bíó paradís

16
T I L N EF N I N G T I L M E N N I N G A R V E R Ð LA U N A D V 2011

Upload: asgrimur-sverrisson

Post on 12-Mar-2016

232 views

Category:

Documents


2 download

DESCRIPTION

Dagskrá Bíó Paradísar mars 2011.

TRANSCRIPT

Page 1: Bíó Paradís

TILNEFNING TIL MEN

NINGARVERÐLAUN

A D

V 2011

Page 2: Bíó Paradís

BLS 2 / MARS 2011

Bíó Paradís er rekið af sjálfseignarstofnuninni

Heimili kvikmyndanna ses.

Stjórn:Ari Kristinsson, form.

Hrafnhildur GunnarsdóttirRagnar Bragason

Aðsetur:Hverfi sgata 54, 101 Reykjavík

Sími: 411 7712

Vefur:www.bioparadis.is

Framkvæmdastjóri:Lovísa Óladóttir

[email protected]

Dagskrárstjóri:Ásgrímur Sverrisson

[email protected]

Rekstrarstjóri:Reynir Berg Þorvaldsson

[email protected]

Dagskrárráð:Anna María Karlsdóttir

Friðrik Þór FriðrikssonHalla Kristín Einarsdóttir

Ottó Geir BorgVera Sölvadóttir

Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.

Miðasala:Opnar hálftíma fyrir fyrstu sýningu.Sími:411 7711

Miða er einnig hægt að kaupa á midi.is.

Margskonar afsláttarkjör eru í boði á bioparadis.is/adgangskort.

Sýningatíma dagsins og vikunnar má sjá á forsíðu vefsins: www.bioparadis.is.

Kaffi hús/bar:Opnar hálftíma fyrir fyrstu sýningu. Kaffi , léttvín, bjór, léttar veitingar. Einnig er úrval mynddiska til sölu.________________________

Bíó Paradís er rekið með stuðningi Reykjavíkurborgar og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Page 3: Bíó Paradís

GÓÐIR GESTIR Í MARSÁ fyrstu sjö starfsmánuðum bíósins hafa tugþúsundir gesta komið að sjá hátt í 200 kvikmyndir frá 14 þjóðlöndum. Bíómyndir, heimildamyndir, stuttmyndir, tilraunamyndir, nýjar sem gamlar. Til samanburðar sýna hin kvikmyndahúsin saman-lagt um 180 kvikmyndir á ári, langfl estar eru nýjar bandarískar bíómyndir. Við áætlum að sýna vel á fjórða hundrað kvikmyndir á okkar fyrsta starfsári sem endar í ágústlok.

Nýjar myndir í marsmánuði koma frá Bretlandi og Banda-ríkjunum, auk þess sem við sýnum nýjar og nýlegar þýskar kvikmyndir á sérstökum Þýskum kvikmyndadögum. Þar er lögð sérstök áhersla á kvikmyndir um ungt fólk á krossgötum.

Sérstakar sýningar verða á japönskum gamanmyndum frá síðustu tveimur áratugum, í samvinnu við sendiráð Japans á Íslandi. Aðgangur að þessum sýningum er ókeypis.

Marsmánuður er helgaður franska meistaranum Jacques Demy hvers myndir er óhætt að telja með helstu gersemum kvikmyndasögunnar. Má þar t.d. nefna Regnhlífarnar í Cher-bourg með Catherine Deneuve og Lola með Anouk Aimeé. Sýningarnar eru í samstarfi við Alliance Francaise.

MARS 2011 / BLS 3

Þá viljum við vekja sérstaka athygli á heimsókn hins kunna bandaríska framleiðanda Christine Vachon. Hún mun halda fyrirlestur um framleiðslu óháðra kvikmynda í heiminum, en Vachon hefur framleitt myndir margra af helstu óháðu leik-stjórum Bandaríkjanna, eins og t.d. Todd Haynes, Todd Sol-ondsz, Rose Troche, Mark Romanek og Mary Harron. Við munum einnig sýna úrval þeirra mynda sem hún hefur framleitt.

