hrafnkell sigurðsson
DESCRIPTION
ÂTRANSCRIPT
Hrafnkell Sigurðsson
Afhjúpun/Opinberun I2014bleksprautuprent144 x 96 cm
Afhjúpun/Opinberun IX2014bleksprautuprent144 x 96 cm
Afhjúpun/Opinberun VI2014bleksprautuprent144 x 96 cm
Í eigu Arion banka
Afhjúpun/Opinberun IV 2014bleksprautuprent144 x 96 cm
Sýning á verkum Hrafnkels Sigurðssonar í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 8. nóvember 2014 til 20. febrúar 2015
Með leyfi listamannsins og i8 gallerís
Steypugetnaður a.,b.,c.,d.,e.,f. 2014bleksprautuprent55 × 41.25 cm
Smíð 1 2013bleksprautuprent2x 76 x 116 cm
Hliðar V 2012Bleksprautuprent (Diasec)2x 156 x 125 cm
Hliðar III2012Bleksprautuprent (Diasec)2x 156 x 125 cm
Með leyfi listamannsins og i8 gallerís
Autocast no. 01 - 10 2011bleksprautuprent29 x 39 cm
Eruption (3) 2010Bleksprautuprent (Diasec), triptych100 x 75 cm / 100 x 150 cm
Eruption (2) 2010Bleksprautuprent (Diasec), triptych100 x 75 cm / 100 x 150 cm
Í eigu Arion banka
Upplyft (2) 2008Bleksprautuprent (Diasec)200 x 120 cm
Upplyft (1) 2008Bleksprautuprent (Diasec)200 x 120 cm
Áhöfn 13 2007Bleksprautuprent (Diasec)119 x 84 cm
Með leyfi listamannsins og i8 gallerís
Áhöfn 52006Bleksprautuprent (Diasec)119 x 84 cm
Áhöfn 1 2006Bleksprautuprent (Diasec)119 x 84 cm
Í eigu Nauthóls
Áhöfn 3 2006Bleksprautuprent (Diasec)119 x 84 cm
Án titils2003Bleksprautuprent (Diasec)85 x 125 cm
Sixth Conversion 2007Bleksprautuprent (Diasec), triptych 110 x 165 cm / 110 x 330 cm
Án titils2004Bleksprautuprent (Diasec)91 x 125 cm
Án titils2004Bleksprautuprent (Diasec)91 x 125 cm
Í einkaeigu
Nýbygging 11 2001-2004C-prent120 x 140 cm
Í einkaeigu
Nýbygging 52001-2004C-prent120 x 140 cm
Nýbygging 32001-2004C-prent120 x 140 cm
Í einkaeigu
Með leyfi listamannsins og i8 gallerís
Nýbygging 9 2001-2004C-prent120 x 140 cm
Í eigu Friðþjófs K. Eyjólfssonar
Án titils2000Bleksprautuprent (Diasec) 74,5 x 110 cm
Án titils 2001Bleksprautuprent (Diasec) 110 x 163 cm
Í eigu Arion banka
Án titils 2001 Bleksprautuprent (Diasec)96 x 140 cm
Án titils 2001 Bleksprautuprent (Diasec)96 x 140 cm
Fjall 1 1997bleksprautuprent47 x 70 cm
Fjall 2 1997bleksprautuprent47 x 70 cm
Fjall 5 1997bleksprautuprent47 x 70 cm
Speglað landslag 2 1996Bleksprautuprent (Diasec)220 x 120 cm
Speglað landslag 3 1996Bleksprautuprent (Diasec)196.6 x 128 cm
Með leyfi listamannsins og i8 gallerís
NÁTTÚRA OG LIST, EN EINNIG RUSL Meginviðfangsefni Hrafnkels Sigurðssonar er samband manns og náttúru. Ljósmyndaröðin, Speglað landslag, frá 1996, sýnir okkur hraunmyndir líkar þeim sem voru Kjarval og fleiri íslenskum málurum á síðustu öld svo hugleiknar. Þar með lýkur þó samanburðinum vegna þess að þær kynja-myndir sem við sjáum í hrauninu eru ekki af náttúrunnar hendi heldur af manna völdum og af tæknilegum toga, myndefninu er speglað um lóð- réttan ás og hraunið umbreytist í eitthvað allt annað og ónáttúrulegra. Í þeim myndaröðum sem eftir komu – Fjöll, Tjöld, og Nýbyggingar - er náttúran ekki lengur í forgrunni. Áður en við náum að gefa okkur á vald víðerni landslagsins er alltaf eitthvað sem þröngvar sér inn á milli áhorfanda og landslags og truflar útsýnið, eitthvað mannlegt og forgengilegt. Í staðinn fyrir fjallasýn í fjarska er snjóruðningur á bílaplani, á frosinni auðninni eru litrík tjöld úr gerviefnum og á holtum standa hálfbyggðar nýbyggingar.
En svo er líka rusl. Í mörgum myndaröðum Hrafnkels - Fylling, Conversion, og Upplyft - er rusl og sorp ekki aðeins gert sýnilegt í litríkum hrúgum, heldur verður það yfirþyrmandi í endalausri iðandi breiðu. Hvernig kemur rusl inn í myndina? Hvaða hlutverki gegnir rusl í sambandi manns við náttúru?
List og rusl eru hvort á sínum enda á litrófi menningarinnar. List, sem er þegar best lætur einstök og ódauðleg, er pólandstæðan við rusl, einskis nýtan úrgang sem enginn lítur við. Rusl er stöðug áminning til okkar um hversu ónáttúruleg tilvera okkar er, því er þröngvað upp á náttúruna, sem tekur við því að lokum. Rusl myndar annars konar snertiflöt milli menningar og náttúru; allt sem er afgangs og úr sér gengið, sem þarf að losna við og láta hverfa er grafið í jörðu, hent í sjóinn eða brennt út í andrúmsloftið. Í ein-hverjum skilningi endar öll menning, og list þar með talin, sem rusl. Og ruslið hverfur aftur til náttúrunnar.
Í myndaröðinni Conversion, sem getur ýmist þýtt umbreyting eða sinna-skipti, er ljósmynd af ruslabreiðu speglað á tveimur vængjahurðum, þar sem formlaus kös úrgangs brotnar sundur og eyðist. Þegar vængirnir eru opnaðir blasir við tær og köld sýn ofan af heiði, í kyrrð og þögn.
Sömu umskipti er að finna í nýjustu myndaröð Hrafnkels, Opinberun eða Revelation, sem má bæði skilja sem opinberun og afhjúpun. Úr fjarlægð gefur að líta undurfögur silfurlituð klæði sem blakta í blágrænni móðu. Það er ekki fyrr en myndirnar eru skoðaðar náið að sést að klæðið með silki-áferðinni er í raun kúluplast sem flýtur og bylgjast í vatni. Ekki er allt sem sýnist, gæti maður hugsað með sér, ekki aðeins vegna þess að fljótandi rusl getur búið yfir svo náttúrulegri og eðlilegri ásýnd, heldur vegna þess hve línan er þunn á milli upphafinnar fegurðar og formlausrar óreiðu. Opin-berunin, sem titill myndaraðarinnar vísar til, felst ef til vill í því að uppgötva að ef list hefur einhverju hlutverki að gegna í málefnum manna og náttúru, þá er það að afhjúpa kyrrðina á bak við óreiðuna og viðkvæmt jafnvægið í síkvikulli óreglunni, hvort sem er í mannlegri tilveru eða náttúrulegri skipan.
Gunnar J. Árnason