fréttabréf grunnskólans í borgarnesi

4
Nýr skólastjóri Signý Óskarsdóttir hefur verið ráðinn skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi og kemur til starfa í grunnskólann frá Háskólanum á Bifröst þar sem hún hefur starfað og stundað nám á liðnum árum, nú síðast sem framkvæmdastjóri kennslu og þjónustu. Ráðning hennar markar tímamót í sögu grunnskólans þar sem hún verður fyrsta konan til að stýra honum frá upphafi. Signý hefur réttindi sem grunn- og framhaldsskólakennari og hefur meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún starfaði við kennslu í 6 ár við Grunnskólann á Djúpavogi þar sem hún bar einnig ábyrgð á tölvuveri og bókasafni í nokkur ár. Hún gegndi tímabundið starfi sveitarstjóra Djúpavogshrepps og stöðu framkvæmdastjóra heilsugæslunnar á Djúpavogi og Breiðdalsvík auk þess sem hún hefur síðustu ár sinnt krefjandi störfum á Bifröst. Meðal verkefna þar má telja umsjón með fjarnámi, gæðastjórnun, kennsluráðgjöf og nú síðast framkvæmdastjórn á háskólaskrifstofu. Signý situr í tveimur hópum sérfræðinga sem tilnefndir eru af Mennta - og menningarmálaráðuneytinu og hafa það hlutverk, í stuttu máli, að innleiða, miðla og efla verklag í kringum mat á gæðum náms og kennslu á háskólastigi. Signý mun taka við starfi skólastjóra um áramót en er nú þegar farin að setja sig inn í dagleg störf og hefur mætt á fundi með stjórnendum og starfsfólki skólans. Starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi þakkar Kristjáni Gíslasyni fyrir óeigingjörn störf í þágu skólans undanfarin 15 ár um leið og honum er óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi. Einnig fær Hilmar Már Arason þakkir fyrir vel unnin störf í afleysingu skólastjóra það sem af er skólaárinu. Fréttabréf 3. tbl. skólaárið 20132014

Upload: oskar-birgisson

Post on 10-Mar-2016

215 views

Category:

Documents


2 download

DESCRIPTION

3. tbl. skólaárið 2013 - 2014

TRANSCRIPT

Page 1: Fréttabréf Grunnskólans í Borgarnesi

Nýr skólastjóri

Signý Óskarsdóttir hefur verið ráðinn skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi og

kemur til starfa í grunnskólann frá Háskólanum á Bifröst þar sem hún hefur

starfað og stundað nám á liðnum árum, nú síðast sem framkvæmdastjóri

kennslu og þjónustu. Ráðning hennar markar tímamót í sögu grunnskólans þar

sem hún verður fyrsta konan til að stýra honum frá upphafi.

Signý hefur réttindi sem grunn- og framhaldsskólakennari og hefur

meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún starfaði við

kennslu í 6 ár við Grunnskólann á Djúpavogi þar sem hún bar einnig ábyrgð á

tölvuveri og bókasafni í nokkur ár. Hún gegndi tímabundið starfi sveitarstjóra

Djúpavogshrepps og stöðu framkvæmdastjóra heilsugæslunnar á Djúpavogi og

Breiðdalsvík auk þess sem hún hefur síðustu ár sinnt krefjandi störfum á

Bifröst. Meðal verkefna þar má telja umsjón með fjarnámi, gæðastjórnun,

kennsluráðgjöf og nú síðast framkvæmdastjórn á háskólaskrifstofu.

Signý situr í tveimur hópum sérfræðinga sem tilnefndir eru af Mennta- og

menningarmálaráðuneytinu og hafa það hlutverk, í stuttu máli, að innleiða,

miðla og efla verklag í kringum mat á gæðum náms og kennslu á háskólastigi.

Signý mun taka við starfi skólastjóra um áramót en er nú þegar farin að setja

sig inn í dagleg störf og hefur mætt á fundi með stjórnendum og starfsfólki

skólans.

Starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi þakkar Kristjáni Gíslasyni fyrir

óeigingjörn störf í þágu skólans undanfarin 15 ár um leið og honum er óskað

velfarnaðar á nýjum vettvangi. Einnig fær Hilmar Már Arason þakkir fyrir vel

unnin störf í afleysingu skólastjóra það sem af er skólaárinu.

Fréttabréf 3. tbl. skólaárið 2013—2014

Page 2: Fréttabréf Grunnskólans í Borgarnesi

Dagskráin í desember Stundatöflur nemenda munu

halda sér nú í desember að

frátöldum 20. desember. Þá hefst

skóli kl. 9:00. Skólabíll

innanbæjar mun fara kl. 8:40 og

8:55 úr Bjargslandi. Skólabílar úr

dreifbýli fara 1 klst. seinna af stað

en venjulega.

Stofujól verða kl. 9:00, undir

stjórn umsjónarkennara. Kl. 10:20

höldum við niður í íþróttamiðstöð

þar sem litlu jólin verða haldin

hátíðleg með leik og dansi.

Foreldrar eru boðnir velkomnir í

íþróttamiðstöðina á þessum tíma

til að gleðjast með okkur.

Reiknað er með að þessum

skóladegi ljúki um 12:00.

Skóli mun svo hefjast að nýju

samkvæmt stundatöflu

mánudaginn 6. janúar. Starfsfólk

mætir til starfa föstudaginn 3.

janúar.

Tómstundaskólinn Skjólið

Síðasti dagurinn sem Skjólið er opið

er fimmtudagurinn 19. desember og

opnar það aftur mánudaginn 6.

janúar.

Niðurstöður samræmdra prófa

Niðurstöður samræmdra prófa voru

góðar nú í haust. Nemendur voru við

eða yfir landsmeðaltali í fjórum af

sex greinum þar sem meðaleinkunnir

voru gefnar upp. Í fimm prófum af

sex var skólinn yfir meðaleinkunn

landsfjórðungsins. Af 81 nemanda

sem tóku próf voru 15 nemendur

með raðtöluna 90 eða hærri, þ.e. 90%

nemenda á landsvísu voru með lægri

einkunn. Ánægjulegt var að sjá

útkomu nemenda í tíunda bekk en

þeir höfðu hækkað meðaltal raðtölu

bekkjarins um 50% frá því í fjórða

bekk.

100 ár frá vígslu skólahúsnæðis

Fyrir rúmum 100 árum, 8. nóvember

1913 var nýtt barnskólahús vígt í

Borgarnesi. Af þessu tilefni voru

fengin tvö skáld sem þá voru í

miklum metum þeir Guðmundur

Guðmundsson og Valdimar Briem til

að yrkja vígsluljóð sem sungin voru

við skólavígsluna (hægt að nálgast

þau á heimsíðu skólans). Þetta

skólahús stendur enn og er fremsti

(vestasti) hluti félagsmiðstöðvarinnar

Óðals.

Í bókinni Hundrað ár í Borgarnesi

Page 3: Fréttabréf Grunnskólans í Borgarnesi

til drykkjar.

Eldavélar í heimilisfræðistofu

voru endurnýjaðar.

Leiktæki í tengslum við

vinaliðaverkefnið keypt.

Stórri klukku verður komið

fyrir í vinnuherbergi kennara

svo nemendur geti fylgst með

tímanum í útivistinni.

Fyrir þetta ber að þakka og

mikilvægt er að haldið verði áfram

með markvissum hætti á sömu

braut. Skólahúsnæðið og búnaður

verður að uppfylla þær kröfur sem

gerðar eru til nútíma skóla. Til að

svo megi verða er mikilvægt að

unnin verði framkvæmda- og

viðhaldsáætlun fyrir skólann sem

hafi það að markmiði að bæta

aðstæður í skólanum til lengri

tíma. Við gerð slíkrar áætlunar

þurfa raddir allra aðila

skólasamfélagsins að heyrast og

áætlunin þarf að taka mið af þeim.

sem Jón Helgason skráði segir að

skólavígslan þótti hinn mesti

viðburður. Allir Borgarnesingar

sem vettlingi gátu valdið flykktust

í nýja skólahúsið, fyrstu sameign

þeirra allra.