Að síðustu minnum við á hinar fjölbreyttu sérsýningar sem eru fastur liður í bíóinu. Í mars bætist við ný dagskrá helguð sci-fi myndum, auk þess sem áfram er boðið uppá hrollvekjur, költmyndir, arkitektúr í kvik-myndum og fjölmargt annað.

PS: Á dögunum fengum við tilnefningu til Menningarverð-launa DV 2011. Við þökkum kærlega fyrir það!

Góðar stundir í Paradís!

Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands sækja reglulega tíma í kvikmynda-sögu auk annars í Bíó Paradís.

KVIK

MYN

DA

SKÓ

LI ÍS

LAN

DS

Page 4: Bíó Paradís

BLUE VALENTINEÍ BLÁUM SKUGGA____________________________________________________________________

TEGUND OG ÁR: LEIKIN MYND, 2010 / LENGD: 112 MÍN. / LAND: BANDARÍKIN / TEXTI: ÍSLENSKUR / LEIKSTJÓRI: DEREK CIANFRANCE / AÐALHLUTVERK: RYAN GOSLING, MICHELLE WILLIAMS.____________________________________________________________________

Myndin lýsir giftu pari, Dean og Cindy, og skiptir milli mismunandi tímaskeiða í sambandi þeirra; upphafsins þegar þau kynntust og núsins þar sem sambandið hangir á bláþræði.

Michelle Williams var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni. Myndin hefur auk þess hlotið fjölda verðlauna og tilnefn-inga. Roger Ebert segir hana lýsa “með mikilli næmni upphafi og hnignun sambands. Þessi mynd verður til í smáatriðunum.”

SÝND FRÁ 11. MARS Sýningatímar dagsins og vikunnar á forsíðu bioparadis.is

BLS 4 / NÝJAR MYNDIR / MARS 2011

Michelle Williams og Ryan Gosling eru einhverjir áhugaverðustu ungu leikar-arnir vestanhafs í dag og þykja standa sig afbragðsvel í Blue Valentine.

Page 5: Bíó Paradís

MARS 2011 / NÝJAR MYNDIR / BLS 5

FOUR LIONSFJÖGUR LJÓN____________________________________________________________________

TEGUND OG ÁR: LEIKIN MYND, 2010. LENGD: 97 MÍN. LAND: BRETLAND. TEXTI: ÍSLENSKUR. LEIKSTJÓRI: CHRIS MORRIS. AÐAL-HLUTVERK: WILL ADAMSDALE, RIZ AHMED OG ADEEL AKHTAR.____________________________________________________________________

Hópur einbeittra en afar lánlausra hryðjuverkamanna frá Sheffi eld, Englandi leggja á ráðin um sjálfsmorðssprengjuárás í borginni.

Kolsvört bresk kómedía sem vakti gríðarlega athygli þegar hún var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni á síðasta ári. Chris Morris vann nýlega til BAFTA verðlauna fyrir þessa frumraun sína. Þá hefur myndin hlotið afbragðs dóma gagnrýnenda og var m.a. valin ein af 10 bestu myndum ársins 2010 í Time Magazine.

SÝND FRÁ 25. MARS Sýningatímar dagsins og vikunnar á forsíðu bioparadis.is

Einbeittir en frekar lánlausir hryðjuverkamenn í Bretlandi vilja vega mann og annan í Four Lions eftir Chris Morris, meinfyndinni gamanmynd sem fengið hefur afbragðs dóma.

