Transcript
Page 1: Íbúinn 19. september 2013

ÍBÚINNfrétta- og auglýsingablað

27. tbl. 8. árgangur 19. september 2013

ReikningarNótubækur

EyðublöðFjölritunar- og

útgáfuþjónustan s: 437 2360

Það liggja mörg handtökin að baki hjá félögum í Fornbílafj elagi Borgarfj arðar í gamla gærukjallaranum í Brákarey þar sem nú er myndarlegt

samgöngusafn sem aðallega sýnir gamla og glæsilega bíla sem margir tengjast héraðinu með einum eða öðrum hætti. Safnið er opið alla laugardaga í

vetur kl. 13-17.

Á myndinni eru þeir Kristján Andrésson formaður húsnefndar, Örn Símonarson viðhaldsstjóri, Sigurður Þorsteinsson safnstjóri og Ólafur Helgason

formaður Fornbílafj elagsins framan við „Móra“ sem er Ford árgerð 1931 og Kaupfélag Borgfi rðinga keypti nýjan á sínum tíma. Á þriðjudagskvöldum kl. 19-

22 hittast menn til skrafs og ráðagerða, kaffi er á könnunni og glatt á hjalla. Myndin er einmitt tekin við slíkt tækifæri. Mynd: Olgeir Helgi

Vetrardagskrá Land náms-setursins í Borgarnesi hefst föstudaginn 27. september með frumsýningu á „Ómar æskunnar.“ Þar mun Ómar Ragnarsson segja ævisögu sína, tala í alvöru og spaugi, tengja atburði og fólk frá æskuárum við atburði og fólk síðari tíma.

Í október stígur Einar Kárason rithöfundur á stokk með Íslenskar hetjur frá Gretti til Péturs Hoffmans. Einar er

sögumaður af guðs náð og hefur áður sýnt það og sannað í skemmtilegum og fræðandi frásögnum á Söguloftinu bæði af samtímamönnum og fornum köppum.

Þann 16. nóvember koma svo félagarnir Maggi Eiríks og KK og fara í gegnum sitt fimmtán ára brall eins og þeim einum er lagið.

Í desember verða systkinin KK og Ellen með hugljúfa

jólatónleika.Baróninn á Hvítárvöllum

mætir svo á fjalirnar 10. janúar. Þar mun Þórarinn Eldjárn rekja dularfulla ævi þessarar sérkennilegu söguhetju sinnar sem skildi eftir sig mörg spor í Borgarfirðinum.

Þann 6. febrúar mun spunahópurinn Voces Spontane og klarinettutvennan Stump – Linshalm bjóða uppá sameiginlega spunatónleika.

Vetrardagskrá Landnámsseturs

Page 2: Íbúinn 19. september 2013

Netfang: [email protected]

Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan

Ritstj. og áb.: Olgeir Helgi Ragnarsson

ÍBÚINNfrétta- og auglýsingablað

Auglýsingasími: 437 2360

Viðburðadagatalfi 19/9-17:30 Safnahús Borgarfj ; Opnuð

minningarsýning um Hallstein Sveinsson

fö 20/9 Klettaborg; foreldrafundur

fö 20/9-19:15 Fyrirtækjabikarinn KFÍ-

Skallagrímur

la 21/9 Reynisrétt undir Akrafj alli

su 22/9 Rauðsgilsrétt í Hálsasveit

la 21/9-13:30 UMSB ganga; Gestabók

sótt á Snók.

su 22/9-10:00 Hvanneyri; Sverrismótið

í knattspyrnu

su 22/9-19:15 „Fjósið“ Fyrir tækja-

bikarinn; Skallagrímur-Stjarnan

fi 26/9-17:45 Óðal; Foreldrafundur v.

heilsuefl ingar og tannheilsu

Annað í gangi:Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-17 alla dagaCafe Vinyl opið þri-fö 10-21, má 10-18Edduveröld o.vd. 10-23 & 10-01 helgar Hamarsvöllur; pútt fyrir eldri borgara fi mmtudaga kl. 14.00Heiðarborg; Vatnsleikfi mi opin öllum

þri kl. 15 og lau kl. 10Íþróttamiðst.Bgn. Frjálsíþróttaæfi ngar

þri & fi kl. 17.00-18.30Íþróttamiðst.Bgn. Boccia lau 11-12Landbúnaðarsafnið o. eftir samkomulagiLandnámssetur opið daglega 10-21Laxárbakki opið alla daga 10-22Nytjamarkaður Brákarey laugd. 12-16Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagiRKÍ fatabúð Bgn o. fö 12-18 & lau 12-15Safnahús Borgarfj arðar alla daga 13-17Samgöngusafnið þri 19-22 lau 13-17 s. 862 6223 & 692 5201Snorrastofa sýningar alla dagaUllarselið opið fi -fö-lau kl. 13-17Veiðisafnið Ferjukoti eftir samkomulagiÞórisstaðir húsdýragarður opið 10-17

