leikur að lifa 1 réttindi og skyldur á vinnumarkaði réttindi og skyldur fara saman!
Post on 22-Dec-2015
244 views
TRANSCRIPT
Leikur að lifa 1
Réttindi og skyldur á vinnumarkaði
Réttindi og skyldur fara saman!
Leikur að lifa 2
14. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði
• Lykilspurningar:– Hvaða réttindi hef ég á vinnumarkaðnum? – Hvaða skyldur hef ég á vinnumarkaðnum?
Leikur að lifa 3
Heimildir
• Heimildir eru úr lögum, af vef ASÍ, VR og fleiri félaga.
Leikur að lifa 4
Stéttarfélag/verkalýðsfélag
• Félag sem vinnur að sameiginlegum hagsmunum félagsmanna sem tengjast vinnumarkaði.
• Semur um kaup og kjör, vinnutíma, orlof o.fl. • Ekki er lagaleg skylda að vera í stéttarfélagi
– en til þess að njóta réttinda og þjónustu þeirra þarf að vera félagsmaður.
Leikur að lifa 5
Aðili að stéttarfélagi
• Fær þar ýmsa aðstoð:– Samið er um ýmis réttindi fyrir hann.
• Ýmis réttindi eru einnig tryggð í lögum.
– Hjálp ef brotið er á honum.– Hjálp er fyrirtækið sem hann vinnur hjá verður
gjaldþrota. – Aðstoð vegna sjúkdóma.– Margir fá niðurgreidd orlofshús.– O.fl.
Leikur að lifa 6
Ráðningarkjör
• Ráðningarkjör fara eftir: – því sem um semst milli stéttarfélags og
vinnuveitenda. – beinum samningi starfsmanns og
fyrirtækis.– almennum lögum og reglum.
Leikur að lifa 7
Ólögleg ráðningarkjör
• Ekki má semja um lægri laun en samningar í viðkomandi stétt kveða á um.– Gildir líka þó að starfsmaðurinn standi utan
stéttarfélagsins.
• Ekki má semja um færri frí- og veikindadaga, styttri hvíldartíma og fleira slíkt.
• Bannað er að mismuna fólki á grundvelli kynferðis, þjóðernis o.fl.
Leikur að lifa 8
Réttindi og skyldur
• Réttindi starfsmanns aukast eftir því sem hann vinnur lengur á sama stað.
• Skyldurnar aukast líka. • Til dæmis þarf að segja upp
ráðningarsamningi á báða bóga. • Uppsagnarfrestur er samningsbundinn,
hann er jafnan stystur fyrst en lengist svo.
Leikur að lifa 9
Ráðningarsamningur
• Gagnkvæmt loforð – nokkur atriði: – Starfsmaðurinn ætlar að
• mæta samviskusamlega í vinnuna. • vinna þau störf sem hann var ráðinn til af kostgæfni og
samviskusemi, án þess að tefla sér eða öðrum í óþarfa hættu.
– Vinnuveitandinn á að• greiða starfsmanninum umsamin laun á umsömdum
útborgunartíma.• standa skil til viðeigandi aðila á gjöldum sem hann
dregur frá laununum.• sjá starfsmönnum fyrir viðeigandi vinnuaðstöðu og
vinnuumhverfi.
Leikur að lifa 10
Vinnuvernd
• Sameiginleg ábyrgð starfsmanna og atvinnurekanda.
• Undir vinnuvernd fellur:– Öryggi– Hollustuhættir – Starfsaðstaða
• T.d. vinnuvistvæn
– Andleg líðan• T.d. einelti
– O.fl.
Leikur að lifa 11
Hvíld
• Lágmark 11. klst. samfelld hvíld hverjar 24 klst.
• Einn hvíldardagur í viku í beinu framhaldi af daglegri lágmarkshvíld.– 35 klst. samfelld hvíld.
• Hámarksvinnutími á viku er að jafnaði 48 klst.
• Frítökuréttur skapast þegar dagleg lágmarkshvíld er skert en hvíldina má ekki skerða þannig að hún verði minni en 8 klst.
Leikur að lifa 12
Virkur vinnutími
• Starfsmaður á að vera til staðar, vera tiltækur fyrir vinnuveitanda og vera við störf.
