikna þau. Í þeirri
útgáfu, sem spiluð er á sama borð, nefnist spilið Actionary.
26
![Page 28: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/28.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Spil eru afar skemmtileg leið til að brjóta upp kennsluna, þau hennta sem aukaverkefni og
geta vel nýst sem kveikjur eða lokahnykkur námsþáttar. Mér virðist það vera afar misjafnt
hversu mikið spil eru notuð í kennslu en einna síst virðist mér þau vera notuð á unglingastigi,
e.t.v. er það skemmtanagildið sem er að þvælast fyrir fólki. Ef sú er raunin er það afar miður,
því unglingar hafa jafn mikla þörf og aðrir nemendur á því að námsefnið sé gert skemmtilegt.
Kennarar ættu að vera óhræddir að breyta gömlum spilum og útfæra á þann veg að þau hennti
námsefninu en einnig er upplagt að leyfa nemendum sjálfum að búa til spil.
27
![Page 29: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/29.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
9. þáttur: Tölvuleikir
Þegar ég var að alast upp var heimilistölvan óþekkt fyrirbæri. Á unglingsárunum kynntist ég
tölvum í skólanum en vinnslugeta og notkunarmöguleikar voru í engu samræmi við það sem
nú gerist. Í dag heyra þau heimili til undantekninga þar sem ekki er tölva.
Notkunarmöguleikarnir eru ótrúlegir og flestir krakkar hafa að einhverju marki prófað þær.
Tölvuleikir er almennt álitnir afþreyging en þá má samt einfaldlega nota til að bæta
frammistöðu nemenda. Það er gífurlegt magn til af tölvuleikjum, bæði leikir sem settir eru inn
í þá tölvu sem um ræðir eða leikir sem spilaðir eru yfir netið. Hönnun þeirra er misjöfn og
gæði, það á einnig við tilganginn og markhópinn. Nokkrir leikir hafa verið framleiddir hér á
landi til að nota í skólum (Ingvar Sigurgeirsson. 20.03.2009.a) og má finna nokkra þannig
leiki á vef Námsgagnastofnunar en þeir halda úti sérstakri síðu til að halda utanum þetta efni.
Eitt af verkefnum þessa námsþáttar var að skoða valda leiki af vef Námsgagnastofnunar og
leggja mat okkar á þá. Hér ætla ég að gera grein fyrir niðurstöðum mínum:
Orðakistur Krillu er leikur með fernskonar þrautum. Þar er hægt að raða í
stafrófsröð, finna rím, finna eins orð og finna orð í stafarugli og býður
líka upp á nokkur þyngdarstig. Leikurinn er að mínu mati ágætis þjálfunarforrit sem henntar
vel fyrir yngstu nemendurna í grunnskólunum. Leikurinn þjálfar þau í rími og örvar
málþroska en einnig held ég hann geta hjálpað til að bæta lesturinn, þá má heldur ekki gleyma
því að mikið þarf að nota músina í leiknum svo hann henntar einnig vel til að þjálfa þau í að
nota hana. Hann hefur þó þann galla að sum orðin eru óþarflega löng fyrir byrjendur og vont
er að ekki er hægt að fara til baka í leiknum svo að ef maður vill skipta um þraut, þarf að fara
út úr leiknum og byrja upp á nýtt. Ég er þó ánægð að boðið er upp á mismunandi þyngdarstig.
Í heildina hinn ágætasti leikur.
Leikurinn Minnisleikur byggir á gamla góða samstæðuspilinu. Finna
þarf tvö og tvö eins með því að fletta upp tveimur spilum í einu. Hann
kemur í tveimur þyngdarstigum og held ég að léttara stigið sé of létt fyrir krakka í grunnskóla,
en gæti henntað fyrir leikskólabörn. Þyngra stigið er betra til að nota í grunnskólunum en þá
aðeins fyrir yngri krakkana. Spilið þjálfar helst minni og einbeitingu þátttakenda, að nota
músina og vegna þess að myndirnar á spilunum eru ýmis form eins og ferhyrningur, hringur
28
![Page 30: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/30.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
og þríhyrningur, þjálfar leikurinn nemendur í að þekkja formin og tilvalið að kenna þeim nöfn
formanna jafnhliða en þá þarf kennari að sjá um það. Leikurinn væri henntugri til þessa ef tal
væri í leiknum sem segði nöfn formanna jafnt og músin smellir á það. Þá væri að sjálfsögðu
einnig gott ef þyngdarstigin væru fleiri svo leikurinn eltist betur með börnunum.
Stafaleikur Bínu er sennilega besti leikurinn af þessum leikjum sem við
skoðuðum í þessum hluta þessa námsþáttar. Hann er frábær fyrir
byrjendur í lestri og nýbúa. Leikurinn er byggður á fjórum mismunandi þrautum. Sú fyrsta er
að þekkja heiti, hljóð og stóran staf, önnur að tengja saman tvö hljóð, sú þriðja lestur tveggja
og þriggja stafa orða og sú fjórða algengar orðmyndanir (Ellen Klara Eyjólfsdóttir. (án árs)).
Forritið segir með tali frá því hvað gera skal í hverri þraut og einfalt er að fara til baka á
forsíðu og velja sér nýja þraut. Forritið leyfir þátttakandanum að heyra hvernig stafir, hljóð og
orð hljóma og er því afar gagnlegt til að hjálpa nemendum við að læra að lesa. Frábær leikur.
Leikurinn Þríhyrningar byggir á því að raða þarf tölustöfum í þríhyrning
þannig að alltaf komi ákveðin tala ef tölur hliðanna eru lagðar saman.
Þessi leikur minnir um margt á leikinn Sudoku en er einfaldari en hann. Leikurinn þjálfar
nemendur í reikningi, rökhugsun, einbeitingu og útsjónarsemi. Mér þykir þetta vera
skemmtilegur leikur sem hennti vel fyrir nemendur á miðstigi.
Ferhyrningar er annar leikur sem einnig svipar mjög til hugmynda
Sudoko. Hann er um margt líkur leiknum Þríhyrningar hér að ofan.
Hann byggir á sömu hugsun nema nú er um ferhyrning að ræða þar sem raða þarf tölunum
þannig að heildarsumma hverrar hliðar verði sú sama. Þessi leikur þjálfar líkt og hinn
nemendur í reikningi, rökhugsun, einbeitingu og útsjónarsemi. Leikurinn skilar vel þessum
markmiðum og henntar vel fyrir elsta hluta miðstigs og unglingastig.
Þrír í röð er einnig leikur sem þjálfar nemendur í stærðfræði, rökhugsun
og útsjónarsemi. Hann er byggður líkt og um spilakassa væri að ræða þar
sem keppandinn þarf að finna margfeldi talna með það að markmiði að safna þremur hlutum í
röð til að vinna leikinn. Þennan leik geta tveir spilað saman sem er ágætt til að virkja
félagstengslin og byggja þau frekar. Hægt er að velja milli þyngdarstiga. Ég tel að hér sé um
nokkuð góðan leik að ræða sem hennti ágætlega til að þjálfa nemendur í margföldun.
29
![Page 31: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/31.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Í leiknum Talnaferningurinn er kominn enn einn stærðfræðileikur sem
byggður er á leiknum Sudoko. Í leiknum þarf að fylla tölur út í töflu og
þarf summa allra lína, dálka og hornalína að vera sú sama. Leikurinn býður upp á þrjú
þyngdarstig og er mjög skemmtileg leið til að þjálfa nemendur í samlagningu, rökhugsun og
útsjónarsemi. Skemmtilegur leikur sem henntar vel á mið- og unglingastigi.
Í síðasta leiknum í þessu hluta þessa námsþáttar Lukkuhjólinu er komin
enn einn stærðfræðileikurinn. Þessi leikur er fyrir tvo keppendur sem
skiptast á að snúa hjóli sem velur tölu. Keppandinn þarf síðan að velja tölunni stað og búa
þannig til smátt og smátt þriggja, fjögurra eða fimm sæta tölu. Þegar reitirnir hafa verið fylltir
vinnur sá sem hefur hærri tölu. Leikurinn þjálfar rökhugsun nemenda og eykur skilning þeirra
á tugakerfinu og sætiskerfi hárra talna. Leikurinn hentar vel fyrir nemendur á yngsta- og
miðstigi grunnskóla.
Eftir að hafa skoðað alla leikina átta sem við áttum að skoða sérstaklega af vef
Námsgagnastofnunar er niðurstaða mín að allir viðkomandi leikir hafi eitthvað raunverulegt
námsgildi. Hver um sig þjálfar afmarkað svið og flestir þjálfa stærðfræðitengd atriði.