Í SAMVINNU VIÐ

Page 6: Bíó Paradís

BLS 6 / JAPÖNSK KVIKMYNDAHELGI / MARS 2011

GRÍN OG GAMANFRÁ JAPAN____________________________________________________________________

SENDIRÁÐ JAPANS Á ÍSLANDI BÝÐUR ÞÉR UPPÁ ÚRVAL JAPANSKRA KVIKMYNDA, SEM NOTIÐ HAFA MIKILLA VINSÆLDA Í HEIMALANDINU. MYNDIRNAR ERU SÝNDAR FRÁ FIMMTUDEGINUM 10. MARS TIL SUNNUDAGSINS 13. MARS MEÐ ENSKUM TEXTA. AÐGANGUR ER ÓKEYPIS.____________________________________________________________________

FREE AND EASY (SPECIAL VERSION)1994 / 10. MARS KL. 20:00LEIKSTJÓRI: AZUMA MORISAKI. AÐALHLUTVERK: TOSHIYUKI NI-SHIDA, RENTARÔ MIKUNI OG ERI ISHIDA.

Sérstök útgáfa af vinsælli gaman-seríu sem byggð er á japanskri „manga“ um tvo veiðifélaga, Densuke og Ichinosuke yfi rmann hans og uppátæki þeirra. Í þessari mynd fer Densuke að gruna að Ichinosuke haldi við konu sína og einsetur sér að komast til botns í málinu.

ALWAYS: SUNSET ON THIRD STREET 22007 / 11. MARS KL. 20:00LEIKSTJÓRI: TAKASHI YAMAZAKI.AÐALHLUTVERK: MAKI HORIKITA, HIDETAKA YOSHIOKA, KOYUKI OG SHINICHI TSUTSUMI.

Fjölpersónusaga um ástir og örlög nokkurra íbúa í einu af verkamannahverfum Tókýó. Sagan gerist 1959 þegar japanska efnahagsundrið er í uppsiglingu.

HR. KATSUHIRO NATSUMEFRÁ SENDIRÁÐI JAPANS

MUN HALDA STUTT ERINDI VIÐ UPPHAF JAPANSKRA DAGA,

FIMMTUDAGINN 10. MARS KL. 19:30.

ALLIR VELKOMNIR MEÐAN HÚSRÚM LEYFIR.

Page 7: Bíó Paradís

MARS 2011 / JAPÖNSK KVIKMYNDAHELGI / BLS 7

SOUTH BOUND2007 / 12. MARS KL. 20:00LEIKSTJÓRI: YOSHIMITSU MORITAAÐALHLUTVERK: ETSUSHI TOYOKAWA, YÛKI AMAMI, SHUTO TANABE OG KEIKO KITAGAWA.

Lífi ð og efnahagsástandið eru ekki nægilega kurteis við Uehara fjölskylduna í Tókýó að þeirra mati og þau ákveða að fl ytja til smáeyjar undan strönd Okin-awa. Þau setjast að í yfi rgefnu húsi en brátt kemur babb í bátinn þegar verktakar vilja fjölskyld-una burt úr húsinu. Fjölskyldan ákveður að standa sameinuð um að verja heimili sitt.

CHIBI MARUKO-CHAN1990 / 13. MARS KL. 16:00LEIKSTJÓRI: TSUTOMU SHIBAYAMA.

Teiknimynd byggð á vinsælum

teiknimyndasögum sem fjalla um hina 9 ára Chibi Maruko-chan og uppátæki hennar í skólanum.

TORA-SAN TO THE RESCUE1995 / 13. MARS KL. 20:00LEIKSTJÓRI: YOJI YAMADA. AÐAL-HLUTVERK: KIYOSHI ATSUMI, RURIKO ASAOKA OG HIDETAKA YOSHIOKA.

Síðasti hluti frægrar kvikmynda-seríu. Nostalgísk og hjartahlý kómedía um ástarraunir og tilheyrandi misskilning. Atsumi Kyoshi (Tora-san) var afar dáður í Japan og syrgður af allri þjóð-inni við andlát sitt skömmu eftir frumsýningu þessarar myndar.

Uehara fjölskyldan stendur fast á sínu í South Bound.

AÐEINS SÝNDAR10.-13. MARSÓKEYPIS AÐGANGUR!