Birting viðburða er án endurgjalds og tímasetningar ekki sannreyndar

BARNAHORNIÐ

Hönnum og prentumallskonar boðskort

Fjölritunar- og útgáfuþjónustanKveldúlfsgötu 23 - Borgarnesi - s 437 2360

[email protected]

Hér er lítil þraut í

tilefni leita og rétta

Page 3: Íbúinn 19. september 2013

ÍBÚINNfer inn á öll heimili og

fyrirtæki í póstnúmerum 301, 310, 311, 320 og 356

Láttu vita af þér! - Auglýsing í Íbúanum kemst til skila

Auglýsingasími: 437 2360

Heilsuefl ing

og tannheilsa

Leikskólinn Klettaborg stendur fyrir foreldrafundi vegna heilsueflingar og tannheilsu í Óðali fimmtu-daginn 26. september nk kl. 17.45.

Foreldrar eru hvattir til að mæta og kynna sér þetta skemmtilega verkefni sem leikskólinn er að vinna að. Aðilar frá Embætti landlæknis munu sjá um kynningua en verkefnið er unnið í samstarfi við Embætti landlæknis.

Körfuknattleiksdeild Skalla-gríms er að bætast liðsstyrkur þessa dagana. Hinn stóri og stæðilegi miðherji Grétar Ingi Erlendsson gekk í raðir liðsins frá

Þór í Þorlákshöfn fyrir skömmu. Grétar Ingi hefur leikið með Þórsurum í áraraðir en hann er tveir metrar á hæð og fæddur árið 1983. Á síðustu leiktíð skoraði Grétar 9,5 stig að meðaltali í leik og tók 5,6 fráköst. Grétar gerði eins árs samning við Skallagrím, en í samningnum er möguleiki á framlengingu.

Þá er síðar í mánuðinum von á Bandaríkjamanninum Mychal Greene en samningur hans við liðið er einnig til eins árs. Mychal er fæddur árið 1983, en hann er 193 cm á hæð og leikur stöðu bakvarðar. Síðasta leiktímabil lék hann með liði Soluvre í lúxemborgsku úrvalsdeildinni og var með bestu mönnum liðsins - skoraði 26,3 stig, tók 8,4 fráköst og gaf 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik. Í háskóla í Bandaríkjunum lék hann í

N C A A d e i l d i n n i en hann útskrifaðist árið 2006.

Áður en hann gekk til liðs við Soluvre lék hann með liðum í Þýskalandi, Bretlandi og Nýja-Sjálandi við góðan orðstír.

Liðsstyrkur til Skallagríms

Bjarki Þorsteinsson og Grétar Ingi Erlendsson

handsala samninginn. Mynd: Finnur Jónsson

Mychal Greene

Page 4: Íbúinn 19. september 2013

Körfuknattleikur - BikarkeppniSunnudaginn 22. sept. kl. 19.15

Skallagrímur - Stjarnan

Fjölmennum í “ Fjósið” og styðjum okkar lið!

Í dag er opnuð ný sýning í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi þar sem sögð er saga Hallsteins Sveinssonar (1903-1995) frá Eskiholti í Borgarhreppi. Hallsteinn var mörgum kunnur, ekki síst í listheiminum. Lífsskoðanir hans voru á margan hátt áhugaverðar og líf hans samtvinnað merkum kafla í listasögu landsins. Í sýningunni er lögð áhersla á hugsjónir hans og persónuleika sem laðaði að sér marga af þekktustu myndlistarmönnum Íslands. Meðal þess sem sjá má er hvernig þeir myndgerðu þennan hollvin sinn í teikningum, málverkum og höggmyndum.

Á sýningunni eru m.a. verk eftir Ragnar Kjartansson, Kjarval, Hafstein Austmann,

Pál Guðmundsson frá Húsafelli, Þorvald Skúlason, Kristján Davíðsson, Jóhann Briem, Þorbjörgu Höskuldsdóttur og Nínu Tryggvadóttur.

Sérstök áhersla er á verk Ásmundar Sveinssonar mynd-höggvara, bróður Hallsteins, en veigamikill þáttur í hugsjón hans var að miðla verkum Ásmundar í Borgarfjörðinn og átti hann

m.a. stóran þátt í að verkið Sonatorrek var sett upp við Borg á Mýrum árið 1985.

Hallsteinn var fæddur í vestur Dölum en flutti ásamt foreldrum sínum í Eskiholt árið 1925. Hann stundaði nám í Íþróttaskólanum í Haukadal árið 1930, en var búsettur í Reykjavík frá 5. áratugnum. Þar starfaði hann sem smiður og handverksmaður, en var alla tíð mikill listunnandi, umgekkst listamenn mikið og rammaði inn mikið af verkum þeirra. Hann átti þegar fram liðu stundur mikið og merkilegt safn listaverka.

Hallsteinn flutti í Borgarnes árið 1971 og gaf þá listasafn sitt þangað ásamt peningagjöfum. Hann bjó síðustu æviár sín á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.

Sýning um Hallstein


Top Related