Uppáhaldsleikurinn minn Stafaleikur Bínu er þó ekki stærðfræðileikur heldur ætlaður til að
nota í lestrarkennslu. Hann myndi ég nota sem ítarefni og til að brjóta upp kennsluna. Þess ber
þó að geta, að ef farið er með heilan bekk í þennan leik, t.d. í tölvustofu, er mikilvægt að á
tölvunum séu heyrnartól til að talið í leiknum trufli ekki hina sem e.t.v. eru stödd á öðrum stað
í leiknum. Þennan leik myndi ég jafnframt nota sérstaklega fyrir þá nemendur sem skipulega
þurfa „hæga innlögn og mikla endurtekningu til að ná undirstöðuatriðum lesturs“ (Ellen Klara
Eyjólfsdóttir. (án árs)). Skoðun mín er þó reyndar sú að jafnvel þó hann sé skemmtilegur til að
nota til að brjóta upp kennsluna, hennti hann einna best í heimanotkun (að ógleymdri
sérkennslunni) enda er ég búin að skella honum í „favorites“ og reyni að beina yngri
börnunum mínum inn á hann þegar þau fá að fara í tölvuna.
Næsta mál á dagskrá var að skoða forritið Álf með það í huga að leggja
mat á það hvort það er leikur eða ekki. Í fyrstu var ég mjög í vafa um
hvort svo væri eða ekki. Vefurinn er ætlaður til lífsleiknikennslu í grunnskóla og hefur það að
markmiði að efla samskiptafærni og tilfinningaþroska nemenda í 1. og 2. bekk (Kristín
30
![Page 32: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/32.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Gísladóttir. 2005). Í honum er gerð tilraun til að tengja þessa þætti saman við íslenskukennslu,
einkum lestur og lesskilning en einnig þjálfast notkun hugtaka, þekking á litum og formun. Á
vefnum er saga um drenginn Álf með myndum og hægt er að lesa söguna sjálfur eða hlusta á
hana lesna. Hverri síðu í sögunni fylgja verkefni sem tengjast þema heildarverkefnisins.
Einnig er sérstakur hluti ætlaður kennaranum þar sem hugmyndir að öðrum verkefnum eru.
En eftir að hafa prófað allt á síðunni hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þetta er vissulega
leikur. Þó ber þess að geta að ekki geta allir hlutar síðunnar flokkast sem leikur. Vegna þess
að mörg verkefnanna sem eru á síðunni t.d. að búa til andlitin og para saman sokka, eru
klárlega í því formi að vera leikir, verð ég að segja að hér er um leik að ræða.
Á leikjaveitunni Leikjanet.is reyndi ég að finna leiki sem hægt væri að nota sem námsleiki. Ég
fann nokkra leiki og fyrst vil ég nefna tvær mismunandi útgáfur af leiknum tetris.
Hefðbundinn Tetris og Tetrollapse eru hvorir tveggja leikir sem reyna á rökhugsun og og
útsjónarsemi þátttakandans. Þessir leikir fynnst mér báðir mjög skemmtilegir og get setið
lengi yfir þeim. Stafaspilið er minnisleikur sem reynir á minni og einbeitingu. Í honum á að
para saman stafi eða stafi og táknmálstákn. Svo sem ágætur leikur en höfðar ekki til mín, hef
það á tilfinningunni að eitthvað vanti. Fruit Twirls er hins vegar leikur sem höfða mun betur
til mín. Þar á að raða saman þremur ávöxtum af sömu tegund og þá springa þeir. Markmiðið
er að halda leiðinni hreinni svo ekki stíflist. Leikurinn þjálfar einbeitingu og útsjónarsemi.
Annar leikur sem þjálfar sömu atriði er leikurinn Blockocide. Í homum á að mynda ferhyrning
með því að velja fjóra kubba með eins mynd sem mynda horn ferhyrningsins. Þá hverfa
reitirnir innan ferhyrningsins og stig fást, því fleiri sem reitirnir sem hverfa eru fleiri.
Einfaldari útgáfa af þessum leik er leikurinn Blocky. Hinn Íslenski leikjavefurinn sem til stóð
að skoða leikur1.is fannst ekki. Ég skoðaði einnig nokkrar erlendar leikjasíður t.d. Online
Basic Skill Games, KidsPsych og Edugames en á öllum þeirra var hægt að finna einhverja
nothæfa leiki.
Síðasti hluti þessa námsþáttar var að leita á netinu að nokkrum góðum leikjum og nota
leitarorð eins og t.d. on-line educational games, instructional games eða learning games. Ég
notaði Google og skoðaði nokkra leiki en datt fljótlega niður
á stærðfræðileikinn Pengun party addition, sem mér þykir
nokkuð góður. Í leiknum er hægt að velja hvort maður æfir
sig í samlagningu, frádrætti, margföldun eða deilingu og er
31
![Page 33: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/33.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
um nokkur þyngdarstig að ræða í öllum tilvikum. Misjafnt er milli þrauta hvernig leikurinn er
nákvæmlega settur upp en til að hafa einhverja hugmynd um möguleikana ætla ég að segja hér
frá því hvernig einfaldasta borð samlangingarinnar virkar. Á skjánum byrtast 5 mörgæsir með
tölustafi á maganum. Neðst á skjánum er samlagningardæmi og á maður að gefa þeirri
mörgæs fisk sem hefur rétta tölu á maganum (sjá mynd). Þessi leikur fynnst mér vera tilvalinn
til að nota í stærðfræðikennslu. Hann þjálfar klárlega þátttakandann í stærðfræði, er
skemmtilegur og reglurnar einfaldar. Dóttir mín sjö ára hefur einnig mjög gaman af honum.
32
![Page 34: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/34.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
10. þáttur: Söng- og hreyfileikir
Söngur í einhverri mynd hafa löngum verið hluti af leikjum barna (Ingvar Sigurgeirsson.
18.04.2009). Víða um heiminn má finna margskonar söng- og hreyfileiki sem surmir hverjir
líkast hver öðrum ótrúlega mikið þó í ólíkum menningarsamfélögum séu.
Fyrsti leikurinn sem ég prófaði í tengslum við þennan námsþátt var leikurinn „Nú
skulum við segja hvað við heitum“ sem ég prófaði með litlum hóp þriggja ára krakka. Því
miður verður að viðurkennast að það tókst ekki sem allra best. Krakkarnir voru mjög misjöfn,
sum voru svo feimin að þau voru enganveginn tilbúin að taka þátt og önnur voru með hreina
þvermóðsku og vildu þess vegna ekki vera með, en örfá stóðu sig eins og hetjur og tóku
virkan þátt. Ljóðið er svona:
Nú skulum við segja hvað við heitum
Nú skulum við segja hvað við heitum
Hvað heitir þú? (barnið segir nafnið sitt t.d. Elvar)
Elvar, Elvar, já, já, já
Elvar, Elvar, já, já, já
Síðan er byrjað upp á nýtt og næsti spurður að nafni. Þessi börn eru öll á leikskóla þar sem
þau fá tákn fyrir nafnið sitt og tókum við síðan annan hring á laginu þar sem tákni viðkomandi
var bætt við, en því miður átti ég ekkert tákn en þau fundu ekkert að því.
Næstu leiki sem ég ákvað að prófa fékk ég krakkana mína og frændsystkini til að prófa
með mér. Fyrsti leikurinn sem ég bauð þeim uppí var „Faðir Abraham“ en hann snýst um það
að sunginn er ákveðinn texti sem lítur svona út:
Faðir Abraham
og hans synir.
Og hans synir
faðir Abraham.
Og þeir átu kjöt
og þeir drukku öl
og þeir skemmtu sér mjög vel.
Þegar vísan hefur verið sungin einu sinni bætist „Hægri hönd“ aftan við textan og allir fara að
slá taktinn með hægri hendi og ljóðið er sungið aftur. Eftir annað skiptið bætist við „hægri
33
![Page 35: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/35.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
hönd, vinstri hönd“ og nú slá allir taktinn með báðum höndum. Síðan bætist við eitt og eitt í
einu, hægri fótur, vinstri fótur og síðan höfuðið og búkurinn allur. Viðbótin er þá svona:
Hægri hönd,
vinstri hönd,
hægri fótur,
vinstri fótur,
höfuðið með,
og búkurinn allur.
Þegar vísan er sungin í síðasta skipti, er takturinn sleginn með báðum höndun og stappaður
með báðum fótum, höfuðið dinglar í takt og búkurinn er allur á iði. Nokkrum leist ekkert á
blikuna þegar við byrjuðum á þessum leik, héldu sennilega að hér væri ekki um leik að ræða
heldur bara samsöng, en það léttist nú á þeim brúnin þegar leið á leikinn og ærslin urðu meiri.
Að endingu skemmtu sér allir vel, meira að segja unglingurinn sem neiddur var til að vera
með, og leikurinn reyndist hennta hópnum mjög vel. Textinn er auðlærður og lærðu þau hann
öll á mettíma og tóku virkan þátt.
Næsti leikur sem við prófuðum saman var leikurinn „Ein ég sit og sauma“. Þessi leikur
er þannig upp byggður að þátttakendur leiðast í hring nema einn sem grúfir sig niður í miðjum
hringnum og þykist sauma. Hinir ganga kringum þann í miðjunni og syngja eftirfarandi lag:
Ein ég sit og sauma
inni' í litlu húsi.