Page 8: Bíó Paradís

JACQUES DEM

LES PARAPLUIES DE CHERBOURGREGNHLÍFARNAR Í CHERBOURG, 1964

Hin klassíska söngvamynd um unga elskendur sem ná ekki að eigast. Tónlist Michel Legrand er sem sætasta hunang. Hlaut Óskarsverðlaunin sem besta erlenda myndin á sínum tíma og gerði Catherine Deneuve að stjörnu.

18.-20. MARS

LOLA / LOLA, 1

Roland, ungur maað fóta sig í lífi nuann Lolu og verðuHún ber hinsvegabarnsfaðir hennarhún var ólétt, snúitil dans- og söngveinnig til leikstjóraÓtrúlega vel heppfegurð og eftirsjá.

4.-6. MARS

LA BAIE DE ANGES / ENGLA Jackie og Jean eru ung og ástfan

Þau eru einnig langt leidspilafíklar. Ástin blómstfyrstu og heppnin er mespilavítinu. En hvað gelukkan snýst gegn þeimfara að tapa peningumJeanne Moreu.

11.-13. MARS

gÞasspfyf rssplluffaJJeJJJ

BLS 8 / JACQUES DEMY MÁNUÐUR / MARS 2011

HVER MYND SÝND ÞRISVAR UM SITTHVORA HELGI

Page 9: Bíó Paradís

MY MÁNUÐUR!960

aður sem á erfi tt með , hittir kabarettdansar-

ur ástfanginn af henni. ar þá von í brjósti aðr sem yfi rgaf hana þegar i aftur. Myndin er hyllingvamynda Hollywood en ans Max Ophuls. pnuð frumraun, full af . Með Anouk Aimeé.

LES DEMOISELLES DE ROCHEFORTSTÚLKURNAR FRÁ ROCHEFORT, 1967

Tvíburasysturnar Delphine og Solange búa í hafnarbænum Rochefort þar sem þær kenna dans og söng. Þær dreymir um að slá í gegn í tónlistarheiminum og fi nna ástina í lífi sínu en átta sig ekki á að „hinir einu réttu“ eru beint fyrir framan nefi ð á þeim.

7

ans í

a ástitinaaaana íííííííííí lllllllllll fifiífifiífiífiífiífiífiífi

AFLÓI, 1962gin. ddir rar í eð þeim í

erist þegar m og þau m? Með

MARS 2011 / JACQUES DEMY MÁNUÐUR / BLS 9

Í SAMVINNU VIÐ ALLIANCE FRANCAISE

JACQUES DEMY

er algerlega sér á parti meðal evrópskra leikstjóra, róman-tíker og fagurkeri sem unni dans- og söngvamyndum Hollywood en tók þá hefð og gerði að sinni með ómótstæði-legri blöndu angurværðar og lífsgleði.

25.-27. MARS

Page 10: Bíó Paradís

ÞÝSKIR KVIKMYNDADAGAR17.-27. MARSÞað er okkur sérstök ánægja að kynna Þýska kvikmyndadaga frá 17.-27. mars í samvinnu við RIFF, Goethe Institut, Þýsk-íslenska versl-unarráðið, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og RÚV. Flestar myndirnar fjalla á einn eða annan hátt um ungt fólk á krossgötum.Opnunarmyndin er Poll (Dagbækurnar frá Poll) eftir Chris Kraus en sérstök dagskrá verður með myndum hans. Kraus hlaut verðlaun á RIFF 2007 fyrir kvikmyndina Vier Minuten (Fjórar mínútur). Alls verða sýndar tíu nýjar og nýlegar myndir frá þessu forna kvikmyndaveldi, sem á undanförnum árum hefur gengið í gegnum hressilega endurnýjun lífdaganna. Myndirnar eru sýndar með enskum texta. Sýningartíma má fi nna á www.bioparadis.is

BLS 10 / NÝJAR ÞÝSKAR MYNDIR / MARS 2011

Sibel Kekilli leikur Umay, unga konu af tyrkneskum uppruna, sem þarf að berjast við fjölskyldu sína fyrir sjálfstæði sínu í Die Fremde (Hinum ókunnugu).

