uppskriftir úr þætti 8 í grillsumrinu mikla

Post on 01-Apr-2016

239 Views

Category:

Documents

0 Downloads

Preview:

Click to see full reader

DESCRIPTION

Uppskriftir úr þætti 8 í Grillsumrinu Mikla

TRANSCRIPT

Uppskriftir

8. þáttur

BBQ Ribeye Grillsamloka• 2 stk Ribeye steikur 225gr. (Skåre)• 4 stk hamborgarabrauð, stór• ½ gúrka• 3 msk ylliblómaedik frá Meyers• 1 msk sykur• 3 stk laukar• 4 msk Hunt’s Hickory BBQ sósa• 4 portobello sveppir• 4 sneiðar feitur ostur (t.d Ísbúi)• 2 stk heilsutómatar stórir, sneiddir• 4 stór blöð Íssalat• Filippo Berio ólífuolía• Meyers eplaedik• Japanskt mayonnaise• Hunt’s sinnep• salt og pipar

Grillað kartöflusalat• 700 gr íslenskar kartöflur (helst Gullauga)• 3 msk Lehnsgaard sinnep, stærk• safi og börkur úr ½ sítrónu• 100 ml ólífuolía• 50 gr súrar gúrkur• 40 gr blaðlaukur, saxaður• 15 gr piparrót, rifin• 20 gr dill, saxað• gróft sjávarsalt og svartur pipar

1.Aðferð:Skerið gúrkuna í þunnar sneiðar og setjið sykur, smá salt og ylliblómaedik saman við, látið standa í um 30 mín og hellið þá vökvanum af.Afhýðið laukana, skerið til helminga, dressið með ólífuolíu og salti og grillið í 30 mín eða þar til þeir eru orðnir vel mjúkir í gegn (notið efri grindina á grillinu eftir fyrstu 10 mínúturnar). Skerið þá í þunna strimla og hrærið saman með BBQ sósunni.Kryddið steikurnar með salti og pipar, grillið í 2 mínútur á hvorri hlið og látið svo hvíla í 4 mínútur. Skerið steikurnar í 5mm þykkar sneiðar.Dressið portobello sveppina með olíu, salti og ögn eplaediki, grillið á ávalari hliðinni í 2 mínútur, snúið svo við og setjið ostinn ofan á og grillið þar til osturinn hefur bráðnað.Skerið og grillið brauðin í stutta stund og setjið samlokuna saman í þessari röð frá botni.Majónes og BBQ lauksultan sett á brauðbotninn, leggið salatblað og tómatsneiðar þar ofan á, því næst kemur kjötið í sneiðum svo portobello sveppurinn og að lokum gúrku- sneiðarnar. Að endingu fer smá sinnep í brauðlokið, það ofan á og þá er samlokan klár.

2.

3.

4.

5.

1.

2.

3.

Aðferð:Grillið kartöflurnar þar til þær eru orðnar mjúkar og skerið svo í jafnstóra bita.Hrærið saman sítrónusafa, sinnepi og ólífuolíu. Smakkið til með salti og pipar.Saxið létt yfir súru gúrkurnar og blandið svo öllu vel saman í skál og berið fram.

Vín: Adobe Reserva Carmenere / Lífrænt ræktaðLýsing: Hér er kröftugt og bragðmikið vín, ilmur af kirsu-berjum, kryddi, einkum svörtum pipar. Flauelsmjúk tannín með góðan þroska og gott jafnvægi.Með mat: Frábært vín með BBQ.

Marengs eftirréttur• 1 stk kókosmarengsbotn• 4 stk kókosbollur• ½ ltr rjómi, léttþeyttur• 2 stk bananar

Kjúklingasalat• 1 pk kjúklingalundir frá Rose Poultry• 3 msk Caj P hunangs grillolía• 1 poki romaine salat (eða 2 hausar)• 12 stk kirsuberjatómatar, skornir til helminga• ½ rauðlaukur, saxaður• 50 gr Crousti brauðteningar• 2 msk ristuð graskersfræ• 50 gr Parmareggio

Aðferð: Pennslið kjúklingalundirnar með Caj P grillolíunni og skellið á heitt grillið í 2-3 mín á hvorri hlið.Lagið salatdressinguna og hrærið henni vel saman við gróft saxað romaine salatið.Raðið kjúklingnum, rauðlauknum og tómötunum ofan á salatið, einnig brauðteningum og gras-kersfræjum og setjið að lokum rifinn parmesan ost yfir.

1.

2.

3.

Salatdressing:• 120 gr japanskt mayonnaise• 3 msk skyr• 1 msk kapers• 20 gr graslaukur, saxaður• 50 gr Parmareggio, rifinn• safi úr 1 sítrónu• salt og pipar

Vín: Lamberti Pinot GrigioLýsing: Ótrúlega ferskt og ávaxtaríkt vín þar sem melónur, perur og blóm eru áberandi. Einnig má finna smá hunang í nefi.Með mat: Létt og góð sýra sem gerir vínið að áhuga-verðu matarvíni með léttum réttum eins og salati.

top related