Enginn kemur að sjá mig
nema litla músin.
Hoppaðu upp og lokaðu augunum,
bentu í austur, bentu í vestur,
bentu á þann sem að þér þykir bestur.
Þegar komið er í textan þar sem sagt er: „Hoppaðu upp“ þá hoppar sá í miðjunni upp og lokar
augunum þegar honum er sagt það í textanum. Síðan er honum sagt í laginu að benda í austur
og vestur og gerir hann það og að lokum þegar síðasta línan er sungin „bentu á þann sem að
þér þykir bestur“ stoppa þeir sem ganga umhverfis miðjumanninn og hann bendir á einhvern
þeirra, án þess að vera búin að oppna augun. Sá sem hann bendir á, á að vera næstur inni í
hringnum.
Ég prófaði líka að fá þau til að klappa „Úllen dúllen doff“. Það gekk vel hjá þessum
elstu en hin yngri mistu þolinmæðina nokkuð fljótt svo við snérum okkur að öðru. „Úllen
34
![Page 36: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/36.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
dúllen doff“ er alla jafna notuð til að velja úr hóp, t.d. einhvern til að verann. Þá hafa
þátttakendur krepta hnefa og slegið er á þá til skiptis meðan farið er veð vísuna:
Úllen dúllen doff,
kikke lane koff,
koffe lane bikke bane,
úllen dúllen doff.
Sá sem slegði er á þegar síðasta orðið er nefnt setur þá hendi fyrir aftan bak og svo er haldið
áfram þar til aðeins einn er eftir. Þessi óskiljanlega runa er um margt merkileg og virðist hún
hafa komið til Íslands fyrir löngu (Una Margrét Jónsdóttir. 2007) og þekkjast áþekkar vísur í
mörgum nágrannalöndum okkar en það er önnur saga.
Fyrst við vorum á annað borð komin af stað í leikjunum létum við okkur að sjálfsögðu
ekki nægja að prófa aðeins þessa leiki heldur skelltum okkur í nokkra fleiri gamla og góða
söng- og hreyfileiki. Aðrir leikir sem við prófuðum voru t.d. Bim, bam, bim, bam, Fram, fram
fylking og Í grænni lautu. Allir tókust leikirnir mjög vel, enda henntuðu þeir aldursbili (5-15
ára) hópsins mjög vel, helst var það unglingurinn sem var ekki að „fíla“ sig.
Í upphafi þessa námsþáttar horfði ég á upptökur af dagskránni sem var um
sönghreyfileiki í skólanum. Á upptökunum sást þegar samnemendum mínum í námskeiðinu
voru kenndir fjölmargir söng- og hreyfileikir. Sjö ára dóttir mín horfði á allar upptökurnar
með mér og sungum við, klöppuðum og hreyfðum okkur með. Skemmtum við okkur
prýðilega, auk þess sem henni fannst svolítið sérstakt að „læra“ svona með mér. Þetta var
indæl og skemmtileg stund sem við áttum þarna saman mæðgurnar. Hver segir að maður þurfi
endilega að hafa heilan hóp af fólki í kringum sig til að prófa og taka þátt í margvíslegum
leikjum.
35
![Page 37: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/37.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
11. þáttur: Gátur, þrautir og heilabrjótar
Í þessum námsþætti eru gátur, þrautir og heilabrjótar til skoðunar með það að markmiði að
vekja okkur nemendurnar til umhugsunar um þannig leiki og gildi þeirra í námi (Ingvar
Sigurgeirsson. 17.04.2009). Þessi tegund leikja er ekki frábrugðin öðrum að því leitinu að til
eru ógrynni af slíkum viðfangsefnum og af því má finna heilmikið á netinu.
Gátur og þrautir höfða vel til barna og í gegn um leikinn geta þau öðlast nýja færni og
styrkt námsgetu sína í t.d. tungumálum, listum, stærðfræði, félagsfræði og vísindagreinum
(Cromwell, Sharon. 1998). Þegar við notum þrautir og gátur í skólastarfi erum við að vekja
nemendur til umhugsunar (Ingvar Sigurgeirsson. 17.04.2009), þjálfa þá í að færa rök fyrir
máli sínu og vinna saman, örva rökhugsun þeirra, ímyndunarafl, eftirtekt og athygli svo
nokkuð sé nefnt. Á forsíðu þessa námsþáttar stingur Ingvar Sigurgeirsson (Ingvar
Sigurgeirsson. 17.04.2009) upp á því að sniðugt sé að láta nemendurna sjálfa leggja gátur og
þrautir fyrir félaga sína. Þetta mætti t.d. gera með þeim hætti að þau skiptust á að koma með
eina þraut á dag t.d. í ákveðinn tíma.
Tiltölulega auðvelt er að tengja gátur og þrautir við hinar ýmsu námsgreinar þó
algengast hafi verið að nota þær tengdar stærðfræði. Þrautir á erlendum tungumálum eru
tilvaldar til tungumálakennslu og vart þarf að taka fram að orðaleikir og sagnaþrautir falla vel
að móðurmálskennslu.
Nokkrar leiðir til að láta gátur og þrautir verka enn betur í skólastofunni eru
(Cromwell, Sharon. 1998) að:
Bjóða nemendum að búa til sínar eigin þrautir saman í hópum eftir að hafa glímt
einstaklingslega við þrautir eins og krossgátur.
Finna leið til að láta gáturnar þjálfa markmið úr fleiri námsgreinum í einu.
Nota þann tíma sem nemendur verja í að glíma við gátur á netinu sem verðlaun fyrir
góða vinnu eða hegðun sem maður vill örva.
Bjóða nemendum að nota þema tengt námsefninu, til að búa til hóp af leikjum eins og
t.d. krossgátur, hengimann og stafarugl.
Gátur og þrautir má flokka á marga vegu en einfaldasta flokkunin er að flokka þær í tvennt;
þær sem hafa aðeins eitt ákveðið svar og þær sem hafa mörg ólík svör (Ingvar Sigurgeirsson.
17.04.2009). Ég ætla þó að notast hér við flóknari flokkun og skoða þá. Flokkarnir sem um
ræðir eru: Myndagátur, einföld töfl og spil, rökleitargátur, rúmfæðiþrautir, sagnagátur,
36
![Page 38: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/38.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
raðþrautir og eldspýtnaþrautir. En auk þess eru líka flokkarnir orðagátur, sem verða skoðaðar
betur í næsta námsþætti, talnaþrautir, samvinnuþrautir og töfrabrögð.
Fyrstan skoðaði ég flokkinn „myndagátur“. Þetta er skemmtilegur hópur gáta sem
mælt er með að leggja fyrir nemendur í hóp, þó með þeim fyrirvara að aðvara þau að láta ekki
uppi lausnina strax, ef þau telja sig hafa hana (Ingvar Sigurgeirsson. 05.01.2007.a). Síðan má
skipta bekknum í smærri hópa sem ræða í lágum hljóðum hugsanlegar lausnir uns kallað er
eftir niðurstöðum. Myndagátur Gunnars Halldórssonar sem eru á vefnum eru mjög
skemmtilegar og reyndi ég að leysa þær allar og lagði auk þess nokkrar þeirra fyrir meðlimi
fjölskyldu minnar. Ein þessara þrauta er Hvernig á að flytja skilaboð um aðkallandi hættu?
Markmið þessa leiks er að þjálfa rökhugsun og er leikurinn svona: Kennari (eða nemendi leggur þessa þraut fyrir nemendur:
Fólkið sem bjó sitt hvoru megin á þessari eyju var í meira en tvo klukkutíma að ferðast
milli þorpanna. Og það hafði hvorki síma né talstöð. Samt var hægt að koma
skilaboðunum um að skip nálgaðist eyjuna til hins þorpsins á örfáum mínútum. Hvernig?
(Gunnar Halldórsson. 1997)
Margar góðar hugmyndir komu um lausn á þessari gátu þegar ég lagði hana fyrir eldri börnin
tvö (en þau yngri taldi ég vera of ung til að spreyta sig á henni) þar með talið þau þrjú sem
gefin eru upp sem hugsanleg svör á síðunni, þ.e. Reykmerki, trumbusláttur og
merkjasendingar með speglum úr fjöllunum. Önnur svör sem einnig komu fram og ég er alveg
sátt við eru t.d.: þokulúður, klukknahringingar og varðeldar í fjöllunum.
Felumyndir og skynvillumyndir falla einnig undir myndagátur. Þesskonar myndir
vekja yfirleitt mikinn áhuga hjá nemendum (Ingvar Sigurgeirsson. 05.01.2007.a).En þær var
að nokkru leiti búin að skoða áður (sjá í kaflanum: 7. þáttur: Hugþroskaleikir) og lét mér því
nægja að skoða þessi myndasöfn sem bennt var á í kennslubréfinu. En vil fá að halda til haga
37
![Page 39: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/39.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
tengli inn í myndasafn sem ég rakst á og mér fynnst hennta mjög vel til að láta krakka skoða
en það eru gagnvirkar felumndir á síðunni HighlightsKids.com.
