ert þú góður greinandi? · 2017. 3. 4. · umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2016...
TRANSCRIPT
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | Fax 563 9309 | [email protected] | www.landsnet.is
Ert þúgóður greinandi?
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2016 Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir ([email protected]) og Þóra Pétursdóttir ([email protected]) hjá Capacent.
Landsnet ber ábyrgð á flutningskerfi raforku sem er einn af mikilvægustu innviðum samfélagsins. Verkefni fyrirtækisins er að tryggja heimilum og fyrirtækjum aðgang að rafmagni í takt við þarfir, í sátt við umhverfi og samfélag. Landsnet er góður vinnustaður þar sem samhentur hópur leysir fjölbreytt verkefni.
Um Landsnet
Menntunar og hæfniskröfur
• Menntun á sviði hagfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur
• Reynsla af greiningu fjármálaupplýsinga og hagfræðilegra gagna
• Frumkvæði, sjálfstæði, rík greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
• Reynsla af miðlun upplýsinga í töluðu og rituðu máli og hæfileiki til að setja fram efni á skýran hátt
Í boði er áhugavert starf í greiningum á fjármálasviði Landsnets. Í starfinu felst ábyrgð á fjárhagslegum greiningum bæði á innra og ytra umhverfi, kostnaðarmati og hagrænum úttektum. Ábyrgð á mati rekstrarverkefna, þátttaka í arðsemismati stærri verkefna, samskipti varð andi tekjumörk og þátttaka í gjaldskrárgreiningum. Starfið krefst frumkvæðis og áhuga á sviði orkumála.
Framundan er mikil uppbygging í flutningskerfinu. Hjá Lands neti er lögð vaxandi áhersla á greiningar tengdar fjárfestingarkostum, rekstri og ytri þáttum í rekstrarumhverfi félagsins, þar á meðal markaðsmálum og málefnum tengdum samfélagslegri ábyrgð.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | Fax 563 9309 | [email protected] | www.landsnet.is