Mannabreytingar

Frá og með áramótum koma þrír

nýir starfsmenn til starfa við

skólann. Það eru Signý

Óskarsdóttir skólastjóri,

Guðmundur Jónsson húsvörður og

nýr kennari í eldri deild skólans,

sem á eftir að ráða. Bjóðum við

þetta nýja fólk velkomið til starfa í

öflugan hóp starfsfólks skólans.

Þeir sem láta af störfum eru

Kristján Þ. Gíslason skólastjóri,

Gísli Halldórsson húsvörður og

Hólmfríður Sigrún Gylfadóttir

kennari. Þökkum við þeim fyrir vel

unnin störf fyrir skólann og óskum

þeim velfarnaðar í þeim verkefnum

sem þau taka sér fyrir hendur.

Framkvæmdir

Nú á haustdögum hefur verið

haldið áfram að sinna brýnustu

viðhaldsverkefnum í skólanum. Má

þar helst nefna:

Stofa 12, miðrýmið á

miðstiginu,

sérfræðingaherbergið,

vinnuherbergi kennara og

kaffistofa starfsfólks var

dúkalögð í vetrarfríinu.

Sírennsli var sett á kalda vatnið

svo nú á það að vera orðið betra

Page 4: Fréttabréf Grunnskólans í Borgarnesi

Upplýsingastreymi til foreldra

Í byrjun nóvember var stofnuð facebook síða fyrir skólann. Þar eru komnar

inn ýmsar myndir af viðburðum úr skólastarfinu. Undirtektir hafa verið

frábærar og „umferð“ um síðuna er mikil. Sem dæmi má nefna að um 320

manns höfðu farið inn á frétt sem Hólmfríðar Ólafsdóttir kennari setti inn

um heimsókn leynivinar, sólarhring eftir að hún birtist og rúmlega 800

manns hafa skoðað myndir tengdar Vinaliðadansinu.

Við höfum uppfært heimasíðu skólans og einfaldað. Breytt uppsetningu og

framsetningu Fréttabréfs skólans sem kemur út einu sinni í mánuði. Í það

geta allir í skólasamfélaginu skrifað greinar. Við höldum áfram að gefa út

Vikufréttarnar, enda bara fengið jákvæð viðbrögð við þeim.

Skólaráð hefur fundað einu sinni í mánuði og hægt er að nálgast

fundargerðir ráðsins á heimasíðu skólans.

Margir kennarar senda foreldrum tölvupósta með upplýsingum um hvað er

um að vera í þeirra kennslu, sumir vikulega en aðrir óreglulega. Ber að

þakka kennurum fyrir þessa upplýsingagjöf sem upplýsir foreldra betur um

það góða starf sem unnið er undir merkjum skólans.

Jólasamvera

Ef veður leyfir þá ætlum við í skólanum að eiga saman notalega

jólasamveru í Skallagrímsgarði þriðjudaginn 17. desember kl. 8:30.

Vinabekkirnir fara saman og nemendur verða með krukkur með kertum í.

Sungin verða jólalög, drukkið heitt súkkulaði og piparkökur snæddar.

Nemendur eru beðnir um að koma með krukkur undir sprittkerti og glös

fyrir súkkulaðið.

Velunnarar skólans eru boðnir velkomnir.

Stjórnendur og starfsfólk skólans óska íbúum Borgarbyggðar gleðilegra jóla og

farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegt og gott samstarf

Fréttabréf Grunnskólans í Borgarnesi.

Útgefandi: Grunnskólinn í Borgarnesi.

Ábm.: Hilmar Már Arason.