Næsti flokkur sem ég tók til skoðunar eru „rúmfræðiþrautir“. Þessi flokkur á heima
innan stærðfræðinnar en í honum eru margskonar þrautir sem fjalla að einhverju leyti um
rúmfræði. Ég skoðaði tenglana á síðu námskeiðsins og notaði Google og fann nokkrar þrautir
en engin þeirrra heillaði mig. Ein þeirra sem þó var með þeim betri var Tetramino Contours
sem byggir á því að raða nokkrum formum í ákveðin mynstur. En sú síða sem ég fann þessa
þraut á, Age of Puzzles er ljómandi ágæt þrautasíða.
Í flokknum „Einföld töfl og spil“ er m.a. spilið „Hex“. Spilið er eftir Piet Hein,
danskan stærðfræðing og ljóðskáld (Ingvar Sigurgeirsson. 05.11.2007) og er einfalt og
auðlært. Spilið er spilað á blað með sexhyrndum reitum sem raðað er saman í tígul, en reitirnir
eru mismargir eftir því hversu spilið á að vera erfitt. Spilið er fyrir tvo og nota þeir sitt hvorn
litinn til að merkja inn á borðið. Markmiðið er að ná heilli línu í sínum lit yfir borðið, annar
frá hægri til vinstri en hinn að ofan og niður. Mér tókst ekki að opna vefleikinn og gat því
ekki prófað að spila hann á netinu en fékk þess í stað eiginmanninn til að spila við mig nokkra
leiki. Það gekk svo sem ágætlega, enda bæði jafn vitlaus í leiknum. Þessi leikur er mjög
skyldur myllu sem ég spila einmitt oft við dóttur mína (sjá 8. þáttur: Námspil og flókin töfl).
Annar leikur sem einnig líkist að hluta leiknum Hex er leikurinn Tengja 4. Sá leikur byggist á
því að nota rúðustrikað blað með 42 rúðum og svo skiptast þátttakendur á að lita í rúðurnar
með það að markmiði að tengja saman fjórar rúður með sínum lit. Allir þessir leikir þjálfa
rökhugsun.
Fjórði flokkurinn sem ég skoðaði í þessum námsþætti voru „Sagnagátur“.
. Í þessum flokki tengjast saman sagnalist og þrautalausnir (Ingvar Sigurgeirsson.
05.01.2007.b). Á síðu námskeiðsins um sagnagátur voru tenglar í þrjár sagangátur: Okrarinn;
Bjargið unglingunum og Húsið sem hvarf. Ég prófaði að leggja þær fyrir eiginmanninn og
síðan unglingsdótturina og komu þau bæði með svipuð svör og mér sjálfri hafði dottið í hug
við að lesa þær. Dóttirin var heldur lengur að finna svar, sérstaklega við síðustu þrautinni en
öll vorum við sammála um það að skemmtilegra hefði verið að hafa svar til að bera saman við
okkar svör. Kennslufræðileg þýðing verkefna af þessu tagi er að þau þjálfa rökhugsun og
hvetja nemandann til að færa rök fyrir máli sínu. Lausn gátanna getur líka verið talsvert
skemmtileg og ef að kennari er hugmyndaríkur getur hann búið til gátur af þessu tagi sem
síðan geta fjallað um tiltekið námsefni.
38
![Page 40: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/40.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Í þessu samhengi er líka gaman að muna eftir gömlu góðu gátunum sem ýmist voru í
bundnu máli eða ekki. Ég hef reynt að rifja upp nokkrar og set þær hér með:
Tíu toga fjóra, tvö eru höfuðin á,
rassinn upp og rassinn niður, og rófan aftan á.
Svar: Maður að mjólka kýr
Ein er snót með ekkert vamm,
ærið langan hala dró
en við hvert spor sem hún gekk fram
hennar rófa styttist þó.
Svar: Nál
Hvað er það sem hoppar og skoppar yfir heljarbrú,
með mannabein í maganum, og gettu nú.
Svar: Skip
Blóðlaust og beinlaust, bítur gras af jörðu.
Svar: Ljár
Hvað hét hundur karls, sem í Árdölum bjó,
Nefndi ég hann í fyrstu, en getið hans aldrei þó.
Svar: Hvað
Hver er það sem hækkar þegar höfuðið er tekið af honum?
Svar: Koddi
Ég er í öllu og öllu á
allstaðar sjáanlegur,
fleiri en hundrað heiti á,
hvergi þreifanlegur.
Svar: Litur
39
![Page 41: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/41.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Hver er það sem er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn móður minnar?
Svar: Ég
Hver er sá veggur víður og hár,
Veglega settur röndum
Gulur, rauður, grænn og blár
Gerður af meistarans höndum
Svar: Regnboginn
Gátur eins og þessar eru hluti af menningararfinum og mér finnst það vera mjög mikilvægt að
við látum þær ekki glatast.
Þá er kominn tími til að líta á næsta flokk. Eldspýtnaþrautir eru mér gamalkunnar þó
ég hafi ekki tekið þátt í þesskonar leik í fjölda ára. Ég man eftir því að við lögðum stundum
eldspýtnaþrautir hvort fyrir annað systkynin við borðstofuborðið á löngum vetrarkvöldum.
Eldspýtnaþrautir þjálfa fyrst og fremst rökhugsun en einnig geta þær byggt á þekkingu eða
minni. Sem dæmi um það er þrautin sem er neðst á síðu þessa námsþáttar og er jafnframt
gamalkunn þar sem hún er ein af þeim þrautum sem ég man eftir frá því ég var barn. Þrauntin
er þannig að lagðar eru þrjár eldspýtur hlið við hlið og þrautin er sú að færa tvær þeirra þannig
að úr verði sex, en það er bannað að brjóta þær. Þessa þraut er að sjálfsögðu ómögulegt að
leysa án ákveðinnar grunnþekkingar á rómverskum tölum. Ég ákvað líka að leita á netinu að
fleiri þrautum og fann þar nokkrar gamlar og góðar t.d. á síðunni Some Matchstick Puzzles og
læt tvær þeirra fylgja hér með.
Bikarinn. Færið tvær
eldspýtur þannig að steinninn
sé ekki lengur ofan í
bikarnum.
Ferhyrningurinn. Færið
eina eldspýtu til að búa til
ferhyrning.
40
![Page 42: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/42.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Eldspýtnaþrautir reyna, líkt og flest annað í þessum námsþætti, á rökhugsun og geta verið
bráðskemmtilegar.
Sumar gerðir gátna byggjast á lýsingum á ákveðnum og oft sérkennilegum aðstæðum
og hlutverk þátttakandans er að koma með skýringu á þeim. Þessar gátur kallast
rökleitargátur. Þær skerpa athygli og eftirtekt, þjálfa einbeitingu og kalla auk þess á
ímyndunarafl viðkomandi. Á Leikjavefnum – Leikjabankanum er lítið safn af rökleitargátum
sem gaman er að prófa. Hér er líka ein sem ég heyrði fyrir einhverju síðan: Maður nokkur
gengur inn á bar og biður um vatnsglas. Barþjónninn dregur upp byssu og miðar á hann.
Maðurinn þakkar fyrir sig og gengur út. Hvers vegna? Svar: Maðurinn hafði hiksta og
barþjónninn læknaði hann með því að hræða hann. Gátu mjög svipaða þessari rakst ég síðan á
inni á síðunni Jed's List of Situation Puzzles en þar eru jafnframt margar aðrar skemmtilegar
þrautir.
Síðasti flokkurinn sem ég ætla að skoða að þessu sinni er flokkurinn „Raðþrautir“. Á
Leikjavefnum – Leikjabankanum er stutt lýsing á einni þekktustu raðþrautinni, kínversku
þrautinni Tangram. Samkvæmt sögunni bak við leikinn misti fyrir mörgum öldum maður að
nafni Tan, ferkanntaða steinhellu í jörðina og brottnaði hún í sjö hluta (Ragna Kristjánsdóttir
og Ragnhildur Sigurðardóttir. 1994). Þegar Tan reyndi að setja helluna saman á ný uppgötvaði
hann að það mátti útbúa margskonar mynstur úr brotunum. En það er einmitt það sem
leikurinn gengur út á, að gera myndir út brotunum, en það er skilyrði að nota þarf öll brotin í
hverja mynd án þess að þau liggi ofan á hvert öðru. Önnur vinsæl raðþraut er Hexa sem
byggir á því að raða ákveðnum formum inn í sexhyrning. Það má þó ekki gleyma því að
gömlu góðu púsluspilin sem við öll höfum einhverntíma prófað, tilheyra líka þessu flokki.