Page 11: Bíó Paradís

MARS 2011 / NÝJAR ÞÝSKAR MYNDIR / BLS 11

DREI(ÞRÍHYRN-INGUR) 2010LEIKSTJÓRI: TOM TYKWER. AÐAL-HLUTVERK: SOPHIE ROIS, SEBASTIAN SCHIPPER OG DEVID STRIESOW.Eftir glæsilegan feril á alþjóða-vettvangi snýr Tom Tykwer aftur til heimalandsins með þessu gamandrama um par á fi mmtugs-aldri sem verður ástfangið í sitthvoru lagi af sama manninum! Upphefst mikið leynimakk en málin fl ækjast enn frekar þegar konan verður ólétt.

DIE FREMDE (HINIR ÓKUNNUGU) 2010LEIKSTJÓRI: FEO ALADAG. AÐAL-HLUTVERK: SIBEL KEKILLI, NIZAM SCHILLER OG DERYA ALABORA.Umay er ung kona af tyrkneskum uppruna sem berst fyrir því að fá að lifa sjálfstæðu lífi í Þýska-landi gegn vilja fjölskyldu sinnar. Barátta hennar leiðir til mikilla átaka innan fjölskyldunnar og setur líf hennar í hættu.

LILA, LILA2009LEIKSTJÓRI: ALAIN GSPON-ER. AÐAL-HLUTVERK: DANIEL BRÜHL, HANNAH HERZPRUNG OG HENRY HÜBCHEN.

Gamanmynd um þjóninn David

sem fi nnur óútgefi ð handrit í kommóðuskúffu. Til að ganga í augun á stúlku heldur David því fram að hann sé höfundur handritsins. Þegar handritið verður að metsölubók birtist raunverulegur höfundur þess og byrjar að taka yfi r líf David. Íslandsvinurinn Daniel Brühl fer með aðalhlutverk.

RENN, WENN DU KANNST (HLAUPTU EF ÞÚ GETUR) 2010LEIKSTJÓRI: DIETRICH BRÜGGE-MANN. AÐALHLUTVERK: ROBERT GWISDEK, JACOB MATSCHENZ OG ANNA BRÜGGEMANN.Ben þarf að eyða restinni af ævinni í hjólastól. Ástin er ekki inni í myndinni fyrir fatlað fólk, tjáir hann Christian, sjálfboða-liða sem aðstoðar hann við dag-leg störf. Annika er að læra að spila á selló og Ben fylgist með henni hjóla fram hjá íbúðinni sinni á hverjum degi. Það er ekki fyrr en Christian rekst á Anniku fyrir utan íbúðina að þau þrjú kynnast, verða vinir og loks ástfangin. Þessi ástarþríhyrningur á eftir að reyna á vináttu þeirra allra.

(framhald á næstu síðu)

Page 12: Bíó Paradís

BLS 12 / NÝJAR ÞÝSKAR MYNDIR / MARS 2011

SASCHA2010LEIKSTJÓRI: DENNIS TODOROVIC. AÐAL-HLUTVERK: SASCHA KEKEZ, PRE-DRAG BJELAC OG LJUBISA GRUICIC.

Sascha er miður sín þegar píanókennarinn hans, herra Weber, segir honum að hann sé að yfi rgefa bæinn fyrir fullt og allt. Sascha er í ástarsorg og eina manneskjan sem hann getur treyst fyrir tilfi nningum sínum er Jiao, besta vinkona hans. Sascha er ánægður með að pabbi hans, sem haldinn er mikilli hommafóbíu, haldi að Jiao sé kærastan hans. Málin fl ækjast hins vegar svo um munar þegar yngri bróðir Sasha byrjar í ástarsambandi með Jiao.