• Þar inni eru ekki:– Kaffi- og matartímar.– Ferðir til og frá vinnu.– Bakvaktir, kallvaktir, gæsluvaktir. – Sérstakir frídagar. – Orlof umfram lögbundið lágmarksorlof, þ.e.
umfram 24 daga.
Leikur að lifa 13
Vinnuhlé
• A.m.k. 15 mín. hlé ef vinnutími er lengri en 6 klst.
Leikur að lifa 14
Laun og kjör
• Eiga að vera lágmarkskjör, óháð – kyni, – þjóðerni – ráðningartíma
• fyrir alla launamenn í tiltekinni grein.
Leikur að lifa 15
Veikindaréttur
• Á fyrsta ári á starfsmaður tvo daga fyrir hvern unninn mánuð.
• Starfsmaður á rétt á einum mánuði eftir eitt ár í starfi.
• Mikilvægt er að tilkynna veikindi. – Þetta eru ekki fastir frídagar.– Hvað ef eitthvað alvarlegt kemur fyrir?
• Stéttarfélag og/eða Tryggingastofnun greiða veikindi til lengri tíma.
Leikur að lifa 16
Lífeyrissjóður
• Skylda frá 16 ára aldri til 70 ára. • Viðkomandi ávinnur sér rétt til að fá ákveðnar
greiðslur við – starfslok – skerta vinnugetu
• aldur• örorka
• Eftirlifandi maki eða börn fá greiðslur þegar sjóðfélagi deyr.
• Greiðsla úr lífeyrissjóði er í hlutfalli við framlag. • Vinnuveitandi greiðir mótframlag.
Leikur að lifa 17
Viðbótarlífeyrissparnaður
• Val.
• Markmið að búa sig undir betri lífskjör þegar starfsævi lýkur.
Leikur að lifa 18
Tryggingastofnun ríkisins
• Sér m.a. um ellilífeyri og örorkubætur.
Leikur að lifa 19
Laun
• Semdu um þau áður en þú byrjar að vinna.
• Allir þurfa að fylgjast með yfirlitum frá lífeyrissjóði sínum.
• Ef greiðslum sem eru dregnar af launum er ekki skilað inn gengur lífeyris-sjóðurinn sjálfur í málið.
Leikur að lifa 20
Heildarlaun
• Öll þau laun sem maður vinnur sér inn– Dagvinna– Yfirvinna– Vaktaálag– Stórhátíðavinna á sérstöku álagi– Bakvaktir o.s.frv.
Leikur að lifa 21
Stéttarfélag
• Reiknað af heildarlaunum.
• Vinnuveitandi greiðir mótframlag bæði í stéttarfélag og lífeyrissjóð.
Leikur að lifa 22
Opinber gjöld
• Tekjuskattur – Prósenta sem ákveðin er af ríkissjóði og rennur í hann til að
standa straum af ríkisrekstri. • Útsvar
– Prósenta ákveðin af sveitarfélagi þar sem launþeginn á lögheimili, þó að reglur séu um hámark og lágmark.
– Nýtt til að reka sveitarfélögin.• Tekjuskattur + útsvar = staðgreiðsla
– Persónuafsláttur er dreginn af staðgreiðslunni. • Ákveðinn af yfirvöldum fyrir hvert ár og er sá sami fyrir alla frá
16 ára aldri.
• Útkoman = það sem viðkomandi greiðir í opinber gjöld.
Leikur að lifa 23
Orlof og orlofslaun
• Allir sem eru launþegar eiga rétt á orlofi og orlofslaunum.
• Orlof– Veitt í einu lagi frá 2. maí til 15. september.– Tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð. – Lágmarksorlof 24 virkir dagar á ári.
• Orlofslaun– Orlofslaun að lágmarki 10,17%
Leikur að lifa 24
Útborguð laun
• Heildarlaun
• Þar fer af:– Lífeyrissjóður (skylda).– Auka lífeyrissparnaður (val). – Staðgreiðsla
• að frádregnum persónuafslætti.
– Stéttarfélag (val).
• => útborguð laun.
Leikur að lifa 25
Heiðarleiki
• Mikilvægur hjá vinnuveitendum og launþegum. – Sá sem ræður sig í vinnu á að mæta og
leggja sig fram. – Sá sem ræður annan í vinnu þarf að gera
sanngjarnar kröfur og borga laun og aðrar greiðslur undanbragðalaust.
• Báðir aðilar þurfa þó að standa vörð um rétt sinn og ekki láta snuða sig.