Þegar ég var að alast upp var það venja að púslað var stórt og mikið púsluspil um jólin. Það
þótti ekki við hæfi að spila á spil en púsluspil voru vinsæl. Þarna sat jafnan öll fjölskyldan yfir
sama púsluspilinu þó við krakkarnir hefðum óskup lítið í það að gera fyrstu árin, nema ef vera
kynni í ramman utan um myndina. Síðan þá hef ég löngum haft gaman af púsluspilun, þó ekki
hafi ég eignast mörg um æfina, en hin seinni ár hef ég líka prófað nýjar gerðir af púsluspili
eins og þrívíð púsluspil en með þeim oppnast alveg nýr heimur fyrir púslara. Þrautir í þessum
flokki vinna að því að þjálfa rökhugsun þátttakandans.
41
![Page 43: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/43.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
12. þáttur: Orðaleikir
Tólfti og síðasti leikjaflokkurinn sem til skoðunar er á þessu námskeiði eru orðaleikir. Þessi
flokkur leikja þjálfar orðaforða, stafrófið og rökhugsun auk þess að vera skemmtileg leið til að
brjóta upp skóladaginn (Ingvar Sigurgeirsson. 20.03.2009.b). Annar stærsti leikjaflokkurinn í
Leikjabankanum – Leikjavefnum er einmitt orðaleikir.
Fyrsti leikurinn sem við skoðuðum í þessum námsþætti var leikurinn „Öll orð byrja á
sama staf“ en leikurinn eflir orðaforða, hugmyndaflug og rökhugsun (Guðný Halldórsdóttir.
1994, Ingvar Sigurgeirsson. 1995). Í leiknum keppa þátttakendur um það hver nær að fylla inn
í flest hólf í lista 10 til 12 hugtakaflokka sem allir eiga að byrja á sama staf. Bókstafurinn er
valinn af handahófi en þátttakendur fá ákveðinn tíma til að fylla út listann sinn. Leikurinn er
byggður á spilinu „Scattergories“ sem hægt er að fá sem sérstakt borðspil. Á Amason er
spilinu lýst á þennan hátt: Scattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a
category list with 12 categories--such as vegetable, state, president, things you throw away--
and must write down the name of one item that fits into each category. Sounds easy enough,
but each item has to begin with a specific letter that is determined when the 20-sided die is
rolled. For instance, you roll the letter "R." Your answer list for the above categories might
look something like this: rutabaga, Rhode Island, Roosevelt, rubbish, etc. You have to think
fast, because a round lasts only 3 minutes! Players score points for each unique answer.
(Alison Golder. 1996-2009)
Skemmtilegur leikur sem ég á pottþétt eftir að reyna að fá fjölskylduna til að spila við mig.
Ég skoðaði og einnig nokkra þessara leikja sem fundust í flokknum orðaleikir inni á
Leikjabankanum og prófaði einnig nokkra þeirra. Leikirnir sem ég skoðaði voru: „Að búa til
orð“ en í þeim leik eiga þátttakendur að búa til eins mörg orð og þeir geta úr bókstöfum
ákveðins orðs (Helga Gísladóttir. 1997); „Að fylla inn í töflu“ byggist á því að þátttakendur
fylla inn í töflu ákveðna tegundir orða sem byrja á ákveðnum stöfum (Guðrún Dröfn
Ragnarsdóttir og Auður Stefánsdóttir. 1994); „Bókstafaleikur“ er keppni milli hópa þar sem
ákveðin stig fást fyrir að finna ákveðnar orðategundir sem byrja á ákveðnum bókstaf; „Ég fór
að veiða“ er leikur þar sem þátttakendur skiptast á að segja setninguna „Þegar ég fór að veiða,
veiddi ég ...“ og nefna síðan þrjá hluti sem byrja á ákveðnum bókstaf. Geti viðkomandi ekki
nefnt þrjá hluti er hann úr leik (Aðalheiður Halldórsdóttir og Sigrún Kolsöe. 1997.b);
„Gálgaleikurinn“ er gamli leikurinn sem ég þekki undir nafninu „hengimann“. Hann byggist á
42
![Page 44: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/44.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
því að einn velur orð og strikar á töfluna eða blað jafnmörg strik og stafirnir í orðinu eru síðan
á hinn (eða hinir) að giska á stafina. Ef giskað er á réttan staf er hann skrifaður á línuna en ef
giskað er á rangan staf er bætt einu striki í einu í mynd sem endar sem mynd af manni
hangandi í gálga, en þá hefur giskarinn tapað (Lilja Karlsdóttir. 1994). Þennan leik hef ég
einmitt notað í kennslu í landafræði og var það alveg bráðskemmtileg. „Málshættir“ er leikur
sem byggir á keppni milli einstaklinga í að tengja saman málshætti sem teknir hafa verið í
tvennt. „Sá vinnur sem getur raðað saman flestum réttum málsháttum.“ (Ingibjörg Anna
Arnarsdóttir. 1998); „Orðaleit“ er einskonar boðhlaup þar sem liðin hlaupa og fletta við
spjaldi til að safna stöfum í orð (Árni Björgvinsson. 1997); „Orðasöfnun“ er annar leikur sem
byggir á því að fundin eru ákveðnar tegundir orða sem byrja á ákveðnum bókstaf (Bjarni T.
Álfþórsson. 1992); „Töflubingó“ er einskonar kapphlaup til að nota í tungumálakennslu. Þá
eru skrifuð orð á töfuna á erlenda tungumálinu sem um ræðir og síðan er keppnin sú að verða
fyrri til að hlaupa að töflunni og strika yfir það orð á töflunni sem hefur sömu merkingu og
orð sem nefnt er (Berglind Bjarnadóttir. 1988); „Töflukrossgátur“ er leikur sem einnig byggir
á kapphlaupi milli liða að töflunni, en í þessum leik á að bæta við orðum inn í einskonar
krossgátu í anda Scrabble (Rannveig Hafberg. 1993). Fyrir orðin fást stig og vinnur liðið sem
er með fleiri orð þegar tíminn er liðinn.
Margir þessara leikja eru mjög líkir en sá sem mér líst best á er leikurinn „Að fylla inn
í töflu“. Leikurinn henntar krökkum frá 9 ára aldri og þjálfar þau í ritun og örfar
hugmyndaflug þeirra (Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir og Auður Stefánsdóttir. 1994). Þau gögn
sem þarf til að leika leikinn eru ekki flókinn aðeins blöð og skriffæri. Síðan er útbúin tafla þar
sem efst í hvern dálk er skrifað hverskonar orð á að finna og síðan er valið orð sem skrifað er
niður fyrsta dálkinn (einn stafur í einu) og táknar stafurinn þann staf sem öll orð þeirrar línu í
töflunni eiga að byrja á. Einhvern vegin svona:
Land Dýr Planta Mannanafn
S Svíþjóð Selur Sóley Sigurður
U Ungverjaland Ugla Umfeðmingur Urður
M Malta Minkur Melasól Magnús
A Alsír Api Alaskaösp Arndís
R Rúmenía Refur Rauðsmári Ragnar
43
![Page 45: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/45.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Síðan er keppst við að fylla inn í töfluna, t.d. í ákveðinn tíma. Sá vinnur sem fyllir út flesta
reiti í töflunni sinni. Ég hef sjálf notað þennan leik í landafræði kennslu og átti hann
sérstaklega vel við þar. Sem dæmi var ég eitt sinn að kenna (í vettvangsnámi) sjöundabekk
um Evrópu. Þá valdi ég að þau ættu að finna nafn á Evrópulandi, borg í Evrópu og vatni, á
eða hafi í Evrópu. Síðan voru stigin talin saman og gaf ég þeim sem einir voru með eitthvað
ákveðið nafn, aukastig. Í menntaskóla tók ég einnig sjálf þátt í svona leik í þýsku og var það
afar skemmtilegt og þó að spurningarnar þar væru landfræðilegs eðlis áttu svörin að vera á
þýsku. Væru orðin ekki rétt stafsett fékst ekkert stig. Þetta er einmitt ein af ástæðum þess að
mér líst best á þennan leik, að það er hægt að nota hann í mörgum námsgreinum. Ætli flestir
muni ekki eftir því að hafa verið látnir fylla inn í einhverskonar töflur við að læra
sagnbeygingar. Það mætti nú aldeilis gera það skemmtilegra með því að breyta því í svona
leik.
Síðasti hluti þessa námþáttar var að leita á netinu að leikjum og síðum um orðaleiki.
Ég byrjaði á að slá nokkur orð inn í Google og athuga hversu margar síður birtust, hér er
niðurstaðan:
Orð sem leitað var að Fjöldi fundinna síðna
orðaleikir 4290
word games 52.200.000
word play 67.800.000
word puzzles 2.760.000
Margar þessara síðna innihéldu þó ekki leiki en þó fann ég nokkra góða. Nokkrir þeirra eru:
„Rebus Puzzle Brainteasers“ eru myndagátur á ensku þar sem bókstafir eru notaðir í stað
mynda til að búa til orðatiltæki. „Word Ladder“ er leikur þar sem maður færist frá einu orði
að öðru með því að breyta aðeins einum bókstaf í einu. “Anagram“ er hópur leikja þar sem
mynda á eins mörg orð úr bókstöfum ákveðins orð, og hægt er. Leikurinn svipar mjög til
leiksins „Að búa til orð“ sem ég fjalla lítillega um hér að ofan.