GOETHE!2010LEIKSTJÓRI: PHILIPP STÖL-ZL. AÐAL-HLUTVERK: ALEXANDER FEHLING, MIRIAM STEIN OG MORITZ BLEIBTREU.Mótunarár hins þýska höfuð-skálds fá hér skemmtilega meðferð. Áður en Johann Wolf-gang von Goethe skrifaði Raunir Werthers unga, einhverja áhrifa-mestu bók um ástarfl ækjur og -sorgir sem skrifuð hefur verið,

gekk hann sjálfur í gegnum eldskírn sem er viðfangsefni þess-arar myndar. Hinn ungi Goethe slær slöku við í náminu og fær sér vinnu hjá dómara. Hann heldur áfram að skrifa gegn vilja föðurs síns og dag einn hittir hann hina dásamlegu Lotte. Ástarbál blossar upp milli þeirra en vandinn er að hún hefur verið lofuð öðrum. Þessi uppákoma átti eftir að breyti gangi bók-menntasögunnar.

DER MANN DER ÜBER AUTOS SPRANGMAÐURINN SEM STÖKK YFIR BÍLALEIKSTJÓRI: NICK BAKER-MONTEYS. AÐALHLUTVERK: ROBERT STAD-LOBER, JESSICA SCHWARZ OG PETER BECKERUngur maður trúir því að með því að labba frá Berlín til Stuttgart geti hann læknað föður vinar síns sem þjáist af hjarta-sjúkdómi.

Page 13: Bíó Paradís

MARS 2011 / NÝJAR ÞÝSKAR MYNDIR / BLS 13

Í BRENNIDEPLI:

CHRIS KRAUSer einhver athyglisverðasti

leikstjóri Þjóðverja um þessar mundir. Er skemmst að minnast

myndar hans Vier Minuten (Fjórar mínútur) sem farið hefur

sigurför um heimsbyggðina og var m.a. verðlaunuð á RIFF

hátíðinni 2007. Við sýnum hana, auk nýjustu myndar

hans, Poll, og eina eldri að auki.

............................

VIER MINUTEN (FJÓRAR MÍNÚTUR) 2005Örlög tveggja kvenna fl éttast saman í sögu sem vekur upp spurningar um tilgang lífsins, frelsi, köllun og hæfi leika. Fortíð beggja geymir leyndarmál sem hafa mótað þær og fjötrað.

POLL (OPNUNARMYND)(DAGBÆKURNAR FRÁ POLL) 2010Oda, ung stúlka af þýskum aðalsættum, snýr aftur til ættaróðals fjölskyldunnar við Eystrasaltið eftir lát móður sinnar. Fyrri heimsstyrjöldin er skammt undan. Oda rekst á ungan og særðan eistneskan stjórn-leysingja og ákveður að hjúkra honum með leynd, vitandi um áhættuna sem fylgir.

............................................................

SCHERBENTANZ(GLERBROT) 2002Jesko er með krabbamein og aðeins beinmergur móður hans getur bjargað honum. Vandinn er að hún trufl aðist á geði 20 árum fyrr, yfi rgaf Jesko og gerðist dópisti.

Page 14: Bíó Paradís

BLS 14 / FASTIR LIÐIR / MARS 2011

FASTIR LIÐIROG SÉRSÝNINGAR____________________________________________________________________

Í HVERJUM MÁNUÐI BÝÐUR BÍÓ PARADÍS UPPÁ SÉRSTAKAR DAGSKRÁR ÞAR SEM SÝNDAR ERU KVIKMYNDIR UM MARGVÍSLEG AFMÖRKUÐ EFNI. VERÐ ER OFT LÆGRA Á ÞESSAR SÝNINGAR OG ÖLLUM ER HEIMILL AÐGANGUR.____________________________________________________________________

ÚRBANIKKAKVIKMYNDIR OG ARKITEKTÚR.8. MARS:MON ONCLEJacques Tati, 1958Herra Hulot berst hetjulegri en von-lausri baráttu við nútímatækni.

FOOD AND FUNSÉRVIÐBURÐUR.12. MARS KL. 16:30:AMAZING ICELAND (FRÍTT INN)Kynningarmynd um náttúru Íslands. Matur og drykkur.