Þá eru enn ótaldir margir þektir orðaleikir en tvo vil ég nefna sérstaklega. Það eru
krossgátur og „Frúin í Hamborg“ sem flestir kannast við. Frúin í Hamborg er leikur milli
tveggja einstaklinga sem byrjar á þann hátt að annar spyr hinn: „Hvað gerðir þú við peningana
sem frúin í Hamborg gaf þér í gær?“ Hinn á síðan að svara spurningunni og öllum öðrum
spurningum sem fylgja í kjölfarið um efnið án þess að segja: Já, nei, svart eða hvítt. Segi hann
eitt þessara orða hefur hann tapað. Sá sem spyr reynir hins vegar að haga spurningum sínum
44
![Page 46: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/46.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
þannig að eitt þessara orða verði einmitt svarið. Krossgátur eru hins vegar þraut sem útbúin er
fyrirfram og byggist á því að útbúnir eru reitir sem fylla á út eftir ákveðnum vísbendingum.
Aðeins einn ákveðinn stafur passar í hvern reit þannig að rétt orð myndist í reitunum. Reitir
krossgátunnar eru misjafnlega margir og misþétt raðaðir, allt eftir því hversu erfið krossgátan
er. Vísbendingarnar geta einnig verið margskonar og tengst inn á flest svið skólanna,
mannlífsins eða veraldarinnar. Af þessum ástæðum hennta krossgátur vel í flestum
námsgreinum og ef litið er t.d. á Skólavefinn eru þar að finna krossgátur sem ætlaðar eru sem
verkefni í dönsku, ensku, íslensku, landafræði, náttúrufræði, sögu, stærðfræði og
trúarbragðarfræði.
45
![Page 47: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/47.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Hópverkefni: Framlag til Leikjavefsins
Umsögn og kynning á leiknum Kisugrey
Fyrsti leikurinn sem okkur langar að kynna ykkur fyrir er leikurinn „Kisugrey“. Við höfðum
hvorug prófað hann áður en þegar við rákumst á hann í bókinni 250 leikir eftir Hörð
Haraldsson, leist okkur báðum svo vel á hann að okkur dauðlangaði að prófa hann. Fyrst
gerðum við tilraun til að prófa hann í litlum hópi þriggja ára drengja en það gekk ekki, þeir
voru of ungir. Þá fengum við til liðs við okkur blandaðan hóp barna á aldrinum 3 til 10 ára. Þá
gekk leikurinn mjög vel að því undanskildu að sá yngsti í hópnum (þessi 3 ára) vildi ekki vera
með en restin af hópnum (5-10 ára) skemmti sér mjög vel og því teljum við að hann hennti
krökkum frá 5 ára aldri. Leikurinn er mjög skemmtilegur (sjá lýsingu hér að neðan) og með
ólíkindum hversu erfitt það er að halda andlitinu þegar „kisan“ mjálmar fyrir framan mann,
enda var mikið hlegið. Við byrjuðum á að útskýra hvernig leikurinn gengur fyrir sig og
notuðum síðan „Ugla sat á kvisti“ til að ákveða hver ætti fyrst að vera „kisan“. Við tókum
sjálfar þátt í leiknum með krökkunum og skemmtum við okkur prýðis vel líkt og krakkarnir.
Leikinn völdum við vegna þess hversu skemmtilegur hann er og hversu góður hann er til að
vinna gegn feimni og auka samkennd innan hópsins. Hann er auk þess auðveldur, þarfnast
engra gagna og hægt er að leika hann hvar sem er, bæði úti og inni. Leikurinn er líka
skemmtilegur vegna þess að hann henntar svo að segja í hvaða hópi sem er. Hann má jafnt
nota inni í skólastofu, í afmælum eða jafnvel á ættarmótum og mælum við eindregið með
honum.
46
![Page 48: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/48.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Kisugrey Jóna Guðmunda Hreinsdóttir og Tinna Arnórsdóttir - 2009
Flokkur: Hópstyrkingaleikir
Aldur: Frá 5 ára
Markmið:
Skemmtun, snerting og hristir hópinn saman.
Gögn:
Engin
Leiklýsing:
Hópurinn situr í hring á gólfinu. Einn er hann og fer hann inn í miðjan hringinn og leikur kisu.
Kisan labbar um í hringnum, stoppar fyrir framan einn þátttakandann og mjálmar þrisvar
sinnum. Sá þarf að strjúka kisunni um höfuðið og segja kisugrey án þess að fara að hlæja.
Takist honum það heldur kisan áfram að labba um hringin og velur sér nýjan þátttakanda og
leikur sama leikinn. Geti þátttakandinn ekki stillt sig um að hlæja, þarf hann að skipta um
hlutverk við kisuna.
Heimild:
Hörður Haraldsson. 1994. 250 leikir, bls11. Reykjavík. Setberg
47
![Page 49: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/49.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Umsögn og kynning á leiknum Kartöfluboðhlaup
Leikurinn „Kartöfluboðhlaup“ varð fyrir valinu hjá okkur vegna þess að okkur fannst að hann
væri skemmtileg leið til að þjálfa samhæfingu og samvinnu, auk þess sem hann hljómaði svo
skemmtilega. Flestir hafa prófað að fara í einhverskonar boðhlaup, hvort heldur sem það er
hið hefðbundna boðhlaup með kefli eða naglaboðhlaup eða fataboðhlaup. Kartöfluboðhlaup er
hinsvegar mjög skemmtileg nýjung (allavegana fyrir okkur) sem okkur fannst spennandi að
prófa. Við fengum til liðs við okkur 4 krakka á aldrinum 5 til 10 ára og skiptum í lið þannig
að við vorum í sitt hvoru liðinu og með okkur tvö börn. Við byrjuðum keppnina sem var í
fyrstu æsi spennandi en það er ótrúlega erfitt að rúlla kartöflunni yfir gólfið. Það kemur m.a.
til af því að kartöflur eru ekki hnöttóttar og rúlla því út og suður. Til að gæta sanngirnis er því
mikilvægt að kartöflurnar séu sem líkastar í lögun. Það var rosalega mikið hlegið og liðin
kvöttu sína menn áfram af mikilli elju. Leikurinn gekk mjög vel og tóku allir virkan þátt og
skemmtu sér hið besta.
48
![Page 50: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/50.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Kartöfluboðhlaup Jóna Guðmunda Hreinsdóttir og Tinna Arnórsdóttir - 2009
Flokkur: Hreyfiþrautir
Aldur: Frá 5 ára
Markmið:
Þjálfa samhæfingu, einbeitingu og efla samvinnu
Gögn:
Kartafla og teipi
Leiklýsing:
Merktar eru tvær línur á gólfið með teipinu sem þjóna tilgangi marks og ráslínu. Hópnum er
skipt í tvö eða fleiri lið eftir fjölda. Hvert lið fær eina kartöflu. Hver liðsmaður á að ýta
kartöflunni yfir gólfið milli ráslínanna og má hann aðeins nota til þess nefið. Þegar yfir gólfið
er komið tekur næsti liðsmaður við kartöflunni og ýtir henni til baka og síðan koll af kolli þar
til allir hafa tekið þátt. Það lið sem fyrst kemur kartöflunni sinni yfir ráslínuna í síðasta sinn
vinnur.
Útfærsla:
Hægt er að nota leikinn sem einstaklingskeppni
Heimild:
Byndís Bragadóttir. 1997. Leikir á léttum nótum, bls 25. Hörpuútgáfan.
49
![Page 51: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/51.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Umsögn og kynning á leiknum Hryggbrot
Síðasti leikurinn sem við viljum kynna fyrir ykkur er leikurinn „Hryggbrot“ sem er afar
skemmtilegur hópstyrkingarleikur (sjá leiklýsingu hér að neðan). Leikinn völdum við vegna
þess hversu skemmtilegur hann er og hversu góður hann er til að þjálfa ýmsa mikilvæga þætti.
Hann vinnur á feimni, þjálfara athygli og hristir hópinn saman auk þess að vera bráð
skemmtilegur. Þennan leik prófuðum við fyrst á hóp af 13 ára unglingum og gekk leikurinn
þar afar vel. Þar skiptum við einmitt hópnum í stráka og stelpur eins og í lýsingunni hér að
neðan en til að rétta kynjahlutfallið af tók aðeins önnur okkar þátt í leiknum en hin var
stjórnandi. Allir skemmtu sér mjög vel og endaði með því að stelpurnar unnu leikinn. Síðan
ákváðu við að prófa leikinn á yngri krökkum til að vita hvernig það myndi ganga. Hópurinn
sem við prófuðum leikinn á í seinni prófuninni var blandaður aldurshópur af krökkum á
aldrinum 5 til 10 ára. Í þessum hópi gekk leikurinn ágætlega en þó fannst okkur að þessum 5
ára hefði reynnst leikurinn helst til of erfiður en þó gekk það alveg upp. Þau sem voru 7 ára
höndluðu hins vegar leikinn vel og þess vegna ákváðum við að aldursflokka hann frá 7 ára
aldri. Þessi hópur skemmti sér ekki síður vel en sá fyrri og í þetta skiptið skiptum við hópnum
á þann hátt að sem líkust aldursdreifing væri innan hvors hóps. Mjög skemmtilegur leikur sem
við hvetjum ykkur endilega til að prófa.
50
![Page 52: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/52.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Hryggbrot Jóna Guðmunda Hreinsdóttir og Tinna Arnórsdóttir - 2009
Flokkur: Hópstyrkingarleikur
Aldur: frá 7 ára
Markmið:
Hristir hópinn saman,skemmtun og og þjálfar athygli og rökhugsun.
Gögn:
Engin
Leiklýsing.
Hópnum er skipt í tvö jafnstór lið, t.d. stúlkur og drengir. Drengirnir fara út úr herberginu
meðan stúlkurnar velja sér einn dreng hver. Engir tveir mega velja þann sama. Síðan koma
drengirnir inn einn og einn í einu og reyna að giska á hver valdi hann og hneigir hann sig fyrir
þeirri stúlku. Ef hann hefur hitt á rétta fær hann svarið „ástfangin“ og fær hann að vera inni í
herberginu. Síðan kemur næsti inn og gerir hið sama. Takist honum ekki að finna rétta stúlku
fær hann svarið: „Hryggbrotinn“ og þarf að fara aftur fram og bíða eftir að röðin komi að
honum aftur. Þetta er síðan endurtekið þar til allir hafa fundið sinn félaga. Þegar fyrra liðið er
búið að gera, er skipt um hlutverk og þá fara stúlkurnar fram en drengirnir velja sér stúlku.
Það lið sem færri tilraunir þarf til að finna félaga sína, vinnur.
Útfærsla:
Hver og einn fær aðeins þrjár tilraunir til að finna sinn félaga, takist það ekki má sá sem valdi
hann gefa honum létt hryggbrot með því að slá létt á bogið bak hans. Það lið vinnur sem færri
voru hryggbrotnir í.
Heimild:
Sóley Ó. Elídóttir. 2007. 10x10 leikir, Hundrað skemmtilegir leikir fyrir krakka á öllum aldri.
Reykjavík. Mál og menning / Edda útgáfa hf.
51
![Page 53: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/53.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Lokaorð
Í þessari námsmöppu hef ég gert grein fyrir glímu minni við verkefni annarinnar. Ég hef
skoðað fjölmarga leiki, leitað að leikjum, skoðað flokkunarmöguleika þeirra og gagnsemi. Í
tengslum við þessa vinnu hef ég lesið um leiki, stjórnað leikjum, prófað leiki og flokkað leiki.
Það verður því ekki annað sagt en að þessi önn hefur verið afar athygliverð og spennandi. Frá
því ég óx úr grasi hef ég ekki leikið mér jafn mikið og þessa önn og svo hef ég líka skemmt
mér konunglega svo ekki sé nú minnst á börnin sem voru hæstánægð. Margir leikjanna sem
ég prófaði á önninni hafði ég aldrei heyrt minnst á áður og hvað þá leikið þá, en vegna þessa
námskeiðs er ég nú reynslunni ríkari og vonandi færari í að velja og útfæra leiki með þau
markmið í huga sem unnið er með hverju sinni. Ég hef alltaf vitað að margt lærist í gegnum
leiki en það var mér alveg ný uppgötvun hversu mikið hægt er að nota leiki í kennslu.
Leikurinn er kjörinn til að virkja nemandann og vekja áhuga hans á náminu. Það á að vera
„leikur að læra“, eins og segir í ljóðinu. Mín persónulega skoðun er líka sú að með því að gera
námið að leik, verði leikurinn sá manni kær. Því þarf manni ekki að blandast hugur um það
hversu mikilvægir leikir eru í kennslu.
Nú annarlokin get ég aðeins glaðst. Bæði yfir skemmtilegu og fræðandi verkefni sem
að baki er, en einnig yfir því að hafa borði gæfu til að velja þetta námskeið og þar með fengið
að fara í gegnum þetta spennandi námsefni og prófað alla þessa leiki. Það á eftir að vera mér
mikill fengur í framtíðinni að búa að þessari reynslu. Þessi mappa á líka eftir að nýtast mér í
frammtíðinni sem handbók og hugmyndabanki eins og stóð til í upphafi. Ánægð, margs vísari,
tilbúin, spennt og glöð þakka ég kærlega fyrir veturinn.
Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
(sign)
52
![Page 54: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/54.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
HeimildaskráAðalheiður Halldórsdóttir og Sigrún Kolsöe. 1997.a. „Sökkvandi skip“. Leikjabankinn -
Leikjavefurinn. Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=210. (Sótt:
10. febrúar 2009).
Aðalheiður Halldórsdóttir og Sigrún Kolsöe. 1997.b. „Ég fór að veiða“. Leikjabankinn -
Leikjavefurinn. Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=102. (Sótt:
24. apríl 2009).
Alison Golder. 1996-2009. „The Game of SCATTERGORIES“. Amason.com. Vefslóð:
http://www.amazon.com/Hasbro-4917-S5-Game-SCATTERGORIES/dp/B00000IWEP.
(Sótt: 26. apríl 2009).
Andri Ómarsson. 2004. „Drekinn og drekaveiðimaðurinn“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn.
Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=259. (Sótt: 12. Febrúar
2009).
Árni Björgvinsson. 1997. „Orðaleit!“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=109. (Sótt: 24. apríl 2009).
Bandalag íslenskra skáta. (án árs). „Hugmyndabankinn - Leikir og skemmtun“. Skátavefurinn.
Vefslóð: http://www.skatar.is/vefur/default.asp?ItemGroupID=14&ItemID=443. (Sótt:
15. febrúar 2009).
Berglind Bjarnadóttir. 1988. „Töflubingó“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=229. (Sótt: 24. apríl 2009).
Birna Hugrún Bjarnadóttir. 1993. „Að segja sögu“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=83. (Sótt: 8. febrúar 2009).
Bjarni T. Álfþórsson. 1992. „Orðasöfnun“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=114. (Sótt: 24. apríl 2009).
Bókasafn Garðabæjar. (án árs). Leikjabanki bókasafnsins. Vefslóð:
http://www2.gardabaer.is/bokasafn/leikir.htm. (Sótt: 14. febrúar 2009).
Byndís Bragadóttir. 1997. Leikir á léttum nótum. Hörpuútgáfan.
„Cat's cradle“. 21. Mars 2009. Wikipedia, the free encyclopedia. Vefslóð:
http://en.wikipedia.org/wiki/Cat's_cradle_(string_game). (Sótt: 12. febrúar 2009).
Cromwell, Sharon. 1998. Make Puzzles Part of Your Game Plan! Vefslóð:
http://www.education-world.com/a_curr/curr067.shtml. (sótt: 23. apríl 2009).
53
![Page 55: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/55.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Ellen Klara Eyjólfsdóttir. (án árs). Gagnvirkt efni í íslensku, www.nams.is. Vefslóð:
http://www.nams.is/media/upplysingaefni/4_april_gagnvirkt_islenska_A4.pdf. (Sótt:
10. apríl 2009).
Fox, Jill Englebright. 2008. Back-to-Basics: Play in Early Childhood. Vefslóð:
http://www.earlychildhoodnews.com/earlychildhood/article_view.aspx?ArticleID=240.
(Sótt 16. Janúar 2009).
Fræðsludeild Þjóðleikhússins. (án árs). Leiklist í skólum. Vefslóð:
http://fd.leikhusid.is/Forsida/Leiklistiskolum/. (Sótt: 13. febrúar 2009).
Guðný Halldórsdóttir. 1994, Ingvar Sigurgeirsson. 1995. „Öll orð byrja á sama staf (orða- og
hugtakaleikur)“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=99. (Sótt: 25. apríl 2009).
Guðrún Kvaran. (án árs). „París“. Orð vikunnar. Vefslóð:
http://www.lexis.hi.is/ordvikunnar/paris.html. (Sótt: 15. febrúar 2009).
Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir og Auður Stefánsdóttir. 1994.a. „Gátur um Evrópulönd“.
Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?
f=leikur&n=147. (Sótt: 10. febrúar 2009).
Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir og Auður Stefánsdóttir. 1994.b. „Að fylla inn í töflu“.
Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?
f=leikur&n=104. (Sótt: 25. apríl 2009).