ÞJÓÐKIRKJANSÉRVIÐBURÐUR.14. MARS KL. 20:LIILJUR VALLARINS (FRÍTT INN)Þorsteinn Jónsson, 2010Sr Gunnar Kristjánsson og söfnuður hans í Kjósinni.

HUGVÍSINDAMARSSÉRVIÐBURÐUR.19. MARS KL. 13:LA CIÉNAGA (FRÍTT INN)Lucrecia Martel, 2001Hitabylgja þrúgar tvær fjölskyldur í þessu meistaraverki frá Argentínu.

SLÓÐAVINIRSÉRVIÐBURÐUR.23. MARS:ÓNEFND VÉLHJÓLAMYNDFerða- og útivistarfélagið Slóðavinir.

MINI-CINÉÓHÁÐAR, “MICROCINEMA”24. MARS:NÁNAR AUGLÝST SÍÐAR.

ZARDOZSCI-FI MYNDIR.25. MARS:THE TERMINATOR / ROBOCOPTvöföld sýning (double bill) á þessum klassísku sci-fi myndum Cameron og Verhoeven frá 1984 og 1987.

ARNARHREIÐRIГKÖLT”MYNDIR.26. MARS:FISTFUL OF DYNAMITESergio Leone, 1971James Coburn og Rod Steiger töffarast í Mexíkó.

KINO-KLÚBBURINNTILRAUNAMYNDIR, “AVANT-GARDE”.27. MARS:NÁNAR AUGLÝST SÍÐAR.

ÞÖGLAR MYNDIRMEÐ ODDNÝJU SEN KVIKM.FRÆÐINGI.31. MARS:DER LEITZTE MANN (Sá hlær best...)F.W. Murnau, 1924Aldraður dyravörður missir starf sitt og uppsker neikvæð viðbrögð frá fjölskyldu, vinum og samfélaginu. Oddný Sen fl ytur stutt erindi á undan sýningu myndarinnar.

Page 15: Bíó Paradís

MARS 2011 / CHRISTINE VACHON / BLS 15

CHRISTINE VACHONFRAMLEIÐANDI____________________________________________________________________

CHRISTINE VACHON ER EINN KUNNASTI FRAMLEIÐANDI ÓHÁÐRA KVIKMYNDA Í BANDARÍKJUNUM. MEÐAL MYNDA SEM HÚN HEFUR FRAM-LEITT MÁ NEFNA FAR FROM HEAVEN, BOYS DON’T CRY (HLAUT ÓSKARS-VERÐLAUN), ONE HOUR PHOTO, HAPPINESS, VELVET GOLDMINE, SAFE, I SHOT ANDY WARHOL, GO FISH, OG I’M NOT THERE. ____________________________________________________________________

Það er okkur sérstök ánægja að kynna heimsókn hins kunna kvikmyndaframleiðanda Christine Vachon, í samvinnu við Kvikmyndamiðstöð Íslands. Vachon mun fl ytja sérstakan fyrirlestur fyrir kvikmyndafram-leiðendur og ræða um framleiðslu óháðra kvikmynda í heiminum í dag.

Föstudagskvöldið 25. mars kl. 20 verður Vachon viðstödd sýningu myndarinnar BOYS DON’T CRY (leikstjóri: Kimberley Pierce) sem hún framleiddi 1999, en Hilary Swank hlaut Óskarsverðlaunin fyrir aðalhlutverk þeirrar myndar. Vachon mun svara spurningum áhorfenda eftir sýningu.

Jafnframt munum við sýna þrjár aðrar kvikmyndir sem Vachon hefur framleitt, helgina 25.-27. mars:

FAR FROM HEAVENTODD HAYNES, 2002ONE HOUR PHOTOMARK ROMANEK, 2002THEN SHE FOUND MEHELEN HUNT, 2008

EKKI MISSA AF ÞESSU!

Sjá sýningartíma á bioparadis.is og midi.is.

Page 16: Bíó Paradís