Gunnar Halldórsson. 1997. „Hvernig á að flytja skilaboð um aðkallandi hættu?“
Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?
f=leikur&n=131. (Sótt: 23. apríl 2009).
Gyða Gunnarsdóttir. 2004. „Barnagaman: Leikir og leikföng um aldir“. Í Hlutavelta tímans:
Menningararfur á Þjóðminjasafni, bls. 352-361. Vefslóð:
http://www.natmus.is/media/adofinni/7.4_Barnagaman-crop-small.pdf. (Sótt: 18.
febrúar 2009). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands.
Helga Gísladóttir. 1997. „Að búa til orð“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=119. (Sótt: 24. apríl 2009).
Helgi Grímsson. (án árs). Hópeflileikir. Vefslóð:
http://starfsfolk.khi.is/ingvar/Leikjavefurinn/Helgi_Grimsson_Hopeflileikir.doc. (Sótt 1.
febrúar 2009).
Helgi Grímsson. 2007. „Ég er frábær eins og ég er“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=285. (Sótt: 10. febrúar 2009).
54
![Page 56: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/56.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Hilmar Rafn Kristinsson. 2006. „Fylltu skeiðina“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=273. (Sótt: 10. febrúar 2009).
Hrafnhildur Hilmarsdóttir. 1997. „Pokasaga“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=153. (Sótt: 6. febrúar 2009).
Hörður Haraldsson. 1994. 250 leikir. Reykjavík. Setberg
Ingibjörg Anna Arnarsdóttir. 1998. „Málshættir“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=236. (Sótt: 24. apríl 2009).
Ingimar Ingimarsson. 1992. „Það voru að koma skilaboð“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn.
Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=202. (Sótt: 12. Febrúar
2009).
Ingvar Sigurgeirsson. (án árs.a). Leikjavefurinn - Leikjabankinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/ (Sótt 17. apríl 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. (án árs.b). Um Leikjavefinn - Leikjabankann. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=um. (Sótt: 4. febrúar 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 1999. Litróf kennsluaðferðanna. Æskan, Reykjavík.
Ingvar Sigurgeirsson. 2005. Hugþroskaleikir. Reykjavík, Kennaraháskóli Íslands.
Ingvar Sigurgeirsson. 01.01.2009.a. „3. þáttur: Leikjavefurinn – Leikjabankinn“. Leikir sem
kennsluaðferð. Vefslóð:
http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/leikjavefurinn.htm. (Sótt: 20. janúar
2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 05.01.2007.a. „10. þáttur: Gátur þrautir og heilabrjótar: Myndagátur“.
Leikir sem kennsluaðferð. Vefslóð:
http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/Flokkar_thrauta/myndagatur.htm. (Sótt:
20. janúar 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 05.01.2007.b. „10. þáttur: Gátur þrautir og heilabrjótar: Sagnagátur“.
Leikir sem kennsluaðferð. Vefslóð:
http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/Flokkar_thrauta/sagnagatur.htm. (Sótt:
20. janúar 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 05.11.2007. „10. þáttur: Gátur þrautir og heilabrjótar: Einföld töfl og
spil“. Leikir sem kennsluaðferð. Vefslóð:
http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/Flokkar_thrauta/tofl.htm. (Sótt: 23. apríl
2009).
55
![Page 57: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/57.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Ingvar Sigurgeirsson. 26.12.2008. „Markmið“. Leikir sem kennsluaðferð. Vefslóð:
http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/markmid.htm. (Sótt: 26. apríl 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 01.01.2009.b. „4. þáttur: Nafna- og kynningarleikir -
hópstyrkingarleikir / hópeflileikir“. Leikir sem kennsluaðferð. Vefslóð:
http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/nafna_og_kynningarleikir.htm. (Sótt: 1.
febrúar 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 02.01.2009. „5. þáttur: Gamlir og góðir íslenskir leikir“. Leikir sem
kennsluaðferð. Vefslóð:
http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/gamlir_og_godir.htm. (Sótt: 31. janúar
2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 10.01.2009. „6. þáttur: Leikir sem kveikjur“. Leikir sem kennsluaðferð.
Vefslóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/Leikir_sem_kveikjur.htm. (Sótt:
21. febrúar 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 14.01.2009.b. „2. þáttur: Fræðilegt sjónarhorn: Flokkar og tegundir
leikja“. Leikir sem kennsluaðferð. Vefslóð:
http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/flokkar.htm. (Sótt 16. janúar 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 20.03.2009.a. „9. þáttur: Tölvuleikir“. Leikir sem kennsluaðferð.
Vefslóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/tolvuleikir.htm. (Sótt 25. mars
2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 20.03.2009.b. „12. þáttur: Orðaleikir“. Leikir sem kennsluaðferð.
Vefslóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/ordalekir.htm. (Sótt 24. apríl
2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 21.03.2009. „8. þáttur: Námspil og flókin töfl“. Leikir sem
kennsluaðferð. Vefslóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/namsspil.htm.
(Sótt 22. mars 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 17.04.2009. „11. þáttur: Gátur, þrautir og heilabrjótar“. Leikir sem
kennsluaðferð. Vefslóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/thrautir.htm.
(Sótt 23. apríl 2009).
Ingvar Sigurgeirsson. 18.04.2009. „10. þáttur: Sönghreyfileikir“. Leikir sem kennsluaðferð.
Vefslóð: http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Leikir/Songhreyfileikir.htm. (Sótt 22.
apríl 2009).
Kennard, David (framleiðandi seríu) og Joan Saffa (framleiðandi). 2000. The Promise of play:
The Mother of Invention. Inca Productions
56
![Page 58: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/58.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Kennard, David (framleiðandi seríu) og Joan Saffa (framleiðandi). 2000. The Promise of play:
The Heart of the Matter. Inca Productions
Kristín Gísladóttir. 2005. „Kennarahluti“. Álfur, gagnvirkur vefur, gagnvirkur vefur í lífsleikni
fyrir yngstu nemendur. Vefslóð: http://www.nams.is/alfur/kennari.pdf. (Sótt: 2. apríl
2009).
Lilja Karlsdóttir. 1994. „Gálgaleikurinn“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=105. (Sótt: 24. apríl 2009).
„Lost on a Deserted Island“. 2008. Icebreakers.ws. Vefslóð: http://www.icebreakers.ws/team-
building/lost-on-a-deserted-island.html. (Sótt: 12. febrúar 2009).
Margrét Erla Guðmundsdóttir. 2006. „Spottakynning“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn.
Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=283. (Sótt: 11. febrúar
2009).
Ragna Kristjánsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir. 1994. "Tangram“. Leikjabankinn -
Leikjavefurinn. Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=80. (Sótt:
24. apríl 2009).
Rannveig Hafberg. 1993. „Töflukrossgátur“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=117. (Sótt: 24. apríl 2009).
„Sardines“. 2008. Icebreakers.ws. Vefslóð: http://www.icebreakers.ws/active/sardines-
reverse-hide-and-seek.html. (Sótt: 12. febrúar 2009).
Sigurjóna Jónsdóttir. 1994. „Gettu hvaða hlutur þetta er“ Leikjabankinn - Leikjavefurinn.
Vefslóð: http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=190. (Sótt: 9. febrúar
2009).
Sóley Ó. Elídóttir. 2007. 10x10 leikir, Hundrað skemmtilegir leikir fyrir krakka á öllum aldri.
Reykjavík. Mál og menning / Edda útgáfa hf.
„Spurningaleikir“. (án árs). Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikir&n=13. (Sótt: 9. febrúar 2009).
Steinunn Þorleifsdóttir. 1998. „Lýsingarorðasaga“. Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikur&n=152. (Sótt: 7. febrúar 2009).
„Söguleikir“. (án árs). Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikir&n=14. (Sótt: 5. febrúar 2009).
„Tenglar“. (án árs). Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=tenglar. (Sótt: 12. febrúar 2009).
57
![Page 59: notendur.hi.isingvars/namskeid/Leikir/... · Web viewScattergories is a fast-paced word game that's a real crowd pleaser. Each player takes a category list with 12 categories--such](https://reader035.vdocuments.mx/reader035/viewer/2022070619/5e27aa345110197f0125a3f2/html5/thumbnails/59.jpg)
Námsmappa - Leikir sem kennsluaðferð Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Una Margrét Jónsdóttir. 2007. „Er eitthvað vitað um uppruna romsunnar "úllen dúllen
doff..."?“. Vísindavefurinn 5.12.2007. http://visindavefur.is/?id=6943. (Skoðað
26.4.2009).
Wardle, Francis. 2008. Play as Curriculum. Vefslóð:
http://www.earlychildhoodnews.com/earlychildhood/article_view.aspx?ArticleID=127.
(Sótt 17. Janúar 2009).
„Ýmsir námsleikir“. (án árs). Leikjabankinn - Leikjavefurinn. Vefslóð:
http://www.leikjavefurinn.is/index.php?f=leikir&n=18. (Sótt: 6. febrúar 2009).
58